Heimskringla - 12.10.1905, Blaðsíða 3

Heimskringla - 12.10.1905, Blaðsíða 3
HEIMSKRINGLA 12. OKTOtíER 1905. Þarna sést, að ættfræðin er f raun réttri ómissanleg fræðigrein, og að hún ætti að vera gerð óaðskiljanleg sumum atriðum læknisfræðinnar, eins og einn af vitrustu og f>ekk- ingarríkustu læknum Islands hélt fram, er ég átti tal við hana fyrir nokkrum árum. Þessi læknir var Guðmundur Bjömsson, í Reykja- vfk. Hann telur fjölda sjúkdóma ættgenga á íslandi, og af fornum og nfj um dánarskýrslum, séu þær rannsakaðar í sambandi við ætta- tölurnar og séudauðaorsakir manna teknar til athugunar umleið, — má sannfærast um, að þessi álykt- un læknisins hefir við góð og gild rök að styðjast, f>ó að fáir aðrir læknar, sem ég liefi átt tal við, séu honum samdóma f f>essu. Það eru jafnan orsakir til, er valda öllum at- burðum; eins er um sjúkdóma; þeir koma ekki án orsaka. Og til þess að komast fyrir illar afleiðing- ar, verða menn að þekkja orsakir sem flestra atburða. Og enn vant- ar margan hlekk í þekkingarkeðju mannkynsins, til þess, að orsakir illra atburða og afleiðinga þeirra geti orðið kunnar, án frekari fróð- leiksleitar. Hér er eitt atriði, sem ekki er enn alment talið merkilegt, en sem síðar gæti orðið að ómetan- legu gagni fyrir vellfðan mann- kynsins, ef kostur væri að nota það í rétta átt. Þetta atriði er notkun ættvfsinnar í sambandi við mannþekkingu og svo læknisfræð- ina sjálfa, sem enginn heilvita maður mun telja lítilsvirði. Það eru fleiri einkenni manna og dýra, en sjúkdómar, sem vfst er að geta gengið að erfðum í vissum og sérstðkum ættgreinum, einkum ef mjög skildar tengdir f sömu ætt eiga sér stað í eitt skifti eða oftar: þessi einkenni liggja bæði í innra og ytra eðlisfari. Hér nægir að benda á pessi dæmi: Meira atgjörvi, andlegt eða lfk- amlegt fylgir oft stöðugt einni ætt, en annari; liafa flestir tekið eftir því, þó þetta sé reyndar ekki ó- brygðul regla, þvf að það er sann- ur orðsháttur, að “einn er aukvisi ættar hverrar”. Skáldskaparlist, bókfýsi og löng- un til verklegs hagleiks fylgir og sumum ættum, öðrum framar. Sumar ættir hafa lengi, lið eftir lið, framleitt hvern ágætismann- inn eftir annan, f ýmsum greinum. Aðrar liafa stöðugt framleitt ónytj- unga og vesalmenni. Nokkrar fslenzkar ættkvfslir hafa og frá fyrstu sögutfmum reynst mjög ófriðargjamar. Aðrar ætt- greinir hafa stöðugt borið friðar- einkenni, að fám mönnum undan- teknum, er skotizt hafa inn í þess- ar ættgreinir, eins og úr öðrum átthögum, og hefir þá oft mátt rekja á annan hátfc upptökin til ættbrygða þeirra, til dæmis frá kynningu við óskilda náunga, eða frá öðrum sérstökum atburðum f sögu þeirra sjálfra. Drykkjuskaparlöngun lifir sér- staklega f sumum ættum, frá eldri tfmum. En f ýmsu hafa þö slíkar ættkvfslir reynst nýtar vel. Til þessa ættareinkennis mætti ef til vill telja brjálsýkina, sem er mjög eðlileg afleiðing mikillar vfnnautn- ar. Þó er það vfst, að brjálsýki á ekki ætfð rót sína að rekja