Heimskringla - 07.07.1926, Blaðsíða 2

Heimskringla - 07.07.1926, Blaðsíða 2
2 BLAÐSIÐA. HEIMSKRINGLA WINNIPEG, 7. JÚLI 1926. Frá Kirkjuþingi. Hins SameinaSa Kirkjufélags Islend- inga í Norður-Ameríku. FjórSa ársþing hins SameinaíSa Kirkjufélags Islendinga í Noröur- Ameríku hófst laugardaginn 26. júni 1926, kl. 2 e. h., í kirkju Sambands- safnaðar Islendinga aö Gimli, Mani- toba. Varaforseti, séra Albert E. Kristj- ánsson, setti þingið, og var sunginn. sálmurinn, nr. 619. Séra Rögnv. Pétursson las upp bibílukafla og séra Magnús J. Skaptason flutti bæn- Var þá sunginn sálmurinn nr. 643. Var samþykt aö fresta ávarpi for- seta, unz allmargir kirkjuþingsmenn, sem von væri á um kl. 4, væru komn- ir. Skipaöi forseti því næst þessa menn i dagskrárnefnd: Séra Rögnv. Pétursson, Mr. Arna Þórðarson og Mr. P. Kristján P«jarnason, en i kjörbréfanéfnd þessa: Séra Guöm. Arnason, Mr. J. M. Melsted og Mr. A. E. Skagfeld. Var þá fundi frest- að. Hafði þá kvenfélag Sambands- safnaðarins aö Gimli fyrirbúið þing- heimi hinar ágætustu veitingar í sam komuhúsL safnaðarins, og var þegar horfið til þeirra. 2. þingfundur hófst aftur kl. 4.30 sama dag og á sama stað. Skilaði þá dagskrárnefnd af sér störfum. Þvi næst voru samþyktar beiðnir um upp- töku í kirkjufélagið, er komu frá þessum þrem söfnuðum : Piney-sófn- uði, í Pine Valley bygð, Sambands- söfnuði Islendinga að Oak Point og Satnbandssöfnuði Islendinga að Lang ruth. Þakkaði forseti söfnuðum þess- um fyrir áhuga sinn á málefnum hlnnar frjálsu kirkju, og fúsleikann til samvinnu, og bauð þá velkomna í Kirkjufélagið. Samkvæmt skýrslu kjörbréfanefnd- ar höfðu þessir embættismenn og fulltrúar þingréttindi: Embættismenn: Séra A. E. Kristjánsson, varafor- seti. Séra Friðrik A. Friðriksson, rit- ari. Mr. P. S. Pálsson, féhirðir. Mr. S. B. Stefánsson, umsjónar- maður skólamála. Séra Rögnv. Pétursson, útbreiðslu- stjóri. Dr, S. E. Björnsson, varaféhirðir. Séra Guðm. Arnason, vararitari. Fulltrúar Sambandssafnaðar Islend inga í Winnipeg: Séra Magnús J. Skaptjson. Dr. M. B. Halldórsson, Mr. Hannes Pétursson. Mr. Pétur Thomson. Mrs. Ragnheiður Davíðsson. Mr. Bárður Sigurðsson. Mr. Jón Tómasson (varafulltrúi. Mr. Halldór Jóhannesson (vara- fulltrúi). Miss Elín Hall (varafulltrúi). Fulltrúi Piney-safnaðar: Mr. Sigurður Magnússon. Fulltrúar Sambandssafnaðar Is- lendinga að Oak Point: Mr. A. E. Skagfeld. Mr. J. B. Johnson. Fulltrúi Grunnavatnssafnaðar: Mr. Einar Johnson. Fulltrúi Mary Hill safnaðar: Mrs. Oddfríður Johnson. Fulltrúar Sambandssafnaðar Is- Iendinga að Árborg: Mr. G. O. Einarsson. Mr. P. K. Bjarnason. Fulltrúar Quill Lake safnaðar: Mr. J. M. Melsted. Mrs. S. F. Goodman. Fulltrúar Sambandssafnaðar Is- lendinga að Gimli: Mr. Árni Þórðarson. Mr. Gísli P. Magnússon. Fulltrúi Sambandssafnaðar Islend- inga að Langruttí: Mr. Ágúst Eyjólfsson. Fultíxúi Sambandssafnaðar Is- lendinga ag Arnes: Mrs. Guðrún Johnson. Fulltrúar Kvenfélaga: Mrs. Ölína Pálsson (Winnipeg). Mrs. R. Pétursson (Winnipeg). Mrs. F. Swanson (Winnipeg). Mrs. Ingibjörg