Heimskringla - 02.06.1926, Blaðsíða 2

Heimskringla - 02.06.1926, Blaðsíða 2
2. BLAÐSIÐA. HEIMSKRINGLA WINNI^EG, 2. JÚNÍ 1926. Þegnskylduvinna Eftir St. Bj. I. Í>a8 hefir veriö furíSu kyrt um þegnskylduvinnuhugmyndina um hrí'ð. Þegar Hermann heit. Jónasson vakti máls á henni um árið, þutu nokkrir hugsjónalitlir menn, sem aJdrei gátu þolað að við Islendingar yrðum for- gönguþjóð í þessu fremur en öðru, upp til handa og fóta til að kveða hana niður. Þeir útbásúnuðu, aö það væri skömm fyrir hína frjáls- bornu Islendinga, að leggja á sig slíkan herfjötur og fara “að moka skít fyrir ekki neitt”. Þetta féll í góðan jarðveg hjá alt of mörgum. Það virðist brenna við hjá okkur of mörgum Islendingum, að vilja ekkert gera fyrir ckki ncitt, ekkert öðruvísi en að fá eitthvað strax í aðra hönd, eða éta ávöxtinn af trénu um leið og fræinu er sáð. En lærdóminn og þroskunina, sem slík offurvinna í vel stjórnuðum hóp hefir altaf í för með sér, það sáu og skildu of fáir. A því féll þegnskylduvinnan í það sinn frá framkvæmd. Nú fara í hönd stórmarkverð tíma- mót í sögu lands vors og þjóðar. Alt verður að gera og leggja fram til þess, að þau tímamót megi verða okkur til sóma, en ekki skammar. Þau hafa með réttu verið skírð Dómsdagur Islendinga. Það ríður mikið á því fyrir okkur, að dómur- ir.n verði okkur í vil. lil þess að svo megi fara, þarf mikið og margt að gera, scm er ó- umflýjanlegt. En hvernig verður það gert þannig, að þjóðinni í heild sinni verði það sem minst tilfinnan- legt, og að hver gjaldþegn finni sem minst til þess? Þegar á miklu veltur, scm öllum hlýtur að koma saman um að verði að gera, eins og t. d. það, sem þarf að gera fyrir "dómsdag 1930’’, þá hlýtur að vakna offurvilji meiri og minni hjá öllum einstaklingum þjóð- arinnar. Þeir hljóta að vilja leggja eitthvað dálitið á sig, til þess að þeir sjálfir, þjóðin þeirra og landið, megi bera heiður úr býtum. Sérstak- lega hlýtur það að lyfta undir þá, ef þeir sjá og finna, að þeir bera eitthvað meina. eða minna úr býtum sjálfir þegar í stað. Þá leiðina getum við og eigum að fara. En það er fleira en undirbúningur undir "Dómsdag 1930”, sem þjóðar- heiður og þjóðarheill í framtíðinni veltur mikið á og gera þaxf sem fyrst. Eins og allir vita, eru samgöngur víðast á Iandinu í megnasta ólagi, vegir fáir og flestir heldur lélegir; síma vantar víða, þar sem vera þyrftu og fjöldamörg vatnsföll óbrúuð. — Margar ár gera mikinn usla, sem vel mætti takmarka eða. hefta alveg, og þar með bjarga stórum landsvæð- um frá gereyðingu. Viða liggja stór landsvæði tilbúin til ræktunar, vantar aðeins kraftinn til að framkvæma verkið og byggja á þeim nýja bæi. Þá myndu mörg ungu hjónin geta fengið jarðnæði og heimili, þau sem annars verða að flytja á mölina, þó þvernauðugt sé. Prófessor Guðm. Hannesson hefir með rökum sýnt fram á nauðsynina á því að byggja upp flesta bæi á landinu á sem skemstum tíma, til þess að bjarga likamlegri — og and- legri — heilbrigði þjóðarinnár. Ymsar opinberar byggingar þarf að reisa, ha.fnir að gera, sandfok að hefta o. fl. o. fl., sem lengi mætti upp telja. Mestalt vinnuaflið til þessara fram kvæmda. mætti fá með vel stjórnaðri þegnskylduvinnu. II. Lítið hefir verið rætt og ritað um þörfina á almennum unglingaskólum eða framhaldsnámsskeiðum, þar sem alþýða manna gæti fengið svolítið víðara þekkingarsvið heldur en hægt er að fá með barnafræðslunni einni. A þessu er líka mikil nauðsyn. Það er ómögulegt að gera sér á neinn hátt í hugarlund, hversu miklir og góðir menningar og framfara-kraftar fara til ónýtis kynslóð eftir kynslóð, af því að þeir liggja faldir og sofandi svo djúpt í meðvitund eiganda, að þeirra verður aldrei vart, a.