til vín- nautnar, eins og hún lfka getur komið upp f mönnum, sem ekki eru af brjálsjúkum ættuin, þó að hitt sé án efa algengara, að sýki þessi fylgi vissum ættum, eins og þegar hefir verið sýnt dæmi til. En engin regla er án afbrygða. Alt það, er hér hefir verið bent á, sem einkenni vissra ætta, má sýna og sanna með nöfnum og á- reiðanlegum ættfærzlum. En hér er nú ekki rúm til þess. Það er og kunnugt, lfking á andlitslagi manna, getur glögglega sýnt ætt- mót þeirra. Ég skal f þessu sam- bandi geta þess, til fróðleiks f>eim mönnum, sem liingað til liafa fyrir- litið eða hatað ættvfsina, án f>ess þó að hafa fært rök fyrir þeirri blindu ályktun sinni, — að ættvfs- in mun sfðar verða ein af helztu stoðum vfsindalegrar þekkingar og rannsóknar, f ýmsum greinum, einkum læknisfræði og náttúru- fiæði, — auk þess, sem hún er ó- missandi stoð sögunnar, eins og oft hefir áður verið sýnt með ó- nrekjandi rökum. Þeir sem ekki athuga orsakir, geta sjaldan gert sér rétta grein fyiir afleiðingunum. S. Vésteinn. Brauðtrogið. Stundum hefir Canadaland verið nefnt “Kornaforðabúr alrík- isins brezka” og þvf haldiif fram, að Canada geti framleitt nægilegar korntegundir til þess á öllum tfm- um að byrgja upp alla brezka þegna með nægum brauðforða. A sfðari árum, eftir því sem þekking manna á Canada hefir auk- ist, hefir sú skoðun farið vax- andi, að þessi staðhæfing um korn- framleiðslu möguleika landsins kynni að vera á rökum bygð. Svo var brezku stjórninni það mikið á- liugamál, að vita vissu sfna f þessu, að hún gerði fyrir skömmum tfma út mann til pess að athuga þetta málefni og gefa álit sitt um [>að, hvort Canada geti framleitt nægi- legan kornforða til þess að byrgja alt Bretaveldi upp með korn og mjölmat, ef f>ess skyldi gerast þörf á ófriðartfmnm. Maður þessi var prófessor Mavor. Hvort hann hefir gert nokkra verulega tilraun til þess að kornast að sannleikanum í þessu máli, get- um vér ekki sagt með neinni vissu, en hitt er vfst, að hann hefir í skv'rslu þeirri, sem hann hefir sent brezku stjórninni, látið það álit sitt í ljós, að ekki sé eigandi undir að reiða sig á framleiðslu-möguleika Csnada, þvf að mikið af suðurhluta þess sé í hinni svo nefndu “ame- rfkönsku eyðimörk”, sem fyrir fjórðungi aldar var álitin að vera gersamlega ófrjósöm, átti að ná alla leið frá Utah að sunnan og norður eftir öllu landi, og innibinda part af Alberta og Saskatchewan fylki. En nú er það áallra manna vitorði, að einmittþessi “amerlkanska eyði- mörk, er svo langt frá að vera eyði- mörk, að hann er ineð frjósömustu pörtum landsins. Þar sem fyrir 20 árum varóbygt oglftt þekt land, er nú orðið sett myndarlegum þorp- um, umkringdum af velræktuðum búlöndum, sem gefa af sér að jafn- aði um og yfir 20 bushel hveitis af ekru á ári. Sá hlutinn af þessu mikla meginlandi, sem lengst fram- eftir árum var talinn óræktanlegur og aðeins hæfur til hjarðlanda, er hluti af Alberta héraðinu og vest- urhlutinn af Assiniboia héraðinu, sem