Heimskringla - 07.06.1917, Page 2

Heimskringla - 07.06.1917, Page 2
2. BLAÐ8ÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 7. JÚNI 1917 Keisaravaldið þýzka Erindi flutt í TjaldbúSarkirkju á sumardaginn fyrsta 19. ap. 1917 Eftir síra F. J. Bergmann. (Framh.) 9. Friðrik Vilhjálmur I. 1713—1740. Sonur Friðriks I., Friðrik Vil- hjálmur I., tók við konungdómi 25. febrúar 1713. Hann var að líkiind- um sá óVenjulegasti konungur, sem nokkuru sinni hefir setið f hásæti. Hann var ólíkur föður sínum, að minstsa kosti, og ólíkur öllum kon- ungum, sem uppi voru í heimin- um, honum samtímis. Faðir hans hafð i verið prjálgjarn eyðslubelg- ur. Friðrik Vilhjálmur var per- sónugerfing sparseminnar. Hann var nirfill svo mikill, að hann tímdi hvorki sjálfur að eta, né heldur að láta hirðfólk sitt lifa við sæmilegt viðurværi. Lundillur var hann með afbrigðum og varð afar-reiður hrað lítið, sem út af bar. Hann lúbarði háa og lága, skylda og vandalausa, er f kring um hann vdru, begar svo bar undir. Við hann voru flestir lafhræddir; þeir voru ekki nema fremur fáir, sem höfðu í sér hug og kjark til að mæta honum á förnum vegi. Lögðu menn íremur langa lykkju á leið sína, en að eig>a það á hættunni að mæta konungi. Er hann mætti konum á stræt- um úti, skipaði hann þeim að fara heim til síh og hugsa fremur um karl sinn og krakka, en að vera >að flækjast á almananfæri. Mönnum varð starsýnt á heræfingar á þeim dögum ekki síður en nú. Bar það þá stundum við, að jafnvcl prest- um og prúðmennum varð það að augnagamni að standa og horfa á heræfingarnar. En þá kom kon- ungur, æfur og uppvægur, og rak þá heim til sín harðri hendi. Einkum hélt hann, að prestum stæði nær, að hugsa um bækur sínar og bænagjörðir. Oft og ein- att löðrungaði hann þá um leið. Sjálfur mátti h>ann heita með öllu ómentaður maður. Vísindum og vísindamönnum hafði hann mestu skömm á, enda þreifst hvorugt undir handarjaðri hans. Friðrik Vilhjálmur var kvongað- ur eins og lög gera ráð fyrir um koinunga, og hét drotning hans Sofía. Var hún systir Georgs II., konungs á Englandi. Friðrik Vil- hjálmur var konu sinni illur og erfiður í viðbúð, eins og öllum öðrum. Hann sat á henni með öllu móti, svo hún hafði ekki einu sinni eins mikil ráð og sjálfsagt er að hver kona hafi. Harður var Frið- rik Vilhjálmur þegnum sínum öll- um og oft næsta grimmur. En harðastur, — lang-harðastur — var hann við konu sína og börn. Eigi kom harkan sízt miður á syni hans, krónprinzinum Friðriki, og systur hans Vilhelmínu. Aila svo-nefnda vantrúaða menn hataði Friðrik Vilhjálmur heilu hatri. Heimspekingum hafði hann mestu skömm á og öllum katólsk- um mönnum sömuleiðis. Son sinn krónprinzinn, grunaði hann um trúvillu og skoðaði heilaga skyldu sína sem sannkristins íöður, að taka feikilegia hart á. Sonur hans Friðrik hafði miklar mætur á frakkneskri tungu og bókmentum. En faðir hans áleit það hvort- tveggja herfiiegan vantrúar-miðil. Lét hann því sviftia son sinn öllum friakkneskum bókum. Friðrik kon- ungsson var hneigður til hljóm- listar og hafði yndi af að leika fög- ur lög á hljóðpípu. Faðir hans lét brjóta hljóðpfpuna, barði hann mörgum höggum og þungum og