ð aldrei næst til þeirra með þeirri kenslu, sem menn eiga nú kost á og flestir verða að láta sér nægja æfilangt. Fjöldi manna — líklega meirihluti — er líka þannig gerður, • að það er eins og hæfileikar þeirra til að taka á móti þekkingunni séu að meira eða minna leyti byrgðir eða takmarkaðir a.lt þangað til þeir hafa náð nokkr-- um fullorðinsþroska. Þvi hangir svo litið í þeim af barnalærdóminum, sem þó eftir vöxtum og árangri tók þá of langan tíma að koma í höfuðið. En þegar þroskinn kemur, þá geta þeir lært annað eins eða meirál og með miklu betri árangri, á 1—2 mán uðum, heldur en þeir áður lærðu raunverulega á .jiafnmörgum árum i eða meir. Með vekjandi, lifandi kenslu má því á þroskatíma æfinnar skapa meira verðmæti og varanlegra til einstaklings- og þjóðþrifa á ókomn- um tíma, heldur en á margfalt lengri tíma á öðrum æfistigum, eða með svo og svo miklum bóklestri. En hver maður, sem vaknaði til meðvitundar um' dulda krafta. og þekkingarhæfileika í sjálfum sér, hann myndi ekki eftir það deyja j ráðalaus með að vikka sjóndeildar- svið sitt og aulca. kunnáttu sína. — Hann myndi fljótlega reyna að kom- ast í einhvern þann skóla, sem bezt- ur væri við hans hæfi.v Þannig myndi vakningarkenslan lyfta undir, a.ð skólarnir yrðu betur notaðir og kæmu að meiri almenn- um notum en ella. Auk þess sem eng- inn fullþroska maður kæmist undan því, að fá einhverja fræðslu meiri en barnaskólarnir veita, Slíka vakningarkenslu á að tengja við þegnskylduvinnuna. Þar á að kenna mannkynssögu og Islandssögu, landafræði og náttúrufræði, Heilsu- l fræði og fleira slíkt, en alt í fyrir- lestrum, líkt og á góðum lýðháskól- i um ytra, og þannig fara með efnið, 1 að það veki nemendurna og lyfti þeim á hærra, göfgandi sjónarsvið en áður, og til umhugsunar um fram- tíja.rthöguleika sjálfra, sín og þjóð- j arinnar. Af þessu getur orðið ómetanlegt gagn. III. Það er orðið alment viðurkent, að likamlega mentunin eigi að vera sam , stiga andlegu mentuninni. Sá tími er fyrir löngu liðinn, a.ð sjálfsagt þótti að fara sem verst nieð I líkama mannsins, en leggja sem mesta rækt við andann. Menn gættu þess ekki, að likaminn er bústaður j sálarinnar á meðan hún dvelur hér, og að hún lýtur sama lögmáli og mennirnir sjálfir. Gildir því sú regla með hana eins og mennina sjálfa, þó ! að örfáar, ódræpar undantekningar ! finnist, að því La.kari og ófullkomn- ari sem bústaðurinn er, þeim mun vanþroskaðri og lítilfjörlegri er hún. Nú hafa menn — eða eru menn — að vitkast svo mikið í þessum efnum, að latneska máltækið gamla j er óðum ag nálgast fulla viðurkenn- I ingu, það að "hraust sál í hraustum í líkama” fari oftast nær saman. Því keppa orðið allar þjóðir meira og minna að þvi að efla íþróttastarf- semi innan sinna. vébanda, auka heilsufræðiskensluna og heilbrigðis- eftirlitið, og fja.rlægja eftir föngum alt það, sem getur hindrað eða dregig úr vaxandi