Heimskringla - 06.02.1929, Page 1
Ágætustu nýtízku Utunar og fatahr«ln«-
unarstofa í Kanada. Verk unnlS á. 1 degl.
ELLICE AVE., and SIMCOE STR.
Winnipeff —Man.
Dept. H.
FATALITUN OG HIIEINSUN
■Uiec At®. and Simcoe Str.
Slxnl 37244 — tvær llnur
Hattar hreiiu*a»ir og endurnýjatllr.
Betri hreinann jafnódýr.
XLIII. ÁRGANGUR
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 6. FEBR. 1929
i
NÚMER 19
>
sosososooocoosocooscoecososeooeooosoooeooosoeosoceoosQ^
FRETTI R
Cí
||
1
KAN A DA
Mikið umtal hefir það vakið hér
í Manitoba, að Brackenstjórnin hef-
ir skipað konunglega rannsóknar-
nefnd til þess að rannsaka hvort á
rökum sé bygigð ákæra F. G. Taylor
hersis, leiðtoga konservatíva í Man-
itoba, á hendur Brackenstjórninni,
uin að Winnipeg Electric félagið hafi
haft áhrif á hana á ýmsan hátt í
Sjö-systra máfinu, t. d. greitt um
$50,000 í kosningasjóð stjórnarinn-'
ar, o. fl. —
Nefndina skipa þrír: Macdonald
háyfirdómarj; Dysart dómari, og
Kilgour dómari.
Stjórnin hefix með f)yikisráðsitil-
■skipun takmarkað ransóknina við
fimm atriði:
1) Gerði Bracken forsætisráðherra
eða stjórnin “óheiðarlega” (corrupt)
samninga, eða skifti við Winnipeg
Electric félagið með tilliti til Sjö-
systra fossanna?
2> Samþykkti Mr. Bracken eða
stjórnin, að “láta Winnipeg Electric
félagið hafa Sjö-systra orkuverið,
gegn trilagi í kosningasjóð Brack-
enstjórnarinnar 1927?
Lagði félagið $50,000 í kosninga
sjóð Brackenstjórnarinnar i kosn-
ingunum 1927?
4) Lagði félagið nokkuð í kosn-
íngasjóð Brackenstjórnarinnar, sem
viðurkenningu fyrir loforði, að fá
orkuverið?
Hvað lagði félagið mikið í kosn- |
ingasjóð hvers stjórnmálaflokks í
kosningunum 1927, eða um j>að leyti?
* * *
rétt fyrir þingið, að ransókn væri
tafarlaust nauðsynleig eftir, að vera
búin að draga ransóknina í marga
mánuði. Þá væri og það eitt at-
riði, að Taylor hersi væri gert afar |
erfitt fyrir með því, að ransóknin
væri hafin á þessum tírna, þar eð |
hann væri leiðtogi stjórnarandstæð-
inga í þinginu og yrði því nauðsyn-
lega að geta fylgst með öllu er þar
færi fram.—
Strax er nefndin settist á rökstóla
á mánudagsmorguninn, gekk Sulli-
van hersir fyrir nefndina, fyrir hönd
Taylors hersis, og baðst leyfis að
mega reifa málið að nokkru, áður en
formlega væri gengið til ransókna.
Fékk hann hljóð, þrátt fyrir mót-
mæli Mr. Pitblado. — Tók hann
fram hið sama og Mr. Phillips, og
kvað Mr. Taylor alráðinn í því, að
heimta þingransóknarnefnd skipaða,
með fyllsta ransóknarvaldi, því þessi
rannsókn virtist honuni eigi annað en
kattarþvottur. Væri þá hálfbros-
legt að sja tvær ransóknarnefndir
sitja á rökstólum hvora á móti ann-
aii við Broadway.—
En sérstaklega lagði hann áherzlu
á það, fyrir hönd Mr. Taylor, að
stjórnin hefði með tilskipan sinni
rnarkað nefndinni allt of þröngt
rannsóknarsvið. Vildi hann því
fara fram á það, að þessum liðum
væri bætt við tilskipanina um rann-
sóknina.
f) að rannsaka allar kringumstæð-
ur er leiddu til, standa í sambandi
viö, eða leitt hafa af málaleitunum
viðvíkjandi samningnum og því, að
Manitobastjórnin tók aftur leyfis-
beiðni sína að virkja Sjö-systra foss-
ana.
