Heimskringla - 02.06.1910, Side 5
heimskringla
WIl 'VIPEG, 2. JÚNÍ 1910.
It<s. 5
f
J
UPPTlNINGUR.
120,000 dalirnir, sem IV. S. Field-
incr hlaút frá VINIJM sínum, sýnir
ljóslega, hveruig Kanada er stjórn-
aö. Hinir stærstu framleggjendur
þessarar surnmu var SameinaSa
Kola- og Stál-félagið, sem fékk
stærsta hlutann af þeim 14,000,000
dölum af stjórnar peninfrum, sem
veittir voru til fláenda verka-
ílokksins, í stálgjörðar-starfinu, og
Montreal bankinn, sem rækir
bankastarf stjórnarinnar. Fielding
var fátæknr maður, og hvað haun
sjálfan snertir, þá virðist hann vel
kominn að peningum sinum, fyrir
dygga og holla þjónustu i þarfir
herra sinna.
* * *
það voru þrælar, sem unnu við
smíði hinna alþektu pýramída 6á
Egyptalandi. — Hverir vinna við
lagndngu G.T.P. brautarinnar hér í
Kanada ? —
* * *
Kaupmaður kom inn á skrif-
stofu blaðs nokkurs og var heldur
en ekki í illu skapi.
“Kg borga þér ekki grænan tú-
skilding fyrir auglýsinguna mína í
síðasta blaði”, hrópaði hann viö
ritstjórann. “þú sagðist aetla að
setja umgetningu um vorsölu mína
dnnan um lesmálið i blaðinu. þvi
gjorðirðu það ekki?”
N’ú hvað ? Og gjörði ég það nú
ekki svo sem?” svaraði ritstjórinn
alveg hyssa.
Nei, það gjörðir þú reyndar
ekki! ” mælti kaupmaðurinn bál-
reiður. “þú settir hana í dálkinu,
sem ekkert var annað í en eintóm-
ur skáldskapur — þar settirðu
hana i! ”
* * *
Mikil guðs mildi var það, að
Ilalleys halastjarnan skyldi ekki
gjöra meira ilt af sér en hún
gjörði. Margir bjuggust þá við
danða sínum, eða þeir mundu um-
breytast á augabragöi í fliúganfii
engla. Margir karlar og kerlingar
hafa'samt rauð augu síðan, en at
mismunandi ástæðum. — Kerling-
arnar af gráti, en karlarnir af illa
“distilleruðu” brennivfnij — Ilver
hefir sína eigin aðferð að mýkja
sorgir sínar og áhyggjur.— Regn
það og hráslagakuldi, setn nú i
nokkura undanfarna daga hefir
gengið, er mælt að komi frá hal-
anum á stjörnunni, sem vill með
ednhverju móti gjöra jarðarbúutn
komu sína minnilega. Bótjn, að
það er langt þangað til hún kemur
næst, svo við, sem nú lifum, burf-
um færst að kvíða.
* * *
Hvernig átt þú að synda, landi
góður ? Ja, það er nú saga að
segja frá því : Horfðu gaumgæíi-
lega og leugi á litlu fiskana í
vatnsglösunum, sem þeir eru að
selja hér niðri í bœnum, og sumir
landar hafa í húsum sínum, unz
þú ert búinn að læra af þeim
sundtökin. þá skaltu fara ofan að
Rauðará eða í sundpollinn í Y.M.
C. A., ef þú tilheyrir því félagi,
eða ofan að Vatninu, ef þú átt
heima í Nýja íslandi, éá þér góð
sundföt, svo enginn viti, hvort
þar sé heldur piltur eða stúlka á
ferð ; herma svo nákvæmlega eftir
hreyfingum fiskanna í vatninu, en
gœta þess samt vel, að höfuðið sé
alt af annað slagið upp> úr vatn-
inu. — Fylgir þú forskrift þessari,
verður þú góður sundmaður áður
langt um líður, og getur synt
næsta íslendingadag, o~ tekið
“prís” meira að segja.
* * *
Upptíningur voru þeir
ullarlagðar kallaðir heima á ts-
landi, sem börn og fullorðnir
fundu í heimahögum og úti á víða-
vangi. Var þeim saínað saman i
poka og skjóður, og þeir síðan
þvegnir og sendir í kaupstaðinn.
