Heimskringla - 30.09.1915, Blaðsíða 1
RENNIE’S SEEDSI
HEADQUARTERS FOR SEEDS, PLANTSV*J
£ BULBS AND SHRUBS SáJ
PHONE MAIN 3514 FOR CATALOOUE
Wm. RENNIE Co„ Limited
394 PORTAGE AVE. - - WINNIPEG
XXX. AR.
WINNIPEG, MANITOBA, FIMTUDAGINN 30. SEPT. 1915.
Flowers telegraphed to all parts of
the world.
THE ROSERY
FLORISTS
Phones Maín 194. Nlght and Sun-
day Sher. 2667
289 DONALD STREET, WINNIPEG
Snæbiörno01Son
jan- 16
Nr. 1
Rimman harðnar bæði
að vestan og austan.
Á Frakklandi hrekja Bretar og Frakkar Þjóð-
verja 3 mílur á 20 mílna svæði; taka fjölda
fanga og vopnabirgðir miklar. Rússar sýna
öfluga vörn; hrekja Þjóðverja á ýmsum
stöðum. Léttir yfir viðskiftalífinu við þetta.;
ÞaS hefir einlægt verið að harðna
á vesturkantinum nú i mánuð eða
Meira. Skothriðin úr hinum stóru
fallbyssum beggja hefir staðið þar
dag eftir dag með mjög litlu milli-
bili. Stundum hafa Þjóðverjar reynt
að gjöra áhlaup, einkum hjá Verdun
fyrir rúmri viku siðan; en ekkert
gekk, nema það, að þeir töpuðu
mönnum.
Frakkar og Bretar voru að sækja
sig og það var auðséð, að þeir voru
farnir að hafa meiri skotfæri, og
láta Þjóðverja kenna á því. En þó
leituðu Bandamenn enn lítið á Þjóð-
verja; þeir vörðu hendur sínar, ef
að hinir leituðu á þá, en sjálfir
sóttu þeir ekki eða sjaldan á Þjóð-
verjana. Þeir spöruðu mennina og
voru að búa sig undir.
60 klukkutíma stöðug stór-
skotahríð.
En undanfarna seinustu daga hertu
Bandamenn hríðina meira en nokk-
uru sinni áður. í 60 klukkustundir
stóð hún látlaust hríðin, dag og nótt.
flotar flugmanna Frakka og Breta
svifu í lofti yfir vigvöllunum og sáu
cinlægt hvað hinum leið. Drunur
fallbyssanna urðu ekki aðgreindar;
það var eitt látlaust öskur. Á nóttum
var það einn eldblossa-straumur, og
hvar sein kólfarnir úr hinum stóru
byssum koinu niður, smugu þeir 4,
T' og 6 fet í jörðu niður; brutu stein-
steypur Þjóðverja eins og eggja-
skurn eða ljósahjálma, en þeyttu upp
gusum miklum úr jörðunni af sandi
Lg grjóti, og var þá engum lift, er
nærri stóð, þvi að hvellirnir einir,
þegar kólfar þessir sprungu, voru
nægir til að steindeyða alla þá, sem
nærri stóðu. Og sumstaðar grófu
Bandamenn jarðgöng undir grafir ó-
vinanna og sprengdu svo upp graf-
irnar með öllu því, sem i þeim var.
Vissu þá Þjóðverjar ekki fyrri en
þeir voru í háa lofti. Og þar upp yf-
ir voru flugmenn Frakka og Breta og
sendu niður sprengikúlurnar, eins
ört og þeir gátu við komið.
En úti við sjó í Flandern lögðust
herskip Breta svo nærri landi, sem
hægt var, og sendu járnstrauminn
upp í grafir Þjóðverja, því alt var
útmælt og niðurmarkað.
