Heimskringla - 29.08.1918, Blaðsíða 4

Heimskringla - 29.08.1918, Blaðsíða 4
4. BLAÐSfÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 29. ÁGÚST 1918 WINNIPEG, MAN., 29. ÁGÚST 1918 Sigur næsta ár. Allra augu hvíla nú á orustuslóðum Frakk- lands og ala að sjálfsögðu margir þá von í brjósti, að stríðið muni enda þetta ár í algerð- um sigri bandamanna. Ekki virðist þetta þó skoðun þeirra manna, sem við herstjórn bandaþjóðanna eru riðnir og þar af leiðandi slíkum málum kunnugastir. Þeir eru flestir þeirrar skoðunar, að enn sé herafli Þjóðverja svo sterkur, að til úrslita orustu sé ekki að hugsa þetta ár. Ef til vill verður hægt að hrekja þá alveg burt úr Frakklandi og ekki ó- mögulegt, að eitthvað verði hægt að taka frá þeim af Belgíu, en við meiri sigurvinningum geta bandamenn tæplega búist á þessu hausti. Stríðsvélin þýzka er án efa töluvert að lask- ast, en á meðan innbyrðis friður helzt í Iandi þeirra heima fyrir, geta Þjóðverjar þó haldið stríðinu áfram í marga mánuði enn þá. Fregnriti blaðsins New York Times, sem nú er með Bandaríkja hernum á Frakklandi, skrifar blaði sínu nýlega sem fylgir: “Það er sterk trú Bandaríkja hermann- anna, að sex mánuðum eftir að sóknin byrjar næsta vor, verði Þjóðverjar sigraðir. Þó Þjóðverjar séu enn all-öflugir, þá er það skoðun þeirra í her vorum, sem völ eiga á beztri þekkingu, að herafl þeirra sé að veikjast til muna. Markmið bandamanna í marz var að halda Þjóðverjum til baka á öll- um svæðum þangað til veturinn legðist að og kæmi í veg fyrir allar stórvægilegar og um- fangsmiklar hernaðar athafnir. Verkefni þetta hefir engan veginn reynst bandamönn- um ofurefli, því nú er svo komið, að óvinirnir eru að verjast á öllum svæðum vesturstöðv- anna — hættir með öllu að sækja. Augna- mið bandamannna nú er að veikja þá sem mest og undirbúa þannig öfluga sókn gegn þeim vorið 1919. Sú skoðun, að sríðið muni endast eitt ár enn þá er nú að breiðast út á meðal frakk- nesku þjóðarinnar, og heyri eg engar kvart- anir yfir þessu. Og jafnvel þó styrjöld þessi endist enn lengur, þarf enginn að óttast, að Frakkar láti hugfallast.” ♦——-——--------------------------——* Þátttaka kvenna í stríðinu. David Lloyd George stjórnarformaður á Englandi, var nýlega boðið að mæta á full- trúaþingi sameinaðra kvenna bandaþjóð- anna, er haldið var í París. Sökum anna fékk hann ekki orðið við boðinu, en skrifaði þing- inu bréf, þar sem hann lauk lofsorði miklu á alla framkomu brezkra kvenna síðan stríðið byrjaði. Einn kafli bréfs hans hljóðar sem fylgir í íslenzkri þýðingu: “Mér er áhugamál að bera vitni hinni öfl- ugu þátttöku kvenna á Englandi í velferðar- máium þjóðarinnar á þessu þýðingarmikla tímabili mannkynssögunnar. Þær hafa ekki eingöngu borið Byrði sorgar og aðskilnaðar með óbifandi hugarþreki og þolgæði, heldur hafa þær einnig tekið sér á herðar stóran hluta af byrði þjóðarinnar, sem nauðsynleg er og óumflýjanleg til þess að hægt sé að halda stríðinu áfram með fullum krafti. Ef ekki hefði verið fyrir hina ágætu fram- komu kvenna, er þær sjálfviljugar buðu sig til vinnu í sjúkrahúsum og