Hér í Vesturheimi er býsra mikið
af ullarlögðum, sem týnast af
ýmsum sauðum þessa mikla lands.
— Th. Svd. Lamb ætlar að hafa
íslenzka siðinn : að tína þá upp,
þvo þá og senda síðan i kaupstaö
Heimskringlu.
* * *
Ef H.B.R.-brautin hefði nú verið
fullgjörð, eins og Sir Wilfrid lofaði
okkur statt og stöðugt hér um ár-
iö, þá hefðum vér Winniipegingar
getað farið með Sir Ernest II.
Shackleton og aðra heiðursgesti
vcra til hinna fjarlægu staða, sem
Franklin og Kennedv hafa gjö'rt
víðfræga þar norður frá. — Sömu-
leiðis hefði vérið gaman fyrir Is-
lendinga, að fara þangað með ný
komna “emigranta” og aðra
“dándissveina”, til að sýna þeim
hina eilífu landkosti Kanada, setn
ná norður í hafsauga.
* * *
Andlátsorð konungs vors hins
látna, Játvarðar VII., er mælt að
verið hafi : “Ég hugsa að ég hafi
gjört sky^du mina”. — Vér vitum,
að hann gjörði skyldu sina : Að
hann var drengur góður ; — m a ð-
u r í öllum greinum. Mciri maður
en konungur, eftir því sem .það sr
alment skilið. Hann var aldrei og
verður aldrci álitdnn einn af ' þetm
“heilögtt” sinnar samtíðar, til
þess skihli hann lifið of vel, og til
þess naut hann of mikjls af lifsins
gæðum. Eigi heldur ljómar naín
hans á himni sögunnir á blóög-
um skjöldum og klofnum hjálmtim,
sem hinna heimsfrægu herkonunga
því hann var friðsamur og hvers
manns hugljúfi. Öll hans frægð er
í því fólgin, að hann var góonr
drengur, sannur maður — og hvr
getur netra á braut borið ? —
þessvegna hefir hann svo eintæg-
læga verið syrgður af þegnuin sin-
tim, sem vandamönnum, — þess-
vegna biðjum vér helgan írið að
umvefja legstað hans.
» » *
Jafnaðarkenningin, rétt skýrð og
rétt skilin, er hin eina og sanna
úrlausn á því böli, sem fjárhags-
lilið mannkynsins hefir við að
stríða nú í dag. Ef verkameun og
aðrir þeir, s,em óánægðir eru með
það fyrirkomulag, sem nú á sér
stað, vildu kattpa og lesa Karl
Mafx’s “Capital” og aðr<y jafnað-
arhækur, þá myndtt þeir betur
athuga og hetur skilja framleiðslu
og fyrirkomulag það, sem nú á
sér stað á jörð vorri, en — því
miður — sjón vor nær svo dauð-
ans, dauðans stutt, en — skamtn-
sýnin avo afar, afar langt. —
» * *
Ef börnin hér í borg fengju eins
margar hollar og góðar ráðlegg-
ingar frá ioreldrum sínum yfir
heila árið, eins og þau snrengja
margar púðurkerlingar 24. maí, þá
•þyrftu ei eins margir foreldfar að
hryggjast yfir misjöfnu siðferði
barna sinna og nú á sér stað. —•
Máske hvellirnir á fiæðingardag
drottningarinnar sálugu beri bal-
sam á bresti barnanna í nútíð og
framt'íð ? Betur að svo væri.
* * *
Bf einhverir skyldu finna löngun
hjá sér, að senda lagða þá, sem
þcir finnna á leið sinni gegnttm
lifið í “Upptíning Th. Svd. Lamb”,
þá geta þeir s©nt þá til :
Th. Svd. Lamb, Esq.,
P.O. Box 3083,
Winnipeg, Canada.
Með þessu er samt ekki ábyrgst,
að þeir allir upp og ofan verði
lagðir inn í raikning Heimskringltt.
— Svartir o,g mórauðir tillarlagð-
ar hafa eigi eins mikið gildi og
hvítir. — þietta eru tilvonandi upp-
tínendur beðnir að athuga.
