Heimskringla - 01.02.1928, Qupperneq 2
2. BLAÐSÍÐA
H E IMSKRI N Q LA
WINNIPEG 1. FEBRUAR 1928:.
Islenzkir Bolshevikar.
Eftir Torfa iir Dölum.
Þeim fjölgar óöum og má heita
meö hverjum mánuöi, aö eirihver
nýsveinn komi fram á völlinn og sýn-
ir list stna í þessari nýítízku stjórn-
speki og trúfræði. Vinur vor og
gestur, Mr. H. K. Laxness, er sá
síðasti, er með grein sinni i Heims-
kringlu nýkominni, lætur til sin heyra
í anda og oröi þessara ungu Boldhe-
vika. Engum blandast hugur um þaö
að hér talar listamaður og skáld um
þau mál sem hann er tilfinnanlega
fáfróöur um, en hann flytur mál sitt
á þann hátt, að vér eldri ihaldsmenn
hér vestra, finnum til þess að flokkn
um hefir aukist lið með þessu skrifi
hans í Hkr. En það er fyrir það, að
hér er ungur gáfna og óvenjulega list
næmur maður að ræða um þau mál
(stjórn og trú), að mig langar til að
íhuga þessa grein hans í síðasta blaði
Heimskringlu.
Fyrst skal það tekið fram, að þrátt
fyrir þessa grein hans, þá kemur mér
ekki til hugar, að setja Mr. H. K. L.
í nokkurn fastan flokk, því eg les
svo bækur hans og blaðagreinir, að
sjáanlegt er, að hann á hvergi heima.
Er það eitt út af fyrir sig ekkert út-
ásetningarvert, þvi þeir sem eru í
alvarlegri Jeit eftir sannleikanum,
tapa tíðlega áttum og lenda því í
þeim öræfum og klungrum, að þeir
vita ekki sjálfir hvar þeir eru, eður
hvert halda skal.
I þessu ástandi virðist mér Mr.
H. K. L. vera í þessu síðasta skrifi
sínu, sem óefað er það leiðinlegasta
og um leið af mestri andans fátækt,
sem iþessi ungi rithöfundur hefir lát-
ið frá sér fara nú í seinni tíð. En
nú taka vorir íslenziku Bolshevikar
hér vestra þessa endaleysu hans sem
sitt forspjall og benda á hann (H. K.
L.) sem sinn prédikara, prest og spá-
mann, er sanni svo greinilega og full-
komlega gildi sinna mála. Engtim
er enn ljóst, hvar helzt að Mr. H. K.
L. telur sig stjórnmálalega, en eitt
er sjáanlegt, að hann lítur ekki á
mál vor hér vestra, bæði í Canada
og Bandarikjunum, með neinni vin-
semd né samúð. Má eg benda á þessa
málsgrein hans í þriðja kaflanum:
“I engu landi, þar sem hvítingjar
búa, eru menn jafnlangt á eftir tím-
anutn í öllum höfuðatriðum, eins
Og í Norður-Amsríku, og um leið
jafnlangt á undan í öllum aukaatrið-
um og því sem engu skiftir ákvörð-
un mannsins. Það verður áð leita
hér með logandi ljósi, til þess að
finna menn, sem ekíki vaða í fárán-
legum blekkingum og úreltum öfgum
tim hversdagslegustu þekkingaratriði.
Menn, sem ekiki hafa látið sem vind
tim eyrun þjóta framfarir síðustu ára
tuga í náttúrufræðum, sálarfræði,
þjóðfélagsivísindum, kynferðismálum
eða fögrum fræðum, eru skoðáðir
sem þjóðfélagslböl.”
Þessi stóri dómur um Norður_
Ameríkumenn yfirleitt og undantekn-
ingarlaust, er minnst sagt mjög svo
likur gamla skeljadóminum og nú-
tíðar sleggjudóminum almenna, sem
Bolshevikar brúka og birta á alla
þá menn, sem nú láta mest til sín
heyra og halda fram, að þeirra fram
tíðar stjórnmálastefna og þjóðfélags.
fræði sé aJIs ekki timabær, og á marg
an hátt mjög ísikyggileg. Norður-
Amenikumenn trúa ekki á neinskonar
eínveldisstjórn, morð, manndráp,
stuld og rán, eins og nú viðgengst A
Rússlandi, þar sem þeir eru að sýna
heiminum sina stjórnmálaþekkingu,
göfuga menn, kærleika og bróðurþel.
