Heimskringla - 27.08.1924, Page 4
*. BLiAÐSlÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPBG, 27. AGÚST, 1924.
y$mnskvin$l&
(Stofnuð 1886)
Kemur ðt A hverjum mlISvikudegl.
EIGENDURi
VIKING PRESS, LTD.
853 og 855 SARGENT AVE., WINNIPEG,
Talslml: N-6537
Vert5 blat5slns er $3.00 árgangurlnn borg-
ist fyrirfram. Allar borganir sendist
THE YIKING PREfcS LTD.
SIGFÚS HALLDÓRS frá Höfnum
Ritstjórl.
UtanAnkrlft tll blaiÍNÍnN:
THE VIKING PRESS, Ltd., Box 3105
UtanAMkrlft til ritHtjArana:
EDITOit HEIMSKRINGLA, Box 3105
WINNIPEG, MAN.
“Heimskringla Is published by
The Vlkinjc Press Ltd.
and printed by
CITY PRINTING & PUBLISHING CO.
853-855 Sargent Ave., Winnipegr, Man.
Teiephone: N 6537
WINNIPEG, MANITOBA, 27. ÁGOST, 1924.
Sinn siður í hverju
landi.
Franskir listamenn sitja á kaffistofum um
alla Parísarborg, baða út öllum öngum hver
framan í annan, og mtelskan freyðir út um
varir þeirra. Ekkert af þessu er nú reyndar
nýlunda. Þeir hafa altaf á kaffihúsunum
setið, altaf leikið allir á hjólum og altaf
mælskir verið. En rétt sem stendur eru þeir
með allra ókyrrasta og mælskasta móti. Or-
sökin er sú, að sú keisaralega stórborg Tokio
hefir haft með höndum listsýningu undanfar-
ið, og meðal annars fengið. mörg listaverk
að láni frá Frakklandi. En þegar búið var
að hnita í raðir öllum listaverkunum í sýning-
arsalnum, og farið var að hleypa fólkinu inn,
|>á tóku að heyrast undrunar, gremju- og
skelfingaróp úr einu horninu. Þegar að var
gáð stóð þar flokkur heiðvirðra japanskra
borgara af öllum stéttum og sprettu fingrum
að einni frægustu myndastyttunni, sem til er
eftir Auguste Rodin, einhvern mesta mynd-
höggvara, er heimurinn hefir átt.
Nú er vart til jafn listræn þjóð og Jap-
anar. Þar hefir nær því hver almúgamaður
listsmekk og listvit, líklega á ennþá jafnhærra
stigi, en frændur þeirra, Kínverjar, og list-
vitrasta þjóðin í Evrópu, Italirnir . Og þó
austræn og vestræn list hafi ekki farið í sömu
stefnu þá kunna þeir þó að meta það sem
vel er gert hjá oss.
Orsökin til þessa hávaða var þá heldur
ekki sú, að þeim fyndist ekki verkið vel af
hendi leyst, hvað sjálfa smíðisheflinguna
snertir. En þessum heiðvirðu og listelsku
borgurum fanst myndastyttan vera fram úr
hófi ósiðleg og dónaleg, sérstaklega dónaleg.
Myndastyttan er nefnd “Le baiser”, — Koss-
inn”, og er af undurfögrum unglingum,
ícarli og konu, er vefjast örmum og mynnast
sælum og heitum kossi.
Kossinn hefir fengið á sig miargra alda
hefð. sem blíðuatlot meðal vestrænna þjóða,
og aldrei verið á honum hneykslast, hvert
heldur manna á milli, eða í listinni. Oss
gengur því illa flestum, að skilja afstöðu
Japana í þessu máli, og þær tiltektir þeirra
að hylja myndina þarna á sýningunni fyrir
ausrum almennings með bambustiöldum.
Frökkum þótti sér og franskri list óvirða ger,
og leituðn til utanríkisráðherrans jananska
fyrir tilstilli sendiherrans í Tokio. En þeir
fengu bað svar þar, að utanríkisráðuneytið
gæti ekkert við þessu gert. bað væri srert að
boði lögreglustjórans í Tokio — en lögregl-
an erætir þar almenns velsæmis, sem annars-
staðar -— og yrði því að snúa sér til hans.
