Heimskringla - 03.10.1927, Page 4

Heimskringla - 03.10.1927, Page 4
4. BLAÐSÍÐA. HEIMSKRIN GLA »—" 1 ■ " l^amskringla (StofnuD 1886) Kemar tlt á hrrrjam miVTlkndfffi EIGENDUR: VIKING PRESS, LTD. 853 OK 855 SAKfiENT AVE . WlMIPBf. TALSIMI: 80 537 VerB blafislns er »3.00 árgangurinn borg- lat fyrirfram. Allar borganir senalat THE VIKING PRÍEftS LTD. 8IGFÚS HALLDÓRS frá Höfnum Rltstjórl. UtanAskrlft tll blaTSnlne: THE VIKING PKESS, I.td., Box 8105 UtaaflHkrift tll rltHtJörann: EDITOK HEIMSKKISiGI.A, Box 3105 WlííNIPEG, MAN. ‘‘Heimskringla is pnbllsbed by The Vlklnir Preaa Ltd. and printed by CITV PKINTUVG A PUBI.ISHING CO. 003-855 SarKent Aee., Wlnnlpeg:, Man. Telephone: .80 53 7 L i .... WINNIPEG, MAN. 3. OKTÓBER 1927. I minningu um Stephan G. Stephansson er þetta blað helgað honum á 74. afmæl- isdegi hans. Á það vel við fyrir þá sök, að fráahans höndum hafa oft, og í mörg ár samantalið, Heimskringlu borist höf- uðdjásn alls þess, er hún hefir birt. Sömu- leiðis á það við fyrir þá sök, að ekki gæti núverandi ritstjóri hennar kosið sér að mega starfa í annars anda fremur, en hans, er nú er minnst. Og í þriðja lagi á það við, að vestur-íslenzkt blað minnist þess rækilega, að slíkur maður féll hér af vorum stofni. Því þótt hann væri holl- ur þegn þessu landi, þá var hann fyrst vor íslendinga', enda vissi Canada jafn- lítið og Bretaveldi, aðfaranótt hins 10. ágúst 1927, að þá hefði brostið voldug- asti hörpustrengur samtíðarinnar í því mikla ríki. Hvernig mátti slíkt líka ske, þegar stórblað sem Free Press í Winni- peg, með íslenzka fréttaritara, verður að taka andlátsfregnina seint og síðarmeir úr blaði vestan úr Alberta. * * * Þessi ummæli vitum vér að lesendum koma eigi ókunnuglega fyrir sjónir frá vorri hendi. Og það. er oss gleðiefni, að hinn ágæti vinur vor, er lesendur Heims- kringlu kannast við sem “L. F.” tekur sízt grynnra í árinni. En vér hyggjum að ekki muni margir Canadamenn dómfær- ari en hann um þau efni, og veldur þar um hvorttveggja, fróðleikur hans og list- ræni. En því er þetta tekið fram, að hann er hér einn málsvari hér fæddrar íslenzkrar kynslóðar, er tamari^er ensk tunga og bókvísi en íslenzk. : * * * Öllum viljum vér þeim einlæglega þakka, er lagt hafa lauf og blóm í þenna minningarsveig á leiði Stephans G. Ste- phanssonar. Vér finnum ei að þar sé nokkuð ofsagt, er afsökunar þurfi lesend- ur fyrir að biðja. Oft eru þó dauðir menn moldausnir oflofi. Margir fyrir það eitt að hafa dregið' andann í 60—70 ár. Ste- phan er einn af þeim mönnum, sem ekki er oflofi ausinn, þrátt fyrir það sem um hann er nú sagt, og áður hefir vérið sagt — í Heimskringlu. Slíkir menn eru svo eilíflega sjaldgæfir, að við lát þeirra geta orðvísustu og slyngustu menn, óhræddir gripið til þeirra hástigsorða, er þeir geyma vandlegast reyfuð í hugfórum sínum. Stephans verður lengi saknað. Eigi aðeins af ástvinum og málvinum, heidur af alþjóð. Og því lengra sem líður, því betur skilst íslenzku þjóðinni, hvílíkt afhroð hér er orðið. Því betur skilst henni, að hér hafa ræzt orð skáldsins: að hér átti “....hún mann að missa meiri og betri en aðrar þjóðir.” En í þeirri viðurkenningu felst að vísu sú huggun, að í verkum sínum lifa slíkir menn að eilífu með oss — þótt þeir deyi. Stephan G Stephanssson Ræða flutt við minningarathöfn í Sam bandskirkju sunnudaginn 2 okt. 1927. af séra Ragnari E. Kvaran. “Síðasti söngfugl Sumars