Heimskringla - 03.08.1916, Blaðsíða 7
WINNIPEG, 3. ÁGÍJST 1916.
HEIMSKRINGLA.
BLé. 7.
Aðalfundur eimskipafél.
(Niðurlag).
skipafélagsins sökum anna og ým-
islegs annars.
Atkvæði féllu þannig: Árni Egg-
ertsson hlaut 6284 atkv., B. L. Bald-
winson 1167; auðir seðlar voru 168.
Lýsti fundarstjóri þvl Árna Egg-
ertsson kosinn úr flokki Yestur-
íslendinga.
Yoru þá tilnefndir af fundar-
mönnum átta manns úr flokki hlut-
hafa búsettra í Reykjavík (sjá síð-
ar f fundarskýrslunni).
Þá lýsti fundarstjóri, að meðan
upptalning færi fram á atkvæðum,
yrði teknir fyrir aðrir liðir dag-
skrárinnar, 6. liður o. s. frv.,
Tillögur um aukning hlutafjárins.
Sveinn Björnsson form. félags'ns
tók til máls og mælti með tillögu
stjórnarinnar á skjali 13 a., — sem
sé um, að auka hlutaféð upp í 2
milíónir kr., svohljóðandi:
“Tillaga um aukning hlutafjár-
ins: Frá félagsstjórninni: Pundur-
inn ákveður, að heimiia félagsstjórn
inni að auka hlutaféð upp í 2 milí-
ónir króna’’.
Borin undir atkvæði greind til-
laga stjórnarinnar og samþykt 1
einu hljóði.
Þá tekinn fyrir 7. liður dagskrár-
innar:
Heimild til aö láta byggja eða
kaupa skip.
Til máls tók Eggert Claessen, tal-
aði með tillögu stjórnarinnar á
skjali 13 a um aukning skipastóls-
ins, svohljóðandi:
“Tillaga um heimild til aukningar
skipastólsins. Frá félagsstjórninni:
Félagsstjórninni heimilast að láta
byggja eða kaupa 1 eða 2 milliianda
skip auk strandferðaskipa þeirra,
sein heimild var gefin á stofnfundi
til að láta byggja eða kaupa.”
Tillagan borin undir atkvæði og
samþykt í einu hljóði.
Tekinn fyrir 8. liður dagskrár-
innar:
Umræður og atkvæðagreidsla um
önnur mál, sem upp kunna að
verða borin.
Tekin til umræðu tiliaga um
hækkun flutningsgjalda frá Gísla
Sveinssyni, svohljóðandi:
“Tiilaga um hækkun flutnings-
gjalda Frá Gísla Sveinssyni yfirdóms
lögmanni: Fundurinn telur óhjá-
kvæmilegt og sjálfsagt, eins og nú
standa sakir. að stjórn Eimskipafé-
lagsins hagi flutningsgjöldum skip-
anna um sinn nokkuð eftir því, sem
önnur félög á Norðurlöndum gjöra
og hafa gjört, síðan er ófriðurinn
hófst. Gengur fundurinn að því vísu
að væntanlegur gróði af slíkri hækk
un flutningsgjaldanna leggist að
öllu leyti í varasjóð félagsins, svo að
það geti sem fyrst af sjálfsdáðum
aukið skipastól sinn og verði þann-
ig færara um, að haida uppi sigling-
um til hagsmuna fyrir alt iandið”.
Tók tiilögumaður fyrstur til máls
og talaði með tillögunni, en hún er
á framlögðu skjali 13 d.
Auk hans tóku til máls: Sveinn
Björnsson, Bjarni Jónsson frá Vogi,
B. H. Bjarnason. Jón Þorláksson,
Magnús Sigurðsson og Ragnar Ólafs
son.
Sumir tóku til máls oftar en einu
sinni. Ennfremur talaði (íunnlaug-
ur Magnússon úr Strandasýslu.
