Heimskringla


Heimskringla - 14.06.1906, Qupperneq 1

Heimskringla - 14.06.1906, Qupperneq 1
 Q. Johnson. Hva9 sem ykkur vantar aS kaupa eöa relja þá komiö eöa skrifið til míu. Suðv. horn. Ross 02 Isabel St. WINNIPEG Q. Johnson. Verzlar með “Dry Goods”, Skótau og Karlmannafatnað. Suðv. horn. Ross ok Is^iel St WINNIPEG XX. ÁR. WINNIPEG, MANITOBA. 14. JtNl 1906 Nr. 3b’ Arni Eggertsson SkrifsWa: Room 210 Mclutyre Block. Telephoiie P3f!4 Victor stræti, lot J26.00 íetið, að vestanverðu. bak- stræti fyrir aftan lotin. Agnes st., lot 26jú fet, á $24 fetið. Ei'tt lot á Maryland st., 30 fet, á S35 fetið. Sargenl ave., 33 fet að norðanverðu, næst við hús Goodtemplara (sem er nú í smíðum), á mjög sann- gjörnu verði og skilmálum Simcoe st., 25 feta lot á $16.50 fetið. Home st., lot á $16, að vestanverðu. Furby st., cottage á 33 feta lóð, a-ð eins $1,400.00 Góðir söluskilmálar. Peningalán út á hús. — Sölusamningar kevptir o.C'. Heimili: 671 Ross Avenue ele phone 3033 Fregnsafo Markverðustu viðburðir hvaðanæfa. J»ann 10. þ.m. andaðist í Nýja Sjálandi Richard John Seddon, stjórnarformaður þar. Seddon sál. var talinn mestur stjórnfræðingur, sem uppi hefir verið þar í landi. — Margar klaganir hafa verið sendar til Dominion gufuskipa fé- lagsins og til brezku og canadisku stjómanna yfir illri meðferð á vesturförum, sem nýlega fluttu til Ganada með Dominion línu skip- um. Yfir 600 manns voru á einu skipinu, og þeim var þjappað sain- an eins og nautgripum, karlmönn- um konum og börnum öllu í eina kássu. Plássið var bæði lítið og óhreint og maturinn sem næst ó- ætur ; 28 máltíðir er sagt að hafi verið framreiddar af svo illum mat og óhreinum, að ekki var mönnum bjóðandi. Og öll meðferð á fólkinu hafði verið svo ill og þrælsleg, sem frekast mátti vera. Áreiðanlega verður rannsókn gerð út af þessum klögunum. — Féfag hefir mvndast í Klon- dyke með 6 millíón dollara Jiöfuð- stól til þess að veita vatni i náma héruðin við Bonanza, Hunker, El- dorado, Gold Run, Sulphur og aðra læki. Vatnið á að veitast úr Klondvke ánni. í félaginu eru 3 menn frá Dawson City, einn frá Vancouver og einn frá I.undúnum á Englandi. — þjóðverjar hafa fengið nýja riffil tegund, sem þýzkur maður hefir nýlega búið til. Hann er svo gerður, að jafnótt og einni kúlu er skotið úr honum, kemur önnur í hlaupið í staðinn, og má með því móti skjóta einu skoti á hverj- um tveimur sekúndum, tneðan kúlurnar endast. — Kona ein á Frakklandi, sem lengi hefir dvalið í kjallara og lif- að á gjöfum góðra manna, andað- ist í sl. viku í mestu fátækt. Hún virtist hvorki fær um að veita sér föt né fæði og allir aumkuðu hana. En aó henni látinni fundust 37 þús. frankar í herbergi hennar, er hún hafði ntirlað saman um æfina. — Eldsábyrgðar félögin, sem starfa á Kyrrahafsströndinni, hafa hækkað brunabótagjöldin tvm 25' prósent s’ðan eldurinn mikli varð i San Francisco. En að eins á þó þessi hækkun að ná til þeirra hluta hinna ýmsu bæja og borga ■þar á Ströndinni, sen-t mest verzl- un er gerð í, en útkjálkarnir borga líkt og 'áður var. — Máltð móti járnbrautar ræn- ingjunum í British Columbia hefir fest sökina á þá þrjá menn, sem náðust í KlettafjöUnnum fyrir nokkurum dögum síðan. Einn af 'þeim er gamall, alþektur og ill- ræmdur ræningi frá Bandaríkjuu- ttm. — Látinn er af blóðeitrun Mich- ael Davitt í Dúbliu á írlaudi, einn af fremstu stjórnmáiamönnum þar í landi . — Geo. Griffin, frá London, Eug- landi, brann til' datrðs að Wiiml- peg Reach í sl:. viku. Hnu h.i.'