heilbrigðisþroska ein- staklinganna. Hérna. hjá okkur er þetta líka kom- ið á dagskrá í ýmsum -myndum. Eins og áður er minst á, hefir próf. Guðm. Hannesson bent á umbyggingu bæj- anna — bætt húsnæði, — sem einn lið í þessari keðju. Unga kynslóðin, sem eitthvað icynir að hugsa fram í tíðina, lítur til íþróttanna. Sú hug- mynd, sem þar virðist vera á bak við, er að gera líkamánn svo hraust- ann, að engir sjúkdómar bíti á hann. Fæstir hugsa þó þá hugsun til enda, því að jafnóðum og þeir byggja upp annari hendi, rifa þeir niður með hinni. Með því bendi eg beinltnis til þess, að mikill meirihluti þeirra, sem íþróttir iðka, gera þroskunartil- raunina árangursLa.usa með óreglu- legu líferni um mat- og svefntíma. og nautn áfengis, tóbaks og kaffi, sem hvað um sig er hraðvirkara í eyðileggingaráttina en iþrótta.iðkun flestra er í uppbyggingaráttina, hvað þá, sem oftast er, þegar alt kemur saman. Læknarnir okkar berjast dag og nótt, ár út og ár inn, við sóttirnar og veilurnar í mannaskrokkunum. Þeir vilja gera það, sem unt er, til að lappa upp á það bilaða og gera það gott aftur, vitandi þó, að "betra er heilt en vel gróið”. Þeir renna sér geirum girtir og hlífðum hjúpaðir út á farbraut þjóðarinnar, og lenda þar þegar í svo harðri orustu við veik- indin og þjáningarnar, að þeir taka fæstir eftir því, að mestöll brautin er einn forarvaðall ólyfjana, sem flestir sökkva að meira eða minna leyti í, og þeir sjálfir líka. Eru svo afleiðingarnar þær, að þótt þeir berj- ist eins og ljón og ótal vopn virðist í einu á lofti hjá mörgum þeirra, þá sést ekki stórum meiri árangur en þegar*‘“Xerxex flengdi Hellespont”. Þ.að þarf að taka þetta stórmál sterkari tökum. Það þarf að kenna öllum helztu atriði heilsufræðinnar og líkamsræktarinnar, hvað sé til skaða og hvað til blessuna.r. Og loks einhverjar þær líkamsæfingar, sem flestum megi að gagni koma til að halda bústað sálarinnar í góðu lagi. Þessu má bezt ná með íþrótta- fimleika- og heilbrigðiskenslu í sam- bandi við þegnskylduvinnuna. Sé þetta. og fyrirlestrakenslan komið í samband við þegnskylduvinnuna, er ekki lengur hægt að segja, að menn séu látnir "moka skít fyrir ekki neitt”. IV. Hversu margt það er, sem gera mætti landi og lýð til blessunar með þgnskylduvinnunni, er ómögulegt að telj“a upp á stuttum tíma, né lýsa. þeirri beinu og óbeinu blessun, sem slíkt offprstarf hefir í för með sér fyrir hvern einstakling. Og þó getur það orðið að enn meira gagni, ef alt er tekið með, sem verða má til andlegs og líkamlegs uppeldis. Auðvitað þarf dálítið fé til að koma slíku menningarstarfi af stað og til allrar starfrækslu. En bæði er það, að mikig kemur þegar í aðra hönd, og að nóg fé er til, ef aðeins ekki brestur vilja okkar Islendinga til að sameinast og leggja eitthvað iítilsháttar á okkur, ættjörð okkar til blessunar og heiðurs. Og hvenær ættí slíkt fremur að geta orðið, en þegar við eigum “Dórrfsdag” vofandi yfir höfði okkar? V. Eitt a.f þeim málum, sem við erum búnir að ræflast með okkur til stór- skamma.r og skaða, er landsspítala- málið. Vel mætti leysa þau vandræði með þegnskylduvinnunni svona fram- kvæmdri, eins og eg hefi drepið hér á og með dáltlu afneitunaroffri þjóð- arinnar í heild, eitt árið á þessu, ann- að á hinu. — Um það og þegnskyldu- vinnuna rita.