Heimskringla - 08.06.1905, Side 1
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
i T. THOMAS
♦ lslenzknr kanpmaOnr ♦
X selur K«tl ok Kldivld ♦
X Afgreitt fljótt og fullur mselir. X
X 537 Ellice Ave. Phone 2620 ♦
* ♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
♦ ♦
T. THOMAS, kaupmapur
nmboÐssali fyrir ýms veralnnarfélög
1 Winnii>eg og Austurfylkiunum, af-
greiöir alskonar pantanir Islendinga
r nýlendunum, peim aö kostnaöar*
lausn. Skrifiö eftir npplysingum til
537 Ellice Ave. - - - Winniþeg
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
▼
I
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
XIX. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA 8. JÚNl 1905 Nr. 35
PIANOS og ORGANS.
Heintzman Jk C«. Pianon.---Bell Orgel.
Vér seljnm með mánaðarafborgunarskilmélum.
J, J. H- McLEAN & CO. LTD.
530 MAIN St. WINNIPEG.
Islendingadagurinn.
2. ágúst 1905.
Hér með tilkynnist, að Islendingadagsnefndin boðar
Islendinga í Winnipeg borg á almennan fund, sem haldinn
verður 1 samkomusal Tjaldbúðarsafnaðar mánudaginn f>.
12. f>. m. (júnf) kl. 8 að kveldi. Núverandi nefnd leggur
f>ar fram reikninga yfir tekjur og útgjðld dagsins í fyrra og
sýnir live mikið nú er í sjóði á banka, segir sfðan af sér
starfa og fundurinn kýs nýja nefnd til þess að annast um
hátíðahaldið í sumar. Fólk er beðið að fjölmenna á fund
þenna og styðja uefndina sem bezt til undirbúnings dags-
ins í ár. 0 Nefndin.
Arni Egprtsson
671 ROSS AVENUE
Phone 3033. Winnipeg.
Heiðruðu Landar!
Þið mistuð af góðu tækifæri
að kaupa ekki landið sem
ég auglýsti hér seinast.
Ég s e 1 d i f>að
Banda r í kja
a u ð m.
Passið J)ví
að hafa
augastað á
þessum stað næst.
Það borgar sig fyrir
ykkur að safna skyldingun
um, og kaupa Lot og Lönd hjá
Arni Eggertsson
OfHce: Room 210 Mclntyre Blk
Telephone 8364
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
\
hvaðanæfa.
STRÍÐS-FRÉTTIR
Rússar unnu tvo bardaga þann
17.og 19. maí f Manchurfu og náðu
þar frá Japönum 234 herföngum, 2
fallbyssum, 100 hestum og nokkru
af hergögnum; brendu f>ar að auki
upp allstórt fata og matar forðabúr
Japana ogsundruðu mflna langri
smávagnalest, sem hlaðin var hrís-
grjónum og öðrum matarforða, sem
átti að ganga til japanska hersins.
Um mannfall af beggja liði í þess-
um bardögum er ekki talað, en
blöðin telja þetta hafa verið aðeins
smábardaga. En svo er þó að sjá,
að Rússar hafl haft f>ar alla yfir-
burði og gert Japönum talsverðan
skaða.
Af sjóorustunni miklu eru f>ær
frekari fregnir komnar, að Rússar
hafi áreiðanlega mist yfir 20 af skip-
um sfnum, þar á meðal öll helztu
stórskipin og um 10 þús. manna í
sjóinn. En Japanar tóku hertaki
6 eða fleiri skip þeirra og á fjórða
þúsund manna.
En aðmfráll Voelkersan, sá sem
skaut á skozku fiskimennina áDog-
ger grunnmiðunum, er floti Rússa
var á leið sinni austur, lézt snemma
í orustunni áður en skipi hans var
sökt.
Alt tap Japana í orustunni er
sagt að hafi verið 3 torpedó bátar,
113 menn fallnir og 424 særðir.