TILVERAN
Skáldin lofa einatt herrann háa,
Himin, jörð og allt, sem skapað fær.
Andinn svífur út í geiminn bláa;
Undra stærð og veldi hugann slær.
Himintunglin hratt, á segul-eyki,
Hendast, eins og fúglar væru' á leik,
Fyrir mætti, er sem fysum feyki,
Fram og aftur, þrotalaust á reik.
Þvílíkt veldi vilja allir tigna; ^ u
Von og ótti sífellt stríðast á.
Jafnvel hinar stærstu sálir svigna,
Sjatni þeirra lífsins bára smá.
FjTir guðum menn á knjánum krjúpa,
Kyrja bænir upp í himininn.
Fegnir vilja færa lotning djúpa
Fyrir þetta líf og arfinn sinn.
En má ég spyrja þig, sem þetta háa,
þarft í auðmýkt hjarta þíns að dá:
Hver er sá, sem gaf hið ljóta og lága,
Lífsins þrótt er einatt farga má?
Hver er sá, sem inn í garðinn góða,
Grandleysingjum sendi höggorminn?
Hver er sá, sem heróp stórra þjóða
Heyrði á, en bauð ei kærleik sinn?
í>að er afl, sem öllum vorum högum
Inn á sínar vissu brautir hratt.
Gjörvöll skepnan fylgir föstum lögum;
Forlög henni eðli þeirra batt.
Það er hvorki gott né vont sem veldur;
Vitið sjálft er fyrirbrigði smátt.
Jöfnum höndum þjóna ís og eldur.
Orkan skilur vart sinn eigin mátt.
Eigin smæð vor ávallt hugann villir;
Af því stóra mikilleikann svarf;
Guði sínum hátt í hæðir tyllir.
Hokra má hann þar, við lítinn arf.
Ótti manna fyrir feigð og hrapi
Fyllir hugann von og k?erleiks-trú.
Finnst þeim lífið tilgang sínum tapi
Tryggist ekki vonarhylling sú.
Gæti nokkur smiður, alvídd utar,
Ahrif sín í hverja frtjnyv leitt,
Án þess fyrst að vera heild hvers hlutar?
Hvernig mætti slíkri orku beitt?
Þeim, sem nokkuð inn í grómið grillir,
Guðinn litli, sem við áttum, hvarf.
Guðlegt efni allan geiminn fyllir;
Eðli þess er líf og sífellt starf.
P. B.
Á mánudaginn settist nefndin á
rökstóla til þess að hlusta á mála-
færslumenn aðilja. Þarf varla að
taka það fram að þeim lenti þagar
saman. Isaac Pitblado, K.C., mála-
færslumaður stjórnarinnar, kvað
rannsóknarnefndina eigi hafa verið
skipaða fyrri, sökutn heilsubrests for-
•KBtisríiðheran?, Mr. Bracken. Væri
nauðsynlegt að komast fyrir hið
sanna í þessu máli nú, áður en þing
tæki til starfa, svo stjórnin sæti eigi
þingið undir slíku ámæli ef annars
væri kostur.
J. A. Andrews K. C., málafærslu
rnaður Winnipeg Electric félagsins,
kvað skjólstæðinga sína vera fúsa
ti! þess að segja af létta allt er þeir
vissu. Samt sent áður vildi hann
mótmæla því, að yfirskoðunarmenn
væru settir til þess að “krafla” í
viðskiftabókum félagsins. He’fði
það lofað vissu blaði að yfirfara
bækurnar, og hefði það að því er
virtist, ekkert fundið þar athugavert.
Félagið neitaði að hlíta yfirskoðun,
«n myndi leggja fram þær bækur og
skilríki, er nefndin áliti nauðsynlegt.