Var það gert, og svaraði hann Frökkum á
þessa leið: “Að mynnast er siður, sem aldrei
hefir viðgengist í Japan. og bað er síður en
æsk ilegt að sá siður verði tekinn upo meðal
þióðar vorrar. Þessi ávani er óþrifalegur. ó-
siðlegur, blygðunarlaus og ófagur og sennilegt
að hann hafi sýkingarhættu í för með sér”.
Neitaði lögreglustiórinn því algiörlega að
taka tillit til þess hvers franska stiórnin ósk-
aði um þetta mál og una Frakkar hið versta
við.
En þeir fáeinir borgarar, er sendu um-
kvörtun til lögreglustjórans og lögreglustiór-
inn siálfur, eru ekki einir um þessa skoðun.
Á bak við þá stendur svo að segja öll þióð-
in, sem einn maður. Hefir Ichinobata Kin-
nosuke, prófessor í fögrum listum við há-
skólann í Tokio, skvrt nánar tilfinningar Jap-
ana í þessu efni fyrir enskum blaðamanni,
og er fróðlegt fyrir oss vestræna menn, að
kynnast þvf nánar. Hinn lærði og listræni
vísindamaður kemst svp að orði:
“Útletndir listarnenn skilja ekki afstöðu
vora til þessa máls. Þeir af oss, sem kossum
bafa kynst álíta að sá siður beri vott um á-
kafa ótamda og ófagra ástríðu. Hann er
manninum ekki eðlilegur, heldur er það á- J
vani, sprottinn einhverntíma á löngu liðnum
öldum meðal evrópeiskra drabbara, er voru
að leita að nýjum munuði til þess að svala
fýsnumi sínum. Það er satt að vísu, að kossa-
gangur er nú orðinn Evrópu- og Ameríku-
mönnum svo innrættur, að nærri mun stappa
að orðinn sé að eðlishvöt, en svo er ekki um
fjölda annara þjóða, sem sjá má hér í Japan
þar sem menn ekki hafa haft mök við Evrópu-
þjóðirnar.
Vér erum algerlega mótfallnir því, að
sýna kossinn í nokkurri listmynd. Hann er
einn af þessum óhemjulegu, ótömdu og ófögru
tilburðum, sem svo oft stórlýta evrópeiska
list. Vér áfellumst harðlega þá hugmynd, að
sýna menn og konur engjast í óeðlilegum
armlögum, þrýstandi óheilnæanum kossum á
varir hvers annars.
Vér höfum ekkert á móti því þó þessar
m|yndastyttur séu naktar. En vér
höfum ógeð á þessum ófögru at-
Iotum. Vér virðum og dáumst að mann-
legum líkama, hvort sem hann er klædd-
ur eða nakinn, þegar hann er sýndur f sam-
ræmi við grundvallareglur japanskrar listar.
Eins og þér vitið baða menn og konur sam-
án í Japan, klæðlaus og án þess að nokkrum
detti í hug að hneykslast á því. En að kyss-
ast er ófagurt, og þar að auki hættulegt j
vegna smitunar. Og fyrs.t og síðast er siður-
inn ófagur og gagnstæður öllu velsæmi. Ég
myndi álíta það sérstaka móðgun af minni
hálfu, ef ég leyfði mér að kyssa konuna
mína, já jafnvel konu af mákið óæðri stig-
• *
um .
“En er þá engin hæfa í því”, spurði
blaðamaðurinn hinn mælska prófessor, “að
þessi siður, sé búinn að ná dálítilli fótfestu
hér og þar í Japan?”
“Jú, því er miður að nökkrir villuráfandi
menn og konur hafa tekið upp á þessum
óvana, og hneigst að honum. En mann-
kynið hefir altaf haft tilhneigingar til ýmsra
lasta, til dæmis kossaatlota, drykkjuskapar
og sæfandi meðala”.
Það þarf varla að taka það fram, að öll
atriði, er lúta að kossum, eru vandlega klipt
úr kvikmyndum þeim, sem sýndar eru í Jap-
an. Ag vísu er það nú bættur skaðinn, því
listgildi þeirra atriða er sjaldnast svo greypi-
legt, að ekki megi iafnvel án þeirra vera.
að minsta kosti meðan að aðgangur er að
ýmsum þeim kossasýningum, jafnt fyrir ung-
börn og staðfestulausa unglinga og sjötug
öldurmenni. En um sanna list er öðru máli
að gegna.