Mannfall þetta varð á 19 af skipum
þeirra. En á torpedó bátunum
mistu Japanar 89 menn. Þetta er
lftið tap f>egar þess er gætt, að þeir
gerðn Rússum hið mesta manntjón
og söktu flestum skipum þeirra.
Aðmfráll Togo var særður lftið eitt
á skipi sfnu Adzuma.
Á hinn bóginn er það nú sýnt og
sannað, að Rússar hafa ekki verið
aðgerðalausir, þar sem þeir feldu
og særðu menn á 19 skipum Jap-
ana, auk þeirra, sem voru á torpedó
b&tunum.
Á rússneska herskipinu Oriel
særðust um 400 manns strax í byrj-
un orustunnar, og er sagt að 140 af
hinum særðu, sem hljóðuðu ogb&ru
sig illa, hafi verið fleygt lifandi í
sjóinn. Einnig er það fullyrt, að
skipshöfnin á jskipi aðmfráls Neb-
ogatoff hafi gert uppreist meðan á
orustunni stóð og lokað hann og 8
aðra yfirmenn inni f káetum f>eirra
og halað síðan hvfta flaggið f há-
stöng og gefið skipið á vald Japana.
Svo fara ljótar sögur af þessari
Uppreist, að yfirvöldin í Pétursborg
telja skipshöfn þessa raggeitur eða
annað verra og blöð Rússa heimta,
að menn f>essir verði dæmdir til
dauða, þegar þeir koma heim til
Rússlands.
Þrjú af skipum Rússa, sem kom-
ust undan úr bardaganum mikla,
hafa náð lendingu f Manila. Þau
eru öll illa útleikin og höfðu margt
særðra manna um borð. Þau höfðu
fiúið snemma úr bardaganum til
þess að komast undan kúlum og
sprengitólum Japana.
Japanar hafa ákveðið að reisa
veglegan minnisvarða f minningu
um sigurvinningar aðmíráls Togo.
Það á að vera viti eða hafljós mik-
ið, hið stærsta í heimi; það á að
standa á Okino eyjunni. Ljósið í
húsi þessu á að uppljóma hafið á
80 mflna svæði umhverfis eyjuna
og þannig uppljóma mestan hlutan
af orustusvæðinu, svo að komandi
kynslóðir megi jafnan minnast or-
ustu þessarar og hins fræga sigurs
Jápana f>ar.
Aðmfráll Rojestvensky kvað nú
vera á góðum batavégi á sjúkra-
húsi Japana.
Brezk kona, sem kom til Quebec
í sfðustu viku sem innflytjandi
með einu af Allan lfnu skipunum,
var liandtekin við landgöngu og
kærð um fjölkvæni; þegar leitað
var á gömlu konunni, fannst á
henni peninga ávfsan upp á sex
f>úsund pund sterling, og sem hún
sjálf átti.
— Frá Emerson, Man., kom sú
frétt dagsett 29. maí, að þá væri
f>ar 150 Islendingar úr Norðvestur
Dakota bygðinni, umhverfis Moun-
tain og Hallson að hlaða gripum
sínum og búslóð á brautarvagna.
600 nautgripi höfðu f>eir með sér.
Þessir menn segir blaðið að séu
flestir' ungir. Meðal þeirra H. J.
Halldórsson og Jón Jónsson, sonur
Páls Jónssonar, að Akra. Alt ætl-
ar fólk þetta að setjast að í Austur
Assiniboia.
— Stjórnin f Noregi hefir sagt
af sér út af óánægju við Óskar
konung vegna neikvæðis hans
við samþyktum þingsins um að
Noregur fengi að hafa sérstaka
utanríkis umboðsmenn, en þurfa
ekki að lúta Svíum f því eins
og að undanförnu. Þegar konung-
urinn á stjórnarráðsfundi neitaði
að undirrita lagafrumvarp þings-
sins, þá sagði alt stjórnarráðið af
sér, en konungur neitaði að taka
þá uppsögn gilda. Svo er al-
þýðan æst í Noregi út af þessu
tiltæki konungsins, að það ligg-
ur við að hún segi slitið sam-
bandi við Svíarfki og fari f stríð,
til þess að vinna stjórnlegt sjálf-
stæði sitt og þjóðréttindi.
