Heimskringla - 31.10.1918, Blaðsíða 4
4. BLAÐSJÐA
HEIMSKRiinGLa
WINNIPEG, 31. OKTóBER 1918
* ■', 1 ± ..........
HEIMSKRINGLA
(StofnnS 1S8«)
Knnur út & hverjum Flmtudegl.
Ctgefendur og elgendur:
THE VIKING PRESS, LTD.
Ver?5 blaCslris í Canada og BandaríkJ-
unum $2.00 um árib (fyrirfram borgaö).
^ent til Islands $2.00 (fyrirfram borgab).
Allar borgranir sendist rábsmanni blabs-
ins. Póst eba banka ávísanir stíllst til
The Vikinff Press, Ltd.
O. T. Johnson, ritstjóri
S. D. B. Stephanson, ráðsmaSur
Skrtfstofa:
■;3S 8HKRDROOKK STRKKT.. WIIVIflPKQ.
P.O. B.l 3171 Talalml Garry 411«
WINNIPEG, MANITOBA, 31. OKT. 1918
Breyttar stríðs-
horfur.
Hvað bandamenn snertir, hafa stríðshorf-
ur aldrei verið betri en nú. Sigurvissan á
þeirra hlið eflist með hverjum degi sem líður
og yfirburðir þeirra koma einlægt betur og
betur í ljós. Þjóðverjar fara nú halloka á
öllum svæðum vesturvígstöðvanna. Þar að
auki eru fylstu líkur til, að Tyrkir og Austur-
ríkismenn séu í þann veginn að ganga úr
leik. Þeir fyrnefndu orðnir dauðþreyttir á
stríðinu og fyrir löngu hættir að vona það
endi Miðveldunum í vil. Valdavonirnar, er
Þjóðverjar blésu þeim í brjóst, eru að réna
og þeir teknir að sjá alt með gleggri augum
en áður. Austurríkismenn eru líka áreiðan-
lega farnir að sjá sitt óvænna og augu þeirra
óðum að opnast fyrir því, að þrátt fyrir að-
stoð Þjóðverja muni sigurvonir þeirra aldrei
-ná að rætast. Stjórn þeirra er sögð þegar
tekin að uppleysa her sinn á mörgum svæð-
um. En hvort sem nokkuð er hæft í þessu
eða ekki, þá er enginn minsti vafi á, að víga-
móðurinn og berserksgangurinn er löngu
runninn af Austurríkismönnum og þeim nú að
eins umhugað að stríðið taki sem bráðastan
enda.
Horfur hafa þannig tekið stórum stakka-
skiftum til hins betra á hlið bandamanna, en
ekki þó þar með sagt sigurinn sé á næstu
grösum. Hin árangursmikla sókn þeirra
vakti um tíma þær vonir hjá mörgum, að á
einhverju svæðinu myndu Þjóðverjar verða
fyrir því áfalli, er riði þeim að fullu. En
þetta hefir annan veg farið, því þótt Þjóð-
verjar hafi beðið mesta manntjón og tapað
stórum svæðum, hafa þeir að svo komnu
komið aðal her sínum undan í öllum tilfellum.
Orustusvæðið styttist nú óðum og er þeir
þýzku hafa komið mannafla sínum fyrir á
nýjum varnarsvæðum, eru fylstu líkur til þeir
reynist að mun torsóttari en áður. Umsát um
víggirtar borgir hefir oft staðið lengi yfir, þar
margfalt fleiri hafa sótt en varið, og þótt
bandamenn séu Þjóðverjum nú mannfleiri, er
hætt við að umsát um Þýzkaiand myndi ekki
taka bráðan enda.
Bogi Bjarnason, sem nú berst í Banda-
ríkjahernum á Frakkiandi, eins og skýrt hefir
verið frá áður hér í blaðinu, skrifar nýlega
Páli bróður sínum í Wynyard, og er bréf hans
birt í blaðinu Wynyard Advance. Einn kafli
þess bréfs hans hljóðar sem fylgir í íslenzkri
þýðingu:
“Hvernig geðjast þér nú að fréttunum frá
vígsvæðunum? Sannarlega er nú eitthvað að
gerast! Og þó héldu Þjóðverjar þeir hefðu
lamið þrek og þor úr þeim frönsku og ensku.