En svona gengur það í heiminum. Gaml-
ir guðir veltast af stóli, og nýiir koma í stað-
inn, eða réttara sagt, svo ekki valdi misskiln-
íngi um of: gömul átrúnaðarkerfi falla f\'rir
tímans tönn og ný koma í staðinn. Það sem
var dauðasynd í gær, er góður siður og göf-
ugmenska í dag. Það eru ekki óramargar
aldir, síðan að ungar meyjar og ógefnar
manni ekki máttu setja upp hár sitt, eða hylja
það, til þess að brjóta ekki algjörlega í bága
við alment velsæmi. Já, meira en það: það
var hreint og beint sáluhjálparspursmál. ó-
vinurinn hafði bá “snöru snúna snarlega þeim
tilbúna, sem fóru með fléttað hár’ . eins og
gamla versinu var stundum vikið við. Fyrir
rúmlega hálfri öld taldi kirkian þá Darwin og
Wallace og nokkra aðra vísindamenn, er að-
hyltust skoðanir þeirra, nær því óalandi og ó-
ferjandi öllum bjargráðum, og vísa eilífri
glötun, er þeir létu í Ijósi bað álit sitt, að
ættfeður mannkynsins hefðu ekki verið
skapaðir með sama líkams- og sálargervi og
vér höfum nú í dag, heldur hefðu .verið ei-
Jífri breytiþróun undirorpnir, frá lægsta stigi
Iífstilverunnar, og lefngi verið á hérumbil
sama broskastigi og mannaparnir nú, enda
náskyldir þeim.
Nú efast enginn vísindamaður um þessi
sannindi Iengur, þeirra er sig gefa við lífeðlis-
fræði eða öðrum náttúruvísindum bar að lút- j
andi. Og ekki eru það einungis vísinda- j
mennirnir sem um betta hafa sannfærst. i
heldur allur þorri vel læsra og skrifandi j
manna, í þeim menningarlöndum, sem lengst ;
eru komin. og þar sem ýmsar steingiörvis- j
kendar stofnanir, eins og t. d. kaþólska j
kírkjan, ekki svínbinda frjálsa hugsun, eða j
tildra upp bamlbustiöldum blindsýni og
hleypldóma, til þess að skýla sannleikanum, I
sem öllum ætti að lýsa, sem hádegissól í I
heiðríkju.
Úr bví vér nefnum aftur bambustjöld-
in, skulum vér nota tækifærið til bess, að
láta þess getið, að vér vilium revndar engu
spá um álit Japananna eða vor Evrópu-
manna um réttmæti þess, að menn er unn-
ast sýni það með því, meðal annars, að
mvnnast. Til bess breytist siðferðistískan
of snögt og of gagngert. En tiltækið með
bambustiöldin er jafnóviturlegt og það er
fánýtt. Vafalaust sigrar önnnrhvor stefnan.
En hún sigrar ekki að valdboði lögreglu-
stjórans í Tokio, eða franska sendiherrans
þar. Engin stefna, góð né ill sigrar fvrir
valdboðið eitt. Vitandi þjóðarvilii verður
að standa að baki hverrar sigurvinningar.
Lögreglustjórinn í Tokio er að revna að
orða löndum sínum frá ímyndaðri eða veru-
legri hættu, með því að byrgja þeim út-
sýnina til hættunnar. Lögreglustjórar, og
aðrir valdsmenn, andlegir ekki síður en ver-
aldlegir, hafa á öllum öldum verið að því
sama bjástri, og eru það enn í dag. Þetta
tekst aldrei. Til þess að forðast hættuna
verða menn að horfast hreiniskilnislega í
augu við hana, læra að þekkja hana og sjá
hvernig hún muni haga sér — hvert hún sé
nokkuð hættuleg í raun og veru.
Siðferðistízkan er altaf að breytast. Og
á vafalaust eftir að halda svo áfram um ó-
tölulegar aldaraðir ennþá, svo skamt sem
mannkynið er á veg komið á leiðinni til Ijóss-
ins. Þessvegna er hver mannlífsalda, sem rís
og fellur, svo miklu smávægilegri í raun og
veru, en hún kemur oss fyrir sjónir, sem á
henni eða með henni fleytumst. En
“Ég trúi því sannleiki að sigurinn þinn
að síðustu vegina jafni
og því stíg ég hiklaust og vonglaður inn
í frelsandi framtíðar nafni.”
