Heimskringla - 20.04.1905, Side 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
| T. THOMAS
♦ lglemkur kaupmadur J
♦ selur líiil oe Kldivid
J Afgreitt fljótt og fullur maslir. *
♦ 537 Ellice Ave. Phone 2620 ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
l
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
| T. THOMAS, KAUPMAPUR |
Ý nroboÐssali fyrir ýms verzlunarfélög ^
Y 1 Winnipec: og Austurfylkjunum, af- ♦
I greiöir alskonar nantanir Islendtnga ♦
T ur nýlendunum, peim aö kostnaöar- ♦
^ lausu. Skrifiö eftir upplýsingum til ▼
J Ellice Ave. - - - Winniþeg ^
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
XIX. ÁR.
WINNIPEG, MANITOBA 20. APRtL 1905
Nr. 28
Arni Egprtsson
671 ROSS AVENUE
Phone 3033. • Winnlpes.
Hér er tækifæri fyrir mann með
®Ö8- $2000.00-^^1
Ég hefi til sölu 320 ekra búgarði
30 mflur frá Winnipeg og eina mflu
frá járnbrautarstöð. 160 ekrur eru
plægðar á landinu og 40 ekrur beiti-
land. Nú sem stendur eru 75 ekr-
ur búnar undir sáningu. A land-
inu er 7 herbergja cement-steypu
hús (concrete) og byggingar yfir75
gripi og 10 hross. Heyskapur er
nógur skamt frá, ágætis vatn og <5-
takmarkað frjálsræði með gripi.—
Kirkja og skóli er þar rétt hjá, og
alt eftir f>vf pægilegt. Verðið er
$22 ekran og $2000 niðurborgun.
Einnig eru gripir hæns og svfn til
sölu. Til frekari upplýsinga skrifið
eða finnið.
Arni Eggertsson
Offlce: Room 210 Mclntyre Blk
Telephone 8364
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
STRIÐS-FRÉTTIR
Frá Tokio kemur sú frétt 11. þ.
m. að stjóm Japana séað auka her-
afla sinn allan og ætli bráðlega að
hafa eina millfón manna á vfgvell-
inum. Þar af skulu 700,000 manns
vera undir vopnum, en hinir 300,-
000 menn eru ákvarðaðir til annar-
ar nauðsynlegrar vinnu, svo sem
flutning matvæla og hergagna og
annars farangurs, einnig til vega-
gerða og byggingu járnbrauta.
Japanar segja blátt áfram, að
hve mikið sem Rússar auki herafla
sinn, þá skuli þeir jafnan verða
Rússum yfirsterkari bæði að mann-
fjölda á vfgveliinum og að vopna
og stórskotaliðs útbúnaði.
Japanar eru staðráðnir í þvf að
taka Harbin herskildi og segjast
aldrei munu láta þá borg lausa aft-
ur. Þeir eru vissir um sigur sinn
þar sem anDarsstaðar. Annars eru
engar fréttir af landhernaðinum á
hvoruga hlið.
Þann 11. þ. m. flaug sú fregn um
vfða veröld, að flotarRússa og Jap-
ana hefðu mæzt og barist og að
Rússar hefðu unnið þar frægan
sigur: sökt 5 bryndrekum Japana.
En næsta dag var fregn þessi bor-
in til baka aftur og fullyrt, að sag-
an hefði verið spunnin upp f Ber-
lin á Þýzkalandi til þess að greiða
fyrir lántöku Rússa, sem sagt er
að hafi gengið illa þar f borginni,
því auðmenn voru búnir að tapa
allri von um, að Rússum mundi
nokkurntíma takast að vinna á
Japönum.
Samtfmis kom sú frétt, og mun
sönn vera, að Rússar f Vladivostock
hafi náð á vald sitt 5 japönskum
herforingjum, sem voru f dular-
búningi f borginni; þeir voru að
taka myndir af vamarvirkjum bæj-
arins, þegar þeir náðust, og voru
tafarlaust hengdir. Skýrslur, sem
fundust í vösum þeirra, sýndu ljós-
lega, að þeir voru þegar búnir að
senda nákvæma skriflega lýsingu af
staðnum og legu vamarvirkjanna
þar og höfðu lofað, að senda mynd-
irnar sfðar. Japanar hafa þvl nú
f sfnum höndum allar nauðsynleg-
ar upplýsingar um staðinn.
