Heimskringla - 20.08.1924, Side 1
VERÐLAUN GEFIN FYRIR
COUPONS OG UMBÚÐIR
ROYAt,
ClíOWH
Sendit! eítir verSlista til Royal
Crown Soap Ltd., 654 Main St.
Winnipegf.
VERÐLAUN GEFIN FYRIR
COUPONS OG UMBÚÐIR
ROYAU,
CROWN
SenditS eftlr vertílista til Royal
Crown Soap Litd., 654 Main St.
Winnipegr.
XXXVIII. ARGANGUR.
WINNIPEG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 20. ÁG\ÚOT. 1924.
NÚÍMER 47.
CANADA
Veitingahús hér í Winnipeg
hafa greitt $24.800 I sektir síðan 1.
janúar 1 vetur, fyrir brot á móti
vínsölulögunum. Eitt veitingahús
sektað sjö sinnum, annað fimm
sinnum og tvö fjórum sinnum.
l>rír veitingahúseigendur hafa verið
dæmdir til fangelsisvistar. ,
Kuldatíð hefir verið hér í Canada
sem víðast annarstaðar á norður-
helmingi jarðarinnar. Frosið hefir
á nóttunni vestan frá Yorkton, Sask.
og að Swan River, Man. Frostin
hafa l>ó verið væg, og ekki fullvíst
um hvert þau hafa gert skaða til
muna. Er nú vonandi hið versta
búið, því nú er óðumi að hitna í
veðri og uppskera fyrir höndum.
Eandbúnaðarráðuneytið í Mani-
toba hefir nú sent út endanlega
skýrslu um flatarmál sáðlands í
fylkinu þetta ár. Nemur það 6.399.
D34 ekrum, til jafnaðar við 6.383.
678 ekrum í fyrra. Sánar hveiti-
ekrur eru um 15% minni, en í fyrra,
en flax hefir verið sáð meira en
tvöfalt á við það sem gert var í
fyrra. Bændur eru taldir 51500 í
öllu fylkinu og koma þvf rúmar
120 ekrur á mann.
Einn af fyrverandi borgurum
Winnipegbæjar, Edwin R, Seott,
sem nú býr í Detroit þykist nú
hafa fundið upp nýjan helgeisla,
miklu sterkari en þann er enski upp
fyndingamaðurinn Grindell M)att-
hews þykist hafa fundið. Segist
Scott hafa reynt helgeislann á rott-
um, hundum, og síðast á stórgrip
um og steindrepi hann alt er
fyrir honum verði á feikna stóru
svæði. — Maklar eru framfarimar í
heiminum.
Hinir brezku vísindamenn er fund
hafa átt með sér að Toronto und-
Janfarna daga, koma hingað til
Winnipeg í dag. Heldur borgin og
fylkið þeim veizlu í þinghúsinu i
kvöld. Um 100 stærðfræðingar er
stærðfræðingafundinn hafa setið í
Toronto, slást með í förina, og
! töluvert af vísindamönnum úr
Bandaríkjunum. Ymsir þessara
manna eru heimisfrægir vísinda-
inenn, og hefir Winnipeg sjaldan I
eða aldrei fyr fagnað jafnágætum
hóp manna.
Hér í Winnipeg verður stofnað
til heljarmikils læknafundar þ. 2.
september næstkomandi. Um 350
meðlimir “American College of
Surgeons”, koma þá saman hér, og
ýmsir frægustu* læknar þessarar
álfu taka þátt í fundinum. Fyrir-
lestrar verða haldnir hér í spítölun.
um meðan fundurinn stendur yfir,
um meðferð og fyrirbyggingu ýmjsra
sjúkdóma.
Búist er við að þingið í Mani-
toba verði sett annaðhvert 27.
nóvember, eða 4. desember næst-
komandi. Eitt af því er fyrst ligg-
ur fyrir þinginu eru umbætur á
vínsölulögum fylkisins.
