Heimskringla - 16.11.1905, Side 1
XX. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA 16. NÓVEMBER 1905 Nr. 6
Arni tertsson
«71 ROSS AVENCE
Phone 3033. Wlnnlpeg.
Bezta tcekifœri
Mér hefir verið falið á
hendur að selja út
M J 0 L KHRBtl
hér t bænum. Það er: 15 mjólkur-
k/r, einn hestur og önnur vanaleg
bflsáhöld. Eg má taka bæjarlóðir
eða gott íveruhfis í borgun fyrir bfl-
slóðina. Þetta er gott tækifæri
annaðhvort fyrir mann sem vill
byrja mjólkurverzlun, eða mann
sem hefir f hyggju að fara fit á land
og á fasteignir f bænum, er hann
vill selja.
Bregðið fljótt við. svo þér missið
ekki af þessu tækifæri.
Arni Eggertsson
Offlce: itoom 210 Mclntyre Blb
Telephone 3364
Fregnsafn
Markverðustu viðburðir
hvaðanæfa.
Margar þúsundir kvennaí Lund
finum fylktu liði og fóru nýlega á
fund Balfours. stjórnarformanns
Breta, til að biðja hann að gora
ráðstaíanir til þess, að menn þeirrn
fengju eitthvað að gera. Konurn-
ar kváðu menn sfna vera atvinnu-
Iausa .og enga möguleika til þess að
fá nöitt að gera, fólkið vrði að
svelta. Þær mintu Balfour á það,
að hungraðir menn væru óðir
menn, og að bfiast mœtti við upp-
reist í landinu, ef atvinna og fæði
fengist ekki von bráðara. Balfour
kvaðst kenna f brjósti um konurn-
ar, en kvaðst eklíi geta hjálpað;
liann vonaði, að mannvinir gæfu
sig fram til pess að veita atvinnu-
lausum fjölskyldum fæði. Eftir
petta svar liéldu konurnar fund
mikinn og töluðu þar ýmsir leið-
andi menn, sem réðu til þess að
halda áfram atvinnukröfum á hend-
ar stjórninni og að hefja uppreist f
lfkingu við þá, sem nú er á Rfiss-
landi, ef hjálp fengist ekki, og að
haida áfram uppreistinni þar til
hver einasti vinnulaus maður væri
bfiinn að komast að vinnu.
— Frfi Florence Dixiu skáld-
kona, rithöfundur og kvennréttar-
hetja, er nýlátiu á Englandi, 48 ára
gömul. Hfin hefir ritað margar
bæknr og vann í Bfiastrfðinu, sem
fregnriti fyrir blaðið L o n d o n
T i m e s.
— Borgarstjóra kosningur fóru
fram f New York þann 7. þ.m. og
náði fyrrum borgarstjóri McClellan
endurkosningu. Móti honum sóttu
lögmaður Ivins (fyrir hönd repfl-
blfkana) og W. R,. Hearst, auðmað-
ur mikil, og eigandi margra stór-
blaða (fyrir liönd “Municipal Own-
ership League”). Hearst tapaði
með 5000 atkv. mun, en hann er
ekki af baki dottinn að heldur,
og segist liafa unnið kosninguna
með réttu. Hann segir að and-
stæðingar sínir liafi laumað 40 þfis.
fölskum atkvæðaseðlum í kassana
og þar að auki liafi þeir stolið og
falið eða eyðilagt 195 atkvæðakassa,
sem hafi haft fleirtölu atkvæða fyr-
ir sig. Hearst segist því vera lög-
lega kosinn óg heimtar að atkv.
vorði talin upp aftur. — New \ork
búar eru eins og vfðar óðum að
færast nær þjóðeignar hugmynd-
inni.
— Demókratar unnu ríkiskosn-
ingar f Ohio-ríki, í fyrsta skifti f
mörg undanfarin ár. Tom L. John-
son, demókrat I þjóðeignar og ein-
skatts maður), var kosinn borgarstj.
