Heimskringla - 20.08.1924, Síða 4
4. BLAÐSIÐA
HEIUSKRINGLA
WINNIPBG, 20. ÁGÚIST, 1924.
Hcimskríngla
(StofnnTS 1886)
Krmur út A hverjum mllivlkadegl.
EIGENDUR:
VIKING PRESS, LTD.
853 og 855 SARGENT AVE., WINNIPEG,
Tulsfmi: N-6537
Ver5 bla5sins er $3.00 árgangurinn borg-
ist fyrirfram. Allar borganir sendist
THE VIKING PREfcS LTD.
SIGPÚS HALLDÓRS frá Höfnum
Ritstjóri.
UtnnÚMkrift til hla5nInM:
THE VIKING PRESS, L,td., Dox 3105
UtanÚMkrift tll rltMtjóranM:
EDITOR HEIMSKRINGLA, Box 3105
WINNIPEG, MAN.
“Heimskringla is published by
The Vlklnst PreMM Ltd.
and printed by
CITY PRINTING <fe PUBLISHING CO.
853-855 Sargent Ave., Wlnnlpejf, Man.
Telephone: N 6537
WINNIPEG, MANITOBA, 20. ÁG0ST, 1924.
Blekkingin mikla.
Það er hvorutveggja að vér mennirnir
erum skammlífar skepnur, enda munum vér
skamt. Þegar litið er yfir mannkynssöguna,
virðist oft eins og vér höfum ekkert lært í
þeirri list að Iifa í þolanlegum friði hvað þá
heldur samúð við meðbræður vora. Frá því
að Kain sundraði höfðinu á Abel bróður sín-
um, í fjandsamlegri aurafíkn, eða, svo ekki
sé talað í líkingum, frá því fyrst fara ó-
ljósar sagnir af homo sapiens — hinni skynj-
andi skepnu, manninum — og alt fram á
þenna dag, hafa “bræður barist og að bön-
um orðið”, nálega ætíð af græðgi til fjár og
landa, hvað rúmt, sem um þá hefir verið til
hvorutveggja, og engu síður eftir það, að
mannkynið tók að skrásetja afreksverk sín
og setja hryðjuverkin í annála, svo, að eft-
irkomendunum hefði þó átt að vera vork-
unnarlaust að læra þar af, og láta víti fram-
liðinna manna sér að alvarlegum varnaði
verða. — í nokkur þúsund ár.
Hingað tii hafa menn þó ekki gert sér
miklar falshugmyndir tlm orsakir ófriðarins,
og en^ar verulegar gyllivonir um að binda
enda á allan ófrið með vopnabraki og styrj-
öldum.
Þangað til nú í síðustu og hræðilegustu
manndrápshríðinni, sem yfir heiminn hefir
gengið. Allar stéttir mannfélagsins, og sér-
staklega lægri stéttirnar hafa tekið svo mikl-
um framförum síðustu áratugina, að þúsundir
— jafnvel miljónir — a_f beztu mönnum allra
þjóða, voru farnir að fyrirverða sig fyrir
þessi miskunarlausu og sífeldu bræðravíg,
sem jafnan hefir verið stofnað til af fáeinum
einstaklingum, sem vánalega áttu lítið í húfi,
að minsta kosti sjaldnast það, sem hverjum
manni er dýrmætast gefið, fjör og fráleik, en
sem oftast áttu alt af vinna, það er viðkom
aura — og metorðagirnd.
Það var í síðasta ófriðnumi mikía, að
stjórnmálamennirnir í flestum mestu menn-
ingarlöndum bjuggu til og sendu á sviffrá-
um vængjum út um allan heim, setninguna,
um “ófriðinn, er ætti að binda enda á ófrið-
inn”. Vér munum ekki, eða réttara sagt vit-
um ekki, hvaða snillingsheili ungaði þeirri
vængjuðu setningu út, enda skiftir það engu
máli. En hún hjálpaði til þess að draga þús-
undir góðra drengja í dauðann, hún blasti við
mönnum frá strætum og gatnamótum, og var
orgað inn í hlustir miljóna manna af ræðu-
mönnum víðsvegar, sem engan stað gátu
fundið henni, frekar en maðurinn er fyrst
formaði hana, og sem ekkert vald höfðu,
þá né síðar, að koma henni í framkvæmd.
