Heimskringla - 15.08.1918, Blaðsíða 1
V
Opi'ð á kveldin til kl. 8.30
Þeg&r
Tennur
Þurfa
AðgerSar
Sjáið mig
DR. C. C. JEFFREY
“Hinn varkári tannlæknir’’
Cor. liOgran Ave. og Maln St.
SLATTUVÉLA- OG BINDARA-
PARTAR ALLS KONAR
Blndara Seicldökar, hver - - - - -
Slflttuv^la Hnffbldð (25) .... 1.71
Bindara Hnlfhlöb (25)------------1.7S
Slfittuvéla Hnffar, hver ..... 2.7S
Bindara Hntfar, hver ...... :t.25
Slfittuvóla ok Blndara Guards - - 0^8
Guard IMates (25) ........ 1.5Ö
Sendið eftir vorri nýju Verðskrá.—Vér
seljum allskonar verkfæri og vélp&rta
THE JOHN F. McGEE CO.
79 Henry Ave., WINNIPIO
XXXII. AR.
WINNIPEG, MANITOBA, 15. ÁGOST 1918
NÚMER 47
Almennar frjettir.
CANADA.
Styrjöldin
Frá vestur-vígstöðvunum.
Eins og skýrt hefir verið frá í
síðustu blöSum voru ÞjóSverjar
hraktir alla leiS frá Marne ánni til
Vesle árinnar og tóku þeir þar aS
geta veitt viSnám á milli Soissons
og Rheims. SíSustu viku mátti
heita hlé á sókn bandamanna á
þessu svæSi og hafa þeir látiS sér
lynda smá áhlaup hér og þar og í
mörgum stöSum fengu þeir brotist
yfir Vesle ána. En þar sem und-
anhaldi ÞjóSverja á þessu svæSi
var nú lokiS, er ekki ólíklegt aS
þeir þýzku hafi veriS farnir aS
draga andann léttara og teknir aS
halda aS þaS versta væri um garS
gengiS.
En sú gleSi þeirra varS ekki
langvinn, því áSur langt leiS tóku
bandamenn aS hefja öfluga sókn
gegn þeim á öSru svaaSi og hrekja
þá þar aftur á bak meS engu minni
aSgangi en þeir voru hraktir frá
Marne. Var þetta á svæSinu fyrir
austan Amiens, frá Morlancourt til
Montdidier og eftir eins og hálfs
dags sókn var búiS aS hrinda
ÞjóSverjum þarna til baka um 1 1
mílur. Kom sókn þessi þeim
mjög á óvart og sóttu bandamenn
þarna meS svo miklum krafti, aS
þeir fengu ekki minsta viSnám
veitt. SíSan frá byrjun stríSsins
hafa ófarir þeirra aldrei veriS
meiri en viS þetta tækifæri. Á
öllu þessu svæSi sem í stríSsfrétt-
unum er nefnt Picardy-svæSiS,
urSu þeir undan aS hopa og tap
þeirra í mönnum og öSru var stór-
kostlegt. NáSu bandamenn brátt
borginni Montdidier og var þetta
þeim hinn mesti sigfur. Borgina
Morlancourt, viS hinn enda sókn-
arsvæSis þeirra, tóku þeir einnig
strax í byrjun og eftir því sem þeir
komust lengra áfram, urSu sigur-
vinningar þeirra fleiri. Á mánu-
daginn sögSu fréttirnar, aS Can-
ada og Ástralíumenn hefSu tekiS
Chaulnes, sem er járnbrautar miS-
stöS og um leiS hjartastöS þessa
bardagasvæSis, en af fréttunum
næsta dag aS dæma, hefir þetta
missögn veriS, því þá er sagt, aS
ÞjóSverjar haldi bæSi Chaulnes
og Roy enn þá, en eigi í vök aS
verjast gegn hinni öflugu sókn
bandamanna.
HvaS margir fangar hafi veriS
teknir í alt í þessari seinustu sókn
ber fréttunum ekki saman um.