ði eg einkabréf í fyrra- vetur, í von um að það mætti verða til að lyfta undir framkvæmdir í þessu. Fyrir tveim árum tók eg líka saman greinarstúf um þetta. En hann mun hafa. glatast hjá þeim, sem eg bað fyr- ir hann, því að hvorki birtist hann né kom aftur til min, þrátt fyrir end- urtekna beiðni um að senda hano aftur. En af greininni átti eg ekk- ert afrit. Það á eg aftur á móti af bréfinu. Læt eg hér fara á eftir aðalhluta þess, þótt það sé að sumu leyti endurtekning á því, sem nú hefir sagt verið. VI. “Einn hæsti liðurinn við bygg- ingu landsspífalans verður vinnan, en þann lið má lækka hér um bil niður í ekkert. Og gætum við byrjað þannig á landsspítalanum, þá kemur mikið meira á eftir: bættir vegir, ný- ir vegir, brýr og járnbrautir, há- skóli, heilsuhæli, skólar, barna- og gamalmennahæli, og síðast en ekki sízt nýir og betri bæir og hús um alt land. Þessu má ná með þegnskylduvinn- unni. En hún á ekki að koma á menn sem leiðinleg skyldukvöð, þar sem ekkert fæst þegar í aðra hönd Því svo eru flestir menn gerðir, a.ð þeir geta ekki gefið þjóð sinni eða landi — sem þeir þó alir segjast hátt og í hljóði elska af öllu hjarta —'■ einn einasta dropa, eða hálfan bita, já, ekki eitt korn, af því sem þeir telja sér til nautna, hvað þá af því, sem þeim er nauðsynlegt, og tæplega séð við það a.f hálftíma vinnu, þótt þeir geri ekkert við tímann hálft árið, nema þeir fái eitthvað fyrir “snúð-sinn og snældu”. I þeim búningi, að ekkert áþreif- anlegt kæmi strax í aðra hönd, kom þegnskylduvinnu hugmyndin fram fyrst, svo að Páll Jónsson gat sent henni sitt landfræga skevti: “0, hve ma.rgur yrði sæll og elska mundi hann landið heitt, mætti hann vera mánuð þræll og moka skít fyrir ekki neitt.” Nei, þegnskylduvinnan á að vera skóli um leið, þar sem kendar væru í fyrirlestrum nokkrar góðar fræði- greinir: saga, þjóðfélagsfræði, nátt- úrufræði, heilsufræði o. fl., sem all- ir gætu haft gott af af hlusta á, og þannig, að það mætti hafa sem mest vaknrngaráhrif og menningargildi. Því mætti haga á líkan hátt og gert er á norrænu lýðskólunum (Folke- höjskolerne). Auk þess ætti þegn- skylduvinnuskeiðið líka að vera í- þróttanámsskeið (leikfimi — áhalda- laus eða því nær — sund, hlaup, kost. glíma). Þetta alt er lafhægt að sameina. Og með þessu móti fá menn altaf nokkuð * aðra hönd und- ireins, og verður því minni úlfúð hægt að vekja gegn hugsjónínni. Auk þess vinst það, að margur maðurinn, sem aðeinsl hefir notið barnafræðslu, fengi þarna. á þrosk- a.ðri aldri vekjandi mentun, sem hann annars máske aldrei 'hlyti, og fyndi við það í sjálfum sér gáfur og krafta til mikils starfs, sem annars hefðu fengið að sofa ónotaðir og aldrei komið í ljós. Þegnskylduvinnan á að ná til allra á vissum aldri, kvenna jafnt sem karla, sem eru alveg heilbrigðir and- lega og líkamlega, aðeins með þeim takmörkunum og undantekningum, sem nauðsynlegar og sjálfsagðar mega teljast. Alt henni viðvíkjandi þarf að und- irbúa og rannsaka. En til þess þarf ekk nema eitt ár, ef sæmilega er á- fram haldið. Að því ætti að vinna milliþinganefnd. I hana þarf hug- sjónaríka menn, karla og konur. Hún þarf að finna út, hversu langt hvert vinnuskeið er hæfilegt, hvaða. aldurs- takmörk eru heppileg fyrir karla og konur, hversu kalla skuli saman til vinnunnar, hvern útbúnað