Heimskringla - 03.06.1915, Page 8
BLS. 8.
H Ii IMSKHI N GI.A
WINNIPEG, 3. JÚNÍ 1915.
x----------------------------s ■ :
Ur Bænum
i---------------------------#
Einlægt heldur rannsóknin áfram
út af þinghússbyggingunuin og er
það nú borið frain að grunnsmiðirn-
ir hafi stolið 16,000 yards af cement
steypu meira en þeir létu í stöplana !
(caissons undir grunninum)—Kelly
bygði.
Hoiwood er sjúkur enn )>á suður
f Rochester, er búið að skera hann
þar upp, en óvíst enn hvenær hann
verður albata eða ferðafær. Segist
hann muni koma að bera vitni þeg-
ar hann geti. Hann hafði sagt að
hann sæji það, að hann ætti að
vera “hafurinn sem bæri allar synd-
irnar” en hann vildi koma samt.
Kona hans er hjá honum og stund-
ar hann þar syðra.
Dr. Montague hefur komið fyrir
rannsóknarnefndina. Kvaðst iiann
hafa verið sjúkur meira og ininna
eftir að hann tók við ráðgjafa ern-
bætti sínu, og hefði þvi orðið að
treysta undirmönnum sínum á skrif
stofunum. Hann hefði álitið sjálf-
sagt að skrifa undir gjöld þau til
Kelly fyrir unnið verk sem Horwood
hefði verið búinn að segja að væru
rétt. L'm dýpi stöplanna hefði hann
tekið gilt það sem Kelly og aðrir
hefðu sagt, og alt þangað til 14.
september hefði hann ekki vitað
annað en að stöplarnir hefðu fylgt
með hinum upprunalegu samning-
um og verið einn hluti þeirra. En
eins og búið er að segja hafði Kelly
verið borgað fyrir 16,000 yards af
concrete, sem aldrei hafði unnið
verið.
Gullfoss kom heim til ísiands 28.
maí.
Tuttugu og níu hótel í Winnipeg
hafa fengið aðvörun um að leyfi
þeirra yrðu afturkölluð ef þau
bættu ekki ráð sitt og fylgdu liigun-
um að iiafa nægileg rúm og herbergi
handa greiðagestum. Er þeim gef-
inn tveggja inánaðar frestur. að
bæta úr því sem ábótavant er.
Þau ólafur G. .Tohnson og Ida
Sigurðson, bæði til heimilis í Selk-
irk, Manitoba, voru gefin saman í
hjónaband, laugardaginn 29. maí,
að 259 Sþence St. af séra F. -J. Berg-
man.
Sagt er neðan úr Jíýja íslandi að
maður frá McDonaugh & Shea iiafi
komið til Gimli héðan að ofan og
iokað I.akeview-hóteiinu. Það er
neðra hóteiið, sem Christie átti, en
seldi fyrir tveimur árum eða svo.
Þurftu þar hvorki bindindisinenn
eða stjórnarfulltrúar til að koma.
Hitt hótelið upp við járnbrautina
er í besta gangi og brynnir þyrstum
vegfaröndum, eins og hvcr getur
móti tekið.
Þeir segja að það verði ekki hör-
gull á þingmannaefnum hjá þeim
liberöiu núna. Það sé líkast því
sem útigangssauðir hnappist á
garða, þegar fjármaðnrinn hleypur
með heytuggu í fanginu. Sauðirnir
ryðjast svo um að glymar i horn-
unum en brakar í hverju garðar-
bandi, og ekki frítt um, að hver vilji
klippa í annan.
Nýjungar frá Mikley.
Hr. Baldvin Anderson kom að
norðan og leit inn til vor. Vér höf-
um þekt hann í uær 30 ár. Hann er
nú nýbúinn að fá sér gufubát. Bald-
vin býr á Sandy Point á Mikley, við
voginn, sem gengur inn úr höfninni
norðan við rifið sem kallað er.