SíSustu fréttir (miSv.d.) segja
Frakka og Breta til samans hafa
tekiS um 28,000 fanga og 600
stórbyssur, síSan þann 8 þ.m. aS
yfirstandandi sókn byrjaSi. Hafa
þeir einnig tekiS feikna birgSir af
vistum og skotfærum, sem óvin-
unum hefir veriS nauSugur einn
kostur aS skilja eftir. — SíSan
bandamenn byrjuSu aS sækja,
1 8. júlí síSastl., hafa þeir í alt tek-
iS um 70,000 fanga, 1,000 stór-
byssur og 1 0,000 vélbyssur og þar
aS auki afar stórar birgSir af skot-
færum og öSru.
MeS þessum atrennum sínum
hefir bandamönnum áunnist mik-
iS. Þeir hafa hreinsaS burtu Cha-
teau-Thierry “vasann” og þar meS
bundiS enda á hættuna gegn Ep-
ernay og París; náS Montdidier
og þar meS leyst Amiens úr
hættu; tekiS á sitt vald tvær járn-
brautir, frá Paris til Chalons og frá
Paris til Amiens, og var þetta
þeim ómetanlegur gróSi.
Sóknin á Picardy svæSinu hefir
nú færst suSur á bóginn og keppa
bandamenn þar gegn Lassigny,
Roy og Noyon. Verjast ÞjóSverj-
ar þama meS öllum þeim krafti,
sem þeir eiga völ á, en af síSustu
Sveinn Hjaltalín Oddson
er fæddur 31. September 1899 í
Reykjavík á Islandi. Foreldrar
hans voru þau hjónin, Gunnar
sál. Oddson frá Hvammi í Kjós
og Sesselía Sveinsdóttir, ættuð
frá Sel í Árnessýslu, og sem nú
býr að Árborg, Man. Sveinn
kom með foreldrum sínum til
þessa lands árið 1900, þá á fyrsta
ári og ólst upp hjá þeim í Fram-
nes-bygð í Nýja íslandi. Gekk
hann i herinn í aprílmán. 1916, í
223. herdeildina, og fór með her-
deild þeirri í sama mánuði 1917.
Til Frakklands var hann sendur
í desembermánuði síðast liðnum
og hefir verið þar síðan. — Árit-
an hans nú er: Pte. Charles
Oddson, No. 294266, 78th Batt.,
B.E.F., France.
fréttum aS dæma er þó vörn
þeirra mikiS aS linast. — Canada-
menn hafa tekiS öruggan þátt í
sókninni í Picardy og aS vanda
getiS sér hinn bezta orSstír. Segir
ein fréttin, aS þeir hafi í alt tekiS
9,000 fanga síSan sókn þessi byrj-
aSi og mikiS af hergögnum.
I Flandri gerSu Bretar skyndi-
legt áhlaup á skotgrafir óvinanna
í Lys dalnum, fengnu tekiS þar af
þeim fimm þorp og hrakiS þá aft-
ur á bak um 8 mílna svæSi. HvaS
vörn ÞjóSverja er léleg í seinni tíS
stafar aS sjálfsögSu af því, hve
kostbært undanhaldiS frá Marne
hefir veriS þeim. En nú eru þeir
sem óSast aS afla sér varaliSs frá
öSrum svæSum og mótspyrna
þeirra um leiS aS eflast. En von-
góSir munu bandamenn vera aS
úr þessu muni Ferdinand Foch
fara aS hafa yfirhöqdina í öllum
viSureignum. ,
Czecho - Slovakar
bandaþjóð.
Brezka stjórnin hefir gefiS út
formlega yfirlýsingu þess efnis, aS
Czecho-Slovakar á Rússlandi til-
•heyri nú bandalagi sambandsþjóS-
anna og her þeirra er þar meS viS-
urkendur sem partur af herafla
þessara þjóSa gegn MiSveldunum.
