Heimskringla - 16.07.1914, Blaðsíða 6

Heimskringla - 16.07.1914, Blaðsíða 6
Bls. 6 HEIMSKRINGLA, WINNIPEG, 16. JÚLÍ, 1914 Æfintýri Bandaríkja- manna í Mexico. Eftir Jack London. . (I.auskega þýtt). Til þess að þekkja fyllilega land og ibúa þurfa menn að fara og sjá það sjálfir. Aður en eg kom til Tam- pico, sem er á austurströnd Mexico, hélt eg að það væri svolítil bæjar- hola eða hafnstaður, þar sem alt væri fult af bólusótt, gulunni og öðrum óþrifa-sjúkdómum. Þar væri einnig fáeinir Bandaríkjamenn, æf- intýramenn og flagarar, sem héfðu farið þangað til þess að hafa fé útúr þessum hálfviltu görmum, sem Mex- co byggja. Á gufuskipinu með mér voru fá- einir olíu-kongar að hverfa heim þangað aftur. Þeir höfðu flúið út á herskip Bandaríkja undan Mexico- búum, þegar við tókum Vera Cruz, og þaðan voru þeir fluttir nauðugir viljugir heim til Bandaríkja. Þegar við komum inn að hafnar- garðinum, sá eg þar stálferju feyki- stóra, er var að höggvast á grjót- garðinum, og var þá meira eða minna brotin. Einn olíu-konganna sagði mér, að það væri oluferjan sín sem þarna væri að brotna upp. Hermenn Huerta hefðu kveikt i bryggjunni og þá hefðu kaðlarnir brunnið, sem héldu ferjunni, svo hún hefði losnað og hrakið þarna út. En ferjan svo stór og mikil, að ekkert var hægt við hana að ráða. Þegar inn fyrir hafnargarðinn kom og upp á Panuco-fljótið, sem Tampico stendur við, þá þótti mér skifta um. Alt var sém aldingarður og vöxtur á öllu feykilegur og innan um alt þetta voru hin tröllslegustu olíukeröld, og bar fyrir augun hvort af öðru. Sá eg þá að þeir höfðu þó stárfað eitthvað þessir flakkarar, sem hingað höfðu rekist. Svo héldum við upp fljótið, og einlægt urðu hin tröllauknu keröld fleiri og fleiri og stórkostlegri og stórkostlegri. Þarna voru enda- stöðvar Corono-félagsins, þar sem þeir taka olíuna á skip sín til þeSs að flytja í önnur lönd og álfur. — Þarna var Aguila-félagið með sinar stöðvar beggja megin árinnar, og rétt þar hjá voru hinar stórkostlegu og sterklegu byggingar Standard Oil félagsins. En einlægt komu ný og ný félög með risavöxnum bygging- um og keröldunum tröllslegu. Þeir töldu þau upp fyrir mér. Þarna var National Petroleum, Þarna Waters Pierce, þarna Golf Coast, Huastecíj, Mexican Fuel, Magnolia Petroleum, Texas, International Oil, East Coast Oil, — og einlægt héldu þeir áfram að þylja nöfnin félaganna. Eg sá þá, að það var meira um að vera þarna, en eg nokkurntíma hafði haft hugmynd um. “Já, þarna er borgin loksns”, sagði eg og benti á hópa mikla af stórkostlegum byggingum . En svo var mér sagt, að það væri langt til borgarinnar ennþá, — margar míl- ur. Þetta voru þá reykháfar katl- anna; vöruhús, verksmiðjur, parafin gjörðar hús og suðukatlar af mörgu tagi. Var mér þá bent á stóra bygg- ingu, sem verið hafði, en nú stóð lítið annað en veggirnir. “Þarna fóru sex hundruð þúsund dollarar” var mér sagt og með byggingunni fóru 250 járnbrautarvagnar. Kúl- urnar úr fallbyssum Huerta-liða brutu þetta alt og kveiktu i þvi. Svo drógum við upp læknisfán- ann og lögðumst; vörpuðum akkeri eitthvað fjórðung mílu frá hinni brendu skipabryggju. “Það kom yfir okkur”, sögðu þeir, þegar uppreistarmennirnir höfðu sett hér niður tvær jnaskinu- byssur, þá fóru þeir, hermenn Zar- agoza, að láta okkur hafa það i góðum mæli. Þetta var alveg ný skipabryggja og hin vandaðasta. Við vorum ekki alveg búnir að full- gjöra hana. Sprengikúlur Huerta- liða brutu