Heimskringla - 28.02.1918, Blaðsíða 4

Heimskringla - 28.02.1918, Blaðsíða 4
4. BLAÐSIÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 28. FEBRÚAR 191fr HEIMS K RIN GLA <Stufnii« 188«) Kumur At & hverjunt Flmtuðesl. Otsefendur ogr elpendur: THE VIKING PRESS, LTD. VerC blaísina 1 Canada og BandarikJ- unum $2.00 um ári® (fyrirfram borgati). Bent tll Islands $2.00 (fyrirfram borgaS). Allar borganir sendist rWsmannl blaSs- lns. Póst eða banka ávísanir stilist tll The Viking Press, Ltd. O. T. Johnson, ritstjóri S. D. B. Stephanson, ráðsmaSur Skrlfatofa: TM 8HBRBROOKB STREIIT., WINRIIPBO. p.O, Boi 3171 TalMlml Garry 411« >—— .......... iii i n i i« WINNIPEG, MANITOBA, 28. FEB. 1918 Eftirtektaverðar breytingar Margvíslegar breytingar ryðja sér til rúms nú á tímum í lífi allra þjóða, stríðsþjóðanna fyrst og fremst og hlutlausu þjóðanna einn- ig. Styrjöldin er þjóðunum eins og alheims- skóli—reynslu skóli—færandi þeim ein- hvern nýjan boðskap á öllum svæðum, er ætíð brýtur meir og minna í bága við kenningar liðna tímans. Rás viðburðanna nú á dögum bendir sterklega til þess, að niðurhrun þess gamla sé í vændum og annað nýtt, æðra og full- komnara, komi í staðinn. Upp úr rústum styrjaldarinnar rís þá betri heimur og sann- ari. Ormarnir sem uxu á gulldyngjunum, verða drepnar og gullið fært til réttra af- nota fyrir mannkynið. Fornum skruddum og skræðum verður þá á bál kastað og nýj- ar bækur verða ritaðar. Ef annars einstak- lingar þjóðanna unna mikið við bóklestur, eftir að þeir eiga kost á að svífa á skýjum ofar, hve nær sem þeir. vilja í flugreiðum sínum! Fram á þessar breytingar allar sér nú ein- veldið þýzka, bæði í eigin landi sínu og hjá öðrum þjóðum. Sízt er því að undra, þó valdhöfunum þýzku sé órótt innanbrjósts á þessum tímum. Frá því fyrsta hafa þeir hatast við alla stjórnarfarslega nýbreytni og kosið að una óáreittir við sitt gamla skipu- lag—sem tekið er í erfðir frá miðöldunum. Sjá þeir því ekki annað en mestu hörmung- ar í vændum, ef þessi nýju byltinga-öfl, sem gera vart við sig í öllum löndum, nái fyrir alvöru að festa rætur á Þýzkalandi. Eru allar uppreistir þar því bældar niður harðri hendi og engu tækifæri slept til þess að brýna fyrir þjóðinni, hve mikil hætta sé á ferðum fyrir hana, ef hún snúist öndverð stjórn lands síns og keisara og láti blekkjast af lýðfrelsisglamri óvinanna. Lýðfrjálst stjórnarskipulag virðist, í augum þessara manna, vera sá svartasti skuggi, sem yfir Þýzkaland gæti fallið. Þannig eru Þjóðverjar að einangra sig meir og meir frá öllum öðrum þjóðum. Englendingar aftur á móti taka breytingum nútímans vel og gera enga tilraun að sporna á móti þeim. Konum þar er veittur atkvæð- isréttur, eftir að þær hafa barist fyrir þessu árangurslaust í fjölda mörg ár, og engum dylst þetta muni reynast brezkri þjóð stór- kostleg breyting til hins betra. Verkamanna- flokkurinn þar í landi gerist öflugri að heita má með degi hverjum og fer þó fram á ýms- ar stórvægilegar breytingar, t.d. afnám lá- varðastofunnnar í