Heimskringla - 28.03.1912, Qupperneq 6
G. BLS.
WINNIPEG, 28. MARZ 1912,
HEIMSKRIN GLA
Sherwin - Williamsl
P
AINT
fyrir alskonar
húsmálningu.
<í>
<S>
Prýðingar-tfmi nálgast nú.
Dálftið af Sherwin-Williams %
húsmáli getur prýtt húsið yð- £
ar utan og innan. — Brúkið <s»
ekker annað mál en þetta. —
S.-W. húsmálið málar mest,
endist lengur, og er úferðar- <*?
fegurra en nokkurt annað hús %
mál sem búið er til. — Koraið
inn og skoðið litarspjaldið, —
CAMERON &CARSCADDEN
QUALITY IIAKUWARE
Wynyard, - Sask. ;*■;
¥
<$^<$x$x$<$»$»$*$x$»$*$»$*$<$*$*$*$*$»$»$><$’
MARKET HOTEL
146 Princess St.
ó móti markaöoam
P. O’CONNELL, etgandi, WINNIPEQ
Bozto vínföng vÍDdlar og afihlynnÍDg
gób. IsleDzkur veitÍDcraniaDur P. S.
Anderson, leiöbeinir lsleudingam.
JIMMY y S HOTEL
BEZTU VÍN' Oö VINDLAB.
VÍNVEITARI T.H.FBASER,
ÍSLENDINGUB. : : : : :
James Thorpe, Elgandl
Woodbine Hotel
466 MAIN ST.
Btwrsta Billiard Hall 1 NorOvestnrlandÍDO
Tln Pool-borö.—Alskonar vlnog vindlar
Qiattn/ og fwOt: $1.00 ó dag og þar yflr
Leunon A Hebb,
Eigendnr.
MARTYN F. SMITH,
TANNLÆKNIH.
Falrbalrn Blk. Cor Maln & Selklrk
Sérfræðingur f Grullfyllingu
og 3llum aðgerðum og tilbún
aði Tanna. Tennur dregnar
án sársauka. Engin veiki á
eftir eða gómbólga. —
Stofan opin kl. 7 til 9 á kveldin
Office
Phone Main 69 4 4.
Heimilis
PhoDe Maio 6462
A. S. TORBERT ’ S
RAKARASTOFA
Er 1 Jimmy’s Hótel. Besta verk, ó«fet
verkfæri; Rakstar 15c en HárskurOar am
25c. — óskar viðskifta íslendinga. — P
I
A. H. BAKDAL
Belar llkkistur og anuast um útfarir.
Allnr ótbáuaður só bezti. Enfremur
selur hanu aliskouar minnisvarCa og
legsteina.
12i Nena St. Phone Garry 2152
Veggjapappi og málaðir veggir
hreinsaS. Gamlir speglar nýjaSir
upp. Alt verk ábyrgst. — SkrifiÖ
eöa taliS viS
O. S. SNÆDAL,
(22-2) 678 Toronto Street.
Frá Nýja íslandi.
Hér eru allir að yngjast upp af
gullrendum gróðavonum, sem
náttúrlegt er, þar sem heita má,
að allra óskir. séu uppfyltar á láði
og legi : Fullkomið loforð frá
stjórninni um fiskiklak i Mikley,
sem af öllum kunnugum er fullyrt
að sé eitt það allra nauðsynleg-
asta Ofr bezta, sem liægt var að
gera fyrir þá menn, sem í grend
við þetta mikla vatn búa ; og
sömuleiðis ákveðið íoforð um
framlenging Gimli járnbrautarinn-
ar alla leið til Riverton við ls-
lendingaíljót ; sem ekki eru nein
smáræðis þægindi fyrir bændur,
sem á því svæði búa, sem brautin
kemur til að liggja gegnum. Og
það viðurkfenna allir, jafnvel góðir
o— n-amlir Liberalar segja, að Mr.
Geo. H. Bradbury eigi stórar
þakkir skyldar fyrir sína frammi-
stöðu, og slíkan erindsreka hafi
þeir a 1 d r e i haft á þingi í Ot-
tawa, og hafa þeir vafalaust oft
staðið fjær sannleikanum, þegar
um pólitisk málefni er að ræða.
