Heimskringla - 30.12.1925, Síða 2
2. BLAÐSÍÐA.
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 30. DES. 1925.
Þuríður Jónsdóttir Stefánsson
Fædd 10. júlí 1863. Dáin 28. maí 1925.
Hún sagði’ ekki margt er ég sá hana fyrst,
— en seint mun eg stund þeirri gleyma —
’Hún hafði, sem aðrir, í erlendri vist
með íslenzku þolgæði langdvölum gist;
en sálin og hjartað var heima,
og hugljúft var þangað að dreyma.
Eg kannaðist við þessa sólbjörtu sál,
— því systkinin þekti eg heima —
frá augunum leiftgaði lifandi mál
eh lýsingar teygaði’ hún handan um ál,
Þeim erfitt er ættjörgji að gleyma,
sem andlegu myndirnar geyma.
Hvað vaxandi Ijóstrúin létti ’henni braut,
því lýsir ei tunga né penni;
eg sá hana’ í gleði, eg þekti ’ hana í þraut,
með þolgæðin söm, hvað sem féll henni 'í skaut,
og hugvarmi streymdi frá henni,
en heiðbjarn^i ljómaði um enni.
Og dóttirin litla — hún lítil var þá —
hún lék sér við markaða kosti;
það engum var gefið að geta eða spá
um götuna sem fyrir mæðgunum lá;
en síðar í sólskini og frosti
til sigurs hver annari brosti.
1 sorgum og gleði af mæðgunum mynd
eg málaði skýrt — ef eg kynni —
o.g birti sem varnir mót böli og synd
og benti þar öllum á himneska lind,
sem líknandi’ og læknandi rynnj
og lifandi kraftaverk ynni.
Hún sagði ekki margt er eg sá ’hana hinst;
— en seint mun eg stund þeirri gleyma —
hún kvaddi mig róleg, mér fanst og mér finst
að fylkingin hefði svo grátlega þynst,
því fár er sá hér eða heima
sem heiðskírra þorir að dreyma.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Það hefir dregist lengur en skyldi
að minnast þessarar merku
konu; skal það nú gert með ör-
fáum orðum.
Hún var fædd á Gautlöndum 10.
júlí árið 1863. Faðir hennar var
Jón Sigurðsson, sem öllum íslend-
ingum er kunnur, en móðir Solveig
Jónsdóttir prests Þorsteinsssonar,
sem einnig var þjóðkunnur maður.
Þuríður sál. ólst upp hjá foreldr-
um sínum, en dvaldi síðan hjá Kristj-
áni bróður sínum. Þá var hún einnig
um stund í Kaupmannahöfn og naut
góðrar mentunar bæði þar og
heima.
. Systkini hennar, þau sem eg man
ertir, voru þessi: Kristján dóms-
málastjóri í Reykjavík, og fyrver-
andi forsætisráðherra íslands, einn
hinna mætustu manna sem embætti
hafa skipað á ættjörðu vorri; Stein-
grímur bæjarfógeti og sýslumað-
ur; Pétur alþingismaður; Sigurður
verzlunarmaður á Seyðisfirði; Jón
bóndi á Héðinshöfða; Þorlákur
(druknaði á aðfangadag jóla árið
1897) ; Kristjana, sem var gift Helga
Sveinssyni bankastjóra; Rebekka
gift séra Guðmundi frá Gufudal og
Sigríður gift Sigtrygg O. Bjerring í
Winnipeg.
Árið 1895 giftist Þuríður Helga
Stefánssyni, bróður Jóns skálds
Stefánssonar (Þorgils gjallanda).
Bjuggu þau fyrst nálægt Mbuntain
í Norður Dakota, en árið 1905 fluttu
þau til Wynyard í Saskatchewan
og námu þar land.
Þau hjón eignuðust eina dóttur
barna er Sigurbjörg heitir og er
kennari við miðskóla á Gimli.
Mann sinn misti Þuríður árið
1916; var þá dóttir hennar á menta-
vegi og hélt p-fram þangað til hún
útskrifaðist sem B.A. og var jafnan
meðal hinna allra fremstu við nám-,
ið. Hefir hún síðan stundað k^nslu
við jniðskóla Manitoba fylkis.