skotfæraverksmiðj- um, tóku að sér umsýslu störf af öllu tagi og margs konar önnur stríðs störf, stundum í ná- munda við skotgrafirnar, þar Iíf þeirra er dag- lega í hættu — hefði hvorki England né önn- ur lönd bandaþjóðanna, geta staðist sókn ó- vinanna á undangengnum næstliðnum mán- uðum. Fyrir þessa þénustu í þarfir vors sam- eiginlega málstaðar, verðskulda þær mann- kynsins fylsta þakklæti. Eg hefi oft heyrt sagt í Ii^inni tíð, að konur væru óhæfar til þess að greiða atkvæði sökum veikleika, er til þess kæmi að skilja alvöruþrungin mál þjóðarinnar—og nm leið hefir því verið , fleygt, að þær myndu lítt hæfar til þess að bera þunga stórrar styrjaldar. Reynsla mín í Suður-Wales seinustu viku hefir þó sannfært mig um, að kvenþjóð lands vors skilji til hlít- ar hvað í húfi er í þessu stríði. Eg er fast- trúaður á, að þeim sé eins ljóst og nokkrum öðrum, að enginn friður er mögulegur, engin framsókn eða lífsánægja í þessum heimi á meðan skrímsli hervaidsins fær að drotna ó- hnekt yfir hinum ístöðuminni þjóðum. Kvenþjóðin skoðar stríð þetta baráttu í þágu réttlætisins og manngæzku hugsjóna og fylgir fastlega þeirri stefnu, að friður verði ekki saminn fyr en bandaþjóðirnar geti komið í veg fyrir að aðrar eins hörmungar fái skoll- ið yfir mannkynið í annað sinn Eg er viss um, að yfirlýsing kvenna í Suður-Wales er rétt sýnishorn af anda og afstöðu allra annara kvenna á Englandi. Vér væntum ekki eingöngu eftir aðstoð til þess að fá sigrað í stríðinu, heldur hvöt og uppörvun við hverja endurbyggingu, er vér verðum að taka oss fyrir hendur, eftir að sig- ur er unninn. Konur þær, sem í stórum hópum hafa farið til Frakklands til þess að starfa fyrir banda- þjóðirnar, eru á meðal fremstu leiðtoga þess- arar viðreisnar-hreyfingar. Skeyti mitt til fulltrúa þeirra, sem nú mæta í Paris, er þetta: ‘Vel gert. Haldið starfinu áfram. Þér eruð að aðstoða við sköpun nýrrar jarðar fyrir yður sjálfar og börn yðar’.” - ■ - - -41 Jatningjar. Eins og skýrt er frá á öðrum stað í blað- inu, er forsætisráðherra Canada, Sir Robert Borden, kominn heim úr Englandsför sinni. Mun þess nú ekki lengi að bíða, að hann taki til starfa hér heima fyrir og engan minsta kvíðboga þarf fyrir því að bera, að hann muni ekki leggja frarn fylstu krafta sína Can- adahernum til styrktar og þjóðinni til velferð- ar yfir höfuð að tala. Á núverandi óánægju- tímum þjóðarinnar á hann vafalaust marga mótstöðumenn, enda er slíkt ætíð hlutskifti allra þeirra, sem æðstu stöðurnar skipa. Eng- um sanngjörnum borgara þessa lands fær þó dulist, að með framkomu sinni síðan stríðið byrjaði, hafi hann sýnt fram úr skarandi stefnufestu og mikla leiðtoga hæfileika. Um örðugleikana er í vegi hans voru, mætti rita heila bók, og þar yrði afstaða annars mann- flesta fylkis landsins vafalaust stærsti þáttur- inn. En sé alt sanngirnislega og hlutdrægnis- Iaust skoðað, verður ekki annað sagt, en hon- um hafi tekist snildarlega vel að ráða fram úr ríkjandi kröggum og hrinda stríðs- málum þjóðarinnar í viðunanlegt horf. Stríðs- stefna hans hefir verið óbifanleg og sökum þessa hafa margir gerst eindregnir fylgjendur hans, er voru svæsnir mótstöðumenn hans áð- ur—þannig bjargaði hann herskyldumálinu síðastliðið haust. 