0
Hugh Phillipps, K. C., málafærsht
Taylors hersis, kvað sjálfsagt að
gefa rannsóknarnefndinni sem ó-
bundnastar hendur, og Mr. Taylór
allt færi á að færa sönnur á ásak-
anir sínar, en það væri vitanlega
ekki áhlaupaverk, þar sem, ef satt
væri, þá hefði auðvitað verið farið
með þetta af hinni mestu leynd. Einn
ig hefði stjórnin átt að skipa rann-
sóknarnefndina fyrir mörgum mán
uðum síðan, ef henni væri svo umhug
að um að allur sannleikurinn kæmi
í Ijós, en væri ekki aðeins að gera
þetta til þess að þvo hendur sínar
kattarþvotti rétt áður en fylkisþing
kæmi saman. Þætti mörgum brosleg
þessi uppgötvun stjórnarinnar svona
g) var nokkru fé eða nokkurri
verðmætri þóknun lofað, í nokkuru
Bracken flokkssjóð, eða nokkrum
Manitobafylkisþinigtnanni, eða nokk-
urri manneskju, annaðhvort af fél-
aginu sjálfu, eða einhverjum, sem
hafði áhrif á, eða getað hefði haft
áhrif á málalok eða gerð nefnds
samnings, eða á það, að Manitoba-
stjórnin tók aftitr nefnda umsókn
sína? —
Þetta er fyrsti liðurinn í þeirri
kröfu eða ósk Mr. Taylors, er Sulli-
van hersir flutti rannsóknarnefnd-
inni.
Hinir eru þessir:
2> Að rannsóknarnefndin kalli þau
vitni, og heimti þau skjöl og skilríki,
er málafærslumaður Mr. Taylors
kunni að krefjast og í þeirri röð, er
hann æskir.
3) Að Taylor hersir, er ákærurnar
hefir fram borið, n^gi stýra rann-
sókninni til þess að færa sönnur á
ákærur sínar.
v
4) Að naitðsynleg hlé verði leyfð
á rannsókninni, og að öðru leyti létt
undir með' málafærslumönnutn Mr.
Taylor, að kalla öll þau nauðsynleg
vitni fyrir nefndina, er nú kunni að
finnast, þau, er utanfylkis eru, hver
sem séu, eða nauðsynlegt- kunni að
þykja áð leita til, síðar í rannsókn-
inni.
5) Að Taylor hersi verði leyft aji
tilnefna löggilta yfirskoðunarmenn og
stjórninni leyft að tilnefna aðra lög-
gilta yfirskoðunarmenn, enda greiði
stjórnin laun beggja, og skulu hinir
tilnefndu yfirskoðunarmenn, er rann
sóknarnefndin hefir staðfest tilnefn-
'nSu þeirra, yfirskoða og rannsaka
allar bækur, ávísanir og skjö), er
Taylor hersir, eða stjórnin kann að
æskja, og að þessir yfirskoðunar-
ntenn skuli tafarlaust yfirskoða og
rannsaka bækur, ávísanir og skjöl
Winnipeg Electric félagsins oig úti-
búsfélaga þess, sambandsfélaga og
samningsbundinna félaga, viðskifta-
félaga eða einstaklinga, er annað-
hvort stjórnin eða Taylor hersir
kann að æskja, og samþykkt verður
af rannsóknarnefndinni.
6) Að nefndin geri rannsóknarhlé,
og kalli engin vitni fyr en þessi yf-
irskoðun og rannsókn er á enda svo
bæði stjórnin og Taylor hersir láti
sér vel líka.
71 Að stjórnin sjá Taylor hersi
fyrir lögfræðislegum ráðunaut, er
hann sjálfttr tilnefni með sönnt kjör-
um og stjórnin hefir tekið sér lög-
fræðislegan ráðunaut sem verjanda.
* *
Þegar nefndin settist aftur á rök-
stóla á þriðjudagsmorguninn, til-
kynnti McDonald háyfirdómari, að
nefndin neitaði að verða við nokkr-
um lið í kröfu eða ósk Taylors hers-
is. Viðvíkjandi ósk hans um að
ntega stýra rannsókninni, sagði nefnd
arforseti:
“Tavlor hersir hefir rétt til þess
að leitast við að sanna ákærur sínar
með öllum gögnum er hann getur
fram fært. En nefndin vill ekki
afsala sér réttindum sínum til þess
að stýra sinni eigin rannsókn.” 1
Eins og sjá má af þvi, sem að
ofan er sagt, var Mr. Taylor neitað
um vfirskoðunina, en nefndin ætlar
að heimta þær bækur af félaginu,
er henni þykir nauðsynlegar. Enda
segir lögmaður félagsins í þessu
máli, að það muni berjast gegn því
til æðsta dómstóls að nokkrir yfir-
skoðendur fari að “krafla” í bók-
um þeirra.
