Heimskringla


Heimskringla - 19.12.1928, Qupperneq 7

Heimskringla - 19.12.1928, Qupperneq 7
WINNIPEG, 19. DES., 1928 HE1M8KRINCLA 7. BLADSIÐA Melchett lávarður um framtíð atvinnumálanna Atvinnumál ýmsra landa eru nú í mesta öngþveiti. Bretar eru t. d. wjög áhyggjufullir út af iönaöi sin- um og búnaði. Atvinnuleysi eykst og iönaðurinn stenst illa samkeppni yiÖ ýmsar aörar þjóöir. Þing og stjórnir valda varla viöfangsefnum og þau lenda í rneira eöa minna fánýtu flokkaþrefi. Samt telja niargir, að tönaöarmálin séu nú að komast inn a nýja og betri braut í Bretlandi og t>akka þaö fyrst og fremst forgöngu ^ins af helztu iöjuhöldum þjóöarinn- ar, Melchett lávarði, sem hét Alfred Mond áöur en hann var aölaöur nú nýlega. Melchett lávaröur er löngu kunnur ^nt atvinnurekandi og stjórnmála- maÖur (f. 23. okt. 1868. Hann var Irosinn á þing 1906, af frjálslynda uokknum, og var í ráöuneyti Lloyd ^orges 1916 og heilbrigðismálaráö- herra 1921. Hann féll 1923, en var kosinn annarsstaöar árið eftir. I ársbyrjun 1926 varð hann viðskila við frjálslynda flokkinn vegna bún- aðarmálastefnu Lloyd George. Hann hefir skrifað allmargt, m. a. nýlega athyiglisveröa bók um atvinnumál og stjórnmál. Það var hann, sem í desember í fyrra bauð sambandi verkamannafél- aganna að koma á allsherjarráðstefnu við sig og ýmsa aðra atvinnurekend- ur, til þess að ræða vandræði atvinnu málanna. Þessu boði var tekið. Samninganefndin hefir nú þegar skil- að nokkrum álitum, en heldur störfum sínum áfram og síðasti allsherjarfund ur verkamanna, sem haldinn var í Swansea, félst á gerðir og stefnu samninganefndarinnar. Melchett lávarður hefir nýlega verið á ferð í Ameríku og flutti þá m. a. 9 þ. m. fyrirlestur við Harvard háskóla urn þessi efni. Hann mint- ist fyrst á sögu ensks iðnaðar og verkamannafélaga, hvernig þeim hefði á ýmsan hátt verið haldið niðri, svo að þau hafi espast til andstöðu gegn þjóðfélaginu og svo orðið úr öllu margvíslegir árekstrar og erjur, atvinnulífinu til mesta rneins. Nú eru í iðnfélögunum 5 milj. manna, en þeim hefir fækkað siðan 1920. Það má ekki svo til ganga, ef vel á að fara, að einlægt sé alið á óvild- inni og fjandskapnum milli vinnu- veitenda og vinnuþiggjenda. Sam- vinna þeirra er báðum hagur. Að þeirri samvinnu á nefndin, sem fyr getur, að vinna. Nú þegar hefir orðið samkomulag um það, að koma skuli á fót allsherjar iðnráði, með frjálsu samkomulagi beggja aðilja, og skipuðu fulltrúum þeirra beggja. Þetta ráð á að vera sáttasemjari og á einnig að rannsaka iðnmálin og leiðbeina um þau og vera á verði gagnvart öllu því, sem valdið gæti á- greiningi og reyna að jafna það. Menn vænta sér hins bezta af þessu. En þetta er ekki nema upphafið eitt, sagði Melchett i fyrirlestri sín- um. Verkamenn eiga að fá kost á ágóðahluttim í fyrirtækjum sínum, svo að hver maður finni að hann á sinn þátt í fyrirtækinu, gengi þess eða halla, finni til sjálfstæðis síns, en ekki þess eins, að hann sé ósjálf- stæður og