Bretar, Frakkar, Czecho-Slo-
vakar og Bandaríkjamenn sækja
nú suSur af Archangel í áttina til
Petrograd og af síSustu fréttum
aS dæma eru nú hersveitir þessar
í eitthvaS 250 mílna fjarlægS frá
höfuSborg Rússlands. ÞjóSverj-
ar eru aS senda herafla til Petro-
grad í þeirri von aS hægt verSi aS
halda borginni. Sagt er aS áform
þeirra sé aS taka þar viS öllum
yfirráSum, enda eru nú áhrif Bol-
sheviki stjórnarinnar óSum aS
þverra og fólkiS meir og meir aS
snúast gegn henni.
Stórkostlegar orustur eru vafá-
laust í vændum á Rússlandi á milli
ÞjóSverja og bandamanna, og
sem gera út um þaS hvort Rúss-
land í framtíSinni á aS verSa sjálf-
staatt lýSveldi eS aS eins hjálenda
Þýzkalands.
Sambandsstjórnin hefir nýlega
tilkynt, aS í ráSi sé aS Canada
sendi liSstyrk til Síberíu, til aS-
stoSar Czecho-Slovökum í baráttu
þeirra gegn MiSveldunum. Ekki
hefir enn veriS fullráSiS hvaS
margir menn verSi sendir héSan,
en taliS er víst aS þelta verSi um
4,000 menn til aS byrja meS.
VerSa menn þessir sendir til borg-
arinnar Vladivostok og þaSan
munu þeir fara til cfSstoSar viS
herdeildir Japcma og Bandaríkja-
manna, sem nú sækja gegn Bol-
sheviki hersveitunum og ÞjóS-
verjum í Síberíu.
Af skýrslu lsindbúnaSar deild-
arinnar hér í Manitoba aS dæma,
sem birt var 9. þ.m., þá eru upp-
skeruhorfur hér nú aS mun betri
en fyrir þremur vikum síSan.. —
Töluvert regnfall í seinni tíS hefir
haft hin æskilegustu áhrif. Sunnan
og austan vert í fylkinu er haldiS
aS hveitisláttur muni alment byrja
v kring um 12. þ.m., en í norSur-
sveitunum eitth aS tveim vikum
seinna. Frost hafa gert töluverS-
an skaSa, einna mest þó í Swan
River dalnum og eru sumir akrar
þar alveg eySilagSir. Mjög lítill
skaSi hefir veriS af hagli þetta ár.
Hafra og bygg akrar hafa víSast
hvar mikiS tekiS sig í seinni tíS,
flax lítur vel út víSast hvar og alt
bendir til aS kartöflu uppskeran
verSi ágæt.
Hermálastjórnin hefir nú svo
fyrir skipaS, aS meSlimum Can-
ada hersins, sem nú eru í Canada,
verSi öllum veitt leyfi til þess aíS
aSstoSa viS uppskeruvinnuna. Til-
tekur skipun þessi, aS slíkt leyfi
veitist öllum hermönnum nú í
landinu, sem áSur hafi unniS aS
landbúnaSarvinnu. Ekki er þeim
þó lagt aS skyldu aS þeir verSi aS
vinna á sömu stöSum og áSur og
geta hermennirnir því komiS sér
fyrir hvar sem þeim sýnist. LeyfiS
er takmarkaS viS sex vikur og á-
skilur hermálastjómin sér rétt til
aS geta kallaS mennina til baka
nær sem nauSsyn krefur.
------O-------
BANDARÍKIN.
Spellvirki þýzku kafbátanna
meS fram ströndum Bandaríkj-
anna halda enn áfram. Á mánu-
daginn var fengu þeir sökt nálægt
Fire eyju norska eimskipinu “Som-
merstad.” Allir skipverjar kom-
ust af. Á laugardaginn var
var Bandaríkja skipinu “Katie
Palmer” sökt og þegar þetta er
skrifaS er haldiS aS skipshöfnin
hafi öll farist, utan 4 menn, sem
teknir voru í kafbátinn. Varþeim
leyft aS senda skeyti til lands.