f Cleveland, O., f [>riðja sinni og
með miklu meiri atkvœðamun en í
hin skiftin. Philadephiabúar kusu
VVeaver, merkisbera “Hinna óháðu”
og höfnuðu republfkum, sem þykir
ganga kraftaverki næst, í f>eirri
borg. — Svo lítur út, sem repúblík-
anski flokkurinn sé að tapa tiltrfi
þjóðariunar um [>essar mundir, og
mun það að nokkru stafa af upp-
ljósti þeim. sem fram hefir komið
við rannsókn lífsábyrgðarfélaganna
þar syðra á undanförnum mánuð-
um, og sambandi flokksins við
stjórnendur þeirra félaga,
— ÍStarfskýrslur Canadian North-
ern járnbrautarfélagsins voru lesn-
ar á ársfundi félagsins í Toronto á
laugardaginn var. Þær sýna, að
tekjur félagsins á sl. ári, fram að
50. jfinf, voru $41(5,702 umfrain
starfskostnað, — eða sundurliðað
þannig: Tekjur $4,190,111.25,
starfskostnaður $2,664,729.64. Á-
góði varð alls $1,545,482.52. Föst
fitgjöld 1,128,779.58. Hreinn ágóði
$416,702.94. Tekjur brautarinnar
urðu nær þvf millfón dollara meiri
en næsta ár á undan. Alls hefir
brautakerfið kostað upp að þeim
degi 53,555,852.
— Sakamál hefir verið höfðað
móti nokkrum “plumbers” félögum
í TorQnto og ráðsmönnum þeirra
Kærurnar eru, að félögin starfi til
[>ess að hindra iðnað, til [>ess að
svfkja þá, sem þurfi að láta vinna
“plumbing” verk og til þess að
hindra, að nokkrir fá vinnu eða
vinnuefni, sem ekki tilheyra félög-
um þessum. Kæraner f einu orði
sú, að félögin hafi verið mynduð
í þeim tilgangi og starfi að því að
koma á óheillavænlegri einokun í
“plumbing” vinnu.
— Fréttir frá bænum Tornsk í
Sfberfu segja, að þar hafi 600 gyð-
ingar verið brendir á báli [>ann 8.
þ.m. Fólk þetta hafði flfiið í leik-
hfis bæjarins og verið brent þar
inni. Bæði lögreglan og herliðið
neitaði að gera nokkuð til f>ess að
bjarga fólkinu. Uppþot hefir einn-
ig orðið í Mosoow á Rússlandi; þar
réðust slátrarar bæjarins með axir
og linffa á stfidentana. sem flýðu
f dómhfisið og lifis borgarstjórans,
en skríllinn brendi til ösku Iiáðar
þessar byggingar með öllum, sem
inni voru, oghvert mannsbarn, sem
reyndi að flýja, var tafarlaust skot-
ið niður. Saina daginn gengu
skóhibörn f fylkingu uni bæinn og
héldu á rauðnrn flöggum. Slátrar-
arnir réðust á þau.og er þau reyndu
að flýja, voru þau stöðvuð af lfig-
regluliðinu og barin til óbóta, svo
[>að láu í hrönnum á strætunum
meðvitundarlaus og sundurflakandi
í sárum. Sumstaðar lágu mann-
hundar í leyni og réðust á börnin,
er þau hlupu framhjá, og börðu
[>au til óbóta. Alt bendir á, að í
stað þess að gleðjast yfir nýfeng-
inni stjórnarbót hafi rfissnesk al-
þýða orðið hálftrylt og fylst ein-
hverju lieiftaræði.
— Gulltekjan í Yukon héraðinu
á tfu sl. mánuðum til 19. okt., sem
Dominion stjórninríi var borgaður
skattur af, var alls $7,086,000, sem
er $1500 á mann hvern, sem vann
að gulltekjunni, og er [>að hærra
meðaltal á mann, en áður hefir
fengist fir uokkru gulltekju héraði
f lieiminum. $15.00 eru taldir í
hverri únzu Canada megin landa-
mæranna, en $16.00 Bandarfkja-
megin. En það er talið vfst, að
miklu meiri gulltekja hafi verið, en
skattgreiðslan sýnir, því skattur er
greiddur aðeins af þvf guili, sem
flutt er fit fir héraðinu.
— Tveir Italar. sein einhverjir
menn höfðu “importerað” til Can-
ada, til f>ess að breyta tölum á
bankaseðlum, hafa verið dæmdir,
annar í 7 ára en hinn í 3. ára fang-
elsi. Menn [>essir störfuðu í bæn-
um Kingston í Ont., annar að því
að gera $10 úr $2 seðlum, en hinn
að þvf að koma breyttu seðlunum
fit meðal alinennings.