Baldvin lætur svo vei af sér, að
hann segir sér hafi aldrei liðið eins
vel í búskap sínum. Enda þekkjum
vér þenna stað, og ef að nokkursstað
ar er björgulegt í Nýja fslandi. þá er
það þarna og eins er |iað, hvað feg-
urð snertir. Höfnin er ljómandi fög-
ur og meðfram henni eru einliverjar
hinar fegurstu engjar, sem noksur
maður getur séð, löðrandi í grasi á
sumardaginn.
Eyjan hefir iílið verið bygð þar.
Menn austan á eyjunni hafa haft
lönd þessi fyrir engjar. En nú eru
menn farnir að taka þau, ungir, öt-
ulir og duglegir menn, sem hafa full-
ar hendur af fjöri og áræði og út-
haldi og þoli, og þarna ætla þeir að
reisa nýja bygð og búa sér framlíð
og eftirkomendum sínum; sumir,
einir 6, eru familíumenn; en hvað
hina snertir, þá er vonandi að þeir
sýni sama ötulleikann við að fá sér
meðhjálp í striðinu sem við annað.
Þegar vér vorum stundum að fara
tmi þessar slóðir fyrir 20 árum, og
óðum grasið í mitti og axlir, þá
sýndist oss óvíða eða jafnvel hvergi
jafn lifvænlegt og þarna og tiugsuð-
um oft, að gaman væri að hafa þar
fallegt bú.
Fiskurinn er þarna á alia vegu;
skógurinn að baki, en engjarnar
fram undan. Ef nokkursstaðar cr
hægt að komast upp af litlum efn-
um, þá er það þarna, eða á slikuin
stöðum.
()g menn rru að sitja hér i sult-
inum og hungrinu og vinnuleysinu
í Winnipeg, en löndin bíða þarna,
einsog brúður ting eftir brúðguma
sínum, sem aldrei vill líta auguni til
hennar. Er það ekki hraparlegt.
Og austan á eyjunni er inikill hlut-
inn af suðurströndinni óbygður.
Hún er að vísu skógi vaxin; en fisk-
urinn þar rétt fyrir framan, og ef að
hinir ungu menn kynoka sér við að
fella nokkur tré og gjöra rjóður um
bæ sinn, þá eiga þeir ekki heima liér
í Ameríku. Bezt að leggja þá i hveiti
svo að þeir skaðist ekki. Og lítið
kippir þeim í kyn, því að meiri
þrautir reyndu feður þeirra er komu
liingað land að nema, og vel mega
þeir veslast upp í bæjunum. Land-
inu, þjéiðinni og eftirkomendunum
verður lítið lið að þeim, og mættu
þeir eða þær eins óbornir vera.
Og Baidvin hefir bátinn, og aiiir,
sem þekkja ‘Balda’, vita að ekki get-
ur ötulli eða hvatari mann. Hann
væri ekki lengi að skreppa með
hlaðinn bátinn af fólki upp í bæj-
ina Riverton og Gimii. Hann fer frá
sér á 1V> kl.tíina upp tii Riverton,
og á 4 kl.tínium inn að Gimli.
Svo hefir hann bæði íshús og
“freezer” tii að taka fisk á tangan-
um hjá sér, og kaupir allan fisk, sem
nágrannar hans hafa að seija. Og
þegar hann mintist á “kattfiskinn”,
þá kom vatn í munninn á oss. Hann
býst við að koma með nokkra skips-
farma núna af kattfiski og séilfiski
upp að Riverton og Gimli — fyrir
siáttinn, því nú er höfnin og síkin
og sundin full af þessu.
Kvenfélag Tjaldbiiðar heldur
samkomu í neðri sal kirkjunnar á
fimtudaginn 3. júní. Ágætar skemt-
anr. Kaffi verður til sölu á staðn-
um. Tnngangur 10c.
Skemtiferi.
sunnudagaskóla Únítarakyrkjunn.
ar verður farin næstkoinandi laug-
ardag 5. þ.m. til City Park. íslenzk-
um börnum, hvort sem þau tilheyra
sunnudagaskólanuni eða ekki. er
boðið að vera með; sömuleiðis full-
orðnu fólki.