fjandsamlegur fyrirtækinu. Vísindaleg vinnubrögð og starfsað- ferðir á að. rannsaka og konta skipu- lagi á framleiðsluna í stórum stíl, því dagar smáfyrirtækjanna eru tald- ir. Framleiðslan á að komast í vís- indaleg kerfi, í þess stað að hvert smáfyrirtæki fær að eiga með sig sjálft af handahófi. Erfiði er erfðahlutskifti mannkyns- ins, sagði lávarðurinn að lokum. Allir þurfa að vinna, annars fer allt í hundana. Framleiðslumálin snú- ast ekki einungis um fljótfenginn gróða einstaklinganna, en um alþjóðarhag og alþjóðarábyrgð. Framleiðslan og atvinnulífið allt getur ekki veitt alþjóð þessa þjónustu meðan allt logar í ófriði. Allsherjarverkfall- ið 1926 sannfærði flesta um bölvun borgarastyrjaklarinnar i atvinnumál- ntn. Nýr tími er í nánd. Það er of oft sagt, að ekki megi' breyta mann legu eðli. Það er hægt — hægt að breyta því í áttina frá fjandskapnum til samstarfsins fyrir betra lífi og bættum kjörum. því. Það er verið að —Lögrétta. Capital Coal Co.Ltd- Phones: 24512 — 24151 Wholesale and Retail ALLAN, KILLAM AMcKAY BLDG. 364 Main Street THE Best Grade Canadian and American COAL Elgin Lump ............... $12.00 Elgin Stove ..........*...... $10.50 Elgin Nut.................... $ 9.50 Ford and Solvay Coke ....... $15.50 Dominionj Lump .............. $ 7.00 Black Gem Lump ............. $11.00 Black Gem Stove ............. $10.00 WE WANT YOUR ORDER Þessum skóla hefir lánast það sem hann er að gera Með hverju ári fjölgar þeim háskóla- og miðskölastúdentunum, sem innritast í þennan mikla skóla. Margir þeirra koma frá öðrum fylkjum en Manitoba, svo sem British Columbia, Alberta, Saskatchewan, Ontario, North Dakota og Minnesota. Meiri hluti þeirra, sem ganga á verzlunarskóla í Winnipeg, ganga í Success skólann, vegna þess að vorir stúdentar verða betur hæfir fyrir viðskiftalífið, bæði hvað snert- ir mentun og persónulega framkomu. Einnig vegna vistráðninga skrifstofu vorrar, því frá henni fá 1,500 félög í nágrenninu, skrifstofufólk sitt. Þeim sem útskrifast af honum lánast líka það sem þeir gera i ^ENGUSH DFPAR.TMi.NT c ~*ONE OF OUR. £IÖHT SHORTHAHD JZOOtf?c COXÞ7OtlETFR &-MACHWE CAICUIATING DEPARTNSNTZ 'SPEED DlCTATíON, SH0RTHAHD DEPAR.TMERT r Nýttkenslu tímabil • Innritist snemma J byrjar Miðvikudaginn 2. Janúar Ef þér getið ekki innritast strax, þá getið þér gert það hvenær sem er. Vér lítum persónulega eftir hverjum stúdent og sjáum urn að hann byrji á upphafi hverrar námsgreinar. Gestir eru oss kærkomnir •, ^ Skrifstofa vor verður opin á hverjum degi milli jóla og nýárs Koimið tímanlega svo þér getið byrjað 2. janúar. Skrifstofu tími: Jólavikuna: A daginn—9 f.h. til 6 e.h. A kveldin—Mánudaga og fimtudaga frá kl. 7.30 til 10 SÍMIÐ OG BIÐJIÐ UM UPPLÝSINGAR L. accreditfd BY Dagskóli og Kvöldskóli COR. PORTAGE AVE, and EDMONTON ST. Að norðan verðu við Portage Ave. Miðja vegu milli Eaton og Hudson Bay búðanna Sími 25 843 eða 25 844

x

Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.