En miljónir manna létu blekkjast af henn*,
og miljónir manna gengu með leiftrandi aug-
um og brosandi í dauðann fyrir hana, eða
drápu aðra. Og þeir menn, er vit og kjark
og vilja höfðu á að kryfja hana til mergj-
ar, og fletta af henni falsbúningnum, voru
taldir vargar í véum, óalandi og óferjandi
öllum bjargráðum, og víða réttdræpir, —
þó nú séu reyndar sumir af þeim komnir, til
æðstu metorða, eða séu í v^li um þau, að mak
legleikum.
Því nú, sex árum eftir að friður hefir
verið samin — friðurinn eilífi, sem átti að
verða, samkvæmt spádómi Davíðs loftungu
Lloyd George, og annara falsspámanna hans
líka, beggja megin hafsins; árum, sem hafa
verið sannkallað helvíti á jörðu, er hulan
tekin að falla frá augum manna, hulan sú,
er þessi setning hafði um þau sveipað. Og
með það í minni, hve girnileg hún þótti þá
til fróðleiks, er gaman að sjá hvernig menn
líta á hana nú, þegar orustuvíman er runnin
af þeim, er gunnreyfasatir voru, svo að þeir
m)eð sæmilega óvilhallri dómgtand geta
vírt fyrir sér réttmæti hennar.
“The American Legion Weekly” lagði
nýlega þá spurningu fyrir ýmsa merkustu
menn ýmsra þjóðlanda: “Hvað græddi ver-
öldin á heimsstríðinu mikla”, og birti síðan
svör þeirra býsna fróðleg. Norman Angell
mannvinurinn mikli og Jean Addams, ein-
hver bezt þekta og ágætasta kona í Banda-
ríkjunum og þó víðar sé leitað, sjá engan
árangur af styrjöldinni, nema aukna óvild til
ófriðar. David Starr Jordan uppieldisfræð-
ingur, fyrrum forstjóri Leland Stanford há-
skólans í Californiu, höfundur 400 bæklinga
vísindalegs efnis, álítur, “að þegar öl'
kurl komi til grafar hafi alls ekkert við
stríðið unnist”. John Maynard Keynes, fjár
málaspekingurinn enski, er frægastur varð
fyrir skaðabótaritgerðir sínar, áfellisdóm um
Versailles-friðinn, og hrakspár um afleið-
ingar hans, sem nú hafa nálega allar geng-
ið eftir, svarar stutt og laggott: “Ég veit
það ekki”. Fyrverandi einkaritari Vil-
hjálms keisara svaraði, að heimurinn hefði
ekkert grætt, en öllu tapað. Vilhjálmur
Þjóðverjakrónprins er var, sem enginn frýr
vits, hvað sem öðrum mannkostum líður,
minnir Ameríkumenn á, að þeir hafi í ófrið-
inn farið til þess að tryggja heiminum frið
og Iýðstjórn, og segir: “Allar þjóðir vígbúast
nú sem ákafast, og hvað er um lýðstjórnina?
Lesið bara símskeytin, er biaðanna fara á
milli! Alræðismannsvaldið í einhverri mynd
virðist vera sú uppáhaldshugmynd er fyrir
flestum vakir”. Sir Philip Gibbs, blaða-
maðurinn enski, einna frægastur allra nú-
lifandi blaðamanna, sér “alls ekkert við ó-
friðinn unnið, annað en ef framúrskarandi
hreysti æskulýðsins mætti blása mönnum
nýtt Iífsþrek í brjóst”. Maxim/ilian Harden,
frægastur og djarfastur allra þýzkra blaða-
manna á keisaratímabilinu, ritstjóri “Die
Zukunft” — “Framtíðin”, — hyggur að
menn hafi ekkert á stríðinu grætt nema viss-
una um það, að nauðsynlegt sé fyrir megin-
lönd Evrópu að bindast samtökum — á móti
Englandi, og Hilaire Belloc, ensk-franski rit-
höfundurinn frægi, segir að ófriðunnn hafi
leitt í Ijós sigur kristindómsins á hinu guðs-
afneitandi Prússlandi!