— Mál stendur yfir f Montreal
til þess að ónýta kosningu D. Gal-
ley fyrir St. Ánne kjördæmið. Gal-
ley þessi sótti og var kosinn sem
Liberal, en nfi koma nokkrir af
þeim mönnum fram og bera vitni
á uióti Iionum, sem liann borgaði
sjálfur skildinga til [>ess að greiða
sér atkvæði, sumum eins mikið og
$18.00. 8
— Sjóher Rússa í Cronstadt
gerði uppreist þann 8 þ. m. Yfir-
mennirnir á herskipum f>eim, sem
voru [>ar á höfninni, \ oru drepnir.
Sfðan gengu hermennirnir á land
og veittu bæjarbúum atlögu, brut-
ust inn f bfiðir og vínsöluliús og
gerðu usla mikinn. Landherliðinu
var boðið út og skipað að verja
staðinn. Sló [>á í snarpan bardaga
og féllu margir af hvorutveggjum
og einnig fjöldi af friðsömum borg-
arbúum, karlmenn, konur og börn.
Margt bendir til þess, að herdeildir
Riissa vfðsvegar séu ekki ánægðar
og þvf líklegar til að ganga í lið
með uppreistarmönnum þ e g a r
minst varir. Svo langt er komið,
að Gen. Trepoff, vfirumsjónarmað-
ur hervalds og lögreglu f Péturs-
borg, hefir sagt af sér því embætti
og einnig stöðu sinni sem innan-
rfkisráðgjafi. Það bætir og á rííót-
gang stjórnarinnar, að hermenn
hennar hafa kveykt í Cronstadt-
borg, sem ór svo nærri Pétursborg,
að [>aðan má sjá roðannaf eldinum.
Tal og málþræðir milli borganna
voru ónýttir 9. þ.m. DeWitte geng-
ur illa að mynda ráðaneyti og talið
að hann muni neyðast til að taka
sér ráðgjafa úr hópi andstæðinga
sinna, sem hann hafði þó ekki ætl-
að að gera. Þvf þeir, sem liann
hafði bygt traust sitt á til aðstoðar,
brugðust honum á sfðustu stundu.
_ — Óeyrðir f bænum Pragul á
Ástrfu, á sunnudaginn var, urðu
5o manns að bana; 5o þúsund
manns voru í slagnum. Óeyrðirn-
ar mynduðust af þvf, að Socialist-
ar gengu í fylkingum um götur
borgarinnar til [>ess að sýna fjölda
sinfl, afl og áhrif f landsmáluin.
Þeir báru rauða fána, sem inerk-
ir uppreist; og [>á tók hervaldið til
sinna ráða og skaut á fylkingarnar,
og þá flúði fólkið í allar áttir.
— Heræfingar í Kfna fóru þar
fram nýlega og tóku [>átt f þeim 4o
[>ús. manna, sem Japar höfðu kent
vopnaburð og herstjórn. Allir
sendimenn Evrópu-þjóða, sem við-
staddir voru, létu mikið yfir hve
vel það tókst, og töldu Kfnverja
efni í beztu hermenn.
>
— Auðmannafélag í Califomia
hefir myndast með 40 mill. dollara
höfuðstól til þess að byggja jám-
braut [>vert yfir Alaska. Brautin
er áíetluð 5 f>ús. mflur A lengd.
Stjórnin verður beðin að ábyrgjast
skuldabréf félagsins.
— F\Tstu fylkiskosningar í Al-
berta fóru fram þann 9. þ.m. Lib-
eralar báru sigur úrbýtum. Aðeins
2 Conservativar náðu kosningu mót
23 Liberals. Enn er óákveðið hve-
nær kosningarnar í Saskatchewan
fara fram.
-— 23 þfis. ekrur af skólalöndum
voru seldar í Didsbury héraðinu f
Alberta f sl.viku fyrir alls 240 þús.
dollara, eða rúmlega $10 hver ekra.
Landverð er óðum að liækka þar
vestra, enda eru þaufrjósöm f bezta
lagi og uppskera viss.
— Norðmenn hafa meðalmennri
atkvæðagreiðslu lýst því yfir, að
[>eir kjósi heldur konungsstjórn en
lýðveldi; tæpur þriðjungur atkvæða
var á móti. Karl, sonur danska
krónprinsins, verður f>ví að sjálf-
sögðu konungur Norðmanna, og
kvað eiga að nefnast Hákon VII.