Lönd og lóðir stíga hér óðfiuga
í verði. Nýlega eldi Mr. H. P.
Tergesen tæpar 80 ekfur af landi
norðan við Gimli bæ, fyrir $5,000
— segi og skrifa fimm þúsund
dali —, sem er frekar álitlegur
skildingur, og sýnir, að land í
Nýja Islandi er orðið einhvers
'virði. það er álitið dýrt land í
hvaða bygðarlagi sem er, að
minsta kosti í Manitoba, þegar
fjórðungur úr section er kominn
upp í tíu þúsund dali. Einnig hafa
lóðir hér í Gimli bæ verig seldar
nýlega á $540 dali ; Sigtr. E. Jón-
asson seldi núna fyrir nokkrum
dögum eína ekru með hálfbygðu
smáhýsi á fyrir 700 dali (auðvit-
að er ekran nærri Gimli bæ). —
Nokkrar fleiri eignir hér hafa skift
höndum í seinni tíð, og virðist alt
benda á heldur góða tíma fyrir
Gimli í nálægri framtíð.
Brunngrafarar stjórnarinnar hafa
gert mikinn usla hér meðal bænda
i kring ; grafið brunna hjá mörg-
um, og allstaðar með bezta á-
rangri, fengið allstaðar flóandi
vatn. þeir segja mér bændurnfr,
að það sé stór mnnur á, að hafa
óþrjótandi up]>sprettuvatn hjá
húsinu sínu, eða þurfa að sækja
vatn í tunnum ofan í Winnipeg
vatn 2—3 mílur ; (ég nærri trúi
þeim). ' þeir segjast nú mega
þakka Baldwin sínum það, að þeir
hafi feugið þessa brunna.
það er unnið allhart að fram-
lenging bryggjunnar, sem lengjast
á um 150 fet, sem er allgóð við-
bót. Svo búmnst við við að fá
á næsta sumri gufu-skóflu til
að dýpka höfnina, og er það eitt
af því nauðsynlegasta til þess að
fá hér góða höfn. Auðvitað sendi
Laurier syórnin okkur í haust,
deyi fvrir kosningarnar, eina sina
gufu-skóflu ; en svo hvarf hún
rétt að segja strax eftir kosning-
arnar. Sumum þótti að lýsa hug-
ulsemi af karlinum, að senda okk-
tir vélina ; en til voru þeir Liber-
alar, sem hálf skömmuðust sín
fyrir, að hún skyldi ekki koma
ögn fvr, — þeim fanst það eins og
Enskurinn seirir, nokkuð “bare-
faced”.
Etki meira núna ; ég er vis að
senda þér línu seinna. Svo kveð
ég þig, Kringla mín.
Gimli, 16. marz. \ l A.Th.
Fréttabréf.
Um iniðjan janúar fór ég að
heiman í ferðalag austur til Mani-
toba. Fyrst kom ég til höfuðstað-
arins Winnipeg í nefndu fylki. Var
þar gleði og glaumur og Glæsis-
valla snið á llestu. En ferð minni
var heitið norðar og neðar, sem
sé til Nýja íslands. þar býr skyld-
íólk mitt og góðkunningjar. þar
hafði ég ekki komið í 6 ár. Syst-
kini mín búp. í nyrðri hluta bygð-
arinnar, á Vidir P.O. og víðar.
þar nyrðra dvaldi ég nær því 7
vikur ; mest hjá Jóní bróður mín-
mn Ilalldórssyni, að Vidir.
Mér þykir mjög vænt um, að
geta staðhæft það, að Nýja ísland
liefir tekiö meiri framförum á þess-
um 6 árum, sem ég liefi ekki séð
það, en mig hafði dreymt um.