Þessi tröllahrið gekk nú þarna ó-
slitin mikið til á öllum vesturkant-
inum; en þó áköfust frá Arras og
norður að sjó. Stöðugt í 60 klukkuí
tima stóð hún. Var þá stórum farin
&ð linast og sumstaðar niðurfallin
hríðin frá Þjóðverjum. Þá þagnaði
atl í einu á sömu mínútunni á hin
um ianga hergarði frá Arras og norð
ur að sjó. Hermenn Frakka og Breta
höfðu óþreyjufullir beðið eftir
þessu, — nú stukku þeir upp í löng-
um röðum og nú var hlaupið upp á
lifið; því að þá langaði til að kom-
ast í grafir barnamorðingjanna —
þýzku. Þetta var í döguninni. Þetta
bar svo skjótt að, að þeir Þjóðverjar
sem lifandi voru í skotgröfunum,
komu engri vörn fyrir sig. Það var
enginn timi til að búast við áhlaup-
inu, — enginn tími fyrir þá að koma
maskínubyssunum í lag. Það var
ekki hægt að nota annað vopn en
byssustingina og skammbyssurnar;
og grafirnar voru svo sundurtættar,
að þær voru að engu gagni. ■
Á meira en 100 mílna svæði hröktu
Frakkar óvinina þýzku úr.gröfunum
eða eyðilögðu þær. Á tuttugu mílna
svæði eða þar um norður af Arras
og La Bassee hröktu Bretar og Frakk
ar Þjóðverja þetta frá 114 til 214
mílu, og sumstaðar meira. — Mann-
fallið hefir víst verið voðalegt hjá
Þýzkum, því að fregnritar segja að
meiri hlutinn hafi verið dauður í
gröfunum, þegar Bandamenn tóku
þær; og sjónarvottar, sem voru bak
við hergarða Þjóðverja, segja að ein
lægt hafi verið stöðugur straumur
hinna særðu frá vígvöllunum þýzku.
En 20,000 tóku Bandamenn fangna
þarna af Þjóðverjum.
Þegar fregnin um þetta barst til
Parísar, risu 120 flugdrekar í loft
upp með franska flaggið blaktandi á
flugdrekum sinum.
Sé þetta byrjunin á því að reka
Þjóðverja burtu úr Belgíu og Frakk-
landi, þá má segja að vel sé byrjað,
Austur frá gengur Rússum betur,
þó að mikið sé eftir.
Siðan mestu krókarnir voru tekn-
ir af bardagalínunni Rússanna, er
hún um 700 mílur á lengd, og hefði
það þótt nokkuð breið fylking í
fyrri daga. En þarna juða þeir við
það með sama þolinu og ákafanum,
að sálga hvorir öðrum. En nú eru
Rússar hættir að flýja eða halda
undan og þýzkir hættir að vaða á-
fram. Ivanoff Rússaforingi er nú
einlægt að hrekja Þjóðverja vestur
aftur og taka tiÞfanga. Kastalavígið
Lutsk tók hann aftur af Þjóðverjum
og 5000 fanga. Ivanoff er aðalfor-
ingi Rússa sunnan við Pinsk flóann,
og er Mackensen þar á móti honum;
en nú dugar ekki harðneskja Mack-
ensens og herkænska. Þessi hergarð-
ur, sem Ivanoff stýrir, nær alla leið
suður að landamærum Rúmaníu og
gjörir það Rúmena örugga, að sjá
að Þýzkir fara þarna ófarir fyrir
Rússum. Og óefað frestar þessi upp-
gangur Rússa þarna því, að Þýzkir
sendi herflokka sína suður á móti
Serbum, nema kanske litið eitt. Þeir
sjá, að þeir mega ekki missa af fleiri
hundruðum þúsunda manna þarna,
þar sem þeir hafa fult í fangi að
halda sínu og eru farnir að hröklast
undan á 200 milna svæði eða meira.
En þýðingarlaust að senda minna
en millión eða nær því suður á skag-
ann.
Norðurfrá við Vilna er Hinden-
burg einlægt að hainast; er þar á
móti honum Russky hershöfðingi;
og síðan hann kom, er sem Hinden-
burg höggvi i harðan stein, er hann
leggur til hans; það hrökkva neistar
úr steininum og fljúga um völluna.