Pétursson (Gimli). Mrs. Kristjana Magnússon (Arnes) , Mrs. S. Finnbogason (Langruth). Mrs. H. V. Rennesse (Arborg). Mrs. P. K. Bjarnason (Arborg). Fulltrúi Ungmeyjafélagsins Ald- an, Winnipeg: Miss Thora Pálsson. Fulltrúi Ungmennafélags Sam- bandssafnaðar, Gimli: Mr. Leifur Sólmundsson. Fulltrúar Sunnudagsskóla: Miss H. Kristjánsson (Winnipeg). Mrs. María Björnsson (Arborg). Miss ölavía J. Johnson (Gimli). Samkvæmt tillögu kjörbr^fanefnd- ar, var samþykt að veita . skáldintt Stephani G. Stephanssyni, Mr. Sæ- mundi Borgfjörð og Mrs. G. Arnason málfrelsi á þinginu. Ennfremur var samþykt sú tillaga séra R. Péturs- sonar, að þingið veitti viðstöddum Mr. Einari Jónassyni, borgarstjóra á Gimli, sömu heiðursréttindi. Næst voru á dagskrá skýrslur em- bættismanna. Flutti þá forseti ávarp sitt. Mintist- hann þeirrar þátttöku, er Girrílibúar hefðu frá byrjun átt í baráttunni fyrir frjálshuga trúar- skoðunum meðal Islendinga vestan hafs. Kvað hann vonbjartara yfir framtíð þessara félagsmála nú en. nokkru sinni fyr. Tækifæri væru nú fyrir hendi, er til gagns mætti nota, ef stýrt yrði fram hjá þeim hættum, er frjálskirkjuviðleitnin mætti búast við að yrðu á vegi. Þá fór og ræðu- maður nokkrum orðum um horfur þess, að kirkjuíeg allsherjareining gæti tekist með Islendingum vestan hafs, og kvað hana nær, en mörgum væri Ijóst. Þar eð sumir söfnuðir Kirkjufé- lagsins höfðu dregið, unz í ótíma var komið, að senda skýrslur sínar, gat ritari ekki lagt fram skýrslu, og var samþykt að fresta henni til fyrsta fundar væntanlegrar stjórnarnefndar kirkjufélagsins. I umboði féhirðis las séra R. Pét- ursson upp þessa skýrslu yfirskoð- aða: I sjóði frá fyrra ári ........$75.95 Tillag Sambandssafn. i Wpg. (25.00 Tillag Grunnavatnssafnaðar .... 10.00 Tillag Mary Hill safnaðar .... 10.00 Tillag Árnessafnaðar .......... 10.00 Tillag Langruthsafnaðar....... ÍO.OO1 Tillag Quill Lake safnaðar .... 25.00 Tillag Gimlisafnaðar ...... .... 10.00 Tillag Arborgarsafnaðar ....... 15.00 Greitt tillag séra F. A. Friðriks- sonar í nóvember 1925 (ferða- kostnaður) .................... 50.00 I sjóði hjá féhirði, 28. júní 1926 .....................$190.95 Skýrsla milliþinganefndar þeirrar er á liðnu ári hefir haft sameiningu kvenfélaganna með höndum, var á þessa leið, lesin af Mrs. S. Finn- bogason: “Snemma í nóvembermánuði hafði nefndin fund með sér, og samþykti að gangast fyrir samningu lagafrum- varps, er senda skyldi ásamt bréfi til skýringar, til allra kvenfélaga í söfnuðum Kirkjufélagsins, og ann- ara íslenzkra frjálstrúar-kvenfélaga. Lög þessi og bréf voru samin og send til þessara kvenfélaga: Kvenfélags Sambandssafnaðar í Winnipeg. Ungmeyjafélagsins Aldan, Winni- peg. Kvenfélags Sambandssafnaðar að Gimli. Kvenfélags Sambandssafnaðar að Arnesi. Kvenfélags Sambandssafnaðar að Riverton. Kvenfélags Sambandssafnaðar að Árborg. Kvenfélags Sambandssafnaðar að Langruth. Kvenfélags Grúnnavatnssafnaðar. Kvenfélagsins Framsókn í Wyn- yard. Kvenfélagsins Liljan í Wynyard. Kvenfélagsins í