Heimskringla - 30.09.1915, Qupperneq 2
BLS. 2
HEIMSKRINGLA.
WINNIPEG, 30. SEPT. 1915.
FRÉTTIR FRÁ ÍSLANDI.
KOLAEKLA.—Þann 18. ágúst sl.
sendi Matthías Þórðarson, erindreki
Fiskifélagsins, svohljóðandi sím-
skeyti frá Liverpool til félags síns:
“Eg ræð botnvörpunga eigendum
til þess, að birgja sig upp með nauð-
synleg kol til næstu vertíðar. Sömu-
leiðis ræð eg landstjórninni til þess,
að gjora samning um kaup á nokkr-
um þúsundum smálesta”. — Út af
skeyti þessu gjörði blaðið Vísir fyr-
irspurn til sendanda um það, hvers
vegna nauðsynlegt væri að birgja
sig upp með kol, og fékk þetta svar:
“Mjög líklegt, að kolaflutningur
verði takmarkaður. Nánara í bréfi”.
SLYS I RVíK.—Tíu ára gamall
piltur Guðmundur ólafsson var á
hlaupum á götu í bænum og rakst á
annan dreng, sem var á hjóli og
duttu báðir. Guðmundur virtist í
fyrstu lítið meiddur og gekk heim
til sín hjálparlítið, en skömmu síðar
var hann örendur.
RIKLINGUR er nú seldur í Rvík
á kr. 1.60 kílóið; þá verður skip-
pundið af honum 256 kr. Hann verð-
ur líklega ekki á borðum daglauna-
manna í vetur á Þorranum, segir
Vísir.
“KONUNGSGLIMAN”. — Guðm.
Kamban las upp “Konungsglimu”
sína í Bárubúð fyrir fullu húsi. Upp-
lesturinn tók nærri 3 kl.tíma, með
þrem þriggja mínútna hvíldum. Ef
til vill hafa síðustu 3 mínúturnar
verið dálítið lengri en hinar, eins
og fimm minúturnar í skólanum,
sem alt af voru að smálengjast. En
þeir verða líklega færri, sem vilja
leika Kamban þetta eftir. Óhætt er
að fullyrða það, að áheyrendum hafi
þótt kveldinu vel varið. Hvernig les-
ið var, munu þó fáir hafa tekið eft-
ir; efni leiksins gagntók áheyrend-
urna svo, að þeir munu yfirleitt hafa
gefið meðferð lesarans á þvi lítinn
gaum. — Það má gjöra ráð fyrir, að
dómar verði nokkuð misjafnir um
“Konungsglímuna”; hún er ólík öllu
því sem eg hefi séð. “Eg hefi séð ást-
ina ganga afklædda á egghvössu
grjóti”, segir einn aðalmaður leiks-
ins, eða eitthvað á þá leið. Menn eru
því óvanir hér, að sjá afklæddar til-
finningar og getur því verið, að þeir
afneiti þessum tilfinningum i “Kon-
ungsglíinunni”. En al-íslenzkar eru
þær samt. Fjarstæður finnast kan-
ske í aukaatriðum, öfgar og smíðis-
gallar, en stórkostlegt listaverk er
“Konungsglíman” samt. — Ja — ef
Kamban hefði bara mátt vera að því,
þá efast eg ekkert um, að hann væri
orðinn sigurvegari í konungsglím-
unni.—(“Ra Va” í Vísi).
lækna gigtveika menn, hjartveika og
taugaveiklaða. — Að þessari lækn-
ingastofu er hin mesta framför, og
er eigi nema sanngjarnt, að fjárlaga-
r.efnd neðrideildar alþingis vill
veita alt að helming stofnkostnaðar-
ins við lækningastofu þessa.
MYNDASYNING þeirra ungfrú
Kristínar Jónsdóttur og Guðm. Thor
steinsson í Barnaskólanum er mjög
séleg. Eru þar sýndar um 60 myndir
eftir ungfrúna, eintóm málverk, og
flestalt landlagsmyndir; «rn rúm 100
eftir G. Th., málverk og teikningar.
