Heimskringla - 08.06.1916, Blaðsíða 2

Heimskringla - 08.06.1916, Blaðsíða 2
BLS 2. HEIMSKRINGLA. WINNIPEG, 8. JÚNÍ 1916. Kynblöndun óheppileg. Menn græða ekkert við t»að, að blanda saman tveimur kynstofn- um mjólkurgripa, og eru líkindin miklu meiri, að menn tapi við það heldur en græði. Og fyrir viðvan- inga eða fyrir hvern þann, sem ekki hefir fullkomna þekkingu á slikum hlutum.munu þeir hér um bil æfin- lega tapa, sem eru að blanda sam- an mjóikurgripum og þeim, sem til holda eru ætlaðir. Blaðið “Hoards Dairyman” segir söguna af ungum bónda, sem fór að búa fyrir 8 árum síðan, fullur af kappi og metnaði, og ætlaði nú að gýna, hvað hann gæti. Áform hans í fyrstu var það, að græða peninga á mjólkurbúi sínu. En nýlega mátti sjá auglýsingu í blaði einu þar í sveitinni um, að þessir gripir væru til sölu á búi hans: Níu Jersey kýr 7 Guernsey kýr, 4 Holstein kýr, 14 gripir af Jer- sey kynbiendingum og 6 ársgamlar kvígur af Jcrsey kyni, og einn 3. ára Sherthorn tarfur, sem vigtaði 1350 pund. Einnig átti að selja þarna öll áhöid mjólkurbúsins, hverju nafni sem nefnast. Bóndinn var að selja út, en í auglýsingunni var náttúr- lega ekki gefin ástæðan til þess, hvers vegna hann var að selja út. En átta árum áður hafði hann byrjað búskapinn fullur af kappi og áhuga og með nóga peninga og ætlaði að margfalda þá á mjólkur- búskapnum. Þarna byrjaði hann með öll þau beztu gripakyn og ætl- aði sér að blanda þeim svo saman, að hann græddi meira en nokkur bóndi annar. Þrjú voru mjólkur- kynin og fjórða kynið var hoida- kyn, Shorthorn-kynið. Bújörðin hans var góð; hann gat keypt sér allar vélar og verkfæri, sem gjörðu honum búskapinn svo léttan, sem hugsanlegt var og spöruðu honum vinnu og þar með peninga. Hann hafði ágætan markað skamt frá sér og gat selt alt með hæsta verði, sem hann hafði aflögu. Hann fór vei með gripi sína, gaf þeim vel og hirti þá vel, og leit vel eftir öllu á búinu. En gripahjörðin hans var ekki betri, heldur verri eftir 8 árin, en þegar hann byrjaði. Markaðurinn ákvað verðið, sem hann seldi kálf- ana sína fyrir. En kýrnar hans vildi enginn kaupa, og loksins varð hann að selja þær fyrir lítið verð til manna, sem slátruðu þeim til að sjóða þær niður; en til þess er oi't tekið lakara ruslið gripanna. Kvíg- urnar sínar lét hann vaxa upp og voru þær lakari tegund af kyn- blendingum, og þegar þær voru orðnar tveggja ára gamlar, þá voru þær búnar að éta upp meiri pen- inga í fóðri sínu, en þær voru sjálf- ar virði. Hann var sjálfur búinn að missa “móðinn”, sem menn segja og tapa öllum áhuga og trausti á sjálf- um sér; en hafði þó nógu mikið vit til þess, að hætta þessum búskap, sem hefði gjört hann að öreiga, ef hann hefði haldið áfram. Alt þetta kom náttúrlega af því, að hann hafði ekki næga þekkingu á því, sem hann ætlaði að gjöra að lffs- starfi sínu; hann hélt hann væri fleygur og fær, hvað búskapinn á- hrærði, en aðal undirstaðan undir búskapar þekkingunni var ekki til. Þannig fer ákaflega mörgum, sem hafa nasasjón af einni eða annari vísindagrein eða verki eða starfi, andlegu eða iíkamlegu; þeir halda, að þeir hljóti að geta gjört það eins og hver annar. En þegar til kast- anna kemur, hefir þeim kanske sézt yfir aðal atriðið, og alt fer í