Eg hefi séð og reynt þessa stór-
kostlegu framfara byltingu og
stend forviða. Sérstaklega á ég
við samgöngufæri og jarðrækt, —
fyrir fylkið og heildina samgöngu-
umbætur, en fyrir sveitina og
bændurna jarðrækt.in. ICngum get-
ur blandast hugur tim, að jarð-
vegur í Nýja Islandi er einhver
hinn ákjósanlegasti, sem völ er á
í Manitoba, þegar búið er að und-
irbúa hann í akur. þessu til sönn-
unar er, að frændi minn, Baldvin
Jónsson, míltt austur frá Ár-
borg, sáði í 2% ekru flaxi, og fékk
í uppskeru yfir 31 bushel af ekru.
Meðal uppskera af ílaxj er talin 12
bushel, þar sem ég til þekki. Eg
fékk sannar spurnir af því, að upp-
skera svipuð þessu er víða þekt
þar norður frá. Að mínu áliti er
Nýja ísland, þótt elzt sé allra ný-
leinja íslendinga í Vestur-Canada,
sú frjósamasta og endingarbezta
að jarðvegi og staðháttum, sem
til er — í Manitoba að minsta
kosti. Engir staðir standa jafnvel
að vígi með samgöngur til höfuð-
staðarins Winnipeg, sem Nýja ís-
land, — tvær járnbrautir og góð
vatnaleið. Engin sveit hefir slíku
gengi að ltossa, og mun það til
stórframfara leiða.
þau afbragðs skilyrði, sem Nýja
'ísland á nú að fagna, hljóta að
leiða af sér innan 10—15 ára, að
þar verða þ.au næst dýrustu lönd,
sem fáanleg verða í Manitoba.
Enda efast ég ekki um, að Ný-
íslendingar láta ekkert ógert til
að koma löndum sínum til vegs og
gengis. það lítur svo út, sem þeir
séu óskabörn stjórnarinnar í Mani-
toba, og einnig hinnar ungu stjórn-
ar í Ottawa. Og eiga þingmenn
þeirra, B. L. Baldwinson og Geo.
II. Bradbury stóran heiður skilið
frá Ný-lslendingum fyrir sam-
göngu umbætur með fleiru.
það skal tekið fram, að það sem
ég kyntist annara þjóða mönnum
þar nyrðra, þá eru þeir samhuga
íslendingum, að láta ekkert óspar-
að til að koma Ný-Islandi fram úr
öðrum sveitum.
Ég var staddur hjá hr. Jóhanni
Briem við Islendingafljót, þegar
fregnin kom nc>rður, að brautin
frá Gimli yrði lengd norður að
Fljóti. Get ég naumast lýst þeirri
gleði og fögnuði sem það orsakaði
hjá ungum jafnt og gömlum. —
Unga kvnslóðin hrópaði : Nú eru
okkar dagar byrjaðir — að taka
til starfa. Feður vorir hafa starf-
að og staðið lengi á vígvellinum,
en nú er þeim sigurinn gefinn að
lokum. Vér verðum að feta í fót-
spor þeirra og setja merkið engu
lægra en þeir. — Lánist þeim alt
vel.
Meðan ég var norðurfrá kallaði
hr. Jón Sigurðsson saman almenn-
an bygðarfund að Vidir og mættu
á fundinum 10—15 menn. Fundur-
inn samþykti , að byggja alment
samkomuhús fyrir bygðina, 30^50
fet að stærð. Hr. Sigurður Finns-
son gaf fyrstur manna 1000 fet af
timbri ; þá Jóti/ Sigurðsson 1000
íet ; þá þorleikur Sveinsson 500
fet, og Franklín Pétursson 500 fet.
Allir, sem á þessum fundi voru,
gáfu í orði verk' og efni meira og
minna til þessa' fyrirhugaða sam-
komuhúss. Eg get þtess af því mér
finst þetta lofsvert af bygðar-
mönnum. Saga þeirra mun geta
nákvæmara um þetta síðar.
Um leið og ég enda þessar línur,
vil ég láta þakklæti mitt í ljósi til
allra, sem tóku þátt í samsæti því
sem Jón bróðir minn og kona
hans Anna héldu mér kveldinu áð-
ur en ég fór af stað. þar voru um
60 manns samankomnir. Timi og
atvik hömluðu mér frá að þakka
íyrir þessa rausn og höfðingsskap
eins vel og ég gjarnan vildi hafa
gert. — Að síðustu þakka ég öllu
skyldfólki mínu og vandalausum
fvrir þær bróðurlegu o'g vingjarn-
legu viðtökur, sem ég naut hjá
tinum og sérhverjum þar nyrðra.