ins fyrra, Horfinn er úr högum. Þjóð hans mun þykja Þögn hans vera Stærst með stórtíðindum.” kvarta undan því, að hann hafi ekki þjón- að henni með þeirri hollustu, er hún kynni að krefjast, þá hafi hann þó reynt að gæta þess að gjalda henni aldrei svikinn biending “í brota-silfrinu mínu.” Henni þykir svarið ónógt og bendir hon- um á. að hann hafi helgað “— stritinu hraustleik og dag, Mér hríðar og nótt og þreytu.” Hann s/arar þvi sem beint iá við, að hann hafi þó orðið að gegna skyldum sínum, hversu mikið sem hann hafi unn- að henni. Svo yrkir Stephan G. Stephansson um Matthías Jochumsson látinn. Á engan hátt verður sagt, að þessi orð yrðu heim- færð upp á höfundinn, svo stórkostlegur atburður sem fráfall hans er. Þjóð hans mun ekki þykja þögn hans stærst af stór- tíðindum. Hún er naumast enn tekin að lesa rit hans. Ýmsir ágætir menn hafa bent á hve stórfelld sál hafi hér verið að verki, en það verður ekki með nokkru móti sagt, að þjóðin sem heild hafi orðið fyrir þeim áhrifum af þessum manni, sem búast hefði mátt við sakir atgervis hans. Jafnvíst og þetta er, þá er hitt ekki síð- uf áreiðanlegt, að fá íslenzk skáld að fornu og nýju hafa náð því valdi á ein- stöku mönnum sem þetta skáld. Mörg- um mönnum hér vestan hafs þykir sem svipleysið yfir hinni andlegu flatneskju þjóðlífs vors, sé nú þess aðal einkenni, eftir að St. G. St. er fallinn frá. Sú til- finning er að sjálfsögðu ríkust nú, með- an enn er skammt um liðið, enda ekki lík- legt að hún ágerist. Hin yngri skáld vor hafa orðið fyrir ótvíræðum áhrifum frá Stephani, og iíkindi eru afar mikil fyrir því, að áhrifin frá honum aukist í fram- tíðinni, en dvíni ekki. Hann er ekki þagnaður, þegar til kemur, heldur mun andvökudrápa hans hljóma því magn- meiri, sem fleiri fá skilning á honum og læra að leggja hlustirnar við vitsmunum hans og snilld hans. Það er þetta sem því veldur, að oss hér í Sambandskirkjunni finnst ásfæða til þess að minnast þessa manns við guðs- þjónustu vora. Oss langar til að temja oss að veita athygli þeim mönnum, sem hafa einkenni spámannlegs anda í vorri eigin samtíð, og þá ekki sízt í voru eigin þjóð- lífi. Vitaskuld er oss ljóst, að vér erum, eins og gervalt mannkyn, sjónd'aprir á andríkið og snilldina, en sjóndepran gengi næst blindu, ef þessi félagsskapur kæmi að engu leyti auga á þetta hér, því að St. G. Stephansson hefir haft stórkostleg áhrif á lífsskoðun ýmsra beztu forystu- manna vorra í hinni frjálslyndu trúar- hreyfingu. Hann hefir ekki átt fulla sam- leið með þeim ölium, ef til vill, en innsýni hans og ákafa réttlætistilfinning hefir varpað frá sér þeirri birtu, sem þeir menn gera einir, sem eru ljós heimsins og salt jarðar. Eins og tilkynnt hefir verið, þá tekur annar maður til máls, er eg hefi lokið þeim fáu orðum, er eg ætla að segja. Séra Rögnvaldur Pétursson, vinur skálds- ins að fornu og nýju, flytur hér aðalræð- una. Fyrir þá sök mun eg enga tilraun gera til þess að segja hér sögu Stephans G. Stephanssonar, hvorki hina ytri né innri. Enda brestur mig með öllu þekk- ingu til þess. Eg mun láta það eitt nægja, að reyna að bregða upp örfáum dráttum af einum eða tveimur hliðum skapferlis hans, sem einhverra hluta vegna hafa sezt fastar í huga mér síðustu daga, heldur en annað, er eg þó hefi orðið hug- fanginn af við lestur bóka hans. Fyrir réttum fjórtán árum síðan, eða afmælisdag sinn hinn sextugasta, orti Stephan