Dr. King, umferðar-augnalæknir,
hefir verið tekinn fastur f Birtle.
Hann er kærður um að hafa rænt
kossi frá konu einni f Solsgirth.
Málið hefir komið fyrir rétt, og rar
maðurinn sektaður um $20.
LANGLÍFI.
Thomas A. Edison uppfundn-
ingamaðurinn mikli, sagði nýlega í
samtali við fréttaritara blaðsins
“Skandinaven” svohljóðandi:
“ Það virðist vera óviðráðanleg
ástrfða hjá mönnum hér í landi, að
éta og sofa alt of mikið og vinna
of lítið, Menn éta og sofa sig and-
lega örmagna og stundum éta þeir
og sofa sig til dauða.
“ Menn tala um að vinnuharkan
sé [>eim um megn,, en það er hrein-
asta fjarstæða. í eðli sfnu getur
maðurinn aldrei unnið of mikið,
Þvf vinnan gerir hann hraustan.
Eg hefi sjálfur unnið 1 fimm daga
og nætur samfleytt án svefns og
neytti lítils matar, og ég afkastaði
eins miklu verki undir þessum
kringumstæðum eins og ég hefi
gert á nokkrum öðrum tfma. Fyrir
nokkrum tfma kendi ég magaveiki
og vissi ég [>á ekki hvaða orsök lág
til þess; en ég fór að takmarka
fæðu mfna til þess að,vita hverjar
verkanir [>að hefði, Eg hefi aldrei
borðað m j ö g m i k i ð, en þó
tók ég [>að ráð, að minka fæðuna.
í tvo m&nuði lifði ég á 4 únzum
fæðu f mál. Eg tók einstöku sinn-
um eina teskeið af baunum, lftið
stykki af steiktu brauði og Kaviar
eða litla brauðsneið og stykki af
fleski, osfrv. Hver var afleiðingin?
Eftir tveggja mánaða tíma vóg ég'
jafnmikið og ég gerði áður en ég
tók að takmarka fæðuna, nefnilega
185 pd.
Ég fann, að með [>vf að lifa á 12
únzum matnr á dag f 4 vikur gat
ég hugsað ljósara en áður, og að
bæði líkamsþungi minn og kraftar
höfðu lialdið fulíu jafnvægi, og f>ó
vann ég á þessu tfmabili eins mik-
ið o^ nokkru sinni fyr.
“Itali einn að nafni Louis Corn-
aro hefir ritað bók um langlííi.
Hann hélt sömu lifnaðarháttum og
fólk flest þangað til hann var á
fórtugasta árinu. Hann var sf-
veikur og [>unglyndur og gat aldrei
unnið neitt verk svo það færi hon-
um vel 6r hendi. Sjúkdómslcgur
hans sannfærðu hann um, að liann
væri á liraða ferð til grafarinnar og
læknar töldu hann af. Hann tók
svo [>á stefnu, að breyta um lffern-
ismáta sinn með þvf að éta minna
en hann. liafði gert. Hann varð
hraustur og afkastamaður til vinnu,
hugsunarfærin styrktust og lund-
emið var rólegt og lffið alt ánægju-
samt. Hann lifði þar til hann varð
ýör hundrað ára gamall.
“ Faðir mirín \ arð 94 ára gamall,
afi miun varð 102. ára, langafi
rninn varð 104. ára. Allir þrfr
lífðu þeir samkvæint lögum Louis
Cornaros”.
II. MAKSÖNGUIl
úr Brávallarrímum
Kveönum af
Kr. A. Bcnediktssyni.
1. Bragafaðir berðu mér
Birtu úr alheimsölum,
Og málið pað sem mjúkast er
í móðurjarðar dölum.
2. Fagurfræði og ljóðalist
Ljfift mér væri að sinna’,
En ævikjörin ill og bvst
Oft á móti vinnn.
3. Þarf til bæði [>rótt og s&l
Þvfsa í nngu landi,
Andrfkt kveða englamál
Um aldir sílifandi.
t. Mér er ekki mælgin léð,
*' Má þvi íuítvel una'.
A hugarskeiði hef [>ó séð
Heiða náttfiruna.
5. Eg fer einn um andans geim
Engann spyr til vega,
Skapa mér f hugarlieim -
Hluti ýmislega.
6. Hefi ég aldrei hfikt upp á
Hagyrðinga skóla,
Girnist ekki greppum frá
Geitaskóf og njóla.