Það er helzt frá Ameríku, sem minst sá
af ófriðnum, og minstan halla eða mestan
gróða hefir af honum hlotið, að eitthvert
bjartsýni ræður um afleiðingar og áhrif
stríðsins. En þó verða næsta fáir af þeim
er þá skoðun hafa, til þess að mæla því'
nokkra bót. Newton D. Baker, fyrverandi
hermálaráðgjafi segir, “að nú séum vér þó
að síðustu sannfærðir um að kenningin um að
halda jafnvægi í heiminum með vígbúnajði
sé næsta valtur grundvöllur fyrir varanlegan
frið í heiminum”. Pershing, yfirhershöfð-
ingi Bandaríkianna, endurtekur þá lóslitnu
staðhæfingu, að “sigurinn kom í veg fyrir
einræðið”. Sir Arthur W. Currie, yfirhers-
höfðingi Canadamanna, trúir því, “að vér nú
loks höfum fengið endanlega vissu fyrir því,
að kenningin um að ófriður geti leyst úr
nokkru vandamáli heimsins, sé tálvon og
lýgi” — og virðist vera töluverður gáfna-
munur þessara tveggja hershöfðinga. Samuel
Gompers, verkamannaforinginn, kveðst jafn
harðánægður með ófriðinn, og þátttöku
landa sinna í honum, og hann hafi nokkurn-
tíma verið og segir, að ^nú sé “heimurinn
laus við stórveldishugsjónir hernaðarsinna”,
og að “lýðveldishugsjónin'sé í sífellu að
þroskast”. Rithöfundurinn og blaðamaður-
inn WiIIiam Allen White, hyggur, að ávinn-
inmirinn við ófriðinn sé falinn í aukinni
siálfsvirðingu verkamanna, fátæklinga og
efnalítilla kvenna”.
Vér sögðum, að það gæti verið gaman
að því að fara yfir þau svör er “American
Legion Weekly” hefðu borist í hendur, við
þessari spurningu sinni. Já, það væri gaman
ef það væri ekki grátlegt. Grátlegt vegna
þess, að langflest þessi svör hrópa það há-
stöfum út um allan mannheim, að ófriðurinn
mikli var ekki einungis einhver hryllilegasta
ógæfa er heiminn hefir hent, heldur með öllu
ónauðsvnlegur, að þvf levti. að mannvit og
forsjá hefðu getað og hefðu átt, að finna
aðra heppilegri Ieið til sátta svo kristnum
mönnum sæmdi, en þá er farin var 1914.
En hörmulegast við þetta, er ekki slysið
eitt, að það skyldi henda, heldur það, að á
mörgum stöðum, í mörgum löndum um heim
allan virðast afleiðingarnar hafa orðið þær,
að heilar þjóðir eru að ganga sig afturábak
ofan í jörðina, taka hvert skrefið á fætur
öðru í þá áttina er liggur hinn breiði vegur
vítisstefnunnar, er hinn aðdáanlegi vitmaður,
dr. Helgi Péturss, svo snildarlega hefir nefnt
Það er sannanlegt, og reyndar áberandi, að
fegurstu hugsjónir lýðveldisstefnunnar hafa
farið halloka í sumum þeim löndum Evrópu,
er sízt máttu við því, — þó að vísu virðist
vera að rofa til í augnablikniu í hinum meiri
menningarlöndum sumstaðar, fyrir málsnild,
mannvit og þolgæði einstakra ágætismanna,
— að úlfúð og þjóðrígur, er sízt minni en
áður var, heldur meiri, og að ekkert gott
hefir af ófriðnum hlotist framyfir það, sem
búast hefði mátt við, ef þroski mannkynsins
til vits og snildar hefði fengið að dafna á
eðlilegan hátt, á þeim fáu árum, sem liðin
eru síðan ófriðurinn skall á. Hér í Ame-
ríku hefir uppskeran engu betri verið. Sá
andi, sem stjórnaði athöfnum manna eins og
Daniel Webster, Robert H. Pruvn og Marcy
forsætisráðherra, fyrir rúmri hálfii aíld, í
viðskiftum þeirra við Kína og Japan, sem þá
var að byrja að koma undir sig fótunum á
vestræna vísu, sá andi, sem þá allajafna tók
málstað lítilmagnans, og aldrei datt í hug að
færa sér í nyt styrkleik sinn til þess að kúga
smáþjóðirnar, virðist nú eiga erfitt uppdrátt-
ar hér í Vesturálfu. Aftur á móti hefir andi
prússneskra hervaldsinna, eins og Bernhardi
yfirhershöfðingja, sem áður hefir átt fáa og
— það þarf varla að taka það fram — smáa
spámenn á vesturhveli jarðar, og varla þor-
að að reka höfuðið upp í frelsisbirtuna, nú
dafnað og vaxið ásmegm, í þeirri haturs og
hrakyrðahríð, er yfir heiminn hefir dunið
síðastliðín 10 ár, líkt og púkinn á bitanum
forðum, er fitnaði við hvert blótsyrðið. En
nú er svo komið, að spámenn hans, þó enn
séu þeir lítt merkilegir, æpa opinberlega að
hugsjónum Washingtons, Lincolns og Webst-
ers.