var. En síðan tekið var til að gera vatnsveitingar á svæði þessu, sem á sfðastliðnum fium árum hafa kostað C. P. R. félagið yfir Ö millf- ónir dollara og ríkisstjórnina ann- að eins eða meira, þá hefir þessi landsfláki reynst með þeim frjó- sömustu í öllu landinu, svo að nú .er ekki til nokkur hluti landsins, sem með réttu getur talist eyði- mörk, fyr en kemur svo afarlangt norður að stöðugir kuldar banni kornyrkju. Það iná svo lieita, að livert ein- asta blað í öllu Canadaveldi og á Englandi sé á móti próf. Mavor út af þessari skýrslu hans, og færa sum þeirra til margar tölur og skýrslur máli sfnu til sönnunar. En prófessorinn þegir málið fram af sér og þar við situr. Meðal annars halda blöðin því fram, að á þessu éri verði uppsker- an f Vestur-Canada meiri en pró- fessorinn telur mögulegt, að landið geti framleitt, og þó er landið svo að segja á barnsaldri byggingar og ræktunar. Á þessu ári eru t. d. undir "ræktun rúmlega K,700,000 ekrur, sem Ifklegar eru til að gefa af sér alt að 100 mill. bushels, og þó er óliætt að fullyrða, að það er ekki 20. hlutinn af því landi, sem vel má rækta og gera arðberandi. Mönnum’hefir talist svo til, að ekki sé neitt þvf til fyrirstöðu, að Can- ada geti með tfmanum selt út á ári alt að þúsund millfón bushel af liveiti og að það sé nægilegt til þess að byrgja upp gjörvalt brezka rfkið með brauði á ófriðartímum. Og auk þess mundi Indland einn- ig geta lagt til afarmikinn forða, ef á lagi. MINNING Guðmundu Magnússon Fœdd 6t iúní 1880 —Ddin 12. dgnst 190'). Tileinkað SIGURÐI MAGNÚSSYNI, manni hinnar látnu, frd stúkunni “ísland” nr. 25, Ó.R.G.T. Svo ung ertu horfin á eilífðarströnd 1 ómælið handan við sæ. Frá hálf-unnu dagsverki hulin f mold, í hásumars lffgandi blæ. — Við dómarann tjáir ei deila né mögl, þótt dómsorðið virðist ei rétt, því mótmælin verða þeim volduga hjá á vigtinni örsmá og létt. Ef eitthvað or fagurt og göfugt og gott það gróðrarmagn fær oss ei hjá, en það sem er leiðinlegt, ljótt eða ilt má langvinnri stofnfe3tu ná. Þá kerið úr silfrinu sekkur á botn berst soðbollinn alheill á land. Og kuldinn og dauðinn þeir kýrna oss að þá kærleikans slíta þeir band. Vort land er svo kalt, og vort lff nær svo skamt eins og ljós sem á eldspítu’ er kveykt, fyr mfnútan líður er ljósið á burt og lffsblómið fallið og bleikt. En andvörpin kveða við sorg-þung og sár um svellandi vonleysis mar. Vér hrópum til drottins f himininn inn cn heyrum ei geflð neitt svar. Já, lff vort er grátlega, gnfstandi kalt, og gróðurinn ennþá svo smár, því jörðin er holurð og blágrýtisbjörg, — hvert blóm verður fölt eins og nár. Og því verður löngun vor leitandi’ og sterk í landskosti betri að ná, fyrst græðslan við urðina gengur svo seint og gaddurinn nær út að sjá. En hvar ert þú land, þar sem Iffsgleðin byr og ljósið er einvalt í sál, þars hugsjón vor æðsta í uppfylling snýst og alsælt er hjarnanna mál? Vér þráum og elskum þig alt okkar lff, frá árdögum sfðsta að blund, en hillum