Farið verður af stað frá kvrkjunni
kl. 2 e.h.
FLUTTIR
Hérmeð tilkynni eg almenningi
að eg hefi flutt mig í stærri og
betri búð, þar sem öll viðskifti
geta gengið mikið greiðar en
áður.
Nýja búðin er að:
572 Notre Dame Ave.
aðeins þremur dyruni vestar en
gamla búðin.
Central BicycleWorks
S. MATTHEWS
eigandi.
TELEPH0NE - GARRY -121
Takið eftir
Vér liöfum fengið bréf frá P. A.
Yngvason, frá Leysingjastöðum í
þingi í Húnavatnssýslu, þar sem
hann biður oss að leiðrétta það, seni
vér sögðum í Heimskringlu fyrir
tveimur vikum, að hann hefði feng-
ið styrk hjá American Scandinavian
Fonndation. Ilann hefir ekki orðið
þess var, en hann hefir þá ekki
fengið bréfið, sem tilkynni honum
það. Því að vér höfum í höndum
prentaða skýrslu frá félaginu og er
hann þar talinn fyrstur með: Addi-
tional Stipend (aukastyrk). — Þar
stendur svo: „
“Páll Ásgeir Ingvason, graduate of
the agricultural school at Holar in
Iceland, to studg irrigation in Cali-
fornia’’.
Þessa skýrslu sendum vér honum
nú í bréfi til Minneota, Minn.„ U. S.
A. En vér biðjum þá, sem blað þetta
sjá, að benda honum á það, ef þei.*
verða hans varir.
Umræðuefni í Únítarakyrkjunni
næsta sunnudagskveld: — Lotning-
ingartilfinning í sambandi við
trúna.
Ailir vclkomnir.
Ungmennafélag Únítara heldur
afinælisfund f kvöld, (miðvikudag)
og býður öllum meðlimum safnað-
arins og sunnudagaskólabörnurn.
Sunnudagaskólinn og Bandaiag
'rjaldbúðarsafnaðar haida sameigin-
legt “Picnic” í City Park, laugardags
eftir miðdag 12. júnf, næstkomandi.
Æskilegt að sem flestir safnaðar-
meðlimir vildu koma og skemta sér
ineð börnunum.
Vonarspegill Liberala.
Samanber endalykt (fu-u) Magn-
úsar skáids Markússonar í síðasta
I.ögbergi, 20. þ. m.:
Mjög eru nálteg matarvöld, —
Manga kvarnir hringla.
Sýnist liðin sultaröld,—
Seppar röfum dingla.
Kunnið þið nokkuð fleira, dreng-
ir, úr þeim fræga Vonaspeigli?
Þetta er alt, sem eg man í svipinn.
Lárus Guðmundsson.
TILKTNNING.
Sökum brottferðar mun undirrit-
aður hætta að halda biblíufyrir-
lestra um tfma.
virðingarfylst,
DAVIÐ GUÐBRANDSSON
HERBERGI TIL LEIGU.
Uppbúin herbergi á góðu ísicnzku
heimili að 628 Victor St. á mjög
hentugum stað nálægt stætisvagna
línu.
BÆNDUR í MANITOBA OG SASK.
Ef þér viljið sæta verulegum kjör-
kaupum á matvöru (Groeeries) jiá
skrifið á póstspjaldi til “West End
Supply House” 623 Sargent Ave.
eftir verði á vörum sem þér þarfnist
í búið.
Oddur G. Akraness, frá Gimli
Man., dó að heimili dóttur sinnar,
Mrs. .1. Jósephsson, að morgni hins
f.vrsta júní. Jarðarförin á að verða
á föstudaginn að Gimli. Oddur sál.
var vei þektur maður í Nýja fslandi,
kom þangað 1887 og hefir verið þar
stöðugt siðan. IJans vcrður frekar
getið síðar.
l)r. Ágúst Blöndal og ungfrú Guð-
rún Pétursson, frá Argvle, voru gef-
in saman í .hjónaband miðvikudag-
inn 2. júní kl. 2.30 e.h. í lútersku
kyrkjunni að Brú, Man. Allar heill-
ir fylgi þeim hjótnim.