Þá borin upp rökstudd dagskrá,
er Jóh Þorláksson bar fram, svo-
hljóðandi:
“Með því að fundurinn felst á
stefnu þá um hækkun flutnings-
gjalda, sem kemur fram í skýrslu fé-
lagsstjórnarinnar, tekur fundurinn
fyrir næsta mál á dagskrá”.
(Stefha stjórnarinnar er sú, “að
hækka ekki flutningsgjöldin eftir
þvf, hvað mögulegt væri að nota sér
neyðarástand það, sem nú er um
skipakost og flutninga, heldur að
hækka þau smámsaman. og fara þá
að mestu eftir því sem þörfin krefur
vegna aukinna útgjalda til þess að
fyriftækið beri sig fjárhagslega.
Þessi tillaga var samþykt með öll-
um þorra atkvæða. Lýsti fundar-
stjóri þá, að tiliagan á 13 d kæmi
ekki undir atkvæði, þar sem dag-
skráin hefði verið samþykt.
Kom þá til umræðu tillaga um
útboð hlutafjáraukningar, frá Ó. G.
Eyjólfssyni ©. fl., á skjali 13 e.; svo-
hljóðandi: yos
“Um útboð á hlutafjáraukniitjf
Tiliaga til fundarsamþyktar á aðal-
fundi Eimskipafélags íslands 23.
júní 1916. Flutningsm.: Ö. G. Eyj-
ólfsson, Páll H.Gíslason, Jón Björns
son, Guðjón Björnsson. Einar Mark-
ússon, f. h. Kristínar Árnadóttur
Einar Markúson, Jón Brynjólfsson,
Natlian & Olsen, R. P. Leví, Harald-
ur Árnason, S. S. Svavars. — Fund-
urinn skorar á félagsstjórnina, að
bjóða ekki væntanlega aukning
hlutafjár út til þeirra Yestur-ls-
iendinga. sem ekki hafa staðið í
fullum skiíum með borgun hluta-
fjár til félagsins”.
Töluðu um hana Páll H. Gíslason
kaupmaður, Sveinn Björnsson, ó.
G. Eyjólfsson, Þórhallur Bjarnarson
biskup, Jón Þorláksson og Bene-
dikt Sveinsson.
Tillagan borin undir atkvæði og
feid með yfirgnæfandi atkvæða-
fjölda (6 greiddu atkvæði með til-
lögunni).
Fundarhlé því næst gefið frá kl.
8V2—9Vs. Hófst fundurinn aftur.
Lokið upptalningu atkvæða hinna
tilnefndu manna, er áður var getið,
eftir 4. lið dagskrárinnar.
Tilnefndir voru þessir:
Eggert Claessen með 7055 atkv.
Halldór Daníelsson ... — 5735 —
Thor Jensen — 4806 —
Garðar Gíslason — 4183 —
Jón Þorláksson — 3879 —
Jón Björnsson — 3448 —
Magnús Sigurðsson.... — 1437 —
Halldór Þorsteinsson — 1185 —
Næstir fengu atkvæði:
Páll H. Gíslason 976 —
Björn Kristjánsson. .. — 846 —
Sighvatur Bjarna.son — 707 —
Thor Jensen (Ólafur Thors sonur
hans fyrir lians hönd) og Magnús
Sigurðsson) neituðu að taka á móti
kosningu, ef þeir yrðu fyrir kjöri.
Komu þá f þeirra stað tilnefndir
með næstum atkvæðafjölda: Páli
H. Gíslason og Björn Kristjánsson,
er þó taldist undan kosningu.
Fór þá fram kosning um 4 af þess-
um 8 tilnefndu mönnum, í stjórn-
arnefnd féiagsins. Kosningu hlutu
þessir:
Eggert Claessen ... með 7415 atkv.
Halldór Daníelsson ... — 6156 —
Jón Þorláksson ...... — 4907 —
Halldór Þorsteinsson — 4747 —
Næstir fengu atkvæði:
Jón Björnsson ....... — 3236 —
Garðar Gíslason ..... — 3069 —
Þá var loks tekinn fyrir 5. liður
dagskrárinnar:
Kosinn endurskoðandi í staS þess,
er frá fer, samkv. hlutkesti, og einn
varaendurskoSandi.