Maður er nefndur W. L. Rodgers, og er
aðmíráll að nafnbót í sióliði Bandaríkja-
manna. Hann nýtur nú eftirlauna eftir langt
og vel unnið æfistarf sennilega. Ekki vit-
um vér um hver afrek hann hefir unnið
föðurlandi sínu til frægðar og eflingar, en
herskár er gamli maðurinn ennþá, sem bezt
má verða, og letur sízt til stórræðanna. Má
og vera að honum sjálfum hafi ekki auðn-
ast að standa í þeim, eftir hiartans lyst, og
ætlar hann því að leggia löndum sínum þau
ráðin, er megi halda nafni hans upni um ald-
ur og æfi. Hann hélt nýlega ræðu í WiII-
iamstowm, og eggiaði menn fast til vopna-
búnaðar, til bess að vera viðbúnir beim degi,
er Bandaríkiajbjóðin telur 200.000.000
manns. (Þetta minnir dálítið á “Der Tag”
Vilhiálms Þýzkalandskeisara).
Þá sér aðmírállinn bað fyrir, að þurfi
að fara að rýma til í landinu, og þá vitanlega
auðveldast að gera það með allsherjar-
slaturtíð. Ef nokkur manndómur verður
í afkomendum vorum, þá munu þeir jafnan
standa vígbúnir, til þess að taka það er þeir
þarfnast. á kostnað annara þióða, eftir því
sem veröldin fyllist af mannfólki. Vér eig-
um þá að leggia til stríðs. til þess að halda
sæti voru meðal annara þióða sjá borgur-
um vorum farborða, og sjá þeim fvrir nýj-
um bústöðum á kostnað annara þjóða.”
Hann er ófeiminn gamJi maðurinn. Og
það væri ekki ónotalegt fyrir einhveria smá-
hróðina, að vera nágranni hans, — segjum
Belgíu — eða Canada — ef hann væri al-
ræðismiaður hiá einhverju stórveldinu. Hann
ætti að bióða heim Vilhjálmi keisara, sem nú
er líka á eftirlaunum, til þess að aðstoða
sig við að faera sameiginlegar hugsjónir
Eeggja í letur. Það yrði lesandi bæklingur
úr því. Aðmj'rállinn býst nú reyndar ekki
við þ vi, að Bandarikjamenn nai 200,000,
000 fyr en eftir svo sem 100 ár, svo oss
smámennunum er óhæft fyrir honum ennþá.
“Eftir oss syndaflóðið”. Annars væri ein-
lægara fyrir hverja þjóð, að slátra heimíi
hjá sér siálf, ef ofvöxtur er að færast í
mannkynið og hana sjálfa. Það er bæði ó-
dýrara og flj’ótlegra.
Nei, það er víst um það, að þrátt fyrir
allar vængfleygar setningar um gagnsemi
þessa ófriðar. þá hefir hann engu hví góðu á
veg hrundið. er dálítil stilling, dálítið mannvit
og dálítil alúð hefði ekki getað til leiðar
komið á stvttri friðartíma. Hið eina eragn-
Iega er af honum vonandi flvtur er það, að
stóreflis rauf hefir nú verið höggin í þá
blekkingarslæðu. er vafið var um orsökina,
svo nú skín í nakinn og ófrýnilegann sann-
leikann. Og þar sem menn alment áður
voru að fá ógeð á blóðsúthellingum. Wg
þióðirnar létu að miklu leyti tevmast á blóð-
völlinn fyrir þessa blekkinsru, þá er nú eina
vonrn sú, að menn láti ekki í næsta sinn
blekkiast iafn grévoilega. Að ménn verði
að min'ta kosti jafnhreinskilnir og vinur vor
eðmírállinn, í næsta sinn, er menn fara út
til Móðsfarfa.
En ekki verður það of oft endurtekið,
að því var betta str'ð óþarft, að alt mátti
færa til betri vegar á friðsamleeran hátt, hefði
mannvit og manngæzka verið látin ráða. Og
að það er skvni gæddum mönnum, er kalla
sig siðaða, til óvirðingar, að hafa svo lítið
lært af mannkynssöeTjnni og svo illa kent
hana í skólunum, að slíkt heljarslys skyldi
þurfa að henda mannkynið.