Málverk ungfrúarinnar eru flestöll
úr Eyjafirði og Þingeyjarsýslu, og
virðist allmikill þróttur i þeim
mörgum og vafalausri orku lýsa þær
allar; en eigi hafa ókunnugir gjört
sér hugmynd um, að svo mikill
drungi hvíldi yfir Mývatnssveit og
málverk hennar bera með sér. —
Myndasýning G. Th. er fjölbreyti-
legri og léttara yfir myndum hans.
Og hann virðist fær að leika á ó-
venju marga strengi málaralistar-
innar.— (ísafold).
SILDARAFLI.—200,000 tunnur af
síld kváðu þegar aflaðar á Norður-
landi. ógrynni fjár þýðir það fyrir
sjávarútveg vorn með þvi síldverði,
sem nú er.
“ÍSLAND” — hið nýja skip Sam-
einaða félagsins er nýlega komið
til Reykjavíkur. Er það reisulegt
skip, álíkt í sjón og Botnía, en þrekn-
ara. Skipstjóri íslands er Assberg.
fsland er fyrsta erlent skip, sem vér
liöfum séð sýna hinum nýja íslenzka
fána þá kurteisi að veifa honum
Var hann efst á aftursiglu skipsins.
(ísafold).
PRESTKOSNING.— Sveinn Guð-
rnundsson, fyrverandi prestur í Goð-
dölum, var 10. ágúst kosinn prestur
í Árnesi með 32 atkv. Síra Ólafur
Stephensen fékk 30 atkv.
ÞORVALDUR PALSSON kom ný-
lega heim úr ferð sinni um Dan-
mörk og Svíþjóð og Þýzkaland. —
Hann gegnir nú læknisstörfum sín-
um sem áður.
LISTASYNINGAR.—Ríkarður Jóns
son hefir i Iðnskólanum sýningar á
ýmsum verkum sínum: högnum
myndum, mótuðum og útskornum,
teikningar o. fl. Þar er sýnd mynd
hans af Matthíasi Jochumssyni, er
Akureyringar hafa látið gjöra og
reist verður þar á áttatiu ára afmæli
skáldsins. Enn er þar önnur mynd,
er þeir hafa látið gjöra handa hesta-
vininum Schrader og sýnir hesta-
hæli hans á Akureyri.
flytja til landsins vinanda, sem ætl-
aður er til eldsneytis. Lyfsölum og
héraðslæknum skal og heimilt, að
flytja til landsins vínanda þann og
annað áfengi, sem læknar telja nauð
synlegt til lækninga. Enn skal smá-
skamtalæknum heimilt, að flytja frá
útlöndum smáskamtalyf með vin-
anda í, ef pöntun þeirra fylgja með-
mæli hlutaðeigandi lögreglustjóra
og sóknarprests. Að lokum skal pró-
föstum þjóðkyrkjunnar og forstöðu-
mönnum annara kyrkjudeilda heim-
ilt, að láta flytja frá útlöndum messu
vin, er nauðsynlegt sé til altaris-
göngu, þó í þvi sé meira af vínanda,
en 2)4 prósent að rúmmáli.
Um þessa breytingártillögu hafi
orðið snarpar umræður í efri deild,
við 2. og 3. umræðu. Magnús læknir
Pétursson skýrði frá i ræðu sinni,
að komin væru símskeyti frá 30
læknum utan Reykjavíkur um að-
stöðu þeirra við samþykt læknafé-
lags Rvíkur, þar sem farið er fram
á algjört frelsi lækna til að geta
fengið öll lyf i lyfjabúðum, þ. e.
einnig all skonar lækningavín. af
þessum 30 læknum tjáðu 3 sig mót-
fallna læknafélagssamþyktinni, en
27 læknar tjáðu sig samþykka henni.
Tveir læknar tóku loks fram ákveðn-
ar vintegundir, er þeir vildu hafa i
lyfjabúðum: Jón Jónsson á Blöndu-
ósi, er vill hafa tvær tegundir vins
(sherry og portvín) og Steingrimur
Matthíasson, er vill hafa rauðvín,
sherry og konjak. — í efri deild
urðu úrslitin loks þau, að breyting-
artillaga sú við bannlögin, sem prent
uð er hér að ofan var samþykt með
7 atkvæðum gegn 6.
