Heimskringla - 25.02.1925, Side 1

Heimskringla - 25.02.1925, Side 1
VERÐUUN ut,< . I COUPONS OG UMBÚÐIR ROYAU CROWN SendttS eftlr vert511sta tll Royal Crown Soap Ltil., 654 Maln St. Winnlpeg. 1 --------------------------------------— ■» XXXIX. ÁRGAXGUR. WmNIPEiG, MANITOBA, MIÐVIKUDAGINN 25. FEBRtJAR 1925. VERÐLAUN GEFIN FYRIR COUPONS OG UMBÚÐIR ROYAU CROWN Sendltl eftlr vertlllsta tll Royal Crovra Soap LtdM 654 Maln St. Wlnnlpeg. NCMER 22. Frá Montreal er símað 23. f. m., að Mr. Duncan Marshall, fyrverandi landbúna'ðarráðherra í Alberta, hafi sagt í ræSu, er hann hélt þar í Reform klúbbnum, að samningurinn “við Sir. William Petersen um 10 skip til flutninga gegn 275,000 sterl- ingspundum á ári, sem ríkisþingiö á ■nú aö fjalla um, sé mikilvægasta sporiö til hjálpar candadiskri naut- griparækt, sem enn hafi verið stig- iö. Kvaö hann menn hér í Cana la í sífellu æpa á fleiri innflytjendur til þess að grynka á ríkisskuldinni, en það væri til lítils aö ætlast til þess, ■ef ekki væri séð um, aö þeir gætu haft dálítið meiri arð af gresjunum, þar sem þeim væri holað niður, en svo, að þeir rétt héldu viö líftórunni. — Ef samningarnir kæmust á, mvndi flutningsgjald til Bretlands lækka um $5—8 dali á hverjum grip, er sendur væri. Frá Toronto er símað 19. þ. m., aö þar hafi andast þann morgun Lady Sifton. Hún var gift Sir Clifford Siftony sem eitt sinn var dómsmálaráðherra hér í Manitoba, og síöar innanríkisráðherra í ráðu- rneyti Sir Wilfred Laurier. Lögreglan hér i Winnipeg kvartar nndan þvíj að mjög hafi aukist ó. leyfileg sala svefnmeðala og sæfandi drykkja. Ætlar nú hestlið lögregl- unnar að taka höndum saman viö hæjarlögregluna til þess aö stöölva þetta. Var læknir einn Dr. W. J. McTavish hér í borginni tekinn fast- ur fyrir þaö að vera við þessi mál riðinn og bíður yfirheyrslu. Frá Ottawa er símað, að vestan- menn í stjórnarsölunum séu vongóöir um að fá $1,500,000 veitta til Hudson brautarinnar á þessu ári. Myndi það fé þá fara til endurbóta og á- framhalds brautarinnar. — En viss. ara er líklega að gera sér ekki altof miklar vonir um peningana ennþá. Frá Ottawa er símað 23. þ. m., aö Mr. Duncan, sem skipaöur var af stjórninni til þess að rannsaka hver* samtök ættu sér staö í Vestur-Cana- da um ávaxtasölu, hafi komist að því, að slík samtök ættu sér staö, og væru til stórskaða, jafnt fyrir framleiðend- ur, sem neytendur. — Er talið vist þar eystra, aö sakamálsrannsókn veröi þegar hafin gegn þeim er beitt hafa sér fyrir samtökin, og er álitið aö þeir eigi sér hreiöur í Winnipeg. Winnipeg Electric og Hydro- Electric hafa gert samning með sér um að hætta samkepni um rafveitu til ljósa og iðnaðar. Ætlar Hydro þá ekki að skifta sér af neinu þesshátt- ar utanbæjar, og Winnipeg Electric ekki af neinu innanbæjar. Fær W.