Blaðið Toronto Globe, aðalmál-
gagn Liberala f Ontario fylki, segir
þyðingarlaust að draga neinar dul-
ur á, að pólitfska ástandið f Ottawa
sc mjög hættulegt og tvfsýnt. Ekki
svo mjög vegna afskifta sendimanns
páfans af pólitfskum málum rfkis-
ins, heldur vegna þess, að stjórnin
sé að þrengja katólskiim alþ/ðu-
skólum upp á hin 2 nýju fylki 1
Vestur Canada, þvert á mótigrund-
vallarlögum rfkisins. Þessi fregn í
Globe er áreiðanlega sönn og bygð
á þvf, að mjög mikill hluti Liberala
í þingmu er á móti Laurier f skóla-
málinu. Katólskir í Quebec eru
einnig á móti því, af því þeir fá
ekki nógu mikil hlunnindi fyrir
trúbræður sfna f þessum nýju fylkj-
um, þó þeir játi, að þeir fái sér-
staka skóla. Og metodistai* og
aðrir f Vesturlandinu eru á móti
þvf, segja að katólskum mönnum
sé með þessu fyrirkomulagi veitt
alt of mikil hlunnindi. Oséð enn
hver endir hér á verður.
— Þann 4. þ. m. lét Bretastjórn
selja við opinbert uppboð f Chat
ham á Englandi 31 gðmul herskip.
Þau seldust fyrir $690,000. Sölu-
skilmálar voru þeir, að ekkert þess-
ara skipa mætti seljast útlendu
veldi og að þau yrðu öll að vera
eyðilögð innan 12 mánaða frá sölu-
degi. Skip þessi, þegar þau voru
bygð, kostuðu stjórnina 15 milll-
ónir dollara. /
— Hr. Nosse, konsúll Japana í
Ottawa, hefir fcngið skeyti frá
stjórn sinni um, að síðan Japanar
tóku sfðasta peningalán sitt í Lund-
únum fyrir 150 millfónir dollara,
þá hafi stjórnin nægilegt fé til þess
að halda áfram hernaðinum móti
Rússum í næstu 12 mánuðir. Allar
hernaðarskuldir Japana teljast. nú
vera í60 inillfónir dollara.
— Borgarstjóri Gannon f Beau-
dette, Minn., var skotinn 4 skotum,
er leiddu til bana, um síðustu helgi.
Tildrög til þessa voru að hann liafði
látið lögsækja nokkura lögleysingja
þar í bænum. TJt af þessu varð
óánægja mikil meðal þorpsbúa og
haldinu almennur fundur um málið.
Fundurian samþykti að hann skyldi
rækur úr bænum innan fárra kl.-
tfina. Gannon hlýddi ekki þessari
skipun, og beið bana fyrir.
— Nfu bólusjúkir menn liafa
fundist f bænum Chatham N.B., er
fengið höfðu sýkina af fólki
í rfkinu Maine í Bandaríkjunum.
Skiljanlegt er að sýki þessi geti
borist til Manitoba með innflytj-
endum, nema strangrar varúðar sé
gætt.
— Ein af ástæðum Laurier stj.
fyrir þvf að skólafrumvarp hennar
viðvíkjandi nýju fylkjunum sé gott,
er sú, að Frakkl.,ítalía, Austurrfki,
Peru og Ecuador, séu ánægð með
það; en Canada — sem lög þessi
hafa mesta þýðingu fyrir — um það
er ekkert sagt.