Þar berjast þeir dag eftir dag; þok-
ast dálítið fram og aftur, en litlu
munar, nema einlægt falla mennirn-
ir. Rússar eru á degi hverjum að fá
meiri og meiri skotfæri, og verður
Þýzkum æ dýrara og dýrara að ráð-
ast á þá. En nú er sagt að Rússar
séu úr allri hættu. Petrograd borg er
óhult; Riga er talin óhult; Dvinsk
geta Þýzkir ekki náð. Rússar hafa
lirakið Þjóðverja á leiðinni frá
Dvinsk til Vilna, við Novo Alexandr-
owna og Lakekse vatnið. Þýzkir ráð
ast á aftur og aftur, hvað oft sem
þeir eru barðir. En það gengur saint
ekki. Rússar standa sem steinvegg-
ur. Rússar þekkja þarna hvern stig
og hvern pytt og keldu, en þarna er
mýrlent mjög, og stundum ginna
þeir Þjóðverja þangað til þeir eru i
ófærur komnir og skjóta þá svo alla
niður.
Bardaginn við Hellusund.
Við Hellusund heldur bardaginn
áfram látlaust; en sagt er að Banda
menn séu nú að inestu eða nær öllu
búnir að kvía af kastalann öfluga
Achi Baba. En það er strýtumynd-
að fjall nær 1000 fetum á hæð, og
alt sundurgrafið af skotgröfum og
virkjum, og var talið alveg óvinn-
andi. Þetta hið mikla virki ætla
iren nað fari bráðlega að gefast upp
— og þá eru eiginlega Hellusundin
unnin.
Búlgaría farin að sjá sig um hönd.
Ferdinand Búlgaríu konungur er
farinn að hugsa sig um. Hefir ekki
Iitist á ófarir Þjóðverja að austan
og vestan, og neitar nú að hann
hafi nokkurntíma ætlað að veita lið
Vilhjálmi.
Grikkir og Rúmenar búast í ákafa.
Grikkir og Rúmenar hervæða sig
í ákafa, og þarf nú ekki mikið að
kveikja þar í. Er fullyrt að Venize-
los ráðgjafi Grikkja sé búinn að snúa
Konstantínusi konungi, og eru þvi
Grikkir nú reiðubúnir að styðja
Serba en stökkva á Búlgara, ef þörf
gjörist.
Krónprins Þjóðverja settur frá
herstjórn.
Seinast kemur sú fregn, að búið
sé að taka herstjórnina af krón-
prinsinum syni Vilhjálms. Hann
hefir verið fyrir herstjórn á Frakk-
landi. Hann er hamslaus að brjótast
gegnum hergarð Frakka, og segja
Þýzkir sjálfir að hann sé orðinn
geggjaður, — sendi herflokkana i
vitleysu út í opinn dauðann.
Þýzkir tapa 50 þúsundir manna
við Vilna.
f bardögunum seinustu kringum
Vilna á Rússlandi, er sagt að Þjóð-
verjar hafi tapað 250 þúsund mönn-
um. Þeir hafa þurft að sækja fast á,
en Rússar vari'st af mestu hreysti.
Náttúrlega hafa þeir mist inargan
manninn líka, bæði fallna og fang-
aða; en æfinlega hefir það þó verið
svo, að þeir sem á sækja, missa tals-
vert meira on hinir sem verja, og
það stundum svo að miklu munar.—
Þeir hafa hrakist þarna fram og aft-
ur á þriðju viku og hefir oltið á
ýmsu. Oft hafa Þýzkir verið hraktir
af stöðvum þeim, sem þeir hafa náð,
og oft hafa Rússar orðið undan að
halda. En báðir koma aftur og reyna
að nýju. í fyrri daga hefði hvert það
land verið eyðilagt og undir óvina-
hælum, sem tapað hefði 250,000
manna. Það er mjög sjaldgæft, að
svo margir hermenn hafi verið af
báðum þeim sem börðust. En nú
sýnast áhlaupin Þjóðverja lítið lin-
ast. við þetta.
Og sunnan við flóana er Ivanoff
hershöfðingi móti Austurríkismönn-
um, og hefir hrakið þá og fyrir viku
síðan var hann búinn að taka af
þeim 70,000 manan.
800,000 þúsund ÞjóÖverjar áttu
að fara á móti Serbum.
En ekki vita menn, hvenær eða
hvar þeir eru, en sjálfsagt einhvers-
staðar i löndum Austurríkis. Þessar
fregnir koma frá núverandi höfuð-
borg Serba, Nish, i Moravadalnum.
Og á öllum norðurlandamærum!