1 öllum vandamálum hér heima fyrir hefir hann sýnt mestu lipurð og nærgætni og þessu til sönnunar þarf ekki annað en nefna málamiðlunar tilraunir hans, þegar allsherjar verkfallið stóð yfir hér í Win- nipeg í vor — enda neyddist jafnvel blaðið Voröld til þess að hrósa honum á hvert reipi I fyrir framkomu alla í það sinn. Englands för hans hefir vafalaust haft mik- ilvæga þýðingu og mun þetta koma betur í ljós, þegar frá líður. Að hann er kominn heim aftur mun þó meginþorra þjóðarinnar gleðiefni, því sá er sæti hans skipaði í fjar- veru hans hefir átt Iitlum vinsældum að fagna. — Undir eins og Sir Robert steig af skipsfjöl, leyfði hann Canada blöðunum að birta eftir- fylgjandi skeyti til þjóðarinnar: “Eg var staddur erlendis í réttar tíu vikur og kem heim sannfærður um það, að aldrei hafi andi bandaþjóðanna verið stefnufastari eða ákveðnari en einmitt nú. Mest allan tímann dvaldi eg á Englandi, kom þangað skömmu eftir að Þjóðverjar höfðu hafið árangursmikla og öfluga sókn á vesturstöðvunum, fyrst gegn Bretum og svo gegn Frökkum. En þeim mikla árangri hefir nú alveg verið eytt við ósigur Austurríkis- manna á Italíu og Þjóðverja á Frakklandi. Síðan eg fór frá Ottawa 24. maí s.l . hafa um miljón hermanna verið sendir frá Banda- ríkjunum yfir hafið. Eg hefi séð margar þúsundir þeirra, um borð á skipum og í her- stöðvum þeirra, er eg heimsótti. Orð lýsa ekki þeim víðtæku og miklu áhrifum, er koma þessara öflugu hersveita hefir haft í löndum bandaþjóðanna. Öll Evrópa dáir lík- amlegt atgearfi þeirra, úrræðasemi þeirra og fjölhæfni. Þykir sæta mestu furðu á hve skömmum tíma hersveitum þessum hafi verið veitt öll nauðsynleg æfing og hafa þær fylli- lega sýnt hvað í þeim býr í hverri orustu, sem þær hafa verið reyndar í. Það er ekkert spursmál, að sigurvinningar síðustu fjögra I vikna hefu ekki verið mögulegir án þeirra Bandaríkja hersveita, sem komnar eru í fremstu skotgrafir. Örugg og góð samvinna á sér stað milli hersveita Bandaríkjanna, stórveldisins brezka og Frakklands. Af orðum Sir David Beatty að dæma, og sjóliðsforingjanna Síms og Rod- man, ríkir það sama hvað snertir brezka og ameríska sjóliðið. Canada hermennirnir hrósa happi yfir að þeim gefst nú tækifæri að bcrjast hlið við hlið með frændum sínum og nágrönnum. Hermenn þessara tveggja ríkja eru vissulega líkir, geta talist jafningjar og á þessu hafa Þjóðverjar fyllilega fengið að kenna. Við fyrri atrenn- ur Þjóðverja, er þeir hófu sókn sína í vor, tók Canada herinn ekki þátt í neinum þeim orustum, en á næstliðnum vikum hafa sigur- vinningar Canada manna verið eins miklir og á nokkrum öðrum tíma síðan stríðið byrjaði. Þeir hafa brotist áfram á allstóru svæði, hrak- ið óvinina um 14 mílur aftur á bak og tekið nærri 10,000 fanga og yfir 150 stórbyssur. Mannfallið þeirra megin hefir verið töluvert minna en þessi fangatala og ekki hafa þeir slept að svo komnu neinu því svæði, er þeir hafa náð haldi á.” Loftferðir. Það er svo margt og stórkostlegt