þinginu. Hefði annað eins skoðast Iandráðum næst á Englandi fyr- ir örfáum árum síðan. Sannast því hér hið fornkveðna, að tímamir breytast og menn- irnir með. Hér í Canada hafa átt sér stað ekki svo fáar þýðingarmiklar breytingar, síðan þátt- taka þessa lands hófst í strfðinu. Helztu stjórnmálaflokkunum hér hefir verið steypt saman og bandalagsstjórn sú mynduð, sem nú er við völdin. Rokksfylgið hefir verið látið rýma úr sessi fyrir samhug og sam- vinnu. Þetta er nýtt í sögu Canada, því hvergi í heimi hefir flokksfylgið verið sterk-,. ara en hér, og engir, sem nokkuð hugsa, neita að þetta muni hafa miklar og víðtæk- ar afleiðingar fyrir landið og þjóðina. Ríkjandi stefnan nú í Canada er efling sam- vinnunnar, samvinnu einstaklinganna, sam- vinnu fylkisstjórnanna og sambandsstjórnar- innar, og alt miðar þetta að því sama, að auka alla framleiðslu f Iandinu og hrinda öll- um velferðarmálum þjóðarinnar í betra horf. Drengjaherinn, “Soldiers of the Soil”, sem nú er í ráði að mynda, er gott sýnis- horn af þessum tilraunum núverandi sam- bandsstjórnar, og verður það stærsta sam- vinnuspor, sem stigið hefir verið í sögu þessa lands. Margar fleiri breytingar hafa átt sér hér stað, sem líklegar eru til að hafa mikil og góð áhrif. En einhver eftirtektaverðasta breytingin hér eru þó, án allra tvímæla, stakkaskifti þau, er þýzksinnaðir borgarar þessa lands hafa tekið í seinni tíð. Lengi vel drógu þeir taum Þjóðverja af ítrustu kröftum. Ekki þorðu þeir þó að gera þetta opinberlega, því hugrekki þeirra var ekki samstiga við þeirra miklu vitsmuni og yfirgnæfandi þekk- ingu. En við kunningja sína og aðra, sem ekki voru líklegir til þess að draga þá fyrir dóm og lög, voru þeir þó stundum all- tungulangir. Og aldrei þreyttust þeir á að útmála með fögrum litum menninguna þýzku og yfirburði Þjóðverja yfir allar aðr- ar þjóðir þessa heims. Um einveldið þýzka vildu þeir sem minst tala, en Iétu þó stund- um þá skoðun í ljós, að stjórn Þýzkalands hefði reynst verkalýð og lægri stéttum full- komnari og betri stjórn, en nokkur stjórn lýðfrjálsu landanna. Hryðjuverk Þjóðverja í Belgíu og víðar áttu að vera óumflýjanleg- ar afleiðingar stríðsins — þjóðverjar væru hetjur, sem ekkert létu fyrir brjósti brenna og yrðu bandamenn að beita sömu bardaga- aðferð og þeir, ef þeir hugsuðu á sigur. Þegar frá leið tók þó töluvert að dofna yfir þessum velvildarhug sumra hér í garð þýzkrar menningar og Þjóðverja. Hvernig þetta atvikaðist, er flestum hulin ráðgáta. ------Svo kom Bolsheviki flokkurinn á Rússlandi til sögunnar og þá fyrst breyttu “þeir þýzksinnuðu” algerlega um stefnu. Nú hættu þeir að básúna þýzka menningu og dembdu í þess stað allri ást sinni á Bolsheviki stjórnina rússnesku! Stjórn þessi átti að vera að stíga fyrstu sporin í áttina til þess “að frelsa heiminn.” Stefnuskrá henn- ar átti að votta nýja menningar strauma, og æðri og fullkomnari þroskun fyrir mann- kynið. Fór þetta Bolsheviki-fylgi svo langt hér í Winnipeg, að fyrir nokkru síðan var haldinn fundur á einu