ði kveykt eld nálægt tjaldscœði stnu og svo að líkindum fengið slag og fallið fram á eldinn, því hann fanst liggjandi á grúfu í öskunni. — kvongun Spánarkonungs með Enu prinsessu frá Englandi fór fram með mikilli viðhöfn þ. 31. f. m. Dýrmætar gjafir streymdu til 'brúðarinnar frá öllum heimsins löndum, og' svo segir fréttin, að aldrei fyr hafi jafnveglegt brúð- kaup farið fram á Spáni. það hafði frétzt frá Lundúnum viku fyrir brúðkaupið, að hópur anark- ista frá Italíu og Rússlandi væri á ferð 'til Madrid með þeim ásetn- ingi að ráða konunginn af dögum á brúðkaupsdegi hans. þetta var líka reynt. Spren-gikúlu var hent vtr loft'glugga á húsi einu og hún sprakk nálægt vagni* konungs, en meiddi þó hvorugt hjónanna ; ,en drap satnt 16 manns af lífverði þeirra, og særði fjölda manna. Ýmsir sáu morðvarg þenna um leið og hann henti kúlunni, og er sagt hann heiti Matco Moral. Og segja sumir, að hann hafi strax framið sjálfsmorð, en aðrir full- yrða, að hann hafi flúið. Meðal þeirra er létust af völdum sprengi- ’kúlunnar voru tvær konur og tvö eða þrjú börn. — þeir eru ekki vandir að tneðulum anarbistarnir, og þeirra eina vitanlega stefna og framkvæmdir eru manndráp, fram- in á hryllilegasta hátt og á al- gerðum saklevsingjum. — Róstur miklar á Rússlandi eru nú í byrjun. Svo er að sjá af fréttum þaðan, að landsstjórnin vilji ekkert tillit taka til þess, er þingið samþykkir. Stjórnin hefir neitað, að leysa úr fangelsum þá menn, er þangað hafa verið settir fyrir pólitiskar orsakir. þetta þol- ir þjó'ðin ekki og hygst að fara að dæmi Frakka og brjóta niður fang- elsin. Fyrsta áhlaupið af alþýð- unni var gert á fangelsin í Open- burg þ. 6. þ.m., en hermenn stjórn arinnar skutu og stungu lýðinn niður, og urðu uppreistarmenn frá að hverfa að lokum, án þess að fá sínu framgengt. Hinsvegar er það í hámæli, að ýmsar herdeildir séu ekki sem tryggastar, og að vænta megi þess á hverri stundu,* að þær snúist í lið með alþýðunni. þessa hefir þegar orðið vart í bænum Kurst, þar sem hermenn hafa neit- að að' vinna lögregluverk og hót- að yfirmönnum sínum bráðum banai, ef þeir létu nokkuð á sér bera. Fylkisstjórinn þar hefir beð- ið keisarann að senda sér trygga liðsmenn, annars sé alt í voða. Hermenn í Teliava héraðiau hafa ráðist á hergagnabúr stjórnarinn- ar, og neita að láta þau úr hönd- um sér aftur. þeirn var skipað, að skila vopntim sínum, en þeir neit- uðu því og kváðust mundu sýna yfirmönnum sínum í tvo heimana, ef þeir héldu sér ekki í skefjum. Yerkfall hefir og gert verið meðal sjómanna, svo að fjöldi skipa ligg- ur nú aðgeröalans undir verði lier- manna. V'erkfalismenn eru mjög æstir og líklegir til upphlaups á hverri stundii. — Fimm