dró hann fram og aftur á hárinu um hallargólfið. Þegar konungi þótti prinzinn eitthvað vinna til saka, var hann settur á vatn og brauð um iengri eða skemri tíma eftir ástæðum. Einu sinni bar það til, að kon- unigur ætlaði hreint og beint sjálf- ur að hengja son sinn. Af þessari meðferð varð prinzinn beizkur og harðgeðja í garð föður síns, eins og heldur vaT ekki nein furða. Ætl- aði hann að forða sér með því að fiýja til frænda sinna á Englandi. En íaðir hans hafði augun alls staðar og fekk njósnir af. Nokk- urir vinir konungssonar voru í vitorði með honum. Einn þeirra var dæmdur til lffiáts og tekinn af sem glæpamaður. Annar fekk forðað lífi sínu með flótta. Sjálfur var Friðrik settur f fangelsi og dæmdur til dauða. En keisarinn ejálfur og konungiar í ýmsum lönd- um gengu í milli og báðu prinzin- um griða. Lét Friðrik Vilhjálmur tilieiðast, að láta so<n sinn iífi halda. Langa hríð varð hann samt að sitja í fangelsi; var hann að einu leytinu ásáttur með það. 1 fangelsinu hafði hann viðunanlegt fæði, sem langt tók tram vistinni í föðurgarði. Honum var þar leyft að leika á hljóðpípu sfna og lesa frakkneskar bækur. Sjálfur unni Friðrik Vilhjálmur sér fárra skemtana eða nautna. Samt reykti hann feikilega mikið tóbak, drakk sænskt öl, spilaði Tokkodille spil, sem þá var títt, og gekk á akurhænsa veiðar. Konungur þessi, er mannkyns- sagan geymir þessa lýsingu af sem manni, var persónugerfing spar- semi og fjármálaráövendni. Ung- ur kom hann auga á fáeiniar meg- inreglur, sem hann vildi beita allri stjórnmálaorku sinni til að fá fram fylgt. Hann hafði skömm á vana- lelgu tildri konungstignarinnar. Hins vegar var hann gæddur stjórnarhæfileikum, sem ekki er nema fáum gefnir. Hann var mað- ur sérlega nákvæmur f hverjum hlut og vandvirkur, áistundunar- samur og ákveðinn í að fylgja því fast fram, er hann eitt sinn hafði einsett sér. Helztu meginreglur hans voru þessar: öll eyðslusemi við hirðina er ekki annað en hlægileg heimska. í heiminum eru öll völd veigalaus, nama vald sverðsins. . Enginn til- kostnaður til ríkishensins er of mikill. Tilkostnaður til nokkurs annars, sem nokkuru munar, er nær því ófyrirgefanlegur. Skiiyrð- islaus hlýðni er sjálfsögð dygð í fiari allra, nema konungsins; hon- um verður að hlýða. Helzta dygð f fari konungsins er sf-brennandi áhugi um að auka vald ríkisins. Friðrik Viihjálm brast ekki vilj- ann til valda. En í trúarjátning Prússlands á vorum'dögum er það aðal-einkunn ofurmennis. Hann var á eftir tfmanum í flestu, sem að stjórnmálum lýtur, neroa fjárhagshugmyndum sínum. Þar var hanin að sumu leyti marg- ar aldir á undan tfmanum, eftir því sem margir ætla. Það var tvent, sem hann lagði alla aðal- áherzluna á. Annað var, að hriiga saman fé í féhirzlu ríkisins. Hitt var, að koma upp voldugum her. Hvorttveggja stóð f nákvæmu «am- bandi hvað við annað. Konung- urinn hugsaði sem svo: 1 stríðum er sigur unninn, ekki af herfyik- ingum, heldur af þjóðum. Hermenn eru vopn, áhöld, sem þjóðir berjast með. Herafli, sem borinn er af iðni, búsæld og ströngustu stjórn- arsparsemi, er grundvöllur alls kon- ungsvaldis, sem ahnað er en nafn- ið tómt. Forsjónin hafði geri