7. Yísna fer ég veginn minn,
Þó veðra dynji élin.
Hengi aðrir hattinn sinn
A liróðrar uglustélin.
8. Liðs að biðja lfst ei goð, —
Ljá þau sjaldan bænir.
Oðs nú ílýgur áfram gnoð.
Iða vellir grænir.
9. Austur um brautir fræða fer,
Fornar sæki leiðir, —
Þó argi, sargi eftir mér
Ernir vængja gleiðir.
10. TJti standa ei ég má, —
Allan missi tfmann. —
Heyrið þvf og hlustið á!
Hérna er önnur rfman:
NY PRESTAKREDDA.
Sú tízka er nýlega komin á gang
meðal kvenna bæði í Evrópu og
eins hér í landi, að gafiga berhöfð-
aðar úti. Heilt félag af heldri
konum á Englandi hefir tekið sig
fram um að gangast fyrir því, að
pessi siður næði sem mestri út-
breiðslu.
En eftir [>ví sem blaðinu “Lon-
don Daily Cronicle” segist frá, þá
eru sumir prestar ensku kirkjunnar
algerlega mótfallnir þessari tlzku.
Séra G. M. Parsons hefir lokað
kirkju sinni algerlega nema aðeins
um messutfma á sunnudögum og
hefir auglýst í blöðunum ástæðuna
fyrir [>cssu tiltæki sfnu. Hann
segir:
“Cranbrooke kirkjunni er hér
með lokað ufn ótakmarkað tfmabil,
nema á guðsþjónustutímum. Kirkj-
an hefir að undanförnu verið opin
á öllum tímum, og f>að er sorglegt,
að liún getur ekki haldið áfram að
vera það eins og vera ætti. Þetta
er algerlega' að kenna lotningar-
skorti ýmsra kvenna, sem dyrfast
að ganga berhöfðaðar f guðshús án
nokkurs lotningar eða siðprýðis-
PIANOS og ORGANS.
Heintzmaii & Co. Pianos.-Bell Orgel.
Yér seljmn með mánaðaraiborgunarskilm&lum.
J. J. H McLEAN &. CO. LTD.
530 MAIN' St. WINNIPEG.
NEW Y0RK LIFE
Insurance Co. j0Hilic*l
Árið 1904 var sextugasta aldursár félagsins. Á þvf
ári seldust 185,367 Iffsábyrgðar skýrteini að nppliæð
$342,212,569, fyrsta árgjald borgað. Það er 100 millíón-
um meira, en nokkurt annað lífsábyrgðarfélag hefir selt
á nokkru úndanförnu ári. — Nærri 20 millíónir dollara
var borgað fyrir 6000 dánarkröfur. Yfir 20 mill. til lif-
andi meðlima. — 17 mill. dollara var láaað út á skýrteini
þeirra móti 5 prócent árlegum vöxtum. — Inntektir fél.
hækkuðu um 8-J millfón. — Sjóður þess hækkaði um 38
millfónir, er nú $390,(560,260.— Lífsábyrgð í gildi liækk-
aði um $183,396,409. Öll lífsábyrgð 1 gildi 1. Jan. 1905
$1,928,609.308.
CHR. ÓLAFSSON, J G. MOKGAN,
AGENT. WINNIPEG MANAGEK
merkis á höfði sér. Lítil slæða eða
klútur væri nægilegt til þessa. En
þó fólki liafi verið veittar átölur
um nokkura ára tíma fyrir þetta,
þá liefir það reynst árangurslaust.
Ef karlmenn neituðu að taka ofan
er þeir ganga í guðshús, þá væri
það næg ástæða tií [>ess að gera þá
ræka úr söfnuðum þeirra og guðs-
liúsi. Og þessi neitun kvenna, að
hylja liöfuð sfn, gerir burtrekstur
þeirra óhjákvæmilegan. Kirkjan
er lokuð með djúpri eftirsjá og
’sorg yfir virðingarskortinuui fyrir
fuðshúsi. Þetta hlýtnr að baka
irkjunní iríikils tjóns, bæði að þvr
er snertir trúræknisiðkanir hinna
lotningarfullu safnaðarlima og í
offrurn. En það er vonandi að
þetta tiltæki leiði þá léttúðarfullu
til alvarlegrar umhugsunar um það
sem þeim er skylt að inna málefni
drottins af hendi, svo að hús hans
megi sem fýrst verða opnað eins
og áður var”.