Itundruð brezkir ketin- arar ætla að ferðast í sumar un> Ganada og Bandaríkin til þess að kynna sér mentamálin hér vestra. — Bandaríkjastjórn hefir verið tilkynt, að þar í landi séu nú nokk urir anarkistar, sem séu að undir- búa leiðangur til Evrópu í því skyni að ráða Emanuel Italíukon- ung af dögttm og aðra þjóðhöfð- ingja í Evrópu. Stjórnin á Ítalíu hefir sent mann gagngert til Wash- ington t'il þess að ræða um mál þet'tu við Roos'eve'lt forseta. Svo mik'ið er víst, að leynilögreglu- menn Bandaríkjanna hafa um þess- ar mund'ir nóg að gera við að hafa gætur á þessum grttnsömu náung- um, sem mestmegnis eru ítalskir stórglæpamenn, sem í föðuriandi sínu höfðu falspeningaslá'ttu að at- vinnuvegi, en manndráp til til- breytingar. Allmargir Italar hafa á síðari árum verið gerðir land- rækir úr föðurlandi sínu, og hefir stjórnin á Ítalíu sent Bandaríkja- stjórn æVisögu þeirra allra. — t herbúðum Rússa i Odessa gerði herdeild nokkur upphlaup þ. 7. þ.m., og voru þar með 5 hers- höfðingjar. Stjórnin sendi stóra hersveit til að taka herdeild þessa til fanga, og varð þá hinn snarp- asti bardagi ; yfir 20 uppreistar- menn voru skotnir til bana og 60 teknir til fanga og settir í járn. Bændur og búalið hefir og gert upphlaupí ýmsum héruðum lands- ins, og æðir um með báli og brandi. Heilar hersveitir kósakka hafa sendar verið til þess að bæla niður ófriðinn, og eiga þeir dag- lega i skærum við bændaliðið. Hvorttveggju flokkarnir bræla og brenna hús og eignir aðrar, hvar sem þeir fara um landið. 1 einum bæ voru 153 hús brend til ösku og í öðrum bæ 50 hús, og þar brunnu inni á annað hundrað kokur. Hin- ir nýkjörnu þingmenn hafa margir orðið að hverfa beim aftur til átt- haga sinna, til þess að revna að stilla tíl friðar. En bændtir segj- ast ekki sefast, nema stjórnin láti að óskum þingsins og samþykki landlögin nýju, sem fara fram á að skif'ta tipp1 landsflákum auð- manna meðal bændalýðsins. — þann 6. þ.tn. var 91 stiga hiti í Chicago í skugganum, og varð bit'inn 6 mönnum að bana þann dag. I Kansas Citv varð hit- inn 86 stig, og varð tveimur mönnum að bana. — Nýtt vöru og mannflutninga- skip hefir Ctinard línan lætið byggja, er heitir “Lusitania”. því var hieypt af stokkunum í Glas- gow þ. 6. þ.m. þaö er talið mest mannfiutn'ingask'ip í beimi. það er 790 feta lungt og ber 40 þús. tons af varningi auk 550 manna á fyrstu káetu, 500 manná á annari káetu og yfir 1300 manna á þriðja farþegjarúmi. þetta er auk skips- hafnarinnar, sem er 800 manns als Alls getur því skipið fiutt, auk varnings, 3150 manns. Sama félag er og að lá'ta byggja annað skip á sömu stærð, sem nefnist “Maur- i'tania”. Bæði þessi skip eiga að ganga með 25 mílna hraða 4 kl,- stundunni. — Séra Minot J. Savage, prest- ur í New York borg, hefir sagt af sér embætti af þeirri ástæðu, að hann aðbyHist andatrúar skoðun- ina og fann sig því ekki lengur færan að prédika kenningar kirkj- unnar. það fylgir og fregninni', að fulltrúar safnaðarins mundu hafa sagt honum upp þjónustu, ef hann hefði ekki sagt af sér. — Fellibylur æddi yfir nokkurn hluta af Ontario fylki