handa- skolum. Angora geitur. Það hefir komið spurning hér til vor um Angora geitur, hvort þær séu nokkrar til hér í Canada, og hvar menn geti fengið upplýsingar um þær. Vér höfum komist að því, að nokkrir hópar af Angora geitum séu til í British Columbia og í Al- berta. En Department of Agricul- ture í Ottawa getur óefað gefið mönnum upplýsingar um það og hverjir mennirnir eru, sem hafa geit- ur þessar. Og ritling um þær ný- prentaðan, geta menn fengið frían með því að skrifa til: Publication Branch Department of Agriculture, Ottawa. Geitur þessar cru kendar við borgina Angora í Litlu-Asíu, þar sem Rússar eru nú að iemja á Hund- tyrkjanum. Þær hafa lengi verið orðlagðar, þessar Angora geitur, og þykja beztu gripir. HERBERT QUICK MÓRAUÐA MCSIN. SVEITA-SAGA. □oc ViS viljum aS krökkunum okkar sé kent eitthvacS fallegt, og að þau fari í latínuskólann og síðan í há- skólann". "Og eg vil”, sagði Jim, “senda frá þessum skóla nemendur, sem betur eru undirbúnir æðri skóla, en áður hafa héðan komið, vegna þess að þeim hefir verið kent að hugsa og starfa. Þeir munu fara héð- an með það efst í huga, að hugsun og verk eigi að fylgjast að. Eru ekki krakkarnir þínir ánægðir í skólanum, Mrs. Pétursson?” “Eg vildi að fleiri foreldrar vildu koma”, sagði Jim, “á hvaða tíma dagsins sem væri”. “Eða nóttu til”, skaut Mrs. Bonnar að honum. “Eg hefi heyrt, að þú kennir jafnt um nótt sem daga, Jim”. Jim brosti góðlátlega. “Eg býst við, að við yfirstígum hinn vanabundna tíma, Mrs. Bonnar, því það virðist vera meira að gjöra en hægt er að komast yfir í skólatímanum. "Og hvaða rétt hefir þú”, hélt Mrs. Bonnar á- fram, “til að brenna eldivið sveitarinnar, og nota skólann og muni hans á öðrum tíma en þeim, sem þér er afskamtaður? Þó þetta reyndar varði mig ekki", flýtti hún sér til að bæta við, eins og hún hefði farið full-langt; "mér datt þetta svona í hug hinsvegar. Það, sem við komum hingað fyrir, er að mótmæla kenslu þinni eins og hún er. Alt þetta bjakstur með korn og hveiti, svín, kýr og þess hátt- ar á her ekki heima; krakkarnir eiga að læra það, sem venja er til að kent sé í barnaskólum . ‘‘Skólar eru til þess að undirbúa unglingana und- ir lífið. Er ekki svo, Mrs. Bonnar?" ‘‘Auðvitað get eg skilið”, hélt Mrs. Bonnar á- fram, “og aðrir eru mér samdóma, að auðveldara er fyrir mann, sem lengst af hefir verið vinnumað- ur, að kenna þau fræði, sem þeirri stétt eru tömust. en þau fræði, sem ber að kenna í skólum; en skorti hann þá bókmentun, sem kennari þarf að hafa, finst mér að sæmra væri, að hann gaefi verkið frá sér og gæfi reglulegum kennara tækifæri". “Hvað hefi eg vanrækt, Mrs. Bonnar?” spurði Jim ósköp rólega. Mrs. Bonnar var auðsjáanlega óviðbúin slíkri spurningu, því hana setti hljóða um stund; en Mrs. Pétursson tók þá upp sóknina meðan lagskona henn- ar var að jafna sig. “Við, sem höfum átt við örðugleika að stríða og unnið baki brotnu til þess að komast áfram, vilj- um að krökkunum okkar sé kent eitthvað það, sem gjörir þeim lífið auðveldara en okkur. Okkur líkar ekki, að krökkunum sé mestmegnis kent um vinnu og vinnubrögð. Við viljum eitthvað hærra en það”. “Mrs. Pétursson”, sagði Jim einlæglega; “við verðum fyrst að byggja á undirstöðunni: Að geta unnið fyrir sér er