og söktu þremur stóru olíuferjunum eða skipunum okkar. Þarna liggur Topila á botni og Spindletop rétt hjá og nokkru fjær Santa Fe. Og þarna sérðu leifarnar af stóra olukassanum uppi á hæð- inni. Við höfðuin heitan tíina þá. Það kviknaði i öllu. En við vorum að reyna að halda eldinum innan eldveggjanna sem þú sérð; og ein- lægt var Zaragosa að láta sprengi- kúlurnar rigna yfir okkur. Þú mátt ekki niðra mexíkönsku daglauna- mönnunum okkar. Eg var þar með heilan hóp þeirra. Þeir unnu fyrir daglaunum einum, en engir þaul- vanir hermenn hefðu getað gjört það betur. Undir eins og við fórum að berjast við eldinn, þá létu þeir Zaragoza kúlunum rigna yfir okk- ur, og innan tiu mínútna urðum við að leggjast niður, þangað til hriðin kúlnanna rénaði úr maskínu- byssunum og sprengikúlunum; svo byrjaði hið sama aftur. Og ekki einn einasti daglaunamaður reynd- ist öðruvísi en sem bezti drengur. Og þarna vörnuðum við oliunni að breiðast út. Hún logaði og blossaði hátt í loft upp, Þangað til alt var brunnið út. Sumir þessara daglauna manna eru sannir menn. Og meðan við biðum þarna eftir hafnarlæknirnum kom einn eftir annan af þessum stóru úthafsköss- um eður skipum, sem flytja olíuna til annara landa. Þeir koma þarna i löngum lestum af hafi utan, vörp- uðu atkerum og lögðust til þess að biða eftir lækninum. “Þeir koma inn á hverjum degi og fara burtu sama daginn”, var mér sagt. Skipið Huasteca getur fermt 9,000 tunnur af oliu á einum klukkutíma. Olíunni er pumpað í stórum pipum ofan i Iestina. Þær eru margar, olíuferjur þessar, sem búnar eru að koma hér í heilí ár svo að aldrei hefir neinn af skip- mönnum stigið fæti sínum á land. Hvað eru þeir að gjöra þarna, þess- ir flagarar, sem sumir kalla? Eg fór að grenslast eftir því. Eitt félagið hafði þá reist þar tvö olíu- keröld úr steyptu grjóti (concrete), sem tóku 1,250,000 tunnur af olíu, og að auk 120 keröld úr stáli, sem tóku 55,000 tunnur hvert. En nú kostar hvert stálkerald 30,000 pesös, og kosta þau öll þá 3,600,000 pesos; en það yrði 1,800,000 dollarar í ameríkönskum peningum, eða nær tveim milíónum dollara. Og þetta er að eins nokkur hluti af öllum þeim kostnaði, sem hvert félag verð- ur fram að leggja, að eins til þess, að geyma olíuna, og svo fellur á hana mikill kostnaður annar, þá geta menn séð, að hér er um meira en lítið að tefla. Hafnarlæknirinn kom Ioksins um borð og svo gátum við haldið upp fljótið til Tampico. Tampico-fljótið er stórt og breitt; skipaleiðin djúp, en straumur töluverður. Svo fórum við framhjá tollhúsinu og lögðumst við bryggjuna, og kom ég þar í stóran hóp af uppreistar- mönnum, er eg sté af skipi. Voru þeir allir á hestbaki og gleymdi eg þá oliunni og keröldunum. Vissi eg þá ekki fyrri til, en eg var mitt í hópi 500 uppreistarmanna, er send- ir höfðu verið til að reka Zaragoza hershöfðingja burtu með sínum 400 Huerta-liðum. Hermenn spriklandi af fjöri. Aldrei hefi eg fyrri á æfi minni hitt herinenn svo hvatvíslega, lukku- lega og sprikiandi af fjöri og á- nægju. Hver einasti þeirr^ var ríð- andi. Hver einasti hestur var stol- inn. Á hestunum sáust mörkin hvers einasta stórbónda frá Mikla- fljóti (Rio Grande) á norður landa- mærum Mexico og alla leið til Pann- co. Einstaka maður var aldraður og grár af hærum, en allur fjöldinn voru kornungir menn. Þar voru drengir tiu, ellefu og tólf ára gaml- ir, með voðastóra gljáandi spora á hælum, á stolnum broncos, með myndir af