— Sprengikúlu var kastað að
vagni sem í voru þeir: Loubet
fyrseti Frakklands, og Alfonso, Sp.
konungur, er þeir um miðnætti þ.
1. þ. m. keyrðu frá leikhúsi einu f
Parísarborg’. Kúlan lenti f einum
hermanni þeirra sem vörðu vagn-
inn, og meiddi hann og nokkra
aðra riddara, er þar voru, en
skemdi ekki vagn forsetans né þá
er í honum voru. Anarkisti var
strax handtekinn, og sóru vitni að
þau hefðu séð hann kasta kúlunni.
— Sjö Anarkistar voru hand-
teknir í Paris þann 26. maí. Þeir
voru nýkomnir þangað frá Sp&ni.
5 þeirra neituðu að segja til
nafna sinna, eða að gefa nokkrar
upplýsingar um sig eða ferðalag
sitt, en hinir 2 viðurkendu að
allur hópurinn hefði verið sendur
þangað af anarkista félagi á Spáni
til þess að vera þar til taks og
reyna að myrða Alfonso Spánar-
konung, er hann ferðaðist til Parfs-
ar. Þetta er í fullu samræmi við
þá einu vitanlegu stefnu þessara
þokkapilta.
Anarkistar hafa það eina mark-
mið í heiminum, svo kunnugt sé,
að drepa menn, helzt þjóðhöfð-
inga, og leiðandi stjórnmálamenn.
— Lagafrumvarp í Lundúna
þinginu um að aftaka sunnudaga
sölu vfns, var felt með aðeins 6
atkvæðum. Ef góðtemplarfélögin
hefðu getað beitt áhrifum á 4 af
þessum 6, vfnbanni í vil, þá hefði
frumvarpið náð þingsamþykt og
fengið lagagildi.
— Dana stjöm hefir sent um-
boðsmanni sfnum f New York,
skeyti um að hann skuli tilkynna
almenningi að nauðsynlegt sé að
fá leyfi Danastjórnar, áður en
tæringarveiku fólki sé leyfð land-
ganga á Grænland, og að líklegt
sé að það leyfi hún ekki.
— Banka félag það, í París, sem
ætlaði að lána Rússum nær 400 mill.
dollars til þess að halda áfram stríð-
inu, hefir dregið tilboð sitt til baka,
sfðan Rússar töpuðu skipum sín-
um. Telja lánið nú ótrygt.
— Byrjað er að grafa göng undir
Detroit ána, milli Canada og Banda-
ríkjanna. Þetta verk á að verða
fullgert innan tveggja ára og kosta
1V2 millíón dollars. Skurðirnir
eiga að verða 2 með 25 til 30 feta
millibili. Hver göng eiga að verða
nær 2 mílur á lengd.
— 173 sprengikúlur, sumar full-
gerðar og aðrar i smíðum, fundnst
í kjallara undir húsi eins anar-
kista á Rússlandi, í sfðl. viku.
Hann var að starfa samkvæmt trú
sinni, maðurinn sá!
— Jámbraut, frá Emerson til
Yassar, á að leggjast á þessu sumri
og mælingarmenn eru nú að ákveða
brautarstæðið. Strax og mæling-
in er fullgerð, verður tekið til að
byggja brautina. Hugsanlegt er
að hún leggist nokkru sunnar en
“Vassar station“.
— Sem dæmi þess, hvernig vest-
ur höruðin byggjast má geta þess,
að þar sem nú er þorpið “Wadena”
á C.N.R. brautinni, sem verið er
að byggja til Edmonton, var fyrir
6 vikum ekkert hús. Fólk vissi
að þar var fyrirhugað bæjarsræði,
en samt er það ennþá ekki mælt
út í bæjarlóðir, þó er þar nú kom-
ið gott hotel, 3 hesthús, þar sem
gestir fá láns hesta, ef þeir vilja
keyra út um landið umhverfis.