Hingað hefir borist sú fregn frá
Englandi, að fjöldi manna mjuni
þaðan hingað koma á næstunni,
sökum hins mikla atvinnuleysis, er
jafnt og stöðugt háir Englandi. Er
og sagt, að enska stjórnin muni alt
vilja gera til þess að létta undir
með mönnum er til nýlendanna
vilja nú flytja sig, sérstaklega
Canada.
Uátinn er nýlega senator Joseph
Bolduc, er fyrrum var forseti öld-
ungaráðsdeildar þingsins í Ottawa
Fór jarðarför hans fram í gærdag,
að viðstöddu miklu fjölmenni, og
var þar viðstaddur fulltrúi, af
hendi sambandsstjórnarinnar.
Önnur lönd.
Frá Kansas City M,o. er símað, að
verkfræðingar, er sá bær hefir feng-
ið til að rannsaka reikningsfærslu
Thomasar Kelly, — þess er rnestan
orðstír gat sér hér í Winnipeg um
árið,, — viðvíkjandi skolpræsa
byggingu, er hann tókst þar á hend-
ur, fullyrði að hann og félagi hans
Dennis hafi stolið af bænum um 150,
OOC dölum. Kaupsamningurinn um
skolpræsin nam $2,453,749.50. Á nú
að höfða mál móti þeim félögum,
en Kelly er allur á bak og burt,
“einhversstaðar í Californíu”.
Yerkainannafélögin armerísku
ætla að styðja La Follette til for-
setakosningar. Hefir Samúel Gom.
pers, formaður þeirra nýlega orð
að þá fyrirætlun þannig: “Við ætl-
uin að gera alt, sem f okkar valdi
stendur, til þess að kjósa La
Follette og Wheeler. Við höfum
trú á því, að samvizka amerísku
þjóðarinnar, sé nú vöknuð til fullr-
ar njeðvitundar um, að nýju lífsfjöri
verði að veita inn í stjórnarfar vort,
og að þjóðlíf vort verði yfirleitt að
grundvallast á nýju siðferðislög-
máli. — ; s ;
Frá London er símað, að Grey, vísi
greifi af Falloden hafi sagt af sér,
sem formaður Liberala flokksins á
Englandi. — Grey lávarður var ut-
anríkisráðherra Breta, 1914, sem
kunnugt er, og einn af merkustu
stjórmálamönum Breta. Mijög hljótt
hefir verið um hann eftir að As-
quiths ráðuneytið fór frá völdum.
Hann er nú 63 ára gamall.
Frá Reykjavík er símað 19. þ. m.,
að báðar amerísku flugvélarnar,
sem ]>aðan ætluðu á mánudaginn
til Grænlands skemldust, er þær
voru settar á stað, sökum þess að
þær voru ofhlaðnar af olíu. Flug-
mennirnir verða því að bíða, þar til
skipið Richmond nær til Rvíkur, en
það hefir meðferðis öll nauðsynleg
áhöld og efni til viðgerðar. Er
búist við að þeir geti lagt á stað á
fimtudag eða föstudag. — Næsti á-
fangi er að Frederiksdal á Græn-
landi, en þangað er 825 enskra
mílna loftferð, og er það á suður-
odda Grænlands. Ætluðu þeir sér
í fyrstu að lenda við Angmasalik
á austurströndinni, en urðu að
hætta við sökum þess hvað ísinn
liggur þétt að landi.
Frá Alexandríu í Egyptalandi er
símað, að róstusamit sé í Soudan,
sem stendur, og er jafnvel búist við
alvarlegu uppþoti. Hefir lengi þótt
agasámt þar um sveitirf. Er Allen-
by lávarður, hershöfðinginn frægi,
sem óðast að flýta för sinni suður
til Khartoum, þar sem Gordon var
myrtur 1885.
Frá Capetown í Suður-Afríku er
símað 16. þ. m., að Hertzog forsæt-
isráðherra hafi stungið upp á þvf,
að Suðvestur Afríku, er Þjóðverjar
áttu fyrir stríðið mikla, en sem nú
er í varðveizlu Englendinga, skuli
nú veitt sjálfsstjórn á sama grund-
velli og Suður-Afríka hefir.