þig aðeins sem augnabliks sjón á einstöku draumsælli stund. Það máske er sælast að treysta þá trú sem tengir oss himininn við, sem ber oss í “Föðursins” alsæla arm [>á opnað er sælunnar hlið. En trúin er breytin og mennirnir með, og mörg er sú kenninga grein, sem hugsun og skilningur skipa á brott ef skynsemissjónin er hrein. En skilningur þinn var svo skýr eins og ljós, og skörp var þín hugsun og mál, og því kaustu heldur að hugsa það sjálf, sem helgast er göfugri sál. Og andi þinn lék sér þar fleygur og frjáls, sem fegurst og sólrfkast var. 1 vorgeimnum átti’ hann sér vonanna land, — það voru’ engar mótsagnir þar. Vér þökkum þér starf þitt svo göfugt og gott — þess gagnsemi lengi mun sjást, — en heitast þó sá, er þitt hjarta var tengt með hreinni og göfugri ást. Hans minning um sælu f sorg-þunga snýst, og sólskin f myrkvaðan dag. — Svo breytast vor æsku- og ástþrungnu-ljóð í angurblftt saknaðarlag. Vér söknum þfn, minnumst þfn, kveðjum þig — oss komandi leiðarmark vert, [kærst, þvf bráðum vér könnum þá braut sem þú gekst, sem beint er til grafar, og — hvert? U, helzt, þar sem frelsi og fögnuður býr, og fyllingu vonirnar ná, sem óska sér hærra en andi vor nær og augu vor megna að sjá. Þorst. Þ. Þnrsteinsson. Areiöan legrn læknuö meö minn in ý j u og óhrigöulu HÖferö. DOLLAR ÖSKJUR ÓKEYPIS Skrifiö 1 dag til míu og ég skal senda yöur dollar.s viröi af meöulum mínum ókeypis, og einnig hina nýju bó’r mtna, sem flytnr allar upp- lýsingarum gigtveiki og vottorö frA fólki. sem liefir þjóöst 1 15 til 20 ór, en heflr læknast meö minni nýju aöferö viö þessari voöaveiki, sem nefnist GIGTVIiIKI. Ííg get óreiðanlega sann- aö, aÖ þessi nýja uppfundning mín læknaöi fólk, eftir aö æföir lækuar og ýms patentmeðul höföu reynst gagnslaus. I>essu til sönnunar skal ég senda yöur dollarsviröi af minni nýju uppfundn- ingu. Kg er svo viss um lækningakraft meöal- anna, aö ég er fús til þess, aö senda yöur EINS DOLLARS VIRDI ÓKEYPIS. I>a» gerir ekk- ert til, hve gamall þér eruö eöa hve gigtin er megn og þrólót. — mln m»‘öul munu gera yöur heilbrigöan. Hversu mikið, sem þér llöiö viö gigtina og hvort sem hún skerandi ? Öa bólgu- kend eöa 1 taugum, vöövum eöa liöamótum, ef þér þjóist. af liöagigt, mjaömagigt, eöa V>ak- verk. þó allir partar líkamans þjóist og hver liöur sé úr lagi genginn; ef nýrun. blaðran eöa maginn er sjúkt,— þó skrifiö til mln og leyflÖ mér aö færa yður að kostnaöarlausu sönnun fyrir því, aö þaö sé aö minsta kosti eitt meðal til, sem geti læknaÖ yöur. Bíöiö þvi ekki, en skrifiö í dug og næsti póstur mun flytja yður lækuingu I EINS DOLLARS YIRÐI AF Ó- KF.YPIS MEÐULUM. l*rof. ,F. Oartenstein 105 Grand Ave. Mihvaukee, Wis. Giftingaleyfisbrjef sebir Kr. Ásg. Benediktsson, 488 Toronto Street P.O. Box 514 Telephone 3520 Skrifstofa: 30-31 Sylvester-Willson Chambers 222 McDermot Ave., Winnipeg N. J. MATTHEW, B.A., L.L.B., LögfroiA in.aur, Málýirrslumaðu r Atsalsbrjeta semjari, Nótaríus ARNI ANDERSON les lög hjó Mr. Matthews og mun góöfnslega greiöa fyrir Islendingum, er þyrftu ó mólfærzlumanni aö halda. ’PHONE 8fi68 Smáaðgerðir fljóttog vel af headi levstar. Adams & Main PLUIViBING AND HEATINC 473 Spence St. W’peg Woodbine Restaurant Stærsta Billiard Hall 1 NorÖvesturlandin Tíu Pool-borö.