það illa, sem af þessum heims-ófriði leiðir, að hitt eins og hverfur og gleymist, er af honum leiðir, sem að gagni gæti orðið og haft margvíslegar framfarir í för með sér; og að svo sé, mun sannast, nær friður kemst á. Það er einkum verklegt listfengi og efnafræðislegar framfar- ir, sem þá hljóta að koma í ljós, — ekki í nýj- um vopna tilbúningi, heldur til að efla og auka friðvænleg störf. Hin dýrkeypta reynsla, sem oft er líka ó- endanlega mikils virði, hefir kent mönnunum notkun ýmsra efna, miklu margbrotnari en áður hefir átt sér stað mannkyninu til gagns og góðs á margvíslegan hátt. En af því sem enn er komið í Ijós munu þó framfarirnar í fluglistinni vera allra stórkostlegastar. Þær munu hnýta saman mörg þau bönd milli þjóð- anna, sem þessi styrjöld hefir sundur slitið. I þessum ófriði hafa flugvélar og flugbát- ar verið marg endurbætt. Mörgu afar mikils- verðu í því efni er þá haldið leyndu enn þá. Svo mikið sýnir þó dagleg reynsla, að kunn- áttan í að stjórna loftförum og djarffærnin hefir fullkomnast margfaldlega; hreyfivélarn- ar eru kraftmeiri og stærðin aukin að miklum mun. I sumum flugbátum og flugvélum er í seinni tíð farið að hafa meira en eina hreyfi- vél. Hinar stríðandi þjóðir hafa bæði í land- her og sjóliði heila flokka af þaulæfðum flug- mönnum, sem að kunnáttu, dirfsku og hug- rekki eru fram úr skarandi. Að stríðinu afloknu, eiga þjóðir þær, sem í stríðinu hafa staðið, aragrúa af allskonar flugvélum, ásamt fjölda hinna færustu manna til að stjórna þeim. Á friðartímum þarf þessa útbúnaðar eða mannafla ekki við, hvorki í sjó- eða landher, og það virðist því sjálfsagt, að stríðsþjóðirnar, nær friður er saminn, geti mist allmikið af sínum loftferða útbúnaði til þjóðlegra framfara, undir umsjón landstjórn- anna og sérstakra félaga. I því trausti og með þeirri sannfæringu, að eftir stríðið verði loftferðir miklu almennari og fullkomnari, er í Svíþjóð þegar stofnað til Ioftferða sambands milli Stokkhólms og Málm- eyjar, Stokkhólms og Gautaborgar, og einnig á milli Stokkhólms og Finnlands. 1 Noregi er stofnað loftfara félag, sem ætlar að koma|á föstum farþega og póstflutninga ferðum milli ýmsra borga og bæja innanlands, og eftir stríðið einnig til annara landa. Einnig í stríðs- löndunum er gjört ráð fyrir loftlínum. Á Þýzkalandi: “Continental’ línan milli Berlín, Vínarborgar, Buda-Pest, Constantinopel og Bagdad; og á Bretlandi “Occidental” línan milli London, Kairo og Bombay. Þetta má að vísu nefna framtíðar draumsjónir, en fyrir að eins 20 árum var hugmyndin um að fljúga frá Kaupmannahöfn til Hróarskeldu einnig nefnd því nafni. Það eru miklar líkur til að Ioftskipin, þar með taldir Zeppelinarnir, eigi ekki miklar framfarir í vændnm, stærðin mun trauðla aukin svo miklu nemi, jafnvel þó léttari Ioft- tegund en súrefni yrði notað, og hinn feikna- mikli kostnaður við byggingu og útgjörð loft- skipanna veldur því, og fastákveðnar “línur” með Zeppelinum eru lítt hugsanlegar Flugvélar og flugbátar hafa að öllum lík- indum miklu meiri framtíð. Flugbátar til að fljúga yfir vatn svo útbúnir, að þeir geta