STABFEST LÖG. Lög um heimild
fyrir landsstjórnina til ýmsra ráð-
stafana út af Norðurálfu ófriðnum
hafa verið staðfest af konungi 22.
ágúst; voru þau send honum til stað-
festingar símleiðis. — 13. grein lag-
anna er bannað að flytja út úr land-
inu mör og tólg, — en fyrir brot á
því ákvæði er engin refsing lögð
við i lögunum. Hve margir lögfræð-
ingar sitja nú á þingi?—(Vísir).
1 heild sinni hljóða lög þessi, eins
og þau eru prentuð i lögréttu, þann-
ig: —
1. gr. Sameinað alþingi kýs jafn-
skjótt og verða má, 5 manna nefnd,
til þess að vera landsstjórninni til
ráðaney.tis um ráðstafanir til að
tryggja landið gegn afleiðingum af
Norðurálfuófriðnum.
2. gr. 1 Þessum tilgangi heimilast
stjórninni, ef þörf gjörist: 1) Að
kaupa frá útlöndum fyrir landssjóðs
hönd hæfilegar birgðir af nauðsynja
vöru, svo sem korni, kolum, saltit
steinolíu, vélaoliu, veiðárfærum og
læknislyfjum o. s. frv. 2) Að verja
til slíkra kaupa handbæru fé lands-
sjóðs, er hann má missa frá lögmæt-
um útgjöldum. 3) Að taka ennfrem-
ur alt að 1 millión króna lán til
slíkra kaupa.
SALT VINSL U FÉLAG. — Eins og
kunnugt er hefir alþingi veitt hr.
Páli J. Torfasyni einkarétt til salt-
vinslu á íslandi. Hefir Páll verið er-
lendis nærri ár til að undirbúa stofn
un félags í þessu skyni. Er hann nú
kominn heim og skýrir svo frá, að
stofnað sé félag með 2)4 millíón kr.
höfuðstóli. Heitir félag þetta svo á
dönsku: “Islands Salt og kemiske
Fabrikker”, er hlutafélag og félags-
menn flestir danskir auðmenn. —
Verksvið félagsins á að verða fyrst
og freinst, að framleiða salt og þyk-
ir stofnanda félagsins áreiðanlegt,
að takast muni að minsta kosti að
framleiða alt það salt, sem vér ís-
lendingar nú þurfum á að halda og
nema muni 2)4 millión kr. samkv.
núgildandi verðlagi; en að hið nýja
félag muni geta sclt jafnmiklar birgð
ir fyrir einni millíón króna minna.
Auk þess er ætlun hins nýja félags,
að vinna olíu úr surtarbrandi, en
nota svo aftur tjöru og koke til að
búa til kol. Búist er við, að verk-
smiðja félagsins byrji störf sín næst-
komandi haust (1916).
LÆKNINGASTOFU — fyrir gigt
veika menn hefir Jón læknir Krist-
jánsson komið upp hér í bæ, með
öllum nýtízkuáhöldum. Hefir hann
fengið leyfi til að taka rafmagns-
straum frá rafmagnsstöð nýja póst-
hússins til þess að reka með ýms
rafmagnstæki, sem hann hefir pant-
tið frá útlöndum og notuð eru til að
Bjór f) rrir kunningja
w p [WRY 00 Lage ú r
Bjór sem þér þykir góður 1 merkur eöa pott hylkjum. F&an- legt hjá þelm sem þú kauplr af eVa hjá oss | E. L. Drewry, Ltd., Winnipeg.
“NYJA IDUNN”. — Árni Sveins-
son, áður kaupmaður á ísafirði, er
nú orðinn forstöðumaður klæða-
verksmijðunnar Nýja Iðunn i Rvík.
Kvöddu ísfirðinagr Árna og fjöl-
skyldu hans með samsæti sunnudag-
inn 28. júlí, en þar í kaupstaðnum
hafði hann þá verið 28 ár og af þeim
18 ár í bæjarstjórn.
NÝ IióK. — Kenslubók í flatamáls
fræði handa byrjendum. Eftir Hall-
dór Briem. Kostar í bandi 1 kr.