Ekki skaltu samt halda þá (Þjóðv.) sigraða,
því það eru þeir ekki. Auðsýnilega eru þeir
nú að hopa aftur á bak til öflugra, víggirtra
svæða og mun því hörð barátta fram undan
áður öllu er lokið. Eg býst ekki við bráðum
endalokum. Þegar Þjóðverjar halla sér ein-
göngu að varnarstríði af alefli, mun reynast
torsótt að róta þeim og slíkt útheimta langan
tírna. Það særir mig, að þurfa að viður-
kenna þetta, en skoða þýðingarlaust að reyna
að reisa rönd við bitrum sannleikanum. Það
útheimtir mikla bjartsýni, að geta horft yfir
gaddavírs flækjurnar hérna og brosað. Þær
eru ægilegar, þessar flækjur — hin djöfulleg-
ustu tæki þessa djöfullega stríðs. En í mínum
huga eru síðustu úrslitin augljós. Svo verum
glaðir.........Mér er gleðiefni, að æðstu
stjórnendur Bandaríkjahersins eru vakandi
fyrir þeim sannleika, að stríð þetta geti snú-
ist í umsáturs-stríð (seige). Þeir efla nú til
viðbúnaðar þess stríðs, er enzt geti svo árum
saman — í stað fárra vikna eða mánaða.
Stöðvar þeirra fjölga nú óðum og hægt og
hægt eru þeir að skapa öfluga og mikilfeng-
lega stríðsvél, þar engu er gleymt, sem til
þarf. Járnbrautirnar og skotfæra og birgða-
stöðvarnar eru dásamlegar, bygðar til þess að
endast, ekki eingöngu hróflað upp til bráða-
birgða og herflutningsþarfa. I millitíðinni
eru þeir frönsku og ensku að ónáða óvinina.
Eg vænti eftir aðal-atlögu næsta sumar, sem
Bandaríkjamenn munu taka stóran þátfc í.
Enginn getur þó fyrirsagt neitt með vissu.
Stórt getur skeð á skammri stund,”
Sjón er sögu ríkari, segir máltækið ís-
lenzka. Hermennirnir sjá bardagasvæðið
með eigin augum og þar af Ieiðandi mikið
mark takandi á skoðunum þeirra. Þeim er
kunnugt um herafla Þjóðverja og vita, að
til þess þeir verði algerlega sigraðir með
vopnum, útheimtir langan tíma. Komið getur
þó eitthvað það fyrir, er breyti afstöðunni
frá því sem nú er, og sem geri þeim þýzku lítt
mögulegt að halda stríðinu áfram. Megn ó-
ánægja þjóðarinnar heima fyrir og óhugur
hermannanna myndi gera herstjórunum þýzku
afar-tregt um alla vörn. En varasamt er fyrir
bandamenn að reikna upp á slíkt.
Friðar umleitanir Þjóðverja virðast votta á-
huga fyrir því, að stríðið geti endað sem
fyrst. Af síðasta svari þeirra til Wilsons að
dæma, virðast þeir nú vera að bíða eftir
vopnahlés skilmálum bandamanna í þeirri von
að skilmálar þessir verði þeim aðgengilegir.
Renna mætti þó Þjóðverja grun í, að þessir
skilmálar verði nægilega harðir til þess að
bandíunenn fái ábyggilega tryggingu fyrir
því, að stefna þýzkrar stjórnar sé nú friður og
ekkert annað. Að stjórnendur Þýzkalands
gera sig þannig líklega til að ganga að slíkum
skilmálum, virðist sem vottur þess, að vopna-
hlé og friður sé nú ef til vill á næstu grö’sum.
En veður er oft fljótt að breytast í lofti. Ef
til vill eru friðar umleitanir þessar ,að eins Iáta-
læti fyrir Þjóðverjum. Tíminn einn leiðir
þetta í Ijós.
Austur- og Yestur-
Islendingar.
Grein með þessari fyrirsögn birtist fyrir
nokkru síðan í austur-íslenzka blaðinu
“Tíminn”. Lýsir grein þessi hlýhug í garð
Vestur-íslendinga og glöggum skilningi á af-
stoðu þeirra. Engrar tortrygni er vart í henni
og engin tilraun ger að rægja oss Vestur-
Islendinga — sem svo mjög bar á í hinum
nafntogaða fyrirlestri séra Magnúsar Jóns-
sonar.