undurfagurt kvæði. Hann nefn- ir það Afmælisgjöfin. Kvæðið er þess efn- is að hann liggur vakandi í rúmi sínu þennan morgun og hugsar um framtíð- ina: “— t------------verður hann fagur Minn samverutími við sjöunda tug, Og sunnu- og hvíldar-dagur?” Hann heyrir létt fótatak um húsið og skynjar þegar, að skáiddís hans er á ferð- inni til hans “með hörpu og víðir-sveig- inn”. Hún kemur með það erindi að kveðja hann alfarin. Honum verður svo þungt um þær fréttir, að “Mér þótti sem Hel væri að rista mér rún í rekkju, á úrkula megin. Svo döpur varð æfin, ef hyrfi mér hún, Með hörpu og víðir-sveiginn.” Hann reynir að verja sig fyrir þeirri ó- gæfu, og bendir henni á, að enda þótt hún kunni að hafa ástæðu til þess að “Hún greiddi mér svarið með samskonar raust Sem svalkar í drápsbyl, um grandalaust haust: “Á dyggðinni sveikstu þig, sök átt við neinn, Þá synd eru fortök að milda. Því guð þinnar listar á alhug þinn einn— í afguða-trú snýst skylda.” Eg veit ekki hve ótalmörgum sinnum eg hefi séð skáld gera þenna árekstur að umtalsefni — áreksturinn milli listgáfu sinnar og þess, er bindur þá við dagleg störf. En eg held ekki, að eg hafi í ann- an tíma séð það átakanlegar gSrt, en í þessu kvæði, er skáldinu finnst “-------------_gína við myrkari göng í myrkrið, sem glötunin örvæntis-löng—” þegar dísin gengur snúðugt frá honum. Einhver kynni ef til vill að láta sér koma til hugar, að í þessu kenni þess er nefna mætti vanþakklæti við lífið. Ste- phani befir tekist — þrátt fyrir allar skyldur, sem á hann hafa hrópað — að yrkja fimm stórar bækur, sem beztu menn þjóðar hans eru sammála um, að búi yfir eins miklum andlegum auði, eins og þau verk, sem hingað til hafa á- gætust verið samin á tungu þjóðar vorr- ar. Þrátt fyrir það, að skáldið hefir bú- ið við eignaleysi og orðið mikið fyrir líf- inu að hafa, þá hefir hann jafnframt bú- ið yfir þeim lífsþrótti, sem þetta fékk ekki bugað. Forsjónin hefir géfið honum langsamlega mikið meira af dýrmætum gjöfum sínum, en fiestum öðrum sam- tímamönnum hans. En af hverju stafar þá þunglyndið? Eg hygg að það stafi ekki af því einu, að þráin eftir meira lífi og æðra er ávalt sterkust í þeim, sem mest hafa af lífi. Eg held að auk þessa stafi þetta af tveim á- stæðum aðallega. Önnur ástæðan er sú, að Stephan G. Stephansson er þunglyndur í beztu merk- ingu þess orðs. Þungiyndi (eða svartsýni mætti jafn- vel segja) birtist, eftir því sem enskur, ágætur bókmenntafræðingur hefir ný- lega bent á, með tvennu móti á vorum tímum í bókmenntum og listum. Ann- arsvegar eru þeir menn, sem annaðhvort ekki sjá neitt í lífinu annað en forsmán og andstyggð, eða finna nautn í því að ljúga ósóma á öfl og viðleitni tilverunn- ar, og hinsvegar eru þeir, sem óhjákvæmi lega verða þunglyndir og raunamæddir vegna þess hve mikla ást þeir hafa á því, sem þeir sjá veglegast í lífinu. Fyrri fiokkurinn er fjölmennfir — fullyrt er að öflug alda þessa lífsskilnings hafi risið upp í öllum löndum, svo að segja, eftir ófriðinn — en í hinum flokknum eru þeir menn, sem göfugastir eru og mikilfeng- legastir uppi. Þeim finnst svo mikið til um þá örðugleika, sem fegurð, sannleiki og gæði verði að berjast við, að það ligg- ur við að það sligi þá suma. Þeir eru þess fullvísir, að þetta sé ekki aukaatriði eða skrautblóm, vaxin af tilviljun á mold- arhaug blindrar náttúru, heldur vottur um innsta eðli hennar og vilja og við- leitni. En