Rétt til smekks handa þessum ís—
lenzku Bolsheviikum, gríp eg það
siðasta, sem eg hefi séð frá Rússa-
stjórn, um meðferð á þeim mönnum,
sem mest og bezt hjálpuðit þeim til
valda og að koma í framkvæmd því
stjórnarfari, sem þeir eru nú beittir
sjálfir, fyrir það eitt, að hafa aðra
skoðun um aðferðina á þeirra þjóð-
félagsfyrirkomulagi. Þessi frétt er
tekin úr Winniftegblöðunum, og er
fyrirsögnin með stóru letri þessi:
<
"Trotsky byrjar útlegS i dag. Fyrra
átrúnaSargoð Soinetstjórnarinnar er
fluttur i útlegS til útjaSars Chinese-
T urkestan.
(Associated Press.)
Berlín 17. janúar. — Frétt írá
Moskva, dagsett 14. janúar, til Ber-
liner Tageblatt, skýrir frá að að öllu
forfallalausu verði Leon Trotsky flutt
ur i útlegð frá Moskva til hins .fjar-
læga Vjerny á útjaðar Chinese-
Turkestan, fyrir mótstöðu hans gegn
Stalin-stjórninni.
Christian Rakovski látinn hætta
sem aðstoðarmaður i utanríkisdeild-
inni og sagt að hann hafi verið gerð •
ur útlagi og eigi að flytjast til Ast-
rakan, 1020 milur suðaustur frá
Moskva og 270 frá næstu járnbraut-
arstöð. — Karl Radek, bolsheviskur
blaðamaður og nokkrir aðrir stjórn-
arandstæðingar, .eiiga að sendast i
útlegð til héraðs í Uralfjöllunum, og
bíða eftir nánari ákvörðunum og
fyrirskipunum.
Mr. Serebriakoff vara umsjónar-
maður fréttamálanna, er farinn í út-
legð til Semipalatinsk héraðsins og
biður þar.
Leon Kameneff, fyrverandi sendi-
herra til Italíu, var látinn hafa sitt
heimili í Penza, og M. Zinovjeff, að-
alyfirmaður alþjóðafélagsins, verður
að gera Mumbofif að sínum verustað.
Sagt er að allir hafi verið fluttir
af lögregluliðinu til járnbrautar.
stöðvanna og gefnir 5 chervonetz
($25.00) í ferðakostnað.”
Mér kom til hugar, þegar eg las
þetta um útlegð þessara manna, að
ef þessum aðferðum væri beitt viö
stjórnarandstæðinga hér í Norður—
Ameríku, hvað H. K. L. og þessir
. íslenzku fáráðlingar, sem blessa nú
Laxness fyrir last hans á þjóðfélags-
mál vor hér, mundu segja um þann-
ig lagaðar meðferðir á þeim sjálf-
um.
Allar þær "blckkingar” og þau
“þjóðfélags skripalæti” sem H. K. L.
er að tala um að “amerískir launa-
þrælar séu uppaldir við”, er ekkert
annað en hans eigin skáldskapur af
sömu tegund eins og hann segir um
“lygina” úr Mr. Spalding í bók hans
um “Life and Teadhing of the Mast-
ers 0f t)he Far East”. Þegar Lax-
ness skilur sjálfan sig og alvarlega
leggur rækt við listgáfu sína, eru lík-
ur að hann finni menn sem vilja
leggja rækt við hann og hjálpa hon-
um til að selja afurðir hans, ef þær
ná því verðmæti að vera nokkrum
manni boðlegt sem listaverk og skáld-
skapur. Vitanlega úir og grúir af
þeim andlegu vesalingum, seni sjá
sér tækifæri að telja óupplýstri alþýöu
trú um að auðurinn (capital) og þeir,
sem með hann fara og brúka í þarfir
mannifélagsinB, séu allir þjófan og
bófar. Þeir reyna á áliar lundir að
fá fólkið,, sem þeir prédika mest fyrir
og þykjast vera að hjálpa, á þenna
Ihátt til að hata allt sem er brezkt, hér
í Canada, og allt Bandaríkjastjórnar-
farið og viðteknar lýðveldisreglur
þar syðra. Lukkist þeim að kynda
ihatursbálið í hjörtum lesendanna og
lita málið listkenndum blæ og búning,
með tryllandi trúðaraháttsemi og
fjálgskap, þá er ekki vöntun á vin-
sældum og ástríkum áhangendum, er
gerast þá um leið söfnuðir þessara
presta og preláta, er þannig leika sér
að góðvild og meðaumkvun óupp-
lýstrar alþýðu. Það er heill hópur
af þessum mönnum hér í landi og vit
anlega í öllum löndum og á meðal
allra þjóða, sem eyða æfi sinni g
öllu starfi sínu á þenna trúðaraihátt.