“Tíminn” er ungt blað enn þá og hefir vart
náð mikilli útbreiðslu á meðal Vestur-lslend-
inga. En þar sem oss finst ofannefnd grein
fyllilega verðskulda að koma fyrir augu þeirra
sem flestra, birtum vér hana hér á eftir:
“Mörgum mönnum er það áhyggjuefni,
hvernig fer um þjóðarbrotið íslenzka í Vest-
urheimi og hver afstaða þess verður til heima-
þjóðarinnar er stundir líða. Er það sízt hugs-
andi mönnum láandi, þótt ekki sé þeim sama
hvernig hér fer um, þegar þess er gætt, að
ekki minna en fjórði hluti Islendinga er bú-
settur vestan hafs.
Engum getgátum skal að því leitt, hvernig
fer um lokin, en svo mikið er víst, að í mann-
anna valdi stendur að sjá svo um, að íslenzkt
þjóðerni og íslenzk þjóðrækni haldist við lýði
með löndum vestra öldum lengur — sé að
eins unnið af alúð að því beggja megin hafs.
Hún er að vísu ærið misjöfn ræktartilfinn-
ing einstaklingsins til lands og þjóðar, en það
veit sá gjörst, sem reynir, að ekkert glæðir þá
kend eins og það, að dveljast fjarri landi sínu
og þjóð. Svo er það minsta kosti fyrst í
stað. Hitt er líka reynsla, að slík kend fyrnist
og þverrar, verði henni ekkert til bjargar, ,
tíminn hleður haug nýrra áhugamála, vona og 1
vonbrigða ofan á hana, sé ekki sérstaklega
um hana fengist.
Einstöku sinnum heyrast raddir eða heyrð-
ust hér heima, sem ekki hugsuðu lengra en
það, að þeir sem vestur fiyttust væru Islandi
glataðir synir, en þetta er ekki rétt. Og það
þótt þeir eigi aldrei afturkvæmt. Má styðja
þann málstað með ýmsum rökum.
Fólksflutningar héðan til Vesturheims hafa
meðal annars leitt til þess, að íslenzka þjóðin
þekkir betur sjálfa sig'eftir en áður. Með
þeim hefir hún gengið á vog með þessum öðr- ;
um þjóðum og síður en svo orðið léttvæg |
fundin. Islendingum er komið meira sjálfs- i
traust vestan um haf, en þeir alment gera sér. ;
grein fyrir. Réttmætt sjálfstraust. Og send-
ingin sú frá löndum vestra er meira virði, en
alt annað, sem líkur voru til að þeir gætu sent
okkur heim. Vesturfararnir íslenzku fóru til
að leita gæfunnar — fundu sjálfa sig. Og
meiri hanpaför g$t engin þjóð sent sonu sína
í víking.
Tómlæti hefir um of átt sér stað um sam-
vinnu við þá sem í víking fóru vestur. Var
nokkuð um það rætt í samsæti því, er herra
Árna Eggertssyni var haldið hér í bænum nú
í vikunni, og eru nú horfur á, að eigi verði
látið ófreistað að koma henni betur í horf en
verið hefir. Og er það þá því hörmulegra
hugsjónaleysi auðmannanna íslenzku hér
heima, að einmitt nú skuli þeir vera að láta
fé sitt grafa undan þeirri samvinnu, sem þegar
var hafin og líklegust var til þess að verða
upphaf að almennari samýð og samskiftum
þjóðarbrotanna beggja megin hafs, en áður
átti sér stað. Er hér átt við Eimskipafélags-
hlutakaupin vestra í vetur. En hugsjónaleysi
er það, að geta ekki séð einhvern annan leik á
borði til ávöxtunar auðsafni sínu.
Eina bótin er sú, að ekki er alveg vonlaust
um, að einmitt upp af þessari illræmdu fjár-
græðgi einstakra manna, vaxi sá áhugi, er
vinni bug á tómlæti því, sem verið hefir verst-
ur þrándur í götu þeirrar giftu, sem þjóðinni
mætti verða að því að vera búsett beggja
megin Atlantshafs.”
♦— ---------— ----—■—■—■—-
Sigurlánið.
, Sala Sigurláns-bréfanna—Victory Bonds—
er nú hafin, hófst á mánudaginn í þessari viku.