Mozart. Áraagurinn af þessu starfi var sá, að 6 kvenfélög sendu fulltrúa á þetta þing, þessa: Frá Winnipeg: Mrs. ölina Pálsson. Mrs. R. Pétursson. Mrs. F. Swanson. Miss H. Kristjánsson. Miss Thora Pálsson. Frá Árborg: Mrs. H. V. Rennesse. Mrs. P. K. Bjarnason. Frá Árnesi. Mrs. Kristjana Magnússon. Frá Gimli: Mrs. Ingibjörg Pétursson. Frá Langruth: Mrs. S. Finnbogason. Fundur var kaliaður að Gimli, Man., 27. júní 1926, kl. 8 að kvöldi. Sóttu hann allir erindrekar og nokkr- ar fleiri konur. Kom þar fram ein- róma áhugi fyrir þvi, að samband kvenfélaganna yrði stofnað, á grund- velli nefndra laga, sem hér með fylgja. Fyrir næsta starfsár var þessum konum falið embætti: Forseti: Mrs. R. Pétursson. Ritari: Mrs. V. Rennesse. Féhirðir: Miss H. Kristjánsson. Varaforseti: Mrs. P. Pétursson. Vararitari: Mrs. S. Finnbogason. Meðráðendur: Mrs. S. E. Björns- son; Mrs. B. Magnússon. Skýrslan undirrituð af Mrs. Thor, S. Finnbogason og Mrs. Olína Páls- son.. Tillaga kom frá séra Fr. Friðriks- syni, studd af séra R. Péturssyni, að samþykkja nefndarálitið eins og það hafði verið lesið, og að greiða nefnd- inni þakklætis^tkvæði fyrir vel unnið starf. Mintist stuðningsmaður í þvi sambandi tveggja kvenna, Mrs. Finn- bogason og Mrs. Pálsson, er mest höfðu á sig lagt fyrir þetta mál. Reis- þingheimur úr sætum til sariiþykkis. Næst á dagskrá var þátttökumál sunnudagaskólanna í árlegu þing- haldi Kirkjufélagsins. Var málið falið þessari þriggja manna þing- nefnd: Miss Ölavía J. Johnson, séra R. Pétursson, Mr. G. O. Einarsson. I þátttökumál ungmennafélaganna var kosin þessi nefnd: Séra G. Arna- son, Dr. S. E. Björnsson, Mr. H. Pétursson. Þátttökumál Lcikmannafélaga var einnig falið þriggja manna nefnd: hvort yrði að velja, íslenzkuna eða andlegu fræðsluna. Mr. Hannes Pétursson benti á það m. a., að ef Kirkjufélagið réðist í að hafa einhverjar sérstakar fram- kvæmdir i þessu máli, yrðu þær að byggjast á sama grundvelli og önn- ur fræðslu og mentamál. Yrði fyrst að semja og samþykkja ákveðið fræðslukerfi (graded course of study) og síðan ef íslenzkri tungu yrði hald- ið í skólunum, að semja bækur ' samræmi við það kerfi, og gefa út. Myndu þær útgáfur kosta þúsundir dollara. Efaðist ræðumaður um að kirkjufélagið hefði þá starfskrafta, hvað þá það fé, er til þess þyrfti. Hugðist hann orðinn kunnugur því, að nú kynni ekki helmingur íslenzkra barna vestan hafs okkuð í íslenzku. . Miss H. Kristjánsson taldi kensl- una í sunnudagaskóla Sambandssafn- aðarins i Winniþeg verða erfiðari með hverju líðandi ári; áleit það hlut verk heimilanna og einkamál, að kenná börnunnm íslenzku. Benti á, að ef til vill væri íslenzkunni beint hagur í því, að enskar bækur og blöð væru lögð til grundvallar við fræðsl- una, en að talað væri við börnin og enska lesefnið skýrt á íslenzku. — Séra Fr. A. Friðriksson skýrði frá rannsókn á þessu máli, er fram hefði farið i Quill Lake söfnuði siðast- liðinn vetur, og las upp niðurstöðu, sem nefndin, er þar hafði málið til meðferðar, hafði komist að, og sam- þyktar voru á ársftlndi Quill Lake Mr. Gísli P. Magnússon, Mr. P. S.. safnaðar í marzmánuði þetta vor. Pálsson, Mr. P. K. Bjarnason. I Timaritsmálið var kosin þessi nefnd: Séra Friðrik Friðriksson, Mr. Jón Tómasson, séra Magnús J. Skaptason. Fundi frestað. 