$1.00
Á YIKU
er góð ás æða fyrir yðu að eignast
VICTOR
H. Hargrave er vor islenzknr
urnboðsmaður
Herra
CROSS, GOULDING &
SKINNER, LTD.
323 PORTAGE AVENUK, |- \\ INNIHE(x
FinniÖ oss eða skrií1<*
eftir væga skilmála fyrir-
komulagi og lista af vo ■
nm 3,000 VTCTOR RE r
ORD LÖGUM.
M«r«T»i»f»r«I«l«I«l«l«l«l»l«l«r«T«i«l«l»l<ffi»l»l»l»l»l»l«l«l»l«l«l«l«l«l»l«l»l»I«T»l
það var kveld eitt hið kaldasta’ á góu
að í kolskugga hljóður ég sat,
og ég hugsaði um þetta lirat,
sem af uáð var mér skamtað af nógu,
og þess nytsemd ég vettugi mat, —
■ mínar vonir, sem drjúptu og dóu,
að mig drej'mdi ég varist ei gat,
drauinum, vakandi ég varist ekki gyt.
Eg var útlagi orðinn á vetri,
ég var einliði manúabygð fjær,
■ég ,var engum af ættingjuni kær,
veðrin surftt að útkjálka setri
C'g i stindin mín fokinn var snær ;
mér íanst kistan þeiin kviksetta betri,
en mér kaldur og skímulaus bær,
en hinn sólarlausi, svartræfraöi bær.
Leynist orsök hjá mér eða öðrum
minnar ógæfu ? spurði ég þá,
vildi svar gegn um sjálfan mig íá,'
skoða huga míns himtnn að jöðrum
og mitt hjarta að rótunum sjá.
Var ég rændur þeim flugvængja fjöðrum,
sem menn flytja’ upp á tindana há,
upp á sigurtinda, himintinda há ?
Eigi stemdi ég við anrtara strengij —
mér fanst stórt það sem öðrum [anst smátt,
mér fanst lágt það sem hinum fanst hátt,
mér ^rinst gróandi akur og engi
þar sem öðrum fanst haustsinu-grátt,
þá, sem töldu þeir tærustu drengi,
vildi teýma’ inn um fangelsis gátt,
hleypa íöngum. þeirra frjálsum út um gátt.
Eigi vildi é.g með heimaþjóð lierja
til að liafa af grannþjóðum £é,
þráði endalaust orustuhlé,
og ég vildi ekki þjóð mína verja
fyrir vopnum, ef hefnd átti að ske,
ég var ákveðinn aldrei að sverja
neinum eiöa aö geyma’ ’ennar vé,
hennar fyrirlitnu, vanheilögu vé.
Ég varð útlagi alls þessa v-egna,
og ég átti ekki heima með þjóð,
sem af gullinu þóttist svo góð,
að hún alt þóttist mega og msgna
þó að mengað væri alt hennar blóð.
það var réttvísi hennar að hegna
þeim, scm lienni of fjarlægur stóð,
fyrir utan hennar ormaþúfu stóð.
. I
Síðan kveldið hið kaldasta á góu,
er mér kært það sem varð mér til falls,
það er skíman og skrautið míus sals,
það er verð þeirra vona sem dóu,
það er vinniiigur lífsins míns alls.
Að ég grét þegar hetjurnar hlóu
yfir höfmungum blæðandi vals,
það er huggun mín gegn hörmum þessa vals.
Guttokmur J. Guttormsson.
ooaODOaaDannnnnrinnnri
»T«I«T«l«l»l»l«l»l»l«lg|»l»I»
ÐQOOOOOO
íslands frétfcir.
Eins og gietið befir verið um áð-
ur hér í blaðinu, hvarf fvrir
skömmu einn af mest metnu og
duglegustu borgurum Akureyrir
Friðrik Kristjánsson, bankastjóri
við útibú íslandsbanka á Akur-
eyri', og vieait enginn, hvort hann er
lífs eða liðinn. þiegar farið var að
athuga embættisfærslu hans sem
bankastjóra, kom það í ljós, að
Friðrik hafði gert sig sekan í fjár-
draetti af útibúinu, sem nemur
rúmum 20 þúsund krónum. Ekki
lendir þó alt tap þetta á hankau-
um, heldur mun alt að helmingi
tapsins lenda á eínstöku mönnum,
segir Isafold.
