Heimskringla - 03.06.1915, Side 4

Heimskringla - 03.06.1915, Side 4
BLS. 4 HEIMSKRIN'GLA WINNIPEG, 3. JÚNf 1915. Heimskringla < StofnuTS 1886) Kemur út á hverjum fimtudegl. Útgefendur og eigendur: THE VIKING PRESS, LTD. Verí blatSsins i Canada og Bandarikjunum $2.00 um árid (fyrirfram borgati) Sent tll lslands $2.00 (fyrlrfram borgatS) Allar borganir sendist rátSs- manni blat5sins. Póst etSa banka ávísanir stýlist til The Viking Press, Ltd. Rltstjóri: M. J. SKAPTASON RátSsmat5ur: H. B. SKAPTASON Skrifstofa. 7J9 Sherbrookci ''treet. Winnipor Box 3171 Talsiml Garry 4110 Vinsamleg orð til Lögbergs. Vér höfðum ætlað að sneiða hjá J)ví, ef hægt væri, að yrðast við blað eða blaðstjóra andstæðinga vorra, og hefur nærri legið að vér höfum fengið ámæli fyrir hjá vinum vorúm. En vér höfum setið kyrrir og brosað bó að skeytin bytu um eyru. En nú er nuddið og nauðið farið að verða leiðiniegt, svo að iila er við- unandi. Undur og stórmerki. J>etta hið seinasta blað Lögbergs er með undrum miklum. Tíminn er farinn að renna aftur á bak, bví að á fyrstu blaðsíðunni stendur að bað kom út 2. maí, en bað korn hinn 27. maí á skrifstofuna til vor og voru mörg komin á milli 2. og 27. maí. DauSir ganga. Annað undrið er bað að dauðir ganga, sem í Jerúsalem forðum. En bað bykir nýlunda nú á dögum. Nú eru ]>eir lýstir lifandi sem sein- asta blað var búið að segja dauða Og flytja mynd af. Týnt up gamalt skran. Þá kemur blaðið með sumt sem Heimskringla var búin að koma með áður, jafnvel fyrir fleiri vikum, og er bað bó ekki undarlegra, en begar blaðið er að koma með nýj- ungar sem Fróði gamli var búinn að flytja mönnum fyrir einum 3 til 4 árum. Undrin vaxa. En undrin eru bó mest er ritstjór. jnn fer að svara grein beirri, er stóð 1 34. númeri Heimskringlu, og stýl- uð var til Free Press. Svarið er ekk- ert annað en dylgjur, ekki svarað einu einasta orði í grein beirri, sem ritstjórinn bykist vera að svara, en vaðið áfram með staðiausu níði og dylgjum, án bess að sanna áburð sinn. Gróa gamla á Leifi sýnist vera komin þarna. Henni hafa sviðið svipuhöggin. Ef að nokkur hlutur getur vakið úlfbúð og liatur meðal manna og reist helvfti meðal lslendinga, ]>á er það þessi soralega siðdrepandi aðferð, að vera að reita æruna af mönnum án þess að sanna sök á }>á, eins og þegar ómjúkar hendur slfta ull af kindum á vor- daginn. Vér höfum ekki með einu orði haft á móti þvf, að rannsókn væri hafin í málum þcssum. Vér höfum getið þess, að })að ætti að stöðva þenna svívirðilega þjófnað á al- mannafé, og ef að vér höfum ekki sagt það nógu skýrt, þá endur- tökum vér það. Þctta hefur livinið í loftinu alia tfð, sfðan vér komum hingað, að hvaða stjórn sem við völdin væri, hún væri sístelandi. Það hefir æfinlega verið notað til þess að hrinda henni, og það er eng- inn efi á því, að það er þjóðarsmán, ef satt er. Oss kemur ekki til hug- ar að halda öðru fram, en að það sé gott vcrk að koma upp um þjóf- ana og láta þá fá maklega hegn- ingu. Vér höfum aldrei sagt annað. En þetta að saka allan flokkinn, alla stjórnina um það, ef að einhver vinnumaður hennar stelur, það er siðferðisspillandi. Það er ranglæti móti þeim sem saklausir eru, og það er flónsa stórkostleg af ritstjóra eða ritstjórum Lögbergs, hvort sem þeir cru margir eða fáir. Með því slá þeir sjálfa sig á munninn leirugum löppum. Þeir