Illa færi á því að rita langt mál og
tilgerðarlegt eftir þessa konu. Hún
var sjálf blátt áfram og yfirlætis-
laus.
Þó væri rangt að ljúka línum
þessum án þess að minnast á eitt
atriði; það er hið einkennilega nána
samband og hin dæmafáe) samúð
sem ríkti milli hinnar dánu og dótt-
ur hennar.
Sérstaklega ber að minnast á
þetta fyrir þá sök, að núverandi tíð-
arandi virðist víða stefna að því að
skapa allmikið djúp milli æsku og
elli-----milli barna og foreldra.
Þuríður lagði fram alla sína
krafta til þess að dóttir hennar gáeti
notið'sín á vegum mentunarinnar,
og vildi alt á sig leggja hennar
vegna. Nú eru minningarnar um
fórnfýsi hennar dýrasta eign dóttur
hennar, og ljúft er henni að minnast
hverrar samverustundar.
Þuríður var einstaklega tíguleg og
vel gefin kona, eins og hún átti kyn
til. Allar lífsskoðanir hennar voru
bjartar, hlýjar og sterkar — hún var
sannur íslendingur.
Sig. Júl. Jóhannesson.
Trúarjátoingar nokk
urra rithöfunda.
Af ölluni deiluni eru trúmáladeil-
urnar líklega gagnslausastar. Þess
munu varla finnast dæmi, aS nokkur
maöur hafi breytt trúarskoöunum
sínum hið allra minsta vegna þe^s
að á hann hafi verið ráðist með
skömmum; og venjulega útkoman,
þegar illyrða-moldviðrinu i trúmála-
deilunum lýkur, er sú,v að hver situr
sem fastast við sinn keip. Þó er
eins og mörgum gangi illa að skilja
þetta, og geta þeir naumast á trúmál
minst án þess að verða reiðir við
einhverja, sem Hafa aðrar skoðanir
en þeir sjálfir. Þrátt fyrir trúfrelsi
og umburðarlyndi í orði kveðnu, er
mjög mikið til af illvilja, öfund og
hatri manna á milli út af trúmála-
ágreiningi. Þetta verður blátt áfram
hlægilegt, þegar vissir flokkar fara
að skoða sig sem útvalinn lýð og
þykjast upp yfir aðra hafnir, en fátt
er auðveldara bæði fyrir einstaklinga
og flokka en það, að telja sér trú
um, að þeir séu ekki eins og aðrir
nienn.
Nú er þó hvergi meiri þörf á still-
ingu og rólegri yfirvegun heldur en
einmitt í trúmálunum, því í fáum
málum er skoðanamunurinn og óviss-
an meiri en i þeim. Að visu er það
satt, að til ertt margir, fem kannast
ekki við, að þar sé um neina óvisstt
að ræða — þeir halda að sannleik-
urinn sé allur fundinn og að við
hann verði engtt bætt; en þeim <iér
þé stöðugt fjölgandi, sem kannast
við, að flestar a.rfteknar trúarhug'-
myndir þttrfi að minsta kosti nýrra
útskýringa og að margar þeirra séu
úreltar.
Mjög fá^r tilnaunir hafa verið
gerðar meðal okkar Vesfur-Islendinga
ti' þess að ræða trúmál frá ólíkttm,
hliðum með gætni og sanngirni; og
þær, sem hafa verið gerðar, hafa ekki
hepnast vel. Vitanlega er margt sagt
um þau mál af mörgum, sem er sann-
gjarnt og af gætni talað; en þegar
ntenn með ólíkum skoðunum fara að
ræða saman um trúmál, verður venju
lega úr því orðasenna., sem óskýrir
umræðuefnið og miðar að engu öðru
en þvi, að gera mönnum gramt í
geði. Meðfram stafar þetta af því,
hversu fevkilega trúmálin eða kirkju-
flokka, sem til eru á Islandi, 6g
héldu fram skoðunum sínum ádeilu-
laust og án þess að kasta hnútum
hver að öðrum. Mörg betri blöð og
timarit hafa stofnað til umræða um
trúmál með góðum árangri. Eitt
merkasta. tímaritið, sem gefið er út mannanna'
á Englandi, The Hibþert Journal, var
stofnað í þeim tilgangi að flytja á-
deilulausar trúmálaritgérðir, og hetfir
venjulega settar fram í stuttu máli;
en þær eru merkilegar að því leyti,
að þær sýna, hvað þessir nienn
hugsa., og það er ávalt eftirtektar-
vert, hvað menn, sem skara fram, úr
|: á einhverjum sviðum, hugsa um trú-
málin.
