Heimskringla - 02.05.1918, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 2. MAI 1918
HEIMSKRINGLA
3. BLAÐSIÐA
ÁLITLEGT MANNSEFNI.
(Frnmh. írá 2. bls.
merki í ytra útliti. Hann er dökk-
hærður, fríður sýnum og að sjá
eterklega bygður. Engir eða fáir
jafnaldrar ihans eru honum jafn-
snjallir á reiðhjóli. Var konungi og
drotningu oft vel iskemt, er hann
var að þcytast á reiðhjóii .sínu fram
og aftur á bak við Buckingham
höllina.
Hann er kátur og spaugsamur, þó
tæplega geti hann kalliasit annar
eins ærslabelgur og John, yngri
bróðir han.s. Eru margar all-spaugi-
legar sögur sagðar frá skólaárum
þeirra bræðra.
Endfet Albert prinz aldur og
heilsa, á hann vafalaust eftir að láta
mikið til sín taka í inálum þjóðar
sinnar.
► -----o-------
Höfundur Njálu
Inni í wkiáia Ormis er var
eitt sinn tiginn gestur
— gulli málið skfru stkar-----
skráði af Njáli sögu þar.
Varð að flýja fé g völd,
frændaríki ofsóttur.
TJrðu skýjuð — skúraköld —
skugguð því og döpur kvöid.
Heldur fárra vina var
varð um iskarðað gengi.
Ýrðu um blárra brodda far
beiskur sárrar nauðleitar.
Hrjáður skjól og hylli*f-ann
að -höfuöbóii glæstu.
Friðar isól upp fögur rann
um fræðastólinn geislum brann.
Ýinsan nýjan fróðleik fá
fýsti í lýstum ranni.
Ljósin hlýju ileiftra’ um brá,
iýfta iskýja drögum frá.
Brýtur spjail á 1)0kfell -hönd
í blað, við istaðar niemur
þar brandur gall við bl'árri rönd
Brjánis að falli’ og sigri í hönd.
lléðan runnin aldia er,
æðum íræði'straumia,
á letragrunni er lyftir sér,
lýðum kunn og geymist hér.
Ár iþrjátíu tjáð og sex
töldust öld þrettáindu,
í geislia itýgjium guðdómlegs
grein er ný á stofni vex.
Frá J.B.A. skóla.
Nú er nemendum á Jóns Bjarna-
sonar skóla óðum að fæfcka. Margir
fóru heim fyrir páska, svo eru
nokkrir nýfarnir eða i þann veginn
að fara. betta fólk fer al't út á land
tiil þess að hjálpa þar við akuryrkj-
una. Nem'endurnir í 9. og 10. bekk
fengu sérstök próf fiá mentamála-
d-eildinni fyrir páska, en þeir í 11.
bekk fá að ifara m-eð því Skilyrði að
konnararnir gefi þeim m'eðmœli, en
til þess þurfa þeir -að istanda sig vel
í þeim prófnm, sem 'skólin setti um
póskaleytið. Þó er ekki svo að skilja
að neinum sé haldið frá að fara þeg-
aj- honum sýnist, en án þessara ráð-
stafana fá ekki nemendur að hætta
við nú og samt byrja í næsta beikk
á koinanda vetri.— Piáskaprófin eru
nú nýafstaðin, því kennararnir
breyttu svo til að ihafa þau á eftir
páskunum, en vanalegt er að hafa
þau fyrir páska, og var meiningin
sú, að nemendur læsi upp í .fríinu.
Þessi ráðstöfun var þó alt annað en
vinsæl meðal skólafólksins; fanist
þi'í það toafa annað að gera en að
vera að losa um páskana. Enda var
um jólin í vetur lagt strangt bann
við þvf að isnerta bók í fríinu, og
munu flestir hafa haldið það boð-
orð einnig um páskana af einskærri
trygð við það “gamla og góða.” Af-
leiðingin var sú, að enginn var und-
ir oruvstuna búinn, þegar á hólininn
kom, og ellefti bekkur, er ber ægis-
hjálm ytfir hlna að andlegu atgjörvi,
ráðríki og öðrum dygðum, fékk sinn
próftíma framliengdan um eina viku
svo meiri tími væri til að búa sig
undir. Svo stóðu flestir sig vel og
ætla isumir þeirra út í vorvinnu.