3 timburverslanir, 2 almennar
vöruverzlanir. 1 gistihús, akt/gja-
búð, kjötsölu búð, járnvöru búð og
apótek. Þetta má heita allvel að-
verið, áður en bæjarstæðið er mælt
út í lóðir. Fólk flykkist inn f þorp
þetta í hópum daglega, og mörg
hundrað fjölskyldur hafa tekið sér
land umhverfis þorpið.
— Arthur Tucker, sem nýlega
útenti langa fangelsisvist í Ont.
fyrir fjölkvæni, var tæpast fyr
sloppinn út úr fangelsinu en hann
giftist 3ju konunni. Hann hefir
verið handtekinn á ný og læknar
fengnir til að ákveða hvert hann sé
með fullu viti.
— Standard Oil Company hefir
sett niður verð á olíu smni, í sum-
um Ontario bæjum, til þess að
reyna að eyðileggja verslun annara
olfufélaga þar — þetta hefir gefist
ágætlega.
— Jarðskjálftar í Montenegro
urðu 500 manns að bana og særðu
250 manns. Bærinn Scutari í
Albana héraðinu lagðist í eyði á
svipstundu. Þeir sem sluppu em
húslausir, og stjómin hefir sent
leitarflokk til að finna hóp manna
er tapast hefir, og það er talið vfst,
að þegar sú leit sé búin, þá muni
það sannast, að margt fleira fólk
hafi látið líf, en að framan er talið.
Skemtiferð
til Argylebygðar miðviku-
daginn þann 14. þ.m.
Ferðin hefst klukkan 7 árdegis
með sérstakri lest frá C.P.R. braut-
arstöðvunum. Heldur svo lestin
tafarlaust til Glenboro.* Þar verðnr
ferðafólkinu mætt með hesta til að
keyra það á skemtistaðinn, að
“Skjaldbreið” þar í sveitinni, þar
sem Argyle - íslendingar halda
skemtisamkomu þann dag\ með-
fram til minningar um 25 ára land-
námið þar.
Þar fara fram margskonar skemt-
anir svo sem ræðuhöld, söngur,
hljóðfærasláttnr, lfkamlegar íþróttir
og leikir, þar á meðal “Base ball.”
Aðgangur að öllum skemtunum
ókeypis.
Máltfðir og aðrar veitingar, nema
ekki áfengir drykkir, verða til sölu
á staðnum, en nestiskarfir getur
Winnipeg fólkið haft með sér og er
ætlaður aukavagn í lestinni fyrir
þær.
Að kvöldinu verður Winnipeg
fólkið keyrt til Glenboro, }>ar sem
sama lestin bfður og flytur það
heim.
Hornleikaraflokkur frá Winni-
peg spilar á leiðinni og vestur frá
um daginn.
Góðum vögnum er lofað og verða
þeir skreyttir með fánum og flögg-
um.
Farseðlar fyrir alla ferðina, báð-
ar leiðir, kosta aðeins $2.15.
Keyrslan vestra algerlega frí.
Lögð til og gefin af Argyle-mönn-
um.
Farseðlar eru til sölu í báðum
búðum Arna Friðrikssonar, í búð
tfalldórs S. Bardals og á skrifstof-
um beggja íslenzku vikublaðanna
hér f bænum.
Menn, sem búa ytan Winnipeg
bæjar, hvar sem er, og geta komið
því við að slást í förina, eru auðvit-
að velkomnir.
Sérstaklega áríðandi er, að þeir,
sem ætla að fara, kaupi farseðla
sem allra fyrst, svo að tími verði
til, að sjá fyrir nœgilega mörgum
vögnum og vel geti farið um fólkið.
Lfka til að geta látið Argyle-menn
vita, hve marga þarf að keyra.