hann að konungi í fátæku landi. Jarðveg- ur var livarvetna grunmur og frem- ur ófrjór. Landið var á eftir ná- grannalöndunum í iðnaði og verzl- an. Voldugir óvinir umkringdu ]>að á alla vegu. Landslag gerði vörn landsins erfiða öllu megin. Annars vegar var hið volduga Frakkland. Það var þá voldug- asta stórveldið á meginlandi Norð- urálfu. Það var frjósamt land, auðugt, fult alls konar búsæld, langt á undan í öllum iðnaðar- greinum. Auðlegðar og frægðar- ljóma lagði af hirðinni frakknesku víðs vegar út um löndin. Hinum megin Prússia var Austurríki, — fuit járnhörku og ofurdrambs. Var eigi Prússland eins og kornbnefi á milli tveggja kvarnarsteina? Til þess að bjarga landinu, varð konungur Prússia um fram alt að vera faðir þjóðar sinnar. Sízt af öllu mátti hann auka fjárhags- byrðar fátækrar þjóðar. Með stjórniarfé skyldi farið jafn-sparlega og hina litiu fjármuni þess heimil- is I landinu, er bezt kynni með að fara. Konungpr átti að sjá um, að hver uppskera yrði að sem bezt- um notum. Mýrlendi átti hann að sjá um, að þurkuð yrði upp, ónýt lönd gerð að yrktum ekrum. Þeg- ar fólk væri á eftir í einni sveit, þyrfti að senda þangað bændur úr öðrum sveitum og láta þá kenna út frá sér og vera til fyrirmyndar. I hernum skyldi engum þokað upp, nema þeim, sem unnið hefði til. Friðrik Vilhjálmur rak hirðfólk föður sfns alt úr þjónustu sinni um leið og hann kom til valda, — svo sem hálfri klukkustundu eftir að karl var dauður. Hann hafði upp úr þvf eina þrjá skósveina f þjónustu sinni og galt þeim tíu daii á mánuði, án fæðis. Faðir hans hafði haldið eitt þúsund ridd- araliðs. Friðrik Vilhjálmur lét sér nægja 30 manns. Gimsteina hirð- arinnar seldi hann til þess að gjalda með kostnaðinn við eina herdeild og greiða skuidir. Hann greiddi toli af þeim vörum, sem hann keypti sjálfur og breytti í þvf efni samkvæmt þeim kröfum, sem hann gerði til auvirðilegasta þegnsins. Skoðan hans var sú, að konung- ur ætti að vera fyrirmynd þjóðar sinnar í dugnaði. Klukkan fimm á hverjum morgni var hann seztur við skriiborð eitt, til að yfirfara reikninga rfkisins. Hann fann upp ]>á regiu, að ávalt skyldi fyrir fram áætlan ger um öll útgjöld ríkisins. Engin útgjöid skyldi eiga sér stað án áætlunar fyrir fram. í>ó em- bættismaður hefði ekki verið nema einn dag frá störfum sínuin á sex mánuðum, dró hann það sem því svaraði af kiaupinu. Hið eina, s4ém Friðrik Vilhjálmi var ánægja að eyða fé til, var her- inn. Honuin l>ótti alls ekki nægi- legt, að hermenn hans væri á vöxt eins og hermenn annarna landa. Hann vildi eignast her, sem tæki fram öllu, er heimurinn hefði áður séð í þetrn efnum. Erindrekar hans voru hvarvetna 1 förum, til að ná í þá menn, sem stærstir voru vexti á hverjum stað. Hvaðan úr véröld sem þeir voru, lét hann sig engu skifta. Enda fekk hann her- menn austan úr Asíu, frá Egipta- landi og hvaðanæfa úr Norður- álfu. Hann keypti þá dýrum dóm- um. Og er hann gat ekki fengið þá til kaups, lét hann beint stela þeim, — taka þá með einhverjum ofbeldisbrögðum. Enginn reglu- lega stórvaxinn maður hafði frið á sér, ekki einu sinni prestar. Hann lét ræna'þeim úr átthögum þeirra og kippa þeim úr