lielgilm mönnum og dýrðlingum undir bandinu á liinum barðastóru hötturn; með rýtinga og lagsveðjur (bowie knives) stungna í leðurhólkinn utan á kálfanum; með marglileypur á mjöðm hvorri og skotfærabeltin full af skotfærum, bæði um mitti og axlir, en riffilinn festan á hnakknefinu. Og svo voru stúlkurnar, alt ungar stúlkur, sumt fylgikonur hermannanna og sumt reglulegar skjaldmeyjar. Hinar fyr- nefndu i pilsum, riðandi kvenvega í kvensöðlum, en hinar síðarnefndu í buxum og ríðandi klofvega sem karlmenn. Allar voru þær vopnaðar sem karlmennirnir, og engin þeirra var gift. Þegar fylgikonurnar komu í flokk saman, vildi eg ekki vera viltur hani á vegi þeirra eða særð- ur óvinur á vígvellinum. Eg fór samt að reyna að taka myndir af þeim, en það var ófáan- legt, þangað til eg var búinn að taka myndir af yfirhershöfðingjan- um o'g foringjum hans. Þeir urðu svo glaðir og kátir yfir því, að þeir liefðu viljað gefa mér allar eigur sínar, og svo skipuðu þeir fylgikon- ununi, að standa fyrir myndavél- inni, og yfirhershöfðinginn var svo hrifinn yfir öllu þessu, að hann hljóp til og tók skc^tfærabeltið, hníf- inn og skambyssuna af sjálfum sér og hengdi það á stúlkuna. Hún var ung, hraustleg, lífstykkislaus, í bómullar frakka, algjörður Indíáni, og eftir því, sem eg komst að, hafði hún i tvö ár fylgt uppreistarmönn- unum. Hún kom einhverstaðar langt að norðan og ekki ætlaði hún að hætta fyrri, en hún kæmi til Mexico borgar, hvað sem svo tæki við. Þegar ég svo ætlaði að fara að taka myndir af hermönnunum þá þyrptust þeir utan um mig, allir vildu láta taka mynd af sér. Og allir vildu þeir sýnast sem vígleg- astir og grimmastir. Eg ætlaði ekki að sleppa frá þeim. Þeir voru hreyknir, hnakkaspertir og dremb- ilátir rétt eins og páfagaukar, í sí- feldum æsingi eins og krakkar. Þeir voru að skjóta byssunum þegar ég var að taka mynd af heilli röð þeirr- a. og foringjar þeirra fundu ekkert að þessu, þeir skoðuðu þá sem börn Og þeir voru börn, sem voru að leika sér. Þessir uppreistarmenn höfðu skift liinum leiðinlegu, dag- legu störfum við árslanga skemti- ferð og lystitúr. Sannarlega var það þeim lystitúr að hafa góðan hest að ríða, fá í kaup einn og hálf- an pesó á dag, besta fæði og tæki- færi að ræna, og það sem best og skemtilegast var af öllu saman var það að fá tækifæri til þess að skjóta samlanda sína, bræður sína og systur, því að það er þó sú hin skemtilegasta veiðin og tilkömu- mesta, sem nokkur maður getur hugsað sér. Og þarna riðu þeir á stað í aftanskuggunum móti hinni hnígandi sólu, karlar, konur, og ungir drengir, þeir riðu þarna eftir iiinum bugðótta veg í halarófu, einn og einn og hurfu til suðurs á leiðinni til Mexfcoborgar, með hjörtun svellandi af von og löngun að geta krukkað lífið úr hinum ólánsömu görmum sem haltrandi, særðir og uppgefnir voru að reyna að dragast á eftir hinum flýjandi hermönnum Zaragoza. Svo fór ég til Tampico aftur, á bát litlum. Þar var þá alt fljótandi í vatni, líkt og í Feneyjum. Reitirnir garðarnir á bak við húsin meðfram skurðinum mikla, var þakið alt saman af eintrjáningsbátum og opn- um bátum stærri, sem margar famil- íur bjuggu á. En svo sást líka að þar voru Ameríkumenn, og voru starfandi. Alstaðar var verið að smíða báta og endurbæta þá, sem brotnir voru. Þar voru málbúðir, maskínubúðir og skipastokkar til að byggja skip á og renna þeim á fram á ána. Þarna voru gufubátar, vatnabátar, ferjur stórar, haffærar