Hver og einn, sem fer nú af skól-
anum, ber með sér tolýjar tilfinning-
ar til istofnunarinnar. Enginn ís-
lenzkur unglingur getur eytt heil-
um vetri á Jóns Bjarnasomar skóla
og ekki verið ímeiri og betri maður
þegar hann fer en þegar hann kom.
Að tilgreina alt, er ifólkið hefir grætt
á skólaverunni, er ekki meðfæri
þess er þetta riitar; það er heldur
ekki áformið: það nægir að einis að
segja, að hið falenzka og kristilega
andrúm'sloft, sem í skólanum ríkir,
hefir skilið eftir eitthvað í hjörtuiú
þeirra, sem gerir þau meiri menn og j
konur og sérstaklega betri íslend-
inga. Það er þetta, sem J.B.A. hefir
fraan yfir alla aðra skóla í Manitoba
og hann stendur þeim ölilum fylli-
lega jafnfætfa í kenslunni, svo langt
sem hún nær. Þegar svo er tekið til-
lit til þess, að margt af þessu skóla-
fólki hefði alls ekki hlotið æðri
mentun, hofði ekki Jóns Bjarnason-
ar skóli verið til, þá getur hver
miaður -séð, ihve óimetanlegt gagn
skólinn hefir gert þeim.
Fyrir alt þetta eru iiernendurnir
inni’lega þakklátir öllum þeim, sem
hafa hjálpað til að <gera skólann
það sem hann hefir verið í vetur;
hver og eimn er þakklátur hjónum
þeim sem hafa umsjón með -skóla-
húsinu og er stunda verk sitt með
henni mestu alúð og nærgætni;
hver og einn er 'þakklátur skólasyist-
kinum sínum , sem hafa hjálpað til
að gera fjörugt og andríkt félagsMf í
skólanum, og konnurunum, sem
hafa sýnt þeim inn í heim göfgra
menta, og síðast en ekki sfzt iskóla-
stjóra, sem hefir borið föðuriiega
umtoyggju fyrir öllum, og sem hefir
lagt sig allan fram með að göfga
anda allra. Það var vel viðeigdndi,
að 'hann skyldi iialda fyrfrlestur um
íslenzka æsku í það nrund, er marg-
ir voru að fara af skólanum, svo það
mætti vera einis og hið síðasta orð
haiiis til þeina. *Sá hluti íslenzkrar
æsku, sem er á Jóns Bjarnasonar
skóla, hlustaði á þenna fyrirlestur,
swm blés eldmóði í hvert ungt
brjóst.
Það skal því engan furða, þótt
memendurnir séu hryggir að yfir-
gefa skóla sinn. Þótt þeir láti nú í
veðri vaka að þeir séu fegnir að
iii'ega hætta við skólanám í svipinn
og geta kastað frá sér skruddunum,
þá ínun þó hugurinn leita aftur til
Jóns Bjarnasonar skóla, og þangað
munu flestir úr 9. og 10. bekk leita
að mieiri mentun; en eins og sikólan-
um er nú háttað, verða þeir nem-
endur, sem nú eru í 11. bekk, að
leita isér mientunar annars staðar
hér eftir. Þietta kom þeirn til að
'búa út bænarskrá þess efnfa, að
skóiinn væri aukinn isvo að þeir
gæti haldið áfram námi við liann
að minsta kosti einn vetur enn.
Það sýnir hvert álit námsfólkið
sjálft, sem notið hefir alís þess er
sikólinn hefir að bjóða, hefir á hon-
um. Þetta er íólk úr hinum ýmisu
bygðum fslendinga og tilheyrandi
öllum trúaiþragðaflokikum nreðal
íslendinga vestan hafs. Það hefir
að nokkru leyti lært að vinna sam-
an og skilja tovert annað, og það
vill ifá að læra það enn.'betur. Það
er vonandi, að því verði gjört það
mögulegt, enda er ósæmileg.t af ís-
leindingum, að þeir kasti börnuiu
íínum, er þeir hafa strítt fyrir, á náð-
aranna annara, þegar þau eru rétt
að verða að mönnum. og afsiali sér
þar með starfi þeirra sem manna.
> Nemandi.
------O-----
ISLANDSJ-RETTIR
(“Vfeir” 28.—30. Mar.)
Sfmskeyti frá Hjalteyri 27. mars.—
í gær gerði hér voðaveður af norð-
austri imeð sjgangi oghríð. Rak þá
aftur inn fsinn, sem kominn var á
útrek, og fylti inn að samifrosna ísn-
um, sem nú er út á Hörgárgrunn.