Mr. Laxness hefir með þessari grein
byrjað á því neyðarúrræði, að
leggja þeim mönnum lið, sem sízt
gengdi og allra manna eru óhæfastir
til að ráða bót á þessum mörgu ineiu
um, sem úrlausnar biða, bæði hér í
Norður-Ameríku og víðar.
Frjálslynd trú og kirkja fær ekki
siður á baukinn hjá Laxness en
stjórnmálin og önnur þjóðfélagsmál.
Samt má það virða við hann, að hann
viðurkennir sitt ófrjálslyndi í því
efni, um leið og hann lofar kaþólska
trúarkerfið. En samræmið er ekki
sérlega traust, því eins og allir vita,
verður fólk að taka þá trú rétt eins
og hún er, án þess að "hafnct og
velja” sjálfir. En þetta segist H. K.
L. gera. Og vitanlega allir, sem
þekkja hans sálarlíf, vita að rétt muni
vera sagt frá. En það hlægilega við
þessa staðhæfingu er það, að um leið
og hann hafnar og velur, og ætlar
sér að þera ábyrgðina sjálfur, nú þá
er hann óhjákvæmilega orðinn frjáls
og um leið frjálstrúarmaður. Eg man
ekki eftir meiri lokleysu en einmitt
þessu atriði hjá manninum. Og það
merkilega er að hann álítur, eða ræð-
ir svo, að eirihverjir muni trúa sér.
Veit hann ekki að Lúther byrjaði á
þessu lítilræði gegn kirkjunni, páf-
anum og öllum stjórnarvöldum sins
tima, og síðan hann byrjaði á þvi
hefir látlaust verið barátta háð um
þetta, að "hafna og velja”. Um það
er. hefir verið og verður barist með-
an heimurinn stendur. Frjáls trú og
kirkja hefir haft þetta fyrir sína
hornsteina og grunnmúr frá fyrstu,
og á því stendur hún um komandi
aldaraðir, eða meðan hún á líf fyrir
hendi. Þegar maðurinn fær ekki að
hafna og velja, þá byrjar hans ó-
frelsi, og það er kaþólska kirkjai
þekkt fyrir. Þar hafa menn ekki
þenna milrla kost, sem öll íslenzk
þjóð fagnar yfir og er svo stolt af,
að hafa valið og hafnað öllu, stjórn
Og trú, kóngi og páfa, biskupum og
böðlurn. Og þeir hafa sagt þessum
stórhöfðingjum, að þeir ætli sér að
ábyrgjast sjálfir, flytja sinar bænir
til alföðursins sjálfir, fyrir honum
einum að skrifta og þiggja friðþæg-
ingu hjá. Eg fagna því að Mr. Lax-
ness segir okkur afdráttarlaust, að
hann geri þetta enn í dag, og enn
ekki farinn eða neyddur til “að
krjúpa og kyssa kúgarans hönd” inni
í kapellum kaþólskra páfagauka.
Um þessi mál má vitanlega rita
hið endalausa, en í þetta skifti ætla
eg ekki að fara lengra, og um leið
óska eg þessum unga manni til ham
ingju með skáldverk sín, og vona að
í þá list leggi hann alla sína krafta,
og um leið vinni sér og sinni þjóð þá
sæmd og heiður, sem hann framast
megnar og má.
20. jan. 1928.
----------X----------
Or Bók eftir franskan
prest frá 18. öld.
“Og guð er lika með í syndinni”.
E. H. Kvaran.
1 reglubundnum viðburðum innan
ariteimsninls, þy'kjast guðsdýrkendur
finna óyggjandi 9Önnun fyrir því að
til sé skynjandi viti borin vera, sem
öllu stjórnar. En hin reglubundna
rás viðburðanna er aöeins afleiðing
hreyfingar, sem fer eftir eðli og að-
stæðum efnisins. Þessir viðburðir
fa.lla oss svo stundum vel og stund-
um miður. Eftir því finnst oss þeir
góðir eða illir.