þ.'8. þ.m., og gerði skemdir miklar á sumum stöðum. Hús hrundu. Eldingar kveyktu í eignum. Menn létu lífið, og margir tneiddust. — Séra James R. Wylie, metó- distaprestur í Los Angeles, var nýlega dætndur í 12 mánaða fang- elsi fyrir fjölkvæni. Hann giftist fyrri konu sinni í New York fyrir 18 'árutn síðan, en sendi hana ný- lega til ættingja hennar í ríkinu Iowa, og giftist annari konu á meðan sú fyrA var að héiman. — Rússas'tjórn hefir hafið her- réttarmál gegn aðmírál Rojest- vensky, sem stýrði rússneska flot- antim móti Japönum. Hann er kærður um ragmensku og skort á stjórnsemi á skipum þeim, sem í hans umsjá voru. Málið á að rann'sakast 4. júlí næstk. — Miklar æsingar erti nú víðs- vegar í Bandaríkjunum út af kjöt- niðursuðu húsunum í Chicago. — það hefir utn langan tíma leikið megn grunur á því, að ait of mik- ið óhreinlæti væri í hinum ýmsu niðursuðu verkstæðum, og að rnikið af kjöti væri soðið niður, sem væri svo skemt og óhreint, að það væri alls ekki mannafæða. Til dæmis hefir einn af herforingj- um Bandaríkjanna gefið st'jórninni skýrslu um það, að niðursoðna Chicago kjöt'ið hafi orðið 3 þús. Bandaríkja hermönnum að bana meðan stríðið við Spánverja stóð yfir. Skáldsaga, er nefnist “The Jungle”, var nýlega rituð, og lýsir hún niðursuðu a'ðferðinni svo á- takanlega, að það vakti almenna eft'irtekt í öilum Bandaríkjunum. Mælt er að Rooseveit forseti hafi •þá sent tvo valda menn til þess að rannsaka alla niðursuðu aðferð- ina, og að hann hafi nú skýrslu frá þessum mönnum í höndum sér. Skýrsia þessi er sögð svo Ijót lýs- ing á niðursuðu ástándimi, að heilir kaflar úr henni séu ekki prentandi. Mál þetta hefir vakið mikla eftirtekt, bæði í Frakklandi, Englandi og á þýzkalandi, og það hefir verið skorað á stjórnir þeirra ianda, að banna algerfega innflutn- ing á þessu kjöti. Emtþá hefir það þó ekki verið gert ; en beilir hóp- ar manna haft samtök að kaupa ekki kjöt þetta fvr en trygging sé fengin fyrir því, að það sé svo hreint og vel handleikið, að naittn pess sé ekki bein lífshætta, eins og nú er talið að vera. — Maður einn í Montreal hefir nýlega stefnt nábúa sínutn og heimtar af hon-um $500 skaðabæt- ur fvrir það, að nábúinn kysti konuna hans. það er ljóst, að þessi maðtir hefir ekki alist upp á ættlandi voru. — Nær hálf önnu* millíón náma- manna í ýmsum ríkjum hafa haft samtök til þess, að áskoranir verði sendar til allra stórveldanna að semja lög er verndi líf manna er vinna að námagrefti umfram það sem verið hefir. Tekjur C.P.R. félagsins fyrjr apr. mánuð voru nær 5^ miflíón doll- íira, en kostnaður yfir 3 millíónir; hreinn ágóði $2,342,559. I apríl í fyrra var ágóði félagsins rúmlega ein millíón dollarar. Tekjur félags- ins á si. 10 mánuðum hafa orðið yfir 5oJá millíón dollara, og hreinn ágóði á sama tímabili varð hart nær 19 millíónir dollara. En á samsvarandi 10 mánuðum í fyrra varð gróðinn io1^ tnill. dollara. ------+-------- ISLAND. Stauramenn, 40 talsins, korskir, komu með Trygva kongi 1. maí til Reykjavíkur. þeir eiga að fará að ganga frá ritsímastaurunum sunnaniands. — Mannskaða