Á leiðinni braut fsinn bryggjur
Hhorsteinssonis hér utan á eyrinni
alveg, sömuleiðte biTggjur Ásgeirs
Pétunssonar og Samiúelsons innan á
eyrinni- og skemdi fleiri. Kvieldúlfs-
bryggjan er þó óskemd. Tjónið, sem
af þessu er orðið, er afarmikið.
Lagarfoss liggur enn á Sauðár-
króki og getur ekkert laðhafst. Og
Sterling er á Reyðarfirði. Ef veður
hægir, er von um, að ísinn greiðist
svo í sundur, að Sterling komist
hingað.
í inorgun var 17 stigra frost á
Grímsstöðum, suðaustan vindur: 13
st. á Akureyrl, sunnanvindur: 12 st.
á Seyðisfirði og 5,8 og norðatvvind-
ur; 9,6 á fsafirði og 10.2 í Reykjavfk
og logn.
Skákþing islendinga hefst á ann-
an 1 páskum. Er það Taflfélag Rvík-
ur, sem til þess .boðar, og viðbúið
að það verði eiina félagið, sem þátt
tekur í því. 1 því félagi eru nú um
40 manns og margir ágætir taflmenn
auk tveggja sigurvegaranna frá fyrri
þingum, Péturs Zophoniassonar og
Eggerts Guðmundssonar.—Er búist
við því að þriðji skákkonungurinn
bætfat við á þessu þingi, og þykjast
þeir sem kunnugir eru vita hver
það muni verða.
“Rán” kom inn f gær af ffakiveið-
um, drekkhlaðin. Hún ihefir verið
á ísfiski, en nú er vafasaint, hvort
hætt verður á það, að láta skipið
fara til Englands anieð aflann, vegna
þess að köl eru þar ófáanleg handa
botnvörpungunum.
Á þingmiálafundi á Blönduósi í
gær samþyktu Húnvetningar að
skora á þingið að krefjast fánans nú
þegar eða skilnaðar við Dani að
öðrum kosti.
Lagarfoss liggur nú á Sauðáikróki
og er afgreiðslu hans þar lokið. En
í gær, þegar norðanveðrið skall á,
voru 20 venkamenn úr landi í skip-
inu og svo snögglega hvesti, að ekki
var hægt að koma iþeim í land.
“Ýmir” annar Hafnarfjarðar botn-
TOrpungurinn, kom inn í gær, full-
ur iaf fiski.og með ein 80—90 lifrar-
föt.
Páskahretið er byrjað. í gær-
morgun var suniian’vindur og blíð-
viðri um land alt, en síðari hluta
dagsins gerði skyndilega norðan-
stórhríð uin alt Norðuriland. Isinn
hafði verið farinn að reka út af
Eyjafirði, en hefir nú vafalaust rek-
ið inn aftur. — Hér syðra snerist
vindstaðan til norðurs og tók að
frysta með kvöldinu. í mcfngun var
4,4 st. frost í Vestimannaeyjum, 9,4 st.
í Reykjavík, 10,3 »t. á ísafirði, 13 st.
á Akureyri, 16 st. á Grímsstöðum,
og 13.9 st. á Seyðfafirði. Alwtaðar
norðan og norðvestan átt, nema í
Vestmanneyjum austan. í Færeyj-
um var Jogn, 6.2 st. hiti og loftvog
talsvert miklu lægri en hér á landi.
“Samverjinn” hættia' nú að útbýta
máltíðum á laugardaginn, en held-
ur áfram að gefa fátækum sjúkling-
um mjólk.
Brezka herskipið fór héðan aftur
25. marz og með þvf sendinefndin
og Þórður Flygenriug, sem verður
ritari nefndarinnar. Cable ræðie-
maður fór einnig með skipinu.
Lagarfoss á ekki að fara til Ame-
riku, iheldur til Noregs með kjöt, ef
leyfi fæst hjá Bandaríkjastjórninni.
En skipið er skuldbundið henni til
að fara aftur vestur, og leyfið ófeng-
ið enn. Gærurnar og síldina, -sem
hér er, á Gullfoss að flytja vestur í
næstu fei'ð.
Pétur M. Bjarnason, Björn J.
Blöndal skipstjóri o. 11. hafa nýlega
keypt’ segiskútu vestan af Arnar-
fii'ðl, um 30 smálestir að stærð, fyrir
um 7 þús. kr. Skipið heitir María
og kom að vestan núna um helgina.
Það er úr eik og á að setja í það
gangvél.