Ifka verið á vatni, ef «kki er því meiri afda; en flugvélarnar fara yfir Iöndin. En stundum betur verið slæmt fyrir þær að lenda, einkum þar sem þéttbygt er. Það er því sanngjarnt, að fyrst um sinn megi ekki ætla flugvélum með póst og fluthing alt of langa áfanga. DODD’S NÝRNA PILLUR, gótSai íyrir allskonar nýrnaveikL Lækne gigt, bakverk og sykurveiki. Dodd’s Kidrney Pills, 50c. askjan, sex ösk> ur íyrir $2.50, hjá öllum lyfsölum eða frá Dodd’s Medicine Oo., Lt(L, Toronto, Ont. Hinn afar mikli ferðhraði flug- vélanna og svo hitt, að valin sé hin beinasta leið milli vissra staða, hlýtur að auka að miklum mun loftferðirnar. Hér skulu tilnefndar vegalendir nokkurra loftleiða milli borga: París til London 400 kíló- metrar, París til Berlín 900 km., Berlín til Khafnar 350 km., Krist- janíu til Khafnar 500 km., Khöfn til Stokkhólms 550 km., Khöfn til Árhús 150 km., Khöfn til Esbjerg 275*km., Esbjerg til Grimsby 600 kílómetrar. Geri maður flughraða fullkom- innar flugvélar að eins 100 km. á klukkustund, þá væri farið frá Khöfn til Esbjerg á 2^4 tíma, frá Berlín til Khafnar á 2>/i kl.tíma, frá Kristjaníu til Khafnar á 5 tím- um, o.s.frv. En að ferðhraði vél anna verði miklu meiri, er áreiðan- legt, sem aftur gjörir milliferðatím- ann að miklum mun styttri. Frá siðferðislegu sjónarmiði verðskulda loftfarirnar stuðning og athygli allra þjóða. Er stríðinu linnir munu flugvélarnar fara gegn um himingeiminn, þar sem engin landamerki eru, og flytja á þann hátt friðarboðskap og bjargræði allskonar, frá einni til annarar af þjóðum þeim, sem verið hafa hinir grimmustu óvinir, styðjandi sam vinnu allra siðaðra þjóða, að frið un og framsókn í heiminum. S. M. LONG, þýddi. Breytingar. (Eftir Amrúnu frá Felli.) ‘ÞaÖ veltur á ýmsu í strííSinu.” I. JÓN, SEM “FÉLL í GEGN”. Fyrir nokkrum árum kom eg til Reykjavíkur, eftir aS hafa verið fjarverandi um hríS. AuSvitað var mér nýnæmi á ýmsum skemt- unum, sem höfuSstaSurinn hefir aS bjóSa; meSal annars hreyfi- myndum. Þegar eg og vinkona mín höfS- um sloppiS stórslysalaust út úr “Gamla Bió”, var svo sem sjálf- sagt aS fara “umferS" þ. e. ganga í kring um Austurvöll. Eftir aS hafa fylgt þeim bæjar- leiS. komum viS inn á “Skjald- breiS”. Ef þú hefir komiS þar aS kveldi dags, veiztu, aS þar er ekki greitt aSgöngu; á endanum feng- um viS þó sæti; og meSan viS biS- um eftir kaffinu fór eg aS líta í kringum mig, eins og gestum er títt, og augu mín staSnæmdust viS ungan, ljóshærSan mann, sem sat skamt frá mér. "Veslings pilt urinn,” hugsaSi eg, því þaS leyndi sér ekki, aS hann var drukkinn; félagi hans var stöSugt aS hnippa í hann og þagga niSur í honum. “ÞekkirSu laglega unga mann- inn meS ljósa háriS?” sagSi eg viS vinkonu mína, “þennan, sem er aS reyna aS kveikja í vindlingn- um?” “Hvem? Nú hann,” sagSi hún hirSuleysislega; iss, þaS er hann Jón, sem 'féll í gegn’.” “Eg hélt aS Reykvíkingar væru hættir aS uppnefna fólk.” "Uppnefnal Eg held þaS sé ekki mikið uppnefni. Það er s&nn- arlegt sannnelni. Hann féll í gegn] viS stúdentsprófiS í vor, og ef þú þektir staShætti hér, þarf nokkuS til aS gera þaS, svo framarlega sem viSkomandi er ekki gagn- fræSingur frá Akureyri, eSa því frumlegri í skoSunum sínum; og Jón er hvorugt.’ “HvaSan er hann?” “Jón er Reykvíkingur sonur bláfátækra hjóna vestur í Stíg— hann fór aS drekka í efri bekkjum skólans sat einu sinni eftir og féll svo í vor, viS stúdentsprófiS". “Hvernig varS gömlu hjónun- um viS^” “Leifi gamli er ekki margmáll, gekk þegjandi út, þegar hann frétti leikslokin, og lét lengi vel eins og hann sæi ekki Jón; en mamma hans sagSi, um leiS og hún brá svuntuhorninu yfir augun: "Þú fellur ekki í gegn í næsta skifti, Nonni minn.” “Aumingja hjónin.” “Já, aumingja foreldramir, aS eiga slíkan ræfil fyrir son," sagSi vinkona mín þungbúin. “Ef til vill tekur hann próf næsta vor?” “BlessuS láttu þér ekki detta þaS í hug; hann er latari en hvaS hann er langur, og er þá mikiS sagt.” ¥ * ¥ Enn liSu nokkur ár. Veraldar- ófriSurinn geisaSi og rótaSi upp í hugum og högum margra—, og aftur var eg á ferS í höfuSstaSn- um—aS þessu sinni aS hlusta á samsöng “17. júní” í “BárubúS”. Þegar hlé varS, var mér litiS á ljósan, fallegan hnakka — eigandí hans sat tveim bekkjum fyrir fram- an mig. Eg hafSi rétt áSur tekiS eftir þreklegum höndum þar, sem klöppuSu óspart fyrir söngmönn- um. "HvaSa maSur er þetta, sem situr á milli gamla mannsins og konunnar meS köflótta sjaliS?” hvíslaSi eg aS systur minni, sem sat hjá mér. Hún litaSist um. “Eg held þú eigir viS hann Jón, skipstjórann á bifbátnum “HermóSur.” Þú hef- ir líklega séS hann fyrir vestan, hann hefir stundum fiskaS þar— # framúr skarandi duglegur og hepp- inn sjómaSur. Hver hefSi trúaS því, aS þetta byggi í honum Jóni um áriS, þegar hann féll í gegn—” "Nei! er þaS hann Jón, sem féll í gegn?” sagSi eg hálf hátt. “GóSa, bezta, gáSu aS þér”, sagSi systir mín óttaslegin. “Þú talar svo hátt." “ÞekkirSu hann?” “Nei, ónei; rétt af afspurn.” “Eru þetta foreldrar hans,' sem meS honum eru?" “Já; en þaS gengur fram af mér, aS hann skuli hafa komiS þeim hingaS; þau fara aldrei á skemtanir.” Söngflokkurinn kom inn á Ieik- sviSiS; eg rétti mig í sætinu, um leiS og eg horfSi til skiftis á fall- ega, gula hnakkann, og gömlu, lotnu konuna, og hugsaSi: Jón fellur áreiSanlega ekki aft- ur í gegn. II. “BROADWAY JOHNNY” “Broadway Johnny” hafSi feng- iS orlof í nokkra daga, áSur en hann færi til Frakklands. Þet-ta er auSvitaS ekki hans rétta nafn, eins og þú skilur, — kunningjar hans kalla hann þaS sín á milli. Hann hefir líka stundum veriS kallaSur “danshesturinn”, af því hann gerSi lítiS annaS en dansa. Jú, auSvitaS reykti hann vindlinga og drakk kampavín, þegar svo bar undir. Okkur kom saman um, aS hann væri laglegur, og ungu stúlkurnar sögSu, aS hann væri “fyrirtaks félagi” og dansaSi eins og engill; hann var ætíS reiSubúinn til aS kenna þeim nýjustu daneana — en annars skiftu þær sér ekki mik- iS af honum. Nema Mary. í hennar augum er hann bezti maSur heimsins. Mary dansar eins og bylgja, eSa blævakiS blóm—en annans er þaS af henni aS segja, aS hún gengur í helzt til stuttum kjólum, og helzt

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.