þeir finna, eins og postulinn, að “öll skepnan stynur” í þessari bið eft- ir “sonarkosningunni” — því ástandi, er samboðið sé mönnum. Þeim er ljóst, að ailar okkar hugmyndir og skilningur á fegurð, sannleika og gæðum er fátækur, ónógur og lítilsigldur, en hann er það eina, sem gerir lífið þess vert að lifa það. Þess vegna er sem helköldum hrömmum sé læst um hjarta þeirra, þegar þeir sjá dýrustu djásn mannlegs lífs troðin ofan í skarnið. Og enginn hörgull er á þeim sýnum. Stephan G. Stephansson er einn í þess- um flokki, er eg hefi nú minnst á. Hann æðrast aldrei og telur sér ekki harma- tölur, en í öllum kvæðum hans er þessi þungi straumur af þunglyndi, sem stafar af tilfinningunni fyrir því, sem verðmætt sé, og hvílíkir boðar að því steðji. Hann veit raunar að drengskapur Iiluga Grett- isbróður og Hergilseyjarbóndans, bjarg- vætts Gísla Súrssonar, er sjálfum sér nógur. Hinir göfugustu eigin- leikar þurfa ekki að sigra í hinni ytri baráttu, til þess að réttlæta tilveru sína, en samt eru þrengsl in, sem þetta verður að búa í, svo mikil, að það verður aðal- sorgarsaga lífsins. Það er ekki skáldgáfa hans ein og snilli, er situr í hinum þrönga stakki ytri ástæðna, heldur allt, sem hefur líifið upp úr ómerku, 'gróður- lausu dalverpi óþroskans. Mér finnst við lestur síðustu bóka hans, sem þetta skapferli og þessar tilfinningar skáldsins hafi orðið að álcveðnum lífs- skilningi er á leið dag æfi hans. Og sjaldan hefir kvæði náð svo tökum á mér og það, er hann nefnir “Nift Nera”, og birtist í Tímariti Þjóðræknisfélagsins fyrir fáum árum. Örlaganorn- irnar hafa gefið Helga Hund- ingsbana við vögguna allar þær gjafir, er ágætan mann mega prýða. En ein nornin bregður að lokum einum þætti “á norð- urvega”, og var sá þáttur með öðru móti en hinna. Örlóg hans urðu á þá leið, að hann varð “við heilum hörmum orðstír kaupa ævarandi—svo er frægðin fengin!” Helgi á það atgervi, að svo er sem lífið hafi rétt að honum alla kjörgripi sína, er auðnu valda og hamingju. Hann gri'pur til þeirra óvitahöndum og veit ei hvað liann handleik- ur. Hann öðlast ást og bregst henni, skýtur öllum örvum um mark fram, því að hann þekk- ir ekki mátt sinn. “Ramarí raunir rekkum öðrum, gef eg þér sveinn til sigurs.” Sjö komu saman systur hennar — Örlaga-dísir allar — Ágæti, atgervi, yfirmennsku, ijúflingi létu í té — En allt var það failvait fé! Ein gaf sorgin til sigurs! Því var Helga-kviða kveðin.” í Er það of djarft til getið, að þetta sé ekki saga Heiga eins, heldur og saga Stephans G. Stephanssonar? Hann hefir vissulega sigrað þær takmark- anir, er að honum þrengdu, bet- ur en títt er um menn, en mér fær ekki úr hug komið, að þetta mjúka og styrka kvæði sé þess vottur, að hann hafi hugboð um, að baráttan við þær — bæði hinar ytrí og innri — hafi vald- ið því, að honum varð þess sig- urs auðið, er óneitanlega féll í hans hlutskifti. Eg átti tvisvar sinnum tal við Stephan G. Stephansson á heim ili hans í Markérville. í fyrra skiftið eyddi hann því nær heil- um degi til samtals við mig. Eg get ekki í þetta skifti sagt yður frá viðræðum hans, en þá'varð eg þess var, sem eg hefi síðar talið orsök þessa þunglýndis- hljóms, sem kveður við 1 strengj um hans. Það stendur, þótt furðulegt megi virðast, í sam- bandi við ást hans á þjóð hans og annars allri alþýðu heims. Stephan G. Stephansson er ekki enn orðinn, eins og eg þeg- ar hefi bent á á, þjóðskáld