Fréttir um nýja uppreisn eða I
uppþot berast enn frá Brasilíu. í
þetta skifti er uppþotið í því héraði
er framleiðir mest toglegur (rubb-
er), og eru þau lönd að mestu leyti
1 höndum amerískra auðkýfinga.
Líkist þessi Brasilíu-uppreisn meir
og meir Mexicouppreisninni í vet-
ur, er stofnað var til af lendum
mönnum þar í samráði við ameríska
auðkýfinga.
Frá London er símað 16. þ. irt.,
að |samkomu,lag sé nú komið á
milli bandamanna og Þjóðverja um
■það, að Frakkar og Belgir skuli vera
búnir að rýma rýma Ruhr-héraðið
að fullu 15. ágúst 1925. Sömuleiðis
hafa þeir samþykt að rýma allar
aðrar borgir og héruð, er þeir nú
hafa setið í, og þeim ekki var leyft
að hafa samkvæmt Versaillesfriðn-
um. Þýzku sendimennirnir hafa nú
samþykt að ganga að tillögum
Dawes-McKenna og virðist nú
blása byrlega f Evrópu í bili, en
vafasamt er að þeir geti haldið þá
•skilmála, eða jafnve] ætla sér að
gera það. Að saman gekk að lok-
um með Bandamönnum og Þjóð-
verjum, þakka allir fyrst og fremst
McDonald, viturlegum og góðgjörn.
um tillögum hans, stillingu og þol-
inmæði. Herriot var illa bundinn
á klafann heimanað og er búist við
árás á hann frá hervaldssinnum,
en frjálsiyndir menn hafa mikinn
viðbúnað að fagna honum.
U r vesturbygðum.
Ekki get ég skilið í öðru en a 'L
fleirum en mér hafi komið það
undarlega fyrir sjónir, að ekkert
skuli hafa verið minst á í blöðun-
um samkomu þá er Quill Lake
söfnuður hált í Wynyard, þriðju-
dagskvöldið 6. ágúst. Held ég þó,
að ekki hafi menn hér um slóðir
átt kost á að heyra annað eins af
hálfu ísiendinga áður. Ekki hefði
það heldur átt að skaða, að lög-
in er þar voru sungin eftir vestur-
fslenzku tónskáldin Stgr. Hall og
Björgvin Guðmundsson voru alveg
ný. Það er mikið áhugaleysi að
enginn héðan skuli hafa á þetta
minst eða þakkað söngfólkinu.
Viðstaddur.
Breytiþróunarkenning
“Lögbergs”.
Þá er nú “Lögberg” komið á móti
breytiþróunarkenningunni, sem vís.
indaheimurinn hefir viðurkent um
síðastliðna hálfa öld. Það gerir
ekki endamjótt við ályktanir seytj-
ándu aldarinnar. Sennilega verður
ekki mikið eftir af þeirri kenningu
um það að ritstj. lýkur máli, jafn
fióður maður og djúpsær.
Þá er “Lögberg” eitthvað að am-
ast við öpunuiu. Oft sannast hið
fornkveðna: “frændur eru frænd-
um verstir”.
* * *
Ur bænum.
Á föstudagskvöldið 8 þ. m., setti
umboðsmaður st. “Heklu”, H.
GMslason eftirfylgjandi meðlimi í
embætti:
F. Æ. T. — Jón Marteinsson,
Æ. T. — Sumarliði Mathew,
V. T. — Aðalbj. Guðmundsson,
R, — Árni Goodmann.
A. R. — Joh. Tli. Beck,
F. R. — Bergsveinn M, Long,
G. — Jóhann Vigfússon,
K. — Sigríður Jakobson,
D. — Sigríður Patterson,
A. D. — Stefanía Sigurðsson,
V. — Guðm. K. Jónatansson.
Þórarinn B. Þorláksson,
listmálari.
Hann var fæddur aað Undirfelli I
Vatnsdal, 14. febrúar, 1867, sonur
Þorláks prests Stefánssonar og
konu lians Sigurbjargar Jónsdóttur
fPéturssonar prests að Höiskulds-
stöðuin. Móðir Sigurbjargar var
Elfasbet Björnsdóttir prests að
BóLstaðarhlíð.