j Blað eitt í Lundúnum á Englandi,
| Thc Daily Exþress, gerði merkilega
I tilraun í þessa átt nýlega. Blaðið
sendi fyrirspurnir til nokkurra vel-
| þektra rithöfunda á EngLandi viðvikj-
andi trú þeirra sjálfra — voru þeir,
beðnir að gera einhverskonar grein
11 fyrir trúarskoðunum sinum. Höfund-
[ arnir, sem fyrirspurnirnar voru send-
rar til, voru þessir: Arnold Bennett,
||Hugh Walpole, Rebecca West, Sir
Arthur Conan Doyle, E. Phillipps
Oppenheim, Conipton MacKenzie, J.
|1 D. Beresford, H. de Vere Stack-
-poole, Israel Zangwill og Henry
I Arthur James. Allir þessir rithöfund-
ar eru skáldsagnahöfundar ^og hafa
náð frægð fyrir sögur sínar; sumir
eru enda heimsfrægir, og kannast vist
flestir við nöfn þeirra.
I , p. . f ,
Eins og nærri ma geta, voru svor-
in, sem rithöfundapiir sendu, allólík,
en samt má finna þó nokkra líkingu
með sumum þeirra. Hér skulu í fám
orðum birt helztu atriðin úr svör-
unum.
Arnold Bennett, sem óneitanlega
mun vera einn af gáfuðstu núlifandi
rithöfundum á Englandi, segir: “Af
öllum Austurlanda trúarjátningum,
sem eg þekki til, er kristna tráa.r-
játningin óaðg'éngilegust, að trúar-
játningu Múhameðstrúarnianna fVá-
skilinni. (Það má ekki gleymast, að
kristna trúarjátningin er austur-
lenzk. Hver einasta austurlenzk trú-
arjátning í Norðurálfunni hefir dáið
út.) En að hinu leytinu hafa sið
| ferðískenningar Krists mjög sterkt
i hald á mér; og eg.myndi ekki vilja
! neita því, að Kristur hafi, á sviði
j siðferðilegra kenninga, verið mesti
j maður, sem nokkurn tírrta hefir uppi
! verið.”
Bennett segir ennfremur, að í öll-
um trúarbrögðum sé gert ráð fyrir,
að til sé líf eftir dauðann, og að
breytni manna i þessu lífi hafi áhrif á
.ástandið hinumegin grafar, til ilís
eða góðs. En engin ódauðleikakenn-
ing, segir hann að hafi nokkurntíma
haft nógu mikil áhrif á .sig, til þess
að hann sannfærðist urrí sannleiks-
gildi hennar.
Hugh Walpole, sem átti að verða
prestur, segir, að “andlegt lif” (spiri-
tual life) sé svo óákveðið orðatiltæki,
að hann vilji helzt ekki nota það.
Hann segir, að sig hafi raunar grun-
að, að um eitthvað langtum þýðingar-
meira en “líkamlegt líf” væri að ræða
i æfiferli hvers einstaks manns; én
ekki segist hann geta sagt neitt um
það með vissu. Hann segist ha.fa
þek.t marga, sem séu hárvissir um
ódauðleika sálarinnar, og lika marga,
sem telji það fjarstæðu að ætla, að
nokkurt líf sé til nema hið líkamlega.
“Þegar heimsófriðurinn hafðl 'staðið
tvö ár,” segir hann, “fékk eg með-
vitund um að einhverskonar annað
!if en hið líkamlega væri til.” Og
þessi meðvitund, segir hann, að hafi
komið yfir sig ósjálfrátt; og,án þess
að hann hafi æskt þess eða gert nokk
uð til þess að eignast hana.