það fyrsta og hæsta”. “Hákon og eg munum sjá fyrir okkar fjölskyldu. “Eg sendi þau ekki í skóla til þess að skemta sér, Jim!” svaraði Mrs. Pétursson og kallaði hann með því nafninu, sem hann var bezt þektur undir. “Eg sendi þau hingað til þess að þau verði eitthvað meira en við foreldra garmarnir. Það er mark- miðið". “Þau verða meiri en foreldrarnir og meiri en kennarinn. Drengirnir verða að framtakssömum bændum og stelpurnar að duglegum bændakonum. Og þau verða hamingjusöm vegna þess að þau hafr í búskapnum meira svið starfsemi heilans, en lög- maðurinn, læknirinn og kaupmaðurinn hafa í sinni lífsköllun. Eg er að menta þau svo, að landbúskap- urinn komist á hærra stig, og á honum hvílir vel- megun lands og þjóðar”. “Gott! Ágætt!” sagði nú Mrs. Bonnar, sem aft- ur hafði náð sér að fullu. “Að þrælka mestan hluta æfi sinnar, og geta svo ekki komið krökkunum hærra í veröldinni en í bóndastöðu, það er í sann- leika framför!” og hún hló stuttan kuldahlátur. “Bændur og bóndakonur verða þau, hvað svo sem þið segið og gjörið — níutíu af hundraði hverju. Og af hinum tíu verða níu þénandi í bæjunum og óskandi af alhug, að vera komin aftur í sveit; en sa hundraðasti nær að komast til vegs í borginni. Eigum við að menta þessa 99 unglinga, svo að þeir verði að undirtyllum í bæjum og borgum, og að sá hundraðasti í stað þess að nota þá hina miklu hæfileika, sem Guð hefir honum gefið, hér í bygð- inni sinni —, noti þá í borginni og gjöri hana enn þá sterkari? Borgirnar hafa þegar reynst sveitun- um dýrar. Eigum við að reka kjarnann okkar þang- að og hjálpa til að gjöra þær voldugri?” Þær Mrs. Bonnar og Mrs. Pétursson vissu ekki, hvernig bezt var hægt að svara þessu, og gripu því til þagnarinnar; en Mrs. Bronson, sem hafði vtrið að athuga skólastofuna með nákvæmni, og hafði séð þar ritvélina, fræ-diskana og Babcock mjólkur- kannarann og aðra óskólalega hluti, benti nú á vegg- töfluna með reikningsdæmunum og stöfuninni. “Eru þessi orð tekin upp úr lesbókinni?” spurði hún hálf kuldalega. “Nei’ , var svar kennarans. "Þau eru tekin upp úr búnaðarblaði”. “Eru þessi reikningsdæmi tekin upp úr reiknings- bókinni?” “Nei”, svaraði Jim. "Dæmin höfum við búið f til. Við erum að reikna ábata og skaða af kúnum þínum, Mrs. Bronson”. “Ezra Bronson”, sagði Mrs. Bronson með stolt- keim í röddinni, “þarf engrar hjálpar með til að segja hvað sé góð kýr. Hann kunni að búa áður en þú fæddist”. “Sá þarf nú ekki hjálp! Hann, sem ætlar að láta Skjöldu verða gelda og fita hana til slátrunar, vegna þess hún er.ekki mikil mjólkurkýr; en Babcock mjólkurkannarinn sýnir hana að vera beztu rjóma- kúna, og gefa ágóða, þar sem þrjár kýr aðrar, sem betur mjólka, borga ekki fóðrið”. Sendinefndin var sem þrumulostin; en Tóni — því það var hann, sem þannig hafði talað ---- var sýnilega upp með sér af því, að geta þannig birt fyrir áheyrendum árangurinn, sem rannsókn á mjólk- urkúm Bronsons hafði gefið. “Newton, vertu ekki að blanda þér í viðræðu mína við kennarann!” sagði móðir hans í all-höst- um róm. “Vertu þá ekki að segja kennaranum, að pabbi viti, hvaða kýr séu góðar og hverjar slæmar. Það hefir sýnt sig hér svart á hvítu, að hann veit það ekki. Og ef einhver í þessari bygð vill fræðast um gildi