— British Columbia stjórnin
hetir fengið lagafrunivarp samþykt
af fylkis-þinginu, sem takmarkar
mjög innflutning Japanfta f fylkið
og bannar að þeim sé veitt at-
vinna við opinber störf f fylkinu
eða nokkur þau verk er fylkis-
stjórnin lætur gera. Frumvarpið
var lagt fyrir þingið sfðasta dag-
inn sem það starfaði og látið ganga
í gegnum alllar (3) umræður og
ná staðfestingu; þykir mörgum að
hér sé beitt ósanngyrni gegn Jöp-
imum, og talið lfklegt að Dominion
stjórnin ónýti lög þessi, ef til
hennar kasta kemur.
— Eldur í bænum Balgonie, N.
W.T., um sfðustu helgi, gerði $70,
000 eignatjón — mikill hluti bæj-
arins eyðilagðist algjörlega.
— Nýlega rann flutningslest C
P.R. félagsins út af spori sfnu vest
ur í klettafjöllum, og ultu þá 4
vagnar, ásamt gufukatlinum, ofan
f Kicking Horse ána, og misti þar
einn maður lffið en annar brotnaði
á öðrum handlegg og báðum fót-
um. Grjótskriða hafði fallið á
sporið og orsakaði það slysið
— ís er nú nýleystur af Rauðá
og Assiniboine á hér við borgina,
en fastur en á Rauðá niður við
vatnið.
Oyama marskálskur
Japaníta.
Síðan styrjöldin hófst í Austur-
álfu hefir ekki verið jafn tfðrætt
um nokkurn mann og Oyama.
Það væri þvf ekki úr vegi, að
gefa lesendum Heimskringlu þó
ekki væri nejna fáorða lýsingu af
manninum.
Flestum ber saman um það, að
aklrei hafi meiri hershöfðingi nokk-
uru sinni uppi verið. Englend-
ingar jafna honum við sinn mikla
Wellington. Amerfkumenn við
sinn George Washington. Þjóð-
verjar við Moltke. ítalar við Gari-
baldi. Frakkar við Napoleon. Og
svo koll af kolli, þvf hver þjóð fyrir
sig álftur jafnan sinn kappa mest-
an og beztan.
Oyama er nú 60 ára að aldri, en
ern í bezta lagi. Manninum er
heldur ckki fysjað saman. Hann
er á fjórðu alin á hæð og saman
rekinn. Hausinn ákaflega stór,
lfkur hnetti f lögun og sítur á svíra
svo miklum sem á nauti væri.
Augun eru svört sem í hrafni, en
framúrskarandi gáfuleg, og svo
hvöss, <ið líkt er sem eklur úr þeim
brenni. Þegar Oyama gerir sfnar
fyrirskipanir, lítur hann ætfð fast á
þann, sem við skipaninni á að taka,
og áðuren tungan talarhafa augun
gefið til kynna, að eitthvað er á
ferðinni; þau tindra sem vfgahnett-
ir, og engum lifandi manni dettur
ur f hug, að liafa á móti því, sem
risinn segir.
Hann er snjall f máli, röddin á-
kaflega sterk og áherzlan ágæt.
Hann talar frönsku og ensku eins
og prófessor ásamt sfnu móður-
máli.
Oyama er af þeim kynflokki kom-
inn, sem kállaður er Kagosliima
flokkur, og eru þeir fjallabúar og
mestir vfgamenn allra Japanfta.
Forfeður Oyama, hver fram af öðr-
um, voru hermenn og hetjur mikl-
ar. Faðir hans lét þvf drenginn
strax á unga aldri venjast við alls-
konar harðneskju. jafnframt fþrótt-
um og vopnaburði, “því hann skal
hershöfðingi og hetja verða,” sagði
faðir hans. Og þetta varð.
Allur hinn mentaði heimur stend-
ur á öndinni af aðdáun yfir hinum
hrausta og slungna Oyama.
1869 var Oyama sendur til Frakk-
lands til að læra alt, sem að hem-
aði lyti. Hann var því þar sem
fulltrúi Japan stjórnar f öllu fransk-
þýzka stríðinu 1870—71. Hann
notaði sér þann tfma vel og ræki-
lega. Hann var þrjú ár í Frakk-
landi og fór svo heim til Japan.