-fé- lagið um $1,500,000 borgaöa fvrir staura og þræði, sem það á nú í borginni. Þessi samningur snertir ekki aö neinu leyti strætisvagnana. | Önnur lönd jj Frá Stokkhólmi er símað 24. þ. m., að þar hafi látist um há- degið þann dag Hjálmar Brant- íng, er þrisvar hefir verið for- sætisráðherra í Svíþjóð. Fékk hann lungnabólgu um miðjan desember, og snerist til æða- bólgu (phlebitis) í vinstra fæti, er varð honum að bana. Branting er öllum góðum rr.önnum harmdauði. Hann leiddi jafnaðarmenn til sigurs í Svíþjóð, og var alment viður- kendur af vinum og mótstöðu- mönnum, göfugastur og vitr- astur sfjórnm.álamaður, síðari part sinnar samtíðar. Georg konungur V., hefir veriö töluvert lasinn af innflúenzu undan. farið, en er nú úr allri hættu. Þó hafa læknar hans ráðlagt honum að leita til mildara loftlags, meðan hann sé í afturbata, og ætlar hann sér til Suöur.Frakklands í því skyni. Frá Sofíu, höfuðborg Búlgaríu, er símaö 23. þ. m., að óeiröir séu stöð- ugt á landamærum Yugo.Sllaviu (Serbíu er var) og Búlgaríu. Er jafn. vél búist viö ófriði milli ríkjanna ef svona helst, en ennþá hefir þó tek- ist að stilla til friðar, og sættast á misgerðirnar. Frá Washington er símað 19. þ. m. að Coolidge forseti, muni bráðlega boða til fundar í Washington, er Tæða skuli um vopnabúnað stórveld- anna. Stór.Bretaland og Japan hafa sama sem þegiö boðið, en um Frakka er alt óvissara ennþá. Er þó búist viö að Herriot forsætisráðherra muni sitja fundinn. Stórkonungurinn (Maharaja) í Nep al, hefir látiö boö út ganga, að uú á næstunni skuli alt þrælahald afnumið 5 ríkinu. Leggur rikið $425,000 dali, til þéss að bæta þrælaeigendum skað- ann, er þeir verða fyrir við þessa nýju löggjöf. — Nepal er um 54000 fermilur á stærð, og 5,600,000 íbúar. Þaö liggur sunnan í Himalayafjöll- uná og þar er Mount Everest. — Ríkið er sjálfstætt, en i vináttusam, bandi viö Englendinga, og fá Eng- lendingar leyfi hjá stjórninni til þess að fá þaðan hermenn á 'mála. Eru þær sveitir hinir nafnfrægu “Gurk- har”, indo-mongólskir að kyrii, afar herskáir. Frá London er simað 19. þ. m., að loftvarnaráðherranp, Sir Samuel Hoare ætli að fara fram á 21.319.000 pund sterling, til Ioftvarna. Það eru rúmir $100,000,000. Frá Berlín er símað 19. þ. m., aö hið nýja prússneska ráðuneyti sé svo skipað, er hér segir: Dr. Marx, (centrum) forsætisráð- herra; Wilhelm K. Severing (social.) innanríkisráðherra; Heinrich Hjrtsi- efer (centrum) ráðherra opinberra mála; Dr. Hugo von Zehnhoff i(centrum) dómsmálaráöherra; Próf. Recker (óháður) kenslumálaráöherra; Dr. Hoepkeraschoff (demókrat) fjár. málaráðherra; Dr. George Schrieber (centrum) verzlunarmálaráðherra, og Herr Steiger (centrum) landbúnaðar. ráðherra. -----0----- Grœnlandsmálið. OG FÆREYINGAR. í síðastliðnum mánuði höfðu Fær. eyingar Grænlandsmálið til umræðu á þingi sínu. Báöir flokkarnir, Sjálfstæöismenn og Sambandsmenn, voru sammála um aö bera fram kröfur um rétt Fær- eyinga til fiskiveiða við Grænland. Var samþykt í einu hljóði svo. hljóöandi tillaga: “Þingið fer þess á Ieit við stjórn. ina, aö fereyskum fiskiskipum verði veitt Ieyfi til að reka fiskiveiðar viö Grænland, aö reisa stöðvar í landi á þeim stööum sem