kúa sinna, þá verður hann að koma hingað; og það segi eg ykkur, að það borgar sig fyrir þá að koma, ef þeir ætla sér að ábatast af rjómasölu. — Bíðið þið bara þangað til að við hötum gefið út skýrslur okar um kúahjarðir bændanna hérna!” Konunum kom þessi árás Tóna all-mjög á ó- vart, og fanst sem skarð væri komið í sókn þeirra. Sérstaklega var Mrs. Bronson í klípu. Hún var nú í fyrsta skifti þannig sett á æfinni, að heyra mannsvit af vörum sonar síns; og þó það gjörði hana hálft í hvoru upp með sér í aðra röndina, þá blandaðist sú tilfinning með sterkri löngun til að gefa honum rækilega hýðingu. Nefndin reis á fætur og var sér þess meðvitandi, að hún hafði beðið lægri hluta í röksemdum. Kýr, kýr!” sagði Mrs. Pétursson gremjulega. “Ef við látum þig, hr. Irvin, halda áfram kenslunni verða þær afleiðingarnar, að krakkarnir okkar vita ekkert nema um kýr, svín og hænsni, jarðveg, fræ og korntegundir. En hvar kemur menningin fram? Hvernig munu drengirnir okkar og stúlkurnar koma fyrir sjónir, þegar við erum þess megnug að flytja til borgarinnar ? Engin menning, ekkert menta- snið!” “Menning!” tók Jim upp eftir henni. “Þú veizt ekki, hvað þú ert að fara. Eftir tíu ár af skóla eins og eg vildi gefa ykkur, væri eg betri kennari og fengi að hafa vilja minn — mundi borgafólkið biðja um, að krakkarnir þess fengju að ganga á skól- ann til þess að læra sanna menningu, — menningu, sem uppfyllir kröfur 20. aldarinnar”. Vertu ekki að ómaka þig að hugsa um að taka á móti kaupstaða-krökkunum, Jim”, sagði Mrs. Bonnar háðslega; þú verður ekki kennari Woodruff skólans svo lengi”. Allan þenna tíma hafði fjallapilturinn staðið þegjandi út í horni og hlustað á það, sem fram fór. Nú gat hann ekki stilt sig lengur, kom fram á gólfið og tók til máls. Eg býst við, að það sé rangt af mér að segja nokkurun skapaðan hlut, vegna þess að við erum hér ókunnug og fátæk; en eg verð að leggja herra Jim liðsyrði; eg má til með það. Rekið hann ekki, hann hefir gjört meira fyrir okkur en nokkur annar í heiminum!” “Við hvað áttu?” spurði Mrs. Pétursson. “Eg á við það”, sagði Raymond, “að þegar hr. Jim fyrst byrjaði að tala u mskólann við okkur, vor- um við fátæk og fáfróð; enginn vildi af okkur vita, að við héldum, og við höfðum um ekkert að tala nema rangindi heimsins og óblíðu, óvini okkar og ódrenglyndi Iowa fólksins. Þið sjáið: Við skildum ekki ykkar vegi. En nú höfum við von, framtíðar- von, og vonina fengum við frá þessum skóla. Við náum að reisa við og komast áfram. Við erum að mentast. Við erum öll að læra að nota bækur. Litla systir mín verður eins góð og nokkur önnur. Lofið þið hr. Jim að vera við skólann, og eg vil hjálpa pabba að ná í bújörð, og við munum vinna og hugsa á sama tíma, og verða hamingjusöm!” IX. KAFLI. i T ■ ■ • > Á Jenný gjörir Jólaboð. Flokksforkólfarnir, sem smíða kjörseðlana, alt frá ríkisstjóra niður í hið smæsta sveitaembætti, sem kosið er til, skoðuðu vafalítið pólitisku plómuna sem féll í skaut ungfrú Jennýar Woodruff, úr Wood- ruff héraði, minstu og óálitlegustu plómuna á trénu; en það er þá alténd eitthvað varið í það, að hafa náð kosningu til opinberrar stöðu, ekki sízt þegar kjósendurnir eru á háu mentastigi, frá almennu sjón- armiði sagt, og dreifðir út