Tók hann þá strax til starfa að
koma sem beztu fyrirkomulagi á
hermál eyjarskeggja, og hefir nú f
meir enn þrjá tugi ára unnið að
því hvfldarlaust, að gera Japanfta
það sem þeir eru, nefnilega: beztu
hermenn, sem til eru á hnettinum.
Hann var hermálaráðgjafi Japana
í 12 ár og hafði þvi nokkurn vegin
frfar hendur með að fá frá stjórn-
inni þau skildingaráð, sem hafa
þurfti, til þess að standast kostn-
aðinn við að æfa drengina.
Kona Oyama er einhver hin
mesta mentakona, sem til er í Jap-
an. Hún fékk mentun sína hjá
Samúel frænda, og gaf hann henni
heiðurspening fyrir góðar gáfur og
kvennlegar dygðir, þegar þau
skildu. Hjónaband marskálksins
og hennar hefir verið hið elskuleg-
asta, og eiga þau 3 börn, tvo syni
og eina dóttir. Enska er töluð f
húsi þeirra, sem sagt er að sé hið
skrautlegasta f borginni Tokio, —
að undantekinni höll keisarans.
Alt er þar ameríkst: hljóðfæri,
borðbúnaður, stólar, Ixirð, bóka-
skápar m. m.
Þetta er stutt lýsing af hinum
mikla manni, sem svo dásamlega
berst fyrir föðurland sitt og rekur
á flótta hinn grimma rússneska
björn, sem hafði hugsað sér að
leggja undir sig alla Asíu, svo hann
gæti sogið blóðiðúr sonumogdætr-
um hálfrar annarar heimsálfu.
Honum nægði ekki blóð úr 150,-
000,000. Hann vildi bæta við sig
400,000,000. Blóðþyrstur er rúss-
neski björninn. s. J. A.
Skapti Jósephsson dáinn.
Látinn er á Seyðisfirði þann 15.
marz sl. cand. phil. Skapti Jósephs-
son, ritstj. Austra, 65 ára gamall,
fæddur 17. júní 1839. Banamein
langvinn brjóstveiki.
íslendingurinn við Harvard.
Það er að eins einn íslenzkur
nemandi nú við Harvard háskól-
ann sfðan Þorvaldur heitinn Þor-
valdsson lézt— hr.Vilhjálmur Stef-
ánsson. Hans hefir áðurverið get-
ið f Heimskringlu, og meðalannars,
að hann hafi gengist fyrir og komið
á fræðimanna leiðangri til íslands,
er leggur af stað í þá ferð 25. maí
næstkomandi.
Vilhjálmur útskrifaðist vorið
1903 frá ríkisháskólanum f Iowa
City og hefir sfðandvalið þar eystra.
Haustið 1903 innritaðist hann við
Harvard University í guðfræðis-
deildina, en lagði svo guðfræðis-
nimið niður árið eftir og tók próf í
fi rnfræði. Alt sfðastliðið ár hefir
L-uiiíi • oint fornfræðinni einverð-
ungu.
Nú eftir nýkominni frétt að aust-
an liefir hann verið skipaður próf-
stjóri (exam. Proctor) í þessari
sömu grein, og fyrir næstkomandi
ár aðstoðar kennari f mannfræði
(Anthropology). Eru allar lfkur til
að hann nái þar fastari sessi áður
en mörg ár Ifða, en enn þá er orðið,
eiula er hann hvorttveggja g&fu og
reglumaður.
Islendingar mega gleðjast yfir
velgengni þesSa eina landa þar
eystra, enda það sem einum þokar
áfram er vor allra heill. R. P.
Winnipeof.
Dáin 12 þ. m. Mrs. Valgerður
Skaptason, kona Magnúsar J.