sam- skotin eru komin upp í 5,467 kr. kr. — Guðmundur Einarsson, út- gerðarmaður á Seltjarnarnesi, einn ai allra mestu framkvæmdar- mönnttm sunnanlands, og ölafur Ólafsson, ættaður úr Reykjavík, druknnðu síðast í aprílmánuði af mótorbát. þeir voru að sækja sultfisk suðttr í Leiru. Mótorbát- inn hvarf einnig, og hefir ekkert orðið vart við hann síðan. — Tíð- atfar hið versta í byrjun maímán., frost með norðan þræsingi. Horfur allískyggilegar sagðar í sumum sveitum, sem von er. — Undir haf- ísjaka varð barn í Bolungarvík. það var að leika sér niðri í fjöru kringum jakann. þá klofnaði hann og barnið meiddist svo mikið, að það dó skömmu síðar. — Sýslu- nefnd Húnvetninga geti/gst fyrir því má'li, að koma upp sjúkra- skýli á Blönduósi. Sýslunefndar- menn byrjuðu samskot til þessa fyrirtækis með 450 kr. gjöf úr eig- in vösum. Banka-útibú vilja þeir fá' á Blönduósi og sömuleiðis koma þar upp sláturhúsi. Styrk er heitið af sýslusjóði þeim sem vildi kynna sér tilhögun þess. Ennfremur er verið að efna til gróðrarstöðva vtð kvennaskólann á Blönduósi. — Aðfaranótt 27. apríl strandaði á Revkjavíkurhöfn 370 smá'festa skip danskt, í miklu ofsaveðri. Mönnum varð bjargað, en talið víst, að engu öðru verði 'bjargað úr skipi þvf. Einnig rak upp í fjörunu þar við höfnina næsta morgun frönsk fiskiskúta ; þar varð einnig mannbjörg. — Bát'stapi varð 14. april í lendingu á Öndverðarnesi í Breiðuvíkur- hreppi. Tveim mönnutn varð bjarg að, en tveir týndust: Jónas Jón- asson og Gr mur Ólafsson. (Eftir Fjalik. til 11. maí). í dönskum blöðum er fullyrt, að Friðrik VIII. Danakonungur ætli að ferast tii Islands sumarið 1907. — Danastjórn befir tjáð sig fúsa t'if þess að veita Færeyjingum dáli'tla sjálfstjórn í sérmálum þeirra, samkvæmt því, sem Yíkis- þingmaður þeirra, Jóanes Patur- son, befir farið fram á í riti einu, er hunn samdi og gaf út árið 1903. — Sæstminn til íslands verð- tir 600 sæmílur ehskar, og verður lagður í ágúst í stimar. Enskt fé- lag á að búa til símann, og verð- ur hann fagður í tveímur deildum. Frá Lárvík á Hjaitlandi til þórs- hafnar í Færeyjum, og frá þórs- höffi' til Seyðisfjarðar. Lagningtim, bæði á sjó og Iandí aíla feíð til Reykjavíktir, á að verða lokíð fyr- ir 1. október þ. á. (Eftir Reykjavík t*I 12. fttaí). þann 28. april strandaðí sfcip á skeri úti fyrir Stokkseyrarhöfn. það hafði íegið við lan'dfestar tvær, en þær slitnað b^ðar. Nokk- uru af vörum varð bjargað úr skipinu. — Hfaða fattk í Litlii Sandvík í flóa og brotnaði. — Heyskortur almennur í sumtim sveitum ; margir þegar hevlatisir ; ínmstaða hefir veriC stöðug 15— 17 víkttr. — Dáin er 28. apríl á þormóðsstöðum við Skerjafjörð Guðrún Jónsdóttir, uppalin hjá Árna byskupi Helgasyni ; myndar- kona og vef látin. — Sýslufundur Árn'esinga hefir veitt 500 kr. til að koma upp girðingu til að gevma i grað'hesta sýslunnar. Einnig veitti hún 75 kr. til suuðfjár kynbóta (Lögr. til 10. maí). Harðindi á norðtir íslandi og meðfram ströndum þess. Strand- ferðaskipið Skálholt komst ekki fvrir Horn vegna íss í bvrjiin maí, og var þá ísinn óðum að reka að landi, svo ekki