Ieikhúsinu hér og nú- verandi stjórn Rússlalnds þar hafin himnin- um hærra. Lastmælum var óspart hrúgað á stjórnir allra annara landa og stríð þetta sagt orsakast ai valdafíkn og auðgræðgi á báðar hliðar. Samskot voru svo tekin í lok fundarins, menn ámintir um að gefa ríflega og styðja gott málefni. En þegar friðarstefnan í Brest Litovsk endaði í verstu sundrung, tók Bolsheviki fylgjendum hér ekki að lítast á blikuna. Hafa þeir að sjálfsögðu ekki gengið að því gruflandi, að Rússar myndu lítið viðnám fá veitt “hetjunum” þýzku. Enda varð sú raunin á. Járnhnefinn þýzki kom í ljós og tók að merja Bolsheviki- stjórnina til agna. Alt tók annan blæ og fult útlit varð nú þess, að sporin, sem stjórn þessi hafði í hyggju að stíga til þess að frelsa heiminn, yrðu aldrei stigin. Horn- grýtis hervaldið þýzka sá um það. Hinir áður “þýzksinnuðu” hér (en nú fylgjendur Bolsheviki stjórnarinnar) stóðu máttvana og ráðalausir. Á dauða sínum höfðu þeir átt von, en ekki svo sviplegum dauða Bolsheviki stjómarinnar. Tóku þeir því að fyllast bræði mikilli í garð Þjóðverja —fyrverandi vina sinna. Og nú eru þeir flestir teknir að hata Þýzkalands keisara eins og djöfulinn sjálf- an! i Þessf stakkaskifti þýzksinnaðra manna hér í Canada em eftirtektaverð mjög — og leiða vonandi til þess, að menn þessir taki nú að leggja fullan skerf til þátttöku þessa Iands í stríðinu og reynist dugandi drengir eftir alt saman Til aðvörunar Sagt er að íslenzkur bóndi hafi nýlega komið hingað til borgarinnar í þeim erinda- gerðum, að reyna að fá undanþágu frá her- þjónustu fyrir son sinn Er oss sagt, að hann hafi leitað hér til málsmetandi lslend- ings—sem þektur er fyrir að vera andstæð- ingur herskyldunnar—og beðið um liðsinni hans í þessum sökum Maður þessi brást vel við, því hann er hinn bónbezti, og áður mjög langt leið fékk hann undanþáguna, með því móti, að lögmanni nokkrnm hér í borginni voru borgaðir $100 fyrir að koma þessn í gegn. Að lögmaður þessi, hver sem hann er, leyfir sér að setja svo gífurlega fjámppræð fyrir þetta verk sitt, virðist benda til þess, að undanþága þessi hafi verið lítt fáanleg og hann hafi þess vegna orðið að beita ein- hverjum lygum við undanþágu-dómstólana. Verða þá allir, sem við þetta eru riðnir, jafnsekir, því hér er sýnilega verið að fara á bak við landslögin. Allir þeir, sem nokkuð fylgjast með mál- um þessa lands, vita, að lögmennirnir standa ekki í neinu sambandi við undanþágu-dóm- stólana og hafa því ekkert með undanþág- ur að sýsla. Þeir geta samið undanþágu- beiðnir fyrir menn gegn sanngjarnri þókn- un—en að þeir hafi rétt til þess að setja upp $100 fyrir ekki meira verk, nær ekki nokk- urri átt. Að lögmanni er borguð svo há fjárupphæð, bendir ótvíræðilega til þess, að alt sé ekki með feldu. Vér viljum í allri einlægni vara íslenzka borgara hér í landi við öðru eins og þessu. Islenzku hetjurnar, sem nú berjast á vígvöll- | um Frakklands, verðskulda ekki þannig lag- aða breytni af samlöndum sínum hér heima fyrir. Og ef það reynist rétt að