3. þingfundur hókst kl. 8.30 sama dag og á sama stað, nleð því að sr. Guðm. Arnason flutti fyrirlestur um Franz frá Assisi. Eftir fyrirlesturinn var telýið til venjulegra þingstarfa. Fræðslumál sunnudagaskólanna voru til umræðu fundinn út. Benti séra R. Pétursson á það, að hér væri um eitt aðalmál þingsins að ræða, og væri æskilegt að nefnd sú, er þetta mál fengi til meðferðar, heyrði fyrst sem flestar raddir um það. Kvað hann vitanlegt, að sunnudagaskóla- fræðslunni hefði verið ábótavant á undanförnum árum meðal safnaða Kirkjufélagsins. Skortur væri bóka og annara kenslutækja; æskilega hæf ir kennarar væru færri en skyldi; út- gáfufyrirtæki Kirkjufélagsins hefðu reynst ófullnægjandi og dýr. Þeir tímar væru ef til vill í nánd„ að nýja stefnu yrði upp að taka í þessutn fræðslumálum. I Winnipeg væri þess vafalaust þörf, ef til vill víð- ar. Svo virtist vera komið íslenzku- þekkingu æskulýðsins yfirleitt, að hugsanlegt væri, að til þess bæri nauðsyn, að hneigjast meira en ver- ið hefði að enskri tungu og hjálpar- gögnum við fræðsluna. Mr. G. O. Einarsson, Mr. A. E. Skagfeld, Mr. G. P. Magnússon og Mr. P. K. Bjarnason, viðurkendu allir vand- ann í þessum efnum, en lögðu gegn því að enska yrði innleidd í sunnu- , dagaskólana. Mr. P. S. Pálsson ságði, að undan því yrði ekki koru- ist að einhverju leyti. Hins vegar mætti kenna þeim tórnum á íslenzku, er þeirrar fræðslu gætu notið, og ættu að njóta. Miss O. J. Johnson sagði ítarlega frá sinni reynslu, er hefði gert sér ljóst, hvílíkt vandatnál hér væri fyrir hendi. Hjálpartæki þau, er um hefði verið að ræða, hefðu reynst sér ónóg, og hefði hún því neyðst til þess að afla sér eqskra kenslubóka til sunnudagaskólans; þar væri um ágætis úrval að ræða, og kenslan með bókum þessum bókum væri ánægjuleg mjög, að því einu undanteknu, að sú hræðslutilfinning væri mjög óþægileg, að þessi notkun enskra bóka væri í eðli sinu árás á “ástkæra, ylhýra málið’’ — íslenzk- una. Séra Guðm. Árnason kvað hlut verk sunnudagaskólanna hafa verið tvö, er hvort hefði hingað til dregið úr árangri hins. Ef menn nú kysu, eins og fyrir margra hluta sakir væri æskilegt, að fela skólunum framvegis bæði þessi hlutverk, lífsskóðana- fræðsluna og íslenzkufræðsluna, væri ekki óhugsandi að bækur mætti semja, er hjálp væru í hvorutveggja í senn. Mrs, F. Swanson kvað sina reynslu benda í þá átt, að annað- Kvað hann úrlausn þessa máls vand fundnari fyrir þá sök, að þarfirnar innan Kirkjufélagsins í þessu sam- bandi væru, eins og sakir stæðu, á- reiðanlega tvennskonar. Sumir söfn- uðirnir gætu enn notað íslenzku, og vildu ekkert annað nota, aðrir söfn- uðir gætu það ekki. Aleit hann að niðurstöður þessa þings í þessú máli gætu ráðið miklu um framtíðarhag Kirkjufélagsins. * Kosin var 7 manna þingnefnd t málið: Miss O. J. Johnson, Miss, H. Kristjánsson, séra Fr. Friðriksson, Mr. H. Pétursson, Mr. P. S. Pálsson, séra A. E. Kristjánsson, Dr. S. E. Jljörnsson. ■ Fundi slitið. Sunnudaginn 27. júní, kl. 2. e. h. messaði séra Rögnv. Pétursson i kirkju Sambandssafnaðarins á Gimli. Prédikaði hann út af 1. Kor. 16, 13. 