Rafmagnsstöð til lýsingar hefir
verið komið upp í Kleppsspítalanu-
um. Vélar til stöðvarinnar voru
fengnar fiá Atneríku. Stöðin kostar
uppkomin um 15 þús. kr.
Flutningsgjald milli landa er orð-
ið alveg gffurlegt, t.d. var flutnings-
gjald fyrir einn barnavagn núna
með síðustu skipum 85 krónur. Á
mörgum vörum er flutningsgjaldið
alt að því fjórfalt verð \"örunnar.
• “Fjalla Eyvindur” Jóhanns Sigur-
jónssonar er kominn út í nýrri
skrautútgáfu danskri með mörgum
myndum (úr kvikmynd, seim gerð
var eltir leiknum). Upplagið af
þessari nýju útgáfu er að sögn 10,-
000 — en ekkert eintak hefir l>ó
koinist hingað á bókamarkaðinn
enn.
Vestmanneyingar reru á skírdag
og fengu hlaðafla bæði í net og á
línur; höfðu þeir allir tvShlaðið, er
netin höfðu, en það eru 30 bátar eða
helmingur vélbátaflota þeirra eyja-
búa.
Eftir sejirustu fréttum liggur Lag-
arfoss nú við Hjalteyri og er verið
að íltyja í hann kjöt og gærur á
sleðum eftir ísnum á firðinum, frá
Akureyri. Eru 200 sleðar í þeim
flutningum. Það er nú afráðið og
til þess fengið samþykki Bandarfkj-
anna, að Lagarfoss fari til Noregs
með kjötið.
INMITT NÚ er bezti tími að
gerast kaupandi að Heims-
kringlu. Frestið því ekki til
morguns, sem þér getið gert í dag.
Slíkt er happadrýgst.
BrúkaS reiShjól óskast til kaups
eSa til leigu í sumar. FinniS S.
A. Johnson í prentsmiSju Heims-
kringlu.
M. S.
------•-------
Til Canada Rauðakross*
félagsins.
iSafnað af V. Freeman, Hove P.O.:
—V. Freeman $5, P. Paulson $5, S.
Eyjóllfslsn $10, J. K. Vigfúsison $5,
Jonas Sigurdson $2, Mrts. B. Sigurd-
eon $1, Joe Sigurdson $1, Wm. Is>
bfater $1, S. Skúliaison $5, Hildur
Paulson $1, Guðm. PaUlson $1, Mrs.
P. Paiulson $1, A. J. Skagfeld $5, V.
Thordiarson $5, Guðni Paulson $2,
Jón Guðmundisosn $5, J. H. Johmson
$5, F. J. Friiðfinisson $2, G. Arnason
$2, Bjarni Goodman $1, B. Helgason
$1, B. Sigurdson $5, Stanl'ey Skagfold
$1, Erman’s Ohartrand $1, Joe Chart-
rand $1, Mrs. E. Chartrand 50c, Gas-
poid Chartrand $1, Joe Ohartrand
$1, Mns. B. Ohartrand 50c, Leifur
Joihnison $2, Steini Skagfeld $2, J. R.
Wilks $1.50.—Samtate......$82.50
Arður af isomkomu að isafold
P.O., Man................. 20.00
Jón J. Hoffman, Hectola.... 5.00
$107.50
T E. Thorsteinsson.
Létt að ráða fram
úr
Ef þú þjáist af maga veiklun,
meltingarleysi, harðlífi, uppþembu
og höfuðverk, svefnleysi, tauga-
slekkju o.s.frv. og veizt hvað bezt
hentar við því, þá muntu brúka á-
byggilegt meðal og bíða ekki þar
til veikin er orðin alvarleg. En á-
byggilegasta meðalið er Triner’s
American Elixir of Bitter Wine.
Það hreinsar magann og þarmana,
hjálpar meltingunni, eykur lystina
og styrkir allan líkamann. Fæst í
lyfjabúðum og kostar $1.50. —
Fyrir kvef og hósta, sem mikið er
af á þessum tín^a ársins ættuð þér
að brúka Triner s Coug:h Sedative.
Kostar 70 cent. Við gigt og flug-
gigt er Triner’s Liniment óviðjafn-
anlegt; kostar 70 cents. Jospeh
Triner Company, 1333—1343 S.
Ashland Ave., Chicago, 111.
I Trinerg meðul fást ÖU kjá Alyin
Sales Co, Dept. 15, P.O. Bex 66
* Winnipeg, Man.