Út var dreginn með hlutkesti end-
urskoðandi ó. G. Eyjólfsson kaup-
maður.
Kosning endurskoðanda fór þá
fram og hlaut kosningu (við skrif-
lega atkvæðagreiðslu): Ó. G. Eyj-
ólfsson með 2133 atkv. Næstur fékk
atkvæði: Þórður Sveinsson aðstoð-
armaður 1626 atkv.
Varaendurskoðandi var kosinn
(sömul. skriflega): Þórður Sveins-
son aðstoðarmaður með 2012 atkv.
Næstur fékk atkvæði: Richard
Torfason bankabókari 1222 atkv.
Fleira lá ekki fyrir fundinum.
Fundarbók upplesin og samþykt.
Fundi slitið.
Eggert Briem.
Gísli Sveinsson.
Franskur flugmaður
kemur til Berlin.
Flugmaður einn franskur flaug
frá Frakklandi yfir Þýzkaland, og
til Póllands; þar varð hann að
hleypa niður, en ætlaði til Rúss-
lands. Hann heitir Marchal og var
lieutenant. Þegar hann flaug yfir
Berlinarborg, lét hann falla niður
smápistla. og sagði að nú gætu Þjóð-
verjar séð að Frakkar gætu komið
fljúgandi og iátið rigna sprengivél-
um og dráptólum yfir borgina. Það-
an hélt hann au^tur, þangað til
hann kom yfir Ghelm eða Cholm,
austast á Suður-Póllandi. Einar 62
mílur voru þá eftir til hersveita
Rússa í Volhyníu. Alls hafði hann
þá flogið í einni lotu 807 mílur. En
er þangað kom bilaði eitthvað í vél-
inni og varð hann að hleypa til jarð-
ar og laga það. En áður hann gæti
risið aftur, komu Þýzkir og náðu
honum, og er hann fangi hjá þeim.
Þýzk launvígi á
Englandi.
Það hefir líú komið upp, að Þjóð-
verjar hafa verið að reyna sönni
brellurnar á Englandi eins og á
Frakklandi, þegar þeir áður en stríð
ið byrjaði hlóðu launvígi fyrir hin-
ar stærstu Krupp-byssur sinar við
St. Michiel, skamt suður frá Verdun.
Þóttust vera að grafa kjailara þar;
en þegar stríðið kom, þá var það
vigi eða virki fyrir falibyssur, sem
réðu landinu 25 mílur unvhverfis
á allar hliðar, og þessu vigi halda
þeir enn.
En núna var þetta mál borið upp
í þingi Breta á Englandi. Watson
Rutherford þinginaður gjörði fyrir-
spurn um það.
Það var 12 milur suður af Lund-
únum, sein menn fundu kjallara
grafinn og steyptan í konkrít á
lystigarði einum, og var þar vígi nóg
fyrir 5 hinar stærstu falibyssur, sem
Þjóðverjar hafa. Og eru þær svo
settar, að þær ráða leiðum öllum
þar inn til Lundúna og þaðan mætti
brjóta stórmikið af Lundúna borg.
Þessa eign hafði átt Ameríkumaður
af þýzkum ættum og var kallaður:
“Captain”, og hefir því hermaður
verið. Þar var og mótorvagn með 80
hesta afli og lukt (searchlight) með
500 ljósa a.fli. Vestur af Lundúnum
hafði annaV lystigarður fundist með
virkjum og básum fyrir stórar fall-
bygsur. Þenna garð átti lika maður
af þýzkum ættum.
Þetta kom flatt upp á menn og
urðu margir órólegir; enda hefir
þetta ekki að ófyrirsynju gjört ver-
ið. Þjöðverjar hafa treyst því, hvað
Bretar eru grunlausir, og ætlað að
hafa þetta alt undirbúið, þegar á
þyrfti að halda. En nu verður farið
að líta eftir þessu.