Salmagundi.
Vér rákum augun í stutta frétta-
grein í New York blaði nýlega. Og
lásum. Stutt og laggott: Oss
liggur við að halda, að fréttasmal-
inn, er “flyðruna” hlaut, hafi tek-
ið spón úr aski lesendanna; Því
séu fréttir það, sem sjaldan hend-
ir, þá voru hér fréttir á ferðum.
Og að hugsa sér það víravirki, er
fimur penni hefði getað um það
krotað!
* * ¥
Það sem frá var sagt var þetta:
Þektur lögmaður í New York
sótti um skilnað frá konu sinni og
ásakað hana um ótrygð. (Ekkert
skelfilegt eða óvanalegt við það).
Kona hans játaði það satt vera, að
maður hennar ætti ekkert í
“einkabarni þeirra”, heldur væri
faðirinn listamaður einn í nyrðri
hluta borgarinnar. En það kom
flatt upp á flesta, að hún neitaði
þeirri ásökun að hún hefði gert
hjónabandsspell. Hún kvaðst ald-
rei hafa verið bónda sfnum ótrú.
Það eru mök hennar við þenna
listamann, sem veita sögunni íhug-
unargildi. Og greypt um hvatir
hennar sem þungamiðju teikning-
«arinnar eru þau sem umgjörð, er
jafnvel Maupassant hefði mátt vel
við una.
Hún hafði verið gift í fimm ár,
og vissi að maður hennar var ó-
frjór. Hún vissi Iíka, að allar ósk-
ir hans stóðu til þéss að eignast
afkvæmi, og að það myndi bera
hamingjuna inn í líf þeirra beggja,
en þar sem þeim tveim sjáanlega
ekki gat orðið barna auðið, tók
hún til annara ráða.. Hún ásetti
sér að leita á náðir þessa glæsilega
bygða listamanns, eftir að hafa
virt fyrir sér fjölda manna, og
vegið allar ástæður með og móti,
er hún grandgæfilega hafði rann-
sakað ætterni hans og forfeður.
Þau höfðu aldrei talað saman, er
hér var komið sögunni, en hún
hafði veitt honum eftirtekt álengd-
ar.
* * *
Hún gekk inn í verkstofu hans
með þykka slæðu fyrir andliti, og
bað hann að ganga með sér á ein-
tal. Hvernig hún orðaði erindi sitt
kemur ekki þessu máli við. En
hún gerði honum) skiljanlegt, að
hún óskaði þess, að hann yrði
faðir að barni hennar. Hún vildi
ekki taka af sér slæðuna, og hann
mætti aldrei reyna að komast eft-
ir því, hver hún væri. Að þess-
ari stundu liðinni, yrði hann að af-
má hana algjörlega úr huga sínum.
Hafi listamaðurinn nokkuð kyn-
okað sér að verða við beiðni henn-
ar, þá stóð það ekki Iengi. En
minni hans reyndist betra eða for-
vitni hans meiri, en hún hafði bú-
ist við.
* ¥ ¥
Nú liðu fimm ár — fimm unaðs-
leg hamingjuár í lífi lögmannsins.
Dagsól hans er gullhærður dreng-
ur, sem hann á sjálfur. En einn
góðan veðurdag kemur íturvaxinn
ungur maður inn á skrifstofu hans
og segir honum sögu af árangurs-
lausri leit, er hann hafi staðið í.
Hann leitar hjálpar hjá lögmiannin-
um til þess að hafa upp á barni,
sem hann heldur, að hann eigi í
vörzlum einhverrar auðugrar fjöl-
skyldu í New York. Hann langar
til þess að sjá barnið, einu sinni
eða tvisvar; ekkert annað.
Hann skýrir lögmanninum frá
öllum atvikum lútandi að þessu
barni, — mánaðardegi, hve göm-
ul konan hafi sennilega verið,
kækjum hennar og öðru, er hafi
mátt þekkja hana á. Lögmað-
urinn, sem áður hafði grunað, að
sér myndi ekki verða barns auð-
ið, ber nú saman þenna mánað-
ardag við fæðingardag sonar síns,
og þykist nú uppgötva að hér sé
faðir “hans eigin barns”, og að
konan sé erki-prettatól. Þessari
uppgötvun fylgir svo krafa um
hjónaskilnað og hneykslismál.