Sumir halda því fram, að Frið-
rik hafi fyriríarið sér, aftur aðrir,
og þeir eru íleiri, halda að hann
hafi stungið af vestur um haf.
Ritstjóra skiéti hafa orðið við
Skírni, hefir Einar Fljörleifsson
látið af ritstjórn, en við tekið Dr.
Björn Bjarnason frá Viðfirði. —
Sömuleiðis hafa ritstjóra skifli
orðið við brennivínsblaðið Ingólf,
Konráð Stefánsson hættur en And-
rés BjÖrnsson, camd. phil. tekinn
við ritstjórn.
Jónas Guðlaugsson skáld fltitt-
ist búferlum frá Islandi til Noregs
19. maí sl., býst hann án efa við,
að sér muni betur vegna í átthög-
um konu sinnar, en sínum eigin.
Aður hann lagði frá strönd, kvað
hann eftirfylgjandi kvæði, setn
hann kallar :
TIL VINA MINNA.
þökk fyrir alt! — frá ættlands-
strönd
á ókunn höf ég fer.
Eg man þó hverja hlýja hönd,
sem heíir yljað mér.
þær haía létt hið harða skeið
um harmsins köldu strönd,
og benda huga heim á leið
þótt hylji bárur lönd.
Og hvort mín biður gleymska og
gröf
eða gæfa í þyrnilund,
þá held ég út á ókunn höf
með yl í heimanmund.
MANNALÁT.
Karítas Markúsdóttir, ekkja fs-
leifs Gíslasonar prests að Árnat-
bæli, andaðist í Reykjavík 28. apr.
sl. Hún var 70 ára að aldri.
Nýdáinn er Jón Guðmundssou
ibóndi í Stóradal í Húnav.s., íöður-
bróðir Guðm. Hannessonar læknis,
duglegur bóndi og vel látinn.
Stophán Jónsson, verzlunarstjón
Gránufélagsins á Sauðárkrók,
varð bráðkvaddur 5. maí sl. Hann
var eénaður vel og höfðingi mesti
í hvívctna. Ilann var tvíkvæntur ;
seinni konan var Elín Briem, höf-
undur kvennafræðarans, og lifir
hún mann sinn.
Gísli Jónsson úr Nýlendu við
Reykjavík andaðist 24. apríl sl.
Dugnaðarmaður hinn inesti og vcl
látinn.
Frakkneskt skip Ondine frá Paiu-
poul í Bretagne strandaði í Sel-
vogi, skamt frá Strandakirkju.það
var á leið til Rvíkur og átti að
birg a fiskiskipin frakknesku með
salti og öðrum hirgðum o<x taka
fiskinn úr þeim. Farmurinn ónýtt-
ist algerlega og sjálft fór skipið í
spón. — Allir menn menn komust
af. — þoka var mikil þenna dag,
hvast og ólga í sjóinn.
Fiskiskipið Víkingur eign Ás-
geirs Péturssonar kaupmanns á
Akurevri strandaði évrir skömmu
á Ilaganesvík. Menn hjörguðust,
en skipiö er talið ónýtt, og er það
mikill skaði fyrir eigandann, bví
það var óvátrygt.
Úr Mjóafirði er skrifað : “Hér
er voðalegt ástand á Austurlandi ;
útlit fyrir, held ég, almennan fellir
ef ekki batnar helzt nú þessa dag-
ana. Jieir eru biinir að drepa kýr
sumstaðar á Héraði og einnig fé ;
til dæmis kom nýlega írétt frá
Eiðum, að búið væri að drepa þar
a 1 a n búpening. þetta er voðalegt
ástand fyrir landið og sárast, þeg-
ar þessi fyrirmyndarbú ganga a
undan í því, að vera heylaust í
fyrstu v-iku sumars”.