Engra manna land/
/
Eg sveifla mér með vorsins vindum þeim,
er vitja mín með kraft hins nýja og unga,
um vetrar spor í héluþöktum heim
á heljarslóð í myrkrið kalda og þunga;
þá vegi sjálfur vil eg nánar skoða,
sem vorið hefir komu sína að boða.
Sem maðkað hold á bleikri beinagrind
með berum og með djúpum augna-iholum
og tanngarð beran, tungulaus og blind,
og tennur eftir heiftar-bit í molum,------
þar ríkir hatrið eitt á tóftum auðum
í andrúmslofti af mannabúkuin dauðum.
Þess landamerki eru enginn sær
og ekki 'heldur tindar hvítra fanna;
en gaddavír og gryfju-raðir tvær
þar girðir, markar—landið engra manna;
en yfir grúfir himinn heiftar-dökkur,
þar heftir geislann sprengikúlna mökkur.
Þar svíður hálfrar aldar voða und,
er erfðu börn við feðra nái kalda
frá '71 — og síðan hverja stund
varð sverðið draumur menningar og valda,
bví sigur-bros frá ygldum Bismarcks brúnum
það brendi mikla þjóð með -hefndar rúnum.*1
Hin þýzka frægð um feðra banaslóð
við fagra Rín, — var keypt með dýru verði
og Dauschland uber alles — sigur-ljóð,***
varð eldheit hvöt til leiks með blóðgu sverði:
það skugga sló á Bretlands víða veldi
og vakir nú í haturs-logans eldi.
Sem ernir tveir, með beittar kreftar klær
í kjöti að beinum—fyltir heiftar móði—,
er geta ekki aftur losað þæ'r
unz aflið þverr, með þeirra hjarta-blóði,
svo barist er, með böls og heiftar kenning,
unz blóði drekkist 20 alda menning.
Þó kemur vorið þar með yl og ást
og andar lífsins gjöf um nakin rjóður,
en alt þess sigurafl og vald þar brást,
því eitrað gas-loft myrðir sérhvern gróður.
Því kúlna-hríð og bláir byssu-munnar
þar brenna lögmál guðs og náttúrunnar.
Hvað gæti bælt ’inn heita hildar-leik?
eg hrópa, — þó eg geti minna öllum—;
eg vona þó að rödd mín veil og veik
hún veki samhug—jafnvel steina í fjöllum,
því þar finn eg þó líf í litlum mosa,
sem leyfir sér mót vorsins sól að brosa!
Pálmi.
*) Svæðið milli stoobgrafanna er alment kallað hér:
“No men’s land.” **) Hér er ábt við f.ransk-þýzka sitríð-
ið 1871, er Eratotoar mistu Elisass-Lorraine. ***) Þýzkur
þjóðsöngur: “Þýztoaland er öilum voldugra.”
;Vi
KAUPIÐ
Heimskringlu
Blað FÓLKSINS og FRJALSRA skoðana og elsta fréttablað Vestur-tskndmga
Þrjár Sögur!
og einn árgangur af blaðinu fá nýir kaupenckir, sem senda
oss fyrirfram eins árs andvirði blaðsins. — Fyr eða síðar
kaupa flestir Islendingar Heismkringlu. — Hví ekki að
bregða við nú og nota bezta tækifærið? — Nú geta nýir
kaupendur valið þrjár af eftirfylgjandi sögum:
•'SYLVIA.” “HIN LEYNDARDÓMSFULLU SKJÖL.” “DOLORES.”
“JÓN OG LARA.” “ÆTTAREINKENNIÐ.” “HVER VAR HON?”
“LARA......LJÓSVÖRDURINN.” “KYNJAGULL” “BRÓÐUR-
DÓTTIR AMTMANNSINS.”
Sögusafn Heimskringlu
Þessar baekur fást
keyptar á skrifstofa
Heanskringla, meSan
upplagið hrekkur.
Enginn auka
kosánaður við póst-
gjotd. vér borgum
þann kostnað.
Sylvía ............................. $0.30
Bróðurdóttir amtmannsins ............ 0.30
Dolores ....—....................... 0.30
Hin leyndardómsfullu skjöl........... 0.40
Jón og Lára ....................... 0.40
Ættareinkennið.....................t 0.30
Ljósvörðurinn...................... 0.45
Hver var hún? ....................... 0.50
Kynjagull ........................... 0.35
Mórauða músin ....................... 0.50
Spellvirkjamir ...................... 0.50