líta kanse ekki svo langt, að þeir sjái það. Þeir virðast vera heldur nærsýnir stundum. En hvernig í ósköpunum getið þér ætl- að, að menn fari að skilja sauðina frá höfrunum? Er ritstjórinn svo vitgrannur að sjá ekki, að með því, að saka alla stjórnina, eða ailan hinn konservatíva flokk, því að stjórnin og þingmennirnir eru full- trúar konservatíva, um stórþjófnað, uin “lögleysur” yfirtroðslur réttar og laga? þá slengir hann öllu þessu um leið á sinn eiginn flokk, sfna eigin stjórn, sína eigin félaga, á drotna sfna og yfirmenn.—Því að liverjum óvitlausum manni, eða I manni með hálfu viti getur komið I til hugar, að iiberalar séu að þessu j leyti nokkuð betri en konservatífar, að þeir hafi aðra náttúru, aðrar til- hneygingar, séu aðrar verur, gædd- ar æðri andlegum og siðferðislegum ; gáfum, en hinir. Það er einhver ný j vísindakenning. En það ætti öllum að vera Ijóst, bæði konservatífum og liberölum, að maðurinn sem ber þetta fram er flón, sem ekki veit hvað hann er að fara. Og þó að vér séum andstæðingar liberala, þá | ætlum vér þeim, eigi þetta, sem I þeirra eiginn ritstjóri óbeinlínis ber þéim, maðurinn sem er bæði flón og fól í sömu andránni. Það er íhug- unarvert og varhugavert að gjöra það að köllun sinni, að spilla sið- gæðishugmyndum þjóðflokks þess, sem menn búa saman við, og þeir | sem taumum halda, ættu að líta eftir þjónum sínum, að þeir gjörðu sem minnst af slfku, svo framarlega sem þeir vilja halda virðingu sinni. Um skáldskapinn í blöðunum. Skáldskapur i blöðunum? Vér ætlumst ekki til þess, að það sé alt ; viðurkent sem skáldskapur, sem í j blöðunum kemur. Enginn maður býst við því. Það getur að meira eða niiiina leyti verið leirburður; fult af hortittum og bragvillum, mál- villum, hugsunarvilluin, smekkvill- um, vanþekkingu, fáfræði og bein- línis flónsku. Og það kann líka af hendingu að vera gott, kannske Ijóm andi fallegt, þó sjaldan sé svo frá gengið, að ekki megi galla finna af einhverju tagi. En þó að vér vitum þetta alt sam- an, þá tökuni vér það samt, ef ekki er því meira á móti því. — Mönnum er ekki bannað að tala vit- leysu, eða Ijúga einhverju, eða láta hlægja að sér; og þó að þetta væri j bannað, þá myndu menn Ijúga samt I og tala vitleysu og koma fram með ! það, sem þeim er lagið. Og þess vegna vilja menn leyfa þeim, sem ' gaman hafa af því, að láta kvæði og visur í blöðin, ef það er ekki mjög langt. En sóma síns vegna ættu jmenn að reyna að vandaþað, sem mcnn senda. Vanda inálið og hafa hugmyndirnar skýrar og vera ekki j að troða moði upp í holurnar, og hafa ekki marga bragi á sömu vísu. Við vorum flestir hestamenn, fs- j lendingar, og fátt þótti ijótara, en að sjá menn ríða rammvíxluðum tindabykkjum. j Kvæðin verða að ganga á brag- fótum og má læra list þá á fáeinum minútum. Eif að frágangur þeirra er góður, þá eiga þau og hljóta að j ganga á stiltum fótum, eftir vissum i Icigum, sein aldrei má breyta. svo ! að það stórhneyksli ekki þann, sem næmt hefir eyra. Margir, ef ekki flestir, yrkja eftir hljóði; en kvæð- in sýna það of oft, að hljóðið er ekki einhlýtt, cf að maðurinn hcfir ekki þekkingu á þessum bragfótum, eða hirðir ekki um þá. Þessu er líkt varið og manni þeim, sem fer að skrifa, en kann ekki málið mál- fræðislega eða staffræðislega; þá verður alt hjá honum meiri eða minni vitleysa og endaleysa. Og það hryggir