Sex þrotabú voru gerð upp hér
í bænum á mánudaginn, segir ísa-
fold. Síður en ekki gfæsileg voru
úrslitin. Eitt þeirra skuldaði 17,-
900 kr., en átti einar 344 kr. upp í
þá skuld ; annað skuldaði 8,111
hr. og átti rúmar 37 kr. upp í það
þriðja búið gat borgað 4 kr. 32
au. upp í hverjar 1000 kr., sem á
því hvíldu. Langbezt stóð sig eiia
dánar,þrotabúið, sem sé Sig. heit.
frá Fjöllum. það ga.t borgað nœst-
um 15J4 prósent a£ skuldunum.
Gjaldþrot virðast ver-a langmesti
gróðavegurinn hér um slóðir. Að
skulda 17,000 kr. og sleppa við
16,656 kr. af því, — það er gróði
í lagi.
þær fréttir íékk ísafold a£ Akur-
eyri, að heyhirgðir manna væru
mjög á þrotum þar norðurfrá og
mjög hætt við, að grípa verði bráð
lega til að skera niður trripina, ef
þessum ósköpum heldur áfram.
Sjötíu og fjórir kjósendur í
Mýrasýslu hafa mótmælt éundar-
ályktun mciri hlutans á Borgarnes
fundinum 31. jan., þar sem sam-
þykt var áskornn um aukaþing og
vantrausts yfirlýsing til ráðherra
m.m. með riimuin 60 atkvæðum.
HELLIR.
. Skamt frá Fljótstungu í Hvítár-
síðu — að eins 10—J5 mínútna
gangur — er hellir, sem heitjr
Yíðgeymir (hefir áður verið kall-
aður Víðgelmi).
Ilann hefir ekki verið kannaður
eða rruældur fvr en á sl. sumpi.
Mcnn h tfa að sönnu vitað af hon-
um, en enginn hefir álitið haun
nieitt merkilegan, og ekki haldið ó-
maksins ver,t að kanna hann.
þjóðsaga hefir og fylgt hellinum,
sem eí til vill hefir fælt menn frá
honum, og má nú geta sér til, á
hvaða rökum hún cr bygð.
Ofau í slétt hraun er gjá ein al’-
mikil (jarðfall), 40 f.iðmar á lengd.
Líti^ eitt vestar en á miðri gjánni
er steinbrú, 1—5 faðmar á breidcl.
Niður af brúnni eru 8—10 f iðmar.
Einstigi er o£,:n í gjána, sem
einn maðtir í senn getur hæglega
komist bæði ofan og upp. Úr báð-
um endum gjárinnar liggur híllir,
ann.tr til austurs, hinn til vesturs,
miklit lengri og að sumu leyti
merkilegri, og viröur honum að
•eins lýst Hér.
Úr gjánni Hallar ofan í móti, hér
um bil 5—6 f iðma niður, en þá er
komið á slétt gólf. J>ar er myrkv.r
niðri og verður úr því að not i
ljós. 30 föðmtim innar litur alt í
einu svo út, sem Hellirinn sé. á
enda. Ilann er þar á tveggja
ftðma bili tæplega manngengur,
254 aHn a Hæð. Fn svo nær har.u
alt í einu aftur sintii fullu hæð,
sem er að m.eðalt-rtli 24—30 álnir.
Rótt fyrir sunnan bessi þrengsl'.
eða 32 faðtna irá hellismunnanutn,
er oifurlítiil skápur út í vegginn
að sttnnanverðu niður viö gTi
Jtar hafa hcllur verið reistar á
rönd, og mvndar það flet fvrir
einn mann. Og fyrir traraan fletiö
er eins og hlaðinn hafi verið garð-
ur, sem nú er algerlega hruninn»
þarna hefir maður búið, þótt æði-
lang.t sé að likindum síðan. þar cr
töluvert af beinum, en flest eru
þau orðin að dufti ; að eins nokk-
tir skelbeiu sjást þar enn bá tdl og
; frá, sem tönn tímans hefir ekki
; tinndð á.