Náttúran fylgir ætíð lögmáli sínu;
það er að segja: sömu orsökum
fylgja ætíð líkar afleiðinigar, svo
framt að nýjar orsakir komi ekki í
spilið; en í því tilfelli verða afleið-
ingarnar breytilegar. Þegar nú af-
leiðingar þeirar orsaka, sent vér
þekkjum, verða aðrar en vér bjugg
umst við, söikum nýrra orsaka, sem
vér verðum ekki varir, stöndum vér
agndofa og hrópum: “Kraftaverk!”
Og tileinkum viðburðina orsök, sem
er enn óskiljanlegri en allar hinar,
sem vér vitum einhver deili á í um-
ihverfi voru. Aliheimsheildin er ætíð
reglubundin. Þar getur ekkert verið
í ólagi. Að vér erum svo gerðir
að kenna þjáninga, veldur umkvört-
unum vorum undan skipulagi nátt-
úrunnar. Náttúran fer sínu fram í
ö!!u, hvort sem oss fellur betur eða
ver. Jarðskjálftar, eldgos, flóð, og
drepsóttir og hallæri, eru eins eðlilega
sjálfsögð fyrirbrigði, eins og flóð
og fjara, fall þungra hluta, æði
stormsins, steypiregn og allt hið
margvislega, sem vér lofum og veg-
sömum forsjónina fyrir.
Að undrast yfir reglubundnu skipu
lagi alheimsins, er að undrast yfir
að vissar orsakir ráði vissum af-
leiðingum. Að blöskrást yfir því,
sem oss virðist ruglingur og ósam-
ræmi í náttúrunni, er að gleyma or-
sökum, sem fram hjá oss fara eða
vér skiljum ekki, en sem engu að
síður koma í bága við það, sem vér
áttum von á, að mundi ske. Hrifn-
ing af tilveru hlutanna bendir á, að
vér stöndum steini lostnir yfir tilvist
sjálfra vor. Það sem einum þykir
gott, þykir öðrum illt. Þeim sem
“vondir” eru, finnst það gott og
blessað, sem kemur öllu á ringul-
reið; hins vegar finnst þeim allt
vera að fara í hundana, þegar þeir
koma ekki ár sinni fyrir borð.
Gerum vér nú ráð fyrir, að guð
sé höfundur náttúrunnar, ætti enginn
ruglingur (frá voru sjónarmiði) að
geta átt sér stað innan vébanda henn-
ar. Hann mundi hafa búið svo um
hnútana, að allt færi eftir hans ei-
lífa vísdómsfulla vilja. Breytti hann
settum lögum eða sæi sig um hönd,
væri hann ekki lengur ómbreytanleg-
ur. Sé alheimslögmálið sterkasta
sönnunin fyrir tilveru almáttugs og
algóðs guðs, verður það að reynast
sjálfu sér samkvæmt í hvívetna, ann-
ars hljótum vér að efast um að hann
sé til; eða að minnsta kosti mætti
bregða honum um kviklyndi,, van-
mátt, óforsjálni og grunrihyggni, sem
lýsa sér í verlkum hans. Vér hefð-
um þá rétt til að áfellast vilja hans
og starf. En sanni röð og reglu-
búndið skipulag náttúrunnar, vald
hans og vísdóm, ætti hitt, sem aflaga
fer, að sanna vanmátt hans og ósam
kvæmni og fákænsku. Þér segið að
guð sé alstaðar; að hann fylli rúmið:
að án hans væri ekkert til; að efnið
gæit ekki starfað án aflgjafar hans.
En um leið viðurkennið þér að guð
sé höfundur alls þess, er yður finnst
miður fara; að það sé hann, sem
veldur uppnámi í ríki náttúrunnar
og lífi mannanna; að hann sé faðir
ófullkomleikans; að hann búi í mann-
irtum; að hann stýri huga og hönd
mannsins, þegar hann synd'gar. Sé
guð alstaðar nálægur, er hann í mér,
starfar með mér, hleypur í gönur með
mér, og er í verki með mér, þegar
eg breyti á móti vilja hans. Ö, þér
guðfræðinigar! Þér skiljið aldrei
sjálfa yður þegar þér talið um guð.