varð komist inn á Siglufjörð eða aírar hafnir. Skip- verjar sögðu útlit hið versta þar nyrðra, eigi fyrirsjáanlegt annað en almenntír skepnufellir yrði, ef eigi skifti bráðlega um til batnað- ar. Verst kvað útli'tið vera í Skagafirði og Eyjafirði. þar sást varla á dökkan díl fyrir snjó og voru bændtir þá farnir að skera stórgripi af heyjum ; mælt að einn bóndi í Skagafirði hafi skotið 12 besta. En flestar verzlanir eru byrgar af matvöru, svo bændur geta gefið skepnum sínum korn, og voru flestir farnir til þess í miðj- um maí. — Fjárskaðar urðu í Suðurfjöröum, austanlan'ds, í stór- hríðum trm lok marzmán. Tryggvi Haffgrímsson á Borgum í Eski- firði misti aft fé sitt fullorðið, 120 t'alsins ; fór það flest í sjóinn. í Norðfirði fórst um 80 fjár. 1 Bertt- firði hafði fent um 200 fjár, en náðist flest lifandi úr fönninni. — Snjóþvn'gsl'i allmikil sagði Vopna- fjarðarpóstur víðast á sinni leið, bæði í Vopnafirði og Héraði. Út- lit fyrir almennan heyskort og skepnutap, ef eigi bregður til bráðs bata. Sunnanpóstur hafði sagt mikltt betri veðráttu á Suð- urlandi en hér eystra ; snjólaust að kalla má strax þegar kemur suður fvxir Breiðdalsheiði. (Austri til 19. tnaí). Séra þorvaldur Bjarnarson. Nýkomið Islandsbréf getur þess, að séra þorvaldur Bjarnarson, prestur að Melfetað í Húnavatns- sýslu, hafi druknað í svonefndri Hnausakvísl af Vatnsdalsá. Is var á kvíslinni er brast undan hestinum, og hvarf bæði hesturinn og muðtirinn tindir ísinn og náð- ist eigi. öamfylgdarmaður prests- ins komst að edns af. Með séra þorvaldi hverfur ís- lenzku þjóðinni einn gáfaða'sti, færðasti og á ýmsan máta mikil- hæfas-ti maðnrinn í samtíðinni. þegar hann er nú skilinn samvist- um sóknarbarna sinna og annara, og þegar einhver annar skipar sess hans í “bratiðinu", eru líktir til, að ý-msir þeirra, sem hann gerðd oft stórkostlega gott af litliim efntim, læri betur að meta gerðir hans og valmensku, en á meðan hann var að rét-ta þeim hjálpar- höndina, svo fúslega í lifandi lífi. Með séra þorvaidi er ekki horf- inm sí-auðmjúkur hræsnari. Hann var alvarlegur trúmaður, vægöi sízt þeim, ^em i æðri stöður voru settir, var ævinnlega fús og fljót- ur ti'l að hjálpa lrtilmagnanum og jafnvel um efni fratn. Maðurinn var skapað stórmenni, gat þvl oft ekki veitt öðrum samkvæmt efn- um sínum, heldur oft samkvæm- ara efnaleysi þiggjanda, og mjög títt gegn vanþökkum. Hann var stór í luttd, stór í hugstitt og stór i tiltektum, oft fram yfir það sem praktiskt mundi kaliað meðal V'estur-íslendinga. Hann unni af heihim hug öllu, sem aukið gæti mentun og mennin'gu þjóðar sinn- ar, en hætti jafnan við að heimta, að samferðalýðurinn væri skrefa- lengri, stórstígari, en honum (lýð- num) geðjaðist bezt að. Hann skorti því miðttr það, sem fjöld- ann jafnvel af lærðu mönnunum heima skortir yfirkitt, nfl. starf- fræðislega festu (practic). Honum mun naumast hafa orðið núið um erani því, að hann væri fégjarn né “stoltur”, því það var honum flestu fjær. Hann hafði verið fram- úrskarandi námsmaður á skólatíð sinni, og heimtaði j.tínun sömu hæfileika af þeim, er