embættisstöðum þeirra. Þessum risavöxnu mönnum skip- aði hann f sérstaka herdeild. Þanin, sem mestur var risinn og sagt er að heitið hafi Hómann, lét hann ávalt standa yztan í öðrum fylk- ingararmi. Hann á að hafa verið svo hár, að mælt er, að Ágúst II. Pólverja koinungur, sem kallaður var hinn sterki, og ekki þótti neitt smámenni, segði hann seiling sína. Herlið sitt lét hann vera á stöð- ugum æfingum. Enda var það miklu betur æft, en nokkurt herlið annað', sem þá viar til. Það var Friðrik Yilhjálmur, sem beint kveikti hermenskuandann í Prússum og skapaði hervaldið. En það verður hann að eiga, að hiann notaði her sinn aidrei til neinna hermdarverka. Her sinn átti hann eins og hvert annað leikfang. Hann þóttist sannfærður um, að meiri virðing yrði borin fyrir Prússum fyrir bragðið. Var eigi laust við, að dregið væri dár lað honum fyrir. Her hans var 90,000 að stærð, enda töldu þegnar hans þá ekki fleiri en 2,500,000 manns. Frakkland og Austurríki voru einu löndin, sem stærra herlið höfðu en Prússar. En bæði voru þau lönd miklu fólksfleiri. 10. Upphaf hervaldsins. Hervalds hugsjónin prússneska varð til á ríkisárum Friðriks Vil- hjálms. Með útlendu orði er hún nefnd militarismi. Hún lítur ekki svo á, að ætlunarverk hersins sé að vera ríkinu til verndar. En leynt og ljóst er kjarni þeirrar hug- arstefnu sá, að tilveru markmið ríkisins sé í insta eðli frægð þers- ins og fullveldi. Friðrik Vilhjálmur var kallaður heræfingameistarinn, og hafði sannarlega tii þess auk- nefnis unnið. Herinn var hjáguð hans. Upp af þeim vísi spratt herviald- ið, sem nú ógnar heiminum. Svona mikil hætta er í því fólgin að leika sér með voðann. Herinn prússneski veitti Prúss-. landi meira álit og sterkari áhrif út á við, en stærð landsins og fólksfjöldi gaf tilefni til. Samt var þessu ekki tekið með þeirri alvöru- gefni, sem skyldi, í Nórðurálfu. Þótti fremur vottur sérvizku og vera beint til athlægis. Prússneska hervaldið varð ekki hættulegt Norðurálfu friðnum, fyrr en vald- hafar Prússlands bættu við trúar- játningu þess. Þó þtað væri skoð- an Friðriks Vilhjálms, að rfkið sé til vegna hersins, kom hann aldrei fram með kenninguna um, að her- inn sé til til árása. Það var síðari kynslóðum geymt að korma fram með tuttugustu ald- ar kenninguna um, "að ríkið sé til vegna hersins, og að herinn sé til til árása.” Hugsjón Friðriks Vilhjábns var, að herinn væri fullkomin vél, hver einasta herdeild og herinn allur í heild. Hermanninum var kent iað vera stolz af einkennisbúningi sín- um. Honum var kent að krefjast viðurkenningar um, að vera æðri mamnvera en algenglr borgarar. Um leið hafði konungur þann metnað, að eignast sem flest verk- ieg tæki til fullkomnunar her- menskunni, og fyrir þvf notaði hann fyrstur manna hieðslustokk- inn. Sonur hans, Friðrik mikli, veitti því eftirtekt, að hieðsiu- stokkurinn hafði aukið skothraðia prússneska liðsins um helming. Listir og bókmentir lítilsvirti Friðrik Vilhjálmur um fram alt annað. En einhvern veginn hafði hann náð í ofurlítiC brot úr forn- um fræðum eftir Xenofon, sem honum virtist nógu mikil verk- hygni felast f, til þess vert væri að munia. Persneska hetjan setur