Þórarinn var yngstur 10 bræðra,
er upp komust, og ólst upp hjá for-
eldrum sínum* þar til faðir hans
andaðist 1872. Þá fluttist hann á-
samt móður sinni til Björns bróð-
ur síns að Stafholti í Borgarfirði.
Vorið 1885 réðst hann til bókbands-
náms hjá Halldóri Þórðarsyni bók
bindara f Reykjavík, og stundaði
námfð hjá honum í 2 ár. Vorið 1887
setti Björn heitinn Jónsson, þáver-
andi prentsmiðjueigandi og rit-
sljóri ísafoldar á stofn bókbands-
vinnustofu, og varð það þá að sam,
komulagi milli hans og H. Þ., að
Þórarinn fór til Bj. J., og mun hann
þá þégar hafa tekið við forstöðu
vinnustofunnar. Litlu síðar fór
hann utan til þess að fullkomna sig
í þessari handiðn, og dvaldi nokkra
mánuði í Kaupmannahöfn. Veitti
hann síðan vinnustofu Bj. J. for-
stöðu til 1895. Hann var prýðilega
vel að sér í handiðn sinni, og eink-
anlega fór honum svo vel úr hendi,
að gylla á bækur, að ekki munu
aðrir hafa betur gert hér í bæ sfðan.
Um 1890 fór Þórarinn að fást við
dráttli.st í tómstundum sínum, til-
sagnarlaust, í fyrstu. Hann byrjaði
á því að teikna andlitsmyndir með
biýanti eða svartkrft, stækkaðar
eftir ljósmyndum, og með elju og
þrautsegju náði hann furðu fljótt
talsverðri leikni í þessu. Litlu síð.
ar fór hann að fást við málun, og
tók þar einnig furðanlegum fram-
förum. Einhverrar dálítillar til-
sagnar mun hann hafa notið hjá
frú Þóru Thoroddsen.
Á alþingi 1895, var honum veittur
lítilfjörlegUr styrkur til utanfarar
til að fuilkomnast í málaralist, og
fór hann til Khafnar haustið 1895
og tók að stunda nám á listaháskól-
anurn (Kunstakademiet). Það var
strangur skóli, og gerði einkanlega
mjög miklar kröfur til fullkominn-
ar þekkingar og leikni í dráttlist
áður en nemendur fengju að taka
l>átt f málunarnámi efri deildanna
og voru þeir fáir, sem höfðu þolin-
mæði til að ganga þá braut eftir
setturn regium. Þórarinn stundaði
námið af mesta kappi, og náði á
skólanum þeirri fullkoirínun í drátt-
list, sem síðan varð traust undir-
staða undir málaralist hans. En í
málarlistinni naut hann kenslu hjá
Harald Foss, sem þá var rneðal
fremstu listmálara í Danmörku, og
þótti bera af öllum öðrum í því
hve nákvæmlega og snyrtilega hann
gekk frá málverkum sfnum, og í
þeim efnum var hann einnig strang.
ur við nemendur sína. — Kennara
þennan valdi Þórarinn sér sjálfur,
og gerði það vitanlega vegna þess
að nákvæmnin og áferðarfegurðin
voru einmitt að hans eigin skapi.
Yið námið dvaldi hann til 1902. oft
við þröngan kost, en fluttist síðan
til Reykjavíkur, og kvæntist 1903
iSigríði Snæbjairnardóttur kaup-
manns Þorvaldssonar, frændkonu
sinni af Bólstaðarhlíðarætt.
Eftir að Þórarinn settist aftur
að í Reykjavík, stundaði hann
jöfnum höndum málaralistina og
kenslu í dráttlist. Þegar Iðnskól-
inn var stofnaður árið 1904, gerðist
hann teiknikennari, og sfðar for-
stöðumaður skólans frá 1916 til
1923. Einnig kendi hann teiknun í
öðrum skólum og þótti ágætur
kcnnari. Bóka. og pappírsverzlun
rak hann einnig hin síðari árin.