Þremur öSrum stórum skipum var
einnig sökt nýlega, en aS svo
komnu hafa ekki borist um þetta
neinar greinilegar fréttir.
Lánveitingar Bandaríkjanna til
sambandsþjóSanna nema nú í alt
$6,492,040,000 og er þetta feiki-
lega stór upphæS. Nýlega var ný
lánveiting tilkynt af þinginu, sem
nemur $112,000,000. Af þessu
fá Frakkar $100,000,000, Belgía
$9,000,000 og Serbía 3,000,000.
Wilson forseti var nýlega all-
harSorSur í garS hinna svo nefndu
sjálfdæmislaga (lynch law). KvaS
hann hörmulegt til þess aS hugsa,
aS viSgangast skyldi í öSru eins
landi og Bandaríkjunum aS menn
væru drepnir án dóms og laga, og
átaldi harSlega þá, sem til slíks
stofnuSu meS æsingum og gaura-
gangi. SagSi hann aS slíkt væri
aS svíkjast undan merkjum sannra
lýSfrelsis hugsjóna og taka upp
ofbeldis aSferSir lítt þroskaSra og
fákunnandi þjóSa. SkoraSi hann
fastlega á þjóS sína, aS binda
enda á aS þetta gæti komiS fyrir.
------o------
Þýzk blöð kvíðaslegin
Frá Amsterdam kemur sú frétt,
aS þýzku blöSin séu nú þrungin
kvíSa yfir ástandinu á Rússlandi í
seinni tíS. Fall Bolsheviki stjórn-
arinnar virSist nú á næstu grösum
og áhrif ÞjóSverja á Rússlandi þar
af leiSandi á heljarþremi. BlaSiS
“Vossiche Zeitung”, sem út er
gefiS í Berlín, segir: "Ósveigjanleg
örlög virSast vera aS hrekja
Þýzkaland til nýrrar baráttu viS
Rússland, utan unt verSi aS af-
stýra þessu á síSasta augnabliki.”
— öllum þýzku blöSunum kemur
sanan um þaS, aS flótti þýzku
sendiherranna frá Moscow til
Pskow sé “undanhald frá Rúss-
landi” og eitt þeirra kemst þannig
aS orSi: “ÞjóS tætt til agna af
innbyrSis sundrung, vaikt af upp-
reistum og borgara stríSi, getur
samt sýnt nægilega mikla ein-
drægni til þess aS gera ónýta
Brest-Litovsk samningana.”
Sigurður Jósúa Kolbeinsson
er fæddur í Portage la Prairie,
Man., 9. apr. 1895. Foreldrar hans
eru Þórður Kolbeinsson frá
Hreimstöðum í Norðurárdal og
Guðriður Jónsdóttir frá Eini-
felli í Stafholtstungum í Mýra-
sýslu. Sigurður bauð sig til her-
þjónustu í sjóherinn þann 10.
nóv. 1917. Hann kvongaðist þ.
16. s. m. ungfrú Aðalbjörgu, Sig-
rúnu Arngrímsson, ættaðri úr
Skagafirði. Sigurður var kallað-
ur 14. jan. 1918 og þá strax send-
ur til Halifax. Hann er þar við
æfingar á herskipinu “H.M.C.S.
Niobe.
Lenine og Trotzky
flúnir.