MANNALÁT.—Látin eru í Vífils-
staðahæli nýlega ungfrú Elín Jóns-
dóttir (frá Garðsauka), Stefán Guð-
mundsson (Einarssonar frá Hraun-
um) og Einar ó. Hólm, alt ungt fólk,
sem mikil eftirsjá er að. — 2. ágúst
andaðist Valgerður Þórarinsdóttir á
Möðrufelli í Eyjafirði, móðir Jóns
bónda þar, Guðrúnar konu Magnús-
ar kaupmanns á Grund og -þeirra
systkina. Hún var háöldruð kona,
rúmlega níræð og átti mörg barna-
börn á lífi.
Látin í Reykjavík Jóhanna Ein-
arsdóttir, móðir Guðm. Péturssonar
nuddlæknis.
Frú Björg Bjarnardóttir, kona
Finnboga kaupmanns Lárussonar í
Gerðum, andaðist að heimili þeirra
þann 9. júlí. Hún var fædd í Reykja-
vik 19. sept. 1875.
Dáin er á Landakotsspítalanum i
Reykjavík kveldið 2 3ágúst fröken
Anna Sigríður Arasen eftir þunga
legu. Hún var dóttir Ara Arasens,
læknis á Flugumýri í Skagafirði. —-
Anna Sigríður var grein kona og góð
og mikið gefin fyrir bækur.
Ukraine
Frá Alþingi.
BANNLAGARREYTING. — Þeir
| Karl Finnbogason, Magnús Péturs-
son, Karl Einarsson og Jón Þor-
kelsson flytja svofelda breytingar-
tillögu við bannlögin:
“Heimilt skal stjórnanda eða eig-
anda iðnaðarfyrirtækja, efnarann-
sóknarstofu, náttúrugripasafna eða
annara slíkra stofnana, að flytja frá
útlöndum vínanda og annað áfengi
til iðnþarfa og verklegra nota í
stofnuninni. Svo skal og heimilt að
3. gr. Landsstjórninni er og heim-
ilt að leggja bann að einhverju ley.ti
eða öllu vrð útflutningi eða sölu úr
landi á aðfluttum vörum, ef slíkt
skyldi reynast nauðsynlegt. Þó er
heimilt að birgja upp skip, er sigla
frá Islandi til næstu erlendrar hafn-
ar, sem það ætlar að koma á, svo og
fiskiskip meðan þau stunda fiski-
veiðar við ísland. — Á sama hátt
heimilast landsstjórninni að leggja
bann við útflutningi íslenzkra mat-
væla, ef ástæða er til að óttast mat-
vælaskort í landinu. — Bannað er
að flytja út úr landinu mör og tólg.
— Ennfremur má landsstjórnin, ef
almenningsþörf í einhverju bygðar-
lagi eða landinu í heild sinni kref-
ur, taka eignarnámi matvæli og
eldsneyti lijá kaupmönnum, fram-
leiðendum eða öðrum, gegn fullu
endurgjaldi. — Ennfremur heimil-
ast landsstjórninni, að leggja bann
við tilbúningi verzlunarvöru, sem
nauðsynleg matvæli eru notuð til, án
þess að verzlunarvaran sjálf geti tal-
ist til nauðsynjavöru.
4. gr. Landsstjórnin ákveður hvort
gjöra skuli framangreindar ráðstaf-
anir og hvenær, og svo á hvern hátt
skuli ráðstafa birgðum þeim, sem
keyptar kunna að verða samkvæmt
lögum þessum eða teknar eignar-
námi, og hvernig skuli selja þær.
5. gr. Landsstjórnin ákveður með
reglugjörð eða reglugjörðum, ef þörf
þykir, hvernig framkvæma skuli
ráðstafanir þær, er hún gjörir sam-
kvæmt lögum þessum, og má verja
til þess fé úr landssjóði, ef með
þarf. — Refsingar fyrir brot gegn
ráðstöfunum þeim, sem landsstjórn-
in gjörir með heimild 3. gr. laganna,
ákveður landsstjórnin á þann hátt,
sem henni þykir við eiga um leið
og hver ráðstöfun er gjörð. Lands-
stjórnin getur krafist þess, að við-
lögðum sektum, að einstakir menn
og félög gefi henni þær skýrslur um
birgðir af vörum og þörf á vissum
vörutegundum, er henni þykir þurfa
ti! að mynda sér álit um vöruþörf-
ina á hverjum tima.