jarðyrkjuna á borð við hermensk- una. Fyrir því lét Friðrik Vil- hjálmur það vera eina af stjórnar- reglum sínum, að þrýsta þjóð sinni til að framleiða lallar lífsnauðsyn- jar. Annað kærði hann sig ekki um. Skraut og munaður vor honum við- urstygð. Erlendum varningi leit- aðist hann við að boLa út úr iand- inu, eins og honum var framast unt. Vakinn og sofinn hugsaði hann um velferð þegna sinna, eft- ir því sem hann hafði bezt vit á. En skilningur hans á þjóðarheill og þjóðarvelferð var feikiiega þröngur og nærsýnn. Hann hafði eitthvert hugboð um, að hann brysti eitthvað á við aðra samtímismenn sína, er fyrir framan voru um örlög þjóðanna. Fyrir því var beygur í honum við að hafa eiginlega nokkur afskifti af utanrfkismálum. Óttiaðist hann um, að hann yrði þar táldreginn af þeim, er honum voru meiri undir- hyggjumenn og óvandaðri. Hann óttaðist stöðugt um að verða leik- fífl annana. . Framan af stjórnarárum var Friðrik Vilhjálmur heppinn í ut- pnríkismálum sínum. Gegn vilja sínum var hann dreginn inn i bandaiag við aðra. Hafði það 1 för með sér stríð við Karl XII. Svía- konung. Var það eina strfðið, sem hann háði um sína daga. Svíar áttu ]>á sanitímis f höggi við Rússa, Póiverja og Dani. í fyrstu var hann hlyntur Svíum, en fyrir rás viðburðanna varð hann að grípa til vopna gegn þeim. í sept- ember 1713 náðu samherjiar borg- inni Stettin og fengu Friðriki Vil- hjáimi til verndar. Greiddi liann allan kostnað í sambandi við um- sátrið og tókst á hendur að hafa borgina á sínu valdi, unz stríðið yrði til iykta leitt. En Karl XII. neitaði algeriega að taka þenna samning til greina. Hvarf hann aftur úr útiegðinni á Tyrklandi til þess að heimita borg- ina aftur tafarlaust á sitt vald. Þessari kröfu neitaði Friðrik Vil- hjálmur þverlega, nema því að eins að honum væri endurgoldið fé það, er hann hafði fram reitt. Þá varð stríð einu úrræðin. En það stóð að eins skamma stund og endaði í iaun og veru 1715, er Prússar, Saxar og Danir tóku Stralsund undir forustú Priissa- konungs. Voru Svfar þá reknir úr Pommern, sem þeir höfðu lagt undir sig lað mestu; þar er Stettin mjög mikilsverð sjávar borg. Þá 'hætti Svíþjóð að vera í töiu stórveldanna. Eftir það var Prússland komið fnam úr öllum keppinautum á Norður-Þýzka- landi. Eftir þetta iét eigi Friðrik Vii- hjáimur her sinn taka þátt í bar- dögum, nema þegar hann áleit skyldu sína að hjálpa Karli keis- ara VI. Keisarinn færði sér hjálp hans í nyt, en sveikst um endur- gjalda. Átti endurgjaldið að vera fólgið í yfirráðum yfir Julich og Berg, en varð lað eins tái. Friðrik Vilhjálmur dó vonsvik- inn maður og argur við heiminn 31. maí 1740. Sex mánuðum sfðar fylgdi Karl VI. honum til grafar. Sonur Friðriks Vilhjálms lét það vera fyrsta ætlunarverk sitt, að koma hefndum fraan á dóttur Karls keisara. En þrátt fyrir þessi vonbrigði hafði landið notið tuttugu og fimm ára friðar og framkvæmdar- samrar stjórnar. Tekjur Prúss- lands höfðu tvöfaldiast og konung- urinn skildi 9 miljónir dala eftir f féhirzlunni. Að fólksfjölda var Prússlánd nú tólfta ríkið í Norð- urálfu, en að hervaldi hið fjórða. Heragi konungs hafði verið hinn strangiasti. Hernaðar siðvenjur