Hann átti góðan þátt í stofnun List-
vinafélagsins, og var í stjórn þess
frá upphafi og formaöur þess um
eitt skeið.
Það er eigi mitt meðfæri, að
lcggja fullgildan dóm á málaralist
Þórarins. Haifh málaði einkum
landlagsmyndir, og er það mltt álit
— og margra annara leikmanna í
þessum efnum, sem eg veit um —
að honum hafi tekist bezt allra mál
ara vorra að sýna sumarblíðu ís-
lenzkrar náttúru á myndum sínum.
Hann varði miklum tíma til at-
vinnustarfa sinna, og var þess
vegna ekki eins afkastamikill á m,ál.
verkagerö og sumir samtíðamenn
hans, mjálaði einungis fáar myndir
á ári hverju síðari hluta lista-
mannsæfi sinnar. Þær stundir, sem
hann gat varið til málverkagerðar
vorff ánægju- og hvíldarstundir
hans frá daglegum störfum, o'g
bygg eg að þetta hafi átt sinn þátt
í því, að halda listgáfu hans full-
komilega fölskvalausri til síðustu
stundar. Ætla eg að ýmsir aðrir af
listamönnum vorum og listamanna
efnum mættu að ósekju taka sér
lífsferil hans til fyrirmyndar að
þessu leyti. Málverk hans féllu
mönnum svo vel í geð, að öll síðari
árin mátti svo heita, að hver mynd
eftir hann væri seld jafnskjótt og
hann hafði lokið við hana. Hann
dvaldi nokkurn tíma á hverju
sumri upp í sveitum, einkum í
Borgarfirði, I^ingvaíllasveit og
Laugardal, og eru flestar landlags-
myndir hans frá síðari árum úr
þessum sveitum. Fyrir skemstu
hafði hann gert sér einkennilegan
og einkar smekklegan sumárbú-
stað hjá Laugarvatni í Laugardal,
og þar andaðist hann að morgni
11. þ. m. Hafði hann kent hjarta-
bilunar síðasta árið, en hafði þó
fótavist jafnan og virtist vel hress
til hins síðasta.
Kona hans lifir hann ásamt 3
börnum, tveim dætrum uppkomn-
um og einum syni í bernsku.
Jón Þorláksson.
(Morgunbl.).
Frá Islandi.
Hóla-dómkirkja. —
Um þessar mundir er verið að
gera við dómkirkjuna á Hólum í
Hjaltadal. Eru veggirnir endur-
bættir og kalkaðir að utan og þak-
ið málað. Lætur fornminjavörður,
framkvæma viðgerðina fyir fé, sem
veitt var til hennar úr ríkissjóði.
Hrökkvi féð til, vill hann ennfrem-
ur gera ýmsar umbætur innan kirkj-
unnar, svo sem að láta smíða að
nýju milligerðina milli kórs og
kirkju o. fl.
Skrifað er hingað vestur úr
Reykjavík, að Alþingi hafi unnið
það stórvirki að afnema embætti
það við Háskóla íslands, er pró-
fessor, dr. Guðmundur Finnbogason
hefir gegnt frá fyrstu. Dr. Guð-
mundur hefir nú verið settur lands-
skjalavörður, í stað dr. Jóns heitins
Þorkelssonar, er lézt í vetur.
Katrín Thoroddsen læknir er eini
umsækjandinn um Flateyjarhérað.
Hr. Emil Rokstad á Bjarmalandi
hefir gefí einkennilega tilraun til
silungaklaks í vor. Hann keypti í
vetur um 4000 urriðahrogn í Noregi,
og lét flytja hingað f deigum mosa.
Þegar hingað kohi, bjó hann um
hrognin í kjallara í húsi sínu, lagði
þau þar í lítið trog og hafði malar-
'iag undir á botninum. Lét hann svo
streyma vatn úr krana yfir hrogn-
in, nætur og daga, en renslið var
mjög lítið. Mátti heita, að hvert
hrogn lifanði og nú eru seyðin að
verða sjálfbjarga, þó að lítil séu
enn, og verður þeim slept í lækjar-
poll við Elliðavatn innan fárra daga
og þaðan í sjálft vatnið, þegar þau
stækka. Ekkert hefir hann gefið
þeim, nema “blávatnið”, og eru þau
þó hin sprækustu í troginu. Ef þau
komast til fullorðins ára, og ná
sama þroska sem kyn það í Noregi
sem þau eru af komin, þá eiga þau
að verða um 20 pund. — Rokstad
hefir áður stundað silungaklak á
Elliðavatni, og hefir veiði aukist
stórlega í vatninu síðan hann eign-
aðist þa'ð.