og siglingabátar, stórir, ekki á tuga- tali, heldur hundruðum saman. Ég fékk mér keyrslu til hótelsins á grindhoruðum, lúsugum bykkj- um. Það var ekki völ á öðru. Allir aðrir hestar voru teknir í stríðið. Hótelið var eftir nýjustu tízku, fimmlyft með lyftivélum rétt eins og í New York. Og gestgjafinn hafði jafnvel kaldan bjór. Hann var frá uppreistarmönnum, þeir höfðd náð heilu vagnhlassi af bjór í Monterey, tekið það sem herfang og sent vagn- inn suður á járnbrautinni til Tamp- ico, sem þeir einnig höfðu náð her- taki. En það var ekki hótelið, sem mér fanst mest um. Það voru mennirnir í því. Það voru alt Bandaríkja- menn, sem voru komnir aftur eftir að hafa verið fluttir nauðugir vilj- ugir til Bandaríkjanna. Það var rétt eins og maður væri komin í vesturríkin, í einhvern ná'mabæinn. Þetta minti mig meira á Klondyke en nokkuð annað. Og þar hitti ég tvo menn, sem ég hefði séð í Klon- dyke fyrir 17. árum. “Þetta er ekki Klondyke” sagði annar þeirra “það er miklu stór- kostlegra en Klondyke eða nokkur annar gullnámubær. Manstu eftir námulóðinni minni þar, fimm hundruð fet upp með læknum. Hún var ekki svo afleit, ég hafði úr henni hálfa millíón. En það veit hamingjan að það er ekkert á móti þessu hér. Sjáðu gömlu námuna við Ebanó, fyrstu olíu námuna hér í landinu. Hún gaus þegar þeir hittu á hana fyrir 12 árum og hún er að gjósa enn þá. þeir hafa ekki þurft að pumpa hana, hún gýs. Og Hollendingarnir fyrir ofan Pamico hafa þar holu átta þuml- unga víða, sem ekki er neitt ásjáleg, en upp úr henni buna 185,000 tunn- ur á dag þegar lokið er ekki skrúfað á hana. Reiknaðu það út. Setjum að olían sé 50c. hver tunna. En það gjörir 90,000 dollara í skíru gulli á dag, á tíu dögum eru það 900,000 og á hundrað dögum 9,000,000 Og sleppi menn 65 dögum á árinu, þá verða þar þó 27,000,000 dollarar á ári. Gullnámurnar segja lítið á móti þessu. (Framh. á 7. bls.). EINA fSLENZKA H0ÐAB0ÐIN I WINNIPEG Kau pa og verzla raeð húðir, gærur, og allar tegundir af dýraskináum, mark aðs gengum. Líka með ull og Seneca Roots, m.fl. Borgar hæðsta verð. fljót afgreiðsla. J. Henderson & Co... Phone Garry 2590. .236 King St., Winnipeg KOMIÐ OG YERZLIÐ YIÐ OSS ÞEGAR ÞÉR ÞURFIÐ Builders Harðvöru Construction Harðvöru Finishing Harðvöru Smiðatól og Handyðnar Mál Verkfœrum Olía Varnish Sýnis herbergi vor eru hin best búin í allri borginni svo þér eigið sem hægast með að velja. flikenhead Clark Hardware Co.Ltd. Wholesale and Retail Hardware Merchants BOYD BUILDING c\rná^T PHONES MAIN 7150-1 MANITOBA. Mjög vaxandi athygli et þessu fylki nú yeitt af ný* komendum, sem flytja til bús festu i Vestur-Canada, þetta sýna skýrslur akur* yrkju og innflutninga deildar fylkisins 'og skýrslur innam ríkisdeildar ríkistns, Skýrslur frá járnbrautaféi Iögunum sýua einnig, aö margir flytja nú á áður ó-i tekin lönd með fram braut- um þeirra.- Sannleikurinn er, að yfir-t burðir Manitoba eru einlægt að ná yíðtækari ciðuxCeana inguj Hin 4'gætu lönd lylklsina, óviðjafnanlegar járnbrauta* samgöngur, nálægð þess .vii beztu markaði, þess ágaetu mentaskilyrði og lækkandi flutningskostnaður -h eru hin eðlilegu aðdráttaröfl, aem ffn lega hvetja tnikinn fjölda fólks til að setjast að hér I fylkinu ; og þegar fólkið sezt að á búlöndum, þá aukast og þroskast aðrir atvinnus vegir í tilsvarandi hlutföllum Skrifið k'unningjum yöar -- segið þeim að taka sér bólfestn I Happasælu Manitoba. Skrifið eftir frekari upplýsingum til « JOS. BURKE, Industrial Bureau, Winnipeg, Manitoba. JAS. HAIiTNK J, 77 Tork Street, Toronto, Onlario. J. F. TENNANT. Qretna, Manitoba. W. U, UN8W0RTH, Emerson, Manitoba; S. A. BEDFORD, Deputy Minnister of Agriculture, Winnipeg, Manitoba. 