Lengi lifi Nýja Island!
Staddur í W'innipeg, 12. marz
1912.
Thorbergur Halldórsson.
Wynj-ard, Sask.
STAKA.
J>egar Lárus liggur dáinn,
lyft fær hönd ei sáranað, —
vilji einhver naga náinn,
naumast tnun ég líða það.
Austmann.
TIL MINNIS.
Heilsuhælið á Vífilsstöðum • á
íslandi er það eína sjúkrahæli á
fósturjörð vorri^ sem vonast má
til að geti veitt fátækum sjúkling-
um hjúkrun fyrir litla éða enga
borgun.
Eg þykist vita, að það séu
rnargir, sem með nokkurri fjár-
upphæð vildu styrkja þetta hæli,
sen sem ekki koma sér að, að
senda það ‘‘heim”. Til þess að
ráða bót á áessu, tek ég á móti
hvaða upphæð sem er og sendi,
kostnaðarlaust gefanda, til stjórn-
enda hælisins á íslandi.
J. JÓNASSON,
248 Pembina St., Winnipeg, Man.
SkrifiO yður fyrir
HEIMSKRIN GLU
svo að þér íietið æ-
tíð fylgst með aðal
málum Islendinga
hér og heima.
REIÐHJÓL
en nokkru sinni áður,
Okkar beztu “Perfect’
Nú þegar vorið er að koma,
þft viljum vér láta alla þá'sem
ætla að kaupa sér reiðhjól
fyrir næsta sumar vita að vér
hofum meiri byrðir af bæði
nýjum og brúkuðum hjólum
reiðhjól og “Blue Flyer” hafa
stígið niður um $5.00 í ár, og eru þó eiulurbætt.
Einnig hiifum vér betri tæki á að gera allar aðgerður svo
úr garði að menn verðj ánægðir. Vér gerum við Motor hjól
egðir. ver geru
og bifreiðar og búuqi til parta i hvaða vélar sein er.
\ CENTRAL BICYCLE CO.
} • SUMARLIÐI MáTTHEWS, ElGANDI
j 5^6 Notre Dame Ave. Phone Qarry 121
MANITOBA
tækifæranna IJV.ND.
Hér skulu taldir að eins fáir þeírra miklu yfir-
buröa, sem Manitoba fylki býður, og sýnt. hvers-
vegna allir þeir, sem óska að bæta lífskjör sín, ættu
að taka sér bólfestu innan takmarka þessa fylkis.
TIL BOiNDANS.
Frjósemi jarðvegsins og loftslagið hafa gert Mani-
toba heimsfræga, sem gróðrarstöð No. 1 hard hveitis.
Manitoba býður bændasonum ókeypis búnaðar-
mentun á búnaðarskóla, sem jafngildir þeim beztu
sinnar tegundar á ameríkanska meginlandinu.
TIL IÐNAÐAR- OG VERKAMANNA.
Blómgandi framleiðslustofnanir í vorum óðfluga
stækkandi borgum, sækjast eftir allskyns handverks-
mönnum, og borga þeim hæztu gildandi vinnulaun.
Algengir verkamt-nn geta^og fengið næga atvinnu með
beztu launum. Hér eru yfirgnæfandi atvinnutæki-
færi fyrir alla.
TIL FJARHYGGTENDA.
Manitoba býður gnægð rafafls til framleiðslu og
allskyns iðnaðar og verkstæða, með lágu verði ; —
Frjósamt land ; — margvísLegar og ótæmandi auðs-
uppsprettur frá náttúrunnar hendi ; — Ágæt sam-
göngu og flutningatæki ; — Ungir og óðfluga vaxandd
bæir og borgir. — Alt þetta býður vitsmunum, auð-
æfum og framtakssemi óviðjafnanleg tækifeeri og
starfsarð um fram fylstu vonir. Vér bjóðum öllum
að koma og öðlast hluttöku f velsæld vorri og þrosk-
un. — Til frekari upplýsinga, skrifið :
JOS. HARTNEY, 77 York Street, Toronto, Ont.