Skaptasonar prests. Foreldrar
hennar voru þau Sigurgeir Jóns-
son, af liinni svokölluðu Reykja-
hlfðarætt, og Ólöf Gabrfelsdóttir
Var hún fædd árið 1855; giftist svo
Magnúsi 1876, og áttu þau saman
4 börn, sem nú lifa hér í Amerfku:
Ólöfu, konu Magnúsar læknis Hall-
dórssonar í Souris; Önnu, Fanny
og Jósep; en hið 5. dó á íslandi.
Síðustu ár æfi sinnar var hún biluð
að heilsu og fluttist loks fyrir ári
sfðan til tengdasonar sfns Magnús-
ar læknis Halldórssonar f Souris til
að njóta læknishjálpar og hjúkrun-
ar dætra sinna tveggja. En sjúk-
dómur hennar var þá ólæknandi
orðinn, og fékk hún þar loksins
hvfld þá, sem hún svo lengi var
búin að óska eftir.
Jón M. Ólafsson frá Sandyland,
Man., kom til bæjarins um fyrri
helgi og heldur til á Fort Rouge
hótellinu hér í bæ. Hann b/st við
að dvelja hér lengst af komandi
sumri.
Bergur Jónsson frá Baldur kom
hér f bæ um síðustu helgi. Hann
var á leið til Foam Lake, þar sem
hann hefir tekið land ásamt nokkr-
um öðrum mönnum þar úr bygð-
inni. Sáning er nú alment byrjuð
þar í bygð. Bergur hefir dvalið 3
ár f Argyle og lætur bið bezta yfir
bygðinni og fólki þar. Hann biður
Heimskringlu að bera kveðju sfna
til fyrri húsbænda sinna þar.
PIANOS og ORGANS.
Heintzman & C«. Pianos.-JBell Orgel.
Vór seljum med mátiaðarafborgunarskilmálum.
J. J. H- McLEAN & CO. LTD.
S30 MAIN St. WINNIPEG.
NEW Y0RK LIFE
Insurance Co.i,“
Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf
ári seldust 185,367 lífsábyrgðar skýrteini að upphæð
$342,212.569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millíón-
um meira, en nokkurt annað lffsábyrgðarfélag hefir selt
á nokkru undanförnu ári. — Nærri 20 millfónir dollara
var borgað fyrir 6000 dánarkröfur, Yfir 20 mill. til lif-
andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út á skýrteini
'þeirra móti 5 prócent árlegum vöxtum. — Inntektir fél.
hækkuðu um millfón. — Sjóður þess hækkaði um 38
millfónir, er nú $390,660,260,— Lffsábyrgð í gildi hækk-
aði um $183,396,409. Öll lffsábyrgð I gildi 1. Jan. 1905
$1,928,609,308.
CHR. ÓLAFSSON,
AGENT.
WlNNIPEG
J. G. MORGAN,
MANAGER
Tveir menn hröpuðu niður af
nýja C.P.R. hótellinu hér í bænum
í sl. viku og biðu bana af.
Viltu fó vinnu.
Gætinn, duglegur, ráðvandur,
einhleypur karlmaður getur fengið
ágæta vinnu með því að snúa sér
tafarlaust t’l Niculásar Össurarson-
ar f River Park.
Vér leiðum athygli lesendanna
að auglýsingu A. G. McDonald &
Co. í þessu blaði. Þeir félagar leiða
gas eða rafmagnsljós í hús manna
og gera ágætt verk, og talsvert ó-
dýrar en aðrir í bænum. Þeir óska
eftir viðskiftum Islendinga og lofa
að skifta sérlega vel við þá. Les-
endur eru beðnir að athuga, að þeir
eru E K K I McDonald Electric
Company, heldur A. G. McDonald
& Co., 417 Main St. Eða menn
geta talað við þá með Phone 2142.
Menn þessir eru sérlega liprir í
viðskiftum og gera, alt verk mjög
samvizkusamlega. ísl. gerðu vel f
að skifta við þá.
M. Benedictssou móti þessari um-
ræddu grein eða öðmm slfkum
greinum, sem héreftir kunna að
koma f blaðinu. Því að eftir þeim
umkvörtunum, sem Heimskringlu
hafa borist út af óánægju manna
viðvfkjandi meðferð kvennréttinda-
málsins f Freyju, þá má vænta fleiri
slfkra grcina sem þessarar, er liér
ræðir um.