308 Sögusafn Heimskringlu Jón og Lára 309 310 Eftir að vitnaleiðslunni var lokið, krafðist hr.i Leópold, að Jóni Treverton væri slept úr fangelsinu. Eftir nokkrar umræður samþykti dómarinn þessa og fanginn var frjáls. Desrolles ypti öxlum. “Á fimta lofti”, sagði hann. “Haldið þér að fætur kröfu mínir séu jafn ungir og fyrir 20 árum?” “Þér virðist unglegur og fjörugur”, sagði stúlkan “Eg vil heldur herbergi á fyrsta eða öðru lofti” sagði hann. “Þau eru öll leigð”, svaraði stúlkan. Eftir nokkra umhugsun kvaðst Desrolles' vilja sjá herbergið, og fylgdi honum göinul kona þangað upp. “Það snýr út að nýju Boulevarden, og er skemti jlegt”, sagði hún og opnaði gluggann. Þegar Desrolles yfirgaf þorpið Hazlehurst, varj Desrolles leit út og niður á nýju, breiðu götuna hann hinn ánægðasti. Hann hafði innunnið gér stór- með stórum fólksvögnum, vinnuvögnum og asna kostlegar árlegar tekjur, og ætlaði nú að ferðast úrkerrum. 45. KAPÍTULI. borg í bofg og frá einu landi til annars og lifa heiðar lega. Hann áleit París vera fyrstu og hentugustu bið stöðina á skemtiferð sinni; en þegar þangað kom, gleymdi hann öllum góðu áformunum sínum. Hann var gagnkunnugur í borginni, því þar hafði hann ver Herbergið var lítið en þokkalegt og húsmunirnir hentugir, svo DesroIIes leizt vel á það. “Það er afar-ervitt, að ganga upp þessa háu stiga” sagði hann; “en ég verð að taka það”. . Áður fyrri höfðu menn verið frjálsir og óhindr aðir við sínar venjur í þessu húsi, og mátt koma heim — naim yoxnai ycujui x pcwu iiu.m, ug maii Koma neim ið í mörg ár meðan hann var á þroskaskeiði sín*. Vín-jnær sem var á nóttunni, því allir liöfðu lykil að úti- sölubúðirnar á hverju götuhorni voru honum ofraun.jdyrum. Desrolles spurði, hverjar venjur nú tíðkuðust Ekki skeytti hann um skraut eða fegurð og heimsótti í þessu húsi, og komst að þ'ví, að söinu venjurnar ríktu því fyrst af öllu sínar gömlu holur. enn. Eigandinn krafðist þess eins, að leigan væri Fyrir mörgum árum síðan hafði hann átt heimaíborguð, og að menn móðguðu ekki lögregluna. í stúdentadeild borgarinnar; þar hafði hann drukkiði Desrolles lét töskuna sína á gólfið, borgaði gæzlu- og þar hafði hann eytt peningum sánum, og þangað fórjkonunni mánaðarleigu fyrirfrain og fór svo út til að hann nú. heimsækja sína gömlu uppáhaldsstaði. Húsið, sem Desrolles hafði búið í, var enn við líði, Hann varð var við margar breytingar, en loftslag- þrátt fyrir allar breytingar þar í grendinni; en mjög'ið var hið samarn, og siðirnir líka. Absi'nth var nýr hröríegt. drykkur, og Desrolles tók hann framyfir konjak, þó Hann gekk ínn i vínsölukjallarann, og spurði,,lann væri margfalt eitraðri. Hann fann inarga nýja hvort nokkurt herbergí væri fáanlegt til loigu. félaga á þessum gömlu stöðvum; það voru ekki sömu “Það er alt af autt pláss handa einstaklingum”, mennirnir og hann hafði kynst áður en þeir höfðu svaraði fjörug stúlka fyrir innan búðarborðið. “Þaðsömu siði, og hugmyndir Desrolles um vináttu var er fallegt lítið herbergi autt á finta lofti”. samsafn af löstum. Hann kyntist mönnum, sem hann Sögusafn Heimskringlu gat spilað og drukkið með, sem voru jafn orðvondir og hann og skoðuðu lífið