4. þingfundur hófst mánudaginn 28. júni, kl. 10 f. h., á sama stað. Þátttaka Ungmcnnafélaga í árs- þingum Kirkjufélagsins, lá fyrir til umræðu. Séra Guðm. Arnason hafði orð fyrir nefnd þeirri, er í það mál var kosin. Voru svohljóðandi til- lögur nefndarinnar samþyktar: “Nefndin leggur til: 1. Að reynt verði að stofna ung- mennafélög í sambandi við söfnuðina alstaðar þar sem því verður við komið. 2. Að einn meðlimur hverrar safn- aðarnefndar hafi það sérs^aka starf nteð höndum, að vera umsjónarmað- ur ungmennafélags safnaðarins, og leiðbeina því í starfi þess. Við kosningu í safnaðarnefnd skal tillit tekið til þessa embættis. 3. Að stjórnarnefnd Kirkjufélags- ins sé falið á hendur, að semja reglugerð fyrir ungmennafélögin og leiðbeiningar urn starf þeirra, og sendi hún reglugerðina til ritara safn aðanna. 4. Að öll Ungmennafélög, sem þeg ar eru stofnuð, eða stofnuð kunna að verða, megi seYidá tvo fulltrúa fyrir hverja 50 meðlimi, á kirkju þingin.” Formaður nefndar þeirrar, er gera skyldi tillögur um Lcikmannafélög, og þátttöku þeirra í ársþingum, Mr. G. P. Magnússon, las upp svohljóð- andi nefndarálit: “Nefndin leggur til: 1. Að þing þetta feli einum manni úr hverjum söfnuði Kirkjufélagsins að gangast fyrir stofnun Leikmanna félags í sínum söfnuði, þar sem slikt félag er ekki myndað nú þeg- ar. .2. Að hvert Leikmannafélag megi- árlega senda erindreka á l^irkju- þing.” Urðu allmiklar umræður um málið Séra R. Pétursson mælti með stofnun Leikmannafélaga, kvað þau marg víslegt verkefni hafa, og hefðu þau reynst ágætlega út um alla þessa álfu. Mr. G. O. Einarsson, Mrs. P. K. Bjarnason, séra Guðm. Arnason, Mrs. Oddfríður Johnson og Mr. A. E. Skagfeld, tóku öll fremur dauf- lega undir það, að í litlum söfnuðum væru þess nokkur tök, að stofna sér- stök Leikmannafélög. Bök væri um Ungmennafélög. Séra R. Péturs- son kvað það satt, að Ungmenanfélög gætu ýmsu góðu og þarflegu til leiðar komið. Þó hefði hann meiri trú á fullorðnara fólkinu til þessara hluta, ef það skildi sjálft sig. Unga fólkið ætti, sem von væri, erfiðara með að fórna tómstundum sinum, og varhugavert væri að þrengja að því með skyldustörfum. Og ef áhugi þeirra fullorðnu væri svo lifandi og sýnilegur, sem vera skyldi, myndi ekekrt ungmenni tapast út i\r fé- lagsskapnum, heldur tíylla hann á sínum tíma með skilningi og trygð. Var samþykt að vísa málinu til væntanlegrar stjórnarnefndar. I tímarits'málinu var samþykt svo- hljóðandi nefndarálit: "Nefnd sú er kosin var til þess að ihuga timaritsmálið, látur svo, að út- gáfa mánaðarrits á stærð við "Heimi”, eða önnur slík rit, sé æski* leg og jafnvel nauðsynleg fyrir mál- efni hinnar frjálsu kirkju. Nefndin mælir með að stærtj, rits- ins