Serba hafa nú óvinir þeirra verið
að leita á þá. En áreiðanlegt þykir,
að Frakkar, Bretar og ítalir sendþ
þeim líklega allir lið til hjálpar, þeg-
ar á þarf að halda. En Grikkir og
Rúmenar koma óðara út á völlinn ef
að Búlgaría hreyfir sig.
Frá Miklagarði.
Svisslendingur einn kom nýlega
frá Miklagarði og segir, að myrkt sé
uin nætur í borginni; Það sjáist
hvorki gasljós eða rafmagnsljós eða
jafnvel kertaljós þar; og 2000 verka-
inenn frá Krupp verksmiðjunni eru
þar vinnulausir. Tyrkir hafa ekkert
efni að láta vinna úr.
Liðsauki við Hellusund.
Yfir hundrað þúsundir manna er
ságt að hafi sendar verið til hjálpar
Bandamönnum á skaganum við
Hellusund, og er sagt að Frakkar og
Bretar hafi lent í Mudras höfn á
Lemnos eyju, rétt hjá skaganum.—
Litlu áður var eitthvað af ítölum
lent við Saros vikina á skaganum.
Eitthvað á seiði í Norðursjónum.
1 Norðursjónum hefir eitthvað
verið að gjörast, þvi að í vikunni
sem leið heyrðust stórskotadrunur
lengi dags norður af Frislandi. En
ekki vita menn frekar um það.
Grikkir kallaðir til vopna.
400,000 Grikkir liafa verið kallaðir
til herþjónustu.
Peningamarkaðurinn í Wall Street
finnur lyktina af betri tímum.
Það er eins og þungri byrði hafi
verið lét taf peningamarkaðinum í
New York, eða eins og þefvíst kyk-
vendi hafi fundið lyktina af góðu
æti, því að nú var alt á ferð og flugi
í New York. Verzlanin varð svo á-
köf á Wall Street markaðnum, þegar
hann var opnaður hinn 27. að fyrsta
klukkutimann seldust 450,000 hlutir
i allra handa félögum, og hefir slikt
aldrei fyrir komið siðan markaður-
inn opnaðist i desember fyrir nærri
ári síðan. En honum hafði verið lok-
að í byrjun stríðsins til þess að forð
ast “Panic”. Enda er nú útlitið betra
fyrir Bandamenn, cn verið hefir um
langan tíma.
Tekinn viíi herforustu aftur.
Ivuropatkin gamli, hershöfðingi
Rússa i Japan striðinu, er nú tekinn
við herforustu aftur. Hann beið ó-
sigur fyrir Japönum hvað eftir ann-
að; en var þó beztur foringi Rússa
þá. Allar ófarir Rússa i því stríði
voru mest stjórninni í Pétursborg
að kenna.
Loftför Þjóðverja hafa
týnt tölunni.
1 bænum Friederickshafen við
Bodensjó suður undir landamærum
Svissaralands eru aðalstöðvar Zeppe
lin loftskipa Þjóðverja. Þar hefir
Zeppelin gamli bygt flesta loftbáta
þessa. Og munum vér eftir þvi, er
blöðin voru að segja frá því fyrir
mörgum árum. Þeir duttu lengi vel
fyrst ofan í vatnið, og komust ekki
nema lítið eitt í loft upp. Þetta er
á landamærum Svissaralands, og
vita íbúarnir oft hvað þeim líður.
Nú kemur sú fregn frá Genf (Gen-
eva), að Þjóðverjar hafi tapað 38
Zéppelinum og 9 Parsival loftskip-
um síðan stríðið byrjaði til 1. ágúst
í sumar. En síðan hafa hvergi kom-
ið fyrir 2 Zeppelinar og 1 Parsival
flugbátur, og cru þá farin 50 loftskip
Vilhjálms. Flest þeirra hafa Banda-
menn skotið úr lofti niður, en nokk-
ur hafa rifnað og brotnað, er þau
komu til jarðar. Þau eru svo stór og
fyrirferðarmikil, í stormi, að þau
verða alveg óviðráðanleg, þegar
hvast er, og þykir það stór galli á
þeim. Þeir eru eiginlega aldrei ó-
hultir nema í logni eða þá litlum
vindi.
öll þessi flugskip ætla menn að
hafi kostað yfir 25 milliónir dollara,
því að flest kosta þau um hálfa mill-
íón dollara hvert eða meira — hin
nýjustu. Má þar segja, að mörg fari
millíónin í stríðinu og verða ekki
allar að miklum notum.