* * *
Til þess að kallast viti bornar ver-
ur, verðum vér að hugsa, velja og
áforma. Ekkert af þessu gerum vér
án hinna ýmsu ltífæra vorra; og
líffærin útheimta líkama; enda fá-
um vér engu orkað í hinu efniskennda
unlhverfi voru án líkamans. Hann
er os nauðsynlegur til þess að reyna
bæði blítt og strítt. Það er því auð-
sætt, að sú vera, sem er aðeins andi,
getur ekki verið viti borin, né mót-
tækileg fyrir áhrif náttúrunnar. —
Guðdómleg vizka, vilji og áform,
segið þér, á ekkert sammerkt við
Iþessa ■ eiginleika mannsins. Þess þá
heldur; því þegar svo er komið,
hvernig fá þá mennirnir dæmt um
Iþessa eiginleika guðdómsins? Slíkt
væri að dænta unt, dá og tilbiðja
eitthvað það, sem vér höfum enga
minnstu hugmynd urn. Að falla í
auðmýkt fyrir djúpsæi guðdómlegrar
vizku, er ekki slikt að falla frant
fyrir það, setn ligigur utan takmarka
dómgreindar vorrar ? Að dást að guð
dómlegttm fyrirætlunum, er ekki slíkt
með öllu að ástæðulausu? Aðdáun er
dóttir fávizkunnar. Menn dá það eitt
og dýrka, sem þeir botna ekkert i.
* * *
Allir þessir eiginleikar, sem guði
eru tileinkaðir, fá ek'ki samrýmst
veru, sem í eðli sínu er gerólík mann
inum. Að sönnu leitast guðfræðing-
arnir við að gera hér samariburð,
með því að margfalda eiginleika
mannsins, og eigna þá svo guðdóm-
inum, og þrengja þeim upp á hann,
en eftir það vaða þeir í villu og reyk.
Hver er svo útkoman á þessu sant -
bandi guðs og manns •— þesari guð-
mennsku? Öfgar sem leiða menn-
ina t gönur, svipur er dofnar og deyr
fyrir ljósi sannleikans.
1 kvæði sínu um Paradís segir
Dante frá þvi, að guðdómurinn hafi
birzt sér undir þremur ljósbauigum,
er slógu litum sínum hver á annan i
undursamlegri regnbogadýrð ;en þegar
skáldið hafði horft á drottinn um
stund, til að festa ásjónu hans í minni
sér, sá hann aðeins sitt eigið andlit.
Þegar maðurinn tilbiður gttð, tilbiður
hann sjálfan siig.
* ¥ ¥
Aðeins stundar íhugun nægir til
þess að sannfæra oss um, að manneðl
ið, dyggðir þess og fullkomnun, geta
ekki samrýmst guðdóminum; þar eð
þetta er algerlega komið undir skap-
ferli voru og umhveríi. Hefir guð
skapferli líkt og vér1? Dyggðir vor-
ar eru fólgnar í framkomu vorri
ga'gnvart þeim, sem umgangast oss
og vér höfum eittíhvað saman við að
sælda. Eftir yðar eigin sögusögn
er guð einstæð vera. Hann á engan
sinn lika; umgengst ekki aðra; er
upp á engan kontinn; og býr í al-
sælu, er ekkert fær truflað. Þetta
er kenning yðar; og þér hljótið því
að játa, að guð er gersneyddur því,
sem vér köllum dyggðir; qg um leið,
að dyggðir vorar snerta hann ekki
að neinu leyti.
¥ ¥ ¥
Maðurinn stærir sig af eigin ágæti
sinu, og ímyndar sér að guð hafi
skapað alheiminn, sín vegna. Hvað
liggur til grundvallar fyrir þessum
sjál fslþótta hans? Oss er svarað:
Maðurinn er sú eina sköpuð vera, sem
gædd er skynsemi til að þekkja guð
og þjóna honum. Vér erum fullviss
aðir um að guð hafi skapað heiminn
sjálfum sér til dýrðar, og manninn
til þess að dýrka hann og vegsama
verk hans. En hafi þetta verið á-
form hans, hefir honum þá ekki mis-
tekist herfilega?
1. Eftir yðar rökfærslu að dæma,
verður manninum aldrei að eilífu
mögulegt að þekkja skapara sinn.
2. Sú vera, sem ihvergi á sinn líka,
verður aldrei gerð dýrðlegri en hún
er. Enginn öðlast dýrð fyrir annað
en samanburð á sínu eigin ágæti og
annara.
3. Sé guð alsæll og sjálfum sér
nógur, hví þarfnast hann hlýðni og
hollustu vesælla manna?