nefndir eru að fram an í nefndarálitinu, aö þau landabréf, sem til eru af landi og hafi viö Græn land, fáist til afnota, og aö meö samn ingum .viö stjórn verzlunarinnar fái Færeyingar leyfi til aö verka aflann í landi, og ef til vill að fá að nota grænlenskan vinnukraft”. Um þetta voru allir sammála. En í umræðunum féllu ýms eftirtekta- verð orð frá Sjálfstæðismönnunum. Jóhannes Patursson, foringi þeirra, á- sakaði Dani meðal annars fyrir það, að þeir hefðu vanrækt að rannsaka fiskimiðin við Grænland og jafn- framt hefðu þeir hindrað norska rannsóknaskipið í starfi þess. J. P. Iauk máli sínu með þessuni orðum: “Eg ætla að greiða atkvæði með til lögu nefndarinnar. En ég get ekki látið hjá líða að geta þess, að mér fellur þungt að biðja danska ríkið um leyfi til að sigla til lands sem forfeður okkar bygðu og dvöldust í. Eg viöurkenni ekki rétt Danmerkur til Grænlands”. -----0----- Ur bænum. . 0 Sambandssöfnuður Árborgar heldur samkomur að Riverton og Árborg; fim.tudaginn 5. marz að Riverton og föstudaginn 6. marz að Árborg. Hr. Sigfús Halldórs frá Höfnum, segir frá malayiskum lifnaðarháttum, síra Ragnar E. Kvaran les upp,. og þe r báðir, ásamt ungfrú Rósu Hermannsson frá Winni- peg, syngja einsöng. Samkom- urnar hefjast kl. 8 síðdegis, og eru menn beðnir að mæta stund víslega. ÞJÓÐRÆKNISÞINGIÐ. Auk venjulegra þingstarfa verða, eins og á undanförnum þíngum, fyrirlestrar og skem.t- anir að kveldinu. Fyrst? kveldið (miðv.d.) talar síra Hjörtur Leó um “Vestur-íslenzk nauðsynja- mál”, og skemtir söngflokkur Goodtemplara, undir stjórn H. Thórólfssonar, með samsöng. Síðasta kvefdið (föstud.), flytur forseti félagsins, síra Albert Kristjánsson erindi, og ungfrú Rósa Hermannsson og Sigfús Halldórs frá Höfnum syngja. Aðgangur ókeypis bæði kveldin, og allir boðnir og velkomnir. Síra Ragnar E. Kvarhn messar í Selkirk kl. 3 sunnudaginn 1. marz í I Free.Mason Hall, en á venjulegum tíma í Sambandskirkjunni í Winni. 1 peg. ÍSLENDINGAMÓTIÐ Gleymið ekki að fjölmenna í Goodtemplarahúsið á fim.tudags kvöldið. Láfið það ekki undir höfuð leggjast, að heyra hvað Einar H. Kvaran, sem bezt er máli farinn allra íslendinga hefir um þjóðernismálin að segja. Að hlusta á hann einan er að fá álitlega vexti af gjald- inu, hvað þá heldur er þar við bætist svo mikill fjöldi annara ágætra manna er stuðla að því að gera kvöldið skemtilegt. Og gleymið ekki heldur að vel er séð fyrir þörfum líkamans eins og sálarinnar. Hinn ágæti og rammíslenzki matur, sem skemtananefndin hefir séð um að verði framborinn, ætti að gefa umræðunum yfir borðum alveg sérstakan byr undir vængi. Gera menn enn þjóðræknari og enn gáfaðri en áður. Föstudagirm 20. febr. fðr Mr. Gunnar Kjartanson, póstmeistari á Beckville heim til sin eftir mánaðar. dvöl i Winnipeg. Var hann skorinn upp á almenna spitalanum af dr. Brandson og heilsaðist honum vel. Dvaldi hann á aðra viku eftir aÖ hann kom út úr spitalanum hjá Mr. og Mrs. A. Anderson, 605 Agnes Street. Var dóttir Mr. Kjartansson- ar