6. gr. Lög þessi öðlast gildi þegar
í stað og gilda til loka næsta þings,
nema löggjafarvaldið gjöri aðrar
ráðstafanir.
1 nefndina til að starfa með'stjórn
inni samkvæmt lögum þessum kaus
alþingi: Jón Magnússon, Skúla
Thoroddsen, Svein Björnsson, Guð-
mund Björnsson og Jósef Björns-
son.
í umræðum þeim, sem fram fóru
í þinginu nokkru áður i sambandi
við kosning nefndar þessar, skýrði
ráðh. E. A. frá kosnaðinum við vest-
urför þeirra Olafs Johnson og Sv.
Björnssonar, varð hann alls rúmar
3700 kr., og mun það talsvert minna
en búist var við, segir ísafold.
FJÁRLÖGIN. Aðal hreinsunareldi
fjárlaganna er nú lokið, þ. e. 2. um-
ræðu í neðri deild. Umræður munu
hafa staðið nálega 28 kl.stundir, þar
af á mánudag um 14 klst., alt fram
til kl. 4 á þriðjudagsmorgun, og er
það talinn lengsti fundur í þingsögu
ís’ands. Alls voru fluttar 68 ræður.
Þessar fjárveitingar voru sam-
1 yktar: —
Jóni Kristjánssyni lækni veitt alt
að 3500 kr. til stofnsetningar gigt-
lækningastofu.
Til undirbúnings viðbótarbygg-
irgar við geðveikrahælið 5000 kr.
livort árið.
Hækkun Heilsuhælistillags upp í
35000 kr. á ári.
Til fjós- og hlöðubyggingar við
Heilsuhælið 5000 kr. fyrra árið.
Fjárveiting til Skagafjarðarbraut-
ar takmörkuð við árið 1916. Að veita
að eins fé fyrra árið til Stykkis-
hólmsvegar.
Til Jökulsárbrúar á Sólheimasandi
78000 kr. Brú á Austurós Héraðs-
vatna f. á. kr. 25000, móti 10000 kr.
úr sýslusjóði. Til brúar á Miðfjarð-
arós 7000 kr. seinna árili. Til brúar
á ólafsfjarðarós 1000 kr.
Til dragferju á Skjálfandafljóti
800 kr. seinna árið.
Til brúar á Ljá 3000 kr. fyrra
árið.
Stjórninni veitt vald til að fresta
simalagningu i brýnustu nauðsyn.
Til endurbóta á símakerfi Akur-
eyrar 9000 kr. fyrra árið.
Til Akranesvita veittar 7800 lcr. ár-
ið 1917 og til Bjarneyjarvita fyrra
árið 10700 kr.
Til útgáfu siglingarfræði á is-
Ienzku alt að 900 kr.
Til húsmæðrakenslu á Akureyri
1000 kr. (Jónínu Líndal) hvort árið
og til húsmæðrakenslu á Eyrarbakka
200 kr. hvort árið.
Samþykt að fella burtu 15000 kr.
liðinn hvort ár til að reisa barna-
skóla utan kaupstaða.
Utanfararstyrkur til Bj. Jakobs-
sonar 500 kr. fyrra árið til að kynna
sér útlendar íþróttir.
Hækkun á styrk til spjaldskrár-
samningar Landsbókasafns, úr 2000
upp i 2400 kr.
Lækkun á styrk til ljósmyndunar
og afrita islenzkra skjala í Khöfn úr
1500 niður í 1000 kr.
Að fella burtu 2000 kr. fjárveit-
ingu til aðgjörða á Þingvöllum.
Að nema burtu styrk til útgáfu
landsyfirréttardóma frá 1800 til
1873.
Fjárveiting 10000 kr. til að reisa
hús yfir listaverk Einars Jónssonar.
Til Steingr. Jónssonar til að Ijúka
iiámi í Khöfn 800 kr. fyrra árið.
Til Laufeyjar Valdimarsdóttur 600
kr. hvort árið til lúkningar námi.
Til Einars Hjaltested til að ljúka
söngnámi 3000 kr. fyrra árið.