voru láfcnar gilda í öllum stjórnar- deildum. Ráðgjafa hafði hann enga haft, heldur að eins skrif- stofuþjóna. öilum tekjum ríkisins var steypt saman og nefnd skipuð af konungi til að hafa öll fjármál á hendi og allar úfcborganir. Var henni harðlega skipað, aldrei að láta bregðast að eiga þó nokkurn afgang við áramót. Sjö fimtu hlutar af öllum tekjum ríkisins gengu til herkostnaðar, og varð því að haida spart á f öllu öðru. Gekk konung- ur þar sjálfur á undan með góðu eftirdæmi, sem allir embættismenn hans urðu að fyigja. Aftökur voru feikilega tíðar á ríkisárum Friðriks Vilhjálms. Fjöldi mófcmælenda, sem fiýja urðu undan ofsóknum frá ættjörðu sinni, fór til Prússlands og settist þar að undir handar- jaðri konungsins. Meðal þeirra voru ekki færri en 18,000 bændur, sem gerðir höfðu verið útlagar frá Salzburg (1732). Friðrik Vilhjálm- ur á líka heiðurinn af að hafa komið á fót alþýðuskólakerfi Prússlands og því um leið að hafa komið skólaskyldu þar á svo snemma á tfmum. kltoKWfclAií* ■ 4 , ■■ í i . 11. Friðrik mikli 1740—1786. Friðrik II., sem öðlast hefir auk- nefnið hinn mikli, var elzti sonur Friðriks Vilhjálms I. og tók við ríki eftir föður sinn. Hann var fæddur árið 1712 og var því 28 ára gamall, er hann tók við konungstign. Hiann var alinn upp við strangasta aga og var það vitaskuld heraginn, sem fyrir föður hans vakti. Hann vildi um fram alt gera son sinn að harðgerðum hermanni og láta hann um fram alt verða í öllu lifandi eftirmynd sína. En til þess þetta gæti orðið, hafði sonurinn verið úr garði gerður af náttúrunnar hálfu of ólíkur föður sínum. Hann mátti naumiast snúa sér við, svo voru allir hlutir fyrir fram ákveðnir af föður hans. En Friðrik var óvenju vel gefinn, hafði sterkan vilja og sterkar tilhneigingar, sem eigi var unt iað kæfa með strangasta aga. Ilann lærði þegar ungur frakk- neska tungu og tók miklu ástfóstri við frakkneskár bókmentir. Faðir hans lagði blátt bann fyrir, að hann lærði eitt orð í latínu, því latfnu hataði hann og hafði mestu andstygð á. En Friðrik lét kenna sér latínu f laumi. Eitt sinn er sagt, að Friðrik Vilhjálmur hiafi komið þar að, sem kennarinn var að yfirfara með syni hans og þýða fyrir honum gullskrá Karis hins IV., sem lauðvitað var á latínu. “Hvað ertu þarna að lesa með hon- um, þorparinn þinn?” spurði kon- ungur. “Eg er að þýða gullskrána fyrir prinzinum,” svaraði kenniar- inn. “Eg skal gullinskrá þig, fant- urinn þinn!” mælti konungur, þreif staf sinn og reiddi til höggs til að gefa vesalings kennaranum góða ráðningu. En hann viar ung- ur og fimur og skauzt undan út úr herberginu. Eftir það mun Friðrik samt iítið hafa átt við Iat- ínunám, þrátt fyrir það þó bann- aðir ávextir sé ávalt ginnandi. Móðir hans hjálpaði oft syni sín- um og studdi hann í þvi að afla sér kenslu í hljómlist og bókment- um, er hann var hvorttveggja hneigður til. Þegar hann óx upp og komst tii vits og ánai, verður hann feikilega leiður á því tilbreytingarlausa lífi, sem hann var neyddur til að lifa. Systir hans hét Vilhelmína og var honum lík að mörgu; voru kær- leikar miklir með þeim systkinum; hún var skýr og prýðilega vel gef- in ekki síður en bróðir