Sökum landfarssóttar þeirrar, sem nú er að
grípa alt Canada heljartökum, verða engar
samkomur, fundahöld eða skrúðgöngur í sam-
bandi við sigurlánsbréfa söluna í þetta sinn.
Kappsamlega mun þó verða að öllu unnið,
engu síður en áður, og vonandi við góðan á-
rangur. Canada þjóðin hefir marg sýnt að
hún beri heiður sinn og velferð hermanna
sinna fyrir brjósti og því engin hætta á að
undirtektir hennar nú verði ekki góðar.
í Eins og vér höfum marg bent á, er með
öllu áhættulaust að kaupa ríkisskuldabr^
Canada. Það er bókstaflega það sama og
leggja fé á vöxtu í áreiðanlegum banka, að
öðru leyti en því, að Cánada borgar nú hærri
vexti en á sér stað með nokkurn banka. Og
betri tryggingu getur enginn fengið en allar
eignir og auðlegð Canada, þessa unga og
mikla framtíðarlands.
Lán þetta er nefnt sigur-lán og það rétti-
Iega. Alt bendir til þess, að sigurinn sé nú
vís á hlið bandamanna og eigi úr þessu ekki
mjög langt í land. — En þó stríðslok eigi sér
nú stað, verður fjárþörf Canada samt sem áð-
ur engu síður mikil. Að flytja Canada herinn
til heimahaga aftur og uppleysa hann, út-
hermtir mikinn kostnað. Enginn má því draga
sig í hlé frá sigurláninu af þeirri ástæðu, að
friður sé nú nærri og sigurinn vís. Þegar
stríðinu er lokið, er eftir að skilja vel við her-
mennina.
Canada þjóðin í heild sinni er beðin að
Iána $500,000,000 (fimm hundruð miljónir
dollara). Þetta er stór upphæð, en engir
draga þó efa á, að hún muni fást og það hæg-
lega. Manitoba fylki verður beðið, að frétt-
ir sögðu á laugardaginn, um $50,000,000.
Framkoma Manitobabúa við síðasta samkyns
lán, er þeir lögðu fram rúmar $32,000,000,
géfur tilefni til hinna beztu vona í þetta sinn.
Uppskera hér í fylki var yfir heila tekið betri
þetta ár en síðasta ár og sem heild standa
fylkisbúar betur að vígi nú en þá.
Þeir, sem kaupa vilja sigurlánsbréf, eru
beðnir að snúa sér til bankanna, er hafa með
höndum alla aðal-umsýslu í sambandi við
lánið. Á hvaða banka sem er, getur fólk
fengið allar upplýsingar því aðlútandi. Um-
boðsmenn (canvassers) er fara á meðal fólks,
taka að ems á móti lofunum, en ekki pen-
ingum.
«-------------------------------------«
Takið eftir.
Eg var að lesa bunka af blöðum að “heim-
an,” sem hafði beðið mín hér meðan eg var í
ferðalaginu í sumar. Þá dettur mér alt í
einu í hug, eftir að eg hafði lesið um afdrif
sambandslaganna nýju á Alþingi í sumar og
hve góðar undirtektir þau fá undantekningar-
lítið, bæði “heima” og annarsstaðar: Hvað
eigum vér, Vestur-Islendingar, að gera 1. des-
ember, daginn sem sambandslögin ganga í
gildi, til þess að sýna í einhverju hina djúpu
samhygð vora með bræðrum vorum og systr-
um austan hafs, sem er jöfn bæði í blíðu og
stríðu; hvort heldur blæs með eða mót?
Svarið kom óðara í huga minn: Vér eigum I
að stofna, I. desember, bræðrafélag í hverri í
einustu íslendingabygð og hverjum einasta \
bæ, þar sem íslendingar fleiri eða færri búa,
með því markmjði að efla bræðralag og auka
samvinnu meðal þjóðarbrotanna íslenzku
austan hafs og vestan. Þar gætu allir land- |
ar tekið höndum saman, án tillits til flokka í
stjórhmálum eða mismunandi skoðana. Eng-
inn þyrfti að óttast að félagskapur, með þessu
markmið mundi spilla fyrir þjóð vorri í þessu
landi. Áður langt um liði mundi samskonar
félagskapur komast á “heima”, slík hugmynd
mundi eiga ítök í hjörtum margra góðra
manna þar. Eigum vér ekki að gjöra þetta?