Ritstyrkur til Boga Th. Melsted til
að rita íslendingasögu 800 kr. hvort
árið.
Styrkur til Jóhanns ættfræðings
til rannsóknar á guðsþakkafé o. fl.
600 kr. hvort árið.
Til dr. Guðinundar Finnbogason-
ar 3000 kr. hvort árið “til rannsókna
og tilrauna til þess að endurbæta
vinnubrögð í landinu”.
Til Ág.próf. Bjarnasonar 600 kr.
hvort ár til að ljúka sögu mannsand-
ans Hækkun á styrk dr. Helga Pét-
urss úr 1000 upp í 1800 kr.
Styrkur til Goodtemplarareglunn-
ar 1000 kr. árlega.
Að veita ekki meira en 20000 kr.
og að eins seinna árið til búnaðar-
félaga var samþykt.
Að fella burtu 18000 kr. fjárveit-
ing til járnbrautarstæðisrannsóknar
var einnig samþykt með 15 gegn 10
atkv.
Til að veita vatnaágangi frá Þverá
veittar 15000 kr.
Til dýralækningabókar alt að 900
krónur.
Til gerlarannsókna 1500 kr. hv.
ár og 600 kr. til áhaldakaupa.
Hækkun á launum Jóhanns hús-
gjörðarleiðbeinanda úr 1000 kr. upp
í 1500 kr.
Fjárveiting til Fiskifélags íslands
18000 kr. hvort árið, og einnig fjár-
veiting til erindsreka þess í útlönd-
um.
Hækkun á styrk til Heimilisiðnað-
arfélagsins úr 500 kr. upp í 10000
krónur.
Og hækkun á styrk til Ungmenna-
félagsins úr 1500 upp í 2500 kr.
Hækkun á kaupi umsjónarmanns
áfengiskaupa úr 600 upp í 900 kr.
Til þess að ryðja vör við Ingólfs-
höfða 5000 kr. seinna árið.
Til hafskipabryggju á Búðareyri
við Reyðarfjörð 5000 ,kr. seinna ár.
Til uppmælinga Borgarfjarðar og
Skógarnessinnsiglingar 5000 krónur
fyrra árið.
Til bátabryggju á Blönduósi alt að
1500 kr. fyrra árið.
Biðjið um nýja böggulinn.
Hér eftir fær kaupandi BLUE RIBBON TE f nýjum loft-
heldum tvöföldum böggli.
Þetta er hin langbezta og tryggasta aðferð að búa um te.
En aðeins stórkaupmenn geta notað hana, því hún út-
heimtar hin dýrustu verkfæri.
1 staðinn fyrir gamla blý-böggulinn—sem svo oft komu
smágöt'á og stundum rifnaði—höfum vér nú tvíþykkan,
rykheldan, loftheldan olíudúk og skotfæra pappa sterkan
Þetta til samans ver fullkomlega öllum hugsanlegum
skemdum.
Það er í fáum orðum sagt fullkominn umbúð á hinu
fullkomnasta tegrasi—
BLUE WBBON
TEA
Til bryggjugjörðar í Búðardal alt
að 2000 kr.
eða fangelsi, ef brot er stórvægilegt
eða ítrekað, og fer um mál út af
Eftirlaunaviðbót til Ásg. Blöndal
250 kr.
brotum þessum sem almenn lögreglu
mál.
Heiðurslaun til ekkna Torfa í
ólafsdal (360 kr.) og Þorgils gjall-
anda (200 kr.). Eftirlaun til Árna
pósts, Bjarna Ketilssonar pósts 300
kr. til hvors, og 150 kr. til Eggerts
Brandssonar sjóm.