Hingað til liafa Þýzkir haft Zep-
pelina sína helzt i Brussel, höfuð-
borg Belga; en nú hafa þeir að
sögn fært þá til Antverpen við
landamæri Hollands, og hefir þótt
ónæðissamt í Brussel fyrir flug-
mönnum Breta og Frakka. Þeir hafa
eyðilagt hjallana, sem hafðir voru
til að geyma þá í, því að Zeppelinar
geta ekki verið skýlislausir.
Merkur verkamanna-
foringi látinn.
Látinn er á Englandi Keir Hardie
verkamannaforingi og þingmaður.
Hann var í miklu áliti meðal verka-
manna og stóð fyrir málum þeirra.
Dugnaðarmaður, en þótti óþiður
nokkuð. Hann var bardagamaður
mikill og vildi ekki hlut sinn láta,
þó að ofurefli væri við að eiga. —
Missa verkamenn þar ótrauðan for-
ustumann þar sem hann var.
Verkfall
Austurríkismanna.
1 Vestur Virginíu í Bandarikjun-
um er mesti fjöldi Austurrikis-
manna, sem vinna i vopnasmiðjum
þar. En nú hafa þeir ásamt Þjóðverj-
um ætlað sér að gjöra verkfall þar,
að undirlagi þeirra Bernstorffs og
Dumba. En verksiniðjueigendurnir
hafa nú þegar byrjað að taka aðra
menn og ætla að láta þá alla fara,
sem hindra vilja verkið, og fá þeir
jiá vilja sinn, — að vinna ekki að
vopnasiníðinni eða skotfæragjörð-
inni.
-— Það er engum manni láandi, þó
að hann vilji ekki vinna á móti ætt-
landi sínu, þegar þetta eru Austur-
ríkismenn eða Þjóðverjar. En hitt
er það, sem vitlaust er ,að hafa mill-
íónir manan í landinu, sem hlýða
öðrum herrum og eru reiðubúnir að
snúast á móti landi því, sein fæðir
þá og klæðir, við fyrsta tækifæri,
eða þegar óvinir landsins skipa
jieim það. Meðan menn voru, eins
og sumir segja, tífalt fáfróðari og
heimskari en nú, þá liðu menn ekki
þetta, kom ekki til hugar að láta
það viðgangast. Enda er hver sú
þjóð í stórkostlegum voða, sem þol-
ir annað eins.
Ný uppgötvun.
Með einhverjum konstum hefir ít-
alskur vélafræðingur fundið það
upp, að láta hluti, báta eða hvað
sem vera skal fljóta í lofti uppi eins
og spítukubb eða rekadrumb á sjó
úti. Maðurinn heitir Louis Rota. og
segist gjöra þetta með rafmagns-
straumum. Ilann á að hafa smíðað
bát eða tól eitthvert, sem hann lætur
fara upp í loftið 2—3 þúsund fet og
þar getur hann haldið þvi liggjandi
“Liberalar hundelta gömlu ráðgjafana til hefnda
fyrir gamlar sakir.”
Svo segir E. F. B. Johnston, lög-
maður sá, sem ráðgjafarnir fengu
frá Toronto til að verja mál sitt fyr-
ir rétti hér i Manitoba, og kemur
fregnin um þetta út í blaðinu Free
Press þann 24. sept.
Greinin er á þessa leið:
“Toronto, 23. sept.— Vald og rétt-
ur landsins i Manitoba er skrök eitt
(“The Crown in Manitoba is only a
myth”). Þetta mál er alt pólitisk
liefnd. Grittarnir (hinir Liberölu)
liundelta nú hina fyrverandi með-
limi Roblin stjórnarinnar, af þeirri
ástæðu að áður fyrri hafa Torys
(Konservatívar) hundelt Liberala.
Eg hefi tekið við máli ráðgjafanna
og ætla að halda jiví fram til streitu.
“Þetta voru orð Mr. Johnstons
skömmu eftir að hann kom frá Win-
nipeg. Hann var reiður af því, að
honum höfðu borist sögur þær, að
hann væri skilinn við mál þeirra, og
hefði þess vegna farið frá Winni-
peg.