Kósakkar ráðast naktir á Austur-
ríkismenn.
« ---------
Sem dæmi upp á hveysti Kósakk-
anna má geta þess, að þegar Rússar
voru að berjast við Dniesterfljótið,
norður af Czernovitz, þá þurftu
Rússar að ráðast yfir fljótið. Engin
var brúin og bátar ekki við hendi,
en fljótið var breitt og nokkuð
straumþungt. Hafa Austurríkis-
menn víst talið það með öllu ófært.
En Kósakkarnir héldu annað. Heil-
ar hersveitir þeirra fóru úr hverri
spjör og höfðu ekkert með sér nema
rifflana sína. Síðan stukku þeir út í
fljótið og syntu yfir, og þegar upp á
bakkann kom, þá runnu þeir á
harða hlaupi á skotgrafir Austur-
ríkismanna með byssustingina fram
undan sér. Austurríkismenn komu
því ekki einu sinni við að flýja, og
þeir, sem ekki lágu dauðir í gröfun-
um„ þeir urðu að gefast úpp. Tóku
Rússar þar'öll vopn og skotfæri og
héldu gröfunum þangað til meiri
styrkur félaga þeirra kom yfir - til
þeirra.
MARKET HOTEL
140 I*rlnoes» Stréet
á móti markaíinum
Bestu vínföng, vindlar og at5-
hlyning góC. íslenkur veitinga-
matSur N. Halldórsson, leiCbein-
ir Islendingum.
P. O’CONNEL, Eigandi Wlnnlpeg
GISLI GOODMAN
TINSMIÐUR.
Verkstœbi:—Horiti Toronto St. og
Notre Dame Ave.
Phone Heintllis
Gnrry 20SS Garry SÐO
J. J. B/LDFELL
FASTEIGNASALI.
Unlon Ilnnk .%th. Floor No. 520
Selur hús og ló?5ir, og annaö þar atl
lútandi. Útvegar peningalán o.fl.
I'lione Mnln 20S5.
PAUL BJARNASON
PASTBIGNASAI.I.
Selur elds, lífs, og slysaábyrgti og
útvegar peningalán.
WYNYARD, - SASK.
------Kaupið-------
Heimskringlu
Nýjir kaupendur fá tvær af eftirfylgjandi sögum
í kaupbætir: —
Hin leyndardómsfullu skjöl.
Bróðurdóttir amtmannsins.
Ilver var hún?
Ljósvörðurinn.
Ættareinkennið .
ForlagaleiKurinn.
Sylvia.
Dolores
----Borgið---
Heimskringlu
J. J. Swanson H. Q. Hlnrlksson
J. J. SWANSON & CO.
FASTEIGNASALAR OO
penlnga mlVlar.
Talsími Maln 2597
Cor. Portage and Garry, Winnlpeg
Graham, Hannesson & McTavish
LÖGFRÆÐINGAR.
215—216—217 CURRIE BUILDING
Phone Main 3142 WIXMPEG
Arni Anderson E. P. Garland
GARLAND& ANDERSON
LÖGFRÆÐINGAR,
Phone Maln 1661
101 Electrie Railway Chambera.
Talsími: Main 5302.
Dr. J. G. Snidal
TANNLÆKNIR.
614 SOMERSET BLK.
Portage Avenue. WINNIPEG
Dr. G. J. Gis/ason
l'hyMÍelnn nnd Surgeon
Athygli veitt Augna, tíyrna og
Kverka Sjúkdómum. Ásamt
innvortis sjúkdómum og upp-
skuröi.
18 South 3rd St., Grnnd F«»r!rn, X.D.
B0RÐVIÐUR MOULDINGS.
t
ViS höfum fullkomnar byrgSir
al öllum tegundum.
VerSskrá verður send hverjum, sem
aeskir bess.
i
THE EMPIRE SASH & DOOR CO., LTD.
Henry Ave. East, Winnipeg, Man., Telephone: Main 2511
Dr. J. Stefánsson
4(11 BOVD BUIL.DING
Horni Portage Ave. og Edmonton St.