Samþykt að veita styrk til skálda
og listamanna 12000 kr., er stjórn-
inni var falið að útbýta. En fjárlaga
riefndin tók það fram, að hún ætlist
til að þessi nýja skipun “verði eigi
til þess að svifta þá, sem um nokkur
ár hafa haft persónulega veiting fyr-
ir þessum styrk, áframhaldi þar af,
ef þeir verja sér að mestu til skáld-
skapar og listastarfsemi. Vill nefnd-
in hér með telja þá upp, og upphæð
þá, sem hver þeirra mætti treysta á:
Einar Hjörleifsson skáld 1200 kr.,
Valdimar Briem 800 kr., Guðmund-
ur Magnússon 1000 kr., Guðmundur
Guðmundsson 1000 kr., Guðmundur
Friðjónsson 600 kr., Einár Jónsson
myndasmiður 1500 kr.” Ennfremur
ætlast nefndin til að Ríkarði Jóns-
syni verði veittar 1000 til Rómaferð-
ar, og mælir einnig með styrknum
til Jóhanns skálds Sigurjónssonar
og Kristínar Jónsdóttur, til þess að
ljúka námi við listaskólann i Kaup-
mannahöfn.
LÖG AFGREIDI) FRÁ ALÞINGI.
—Eftirfarandi lög, sem stafa af hinu
mikla Norðurálfustriði, hafa verið
afgreidd frá alþingi: Um bann á út-
flutningi frá íslandi á vörum inn-
fluttum frá Brellandseyjum.
1. grein. Bannað skal að flytja út
frá íslandi vörur, hverju nafni sem
nefnast, er þangað eru fluttar frá
Bretlandseyjum. Tekur hann þetta til
hverrar þeirrar vöru, sem flutt er á
land á íslenzkri höfn eftir að lög
þessi öðlast gildi.
3. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.
(Þessar íslandsfréttir eru teknar
úr Vísi, Lögréttu og ísafold, sem út
komu í ágúst, en eru nýkomin hing-
að).
™§ DOMINION BANK
Horni Notre Dome og Sherbrooke
Street.
HöfubNtöU uppb............ $0,000,000
Varasjöbur ................$7,000,000
Allar eiífoir.............$78,000,000
Vér óskum eftir vit5skiftum verz-
lunarmanna og ábyrgjumst at5 gefa
þeim fullnægju. Sparisjót5sdeild vor
er sú stærsta sem nokkur banki hef-
ir í borginni.
íbúendur þessa hluta borgarinnar
óska at5 skifta vit5 stofnum sem þeir
vita at5 er algerlega trygg. Nafn
vort er fulltrygging óhlutleika.
Byrjit5 spari innlegg fyrir sjálfa
yt5ur, konu og börn.
W. M. HAMILTON, Ráísmaíur
FHONE GAHRY 3450
BrúkatSar saumavélar metS hæfl-
legju vertli; nýjar Singer vélar, fyrir
peninga út í hönd eöa til leigu.
Partar í allar tegundir af vélum;
aögjörö á öllum tegundum af Phon-
ographs 4 mjög lágu veröi.
J. E. BRYANS
531 SARGENT AVE.
Okkur vantar duglega "agenta” og
verksmala.
Þó er heimilt að byrgja upp skip,
er sigla frá íslandi til næstu er-
lendrar hafnar, sem það ætlar að
koma á, svo og fiskiskip, meðan þau
stunda fiskiveiðar við ísland og
leggja hér upp afla sinn.
Nú breytist ástandið svo, að stjórn
arráð íslands telur banns þessa ekki
þörf lengur, og er því þá heimilt að
létta banninu af með auglýsingu, að
einhverju leyti eða öllu.
2. gr. Brot gegn lögum þessum og
reglugjörðum þeim, sem út verða
gefnar samkvæmt lögunum, varða
sektum til landssjóðs alt að 5000 kr.
THE CANADA
STANDARD LOAN CO,
Abal Skrifatofa, Winnlpesr.
$100 SKULDABRÉF SELD
TU þæglnda þelm sem hafa smá upp
hæöir til þess aö kaupa, sér 1 hag.
Upplýsingar og vaxtahlutfall fst á
skrifstofunni.
J. C. KYLE, rftösmnhur
428 Maln Street. WUVNIPEG
Þegar þú þarfnast bygginga efni eða eldivið
D. D. Wood & Sons.
-------------------Limited--------------------
Verzla með sand, möl, mulin stein, kalk,
stein, lime, “Hardwall and Wood Fibre”
plastur, brendir tígulsteinar, eldaðar pípur,
sand steypu steinar, “Gips” rennustokkar,
“Drain tile,” harð og lin kol, eldivið og fl.
Talsími: Garry 2620 eða 3842
Skrifstofa: Horni Ross og Arlington St.