Síðastliðin sumur hafa enskir
botnvörpungar gert usla mikinn á
grunnmiðjum við eyjarnar, í skjóli
þess, að varðskipin eru norðan-
lands. Einna verstu af lögbrjótum
þessum vissu menn að var skipstjóri
nokkur frá Hull, sem heitir Thomas
Worthington. Hefir hann í suipar
haldið uppteknum hætti og skafið
grunnmiðin við Eyjar. Þóttu mönn.
um þetta þungar búsifjar, því að
með þessu tekur alveg fyrir smá-
bátafiski á þeim slóðum, sem ann-
ars eru beztu sumarfiskimið Eyja-
manna.
í gærkveldi mannaði hinn setti
bæjarfógeti, Sigurður Sigurðsson
frá Yigur, tvo mótorbáta, með úr-
vali dugandi manna. Hafði hann
sjálfur forustuna og fóru bátarnir
svo vestiir fyrir eyjar, til þess að
reyna að handsama lögbrjótana,
Þegar á leið kveldið, kom botn-
vörpungur og togaði ávalt nær og
nær landi.
Beið lögreglustjóri átekta, þar
tii skipið var komið hálfa aðra sjó-
mílu inn fyrir landhelgislínu. Réði
hann þá skyndilega til uppgöngu
og vissu skipsmenn ekki fyrri til,
en þar var komið svo margt manna,
að engri vörn varð við komið.
Þetta var um miðnætti.
Breitt hafði verið yfir nafn og
númer skipsins, en við rannsókn
kom í ljós, að skipið heitir Lord
Kitchener, H. 345, en skipstjóri er
Thomas Worthington, sá sem fyrr
var nefndur.
Eftir nokkurt þjark játaði skip-
stjóri sekt sína, og fór með skipið
til hafnar, að boði lögreðlustjóra,
og verður málið dæmt í dag.
iSkipið hafði mikinn afla, og ætl-
aði að halda heimleiðis með
morgni.
Hér var oddviti fararinnar örugg-
ur Annars hefði förin ekki tekist
svo vel sem raun varð á.
iSýnir þetta dæmi, eins og margt
fleira, er mætti benda á, að hér
er þess hin allra mesta þörf, að
lögreglustjóri sé ötull og áræðinn,
eins og núverandi lögreglustjóri
hefir reynst, og alveg er það víst,
að Eyjamenn mundu una því afar
illa, ef honum yrði hnekt frá, þegar
embættið verður veitt.
Eyjamenn eru hinir glöðustu yf-
ir töku þessa skipstjóra, svo mik-
inn skaða hefir hann áður unnið
þeim, og þykir betra að hafa náð
honum einum en 10 öðrum.
Hjónabönd. — Nýlega hafa verið
gefin saman liér í bænum Guðrún
Zoega (Geirsdóttir) og Magnús
Jochumsson póstifulltrúl, Stefanía
Guðjónsdóttir og Lárus Jóhannes-
son lögfræðingur, Ása Briem (Sig-
urðardóttir) og Jón Kjartansson
ritstjóri, Einar bóndi Þorsteinsson
frá Ytri Hrafnabjörgum og Guð-
björg Snorradóttir frá Erpstöðum í
Dalasýslu; séra Björn O. Björnsson
í Ásum f Skaftártungu og frk. Guð-
rfður Vigfúsdóttir frá Flögu. Sömu-
leiðis Magnús Björnsson frá Lauf-
ási við Eyjafjörð og frk. Dóra Mag-
núsdóttir. Ennfr. Árni Pétursson
kand. med. og frk. Kata Rósen-
kranz.