í þessum heimi og öðrum frá sama sjónarmiði og hann. Einn morguninn rakst Desrolles á enskt blað, viku gamalt, sem sagði frá fyrstu yfirheyrslunni yfir Jóni Teverton. Desrolles starði á blaðið með meðvitundar- lausri undrun. Því hugur lians var umkringdur af ab- sinth-þoku; og reyndi að gera sér grein fyrir, hvaða áhrif þessi málsókn á Jón Treverton gæti haft á forlög sín. Nafn.hans var ekki nefnt í blaðinu, svo ennþá var hann óhultur, eu samt var ekki unt að vita, hvað ske kynni, þegar ranusókn af þessari tegund var hafin. “Þetta er mjög slæmt’, hugsaði Desrolles. Málið var dautt, að mínu áliti. Það er eflaust prestssonurinn, sem liefir komið til sögunnar og vakið það upp aftur”. Eg má líklega til að fara til Ameríku, til að vita mig úr allri hættu, en hvað verður þá vun styrktarféð, sem þau Lára og Jón hafa lofað mér? Þau svifta inig ?ví, ef til vill, þegar ég er kominn vestur um liafið”. Hann heiinsótti gufuskipa-skrifstofu og fékk þar lista yfír öll gufuskip, s#m áttu að fara frá Havre til Ameríku næstu C vikurnar. Skjal þetta bar hann í vasa sínum í 2 eða 3 daga og las það yfir, þegar hann hafði tíma til. Hann mundi nöfn skipanna og stærð, en var ekki búinn að ákveða, með hvaða skipi hann helzt vildi fara. La lieinc Blanche ætlaði til Valparaiso að viku liðinni, og Zenobie til Rio Janeiro að 14 dögum liðnum. Hann var í efa um, hvoru þessara skipa hann ætlaði með. Hann átti 60 pund til og ferðin kostaði 50, svo af- gangurinn var ekki mikill. Loksins ákvað hann að fara með La Reine Blanche Hann fór til Belle Jardiniere, fékk sér snotran fatnað og ferðatösku og fór þaðait til umboðsmannsins til að fá sér farseðil. Jón og Lára 311 Hann hafði ákveðið að taka sér nýtt nafn, þegar hann færi til Vesturheims, en fata og tösku kaupin höfðu þreytt hann svo hann þurfti að fá sér hressingu, og þegar hann kom á skrifstofuna yar hann ekki fæc um að telja peningana sjálfur, svo skrifarinn varð að hjálpa honum að telja borgunina fyrir farseðilinn. Þegar svo skrifarinn spurði um nafn hans, svaraði hann í hugsunarleysi: Desrolles; en áttaði sig strax og sagði: “Eg bið afsökunar”, sagði hann geispandi; “Desrolles er nafn vinar míns. Mitt nafn er Mow- bray, kapteinn Mowbray, borgari Bandaríkjanna. Ný- lega lokið við hringferð um Evrópu. Amerískur; en mjög glaður hér i París. Mikið breyttur siðan eg var hér síðast á ferð fyrir 20 árum. Ekki breyzt til hins betra”. “ó, svo þér heitið ekki DeSrolIes, þér heitið Mow- bray?” sagði skrifarinn og leit grunsamlega á liann. “Já, Mowbray, M-o-w-b-r-a-y”, svaraði Desrolles. Frá skrifstofunni fór liann til Cafee de Ia Rotonde og fékk sér þar absinth. Sofnaði svo í ofnkróknum góða stund, og var skárri þegar hann vaknaði. Þaðan fór hann að finna kunningja sinn og fékk sér ásamt honum góðan dagverð; að því búnu fóru þeir að leika knattleik á borði og drekka, og var Des- rolles orðinn þrætukær og fullur, þegar nótttin var liyrjuð. Það var tvent, sem Desrolles vissi ekki: Fyrst, að þessi nýji vinur hans var einn af mestu hrekkjalimum Parísar, sein lögreglan hafði aldrei augun af, og hitt, að á hælum hans var enskur spæjari, sem vissi alt um þessa fyrirhuguðu ferð hans. Litlu íyrir miðnætti íór Desrolles heim, og kom að opnurn útidyrum liússins, svo hann þurfti ekki að ::ota lykil sinn, enda var honiHn það hentugra. Hann staulaðfet upp stigann rambandi og komst

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.