oss stundum, er vér sjáum hagyrðingana þeyta fram á völlinn, sperta og hnarrelsta, á grindhoruðum tindabykkjum, ramm víxluðum. Það stingur oss í hjarta. En hins vegar leikur það landan- um léttara, að snara hugsunum sín- uin í ljóð, en flestum öðrum þjóð- um, sem vér þekkjum; nema ef vera kynni ítölum og Suður-Frökkum. Þeim er það meðfætt. Það er komið í kynið. Þeir eru af skáldakyni, og þeir fæðast upp með þessum hug- myndum, og vér eiginlega megum ekki vera harðhentir á þeim. Og margur maðurinn hefir af þvi glaða stund. En þó að stökur fljúgi þeim af iiiunni, þá ættu þeir æfinlega að vanda sig og hugsa vel um þær, er þeir senda þær blöðunum; því að —-“ferr orð, er of munn flýgur, en stendur ritinn stafur”. Og sannar- lega er það, að góðar stökur veita mönnum mikla ánægju. Og þó að sumum kunni að finnast það undar- legt, þá er það mikið léttara, að koma hugsun og hugmyndum sínum fyrir í stöku eða stökum, en i ó- bundnu máli. En alt fyrir það mega menn ekki hroða þeim af. Og fyrir inargan er það vissara, að halda sér við jörðina, en að ætla sér að þjóta um heiminn á vængjum söngdis- anna. Mönnum gengur flugið mis- jafnt, en fallið ekki hátt, þegar maður er á fæti. Ráðgjafaskiftin á Englandi. Til þess að láta nú alt fara sem bezt; til þess að burtnema allar hugsanlegar ástæður til óánægju, til þess að vinna sem bezt og vera sam- taka i öllum velferðarmálum ríkis- ins, — hefir Bretastjórn nú á þess- um voðans dögum af fúsum vilja kvatt í stjórnina hina beztu menn af flokki andstæðinga sinna, svo að í stjórninni eru nú !) nýjir menn, en 13 gamlir. Þeir hafa þarna tekið mótflokk- inn til að stjórna með sér, og eru þess fá dæmi. En það sýnir, að nú ]>ykir mönnum mikils við þurfa; og svo hitt. að þeir treysta motflokkn- um til þess, að geta unnið með sér sem bræður, að sameiginlegri heill og velferð. 1 þessu nýja stjórnarráði eru 12 Liberalar, 8 llnionistar, einn verka- maður og einn, sem engum flokki fylgir, en það er Kitchener jarl. — Alls 22. Ascjuith gamli er forsætisráðherra sem áður, og Sir Edward Grey utan- ríkisráðgjafi. Reginald McKenna hefir tekið við embætti Mr. Lloyd George hefir tekið við nýju starfi, og er hann nú Minister of Munitions (skotfæra ráðgjafi). Nýlendumála- ráðgjafi er Andrew Bonar Law (nýr); Indlandsráðgjafi J. Austen Chamberlain. Kitchener jarl hefir sömu stöðu og áður, sem hermála- ráðgjafi. þó að nokkru hafi Lloyd George létt af honum. Sjómálaráðgjafinn er Athur J. Balfour. Eiinn af hinum nýju ráð- gjöfum munu margir þekkja, en það er gamli bardagamaðurinn írski Sir Edward Carson. — Viscount Hal- dane, sem mikið hefir komið við stjórnmálasögu Evrópu á seinni ár- um, er nú orðinn gamall og dró sig til baka; en var sæmdur af konungi heiðursmerki fyrir langa og góða þjónustu. Þessar gjörðir Breta sýna það bet- ur en nokkuð annað, að þeir ætla nú ekki undan að láta eða af létta stríðinu fyrri en til skarar er skrið- ið, hvort sem það verður langt eða skamt. Vöflur og vifilengjur. Bandaríkjaforsetinn er búin að fá svarið frá “Vilhjálmi bióð” upp á Lúsitaníubréf sitt. Þeir eru farnir! að lesa það á skrifstofum stjórnar- innar og eru 1 hæsta máta óánægðir Innihald bréfs þessa er það að þýzk- ir hafa haft fullan rétt til að sprengja upp Lúsitaníu og liafa fært fram ástæður sem vér höfum heyrt hina og aðra íslendinga bera fram