Spölkorn innar, eða 75 faöma
; frá hellismynninu, er ís-súl t ofan
j úr mæni og niður á gólf. Gólfið cr
þar töluvert hærra á litlum bletti,
I °íf I)ar er það stórgrýtt. Af hæð
þessari er ákaílega fögiir útsjón.
j Gólfið, sem nú lækkar aftur og
verður sléttara, er alsett ís-kert-
j um, misstórum, og er jtað til-
| sýndar engu líkara en mannfjölda
j á götu úti, þegar ljósbirtan slær á
ikertin ýmsum einkennilegum lit-
breytin.gum.
Jtegar komiö er 3—400 faðma inn
eftir hellinum, verðtir hann ennþá
tilkomumeiri. Hæðin er allstaðar
hér um bil hin sama (um 30 ilnir)
og tnænirinn bogadreginn eins og
hvelfing, sem hvílir á syllum uppi
undir þakinu. Veggirnir ertt eins
og geysiháir múrve.ggir, alsetar
ýmiskonar mynclaskrauti, sem lík-
ist mönnum og alls konar dýrum.
þaðeru dropasteins myndanir, ým-
ist bláar eða dökkrauðar. Gólfið,
sem nti er að miklu leyti slétt, er
einni r alsett dropasteinum af sömu
gerð, og eru flestir þeirra mjög
fagrir.
þessi hellir er 660 faðmar a
lengcl, á hæð eins og fyr segir (24
I —30 álnir), og broiddin er 6—8
|faðmar.
J>egar gjádn og austurhellirinn cr
talinn með, verður lengd alls hell-
isins um 1600 faðmar, og er þetta
því lengsti hellir á Íslandi. '
V'estiirhellinu má ganga á T kl.-
stund og 10—15 mínútum, eða
fram og aftur á 2)4 klukkustund.
— Reykjavík. T.r.6
Trading1 Co.
(ItliACU & BOLE)
ílAFA EINUNGIS
BESTU VÖRUTEGUNDIE.
Einu tiniboðsmeiin fyrir :—
“SLATER” Skðna gdðo.
‘ FIT-EITE” Fatnaðinn.
“II. B. K.” prjcíiiafélagið.
“HELENA” pils og ‘waist’
kvenfátnaði.
Bestn iwitvörutegunc'lir.
DEERING ” akmyrkju
verkfæri o, s. frv.
Beztu vörrr Lá^t verð
Fljót og wikvaun afgreiðsla.
Farmer?s Tradirg Co.,
TIIE QUALlTY STOiCH
Wynyard, Sask.
/
Qkeypis Píanó fyrir yður
LESIÐ I>ETTA:
DTEFNA þessa félags liefir ver-
ið, að “fullnægja. eða pening-
um yðar skilað aftur”. Og nú
gerum vér það bezta tillxið sem
nokkrir Pfanó salar hafa nokkru
sinni gert f þessu lancli. Það
yeitir yður frfa reynslu hljóðfær-
isins og kauprc'tt á því með
HEILDSÖLU verði >og vægum
afborgunu m ef þess óskast. Vér
biðjum ekki um 1 cent af yðar
petiingum fyrr en þér eruð alveg
ánoegðir. —
---------Tilboð vort-----------------
Fillið út og sendið meðfylgjandi “ COUPON ” og vi'r sendum
yður strax sýnismyndir af vorum ýmsu ldjóðfærnm með verði hvc'rs
þeirra. Þi r veljið Ffand, og vc'r sendutn yður j>að tafarlanst og
borgnm flutningsgjald; þi'r rejmið það 1 BOdaga ókeypis. Eftir
það getið þér sent J>að oss á vorn kostnað, eða keypt það af oss með
hoildsöln verði. þjp þetta ekki fíOtt boð ?
W. DOHERTY PIANO & ORGAN CO., LTD.,
Western Branch, Winnipeg, Man. Factories, Clinton, Ont.
UO U l'OA
W. Doiierty Piano & Organ Co., Ltd.,
286 HARGRAVE STREET •, WINNIPEG, MANITOBA. ’ '
Kroruhorrar! Sendið mér strax sýnismyndir af Piano tepundum yðar^með^verö-
listtt or upplýsiiiffum um ókeypis reynslu-tilfcjoð yðar, er sýmr kverní# ég'. get roynt
Píauó-iö um 30 dagtt, mór kostnaðarlaust.
NAFN_
ÁRITAN.