þurfi til að byrja með o. s. frv.. Og fyrsta þegnskylduvinnan við þegnskyldu- vinnuha. á þetta nefndarstarf að vera. Svo á að byrja hér með landsspit- alann. Byggja hann upp innan og utan. Stúlkurnar inna þar sína þegn- skylduvinnu a.f hendi með því að þjóna, matreiða o. s. frv. við vinn- una og sauma sængurfötin til spital- ans, og annast aðra þá kvennavinnu, sem með þarf. Svo koma lærðu menirnir til, sem eru vaxnir yfir ald- urstakmark þegnskylduvinnunnar. — Þeir leggja fram frjálst starf til henn ar með því að kenna og fræða. tDg það komast færri að en vilja, því allir vilja á einhvern hátt leggja stein í þær byggingar, sem sýna eiga öldum og óbornum framtakssemi, fórnfýsi og samtök landsmanna til þjóðarheilla. — Þannig getur það gengið fyrst í stað, meðan vinnu- skeiðin stæðu i nánd við bæina og mentastofnanirnar, og máske le'ngur. Það gæti verið kennurunum og mentamönnunum hrein upplyfting og hressing frá vetrarvinnunni í bæjum, að hafast við í tjöldum nokkrar vik- ur úti í heilnæmu sveitaloftinu, fá þar frítt uppihald og þjónustu, en IeggJa fram kenslu í móti. En seinna koma svo tímar og ráð með aukinni velgengni og fé. Þvi þegnskyldu- vinnan mun beinlínis gefa landssjóði og þjóðinni fé í aðra hönd. Svona má fá vinnuna. ókeypis til að reissí með landsspítalann, heilsu- hæli Norðurlands, skóla o. fl. o. fl. En þá vantar peninga til efnis- kaupa og til að starfrækja þegn- skylduvinnuna með, mun verða sagt. Já, svo virðist vera, en þó eru þeir nógir til, bara ef menr. viija nokkuð láta á móti sér fyrir þjóðarheildina. Eg er meira að segja viss um. að svo mikið er til og lafhægt að fá með góðum vilja, án þess að nokkurn kenni til, að hægr er á sama árinu að reisa bæði landsspítaiann og Norð lendinga heilsuhælið. Ta.ka skal fyrir allan innflutning á tóbaki, kaffi og tei og likum ónauð- synlegum vörum. Eg nefni ekki á- fengið, það er svo sjálfsagt, sem allir geta án verið og ekkert þarf í staðinn að kaupa (til drykkjar er nóg vatn í Landinu). Þetta eitt myndi duga. En það má ganga lengra. Það má líka alveg taka fyrir eða tak- marka eftir þörfum innflutning á öllum þeim vörum, sem framleiddar eru og tilbúnar í Landinu, og setja hámarksverð á þær, svo að ekki verði okrað á þeim. Takmarka má svo notkun og innflutning á mörg- um vörum, sem taldar eru nú na.uð- synjavörur, en vel má án vera að meira eða minna leyti, svo sem sykri o. fl. Alt, sem svoleiðis er takmark- að, ætti landið að flytja inn sjálft, svo hægt væri að “kontrolera” inn- flutninginn, og það vera selt gegn gegn seðlum, svo að sem jafnast komí niður. Sektir fyrir brot á öllu þessu eiga að vera reglulega háar, og minst hálfar renna til þess sem sannaði brotið. Þannig sparaðist aukinn eft- irlitskostnaður. Taka ætti fyrir að- eins 1, 2 eða 3 vörutegundir í senn, um eins til tveggja ára bil, til þess að sem jafnast kæmi niður á þá lands menn, sem verða að neita sér um þær. Þeirri fjárhæð, sem þannig spar- aðist inni í landinu, á svo «stjórnin (eða hagstofan) að jafna niður eftir efnum og ástæðum, sýslunefndir á sveitirnar og hreppsnefndir á hrepps búa. Innheimtan færi eftir gildandi innheimtureglu landssjóðs. Hann tæki þa.