Þjóðverjum til málsbótar, og þó helst eina, að þeir hafi verið með vopn. Wilson tekur harðlega á móti og neitar hverju einasta atriði í fram- burði þeirra. Er rnælt að innan 24 eða 48 stunda ætli hann að senda þeim annað bréf og verður það víst ekki vægara en hið fyrra, því að hann er ákveðinn í að hrinda öllum framburði þeirra, og telur þetta til- tæki þeirra hernaðarverk og það því fremur nú síðan hann hefur séð svör þeirra og skýringar. Lán til vegagjörðar í Nýja Islandi. Oss eru að berast allra handa tröllasögur úr Nýja Islandi. Ein er út af láninu, sem sveitin Bifröst hef- ir fyrirhugað að fá til vega þar, og greiða skal atkvæði um þann 9. júni. Þær eru sumar svo ótrúlegar, að þeim væri ta:plega trúandi í Skræl- ingjabygðum. Það er sagt, að menn séu sumir af ákafa að vinna á móti því, að bæta vegina i bygðinni og vilja hræða landa til að greiða at- kvæði á móti lántökunni, með þvi að segja, að gjöldin verði svo þung á bændum: sumir segja 50 dollara á landið, sumir fast að 100 dollara. — Bréfið sem vér prentum nú hér í blaðinu þarna að neðan skýrir þetta vel og greinilega. Ef að menn geta ekki séð það, þá ættu þeir hinir sömu ekki að vera fjár síns ráðandi. Og menn mega ekki láta leiðast af slíkum blekkingum. Hver eipasti maður hefir siðferðislega skyldu við sveitarfélag |>að, sein hann lifir í. Hann má ekki hefta þroska þess. Þá vinnur hann á móti velferð þess. Þetta er líkt og druknandi maður neiti að grípa bjarghring þann, sem honum er réttur og vilji heldur drukna, en nota hringinn; kannske af því, að einhver óvinur hans rétt- ir honum hann. Vér hefðum sizt ætlað Ný-íslend- ingum slika fásinnu. Enda mun það í minnum haft. Ein vér trúum ekki, að þau verði úrslit málsins. Það hly.ti að vera eitthvað rangt og rotið, ef að svo færi. — Vér vonum þess fastlega, að eftir 9. júní getum vér fært lesendum Heimskringlu þær fregnir, að lánið hafi verið samþykt meS öllum atkvæöum. Verkfallið í Colorado. Menn muna margir eftir verkfall- inu í Colorado í Bandarikjunum ný- lega; fréttin um ]>að barst út um heim allan. John I). Rockefeller hinn ungi var aðaleigandi námanna, sem verkfallið var i. Það kvað svo mikið að þvi. að herinn var kallaður út; margir voru drepnir. En loks voru þeir bældir niður verkamenn- irnir, og nú gekk hríð mikil af mála- ferlum, og eins og svo oft hefir ver- ið fyrri var sökum öllum skelt á verkamenn. John I). Rockefeller kom hvergi nærri; hann fórnaði höndum til himins yfir þessum ó- sköpum og ranglæti, morðum og manndrápum. En millíónirnar hans voru |>ar, og þær komu mörgum i tukthúsið og sátu að eiðunum og við vitnaleiðsluna. En nú kemur það upp, að þessir menn, sem þarna .voru að berjast fyrir frelsi og réttindum verka- mannanna, voru að heyja stríð alt eins mikilsvarðandi og hin önnur frelsisstríð þjóðanna, þegar þær hafa verið að bylta harðstjórunum frá völdum f.vrri og síðar. Og engillinn hann John D. Rocke- feller hinn ungi, hann er nú orðinn uppvís að þvi, að hafa róið undir að ölluni þessuni róstum; að hafa verið valdur að morðunum og brennun- um og meinsærunum og öllum hin- um fölsku vitnisburðum. En millí- ónirnar hans eru sálarlausar, sem Kultur Þjóðverja, og þar af leiðandi ábyrgðarlausar. Hvort skyldi nú meira mega réttlætið og frelsið eða milliónir Jóns? Fyrir Jóni er ekk- ert helvíti of heitt. Hann hnepti