um sex eða sjö hundruð fermílur af góðu amerísku landi. Að ná kosningu er því bæði upphefð og trausts-viðurkenning, eða að minsta kosti álíta þeir svo, sem kosningu ná. Jenný var skynsöm sveitastúlka, og þess vegna fyltist hún ekki hroka yfir þessari upphefð sinni; en þess var hún þó sér meðvitandi, er hún keyrði í Ford-bíl föð- ur síns, eftir hinum mjúku moldarvegum bygðarinn- ar, rétt fyrir Jólin, að þýðingarmeiri persóna var hún en áður. Veðrið var hressandi, þó það væri fremur svalt, og henni gekk vel að stjórna bifreiðinni, sem faðir hennar hafði boðist til að lána henni til að heim- sækja þá rúmt hundrað sveitaskóla, er voru í um- dæmi hennar. Og Jenný dró upp mynd af sjálfri sér í "huganum, sem hinni ríkjandi drotningu þessa litla kennarahóps. Hákoni Péturssyni þótti hún tilkomumikil, er þau mættust á veginum, hún í bifreiðinni og hann í eineykis-vagni sínum. Hún var bláeygð, með ljós- brúnt hár, nokkuð kringluleit, og hafði golan slegið roða yfir andlitið. Hún hafði stöðvað bifreiðina, er þau mættust, og heilsaði honum brosandi. "Er ekki pabbi elskulegur! Hann hefir boðist til að lána mér bifreiðina, þá eg heimæski skólana”, var hið fyrsta, sem hún sagði, eftir að kveðjur voru um garð gengnar. “Það er blessað og gott”, svaraði Hákon; það svarar þér tíma ekki svo lítinn. Eg vona þú látir sýsluna borga gasólinið”. “Ekki hafði eg nú hugsað út í það”, sagði Jenný. Allir hafa verið mér svo góðir og eg vil gefa eins vel °g þiggja”. "En, góða mín", sagði Hákon, “þú byrjar ekki að fá laun fyrri en í Janúarmánuði, og það er það eina, sem þú þiggur af okkur”. “En öll gæðin, vináttan og traustið, sem mér hefir verið sýnt, — er það ekki mikilsvirði? Þú veizt ekki, hvað eg er upp með mér af því. Allir þessir góðu menn, sem eg þekti ekkert áður, og all- ir þið hinir gömlu vinir mínir unnuð ósleitilega að kosningu minni, og ef það er ekki neins virði, þá veit eg ekki, hvað er það”. "Og þú veizt ekki, Jenný mín”, sagði Hákon, "hvað eg er upp með mér af því, að hafa í einu af embættum héraðsins stúlku, sem eg hafði í kjöltu minni, er hún var lítil". Áður fyrri, er Hákon var nýkominn til lands- ins, hafði hann verið vinnumaður hjá Woodruff of- fursta, og með kaupi því, sem hann fékk þar, hafði hann getað fest kaup í 80 ekra landspildu, og byrj- að þar síðan búskap sinn. Nú var hann orðinn auð- ugri maður en offurstinn, og ekki svo lítið upp með sér af velgengni sinni. Hann var Norðmaður, hægur og gætinn og hinn mesti eljumaður, og hafði áunn- ið sér hylli og virðingu sveitunga sinna. Sérstaklega höfðu stjórnmálamenn héraðsins mætur á honum. Áhrif hans voru ætíð 50 til 60 skandinaviskra at- kvæða virði. Flokksmaður var hann góður, og lét talsvert til sín taka í hreppa- og sýslupólitik. Og hér fanst honum gefast tækifæri til að neyta pólitiskra áhrifa. Jenný”, sagði hann, “þessi Jim Irvin þarf að skólast til”. Skólast til! Við hvað áttu?” ------Kaupið------- Heimskringlu Nýjir kaupendur fá tvær af eftirfylgjandi sögum f kaupbætir: — Hin ieyndardómsfullu skjöl. Bróðurdóttir amtmannsins. Hver var hún? Ljósvörðurinn. Ættaieinkennið . Forlagaleikurinn. Sylvia. Dolores ----Borgið---- Heimskringlu _____________ —

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.