hennar. Friðrik Vilhjálmur var bálvond- ur út af því, að sonur hans hugs- aði ekki um annað en gjálífi og skemtanir og ætlaði að verða au- kvisi ættarinnar. Svo er að sjá, sem honum hafi beinlfnis orðið illa við son sinn og beitti því þar sem sízt skyldi. Það hafði verið til þess stofnað, að ráðahagur tækist með þeim systkinum og börnum Georgs II. á Englandi, þannig, að prinz- ínn taf Wales gengi að eiga Vil- lielmínu, en Friðrik Amelíu, systur lians. Friðriki var þetta áhugamál svo mikið, að hann gerði sig sekan um þá óvarfærni. að hafa sjálfur bréfaskifti um þetta við ensku hirðina, og strengja þess heit, ann- að hvort að eiga Amelíu eða enga konu. En er Friðrik Vil- hjálmur, faðir hans, komst að þessu, ihefndi hann sín á syni sín- um með því að þvartakia fyrir ráðahaginn, svo alt varð að engu. Konungur kannaðist opinberlega við það, að hann hataði son sinn. Honum var ánægja í að gera prinz- inum sem opinberasta skapiaun. Svo var meðfcrðin hörð, að hvað eftir annað kom Friðriki til hugar að strjúka og leita skjóls og hælis hjá frændum sínum á Englandi við hirðina. Eitt sinn ætlaði hann að framkvæma þetta, eins og áður er á vikið, með tilstyrk tveggja vina sinna, með óskaplegum af- leiðingum. Það var árið 1730 og Friðrik var þá 18 ára. Annan vin- anna lét konungurinn taka af rétt fyrir utan fangelsisglugga Friðriks. Var það til þess gert, að gera prinz- inn auðmjúkan. Fangelsispresturinn sendi nú konungi mjög viðkvæma skýrslu af rétt-trúnaði sonarins og breyttu hugarfari. Varð konungur þá hinn glaðasti, og sýnir það, að hann hefir ekki verið eins gersneyddur allri föðurást og sagnaritarar oft hafa gert hann. Gaf konungur presti leyfi til, að láta prinzinn staðfesta sonarlega hollustu sfna með eiði. Og ef hann gerði alviar- lega bót og betran, skyldi fangels- isvistin verða ofur Jftið bætt, á meðan hann með toegðan sinni væri að vinna til fullkominnar fyrirgefningar. “AUur bærinn skal verða fangelsi hans,” reit konung- urinn. “Eg skal gefa honum nóg að gera frá morgni til kvelds í her- máladeildinni, akuryrkjudeildinni og á stjórnarskrifstofunum. Hana getur unnið að fjárinálum, við- reikningia, iesið skýrslur og gert. ágrip af þeim....... En ef hann sparkar eða rís upp á afturfótun- um aftur, skal hann hafa fyrirgert erfðarétti sínum til krúnunnar, og jiafnvel lífinu sjálfu eftir ástæðum.” Bærinn í Brandenburg, þar sem Friðrik sat í fangelsi, hétKuestrin. Þar varð hann að vera 1 15 mán- uði. Eftir skipunum föður síns var hann þar önnum kafinn við prússnesk stjórmarstörf. Hann gætti sín nú vel, hvorki “sparkaði, né reis upp á afturfótum.” ÞessL góða breytni hans þokaði honum smáin saman upp á við i áliti kon- ungs. Hann mátti ekki einu sinni. bera hermannabúning allan þenna tíma; átti það að vera til þess að sýna honum, að hann hefði gerst óverðugur þeirra dýrmætu einka- réttinda. Bæði foringjum og her- mönnum var stranglega bannað að heilsa honum. En árið 1732 var hann settur yfir herdeiid í bænum Neuruppin. Nú kom að því, að hann yrði að kvongast. 