Ungfrú West heldur því frani, að
kristindóminn beri ekki að skoða. sem
fúllkomna opinberún, heldur sem eina
hlið á opinberun. Hún segir að krist
irdómurinn hafi i bvrjun tekið á sig
myndir, sem hafi átt við þarfir^tim-
ans þá, en eigi ekki við nú á timum.
Og jafnvel þó að kriStindómurinn
væri losaður við allar kenningar, sem
áður hafa átt við, en eiga ekki við
nú, er engin ástæða til að ætla, að
hann sé síðasta opinberun guðs til
urálin eru samgróin flestum okkar fé-1 engin sérstök skoðun forgengi í því.
lagsfyrirtækjum, og hversu jafnvel
daglegt líf er gegnsýrt af þeim. Til
þess eru ástæður, sem hér er ekkí
rúm til þess að ræða um; því ef það
aétti að gera, yrði að rita þátt úr sögu
islenzka þjóðarbrotsins hér vestan
hafs. Annarsstaðar, t. d. heima á Is-
landi. hafa trúmálaumræður orðið
gagnlegri, og má þar til nefna umræð
ur þær, sem fóru fram í Reykjavík
nú fyrir fáum árum, að tilhlutun
stúdentafélagsins, og gefnar voru út
í riti, sem nefnist “Trúmálavikan”.
Mættu þar talsmenn flestra triímála-
/'
Timarit þetta hefir komið út um
niörg ár og hefir flutt fjölda ágætra
ritgerða, Eru þær venjulega gagn-
ólíkar ritgerðum þeim, sem birtast i
málgögnum ýmsra kirkjuflokka, og
sem eru oftast annaðhvort gegndar-
laust hól um flokkinn eða ádeilur á
skoðanir einhverra andstæðinga. Þá
er það og ekki óvanalegt, að blöð,
sem venjulega fjalla ekki um trúmál,
leiti álita ýmsra merkra manna um'
trúmál yfirleitt eða einhverjar hliðar
þeirra. Þesskonar álit eru að sjálf-
sögðu aðeins skoðanir þessara manna,
Sir Arthur Conan Doyle, sem er
nafnl^endúr spiritisti, var áður ka-
þólskur. Aðalatriði trúarbragða hans
er vissan, sem hann segist hafa feng-
ið uni líf eftir dauðann, og er hún
svo vel kunn, að óþarfi er að fara
fleiri orðum um hana.
Phillipps Oppenheim segist hafa
trú fjöldans — lotningarfulla óvissu
viðvikjandi hinni óráðnu gátu lifs og
dauða, en löngun til þess að lifa
daglegu lifi tneð þeirri trú, að í öðr-
um mönnuin felist neisti guðdómsins,
sem sé svo erfitt að finna anna.rs-
staðar.
MacKenzie, sem er kaþólskur, seg-
ir, að hefði hann ekki verið það fyr-
ir heimsófriðinn, þá hefði hann orð-
0&Z' í_____. .
ið það eftir hann; því að kirkjan*)
ein hafi varðveitt réttsýni í því jarð-
neska æði.
Beresford leggur áherzlu á sjálfs-
afneitun sem mjög mikilsvert atriði
í öllum trúarbrögðum, og í hans aug11-
um ér sjálísafneitun aðalatriði trú-
arinnar.
H. de Vere Stackpoole segir, að
kirkjan hafi rriist hald á fólki með-
fram vegna þess, að ógnir vitis séu
ekki prédikaðar nú sem fyr. En þó
að margir séu lausir við hræðslu-
trúna, hafi pý trú komið í hennar
stað, sem kenni okkur að guð sé til.
Samt getum við ekki gert okkur
grein fyrir guði. Hugmyndir manna
um guð sem persónulega veru —
einskonar æðstaprest, útbúinn með •
eiginleikum dómara, skólakennara og
kærleiksríks föður — segir hann að
sé orsök þess, að margir hafi hætt
við trú feðra sinna og hallast að
skynsamlegri skoðunum. Hin bezta
guðsdýrkun er falin i þvi, að stunda
hið góða og forðast hið illa eftir
mætti.