4. Sköpunarverkið eykur engu við
dýrð drottins. Þvert á móti. Ö51
trúarbrögð veraldarinnar sýna oss,
hversu mennirnir styggja guð sinn
ár og síð og alla tíð; og aðal mark-
mið þeirra (trúarbragðanna) er að
koma syndugum, vanþakklátum, mót-
þróafullum mannskepnum í sátt við
hinn marg-móðgaða og si-reiða guð
þeirra. ,
Frh.
-----------X----------
Andlegt líf á Íslandi.
Arið 1880 var afhjúpaður í Mos'kva
minnisvarði skáldsins Pusjkins. “Fé-
lag vina rússneskra bókmennta” stofn
aði við þetta tækifæri til Pusjkins há..
tíðaihalda, sem stóðu í þrjá daga.
Yrnsir af snjöllustu rithöfundum
Rússa lýstu skilningi sínum og að -
dáun á skáldinu í vönduðum fyrir-
lestrum. Siðasta daginn talaði Dos-
tojevsky. 1 djúplhugsaðri ræðu, sem
er jafnfrábær að skarplegri íhugun
og heitri hrifningu, lýsti hann land-
námi Pusjkins í rússneákum bók-
menntum og vék að lokum að þvi
víðfeðmi rússnesks mannvits og
hjartalags, sem átt hefði einn sinn
glæsilegasta fulltrúa, þar sem hann
var.
Ræða þessi vakti óhemju fögnuð.
N. N. Strakhof, einn af beztu vinum
Dostojewsky, og höfundur að merkis
ritgerð um hann, hefir lýst viðtök-
um áheyrenda. Framan af ræðunni
var eins og menn héldu niðri í sér
andanum, svo hljótt var í salnum.
Menn 'hlustuðu eins og ekkert hefði
áður verið um Pusjkin sagt, — þang
að til hinn fyrsti stormur ákafs lófa-
taks glumdi í salnum. En eftir það
var eins og áheyrendur gætu engin
bönd á sig laigt og gæfu sig fögnuði
sínum algerlega á vald. Þeir höfðu
fyrir sér mann, sem var gagntekinn
af hrifningu, og þessi maður tjáði
þeim skilning, sem hlaut að vekja
heita ,gleði. Enginn, sem var ekki
viðstaddur, getur gert sér hugmynd
um það uppnám, sem í salnum varð
eftir lok ræðunnar. Það var bókstaf-
lega gert áhlap á pallinn, þar sem
ræðumenn sátu. Unglingur einn, er
komst alla leið að Dostojewsky, féll
í yfirlið. Menn föðmuðu og kysstu
Dostojewsiky.”
Vér íslendingar eigum engra slíkra
atburða að minnast, hvorki úr bók-
mennta- né stjórnmálasögu vorri. Að
vísu höfum vér engan Dostojewsky
átt. En þó að vér eignuðumst stór-
skáld, sem væri jafnoki hans og flytti
ihverja ræðuna á fætur annari, ful’
ar guðmóðs og andagiftar, um fyrir-
rennara stna í íslenzkum bókmennt-
um, þá er það yíst, að það mundi
ekki eiga fyrir honum að li’ggja, að
kveikja slíkt bál algleymisfagnaðar
i brjóstum áheyrenda sinna.
Islenzk hrifning hefir aldrei ver-
ið voldugt og ofsafengið fyrirbrigði.
Vér erum yfirleitt ekki auðsnortnir,
ekki öngeðja, eigum lítið af næmu
og hlýju ástríðuríiki. Langur, sólar-
lítill, næðingssamur vetur í' fámenni
og deyfð hefir sett mark sitt á Skap-
Iyndið. Oss vantar það fjör, þær
öfgar í blóðið, sem þær þjóðir eru
gæddar, sem lifa við löng og heit
sumur í igróðurríkum, ilmandi lönd-
um, við alla þá örvan og magnanr
sem fylgir fjölmenni.
Islendingum er gjarnt að láta sér
fátt um finnast, þeir eru þungir i
vöfum, tómlátir og seinteknir. Fögn-
uður þeirra kemst sjaldan á það stig,
að heita hrifning. Þeir þola þjóða
bezt áfengiskraft fegurðar og and-
ríkis, án þess að þiðni í lund þeirra
til muna. Þeir gleðjast með hægð'
og í hófi. Þar við bætist að gleði
þeirra er orðfá og Iætur lítt á sér
bera.