ð af scm tollunum nemur og kostnaði við þetta, en hitt gengi til opinberra framkvæmda. Þannig má fá meira en nóg fé, eins og áður er sagt. Landsmönnum ætti að vera Ijúft að spara þannig við sig — láta á móti sér — eitt til tvö ár — til þess að koma í framkvæmd einhverjum mestu nauðsynjamálum þjóðarinnar, þeim sem öllum ætti að vera hugleik- ið bð styðja eftir fremsta mengi.” VII. I undanförnum greinum hefi eg lítilsháttar reynt að gera grein fyrir þvi, hversu stórkostlegur hagur getur verið að þegnskylduvinnunni, og vinnuskeiðin eigi jafnframt að vera námskeið í tvöföldum skilningi. Þetta er aðalatriðið. Auk þess hefi eg drepið á það, að við værum í rauninni alls ekki fé- vana til þess að koma ýmsum mikil- vægum og þjóðþörfum fyrirtækjum í framkvæmd, ef við bara vildum. En við þeim vilja býst eg þó tæp- lega a.ð sinni. Til þess þyrfti að taka til þeirra ráða (verzlunarhafta um stundarsakir á einstökum vörum), sem þau áhrif hafa á ýmsa menn, að það er eins og “veifa. rauðri dulu framan í mannýgan tarf”, að nefna slíkt. Mun alveg sama hversu mikið þjóðargagn gæti að því orðið. Þó eg nú hafi nefnt það i sambandi við þegnskylduvinnuna, þá er það auka- atriði, sem ekki þarf að snerta hana neitt, eða standa í vegi fyrir fram- kvæmd hennar. Þegnskylduvinnuna, með því fyrir- komulagi, sem eg hefi nefnt, eigum við að taka upp og koma. í fram- kvæmd sem fyrst. Það ætti að draga það sem minst. Og nú er tækifæri til að hefja með henni mikilsverðar iramkvæmdr, eins og áður 'iefir verið drepið á. Með hverju árinu sem líður svo að ekki sé byrjað á þegnskylduvinnunni, er miklu verð- mæti spilt, bæði fyrir þjóðinni i heild og flestum þeim einstaklingum. sem taka eiga þátt í vinnunni. Sumir þeir, sem nógu skammsýnir eru, • munu halda því fram, að með þegnskylduvinnunni verði aukið at- vinnuleysi i landinu, að þegnskyldu- vinnumenn verði látnir vinna þau verk, sem margir verkamenn myndu annars geta fengið atvinnu við. En þetta er ekki nema hálfskoðað þannig. Það mun ekki nema lítið eitt af þeim verkum, sem með þegn- skylduvinnunni verða unnin, nokkru sinni verða framkvæmd, ef hún kemst ekki á, — og þau af þeim, sem fram- kvæmd yrði, ekki nema á ófyrirsjá- anlega löngum tima. Svo yrði líka, til þess að geta framkvæmt þa.u með keyptum vinnukrafti, að auka álög- ur á þjóðinni, skatta og tolla o. s. frv., eða að viðhalda öðrum, sem ell.a. gætá fallið burtu. En á hinn bóginn munu þau verk, sem með þegnskylduvinnunni verða un'nin, skapa auknar framkvæmdir, aukna framleiðslu, og þar með aukna atvinnu fyrir alla. Hvorttveggja þetta hljóta alhr að sjá, sem nokkuö vilja hugsa um málið. Ein mótbárari enn mun verða á takteinum, að atvinnumöguleikar þjóðarinnar séu þannig lagaðir, að þeir þoli ekki að missa vinnukraft- inn á þeim tima, sem þegnskyldu- vinnan hljóti að verða framkvæmd. Þetta er það eina, sem taka verður fult tillit til. Því að ef byrja ætti á þegnskylduvinnu svo geyst, að taka á einu sumri þegar í stað alla þá til hennar, sem á þegnskylduvinnualdri eru, þá myndi það verða atvinnuveg- unum mikill hnekkir. Arið 1920 hefði það verið um 2000 manns í alt, karlar og konur. En þetta er ómögulegt. Það verð- ur að byrja hægt og hægt. Einstak- lingarnir, Jieimilin, sveitirnar, 'hér- uðin og þjóðin öll verður að fá tíma til að átta. sig á þessari nýju afstöðu, nýju kvöð, og haga sér eftir því. Og þeir sem stjórn þegnskvlduvinnunnar verður falin, verða líka að fá tíma til at| læra að koma henni fyrir, að beita henni á sem beztan hátt, og . ala sér upp deilda- og verkstjóra o. s. frv. Aö engu-má flaustra né kasta höndurff. Það liggur ekki eins mik- ið á þvi, að ná þegar á fyrstu árum öllum þeim þegnskyldugu inn, eins og á því a'ð- leggja grundvöllinn vel og þannig, a.