hann átti að kenna, hvort sem þeir voru yngri eða eldri. Var það hans stærsti galli, og mjög tílfinnanlegur þar, sem um einsmikinti andlegan forða var að ræða og bann átti yfir að ráða. Kærusemi og ræktarsemi hans tif syfjaliðs og kunningja, var eins og annað t hæsta máta stór-mannlegt. Ég býst við aö blöðin á Fróni geti frekar um þenna mikla mann, en ég hefi tök eða tíma til nú, og eigi mund'i doktor þórði þórðar- syni, ritstjóra Vínlands, um megn að leggja þar til nokkur góð orð.; Mun hann þekkja flestum lærðunr mönnum betur til hugsunarstefnu hins látna og mannkosta hans. Winnipeg, 10. júní 1906. j'. EINARSSON. ----%------ Hjálpin ætti að koma sem fvrst. 1 tilefni af samskotum þeim, sem klúbburinn “Helgi magri” byrjaði til hjálpar ekkjum og m.un aðarleysingjum þeirra manna, sem druknuðu við Island í síðastliðn- um aprílmánuði, vil ég minna al- m'enning á, að tíminn, sem sam- skotunum verður veitt móttaka, var lengdur til I. júlí ; en þá ættu allir þeir, sem gefa ætla í þessi s-amskot, að vera búnir að því, svo þetta fátæka fólk geti sem fyrst fengið hjálpina. Og eftir fréttum, sem blöðin að heiman flvtja hingað um tíðarfar og bág- indi meðal fólks, mun hjálp, hve lit'il sem htin er, verða meðtekin með hjartans þakklæti. Góðir Isfendingar, látið nú sjá, að þdð berið hlýjan hug til bræðra og systra ykkar, sem bágt eiga heima á Isiandi, með því að gefa í þessi samskot svo mikið, að þau geti orðið ofurlítil hjálp fyrir sem flesta. það þarf ekki að vera mik- ið frá hverjum, að eins að ALL- IR gefi eitthvað. & Ég auglýsi í næstu blöðam hve mikið er komið í sjóðinn og frá hverjum, og vonast ég eftir, að það verði myndarleg upphæð. ALBERT JÖNSSON, P.O. Box 32. Gott kjöt. Landar góðir! Nú er svo kom- ið, að þið getið haft tækifæri til að sjá mig og skifta við mig sjálf- an í minni eigin búð. Ég skal gera edns vel við ykkur eins og þeir ríku, þótt ég sé ekki eittn i þeirra tölu. Og vonast ég því til, að þið komið allir að sjá mig og það sem ég hefi á boðst'ólum. M. S. JOSEPHSON, Butcher 448 Toronto st., Cor. Elfice ave. Skínandi Veggja-Pappír levfi mér að tilkynna yður aö éjf hefl nú fengið inn meiri byrsrðir af veggja papplr, en nokkru sinni áður. og sel ég haan á svo láu v^rði, að slíkt er ekki dæmi til í sðgunni. T. d. hefl ég ljómandi góðan, sterkan ag fallegan pappír, á 3Vic. rúlluna og af ðllum tegundam uppí 80c. rúlluua. Allir prlsar hjá uiér 1 ár eru 25 — 30 prósent lægri en nokkru sinni áöur Enfremur hefi ég svo miklu úr að velja, að ekki er mér annar kunnur 1 borginni er meira hefir. Komið og skoð- iö papplrinn — jafnvel þó þið kaupið ekkert. Ég er sá eini fslendingur í ðilu land- inu sem verzla með þessa vðrutegund. S. Auderson A 651 Bnnnatyue Ave. 103 Nena St. Hyndman & Co Veizla nú í gamla staðnum U. júnf, 1906 Kl. 8 þennann morgun verð ég kominn aftur f “Rialto” búðina. Ekki fullsestur þar að — en komið samt og finnið mig ef ykkur van- hagar um eitthvað f fata áttina. Hyndman & Co. Fataselar Þeirra Manna Sem Þekkja Tbe Rialto. 480V2 Main St. i

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.