vis- vitandi saklausa menn i tukthús. — Skyldu þeir ná honum eða hvað? “Mene Tekel Upharsin,, I>etta er letríð, sem ritningin segir að Babýlónar konungur hafi séð rit- að á hallarvegginn, er hann sat að veizlu kveldið, þegar Persar brutust inn í borgina. Fék hann Daníel spá- mann til að þýða, og sagði Daníel honum að úti væri um ríki hans; hann væri veginn og léttur fundinn. Þetta segir ferðamaður einn ný- lega kominn frá Evrópu, Mr. O. Far- rell, að þeir séu farnir að sjá bæði Þjóðverjar og Austurrkismenn. Það sé nú orðið Ijóst, að Austurriki hljóti að brotna sundur í niola, og sé það eins áreiðanlegt einsog að sólin renni upp að morgni; og talið er, að keisari Þjóðverja, Bernhardi, Ballin og aðrir ströngustu samein- ingarmenn Þjóðverja (Pan-German- ists) séu farnir a verða vonlausir um að vinna sigur í sriði þessu. Keisari og jarlar hans voru búnir að bralla og brugga samsæri mikið og magnað til þess að eyðileggja alt frelsi þjóða þeirra, sem væru sjálf- um sér ráðandi; en setja aftur í þess stað hermannavald og harðstjórn, verri en nokkur þjóð hefir búið undir siðan heimur bygðist. Keisarinn hafði dreift spæjurum eða njósnarniönnum sínum yfir alla Evrópu og Ameríku og skyldu ])eir æsa menn upp til haturs, hvar sem }>eir færu; spana hvern þjóðflokk á móti öðrum ,hverja stétt á móti annari, hvern trúflokk á móti öðr- um. Þeir stráðu gullinu, spæjarar þessir í Ulster á írlandi, og rægðu hvern þjóðflokkinn og trúflokkinn á móti öðrum. Þeir kveiktu upp stjjórnleysi (anarchy) og verka- mannaróstur í Dýflinni; hið sama gjörðu þeir á Frakklandi. Og þar gengu þeir um landið í stórhópum, svo að hver krókur }>ar var fullur af spæjurum. Peir stálu járnbraut í Tijrkjalöndnm. Iíkki alls fyrir löngu hafði stor- eignafélag Morgans sál. i Ameriku fengið Ieyfi til að byggja járnbraut um Litlu-Asiu til Sýrlands, frá Sæ- viðarsundi og niður með Eufrat til Bagdad. Þessi braut hefði með tim- anum komist til Indlands. Var braut in engum jafn áriðandi og Bretum. En þeir voru vel ánægðir með, að Bandaríkjamenn hefðu öll umráð brautarinnar. En þetta líkaði Vil- hálmi keisara mjög illa. Og loksins gat hann komið því fram að leyfið var tekið af Morgan og gefið í hend- ur Vilhjálmi eða hans mönnum, og fóru þeir fljótlega að byggja braut- ina einmitt i þeim tilgangi, að nota hana til þess, að eyðileggja ríki Breta á Indlandi. Og til marks um það er það, að þeir fengu (5 mílna svæði beggja megin brautarinnar og ætluðu að byggja það alt þýzkum nýlendumönnum; en það voru nú reyndar alt hermenn, sem í þeim löndum áttu að sitja, og hét svo að þeir ættu að vernda brautina. Áform keisara. Vilhjálmur var búinn að gjöra Soldán að jarli sínum og ætlun hans var, að leggja undir sig Balkanskag- ann, Litlu-Asíu, Indland og Egypta- land; en til vesturs ætlaði hann að bæta við sig Hollandi, Belgíu og I'rakklandi, og þá væri hægt að ráða niðurlögum Englands. Þetta voru þeir alt búnir að margræða og brugga striðslávarðarnir og Vil- hjálmur keisari. En leynt fór alt þetta, sem von var. Margan kann nú að undra það, að nokkrum stórhöfðingja þjóðanna skuli geta komið slíkt til hugar; - hann þurfi að hafa alla þjóðina með sér, og það sé varla hugsandi, að nokkur þjóð vilji leggja út i annað eins. En það vgr það, sem þeir voru búnir að undirbúa í tvo manns- aldra. Heimspekingar, prófessorar, kennifeður, blaðamenn, stúdentar, hermenn