Bréfasendingar til fanga á
Þýzkalandi.
Ottawa, 20. maí. Póststjórnin hef-
ur gefið út eftirfylgjandi reglur fyrir
sendingu bréfa til fanga í Þýzka-
landi.
Bréf (æfinlega opin) póstspjöld og
bögglar: Á þeim skal tilgreint:
1. Stöðu, með upphafsstöfum og
nafn.
2. Regiment eða aðra herdeild
með nafni.
3. Hvort fanginn er Breti, Canad-
ian, Franskur Belgi eða Rússi.
4. Staðinn þar sem hann er í haldi.
5. Þýzkaland. Tilgreint sé hvar í
landinu, annars verður bögglum
ekki móttaka veitt. ÖH áskriftin
rituð með bleki.
Fregnir eða innihald frá heimili
og ættingjum og um áríðandi mál,
en stutt og ekki oft.
Ekki að minnast á hermál.
Ekki má í bréfunum minnast á
hermál nein, hvorki á sjó eða landi
og ekki á pólitík, og ekki hreifingar
herdeilda. Þau bréf verða ekki af-
lient.
Vinir fanganna skyldu fremur
senda póstspjöld en bréf, þau kom-
ast framar til skila.
En séu bréf send, ættu þau ekki
að vera lengri en tvær smáar sfður,
og aldrei skyldu menn skrifa þvers
yfir skriftina.
Ekki póst bréf “registered."
Póstgjald þarf hvorki að borgast
undir bréf eða böggla.
Aldrei má láta bréf innan í böggul
og engin fréttablöð má senda.
En i bögglum má flest senda, tó-
bak fer tollfrítt. Ekki skyldu
menn senda matvæii sem skemmast.
Ekki mega bögglarnir vera þyngri
en 11 pund hver.
Peningasendingar (money orders)
geta menn sent og geta póststjórar
leiðbeint inönnuia En gull eða
silfur er fyrirboðið bæði í bréfum
og bögglum. Ekki skyldu menn
senda Postal Notes eða Banknotes.
Engin trygging verður gefin fyrir
afhendingu og enga ábyrgð gengst
póststjórnin undir. Og oft getur
dráttur orðið á að sá er sendir fái
tilkynningu um að sendingin hafi
til skila komið. En þó að þetta
dragist skyldu menn ekki ætla að
sendingin hafi glatast.
Við og við mega fangar skrifa
bréf heim eða póst spjöld,' en oft
eiga þeir ekki hægt með það, marg-
ra hluta vegna og skyldu menn því
ekki verða kvíðafullir um skör fram
R. M. COULTER,
Deputy Postmaster General
SonaróÖur.
i.
Gekk eg um lAónia grundir
Og græn rjöður skóga;
I'agrar .og fjallshliðar
Og fannstorkna linda.
Leit eg utn djúpa dali
Og drynjandi gljúfur.
Leit eg sól ofar sævi
Um sumarnótt friða.
Sá eg fley á fjörðum,
Fögrum und tröfum.
Reyndi eg fák á foldu
Á fjörspretli kviktim.
Sá eg oft fjaður-fé
Flögra um runna.
Ljóðandi lofsöngva,
“Liljn'”) skærari.
Rann eg förull til fossa,
i fjallgolu hressandi.
Leit eg hjarðir um hlíðar
Ifærra fram um renna.
Læki heyrði Ijúfa
Ljóða vorsöngva niðinn.
Hlýddi eg svanasöng,
Sunnan úr álftverum.
Sá eg túnin og teiga,
I tíbrá morgunsólar;
Mælifells-hnúkinn hefjast,
Heitum i aftans kossum.