JOS. BURKE, 178 Logan Avenue, Winnipeg, Man.
A. A. C. LaRIVIERE, 22 AULance Bldg., Montreal,
J. F. TENNANT, Gretna, Manitoba,
J. .1. tiOUIEK,
Deputy Minister of Agriculture and Immigration.’.Wimi'peK
VITIJR MAÐUR ef varkár með að drekka eingöngu
hreint öl. þér getið jaf'na reitt yður á.
Prcwrt’s Reilwooil Lagtr
það er léttur, freyðandi bjór, gerður eingöngu
úr Malt og Hops. Biðjið ætíö um bann.
E.L.I)rewry, llaiintactiirer, Wiiinipeg
S y 1 v í a
191
‘Eg —’, stamaði hún.
Lafði Marlow kysti hana, en Andrey lagði höfuð
sitt á öxl hennar Og grét.
Jordan horfði fáeín augnablik á eftir vagninum,
svo fór hann og lét aka sér til skrifstofu nafnkunns
blaðs, Ofr áður en klukkutími var liðinn frá því
hann skildi við Andrey, var pr.entarinn búinn að
setja greinarkorn, sem gaf til kynna, að Sir Jordan
Lynne væri heitbundinn Andrey Hope.
þegar Sylvía var komin í fataklefann sinn, sagði
Mercy :
‘Nú-nú, kæra vina mín, ertu nú ánægð?’
Sylvía lirökk við, því hún var að hugsa um
annað.
‘J?etta hefir verið hinn stórkostlegasti sigur’,
Mercy. ‘þér sjáið nú, hve lítils virði grunur yðar
hefir verið’.
‘Kveldið er ekki á enda ennþá’, sagði Sylvía.
‘Eru þau ekki falleg, Mercy?’ Hún tók blómin og
sýnni henni þau. ‘Og sáuð J>ér, að hún haf mér
þau ? Ég vildi að ég gæti kynst henni, en það
verður líklega ekkert af því. það er svo stórt bil
á milli hefðarmeyjar, sem situr í stúku, og þeirrar
stúlku, sem kemur inn á leiksviðið’.
‘þér eruð orðnar ástfangnar í henni?’ sagði
Mercy brosandi.
‘Já, það er tilfellið’.
‘þetta er fyrsti blómvöndurinn, sem J>ér hafið
tekið nokkurt tillit til’, sagði Mercy. ‘það var gott
að hann kom frá stúlku’.
‘Engin blóm frá nokkrum karlmanni vekja hjá
mér sömu tilfinningar og þessi.
‘Við skulum bíða þangað til maðurinn og tím-
inn kemur’, sagði Mercy blíðlega.
‘Já, við skulum bíða’, sagði Sylvía og þagnaði.
192
Sögusafn Heims'kringlu
‘Pln mér þykir vænt um, að alt gekk vel’, sagði hún
eítir litla stund. ‘Getutn við nú farið?’.
þær gengu til þeirra dyra, sem leikhússfólkið
notaði. Leikstjórinn og fleiri feikendur biðu ber-
höfðaðir eftir að hjálpa Sylvíu inn í vagninn.
Gatan var full af fólki og þegar vagninn kom
á móts við aðaldvr leikhússins, varð hann að nema
staðar.
‘Leikhúsið hefir verið alv,eg fult’, sagði Mercy ;
‘það eru ekki allir komnir út enn’.
Svlvía laut áfram til að sjá út, en hljóðaði um
leið af skelfingu.
‘Sko, sko’, k’aflaði liún.
1 sama bili ók vagninn af stað.
‘Hvað er j»etta ? Hvað sáuð þér?’ sagði Mercy.
Svlvía var föl af hræðslu.
‘Gátuð þér ekki séð?’ stundi hún upp.
‘Nei, ég sá ekkert’, sagði Mercy. ‘Hvað sáuð
þér ? Reynið þér að vefa rókgar’.
‘Já, já', sagði hún lágt. ‘Verið þér ekki hrædd-
ar. Sáuð þér hann ekki?’
‘Hvern?’ Sylvía.