meö honum i þessari ferö. Lang- ar hann til meö þessum linum, aö votta þakklæti lækninum og kunn. ingjum og vinum, sem vitjuðu hans Bylja-rof. Jólin. hafa öllum tímum á — Endurboðun ljóss úr sólarvegi, Bjarmi af nýju lífi, og lengri degi — Niðurbeygða vakið vorsins þrá. Hálfblind augu aftur reyna að sjá Óskalandið gegnum kólgu bakkann; HVílast hljóð við heiðríkjunnar spá Þó hríðar klárinn reisi vetrar makkann Þó erui hjartanæmustu norræn jól, Að nema burtu sviða úr vetrar spori, Þar Ijómar björtust löngum eftir vori Þegar fjarst í burtu er suðræn sól. Þar er göfgast heimsins höfuðból, Hæst við tinda blikar manndóms andinn; Um hugdjarfasta líf, sem ljósið ól. Það líf sem jafnvel gróðurklæðir sandinn. Mannkostanna merkin standa hátt Meitluð inn í þjóðberg Norðurlanda. Drengskapar og dáðríkastan anda, Fékkstu heimur fyrst úr þeirri átt. Glæstan hetju á hann undra mátt Afl sem margföld slítur tjóðurböhdin; Hefur sjaldan orðið orku fátt, íslenzk hreysti streymir út um löndin. Vetrar-dvöl við hríð og heiftar-orð; Hryðjuverkin næða um kalinn svörðinn Stynur hnípin héluklædda jörðin Stráir helreið dauða á bæði borð. Byljir þjóða um mannlífs storma storð, Styrjaldir að ystu mörkum bruna Styðja sig við blóðug bróður morð, Og bölvun slá á sjálfa tilveruna. t Steypir þjóðum heims á heljarslóð Hrikaleikur margra Vítis-afla; Úr mannabúkum hleður háa skafla Um þverar álfur beljar saklaust blóð. Tryllist hann af mannvonskunnar móð, Molar sundur víg-girtustu borgir; Og sagan verður biturt harmahljóð Um heimsins mestu og þungbærustu sorgir. Þeir hafa ennþá krossfest kærleikann Og Kristur tálrast yfir heimsins syn%um “Fyrirgefðu þessum bræðrum blindum Faðir vor, og frelsa sérhvern mann” Af á*st og blíðu ennþá mælir hann. Eldmóð vígir lærisveinsins hjarta Dýrðarlegur sveipar sannleikann Sigurljómi komu dagsins bjarta. Bróður kærleiks sólríkasta sál, — Sigrað hefur bæði líf og dauðann. En fundið víða heiminn hjartasnauðann Tilbiðjandi Mammon, stein og stál, — Legðu hlust við okkar móðurmál Mannkynið á ný, að endurleysa Lægðu styrjar heift og haturs bál Þær hörmungar sem yfir veröld geysa. Sjá, það dagar loks og ljóma jól Löndum þeim sem vetrarharkan beygir Þar til, upp úr frosti og fönn sig teygir Þakklátt réttir sigurbros að sól Svipast um og sér þar húsa-skjól Sækir gegnum baráttuna launin Háfleygasta líf, sem ljósið ól Það líf, sem aftur gróðurklæðir hraunin. G. Einarsson. og gerðu alt, sem í þeirra valdi stóö, ti! þess að honum liöi sem bezt. Bið- ur hann góðan guð aö launa þeim öll um fyrir þá velvild, mannelsku og gestrisni, sem honum var auðsýnd. ----X----- Kvöldskemtun. Gott þótti mér að sitja kvöld- skemtun þá, er söngflokkur stúkn. anna hélt miðvikudagskveldið þann 18. þ. m. undir stjórn hr. HJalIdórs Þórólfssonar. Ekki eingöngu vegna þess, sem ég heyröi þar, og mun þó ekki ofmælt, að ('samkoman fækíst vonum betur, þegar tillit er tekiö til alls og þó sérstaklega þess, hve ung. ur söngflokkurinn er. Munu margir