“Að segja þetta er i fylsta máta
ranglátt gagnvart verjendum, hélt
Mr. Johnston áfram með hita mikl-
um. Eg sagði þeim þar, þegar eg tók
að mér málið, að eg kæmi ekki fram
í pólitirétti, en myndi koma fram,
þegar mál þeirra yrðu prófuð. En
það lítur svo út, sem þessi Horwood,
aðalvitni þeirra, er sækja málið,
jiurfi að fara undir uppskurð, og
geti þvi ekki verið viðstaddur, þeg-
ar málið kemur fyrir réttinn, og
liéldum vér því, að betra væri að eg
færi þangað og héldi próf yfir hon-
um. Þeir andstæðingarnir vildu lesa
upp vitnisburð hans fyrir réttinum,
og þá þurfti að gagnspyrja hann
(cross-examine).
“Vér skiftum verki. Eg tók að mér
að verja Sir Rodmond Roblin og var
aðalverjandinn. En þegar eg var bú-
inn að spyrja Horwood, þá var það
ekki nema eðlilegt, að Mr. A. J. And-
rews tæki til að spyrja hann, sem
verjandi Dr. Montagues. En eg fór
heim til Toronto, þegar eg var búinn
með Horwood.
“Aðalmálið kemur ekki fyrir rétt
fyrri en einhverntíma í vetur, má-
ske í febrúarmánuði. Þá verð eg þar
til staðar, að halda vörnum uppi.
Það er mjög óliklegt, að þeir geti
haft málin til fyrir dómþingin í nóv-
ember. — Af þessu má sjá, að það
er bæði ósanngjarnt og hlægilegt, að
segja, að eg sé skilinn við málin.
“Eg vil geta þess, að viss frétta-
blöð, sem styðja hina nýju stjórn i
Manitoba, gjöra alt sem þau geta til
að koma verjendunum i tukthúsið.
“Þeir eru mikið búnir að þola, og
þó getur enginn sagt, að i þeirra
vasa hafi runnið eitt einasta cent af
þeim peningum, sem þeir eru sakað-
ir um að hafa stolið. En öll þessi
barátta er til þess háð, að Liberalar
geti hefnt sín fyrir meðferð Kon-
servativa á þeim, þegar þeir höfðu
völdin. Vér ætlum að kljá út um
málið fyrir dómara og kviðdómi”.
Tveir ungir Islendingar drukna í Winnipeg vatni
Það eru þeir Þorvaldur Pálmason
og Sigurður Víglundsson, hinn fyrri
25 ára gamall og hinn siðari 19 ára;
báðirfrá Gimli, Man. Báðir efnilegir
menn.
Þeir eru taldir druknaðir báðir,
þó að enginn hafi séð lík þeirra,
og enginn viti, hvernig það hafi að
borið.
Það var hinn 22. sept., að þeir
fóru út á netabyttu einni frá Loni
Beach, norðan við bæinn niður við
vatnið, og ætluðu að leggja net um
4 mílur út frá ströndinni. Þetta var
um klukkan 10 á laugardagsmorg-
uninn, og fylgdist annar bátur með
þeim, en hélt heim til lands aftur
kl. 12 og voru hinir þá að sýsla við
netin.
Milu fyrir norðan þá var Sigurður
Kristjánsson á netum og fór heim
kl. 3 e. m. Sá hann þá ekkert til
þeirra, er hann hélt i land.
Menn grunaði ekki um, að neitt
óhapp hefði til tiðinda borið fy’-ri
en kl. 7 um kveldið; þá fór menn að
undra útivist þeirra og fóru þá nokk
urir menn út á róðrarbát, til að vita,
hvort þeir sæju nokkuð til þeirra.
Réru þeir þarna um vatnið þangað
til kl. 10 um kveldið, en urðu hvergi
varir hinn týndu manna og ekki sáu
þeir heldur bát þeirra.
Klukkan 12.30 daginn eftir, eða
liálfri stundu eftir miðnætti, fór
sveitarráðsmaður Jónasson út á gas-
ólín bát, sem hann átti. Er hann
vanur fiskiveiðum og vatnsferðum
þarna frá bernsku. Hann ætlaði að
reyna að verða einhvers vísari um
þá eða bátinn. Logn var á og var
vatnið slétt og fagurt, sem spegil-
gler í björtu tunglsljósinu.