‘Lavorick’. hvíMaði hún.
‘Nei, nei, góða mín, sá maður er ekki hér í Lon-
don’, sagði Mercy huggandi.
Sylvía vafði að sér káptinni og sagði svo :
‘J>etta vildi okkur til, Mercy. það var Lavor-
ick’.
S y 1 v í a
193
XXVIII. KAFÍTULI.
Sylvía o g Andrey.
þessa nótt svaf Mercy hjá Sylviu, sem var svo
hrædd, að hún sk'alf öðru hvoru.
‘Góða barnið mitt’, sagði Mercy, ‘ég held að
þetta hafi verið missýning’.
'‘Nei, mér skjátlaði ekki,, ég man vel eftir hon-
um’.
‘Jæja. Á ég þá að gera lögreglunni aðvart?’
‘Nei, nei’, svaraði Sylvía, ‘látum hann eiga sig,
Mercy. það g,etur skeð, að hann hafi ekki séð mig,
og líkfega fer hann bráðum aftur’.
‘Já’, sagði Mercy, ‘sííkir menn eru sjaldan lengi
á sama stað’.
það var heppilegt, að næsti dagur var hvíldar-
dagur fyrir Sylvíti, því henni leið svo illa.
Fyrri hluta dagsins gerði leikstjórinn henni boð,
að öll sæti væru seld fyrir næsta dag. Hún fékk
ýms heimboð, en þáði þau ekki. Ljósmyndari nokk-
ur kom einnig og vildi fá að ljósmynda hana, en
Sylvía kvað nei við.
‘H,vað er þetta?’ hrópaði hann. ‘þetta gera all-
ar heldri konur og stúlkur í landinuí.
‘þ.á er Signora Stella undantekning’, svaraði
Mercy brosandi.
Daginn eftir var Sylvía hressari, og þegar hún
gekk inn á leiksviðið, hafði hún náð sjálfstjórn á
sér.
‘Hún er ekki bér í kveld’, sagði Sylvía við
Mercv.
194
Sögusafn Hei ms kringlu
‘Hver ? Hver, góða Sylvía?’
‘Fallega stúlkan, sem ég varð ástfangin í’, sagði
Sylvía. ‘Ég vildi að hún væri hér, en það er til oí
mikils ætlað, að likindum, að hún komi hér á hverju
kveldí’.
‘það má varla búast við því’, sagði Mercy.
‘Já, það er satt, en mér finst ég muni ekki geta.
stingið eins vel, þegar híin er ekki’.
Við endir annars atriðis kom hún glö.ð til Mercy
°g sagði:
‘Hún er hérna, Mercy, og ég varð eins kát og
hún væri systir mín. Hún var þungbúnari á svip
núna, en í gærkveldi, og Jfað hafði meiri áhrif á
mig. Andrey Ilope — en hvað það er fallegt nafn,
eins og hún er sjálf”.
‘það er fjöldi fólks, sem komið hefir aftur’, sagði'
Mercy.
‘Eg ’Veit það, pn hún er sú eina, sem ég kæri mig
nokkuð uni’.
þetta kveld hafði Andrey átt erfitt með, að iá1
lafði Marlow tneð sér í leikhúsið, en þó tókst henni
J>að að síðustu.
Meðan Sylvía söng, var Andrey alveg gagntekin,;
en þess á milli sat hún þö£ul og dreymandi.
þegar söngskemtunin var á enda og Sylvía gekk.
fra hjá fyrir neðan sæti Andrey, litu þær augum
saman og var sjáanleg aðdáun í augum beggja.
þegar Sylyía var búin að klæða sig til burtferð-*
ar, lét hún blæju fyrir andlitið.
þær gengu út o.g ætluðu inn í vagninn sinn, en
hann var þar ekki; þá ætluðu þær aftur inn í leik-
húsið, en það var ómögulegt fyrir fólksstraumnum,
og bárust þær með honum að vagni, sem líka hafði
orðið að nerna staðar sökum þrengsla.
Sylvía hljóðaði lágt, þar sem hún stóð við vagn-*
hliðina, en þá kom hendf út úr vagnitium og snerti