Nýleg frétt segir þá Lenine,
stjórnarformann á Rússlandi, og
Leon Trotzky, aðal aSstoðarráð-
herra hans, flúna til Kronstadt,
sem er sjóliSsstöð nálægt Petro-
grad. Er þetta skoSaS sem vott-
ur þess, aS mótspyrnan gegn Bol-
sheviki stjórninni sé óSum aS efl-
ast. Czceho-Slovakar hafa nú
dregiS aS sér óvígan her og sækja
knálega fram á hersvæSum Síber-
íu. Bandamenn eru nú teknir aS
senda þeim liSstyrk í stórum
stýl og er því fult útlit fyrir, aS úr
þessu fari Bolsheviki stjórnin aS
eiga all-örSugt uppdráttar. Hald-
iS er aS stjórnarsetriS verSi flutt
frá Moscow til Kronstadt í nálægri
framtíS. Ein fréttin sagSi þá Len-
ine og Trotzky á leiS til Þýzka-
lands, en áSur langt IeiS var fregn
sú borin til baka. En þó Bolshe-
viki stjórnin hjari enn þá, virSist
alt benda til aS hún eigi ekki langt
eftir, sem betur fer.
------O------
Starfsemi Rauða
Krossins.
Fjársöfnun fyrir RauSa Kross-
inn hefir mikla þýSingu fyrir hina
hugprúSu hermenn, sem nú berj-
ast í þarfir frelsisins og réttlætis-
ins á hinum blóSugu vígvöllum
Evrópu. Án aSstoSar þjóSarinn-
ar hér heima fyrir myndi þetta um-
fangsmikla og góSa líknarstarf
undir eins líSa skipbrot. En von-
andi lætur Canada þjóSin slíkt
aldrei um sig spyrjast. AS styrkja
RauSa krossinn meS fjárframlög-
um er nú engu síSur nauSsynlegt,
en aS senda skotfæri og vistir til
hermannanna.
Ljóst dæmi upp á hina miklu
starfsemi RauSa Krossins er her-
manna sjúkrahúsiS í Joineville-le-
Pont, nærri París, sem Canada
RauSi Krossinn hefir nýlega reist
og gefiS lýSveldinu frakkneska. Á
þetth aS skoSast sem vottur þeirr-
ar samúSar, sem nú gerir vart viS
sig hjá Canada þjóSinni í garS
þessa frjálsa og öfluga lýSveldis,
sem svo mikiS hefir lagt í sölumar
í hinni ægilegu yfirstandandi bar-
áttu gegn einveldi og kúgun.
Sjúkrahús þetta er stórt og hiS
vandaSasta í alla staSi og er því
gjöf þessi Canada þjóSinni til hins
mesta sóma. Er þama húsrými
fyrir 520 sjúklinga og öll tæki og
útbúnaSur eins fullkomiS og fram-
ast má verSa.
Sjúkrahús þetta var formlega
afhent frakknesku stjóninni af Sir
Robert Borden, er hann kom til
Frakklands nýlega.
-------o------
Bréf úr bygðum
íslendinga
# Minneota, 31. ágúst 1918.
Ilciðraði ritstjóri:
Hér er tíðindalítið í orði kveðnu,
þótt svo sé þó ekki í raun og veru,
ef ræða skyldi heitasta spursmál
dagsins, sem er stríðið og þótttaka
vor í þvf. — Að því er íslendinga hér
snertir er óhætt að fullyrða, að þeir
st-arfa allir af einum huga málefni
því til styrktar, »em þarist er fyrir
af þessari þjóð og handamönnum
hennar. — Heilsufar er yfirleitt gott
hér manna á meðal, það eg til veit.
Og tfðin er ágæt. Nokkrir snarpir
regnskúrir komu í vikunni sem leið,
er lögðu dálítið hafra-akra. Mikill
skaði held eg þó að ekki hafi orðið
að þvf hér i bygðunum me5al ls-
lendinga. Bændur eru nú í önnum
við að skera akra sína, og virðast
uppskeruhorfur ágætar, að því er
hægt er að sjá, á öllum þeim tég-
undum, isem menn rækta hér, bæði
hveiti, höfrum, byggi, línfræi og
maís, svo sjaidan eða aldrei hefir
betra útlit verið með alt, og kemur
það sér vel nú á dögum. — Eg vona
að þér, herra ritstjóri, afsakið ílýt-
isverkið, sem á þessum iinum er.
Með virðingu,
María G. Árnason.
Markerville, 7. óg. 1918.