Leit eg Drangey á djúpi,
Drotningu fjarðar- á -Skaga.
Sá eg Hólastól háan
Itefjast í byskups Ijóma.
Þjóðmœringa eg þekli,
Þreyta tölur á mótum.
Vitringa ætíð virti,
Og vífin fögureygu.
Brunnu mér heitt i barmi
Blíðhljómar engiltóna.
■ Ung söng þó Ijúfust lóa
Lögin slingari hinum.
Nú er alt mér orðið
Ami og kuldanepjur,
Áður sem alt eg hugði
Æskunnar Ijóssins hcima, —
Síðan að sviftur var eg
Syninum íðil prúða;
Því brjóst rnitl cr nú bitrum,
Banvænum skálmum stungið.
II.
Svipþýður sveinn,
Siglaður, hrcinn.
Ættstofni íslenzkum likur.
Tign bar á brá,
Bjartari snjá.
Af drengskap og djörfung rikur.
Atgjörvi glæst,
Góðlyndi hæsl
Götu hans týsti tit grafar.
Vinljúfur var,
Viðkvæmni bar\
Fastur, sem frœndur og afar.
Söknuður, sorg
Svífa um torg, —
Dáinn er drengurinn bliði.
Hinst kveð eg hann,
Ileimsins í rann,
Læknaðan ströngu úr stríði.
III.
ó, hverfulleikans hvössu stund
Eg hvergi forðast má.
Hún vegur jafnt í vöku og blund,
Minn vin og blómin smá.
Þvi dauðinn grípur “Grettistök”,
Og grafar safnar auð.
Hcr aldurtilar eiga sök, —
Min ævi er gleði snauð.
Á grafarþöglan, bleikan beð
Eg blómin munans læt.
Eg þreyttur er og þungt er geð, —
Eg þreyi samt og græt.
Eg veit eg finn þig fjarri á strönd,
Á friðarins dýrðar stað,
Þur Alvalds stjórnar eilíf hönd,
Og aldrei skyggir að.
(Kveðið undir nafni föður þess
látna, Qddbjarnar Magnússonar).
K. Ásg. Benediktsson.
') “Lilja”, kvæði, fyrsta og merk-
asta, i katólsku; kveðið af munki,
Eysteini lærða, ábóta í Þykkvabæj-
arklaustri. Látinn 1360 eða 1361.
Höf.
Sannarleg göfugmenni
Vér gátum þess nýlega hver voru
andlátsorð leikritamannsins heims-
fræga Charles Frohman^ rétt í þvf
að skipið Lusitanía var’að sökkva.
Hann mælti brosandi við stúlku
sein stóð hjá honum:—“Hví skal
dauðann óttast? Hann er hið feg-
ursta æfintýri lífsins.”
En oss láðist að geta annars
manns, milíónaeigandans Alfred
Vanderbilt. Þegar menn voru að
siást um að komast í bátana var
hann hinn rólegasti og gaf stúlku
einni lífbelti sitt og kallaði á þjón
sinn og bað liann að hjálpa sér að
koma sem flestum börnuin ofan í
bátana: —“Coine and let us save the
kiddies” og þarna voru þeir báðir
að sækja börnin og kasta þeim ofan
í bátana. En um sitt eigið iíf hirtu
þeir ekki. Þetta eru sannarlega
göfugmennk annar stígur brosandi
seinasta skrefið, en hinn ver sein-
ustu mínútunum til þess að bjarga
þeim, sem annars hefðu hlotiC að
týnast.
HAGLÁBYRGÐ 1915!-----------------------------------
Hversvegna vátryggja uppskeru sína fyrir hagli í Hartford félag-
inu.?
Vegna þess það stendur fremst í sinni röð: ábyrgðar skilmálar
hinir beztu; verð sanngjarnt: ef uppskera þín eyðilegst af þurk
eða einhverju öðru en hagli getiðþið fengið peninga yðar til baka.