Allir blaðaútgefendur mega jafn-
an vænta þess, að fundið verði að
stefnu þeirra og Starfsemi. Svo
hefir það gengið og svo mun það
ganga framvegis.
Heimskringla sér þvfenga ástæðu
til þess, að neita slíkum greinum
birtingar, en tjáirsig á hinn bóginn
fúsa til þess, að ljá rúm til varnar
þeim, sem á er ráðist. Sanngjarn-
legar eða frjálslegar getur blað vort
ekki breytt í ágreiningsmilum fólks
um almenn málefni.
Spurningar og svör.
Herra ritstjóri!
Mrs. Margrét Benedictsson hefir
látið tilkynna Heimskringlu óá-
nægju sína út af grein sem birtist í
þessu blaði frá “Lesanda Freyju”
um stefnu þess blaðs, og þar sem
sagt er meðal annars, að það sö því
lfkast “að útgefandinn hafi lasta
og glæpaþrungnustu ‘rómana’ til
hliðsjónar við ritsmfð sfna”, og að
“væri ástæða til að álfta, að útgef-
andi Freyju hefði við ósamlyndi og
ókjör að búa af hálfu maka síns, þá
væri ekki að undra,þó hún gætti ekki
sem allra glöggvast að feta hógværð-
ar og þolgæðisveginn, er kvennrétt-
inda málefnið sérstaklega útheimtir
að þræddur sé af forustukindinni.”
Af þessu er oss tjáð, að Mrs. Bene
dictsson finni sig meidda.
Heimskringla hefir það til and-
svara, að í ummælum þesgum er
alls ekkert meiðandi, né heldur er
þar staðhæft eða gefið í skyn, að
hún hafi við ósamlyndi og ókjör að
búa af hálfu maka sfns. Ekki er
þar heldur sagt, að hún hafi lasta-
og glæpaþrungnustu ‘rómana’ til
hliðsjónar við ritsmfð sína, þótt
höfundi greinarinnar finnist lfklegt
að svo muni vera. Heimskringla
tók grein þessa eins og hverja aðra
grein, er ræðir um athugavert og
alvarlegt mannfélags málefni, án
þess að blaðið sjálft taki nokkra
hlutdeild f skoðunum þeim, sem
þar koma fram, né kasti hinum
minsta skugga á starfsemi Mrs.
Benedictsson eða hjúskaparsam-
band hennar við mann sinn. Og
Heimskringla tjáir sig enn fremur
fúsa til þess, að birta svar frá Mrs.
Eg bið um svar f yðar heiðraða
blaði viðvfkjandi eftirfylgjandi
spurningum:
1) Segist nokkuð á því að gefa
inönnum háðsleg aukanöfn en þó
ekki beinlínis æru meiðandi ?
2) Og ef það væri brot á móti
ákvæði liiga, hvernig er þá formleg
meðferð málsins? FáfrMur.
Svar.— Já, það er saknæmt að
uppnefna og varðar við lög, ef sótt
er. Þvf miður loðir þessi uppnefn-
ingasýki of mjögvið suma af lönd-
um vorum enn þá, en er þó mjög
að minka hér vestra, sem betur fer,
þvf siðurinn er ljótur og strákaleg-
ur og ætti ekki að haldast við.
ftiMj.
Afbragðs land, með stóru góðu
húsi, og fjósi yfir 40 gripi, og
ágætn vatnsbóli, f Pine Valley, er
boðið til skifta móti dágóðu húsi
og lóð. Eigandinná yfir $1,000 í
eigninni, er liann lætur upp f hús-
eign hér í bænum. Bæjareignin
verður að vera f suðurixirti bæjar-
ins. Tækifæri fyrir þá, sem vilja
komast á ágætt land.
MARKUSSON &
BENEDIKTSSON
Skrifstofa: 219 Mclntyre Block.
Telephone 2986.