vera, að Islendingar hafi borgað stórar fjáruppræðir til lögmanna fyrir að útvega þeim með ein- hverjum brögðum lausn frá herþjónustunni —þá er þetta sá blettur á íslenzkri þjóð, sem seint verður afmáður. Halldór Jón Eggertsson. Húskveðja Faðirinn stendur bezt allra að vígi til þess að fá undanþágu fyrir son sinn. Hafi hann góðar og gildar ástæður fram að færa, verður honum veitt undanþágan án langrar tafar. En séu ástæður hans, samkvæmt á- kvæðum herskyldulaganna, ekki skoðaðar fullnægjandi, er ekki að búast við, að und- anþága verði veitt — og skylda allra er að ; hlíta þeim úrskurði, eins og löghlýðnum í borgurum sæmir. i Islendingar hafa ætíð í þátíðinni fengið orð á sig fyrir að vera löghlýðnir menn, hvar sem þeir hafa verið, og vonum vér fastlega, að engir þeirra gefi þjóð þessa lands tilefni að halda annað. -------------------------------------------h Álit merkra manna Blaðið Canadian Finance, sem fjallar ein- göngu um fjármál, birtir nýlega langa rit- gerð um núverandi fjárhag Manitobafylkis, og hlýtur ritgerð sú að vekja eftirtekt allra hugsandi manna. Ritstjóri blaðs þessa, S. [ R. Tarr að nafni, er tilheyrandi liberal flokknum, svo ekki er hægt að segja, að að- finslur hans séu sprottnar af blindu flokks- fylgi. Ritgerð þessi er of löng til þess að hægt sé að birta hana í heilu lagi í þetta sinn. En helztu atriðin, sem lögð er mest áherzla á, eru sem fylgir: Tekjuhallinn eða sjóðþurð er $184,000, samkvæmt skýrslu Ed. Brown, en þetta er ekki rétt. Virkilegur tekjuhalíi fylkisins er $734,557. Árstekjur fyrir 1917 voru að mun meiri en fyrir 1916. Tilhögun hefir verið þannig, að iðjulaus höfuðstóll, geymdur í fjárhirzlum fylkissins, hefir orsakað fylkinu tilfinnanlegt fjártjón. Fylkiseignir eru virtar á ofhátt verð. Fjárupphæð, sem nam $98,000, hefir borgast til ýmsra þjóðræknisþarfa (patriotic expenditure) og hefir verið tekin af höfuð- stól fylkisins, sem ekki er réttlætanlegt. Skuld fylkisins (debenture debt) hefir aukist um tvær miljónir síðastliðið ár. Hon. Brown “gerir lítið úr vitsmunum fylkisbúa og gengur fram hjá því, hve alvar- legir tímar nú eru,” er hann heldur því fram, að núverandi tekjuhalli sé ekki skaðvæn- legur. $1,070,000 fjáruppphæð hefir verið tek- in úr bankanum síðan 30. nóv. 1915 í við- bót við árstekjumar, sem eytt hefir verið, og ofan á þetta bætist tekjuhallinn þetta ár, $734,557. Aðferð stjórnarinnar í allri tilhögun á þjóðræknis skattinum, er gagnstæð sjálfvið- urkendri stefnu þessarar stjórnar. Ástæður þær, er Brown fram setur til skýringar á tekjuhódlanum og til þess að réttlæta hinar nýju skatta-álögur, eru á litl- um rökum bygðar. Brown tekur $2,000,000 lán, gegn 6.25 per cent rentu, og borgar lántöku-kostnað; hefði þó getað tekið $1,000,000 lán í gegn um Sir Thomas White, án þess að borga nokkum lántöku-kostnað. £ margt annað er bent í ritgerð þessari. Af því aðfinslur þessar líka koma frá sterkum fylgjanda liberal flokksins, hafa þær sérstaka þýðingu. Hér er líka sá mað- ur að tala, sem aflað hefir