hafa undrast hve gott samræmi kom viða i ljós hjá söngflokknum. Vil ég sérstaklega benda á “Vorkvöld”, sem kaflmanna flokkurinn söng, og “Að fjallabaki”, sem flokkurinn söng allur; vantaöi lítið á, aö meöferöin á þeim lögum væri óaðfinnanleg. Fleira var þar til skemtunar en söng- flokkurinn, og alt vel úti látiö, og þó sérstaklega píanó sóló er ungfrú Helga Pálsson spilaði af svo mikilli snild, að allir dáöust aö, efa ég ekki aö allmargir þögular heill^óskir hafa henni verið sendar á meöan hún lék á hljóðferið, enda ætti þaö að vera ómaksins vert, aö óska þeim góös, sem jafnliklegir eru til aö gera oss aö góöu kunna og þessi unga stúlka, og ekki ætti það aö kæla hugarþel okkar, að hún er vel íslenzk. Eri ég ætla alls ekki að skrifa neinn dóm um þessa samkomu, en aöeins benda á aö þessi fyrsta frammistaða söng- flokksins var svo góö, aö mikils má af honum vænta. Hygg ég sönghreyf- ingu þessa hið þarfasta þjóðrækn. islyf, og þaö er skoðun mín, aö sé ekki hægt aö halda íslenzku þjóö- erni viö hér vestan hafs meö söng og sjónleikjum, þá dugi eng- in meðöl. Þetta er því hreyfing sú, in meðöl. Þetta er því hreyfing sú, er stúkurnar ísler.zku ættu aö hlvnna aö eftir megni, því aö þaö skiftir miklu okkar íslenzka þjóðlíf hér vestra, hvort söngflokktir þessi lifir eöa deyr. Vel sé upphafsmönnum þessara hreyf ingar og vel sé öllum meölimum þessa unga söngflokks, sem margir eru fædd ir hér í álfu, og þvj enn lofsverð- ari fyrir starfsemi sína í þarfir þess sem islenzkt er. Látum ekki það fólk fyrtast fyrir áhugaleysi okkar hinna, sem íslenzkari þykjustttm vera. B. G. Jón Thoroddsen cand. jur. 18. febrúar 1898 — 1. janúar 1925. Milli jóla og nýárs barst hingað frá Kaupmannahöfn skeyti um það, að Jón Thoroddsen hefði slasast á götu og aö tvísýnt væri um líf hans. Aðstandendur hans og vinir voru þó aö vona, aö slysið væri minna en orð var á gert. En á nýársdag kom sú hörmulega fregn aö hann væri dáinn. Jón Thoroddsen var fæddur á Isa. firöi 18. febrúar 1898 og varð þann- ig aðeins 26 ára. Hann var sonur þjóðmálaskörungsins Skúla sýslu- manns og alþingismann Thoroddsen og konu hans frú Theódóru, sem fyr. ir löngu er þjóökunn orðin fyrir bók- mentastarfsemi sína. Jón varö stúdent vorið 1918 og sigldi ttm haustið til Kaupmannahafnar til framhaldsnáms. Dvaldi hann þar vetrarlangt og tók þar próf í forspjallsvísindum vorið 1919. Aö því búnu hvarf hann heim til íslands og tók aö stunda laganám viö háskólann hér. Hjann lauk em- bættisprófi í lögum síðastliöiö vor. Jón var hár maður vexti, en grann. vaxinn. Augun voru dökk og fögur, ennið hátt og hvélft og svipurinn all- ur hreinn og bjartur. Hann var ó- veniulega gáfaður maður og fjölhæf- ur. Hann var ágætur stærðfræðing- ur og hafði næman smekk og skiln. ing á skáldskap og fögrum listum, Fékst hann og nokkuð viö skáldskap, einum þó á siðári árum. Hann hafði mikla þekkingu á fornbókmentum vor um og hafði mesta yndi af lestri þeirra, enda var hann alinn upp t þeim anda í föðurhústtm