I umboði Winnipeg nefndarinnar
Winnipeg 6. júní 1905.
A. Fredericlcson.
— Krónprinsinn yfir Wzkalandi
ætlar að gifta sig innan skams.
Þúsundir boðsgesta eru farnir að
streyma til Berlinar Þar með
nokkuð af konunglegu fólki, en svo
er ösinn mikil af gestum, að borg-
arstjórnin er í vandræðum með að
útvega þeim öllum verustað. Brúð-
argjafir, dýrmætar, eru sendar í
þúsundatali frá öllum löndum.
— Sir William Broadbent, einn
af frægustu læknum f Evrópu, hefir
staðhæft í fyrirlestri, sem hann
hélt nýlega f Lundúnum, að tæring-
arsýki orsakist af illri og ónógri
fæðu, ofþreytu og loftillum húsa-
kynnum, en sérstaklega þó af vín-
drykkjum, sem hann telur vera
aðalorsök sýkinnar, ekki sérstak-
lega á þeim, sem sjálfir drekka,
heldur á þeim, sem umgangast
drykkjumenn á heimilum þeirra,
því að sýkin berist aðallega í hrák-
um drykkjumanna. Þetta segir
hann að sé svo margsannað, að ekki
verði móti því mælt með rökum.
Væri mögulegt að eyðileggja hrák-
ana strax og þeir koma út úr kverk-
um drykkjrútanna, þá væri engin
tæringarveiki í heiminum. Segir
læknirinn, að sýki þessi sé í rénun
f öllum löndum með minkandi vín-
nautn,
— Thomas Fysche, sem um
mörg ár hefir haft aðal stjóm
Merchants bankans með höndum,
hefir sagt af sér því embætti
vegna ellilasleika. Eigendur
bankans hafa launað starfsemi
hans með 6 þúsund .dollars árl.
eftirlaunum og 50 þúsund dollars
peningagjöf þar að auki að skiln-
aði.
— Isl. Foresters mun þykja ilt
til frétta að W. Foster Waddell,
sá er stofnaði Forester Stúkuna
“ísafold” hör f Winnipeg, hefir
verið handtekinn í Beverley í Mass.
fyrir mannsmorð.
Waddell var bindindis postuli
aðallega, og ferðaðist um í fyrir-
lestra erindum fyrir bindindis-
félögin, og vann um leið í þarfir
Foresters félagsins.
Waddell mætti stúlku að nafni
Linberg, hér f Winnipeg, og trúlof-
aðist henni. Svo kom það fyrir
að hann var sendur til Minneapolis
til að mæta þar á Foresters þingi.
Tók hann þá unnustu sína með sér
og giftist henni þar í borginni.
Þetta gerðist fyrir 10 eða 12 árum.
Svo kom það n/lega fyrir, að
Waddell lét konu sfna vita að
hann hefði aldrei gifst henni lög-
lega, og að giftingin í Minneapolis
hefði verið uppgerðarleikur, og að
hann hefði áður verið giftur og að
sú kona væri lifandi, og einnig, að
hún var í Winnipeg á sama tfma
sem hann var f tilhuga lífinu við
síðustu unnustuna.
Konan lét sér hvergi bilt við
verða; hún yfirgaf Waddell og gift-
ist skömmu þar eftir, — þann 4.
marz s. 1. — öðram manni að nafni
Hayes. Þetta þoldi Waddell ekki
og skaut Hayes til bana. Nú ját-
ar kona þessi að hún hafi fyrir ári
síðan leynilega gifst Hayes.
Waddell er sagt að hafa strok-
ið, og þykir llklegt að hann hafi
leitað til átthaga sinna hér í Norð-
vestur landinu. Yænta má þó að
að hann sýni sig ekki í Winnipeg.
Dánarfregn.
Háttvirti herra ritstjóri!