sér ítarlegrar þekkingar á öllu, sem að fjármálum allra vesturfylkjanna lýtur. Og þetta ár endurtekur sig sama sagan. Stefna stjórnarinnar nú er sú sama og verið hefir. Fjárhagsáætlanimar benda að eins á enn meiri eyðslusemi en áður, enn meira fjárbruðl í allar áttir. Með því að moka þannig út fé á báða bóga, er Norris-stjórnin að stuðla að “efna- legu velgengi’ belztu fylgjenda sinna. flutt við jarðarför Halldórs Egg- ertssonar 22. feb. 1918. Eftir síra F. J. Bergmann. Höldum fast við játningu von- ar vorrar óbifanlega, því trúr er sá, sem fyrirheitið hefir gefið. — Hebr. 10, 23. Einn allra sterkasti þáttur í lífi hvers manns er vonin. Hún lifir flestum mönnum í brjósti eins lengi og hjartaslögin halda áfram. Menn gera ósjaldan gys að henni og lítilsvirða. Samt er hún ein af megin-þáttum lífs vors. Þegar hún sloknar, þá er alt farið. Hún ber hvern einstakan mann áfram. Valdsmanninum og valda- leysingjanum, auðmanninum og öreiganum er hún öruggasti staf- urinn. Þeim, sem lítið þarf á henni að halda og margt annað hefir við að styðjast, getur fundist í bili að hann þurfi ekki á henni að halda. En þegar stoðirnar bila,—og þeim er að síðustu öllum burtu kipt, verður hún ein eftir, og aldrei eins sterk og dýrmæt og þá. Allar bila þær á endanum, nema hún. Hrein og (heilög von ei verður tál; Yið það skaltu hugga þig, mín sál. Vonin sjálf or vonar-trygging nóg, von uppfyllir sá, or von tilbjó. Hún er ekki séreign neins manns. Hún er sameign alls mannkynsins. Hún er hin máttuga tengitaug allra trúarbragða og trúarskoðana. Sú föðurhönd, sem mótað hefir manneðlið, hefir af eilífum kær- leika látið sér þóknast, að steypa mannkynið alt í móti vonarinnar, —eilífðar-vonarinnar. Fyrir því er vonin sjálf nóg vonar-trygging. Hún byggist á honum, sem hugsað hefir upp þetta furðulega líf, og látið stund- ina stuttu hér á jörðu vera fyrir- heit um eilífð fram undan. Þegar frelsari mannanna birtist hér í mannheimum, kom hann ein- mitt til þess að gera eilífðarvonir mannanna öruggar. Hann kom til að vekja eilíft líf í sálum mannanna hér, sem verið gæti eins og frjóangi eða spíra þess h'fs, er mennirnir ætti fyrir hendi. Líf, sem væri með svo sterkum ummerkjum, að ekki gæti haggast eða bugast af nokk- urri bylting eða umbreyting. Jesús Kristur er vonar-trygging mannkynsins. Kristur meðal yðar von dýrðarinnar—segir postulinn. Kristur í yður von dýrðarinnar, kæmi ef til vill hugsan hans nær. Kristur í brjósti þínu og mínu von dýrðarinnar, sem vér eigum í vændum. Kristur í brjósti vors liðna bróður, sem nú er að kveðja heimili sitt, von dýrðarinnar, sem hann er genginn inn til. Kristur í brjósti ekkjunnar, huggunin eina, sem henni kemur nú að nokkuru haldi, af því hann segir: Þú skalt fá að sjá vininn þinn aftur og ferðast með honum um eilífðarlandið. Kristur í brjósti vor allra heilög trygging þess, að þar skulum við öll fá að verða samferða. Höldum fast við játningu vonar vorrar óbifanlega, því að trúr er sá, sem hefir fyrirheitið gefið! Trúr er sá, sem svo