ð öllum þeim, sem þegn- skylduvinnan snertir, verði hún kær. — Nær um allan heim er til þegn- skylda, sem nær til allra karlmanna, og það ekki aðeins á 2—3 ára ald- ursskeiði, heldur 30—40 ára. Og þessa þegnskylduvinnu/ verða þeir að inna af hendi fleiri mánuði til a.ð byrja með, og síðan fleiri vikur i senn hvað eftir annað. Og loks eigæ þeij altaf á hættu að verða kallaðir burt frá heimili og æfistarfi, kanske þegar verst gegnir, og ef til vilí koma aldrei heim aftur. Þrátt fyrir þessa miklu og löngu skyldu er ekki að sjá, að þetta hafi nein veruleg á- hrif á afkomu eða rekstur atvinnu- veganna. Svo mun og reynast hér. Aðeins sá mikli munur, að með þegnskylda— vinnunni er stefnt að því, að eflæ hagsæld þjóðarinnar og atvinnuvegi, auka afkomumöguleikana og efla ræktun landsins og þar með Hf manna og dýra. Með henni eru stíg- in stór spor upp á við til ljóssins og lifsins. En með herskyldunni er stefnt gagnstæða leið í flestum aðal- atriðunum. (Dagblað.þ --------x--------- Frá íslandi. NYJA STRANDVARNASKIPIÐ "OÐINN” Það hljóp af stokkunum fyrra lauga.rdag, eins og skýrt hefir verið frá hjer í blaðinu. Fór athöfnin hið bezta fram, og var skipið skírt af lítilli dóttur foringjans, Jóhanns Jónssonar. — Eftir skírnina söfnuð- ust nokkrir sem boðnir höfðu ver- ið, saman á skipasmíðastöðinni, þar á meðal Jón Krabbe, Jón Sveinbjörns- son, Eggert Claessen, Emil Nielseti og Th. Tulinius. Þar mælti Frigast framkvæmdastjóri fyrir minni skips- ins og árnaði því góðrar framtíðar, og þakkaði jafnframt traust það, er íslenzka stjórnin hefði borið tjl skipa smiðastöðvarinnar, en Krabbe svar- aði með þakkarræðu. Búist er við að skipið verði tilbúið um miðjan júní. Rannsóknir við strcndur Islands' f sumar. — Hafrannsóknaskipið Dana er lagt af stað frá Kaupmannahöfn,. og er foringi þess nú dr. A. C. Jo— hansen. Fnam að miðjum mánuði stundar skipið rannsóknir við Danmerkur— strendur, en síðan heldur það til Færeyja og Islands. Mestum hluta rannsóknartímans ætlar skipið að verja til þess að rannsaka sildargöng' ur hjá Norðurlandi. Búist er við> því að rannsóknunum verði hætt I í september. Meðal rannsóknarmanna er Arni Friðriksson kandidat, en; Bjarni Sæmundsson verður með í rannsóknunum við Isla.ndsstrendur. Dr. Johannes Schmidt (sem hefir verið rannsóknaforingi að undan— förnu) kemur til Hafnar um miðjan júní úr ferðalagi til Kyrrahafsins, og mun hann þá' fára til Islands og slást í hópinn. Hansen er skipstjóri á Dana eins og áður. * (Morgunbl.) ----------x---------- Staða konunnar í[ann- nálsskrá 1926. Lauslega þýtt'af J. P. Isdal. Við árslok er það mjög tíðkað, að yfirfara skrár og reikninga ársins, til þess að sjá hvernig sakir standa a starfssviðinu, til þess að reikna út ábata. og tap, vörur í hillunum,. skuldir, eignir og gróða. Þar sem nú er búið að loka starfs- rækslubókum ársins 1925, þá vekur þa'ð ahuga minn — máske einnig / t

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.