Hr. Jónasson fór fyrst til netanna
og fann þegar duflið og fór að lyfta
til að sjá, hvort þeir væru flæktir í
netunum; en hann varð einskis vís-
ari. Eitt endanetið var alveg fisk-
laust, en fiskur i öllum hinum. Og
þótti honum það undarlegt, að þeir
skyldu ekki hafa tekið fiskinn úr
netunum. Þeir höfðu með sér eitt
net, sem þeir ætluðu að leggja, og
nokkru áður hafði Pálmason verið
að tala um, að fara austur fyrir vatn
til þess að vita, hvort hann gæti
ekki fundið betri fiskimið. En það
virtist ekki, sem þeir hefðu ætlað
sér að fara austur yfir vatnið að
þessu sinni, því að þeir höfðu ekki
nema stjóra fyrir annan enda nets-
ins með sér í bátnum. Og svo höfðu
þeir ekkert nesti og enga feldi eða
hrekán að sofa við, og báturinn var
smár á vatninu að mæta hviku, ef
að nokkuð kynni að hvessa. Segl
liöfðu þeir samt i byttunni og eina
aukaár.
Getið var til að þeir kynnu að
hafa vilst á vatninu um nóttina, því
að áttavita höfðu þeir engan. Sumir
gátu sér til, að þeir kynnu að hafa
velt um bátnum, er þeir hafi verið
t'? fleygja út stjóranum, og hafi svo
báðir farið í vatnið. Víglundsson
var syndur, en hinn ekki; en hann
f at hafa farist, er hann var að reyna
i.ð bjarga hinum.
Jónasson var á ferðinni hér og
hvar um vatnið þarna þangað til kl.
10 f. m. á íiintudaginn, en gat hvergi
séð neitt, hyorki bátinn eða neitt úr
honum. Seglbátur ætlaði út á vatn-
ið um kveldið: en vindur var á tölu-
verður og urðu þeir að halda til
lands aftur.
Sigurður Víglundsson var mjög
cfnilegur ungur maður, og hafði sótt
vel Gimli skólana hina almennu og
hina æðri skóla og lét námið vel.—
Foreldrar hans hafa verið í Winni-
peg og Selkirk. Systur á hann gifta
Fred Olson á Gimli.
Þorvaldur Pálmason var fyrir
tveimur árum kominn frá fslandi og
er þar alt skyldfólk hans. Hann var
um tíma vinnumaður hjá hr. Gisla
Sveinssyni á Loni Beach, Gimli.
í laugardagsblaði Free Press, hinn
25. sept., er sagt að Björn Pétursson
og bróðir hans hafi fundið neta-
byttu rekna á Willow Point, sem
mjög likist byttu þeirri, er þeir fóru
á félagarnir Þorvaldur og Sigurður.
Báturinn var á hvolfi.
eða beint þvi í hvaða átt sem hann
vill með 100 mílna ferð á klukku-
stundinni.
Þessi bátur eða verkfæri hans er
sem snælda i lögun, 12 fet á lengd en
2 fet á breidd, og getur borið 90
punda þunga. Það liggur eða getur
legið grafkyrt i loftinu í töluverð-
um vindi; en vaxi vindurinn lyftir
það sér af sjálfu sér, þangað til það
er komið upp fyrir vindinn.—(Úr
Mail and Empire).
Réttlæti ÞjóSverjanna
f Antverpen í Belgíu dæmdu Þjóð-
verjar nýlega þrjá menn til dauða,
og 33 í harða tukthússvinnu, þetta
frá 15 mánuðum til 10 ára — fyrir
að hafa farið með bréf frá Belgiu til
Ilollands. Mennirnir, sem til dauða
voru dæmdir, voru: Alexis lögreglu-
stjóri, Jósep Baeckelmans bygginga-
meistari og Alexander Frank kaup-
maður.
Loftskipa faktorí í Winnipeg.
Búist er við, að bráðlega verði far-
ið að búa til flugdreka hér í Winni-
peg. Bandaríkjamaður ætlar að
stofna hér verksmiðju í þeim til-
gangi. Eftirspurn um flugdreka svo
mikil, að ómögulegt er að fullnægja
henni.