hefir saman- fléttað fyrirheiti eilífs lífs voru DODD’S NÝRNA PILLUR, góZgr iyrlr allskonar nýrnaveikL Lækna gigt, bakverk og sykurveiki. Dodd’fr Kidniey Pills, 50c. askjan, sex öskj- ur íyrir $2.50, hjá öilum lyísölum eða frá Dodd’s Medicine Oo., Ltd, Toronto, Ont. rneðfædda manneðli, að enginn og ekkert skal geta rakið þann þáttinn úr. Dauðinn er hvað eftir annað á ferð meðal vor. Öldungis óvænt hefir hann nú með stuttu miilibili gripið hér hvað eftir annað inn á sömu sifjastöðvar. Þegar aldurhnigin gamalmenni eru burtu kvödd, sem fegin leggja göngustafinn niður, fögnum vér. Plöntunni, sem eigi gat lengur þróast og þrifist í þessum jarðvegi. er endurplantað í jarðveg annars lífs, þar sem henni er ætlað að fá nýjan vöxt og viðgang. Það er fögnuður. Það er fyrir- heit guðs barna! En dauðinn, eða þau umskifti. er vér köllum svo, hrífur ósjaldan brottu menn á bezta aldri, eins og þenna vin vorn. Menn, sem rétt eru byrjaðir að vinna ætlunarverk lífs síns. Húsfeður frá eiginkonu og ungum börnum. Og þá er hann svo sár og óum- ræðilega dularfullur. En svo þóknast honum að vera láta, húsföðurnum mikla á hinu stóra heimili lífsins. Hann er sífelt að flytja verka- mennina frá einni álfu til annarrar, úr einum verkahring í annan, eftir því sem hann þarf á þeim að halda. Embættin eru mörg í löndunum hans. Hlutverkin margvísleg. Hann einn kann að segja fyrir verkum. Hann einn þekkir þann reit á borði lífsins, sem hverjum er hentastur. Hann einn veit, í hverri fylkingunni vér gerum mest gagn. Vér skiljum þetta alt, ‘•þegar sérlhver rún er ráðin og raunaspurning, sem oss duldist hér.” Halldór Jón Eggertsson var fæddur árið 1878, 20. septem- ber að Tandraseli í Borgarhreppi í Mýrasýslu. Voru foreldrar hans þau hjónin Eggert Jónsson og Sig- ríður Jónsdóttir, bjuggu í Tandra- seli og voru ættuð úr Borgarfirði. Þau áttu mörg börn og komust tíu þeirra til fullorðins ára. Árið 1887 fluttust þau vestur um haf, hingað til Manitoba-fylkis. og settust að tvær mílur fyrir norð- an Gimli. Vorið 1888 fluttust þau til Winnipeg og áttu þar heima til haustsins 1893, er þau fluttust út til Narrows við Manitoba-vatn. Þar lézt Eggert, faðir Halldórs og þeirra systkina, árið 1897. En móðir Halldórs lézt hjá Jóni Egg- ertssyni, syni sínum, árið 1906, hér í Winnipeg. Árið 1899 fluttist Halldór út í Swan River-dal og tók þar land; var hann þar í þrjú ár. Fór hann þá hingað til Winnipeg og gekk á verzlunarskóla veturinn 1902. Eft- ir það vann hann við verzlan, sem hann rak stundum í sjálfs síns nafni, og um eitt skeið við fast- eignasölu fyrir Árna, bróður sinn. Nú síðast gaf hann sig við lífsá- byrgðar störfum. Árið 1906 gekk hann að eiga Ingibjörgu Árnadóttur Sveinssonar frá Glenboro, sem nú harmar mann sinn látinn. Þeim varð fjögurra barna auðið, sem öll eru á lífi: Árni Halldór, 10 ára, Guðrún Sig- ríður, 7 ára, Margrét May, 5 ára, Edvina Sigríður, 3 ára. Halldór heitinn var maður vel metinn og vel látinn af þeim, er

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.