* ¥ ¥
Hér er nú víður skeiðvöllur
opnaður skarpvitrum siðfræðing-
um. Vafalaust geta þeir fundið
djarfstígum fótum hennar átyllu í
Gullfoss Cafe
(fyr Riooney’s Lunch)
629 Sargent Ave.
Hxeinlæti og smekkvísi ræöutr í
matartilbúningi voi-um. Lítið hér
lnu og fáið yður að borða.
Höfum leinnig altaf & boðstól-
um: kaffi og allskonar bakninga;
tóbak, vindla. svaladrykki og skyrs
göfugum hvötum konunnar — um-
hyggju hennar fyrir hamingju
bónda síns, með því að láta heit-
ustu óskir hans einhvemveginn ræt
ast. Til þess verður hún að
bregða á leik yfir sáttmálsörk
borgaralegs siðferðis og sparka af
sér aktaumum siðvenjunnar,
Gerði hún rangt ? Er hægt að rétt-
læta gjörðir hennar á nokkurn
hátt?
Ég er enginn siðfræðingur, og
vil þvf ekki takast á hendur að
leysa úr spurningunni heldur láta
henni ósvarað, lesendanum til í-
hugunar.
L. F.
“Welcome to
Hornafjord.”
Stórblöðin hér í Minneapolis
hafa verið þessa dagana að hampa
Hornafirði á Islandi á fremstu síð-
um. Hornafjörður — hvar á
gamla landinu sem staður sá ann-
ars er alt í einu orðinn frægur.
Hver fréttin þaðan hefir rekið aðra
allar hverjum sönnum Islendingi
til hins mesta hugarléttis og á-
nægju.
Eg hlýt að játa þá yfirsjón
mína, að eg var um tfma á nál-
um yfir umhugsuninni um það,
hverjar viðtökurnar annars yrðu,
er hinir nú víða þektu Bandaríkja-
flugmenn kæmu til Hornafjarðar.
Hringsól þessara manna kringum
hnöttinn, hafð, hingað til verið
þeim endalaus sigurför, úr einum
stað í annan. Nú voru þeir ný-
komnir úr veizlufagnaði og við-
hafnarlátum í hvorki meira eða
minna en Lundúnaborg sjálfri.
Eftir örlitla dvöl í Orkneyjum var
ferð þeirra svo heitið til Horna-
fjarðar á Islandi. Hví í ósköpun-
um halda ekki mannaular þessir
fyrst til höfuðstaðarins, Reykja-
víkur? Spurning sú barðist um í
huga mínum, og við lá að eg
skylfi á beinum yfir þessu öllu
saman.
Loftflotinn er staddur í Orkn
eyjum. Þokur og þungbúið loft
orsakar þar Iengri töf en gert var
ráð fyrir í fyrstu. Morgunblöðin
hér birta svo þá frétt, að nú séu
flugmennirnir lagðir af stað —
til Hornafjarðar! Kvöldblöðin
flytja framhald sögunnar, og
skýra frá, að ekki hafi flugmönn-
um tekist greiðlega f þetta sinn.
Flotinn, sem sampnstendur af
fjórum loftskipum, var ekki kom-
inn langt, er ógurlegur þoku-
bakki verður á leið hans, sem að-
skilur flugbáknin og orsakar að
þremur skipunum er ekki unt á-
framhalds, og eru tilneydd að
snúa aftur. En einn flugmaður-
inn, sænsk-ættaður víkingur — er
líka sver sig til skyldleika við
norræna kappa og konungamenn
— fær brotist í gegn og haldið
ferð sinni áfram til hins fyrirhug-
aða staðar — Hornafjarðar. Full-
hugi þessi hefir storminn í fang-
ið en breytir þó stefnunni Iítt, og
hvessir arnaraugu sín í áttina —
til íslands.
Segir svo ekki af ferðum hans,
fyr en hann eygir land fyrir stafni
— eða undir stafni, réttara sagt
— Sér von bráðar stað þann
er hann hyggur vera Hornafjörð,
og tekur þá samistundis að “hnita
hringa marga” og þannig undirbúa
viðhafnarlega niðurstigiVingu.
Gengur þetta alt eins og í sögu. En
þegar Iendingunni er náð, og vík-
ingurinn loftfrái og háseti hans
eru stignir á samfasta jörð á Is-
landi, eru þeir boðnir velkomnir
af myndarlegum þorpsbúum (að
sögn eins stórblaðsins hérna).
Reka þeir svo augu í feiknastórt
merki, er reist hefir verið þeim tíl
heiðurs, þar við blasir mikilfeng-