(Frá fregnrita Heimskringiu).
1 lftiifjöriegri fréttagrein, er stóð í
Heimskringlu í maí síðasti., héðan
frá Markerville, var eigi getið dauðs-
falla þeirra, sem orðið hö'fðu um
lengri tíma; var það einnig tekið
fram, að ástæða til þess væri sú, að
þar sem séra Pétur Hjálmsson frem-
hér ailar greftrunar athafnir með-
al íslendinga, hefði þegar getið
þeirra er dáið hefðu um nokkurn
timp, og væri engin ástæða til að
taka það upp aftur; því var það, að
greinin ófyrirsynju ekki gat um frá-
fall J. P. Bardal, sem skeði um það
leyti, en eigi af neinni lítilsvirðingu,
síður en svo. En hið sanna mun
vera, að hlutaðeigendur munu ekki
hafa beðið séra P. H. að geta þess,
og því hefir hann ekki gjört það.
Jón Páll var fæddur 18. okt. 1878,
að Garðar, N. Dak., að eg hygg; for-
eldrar hans voru hjóinin Benedikt J.
Bórdal—einn af fyrstu landnemum
hér—, og Sesselja Pólsdóttir; að
öðru leyti má sjá um ætt hans í
“Ágripi landnámissögu Isl.” í þess-
ari bygð. Jón sál. var vandaður
maður, áreiðanlogur til orða og at-
hafna, sem bezt varð ákosið, fremur
greindur maður, stiltur og yfirlætis-
laus, og rpglusamur um alt, vel þekt-
ur af öllum, sem kyntust honum;
hann lézt á eignarjörð sinni, ó-
kvæntur, 14. maí síðastl.
Þetta vor og sumar hefir tíðarfar-
ið verið hér óhagkvæmt öllum jarð-
argróða; þurkar og hitar langsamir
og miklir, aldrei regnfall fram i
júlf öndverðan; grasvöxtur varð þvf
seinn og lftill, svo til vandræða horf-
ir með heyfeng manna í sumar; nú
fyrir skemstu féll hér dálítið regn,
sem bætti nokkuð grasvöxt; akrar
eru yiir höfuð rírir, tfðin of þur fyr-
ir þá, og svo skemdir af ormi (cut-
worm) víða, og næturfrost hefir
tvisvar sinnum skemt hér. Heyvinna
byrjaði hér um miðjan júlí, en al-
gjörlega um þann 20.; nýting er ó-
gæt á því litla, sem fæst; ræktað
gras er svo lélegt, að víða mun það
hálfu rýrara en undanfarin ór.
Litlar Mkur eru til, að bændur geti
haldið skepnum sínum yfir næsta
vetur sökum fóðurskorts, því ofan á
ilt árferði bætist, að vinnukraftur-
inn er ónógur, þar sem búið er nú
að taka héðan marga nýta menn,
er betur hefðu ikyrrir verið en aust-
ur á orustuvöllum í Evrópu.
Heilsa fólks hér um sveit er víðast
góð; smámsaman gerir samt botn-
langa veikin vart við sig. Nýlega
var við henni gerður holdskurður á
tveimur, Júlíusi Bardal, fullorðnum
manni og ungum syni B. G. bónda
Thorlakssonar, sem eru á góðum
batavegi.
Símskeyti.
mmo
Á mánudaginn barst Heimskringlu eftirfylgjandi
símskeyti, sem skýrir sig sjálft :
“Danmörk og tsland komast að samningum,
er bornir verða undir þjóðar atkvæði í sept-
ember-mánuði næst komandi. Samningar
þessir ákveða að þtssi tvö lönd myndi sam-
band tveggja konungsríkja, undir sameigin-
legum konungi, og tsland fær nm leið sérstak-
an fána. Þingið á tslandi þessu sterklega
hlynt.”
Af frétt þessari að dæma hafa Danir slakað mikið
til í fánamálinu og mun þetta því verða gleðifrétt
öllum íslendingum.
1