Israel Zangwill segir að lífið sé
bæði raunalegur og broslegur leynd-
ardómur; annað líf sé óhugsandi, en
ekki þar fyrir ómögulegt.
Henry Arthur James tekur sér :
munri orð úr kvæði eftir Mathew
Arnold, sem eru á þessa leið: “Ött-
ast ekki. Lifið er nægt starfssvið
fyrir mannlega krafta. En sökum
þess að hið illa er alstaðar, ger þér
eigi of háar vonir; þótt þú rriegir, ei
láta þig dreyma, þarftu ekki að ör-
vænta.”
Það sem maður fyrst rekur augun
i, við að lesa svör þessara. tíu rithöf-
unda, er, að enginn þeirra, að einum
undanteknum, MacKenzie, virðist
fylgja gömlu rétttrúnaðarstefnunni:
hann segist fylgja kaþólsku kirkj—
unpi. Hinir allir eru, að meira eða
minna léyti, fallnir frá rétttrúnaðin-
um, eftir því sem séð verður á svör-
um þeirra. Þeir minnast ekki með
einu orði á höfuðatriðin í kenningum
kristnu kirkjunnar, svo sem frið-
■þægingu, guðdóm Krists, réttlætingu
af trú, náða.rmeðul eða neitt þess-
konar. I fæstum orðum sagt, er
þetta þrent áð finna í svörum þeirra:
guðstrú, yfirburði siðferðiskenninga
Jesú, og að annað líf eítir þetta sé
að líkindum til.
Það hefir verið fundið að svörum
þessum, a.ð þau séu óljós. G. K. Ches-
terton, sem sjálfur er nafnkendur
rithöfundur, segir, að þau séu óá-
kveðin og að vafasamt sé, hvort að
þessir gáfuðu samtiðarmenn sínir
viti sjálfir, hverju þeir trúa. Finst
honum undarlegt, að menn, sem geti
með mestu nákvæmni lýst sálarlífi
persónanna i skáldsögum sínum, skuli
elcki geta lýst því, sem i þéirra eigin
hugum búi. Þá hafa ýmá( kirkjublöð
á Englandi ráðist á höfundana fyrir
vantrú þeirra, og leijað álits annara
manna, sem eru vej þektir á öðrum
sviðum, og birt þau, að því er virð-
ist, til þess að rýra gildi ummæla
rithöfundanna. Þannig hefir t. d. for
stöðnnaður stórrar klæðaverzlunar
látið þá skoðun í Ijós, að velferð
manna sé í veði, nema að öllu, sem
stendur í biblíunni, sé trúað; og fleiri
stóriðnaðarhöldar hafa látið ií ljós
skoðanir i trúmálum, sem eru af
sama tæi og skoðanir Bryans sál. og
annara fundamentalista.
Sú spurning kemur auðvitað upp
við ihugun þessara svara, hvort skáld
sagnahöfundar hafi nokkurt meira
vit á trúmálum en aðrir menn. En
áður en leitast er við að svara henni,
verður að gera grein fyrir, í hverju
það sé fólgið að hafa sérstakt vit á
trúmáíum.
Trúarbrögðiin, hverju nafni sem
þau nefnast, mynda einn þáttinn í
andlegu lífi mannkynsins. Þau m:í
rannsaka og bera saman rétt eins ög
hvað annað, sem menn hafa hugsað
og hafst að. Rannsókn á þeim er
söguleg og vísindaleg, og að sjálf-
sögðu geta ekki nema fáir gefið sig
við henni. Frá sjónarmiði visinda-
legra rannsókna eru trúarbrögð Hbt-
tentottanna í Afríku eins merkileg
og trúarbrögð Parsanna á Indlandi,
og er þó feykilegur munur á þeim.
Visindaleg rannsókn á trúarbrögðum,
sem öðru, fæst aðeins með því að
aðgreina staðreyndir og verðmæti.
Andleg og siðferðileg verðmæti trú-
arbragða eru afar mismunandi, en
þegar um vísindalega rannsókn er að
*) Á það ekki að vera kaþólska
kirkjan'? — Ritstj.