—Alskonar vín ogvindlar. I.ennon & Hebb, Eieendur. MARKET H0TEL 146 PRINCESS ST. ó móti markaöuum P. O’CONNELL, eigandi, WINNIPEG Beztu tegundir af vinföngum og vind! um, aðhlynning góð og hósið endur bsett og uppbúið að nýju DOMINION HOTEL 523 dVL^YIdST ST- E. F, CARROLL, Eigandi. Æskir viöskipta íslendinga, gisting ódýr, W svefnherbergi,—ógætar móltiöar. Petta Hotel er gengt City Hall, heflr bestu vlföng og Vindla —þeir sem kaupa rúm. þurfa ekki nauðsvnlega J aö kaupa móltiöar sem eru seldar sérstakar. ssmtmmtwmw mwmtnwiUM 1 HEFIRÐU REYNT? DREWRY’5 REDW00D LAGER EDA EXTRA P0RTER. úhyrfrjustum okkar ölgerðir að vera þær hreinustu og beztu, og án als gruggs. Engin peningaupphæð hefir verið spöruð við til- ! íi búning þeirra. Ö1 okkar er það BEZTA sg HREINASTA og j ^ LJÚFFENGASTá, sem fæst. j Biðjið nrr. þa>1. <ivar sem þér eruð staddir Canada, | Edward L. Drewry - - Wirmipeg, § ^ Mannlacínrer A lmperter, 3 mmmium HINN AGŒTI ‘T. L,’ Cigar er langt á undan, menn ættu ekki að reykja aðra vindla en þá beztu. Búnir til hjá : WESTERN CIGAR FACTORY Thos. Lee, eigandi, "W’IN’iN’IPEGI. STÓRKOSTLEG TILHREIN SUN AR-S AL A 20,000 dollara virði af Stígvélum og skóm Kai’lmanna sterkir kólfskinns, alleöur skór. Vana- verö $1.75. Nú 1. I 5 Kvenna ViceKidSkór. HundraÖ pör úr aö velja. Vanaverö _ ^ ^ _ $1,85. Nn $1.25 Ilrengja Skólaskór, níösterkir kólf- skinnsskór. Aöur $1..">0. Nn $1-00 Stulku ÍK»etir endingargóöir skraut- tó skór. Vanaverð $1.65. Nú $1.00 Missið ekki af þessari peningasparnaðar sölu. Þetta er aöeins partur af þessum kjörkaupum. Alt selt með miklum afslætti til 7. þ, m. Kaupið meðan tækifærið gefst og sparið peninga yðar með þvi. Utanbæjar pantanir afgreiddar fljótt og vel. AfalS & HlllTÍNIIII 570 MAIN STREET Milli Paoiflc OK Alexander Ave. Aflu,-: Hardy Shoe Store Department of Agriculture and Jmmigration, MANITOBA Mesta liveitiræktarland í lieimi. Óviðjafnanlegir möguleikar fyrir allskonar búskap. Millíónir ekra af ágætn landi ennþá fáanlegar. Hundrað þúsusund duglegir landnemar geta strax kom- ' ið sér upp þægilegum heimilum. | Óviðjafnanlegt tækifæri fyrir þá, sem vilja verja fé sfnu | í hagnaðarfyrirtæki, sem og fyrir verksmiðjneigendur og allskonar aðra innflytjendur. Fylkisstjórnarlíind fást enn f>á fyrir $8 til $6 ekran. Umbættar bújarðir frá $10 til $50 hver ekra. Upplýsingav um ókeypis heimilisréttarlönd fást á landskrifstofu rikísstjórnarinnar. Upplýsingar um kaup á fylkislöndum fást á landstofu fylkis- stjórnarinnar í fylkisþinghúsinu. UppbsÍDgar um atvinnumál gefur J. J. GOLDEIV, Provincial Immigration Bureau, 617 Main St., Winnipeg

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.