Það er ósk vor og bón til þín, að
þú gerir svo vel og ljá þessum lfn-
um rúm f blaði þfnu, svo að vinum
og vandamönnum hér og heima á
gamla Fróni gefist kostur á að sjá
lát hinnar framliðnu vinu vorrar.
Hinn 2. apríl 1905 andaðist að
heimili sfnu í West Selkirk, Man.,
konan Þurfður Sigfúsdóttir, eftir 25
daga legu 1 taugaveiki.
Þuríður sál. var fædd að Meðal-
nesi f Fellum í Norðurmúlasýslu á
íslandi hinn 14. jan. 1877. For-
eldrar hennar voru þau hjón Sig-
fús Oddsson frá Meðalnesi Hildi-
brandssonar frá Hreiðarsstöðum og
Guðfinna Oddsdóttir Jónssonar frá
Meðalnesi.
Þuríður s&l. ólst upp hjá foreldr-
um sínum, þar til að dauðinn kall-
aði þau til heimkynna sinna, og
var hún þá nm 18 ára að aldri. Þá
fór hún að Skeggjastöðum í sömu
sveit og dvaldi hún þar alt þangað
til hún árið 1897 fór á kvennaskól-
ann á Ytriey í Húnavatnssýslu.
Þar var hún f tvo vetur sem náms-
mey, en þriðia ár sitt þar vestra
var hún vinnukona hjá Indriða
bónda Jónssyni, sem þá bjó á Ytri-
ey; en samt naut hún þó tilsagnar
á nefndum skóla um veturinn. En
haustið eftir fór hún austur á Seyð-
isfjörð og gekk þar á saumaverk-
stæði vetrarlangt. Þaðan fór hún
að Skeggjastöðum á Fellum, en um
vorið 1902 fluttist hún vestur að
Ytriey aftur í Húnavatnssýslu og
giftist þar eftirlifandi manni sfn-
um Sigurði Indriðasyni, ogbjuggu
þau á Ytriey það ár. Þaðan fluttu
þau norður á Akureyri og dvöldu
þar eitt ár; þar næst fluttu þau til
Vesturheims vorið 1904 og settust
að í West Selkirk, Man.
Þeim hjónum varð tveggja bama
auðið, og lifa þau bæði móður sfna.
Þau eru bæði ung, á 1. og 2. ári.
Það, sem einkum einkendi hina
framliðnu, var sterk trú á guð sinn
skapara, trygt og staðfast hjarta og
sérstaklega hluttakandi í kjörum
hinna bágstöddu. Stilt og vönduð
var hún, ás rík eiginkona og móðir.
Hennar er því sárt saknað af vin-
um og vandamönnum og öllum
þeim, sem nokkur veruleg kynni
höfðu af henni. En einkum er það
þó hinn eftirlifandi ekkjumaður,
sem gerir sér skýra grein fyrir,
hversu dauðinn hefir svift liann
einni hinni allra beztu gjöf, sem
þessi heimur hefir að bjóða, sem er
góð eiginkona.
Með fráfalli hinnar látnu er þvf
stórt skarð fyrir skildi, því hér tók
dauðinn burtu meira en að eins
nafnið “kona”, því hér voru hinir
kvennlegustu eiginleikar samein-
aðir, sem nauðsynlegir eru til að
gera konuna að ástríkri eiginkonu,
móður og húsmóður. Staðfesta,
trygð og brjóstgæði voru hennar
aðal lyndiseinkunnir. Blessuð sé
minning hinnar framliðnu!
Þótt táralind tæplega þomi,
trúna samt höfum vér þá:
á eilffðar upprisu morgni
þig aftur vér fáum að sjá.
Sofðu, vor sárþráða vina,
sárköldu gröf þinni í,
þá harmaél hérvistar lina
þig heimsækja viljum á ný.
Vinir hinnar Idtnu.
MARKUSSON &
BENEDIKTSSON
Hafa flutt skrifstofu sfna
, frá 219 Mclntyre Block að
205 í sömu byggingu.
Telephone nr. verður auglýst síðar.