og herforingjar og embætt- ismenn ríkisins voru búnir að til- búa eða mynda þarna hugsunarhátt hjá þjóðinni eftir sinu höfði. Það var búið að koma henni til að trúa því, að Þjóðverjar stæðu öllum þjóðuin ofar; þeir ættu að ilrotna yfir öllum heimi. Þeir ættu að kenna heiiuinum hin sönnu fræði; Þjóðverjar ættu að verða fræðendur heimsins. Hin eina sanna menning (Kultur) var hin Þýzka. Hin eina sanna siðfræði var siðfræði heim- spekinganna. Hvar í heimi scm Þjóðverjar voru — í A’friku, Anieriku, Asíu og Ástr- alíu, eða í hinum ýinsu löndum Norðurálfunnar —, þá biðu þeir fullir óþreyju eftir hinum mikla degi, þegar keisarinn skyldi kveðja þá til að fara á stað að sigra heim- inn. — Eftir þýzkum lögum er eng- inn eiður bindandi fyrir þá, sem gjörast þegnar annars ríkis. Þeir eru skyldir til að fara heim og berj- ast. En keisari og ráðunautar hans ætl- uðu sér ekki að gjöra þetta alt í einni hríð, heklur smátt og smátt. Fyrst átti að taka Balkanrikin; síð- an Frakkland; því næst Rússland, og þá kom röðin að Bretaveldi um heim allan. En það kom keisara og ráðunaut- um hans aldrei til hugar, að Eng- land, Frakkland og Rússland myndu standa saman og styðja hvert annað og ráðast móti harðstjóranum, sem eyðileggja vildi alla kristna menn- ingu og sjálfsforræði hinna frjálsu þjóða heimsins. Það hefir mjög litla þýðinggu, þó að keisarinn og agentar hans, jarlar og gæðingar segi nú og sverji, að alt þetta hafi verið fjarri huga hans, en sé alt saman tilbúningur óvina hans. Því að alla tíð síðan hann rann upp, óheilladagurinn mikli, þegar Vil- hjálmur annar settist í hásæti Þýzka lands, hefir hann verið að ráðgjöra og velta fyrir sér á allar lundir, — hvernig hann gæti rænt og yfirstig- ig I'rakkland og England og Rúss- land og jafnvel Bandaríkin í Ame- riku . Hann neyddi Frakkland til þess að veita sér tollréttindi, sem ekkert ríki hefði veitt honum nema af ótta við stríð og landamissi. Með- an Rússar áttu i stríðinu við Japan, neyddu Þjóðverjar Rússa til að gjöra tollsamninga, sem voru svo ó- hagkvæmir Rússum og ranglátir, að engin þjóð hefði getað þolað þá til lengdar, sem haft hefði nokkra sóma tilfinningu fyrir sjálfri sér. Keisarinn og hlaupasveinar hans voru sí og æ að koma fram með toll- lagafrumvörp til þess að hnekkja verzlun Bandarikjanna sjálfum sér í hag. öll toll-löggjöf þeirra gekk út á þctta hið sama. Þjóðverjar voru búnir að vera í toll-stríði við allan hinn mentaða heim í 25 ár. Og verð- ur manni því að brosa, þegar flugu- menn Vilhjálms og prófsssorar eru að neita ]>ví, að hernám og rán liafi verið markmið þcirra; ]>vi að |>að var einmitt }>að, sem öll þeirra toll-lög, öll þeirra stjórnmál, allur þeirra hernaður stefndi að. Og enginn getur lesið rit Bern- hardis án þess, að sannfærast um það, að rán og hernám landa og þjóða var frá upphafi vega hið æðsta augnamið Vilhjálms keisara, sem aldrei leið honum úr huga. Eina lijóðina eftir aðra ætlaði hann að brjóta undir sig. Þegar veldi Eng- lands var brotið, og Indland oð Egyptaland í höndum Þjóðverja, þá skyldi Canada verða þeirra fyrsta nýlenda, — nýlendan hinnar þýzku krúnu. Þetta voru dagdraumar keis- ara og marskálka hans. England, E'rakkland og Rússland gjörðu alt, sem inögulegt var, til að verjast stríðinu og afstýra því seinastliðinn júlimánuð. En