Einhverntíma kemur að því, að engin
“tízka” ræður hvötum mannkynsins. Ein-
hverntíma kemur að því að öllum blæjum
og öllum bambustjöldum verður svift af
hverju fyrirbrigði. Einhverntma kemur að þvf
að vér verðum leiddir, eða leiðum oss sjálfir
með tilstyrk krafta, sem oss eru að miklu
leyti huldir nú, í allan sannleika. Þá rís ný
jörð úr sævi.
Þekking hérlendra
manna á Islandi.
Oss var nýlega sagt frá því, að hér um
daginn hefði verið sýnd mynd af Eskimóa-
stúlku á einu kvikmyndaleikhúsinu hér í
bænum og staðið undir henni til skýringar
“An Icelandic Beauty” — íslenzkt fríð-
kvendi. Hefði þetta skeð á Frakklandi, ein-
hversstaðar í Suður-Evrópu, eða jafnvel í
Bandaríkjunum hefði oss ekkert á þessu
furðað. Landfræðisþekking almennings, og
jafnvel þeirra, er til mentaðra manna eiga
að teliast víðsvegar um heim, er af mjög
svo skornum skamti yfirleitt, og alveg sérstak
lega, og eðlilega, þegar um ókunnar smá-
þjóðir er að ræða, sem menn hafa lítið af
að segja ogjítil eða engin mök við. En hér
í Canada og sérstaklega hér í Winnipeg ættu
menn þó að vita töluvert betur. Þó skal það
játað, að sá lýður er mest stendur að kvik-
myndaleikhúsum, hér sem annarsstaðar, mun
sjaldnast hafa etið stóra munnbita, eða
marga af almennu skilningstré, eða þekking-
ar, og er því mláske ekki ástæða til þess að
áfellast þá í allri fáfræðinni. Því síður,
sem menn jafnvel á Norðurlöndum, þar sem
engir Islendingar hafa haft aðsetur, hafa til
mjög skams tíma, verið sorglega fáfróðir
um íslenzka hagi, annað en að þar væri
Hekla og Geysir, og vel man sá, er þetta
ritar, að hafa verið intur grandgæfiWa og
alvarlegá eftir því, af hámlentuðu fólki í
Svíþjóð, bvort bað væri nú alveg satt, að
“almúginn” á Islandi væri ekki skrælingja-
kyns, að minsta kosti að töluvert miklu
levti. Látum því bessa kvikmyndahúss-
vitlevsu fjúka gremjulaust.
En það sem olli oss meiri Ieiðinda og
gremju, var að heyra það, að í fylgiblaði
merkasta blaðsins hér í Winnipeg “Free
Press” hefði staðið endemis vitlaus grein um
j oss Islendinga og lifnaðarhætti vora heima-
í fvrir. Vér höfum að vísu ekki séð þetta
j siálfir, þar eð þetta fvlgiblað fer vanalega
fyrir ofan garð og neðan hjá oss, en svo
margir skilríkir menn hafa umj þetta talað við
oss, að engin ástæða er til þess að halda, að
rangt sé farið með. Er þar skýrt frá lifn-
aðarháttum vorum og mataræði, og líkast því
sem skrælineriar ættu hlut að máli. Þetta
er því leiðinlegra seml “Winnipeg Free
Press”, hefir, bað vér til viturp og heyrt höf-
um ávalt verið sérlega vingiamlegt í garð
vorn IsJendinga. Að vísu má ekki altaf rit-
stióum, og sérstaklega ekki ritstiórum stór-
blaða, um alt kenna. er af misskilningi eða
þekkingarleysi er í blöðin skrifað, enda teli-
um vér og víst. að bessi greinarræfill hafi
algiörlega framhiá aðalritstjóranum farið.
En samt sem áður finst oss þetta nærri
bví óafsakanlegt hirðuleysi, og þekkingar-
levsi, er þarna hefir oennanum stýrt. Vér
í fimtíu ár. og höfum iafnan og frá því
fvr«ta unnið oss ágætis orðstír. Erum vér
j siálfir bar ekki einir til fráasgnar, heldur
j sérstaklega Engilsaxarnir, samiborgarar vor-
ir, er betta land byggia.. Hafa beir jafnvel
gengið svo langt sumir. að telja oss allra
beztu borpfara bessa Iands, sbr. ræðu bá er
séra Friðrik Friðriksson frá Wynvard hélt hér
í W'nnipeg á Islendinfradagínn, 2. ágúst síð-
astliðinn. og ummaeli fiölmargra merkra
manna hér í landi fvr og síðar.