Skáld vor hafa oft fundið til kulÆ
ans í íslenzku lundarfari.
“Ölukkinn má yrkja lengur;
enginn til þess finnur drengur
og þó miklu minnur fljóð.”
Svo orti Jónas Hallgrímsson skömmts
fyrir andlátið.
“Af eigin hvötum yrki eg Ijóð
en ekki fyrir heimska þjóð
með þunnt og iskalt þorskablóð.”
Svo orti Jóhann Gunnar Si|;urðsson..
II.
Einhver lesenda minna kann að*
svara þessum hugleiðingum mínunt
með því, að bókmenntir vorar séu
mi'klu fátæklegri og tillþrifaminni ert
bókmenntir stódþjóðanna, að engin'
von sé til þess, að Islendingar geti
unnað skáldum sinum á sama hátt
og aðrar þjóðir láta hrífast af miklu
volduigri og stórfenglegri öndum.
I þessu er nokkur sannleikur, eir
hann hnekkir í engu ummælum min-
um um íslenzkt dauflyndi og kald-
lyndi. Það má sanna það með ljósum
og fullgildum dæmum, að Islendingar
eru til þess óhæfari en aðrar læsar-
þjóðir, að njóta fagurar bókmennta.
Einar H. Kvaran hafði sagt frá
því í blaðagrein fyrir möngum árum,
að Birni Jónssyni hafi borist aðvör-
unarbréf frá vinum “Isafoldar” þeg-
ar ,hún birti smásöguna “Litlí
Hvammur, — þeim fannst hann vera
að stofna orðstír blaðsins í hættu,
með því að flytja slíkan “skáldskap”.
E. H. K. sagði, að Islendingar hefðir
ekki hætt að “fyrirgefa sér” að hano
“setti saman stuttar sögur”, fyr en
Georg Brandes sagði um “Vonir” að
sagan væri perla.
24 ára gamall skrifaði Guðmundur
Kamban sjónleikinn “Höddu Pöddu”
Dönum fannst mikið til um verkið-
— Islendingum ekki. “Isafold” birtí
1914 fjölmarga dóma um leikinn, eft-
ir menntaða rifihöfunda, og þeir erit
allir skrifaðir af þeiri ástúð og þeirri
innilegu gleði, sem fallegt skáldverk
vekur menntuðum manni. Það værr
ekki hægt að birta svipað safn af
islenzkum ummælum um verkið.
Meðal þeirra, sem rituðu unt
“Höddu Pöddu” var Georg Brandes.
Dómur hans er svo eftirtektarverður
fyrir oss Islendinga, að eg vil til-
færa úr honum fáar línur:
“Verkið stendur og fellur með
Hrafnhildi, það er, það stendur með
henni. I henni sameinast fornöld og
nútíð Islands. Hún er fyrst alger-
lega nútíðarkona, hlýrri, innilegrir
kvenlega ástríkari en nokkur fornald-
arkona úr sögunum. Hún er eintónr
hugulsemi og auðsveipni; hún er við
kvæm og hún er blíð, og þó ekkt
lingerð. En innst inni er hún stór-
lát og jafnslkjótt og þessu stórlætf
fyrst er haggað, svo misboðið, þegar
kveneðli hennar er ein sálarangist,
sem stórlæti hennar hylur yfir, þá
kemur undireins í ljós, að hún á ky»
sitt að rekja til hinna þrekmiklu,
ofsfengnu fornkvenná. Ofsinn er
orðinn að áformum, stórlætið er
orðið að festu, þrekið er óbugað og
sama. Hún leikur sér að lífi og!
dauða, eins og hinar fræknu fyrir
þúsund árum. Hún horfist á við
dauðann án þess að depla augum, og
Ihtón er, þrátt fyrir alla igæzku sína,
allt sitt næmlyndi, alla sína unaðs-
ríku ást til gamalla og lítilmótlegra,
til smælingja og fátæklinga, til dýra
og jurta, dýpst í eðli sínu heiðin.....
Svo djúpt sálríkt kveneðli, svo ó-
sveigjandi karlmannskjarkur, hefir
tæplega fyr sést sameinað á leiksviði.”'
Þannig ritar gáfaðasti og mennt-
aðasti bókmenntafræðingur heimsins
á sinni tíð um íslenzkt skáldverk, serrr
ekki verður séð að hafi vakið neinn