Svo mörg eru þessi orð. Mörg-
um mun Þykja þessi skoðun prests-
ins all-einkennileg, að telja það
guði þóknanlegt, að menu séu lær-
liöfðaðir en konur með skýlur eða
hatta f kirkjum. Enga guðdóm-
lega ritningarskipun ber liann þó
fyrir þeirri kenningu, að konur
megi ekki alt eins vera berhöfðaðar
f húsum inni eins og karlmenn, og
auðsjáanlegt er, að konurnar í
söfnuði hans hafa ekki getað sann-
færst af þessurn nokkurra ára á-
minningum, sem liann segist hafa
látið dynja á þeim.
Til Jóns Einarssonar.
Sól, er brennir svikið glit,
sendurðn’ enn f llnum;
styrkur, menning, stefna, vit
stjórnar penna þfnum.
Siff. Júl. Jvhanncsson.
Heimskring-la er kærkom
inn gestur á íslandi.
Fyrirtaks Land
til Sölu.
Til sölu er ágætt land '4
mílur frá Stonewall,160ekrur.
Landið er alt umgirt með 3
vírum, 40 ekrur ræktaðar og
liús og briinnur á landinu.
Verð $3,000. Góð bygging-
arlóð f Winnipeg verður tek-
in upp f fyrstu niðurborgun.
Afgangurinn borgist á 8 ár-
um. Þetta er ágætis heimili,
og ættu þvf landar, sem vilja
ná sér í gott land, að sæta
þessu tækifæri. Menn snúi
til mfn sem fyrst.
STEFÁN BJÖRNSSON,
271 Simcoe St.
Hin sundurlausa þýðing Ilions-
kviðu og Odysseifsdrápu óskast til
kaups. Ritstj. vfsar á.
Stór hellir nýfundinn.
Maður einn að nafni Charles
Deutscliman hefir nýlega fundið
helli mikinn f Klettafjöllunum inn-
an takmarka British Columbiu, og
nýskeð fengið með sér verkfræðing
Dom. stjórnarinnar í Banff til að
skoða helli þenna, sem er talinu
með þeim stæistu í heimi og að þvf
leyti ólíkur flestum öðruin hellrum,
að haim er að innan mestmegnis
a<armf.ri. Yerkfrseðineur Ayres,
sá er skoðaði hellinn með Deutscli-
man, segist á 3 dögum hafa skoðað
nákvæmlega einn afkima hellisins,
eða 3225 fet af honum, og fundið
þar ýms göng, sem hann ekki hafði
tíma til að skoða. Hann segir að
liellirinn muni vera svo stór og
með svo mörgum göngum og skút-
um, að ekki verði að svo stöddu
sagt neitt ákveðið um stærð hans.
Fjöldi fólks úr öllum áttum mun
ferðast þangað að skoða liann und-
ireius og hann er orðinn nógu vel
auglýstur. Hellirinn er nefudur
“Deutschman Cafe” og liggur f svo
nefndri Cougar Basin f fjöllunum.
C.P. R. félagið hefir þegar sent
mann þenna, sem hellirinn fann,
til þess að ferðast um í Bandaríkj-
unum til þess að auglýsa þar fund
þenna.
I!. Petursson
<fc CO.
Til nýrra skiftavina!
Móti peningum út í hönd seljum
vér matvöru ódýrara oftir gæðum,
en nokkrir aðrir f borginni.
20
pd. af hvítasykri
ALVEG FRÍTT
Hverjum, sem kaupir af oss fyrir
peniuga út í hönd $10.00 virði af
matvöru fjeinu, gefum vér algerlega
í kaupbætir 20 pd. af hvítasykri.
c i 7 n boiler
Ö I ■ I U aJve8 sefins
Hverjum, sem kaupir af oss $10
virði af járnvöru, gefum vér f kaup-
bætir boiler með eirbotni, sem
kostar $1.70. Eða þeim, sem kaup-
ir $5.00 virði gefum vér hvern þann
hlut er kostar 75c.
Þessi kostaboð standa aðeins til
25. þessa mánaðar.
Gleymið ekki nýju búðinni; húner
á horninu á Wellington Ave.
og| SimeoeJ|8treet.
B. PETURSSON «Sc CO.
CorAVellington Ave. og Simcoe 8>.
Phone 4407