Stundar eingöngu augna, eyrna,
nef og kverka-sjúkdóma. Er alí hitta
frá kl. 10 tll 12 f.h. og kl. 2 til 5 e.h.
Phone:. Main 3088.
Heimili: 106 Olivia St. Tals. G. 2315
Vér höfum fuliar blrghlr hretn- V
ustu lyfja og metala. KomitS Á
meí lyfseCla ySar hingatS, vér f
gerum meSuIin nákvæmlega eftir A
ávísan læknisins. Vér sinnum T
utansveita pöntunum og seljum /
giftingaleyfi. : : : : “
COLCLEUGH & CO. *
Notre Datne A Sherhrooke Stn. f
Phone C.arry 2690—2691 \
223. Canadian
A. S. BAROAL
selur líkkistur og nnnast um út- ]
farir. Allur útbúnaöur sá besli.
Ennfremur selur hann allskonar
minnisvarða og legsteina. : :
813 SHERBROOKE ST.
Pnone G. 2152 WINNIPEC.
Scandinavian
Overseas Battalion
Lieut.-Col. Albrechtsen O.C.
HEADQUARTERS: 1004 Union Trust Bldg., Winnioeg
Æðrijog lægri foringjar og hermenn verða Scandinavar
Sveitina vantar hermenn. Skrifið yður í hana.
ÁGRIP AF REGLUGJöRÐ um
heimilisréttarlönd í Canada
og Norðvesturlandipu.
Hver, eem hefir fyrir fjölskyldu aB
Já eöur karlmaíur eldri en 18 ára, get-
ur tekiö heimilisrétt á fjóröung úr
iiection af óteknu stjórnarlandi í Mani-
toba, Saskatchew’an og Alberta. Um-
sæk.iandi eröur s>álfur at5 koma á
landskrifstofu stjórnarinnar, e$a und-
lrskrifstofu hennar í þvi hérabi. 1 um-
bo<5i annars má taka land á ölium
landskrifstofum stjórnarinnar (en ekkl
á undlr skrifstofum) met5 vissum skil-
yrbum.
SKYLDl'R t—Sex mánaba ábút5 og
ræktun landsins á hverju af þremur
árum. Landnemi má búa með vissum
skilyrtSum innan 9 mílna frá heimilis-
réttarlandi sínu, á landi sem ekki er
minna en 80 ekrur. Sæmilegt íveru-
hús verbur at5 byggja, at5 undanteknu
þegar ábúbarskyldurnar eru fullnægt5-
ar innan 9 mflna fjarlægö á öt5ru landi,
eins og fyr er frá greint.
Búpening má hafa á landlnu í
stat5 ræktunar undir vissum skilyróutn.
1 vissum hérutium getur gót5ur og
efnilegur landnemi fengit5 Xorkaups-
rétt, á fjórtSungi sectionar met5fram
landi sínu. Vert5 $3.00 fyrir ekru hverja
SKYLDI’Rj—Sex mánaía ábút5 á
hverju hinna næstu þriggja ára eftir
at5 hann hefir unnit5 sér inn eignar-
bréf fyrir heimilisréttarlandi sínu, og
auk þess ræktat5 50 ekrur á hinu seinna
landi. Porkaupsréttarbréf getur land-
nemi fengit5 um leitS og hann tekur
heimilisréttarbréfit5, en þó met5 vissum
skilyrt5um. +f
Landnemi sem eytt hefur heimilis-
rétti sfnum, getur fengiö heimilisrétt-
arland keypt í vissum hérut5um. Vert5
$3.00 fyrir hverja ekru. sivVliDUIt:—
Vert5ur at5 sitja á landinu 6 mánut5i af
hverju af þremur næstu árum, rækta
50 ekrur og reisa hús á landinu, sem er
$300.00 virt5i.
W. W. CORY,
Deputy Minister of the Interlor.
Bföt5, sem flytja. þessa auglýsingu
leyfislau'st fá enga borgun fyrir.