yrði 4x7 þml. 16 blaðsíður og sett með 10 púnkta letri yfirleitt. Ars- kostnaður færi þá ekki fram úr 500 dollurum. Þar eð fjárhagsástæður Kirkju- félagsins leyfa ekki, að það standi straum af útgáfunni, leggur nefndin til að hún sé ábyrgst fjárhagsléga af samtökum einstakra manna innan Kirkjufélagsins, sem þar til eru fús- ir, en að Kirkjufélagið styrki út- gáfuna með $50.00 árlega. Nefndin leggur að lokum til, að þing þetta kjósi 9 manna milliþinga- nefnd, til þess að hrinda málinu i framkvæmd, og skili sú nefnd af sér til stjórnarnefridaf Kirkjufélagsins, ekki seinna en í næstkomandi septem- berbyrjun.” I þessa milliþinganefnd voru þessir kosnir: Mr. H. Pétursson, séra G. Árijason, Mr. Jón Tómasson, séra Fr, Friðriksson, Mr. G. O. Einars- son, Misf O. J. Tohnson, Mr. Agúst Eyjólfsson, Mr. J. M. Melsted, Mrs. Oddfríður Johnson. Fundi slitið. 5. þingfundur hófst kl. 2.30 e. h., sama dag og á sama stað. Miss O. J. Johnson. forseti nefnd- ar þeirrar, er íhuga skyldi þátttöku sunnudagaskólanna í ársþingum Kirkjufélagsúns, las upp svohljóð1- andi nefndarálit, er samþykt var ó- breytt: “Nefndin leggur til: 1. Að hverjum sunnudagaskóla sé veitt heimild til þess að senda einn fulltrúa á kirkjuþing með fullum tingréttindum. 2. Fulltrúar sunnudagaskólanna skulu halda með sér fund meðan á þingi stendur, á þeim tima, sem gert er ráð fyrir á dagskrá þingsins, ræða sameiginleg sérmál sunnudagaskól- anna, og bera fram tillögur í því efni fyrir þingið. (Frh. á 4. bls.) / Albert Sigurjónsson Hansson. 1856—1926. Þann 5. maí s.I. andaðist að heimili sínu á Mountain, N. D., Albert Sig- urbiörnsson Hanison. Hann var fæddur á Jarlsstöðum í Bárðardal i Þingeyjarsýslu og ólst þar upp til fullorðins ára. 21. árs gamall flutt- ist hann frá Jarlsstöðum að Varðgjá í öngulsstaðahreppi í Eyjafjarðar- sýslu, og giftist þar eftirlifapdi konu ,sinni Sigríði Sigurðardóttur, Erlends sonar frá Klömbrum í Aðalreykja- dal, og er hún alsystir þeirra bræðra Stefáns og Jóhannesar, sem kendir voru við Hnausa í Nýja Islandi, og sem margir Vestur-Islendingar munu Kannast við. Faðir Alberts sál., Sigurbjörn Hanssori, var ættaður úr Mývatns- sveit, en konþ hans, móðir Alberts, Aðalbjörg Jónsdóttir, frá Mjóádal í Bárðardal. Systkini Alberts sál. voru átta, og flpttust öll til Ameríku, og eru öll dáin, nema Hermann, sem er búandi á Varðgjá í Öngulsstaðahreppi, og Hólmfríður, kona Gísla Goodman, er munu vera búsett nálægt Gull Lake, Sask. Árið 1882 fluttust þau Albert og Sigríður til Ameríku og settpst að nálega strax á landi sinu í íslenzku bygðinni í grend við Mountain, N. D., og bjuggv þar rausnarbúi til 1920, að þau hættu búskap og flutt- ust.til bæjarins Mountain, og þar dó Albert 5. maí, sem fyr er sagt, nær 70 ára gamall. Albert og Sigríður eignuðust 10 börn. Þrjú þeirra dóu á unga aldri, en sjö komust til fullorðins ára, og eru þessi: Hansína Aðalbjörg, elzt, gift kona að Gimli, Man.; Jóheiður, giftist Frank Jóhannssyni í Cava- lier, dáin 1920; Aðals*einn, giftur dóttur Geirmundar