Og þvað viðvfkur veru vorri og starf-
semi hér í Winnipeg. bá hvggium vér ekki of-
mæh, að fremur sé bæjarprýði er lýti að Is-
lendingum hér. DagJeg framkoma beirra,
og þá ekki síður híbýlaprýði, mun fyllilega
þola samanburð við hegðan ann-
ara þjóðflokka er þenna bæ
byggja.
Það er sagt og ekki of mælt,
að vér séum hörundssárir, íslend-
ingar. Og sumum kynni að finn-
ast það tiltektasemi, að móðgast
af öðru eins og þessu. En svo
er ekki. Stórþjóðirnar gætu
hummað þetta fram af sér, þurk-
að móðgunina út með einu brosi.
Hún myndi ekki gera þeim neitt
til. En vér Islendingar höfum ekki
efni á því, að ganga þegjandi fram
hjá þessum hlutum. Vér höfum
vegna fæðar og fjarlægðar, ver-
ið um of misskildir og vanræiktir
í vitundarlífi annara þjóðaa.
Oss hálffurðar, ef ejnginn af
Winnipeg-Islendingum, semi hér
eru búnir að vera Iengi, og ávinna
sér borgararétt og hylli, færir til
réttari vegar þessa leiðu vitleysu í
dálkum “Free Press”. Væri ekki
þar dálítið verkefni fyrir einhvern
þektan og efnilegan námsmann
eða mey, sem telur til ræktar við
þjóðerni sitt?
----------x----------
Salmagundi.
“My conscience-”
Ekki er óhugsandi, að þetta
gæti hrokkið út úr manni eða
konu, sem þyrftu að kveða al-
mennilega að einhverju, en sem
annars eru ekki vön að blóta, eða
þá yfir það hafin. Þau vilja ekki
Ieggja nafn guðs eða djöfulsins
við hégóma, en sverja þá við það,
sem þar næst er heilagt eða ótta-
legt. Það gæti verið “mannorð”
þeirra eða “auga” eða eitthvað
þess háttar. Ekki ósjaldan er það
samvizkan. Hvers vegna?
Samvizka mannsins — siðferð-
iskend hans, gáfa hans að gera
greinarmun á réttu og röngu, er
tákn um ágæti hans, að því er oss
er sagt. Hún er prófraunin á
göfugum uppruna hans. Hún er
tákn um skyldleika hans við Guð.
En fyrst og fremst er hún sönn-
unargagn þess, að hann hefir et-
ið af skilningstrénu góðs og ills
—þ. e. a. s. forboðna eplinu.
Festið það í huga; á því ríður.
¥ ¥ ¥
Vér höfum ósjaldan heyrt og
ótal sinnum lesið, að guð gaf
manninum samvizkuna, svo að
hann gæti stjórnað gerðum sín-
um. Af þessu hlýtur að leiða, að
hún er óskeikul. Hún er nákvæím
ur vísir á rétt og rangt. Hún bít-
ur mann, ef hann gerir eitthvað,
er henni fellur miður, og lofar
hann fyrir að gera það, sem hann
veit að rétt er, sérstaklega ef önn
ur leið hefði ljúfari verið á þeirri
stundu. Hún skapar honum kjör-
réttinn, og gerir hann að ábyrgð-
armanni eigin verka. Hún kann-
ar forlög hans. — Spyrjið ein-
hvern þann er trúna hefir, hvort
þetta sé ekki rétt.
* ¥ ¥
Gott og vel. En nú er rækall-
inn sá, að meginreglur um siðferði
virðast fara eftir Iandalegu. Þær
breytast með breiddargráðum,
Iengdargráðum og tímanuim Sam-
vizka Davíðs konungs leyfði hon-
um að fremja ýmislegt, sem sam-
vizka vorra tíma, samsett og meir
vitandi, myndi brennimerkja hann
fyrir. Samvizkum Jóhannesar
guðspjallamanns og Tómasar af
Torquemada kemur ekki saman
um allar grundvallarreglur sið-
fræðinnar. Samvizka indversku
ekkjunnar leyfir henni ekki, að
lifa mann sinn Iengi; samvizka
kínversks mandaríns leyfir honum
að gera ýmislegt, sem samvizka
þín myndi harðlega ásaka þig
fyrir. Það sem var rétt eða rangt
fyrir hundrað eða þúsund árum,
getur verið hlutfallslega rangt eða
rétt í dag. Það sem er rétt í
Tyrklandi, getur verið rangt í
Ameríku.