í þeirri merkingu, að þjóðin hafi sökkt sér niður í kvæði hans og mótað sína eigin lífsskoðun að verulegu leyti eftir anda hans. En Stephan orti ekki sjálfs sín vegna eingöngu. Hann orti vegna þjóðar sinnar. Og hann fann stundum, að þótt hann tæki á öllu afli róms síns, þá gat hún ekki heyrt mál hans, eða að minnsta kosti ekki heyrt rétt. Það er til dæmis óhugs- andi annað, en að margt láti nú á annan veg í eyrum manna, en það gerði fyrir tíu eða tólf árum, er hann var að yrkja út af ófriðnum. En það er stund um heldur komið í ótíma, sem heyrist tíu eða tólf árum eftir að það er sagt. Hann laut aldrei að því að segja mönnum J það, er þeim geðjaðist að, ef það var ekki sannfæring hans, og það vill svo til, að skoðanir viturra manna eiga ekki ávalt samleið með þessu, ‘sem ekkert gat lært nema hárvissu sína”, WINNIPEG 3. OKT. 1927. r Viss merki um nýrnaveiki eru bakverkir, þvaff- teppa og þvagsteinar. GIN PILLS lækna nýrnaveiki, meb því ab deyfa. og græía sjúka parta. — 50c askjan hjá öllum lyfsölum. 131 eins og hann sjálfur kemst að orði. Stephan hefir ort kvæði eftir vin sinn einn, og lýsir honum á þá leið, sem hvert orð kvæðisins eigi við höfundinn sjálfan. Þar segir svo meðal annars: “Óslyngt var Ólafi Almennings-fjas, En svanur var hann í sveit Sinna líka. Hverfull úr háreysti Hrópendanna, En spakur á spámannsBekk Spekinganna. Aldrei var han einmani, Hann átti að félögum Aðalsmenn andans Á öllum tímum — Vera mun vorkunn Þó verða kunni Fágengt til fjöldans Úr frændhóp þeim. Þér vitið öll, að um fáa ís- lenzka menn vorrar kynslóðar á þetta betur við, en einmitt um Stephan. En hitt er og víst, að hann hefði eigi harmað það, þótt marggengari hefði vegmn- ir verið, er lágu milli hans sjálfs og almennings þjóðar hans. — Hann fann til þess, að . “Makalaust mannvit fer munaðarlaust.” Og það er eftirtektarvert um þennan stórgerða “aðalsmann andans”, sem svo oft átti svo litla samleið með almennfhgi, að trú hans á almenningi fór þrátt fyrir það vaxandi, en eigi minnkandi með aldrinum. Hann bar innst inni svo mikla vfrð- ingu fyrir þjóð sinni, að hann kenndi til, er hann gat eigi átt samleið með henni. Eg hygg einmitt að þetta at- riði, er eg nú hefi bent á, megi teljast eitt hið veglegasta ein- kenni í skapgerð skáldsins. Það vill fara svo um flesf andans- menni, að er þau verða vör mik- ils skilningsleysis hjá almenn- ingi, þá vekur það fyrirlitningu á honum og trúleysi á honum. En svo var eigi um Stephan G. Stephansson. Sjötugur að aldri yrkir hann eitt sitt ágætasta kvæði — “Martíus” — sem er hvorttveggja í senn, dýrðlegur lofsöngur til gróandans í mann- lífinu, og játning skáldsins*um trú sína á mátt lýðsins til að endurleysa sjálfan sig. Hann telur “hetju-dýrkun” vora hafa verið hina mestu meinsemd frá öndverðu, því “Oft voru fjötrar foringjans, Fastast sem að að þér reyrðu. Sagan gjarnast eignar einum Afrekin þín, dreifði múgur! Samt mátt bera, svara-bljúgur, Sakir alls, sem hlauzt af mein- um.” Hann endar svo þessa trúar- játningu sína á vorið í mann- heimum: “Fyrir gluggann minn gengu Glaðar sumar-vonir! Stefndu blysförum beint til Bjarmalands í framtíð, Girtar megingjörð morguns, Mannprýði og sannleiks, Merkt var handsal á hjálma, Hjartarót á skjöldu. Slógu Ijóma fram um löndin, Leiftrum út í fjarlægð, Glæstu rósir og runn, að Regnbogum í austri. /

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.