keisarinn lét ekki þokast; hann vildi hleypa hundum stríðsins lausum; og Belgía, Pólland og Galizía geta bezt sagt um skelf- ingar þær, sem “Vilhjálmur blóð” hefir steypt yfir heiminn. Vill keisari friö? Það er verið að segja, að keisar- inn þýzki vilji nú frið og hafi sent út postula sína iim löndin og til stjórnanna uni heiminn til að pré- dika frið, — en náttúrlega eftir sínu eigin höfði. Hinn heimsfrægi pró- fessor Eliot frá Harvard fer um það þessum orðum: “Friður nú, einsog keisari vill hafa hann, væri mikið verri en stríð”. — Og það ætti að hljóma af hverjum hól og tindi á Englandi, frlandi og Skotlandi; frá hinum fjarlægu ströndum Ástraliu 08 Nýja Sjálands, frá Klettafjölium Canada, frá tindum Himalaya og bökkum lndus og Ganges fljóta, frá Dardanella sundum og söndum Af- ríku, og hvar sem er á hnetti þess- um, þar sem frjálsir menn búa og frelsið er í heiðri haft að hér sé eða verði nú ekki um frið að tala eða vopnahlé eða miskunn sýnd “Vil- njálniT blóð” eða tolum nans, moro- vélinni prússnesku, með öllum öng- um hennar, marskiilkum, prófessor- um og hofgoðum Vilhjálms; blaða- mönnunum, sem drukknir eru af VVe/f politik og Kiiltur macht. Vilhjálniur sendir flugumenn sína um heim allan, og þó ótrúlegt þyki, ]>á hefir hann auk fjölda annara blaða keypt stórblaðið New York World til að flytja lof um sig og Þjóðverja. Hann sendir inenn á fund páfa til að fá hann í lið með sér, og svo sjóða þeir, þessir snáðar hans, upp langar ritgjörðir um vel- liðun Þjóðverja, starfsemi iðnað og menningu, og að heiminum dugi ekki að standa á móti þeim. Þeir koma í lestum, þeir Von Weigand og Roeder og svo kemur erkipresturinn og fulltrúi Vilhjálins, innblásinn af hans anda, hersböfðingi, vísinda- maður og heimspekingur Bernhardi, og ritar hverja bókina á eftir annari um það, hvernig Þýzkir skuli sigra heim allan og verða jarlar, hertogar og barónar í hinum sigruðu löndum. Og svo keniur Ballin, þýzkur fjár- málamaður, og hefir verið hægri hönd keisara i öllum eða flestum gróðafyrirtækjum hans; og það var þessi maður, sem kom á stofn verzl- unarflota Þjóðverja; nú er hver auð- maður þýzkur, sem í það lagði, gjaldþrota orðinn, og }>ar á meðal German Lloyd og American Line félögin. „ Og nú er Ballin að prédika það fyrir Ameríku mönnum, að það hafi ckki verið Þjóðverjar, sem hafi komið stríði þessu á stað, heldur Bretar og Frakkar; —- þeir IJoyd George, Sir Edward Grey og Del- c;asse og borgarstjórinn i New York; — en blessaður engillinn hann Vil- hjálmur sé saklaus. En enginn maður í heimi stóð eins mikið á móti stríði þessu eins og einmitt Lloyd George. Og það kom af því, að hann sá fyrir allar þær skelfingar, sem striðinu myndu fylgja. En þegar hann var kominn út í það, þá beitti hann öllu sínu viti og viljaafli til þess, að leiða það til lykta á hinn cina hugsanlega hátt, — með þvi að brjóta veldi Þjóðverja að fullu og öllu, afvopna þá og gjöra þeim ómögulegt að skaða sig eða aðra; og hann er sann- færður um að enginn friður sé hugs- anlegur og megi ekki verða, fyrri en Frakkar séu búnir að fá Elsas og Lothringen; Belgir eru búnir að fá fullar skaðabætur fyrir alt, sem þeir hafa þolað; Danir verða að fá aftur löndin, sem Þjóðverjar ræntu 1864. Hinar 9 inillíónir Pólverja, sem Þjóðverjar hafa í kúgun haldið,

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.