Eigum vér ekki að vera samtaka? Enginn láti
hugfallast, þó fyrsta tilraunin hefði ekki þann
árangur, sem hann vildi. Látum okkur stofna
félagið,Jjþó það verði ekki eins fjölment fyrst
í stað og vér hefðum óskað. •
DODD'S NÝRNA PILLUR, gó«ai
fyrir allskonar nýrnaveiki. Lækna
gigt, bakverk og sykurveiki. Dodd’í
Kidncy Pills, 50c. askjan, sex öskj
ur fyrir $2.50, hjá öllum lyfsöluiB
eða frá Dodd’s Medicine Co., Ltd.,
Toronto, Onk
'Þetta er engin ný hugmynd, hún
er líklega nærri því eins gömul eins
og langt er síðan að Islendingar
tóku að flytjast hér til landsins. Alt
af hefir þráin eftir sambandi við
“gamla landið” látið til sín heyra,
og hefir þó vafalaust miklu oftar
verið kæfð niður.
Aldrei eða sjaldan hafa landar
vorir austan hafs verið betur sam-
taka en nú. Látum oss læra af þeim
og verum nú samtaka , þó vér séum
dreifð yfir þetta stóra Iandflæmi,
og tökum undir með skáldinu: —
“Heyrum yfir höfin gjalla
Hornaslag hins nýja dags.
Heyrið dyn úr hlíðum fjalla,
Hertök tímans: ver til taks!
Fram með einn og fram með alla
Fram til starfs og bræðralags!
Áfram, vinna eða falla,
Ein er leið til frægðarhags!
same class of property. — "The Legis-
lature may by law exempt any and.
all classes of personal property from
taxation, and within the meaning of
this section, fixtures, buldings and
improvements of every character
whatsoever upon land shall be
deemed personal property.”
Hér er stefnt að cinskatts fyrii-
koinuJagi, sein allinikið hefir verié
rætt og ritað um bæði iineð og mót.
Reynalan yrði sú, ef slikt leiddist
Jiér í lög, að aðal skattabyrðin félJi
á bændur. Bæirnir myndu slei)i)«
tiltölulega skattfríir, svo hvað sea
drægist iþar undan írá því, sem nú
er, yrðu bændur og landeigendur a*
borga.
Enn þá viðsjárverðara er 9. breyt-
ingar atriðið, um ‘‘Dcbt Limit”. I>ar
er ákveðið:—
“The State may issue or guarantee
the payment of bonds, provided,
that all bonds in excess of two mil-
lion dollars shall be secured by
first mortgage upon real estate ír
amounts not to exceed one half of
its value, or upon real and personal
property of state-owned utilities.
enterprises or industries in amounte
not exceeding its value, and pro-
vided further that the State shall
not issue or guaranty bonds upon
property of state-owned utilities in
excess of ten million dollars.”
Þarna sýnist f fljótu bragði, að
skuldbindingar takmark ríkisins
vera fært upp úr $200,000, eins og það
er nú, í að eins tólf miljónir, oni við
nánari atlhugun sést, að takmarkið
er ekkert annað en verðmæti þess
lands, sem ríkið Ihefir til umráða til
að veðsetja.
Tíu miljóna takmarkið nær að
eins tiJ þeirra s-kulda, sem trygðar
eru með veði í jórnbrautum, korn-
hlöðum, hveitimyinum, sláturhús-
um eða öðrum hlutum, sem yrðu rík-
iseigni í komandi fr-amtíð. >Sama
breytingar atriði gerir fyrir a<-
bor.gun iána á þessa leið:
NewYork, 24. okt. 1918.
Hólmfríður Árnadóttir.
----o-----
Enn er þörf fyrir peninga yðar.
— Kaupið Victory Bonds.
TIL MEÐLIMA
“NON PARTIZAN LEAGUE”
í Norður Dakota.