Landar er vildu taka að sér umboðsstöðu (agency) þessa félags,
í sínu héraði gjöri svo vel og skrifið mér tafarlaust eftir frek-
ari upplýsingum.
1914 Total Assets. $26, 525,973.85. 1914—Surplus to Policyholders
$10, 048, 522.13
0. G. OLAFSSON, Special Agent and Adjuster.
Hartford Fire Insurance Co., Winnipeg, Man.
BÆNDUR! SMJOr: EGG,kHÍNSNI.
Við skulum kaupa allt sem þið sendið eða selja það fyrir
ykkur sem haganlegast og setjum aðeins 5 per cent. fyrir.
Með þessum hætti geta bændur selt afurðir bús síns svo lang
haganlegast, en það eru fáir bændur sem ekki hfa nærri stór-
bæunum sem hafa notað sér þennan stórkostlega hagnað.
Reynið okkur það borgar sig.
Stephansson Fish & Prodnce Co.
247 Princess St. Phone Garry 2950 Winnipeg
Kóróna fúlmenskunnar.
Hér og hvar hafa menn fundist,
sem mælt hafa bót Þjóðverjum fyrir
hina nýju hernaðaraðferð þeirra,—
nefnilega þá, að kæfa óvini sina
ineð eitruðuin lofttegunduni. Slíkir
vinir og verjendur Þjóðverja hafa
komið fram hér og hvar, bæði í
Canada og Bandaríkjunum. — Þeir
segja, að það sé ekki verra, að drepa
óvini sína á þenna hátt, en með kúl-
um eða sveðjum. Oss kemur til hug-
ar, þegar landinn heima var að lóga
hvolpum eða ketlingum; en sú að-
ferð var svo andstyggileg og við-
bjóðsleg, að ekki er lýsandi og sýndi
svo mikla fúlmensku og tilfinning-
arleysi, að yfir gengur alt annað.
En nú kemur merkur maður einn
og segir frá og lýsir kvöium þeim
og pindingum, sem menn þeir verði
að þola, sem orðið hafa fyrir eitur-
spýju þessari. Það er biskupinn frá
Pretoria. Hann hafði farið að sjá
hermenn á spitölunum i Flandern,
og hafði tekið vandiega eftir áhrif-
um eiturlofts þessa og ri.tar um það
á þessa leið í stórblaðinu London
Tirn«T'
“Grimmilegri og djöfullegri hern-
aðaraðferð er ekki hægt að hugsa
sér. Ef að loftefni þetta aðeins
svæfði mennina, svo að þeir yltu út
af, en Geirmenn (Þjóðverjarq gætu
gengið að ósekju yfir meðvitundar-
lausa búka þeirra, þá væri það
skárra, og er þó bleyðifull og rag-
mannleg herskaparaðferð. En þeg-
ar aðferð þessi, einsog oft á sér stað,
drepur mennina með seinum og
kvalafullum dauða, — þá er ekkert
það tunguinál til, sem geti lýst til-
finningum þeirra, er sjá og horfa á
kvalir þessar, einsog eg hefi séð þær
er eg hefi staðið yfir unguin og
hraustum og harðgjörðum mönn-
um meðan eiturloft þetta var að
pína þá og kvelja og slíta úr þeim
lífið.
á spítulunum, sem eg heiinsótfi í
Flandern voru hópar manna. og þó
aðeins lítill hluti þeirra, sem urðu
fyrir “gasi” þessu. Margir þeirra
engdust sundur og saman og brut-
ust um til að geta náð andanum með
hinum sárustu kvölum. Svona var
það við hvert eitt einasta andartak
og þannig höfðu þeir kvalist dögum
sainan. Hver einasti læknir, sem
þarna var, hafði reynt alt, sem
mönnum gat til liugar komið, til
að sefa kvaiir þeirra; en alt var til
einskis. Þeir gátu hvorki linað
kvalir þeirra eða bjargað lifi þeirra.