¥ ¥ ¥
Getur það verið, að mannleg
samvizka, af guði gefin, sé undir-
Gullfoss Cafe
(fyr Rioomey’s Lunch)
629 Sargent Ave.
Hreinlæti og smek.kvísi ræðujr 1
matiartilbúnimgi vorum. Lítið hér
Inn og fáið yður að borða.
Höfum oinnig alfcaf á boðlstAl-
um: kaffi og allskonar bakninga;
tóbak, vindla. svaladrykki og skyr,
orpin tíma, stað og staðháttum?
Eða eru meginreglur guðs um rétt
og rangt breytingum undirorpnar?
Ætti að segja um þær, að þær
“gildi aðeins vissan tfma”? Er
óhætt fyrir manninn að fylgja
boði samvizkunnar, þegar seinni
tímar máske áfellast hann, einmitt
fyrir þau verk, er samvizka hans
blés honum í brjóst að fremja?
Eru engin “eilíf sannindi” til?
¥ ¥ ¥
Sé það rétt — sem ástæða er
til að ætla — að maðurinn sé
samsettur af 35 hlutum af arf-
gengi og 65 hlutum af umhverfis-
áhrifum, þá hlýtur af þvf að leiða,
að hann er algerlega á valdi
krafta, sem hann ekki ræður við.
Hann tekur að erfðum ýmsar til-
hneigingar og hæfileika, og um-
hverfið umskapar þá.
¥ ¥ ¥
Samvizkan er kerfi af venjum,
eða meginreglum um rétt og
rangt, sem að manninum er rétt,
í sérstökum flokk eða þrepi þess
samfélags, sem hann lifir og hrær-
ist í. Hann velur ekki það kerfi,
fremur en hann velur það kerfí
af venjum, sem félagsbræður hans
fara eftir, venjunum sem sníða
samvizku hans stakkinn. Þær geta
verið réttar, að nokkru eða öllu
leyti; en um það er ekki mest
vert. Fyrst og fremst verða þær
að laga sig eftir tíma, stað og
ríkjandi ástandi.
¥ ¥ ¥
Yfirskilvitsgreining — fyrir-
frami gefín þekking (á réttu og
röngu — getur ekki staðist, þrátt
fyrir hina glæsilegu rökleiðslu
Kants fyrir þá sök, þó ekki væri
annað, að itoeginreglur um rétt
og rangt breytast með stund og
stað. Þær eru á sífeldu svifí.
Tízkuhættir breytast; og þeir eru
engan veginn á sömu lund alstað-
ar í heiminum.
¥ ¥ ¥
Hvað er þá samvizka ?
Ja, hvað er það, sem kemur
hvolpinum til að sneypast og setja
upp auðmýktarsvip, þegar komið
er að honum óvörum f matbúr-
inu? Er það ekki það, að hann
veit, að hann hefir brotið Iög-
mál þess húss, þar sem hann lifir?
Honum hefir verið kent, að hann
megi ekki éta úr búrinu.
Tilfinningar hans eru mjög hin-
ar sömu og bróður hans, sem
lengra er kominn, þegar hann
verður uppvís að íygi, að hafa
þar með brotið siðferðislögmól
samfélagsins. Væru þessar grund-
völluðu siðferðisreglur ekki tfl,
myndu hvorki maðurinn né rakk-
inn finna til sneypu eða iðrunar.
“My conscience-”
L. F.
----------x----------
Leiðrétting.
:Af einhverjum óskiljanlegum or-
sökum hefir slæðst lína inn í rit-
fregn Boga ólafssonar mentaskóla-
kennara, sem tekin var upp úr Vísi,
f síðasta tölublaö “Heimskringlu”,
sem átti alis ekki bar að vera, og
er mjög óheppilega komin. Prent-
ast hefir svo: “.. .. veldur því vafa.
laust bæði skeytingarleysi og lestur
illra þýdda bóka og íslenzku blað-
anna, er sum hver eru rituð hinu
auðvirðilegasta ambögumáli — eins
og til dæmis “Lögberg” og fl.”
Þessi síðasta lína “eins og t. d. o. s.
frv.” hefir vftanlega aldrei í Vísi
staðið, og biðjum vér alla hlutað-
eigendur velvirðingar á byi
svona óheppilega skuli hafa til tek-
ist. — Ritstj.
---------x----------