Þó að íslenidingar, «em þeim fé-
Jagsskap tilheyra, séu að eins örlftið
brot atkvæðisbærra manna í ríkinu.
vildi eg ávarpa þá fáum orðum. til
hvers sem það leiðir. Ekki veldur
sá er varir, þó ver fari, segir máltæk-
ið. Við kosningarnar, serri liggja
fyrir, í næstu viku, 5. nóv., ætla eg
ekki að minnast á mennina, sem um
embætti sækja. Þar verður hver að
fylgja sínu áliti. Mennirnir koma og
fara og geta ekki gert stórmlkið
rnein, þó illa veljist, ef að breyting-
ar þær á grundvaJlarlöguim rfkisins,
sem berast eiga upp til atkvæða,
okki verða viðteknar. En lukkist
Townley og hans iiði að koma þeim
breytingum fram, geta bændur og
'búaiið orðið fjárihagslega rúnir inn
að skyrtunni, í stað þess að öðlast
gull og græna skóga, eins og þeim
hefir verið ioifað af TownJey og út-
sendurum hariis fyrir að leggja fram
$16.00 í sjóð, som hann hefir einn yíir
að ráða og þarf engum reiknings-
skil að gefa. Breytingar atriðin eru
tíu. Ekkert þeirra er nauðsyniegt
eða líklegt til gagns, en þrjú eru'
hæTtuleg, eins og þau liggja fyrir, og
á þau vildi eg minnast, ef -skeð gæti, j
það opnaði augu einhvers fyr en í
ótíma er komið.
Það er búið að raða þeim niður á
kjörlista, og byrja eg á því sjöunda
í röðinni. I>að- hljóðar um skatt-
lagning (taxation), og set eg út-
(lrætti sem málið varða, eins og þar
stendur:—
“Taxes shall be uniform, upon the
"Every law authorizing a bond
issue, shall provide for levying an
annual tax or make other provisions
sufficient to pay the interest semi-
annually, and the principal withia
thirty years from the passing of
such law, and shall specially appro-
priate the proceeds of such tax or of
such other provisions to the páy-
ment of said principal and interest,
and such appropriation shall not be
repealed nor tax or other provisions
discontinued until such debt, both
principal and interest shall have
been paid.”
Eg veit «ð viðkvæði margra verð-
ur: Engin ihætt-a á ferðum. Þing-
menn hlaupa ekki á sig, og ríkis-
stjórinn — Frazier—, ef hann. verð-
ur endurkosinn—, setur ckki ríkið f
ógöngur. Reynslan er ibúin að sýna
við hverju rná búast. Árið 1917 voru
“nonpartizans” meiri hlutinn í neðri
málstofu þingsins. Þar var Townley
og hans hjálparmenn tiJ taks og
liöfðu þingmenn svo í lófa sfnum, að
þeir samþyktu nýjan grundvallar-
laga bálk, móti fastsettum 1 agaá-
kvæðutm. Það féll í efri málstof-
unni, en nú koma breytingarnar og
verða að jögum, ef samþykki iuæst
með meiri hluta atkvæða fólksins.
Hvað Frazier snertir, ]>á hafðt
“Nonpartizan Leader” — málgaga
Townleys—, það eftir ihonum, a*
hann sæi ekkert á móti því, að rfk-
ið skuidaði 300 miljónir. f sama
tón skriíar 8. A. Olsniess, Insuranee
Hvað hundrað dollara
“VICT0RY B0ND” GERIR:
Borgar 80 hermönnum eins dags
laun, eöa
Fæöir smásveit fótgönguliös í 44
daga,, eöa þaö
Kaupir 400 pund af osti, eÖa
5 “incendiary” loftbáta, eöa
2,000 lækna nálar, eöa
100 pör af hermannasokkum, eöa
25 pund af svefnlyfi, eöa
145 poka til aö hafa í heitt vatn.
Til kaupenda Heimskringlu:
T T AUSTIÐ er uppskerutími blaðsins, — undir
I I kaupendunum er það komið, hvernig “út-
A- keman” veríur. Viljum vér því biSja alla
þá, er skulda blaðinu og ekki hafa ailareiðu borgaí
til vor eða innheimtumanna vorra, aíi muna nú eftir
oss á þessu hausti. Sérstaklega viljum vér biðja þá,
sem skulda oss fyrir fleiri ár, að láta nú ekki bregðast
að minka þær skuldir. Oss munar nm, þótt lítið komi
frá hverjum, því “safnast þegar samnn kemur.” —
Munið það, vinir, að Heimskringla þarf peninga sinna
við, og látið ekki dragast að greiða áskriftargjöld
yðar.
S. D. B. STEPHANSON,
Ráðsmaður.