Þeir urðu að horfa á mennina slitna
sundur af kvölunum, — mennina,
sem gengið höfðu hugprúðir og ör-
uggir fram að leggja líf sitt i sölurn-
ar fyrir ríkið, fyrir föðurlandið, fyr-
ir mannkynið, fyrir frelsið, fyrir
sanna menning, fyrir velferð vina
og vandamanna, svo að þeir yrðu
ekki nístir og troðnir sundur unilir
hælum þessara samvizkulausu morð-
varga! Aldrei í heiminum hefir
nokkurt villidýr sýnt aðra eins
grimd og þessi hin þýzka menning-
arþjóð! Aldrei hafa menn fyrri séð
hina sönnu þýzku menningu — Kul-
tur ~ einso« núl °« Þetta vilja þeir
breiða út um allan heim. Og marg-
ur maðurinn hefir verið svo skamm-
hygginn og vitgrannur að ætla, að
þýzka menningin væri hin sanna,
fullkomna menning!-------”,
Fréttabréf.
Frá fréttaritara Hkr.
Markerville, 12. maí ’15.
Bezta og hagstæðasta tíð hefir
verið hér það sem liðið er af þess-
um inánuði: hlýviðri með smáskúr-
um nálega á hverjum degi. Qróður
er kominn í bezta lagi, eftir því sem
venjulegt er hér um þetta leyti, og
akrar gróa hraðfara. Sáningu er um
það lokið; nema nokrir munu enn
sá fyrir grænt fóður. ,
Heilsa fólks er um þetta leyti víða
skert af kvefsýki og illa kynjaðri
bólguveiki í unglingum, og hafa
sumir haft hana um lengri tíma.
Skaði varð að eldsbruna þann 10.
þ.m. Brunnu þá fjós og hús hjá B.
Stephánssyni, bónda við Marker-
ville; í húsunum brunnu 6 kálfar og
allur reiðskapur bóndans. Knuinn
veit víst, hvernig eldurinn byrjaði.
Húsin voru í eldsábyrgð.
Hér er á kynnisferð meðal vina
og kunningja herra Jón Pétursson,
frá Edmonton; einn af elztu íslenzku
landnemum þessa lands; er búinn
að vera nær 40 árum hér vestra.
Gamli maðurinn, sem kominn er á
niræðisaldur, er enn ern og hress.
Nýskeð eru komin vestan frá
Pince Rupert Mr. og Mrs. C. Christ-
inson; fóru þangað í fyrra sumar,
og hafa dvalið þar síðan. Nú eru
þau komin, velkomin hingað vanda-
mönnum sínum, vinum og nágrönn-
um.
Herþjónustuskylda.
Frá london koma þær fregnir, að
almenn herþjjónustuskylda verði í
lög leidd í júnímánuði. Verður her-
skyldum mönnum skift í þessa 4
flokka:
1. Flokkur ógiftir menn 18—35 ára.
2. Flokkur giftir menn 18—25 ára.
3. Flokkur giftir menn 25—35 ára.
4. I'Iokkur ógiftir menn 35—45 ára.
Kosningar bráÓum.
Mælt er, að kosningar eigi að fara
frain hér í fylkinu innan skamms
tíma. Þetta er reyndar orðrómur,
en ekki óliklegur.
NÝ VERKSTOFA
Vér erum nú færir um að taka á
móti öllum fatnaði frá yður til að
hreinsa fötin þfn án þess að væta
þau fyrir lágt vcrð:
Suits Steamed and Pressed 50c
Pants Steamed and Pressed 25c
Suits Dry Cleaned.$2.00
Pants Dry Cleaned . 50c
Fáið yður verðlista vorn á öllum
aðgjörðum skófatnaðar.
Empress Laundry Co. Ltd.
Phone St. John 300
COR. AIKENS AND DUFFERIN
Ideal Plumbing Co.
Gjörir allskonar “Plumbing,” “Heating” og við-
gerðir; sérstaklega óskað eftir viðskiftum Ianda
736 Maryland Street
G. K. STEPHENSON J. G. HENRICKSON