Olgeirssonar og konu hans í Garðarbygð, búsettur á bújörð foreldra sinna; Sigrún, ógift, til heimilis að Árborg, Man.; Sig- urbjörn, búsettur hér í bygðinni, gift- ur dóttur Geirmundar Olgeirssonar; Hólmfríður, gift Öla Einarssyni Cavalier, N. D.; og Stefán, giftur dóttur Tómasar Halldórssonar og konu hans, búsettur að M Duntain, N. D. Með Albert sál. er genginn til hvildar einn. af brautryðjendum þess- ajrar bygðar, og óhætt að segja einn af beztu bænduni bygðarinnar meðan hann stundaði búskap. Maður, sem var vinur vina sinna og .ekki vildi vamm sitt vita á nokkurn hátt. Hann afkastaði stóru dagsverki, að koma til fullorðins ára sjö mannvænlegum börnum, og eiga samt nóg fyrir sig ’ og konu sína að leggja til elliáranna, þegar tekið er tillit til þess, að hann bjó á litlu og heldur léttu landi, í samanburði við suma aðra bændur þessarar sveitar. Albert sál. var skapsmuna rólegur maður, gætinn og stiltur, og hefir áreiðanlega litið svo á, að hið mót- dræga væri eitt af lögmálum mann- lífsins, engu siður en meðlætið, og bæri þar af leiðandi að taka því með ró og þolgæði. Hann var góður heimilisfaðir og lifði ekki einungis fyrir sjálfan sig, heldur og börnin sín. Of er nú nokkuð indælla eða háleitara markmið að stefna að og lifa fyrir, eftir alt, en að reynast af ítrustu kröftum vel þeim, sem hafa orðið manni áhangandi gegnum llfið og manni hefir verið trúað fyrtr ? Og geta svo að lokum: "Rétt heimi sáttarhönd um síðir, við sólarlag.” Um afstöðu Alberts sál. í trúmál- um er mér ekki vel kunnugt, en mér er nær að halda, að hann hafi ekki algerlega stólað upp á náðarboð- skap prestanna fyrir sína andlegu velferð, heldur að breyta og lifa í sátt og samræmi við sína eigin sam- vizku. Þann 9. maí s.l. var Albert sál. jarðsunginn af séra Páli Sigurðssyni, og Iagður til hinnar siðustu hvíldar í hinum afskekta og sólarsæla graf- reit bygðarinnar, þar sem nálega að segja hvert íslenzkt heimili í því umhverfi á einhvern kæran blett, og ljúfar og hjartfólgnar1 endurminn- ingar á bak við söknuðinn og tárin. Að síðustu skal þess getið, að Sig- ríður, ékkja Alberts sál., þakkar ö’l- um af heilum hug, sem á einn eður annan hátt sýndu hjálpfýsi og samúð í hinu |janga og stranga sjúkdóms- stríði manns hennar, og ekki sízt börnunum þeirra, sem reyndust þeim eins og góð og velhugsandi börn góðum foreldrtim. y J. B. H. Vestan um haf. Éftir séra Ragnar E. Kvaran. (Ur Lesbók Morgunblaðsins.) (Eitt af þeini mörgu hlutverkum, sem núlifandi kynslóð á landi hér þarf að inna af hendi, er að vinna að þvi með fullum skilningi, að tek- ið verði upp meira samband en verið hefir milli Islendinga vestan og austan hafs. Tómlæti Islendinga gagiwart lífi, þjóðræknisstarfi og framtíð Vestur-Islendinga, er óþolandi. — Glöggvar frásagnir frá löndum vor- um vestra verða hentugastar til þess að vér Islendingar, vö)\num til með- vitundar um skyldur t)orar í þessu efni.) Skömmu eftir að eg kom hingað til landsins fór ritstjórn Morgunblaðs-

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.