frá blautu það æ síðan. Það var eigi tilviljun ein að Jón varð jafnaðarmaður. Það var honum meðskapaö. Samúð hans með olnbogabörnum lífsins og rétt- lætistilfinning hans annarsvegar, en hinsvegar bjartsýni hans og trú á mönnunum hlaut aö leiða hann inn á þá braut. Enda þótt Jón tæki opin- berlega allmikinn þátt í hinni póli- tísku baráttu, þá bar hann ávalt hrein. an skjöld. Hann haföi óbeit á per. sónulegum árásum og smásmuguleg- um útúrsnúningum, enda báru stjórn. málagreinir þær, er han ritaöi, vott um það. Kjarni málsins var honum alt. Hann.bar ekki kala til nokkurs manns. Flokkur Jóns hafði miklar mætur á honum og reisti á honum miklar vonir í framtíöinni, enda er það trú min, að þar hafi veriö for. ingjaefni á ferðinni, sem hann var. Eins og áður er vikið aö, fékst Jón töluvert viö skáldskap. Fór hann þar nokkuö sínar eigin götur. Skáld- skapur hans var því eigi við almenn- ingshæfi. Alt sem hann ritaði bar vott um hið mikla listfengi hans. Stíllinn var hreinn og leikandi lipur og orðavalið látlaust, og fagurt. Yrk. isefni hans voru önnur en menn eiga j alment aö venjæ6t og báru þau jafn. an vott um gáfur hans og frumlega hugsun. Jón var svo óvenjulega hugmyndaríkur maður, aö yrkisefni hans voru óþrjótandi. Hann gaf sér því eigi tima til þessa aö vinna úr hverju einstöku þeirra sem skyldi, og þvi er þaö, sem hann hefir skrifaö frekar drög að merkum skáldverkum en fullsköpuö verk. Tvö smárit hafa komið út eftir hann: María Magdalena, leikrit, og Flugur, sym. bólskir smákaflar, hvorttveggja djúp- barnsbeini. En þaö sem mest prýddi Jón voru hinir miklu mannkostir hans. Hvar sem hann fór, bar hann göfugmenskuna með sér. Hjann var svo óeigingjarn, að ég þekki slíks eng- in dæmi — boðinn og búinn til að hjálpa þeim, sem áttu í einhverjum örðugleikum. Hann var hreinskilinn án þess aö særa, hrókur alls fagnaöar i vinahóp, en æðrulaus ef á móti blés. Þannig kom hann öllum fyrir sjónir, er þektu hann. Þegar í skóla hneigðist hugur Jóns mjög að stjórnmálum. Hann var snjall mælskumaður og tók jafnan mikinn þátt í félagslífi meðal skóla- pilta. En er árin liöu og honum óx þekking, tóku stjórnmálaskoöanir hans að skýrast og festast og á síð- ustu skólaárum sínum var hann orð- inn eindreginn jafnaöarmaður og var hugsuð og með þeim létta feguröar. blæ, sem einkendi rithátt hans. Auk þess hafir ýmislegt birst eftir hann í tímaritum, bæði í bundnu og ó- bundnu máli, en fleira mun þó liggja eftir hann óprentað. Jón var mjög trúhneigður og las mikið um trúarefni. Einkum hneigö- ist hugur hans aö indverskum trúar. hugmyndum. Sú bók, er hann hafðt mestar mætur á, var Karma Yoga eft- ir Swami Vivekananda, indversk lífsspeki og siðfræði. Þýddi hann þá bók á íslenzku, ásamt einum af vin. um sínum. öllum þeim, sem kynni höfðu af Jóni Tohroddsen, þótt vænt um hanru Hann var drenglyndur og mikilhæf- ur maður. Hann var elskulegur vinur. Sigurður Grímsson. — “Lögrétta”,

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.