1 því varð hann einungis að fara eftir skip- unum föður síns. Árið 1733 gekk. hann að eiga Elísabetu Kristínu, dóttur hertogans af Brúnsvík- Bevern. Honum var gefinn herra- garðurinn Rheinsberg f grendinnl við Neuruppin. Þar lifði hann að líkindum sælustu ár æfi sinnar,. unz hann tók við konungdómi. Hann vann nú aigerlega traust og álit föður síns með því að leysa skylduverk sfn af hendi með svo mikilli samvizkusemi og áhuga, að Friðrik Vilhjálmur óttaðist ekki ■lengur um, að sonur hans væri ó- verðugur þess, að bera konungs- kórónu. Hann fekk nú líka leyfi til að gefa sig við þeim hlutum, er honum stóð mest hugur til. Friðrik var mikill vinur frakk- neska rithöfundsns Voltaire; og fleiri góða vini átti hann í hópi frakkneskra rithöfunda, og hafði við þá fjörug bréfaskifti. Heim- speki, ma'nnkynssaga og skáld- skapur voru honum um þessar mundir mestu hugðarmál. Tvær bækur reit hann á þessum árum, sem eru einna bezt kunnar þeirra ritverka, er eftir hann liggja. Voru þær um stjórnmál og heimspeki. 1 annarri bókinni bendir hann á„ hve veldi Austurríkis og Frakk- lands fari sívaxandi, og sýnir fram á, að mikla nauðsyn berl til þess, að þriðja veldið rísi upp, til að halda við jafnvæginu. Þarf ekki að ganga að því gruflandi, að með því átti hann við Prússland. 1 síðari bókinni, sem út kom sama árið og hann varð konungur, er þeirri hugmynd haldið fram, sem all-mikið bryddi á hjá 18. aldar heimspekingunum, að þjóðhöfð- inginn sé ekki einvaldsherra, held- ur helzti þjónn lýðsins. Friðrik II. tók við konungdómí 31. maí 1740. Hann var ólíkur föð- ur sínum um marga hluti, en varð- veitti samt með lotningu þá stjórn- arháttu, sem faðir hans hafði tek- ið upp. Hann var föður sínum miklu upplýsfcari maður og um það bar öll stjórn hans vott. Eink- um var munurinn mikill í um- burðarlyndi í trúarefnum. Friðrik. mikli ávann sér auknefnið ekki sfzt með því, að hann sýndi öllum trú- málaskoðunum sama umburðar* lyndi. Hann ruam alls konar pynd- ingar úr gildi. í dómsmálum sýrrdi hann hina mestu varfærni f að rétt- inum væri ekki hallað með hlut- drægni. ÖUum, sem kærumál' höfðu, veitti hann áheyrn. Hélt hann þó ávalt stjórnartaumunum* sterkri hendi. Um herinn hugsaðf hann með mestu nákvæmni, þvf hiann skildi svo vel, að aðal stytt- ur prússneska ríkisins voru fjár- mál á tryggum grundvelli og óvfg- ur her. Samt sem áður tvístraði hann risa-herdeildinni, sem faðir hans hafði stofnað til með svo miklum kostnaði. Friðrik II. hafði vissulega gengiðl í strangan undirbúnings skóia. Faðir hans hafði stjórnað löndum sfnum með ótakmörkuðu einveldi. En hve strangur sem hann var og frá þvf bitinn að taka tillit til þess, sem nokkur vildi nema hann sjálf- ur, var það ávalt auðsætt á öllu„ að hann hafði velferð þjóðar sinn- ar í huga f ihvívetna. Og lýðurinn. veitti honum enga ákveðna mót- spyrnu, en iét hann beina lífinu £ þann farveg, sem honum þóknað- ist. Hann hafði aldrei verið á það> vaninn, að fá sínum vilja fram- gengt í nokkuru. 1 heimilislífi sínu hafði konungurinn verið jafn- sannfærður um, að skipanir hans væri velferðarskilyrði eins mikið og í rfkismálum. En þar veitti honum nokkuru örðugra, að sann- færa einstaklingana um ágæti kon- ungs-viljans í hverjum hlut.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.