Snemma mánaðarins var sú fregn
borin út frá Toronto, að Alberta-
stjórnin, með Brownlee forsætisráð-
herra í broddi fylkinigar, væri því
hlynnt, að innflytjendur frá Mið-
Evrópu skyldu lokaðir úti frá Kana-
da, og hefði bundist þar að lútandi
samningum við ríkisstjórnina í Ot-
tawa.
Jafnskjótt og Mr. Brownlee varð
áskynja um þessa fregn, mótmælti
hann henni opinberlega, og kvað
hana algerlega tilhæfalausa. Kvað
hann átylluna myndu vera þá, að í
haust hefði atvinnuráðuneyti fylkis-
ins, og einnig umboðsmenn Ottawa-
stjórnarinnar grennslast eftir því,
hve mikinn vinnukraft frá ýmsum
löndum landbúnaðurinn í Alberta
hefði þörf fyrir næstu ár. Hefði
þá komið í ljós, að svo rnikið væri
fyrir af ver+camönnum frá Mið-
Evrópu, er atvinnulitlir eða atvinnu-
lausir stæðu, að ályktað hefði verið
að bezt myndi að flytja ekki fleiri
inn í fylkið, fyr en búið væri að
koma fyrir öllum þeim, er járnbrautar
félpgin fluttu inn í fvrra.
Eins og spáð var fór svo að síðasti
mánuður varð kaklasti janúarmán.,
er koniið hefir í Winnipeg síðan 1912.
Var meðalhiti hvers sólarhrings nú
—ÍO.HF. (—23.4°C.) en 1912 var
meðalhiti sólarhringsins í janúar
—11.5°F. (—24.2° C.>. Janúannmán
uður 1907 var þó heldur kaldari; með
alhiti þá —11.8° F. (—24.3°C.). Kald
asti dagur nú var 13. janúar, og
mestur kuldi þá — 29.8°F. (—34.3°
C). Víðat hefir verið kaldara
vesturundan og eins austur í On-
tariohæðum. Snjófall nam 4.9
þml. allan mánuðinn, en 152 sóLkins
stundir voru Winnipegbúum gefnar
eða nær 5 klukkustundir (4 klst. 54
rnínJ á dag að jafnaði, og er það
engin smáræðis uppbót á kuldanum.
Misjafnlega kátleg sjón þótti bann
mönnum og andbanningum í Detroit
það, fvrra fimmtudag, er fljótið var
j orðið lagt sex þuml. þykkum ís landa
j á milli, að undanskildum 100 feta
breiðum ál í miðju, að vínsmyglarar
frá Kanada notuðu tækifærið og
þustu yfir ísinn með ógrynni af öli
og brennivíni. Var þessu á ýms-
an hátt komið yfir álinn ýmist á
kænurn eða þá á smábílum, er fluttir
voru yfir álinn á bátum, er sleða-
meiðar höfðu verið negldir undir, og
gekk þetta i loftköstum landa á milli.
Detroitmegin biðu stóreflis húsgagna
flutningsvagnar, er igleyptu í sig allt
hafurtask er handan yfir kom og
'rurfu svo upp í borgina. Eins og
nærri rná geta fóru smyglararnir ekk
ert leynt með þetta, og er sagt að
mörg hundruð manna hafi staðið á
báðum fljótsbökkum, að horfa á þessa
ókeypis skemtun.
----------x---------
BRETAVELDI
Játvarður prins af Wales, brást á
það ráð, síðustu daga janúarmánað-
ar, hvað sem aðrir hafa kunnað að
ráða honum, að sjá með eigin aug-
um ástandið í kolanámuhéruðunum,
þar sem atvinnuleysið og neyðin hafa
verið voðalegust. Var hann þrjá
daga í ferðinni, fór þar um„ utan
dyra og innan, er honum sýndist, og
er svo að sjá af fréttunum frá Eng-
landi, að hann hafi verið sem steini
lostinn af undrun og hryllirngu.
Furðar sig víst enginn á því, nema
þeir, sem ómögulega hafa viljað
horfast í augu við ástandið þar,
hverju sem gegndi. —
Sagt er, að prinsinn muni hafa
æskt eftir viðtali við ráðuneytið, þá
er hann kom aftur til Lundúna úr
ferðinni, með það fyrir augum, að
á einhvern hátt yrði reynt að hefjast
handa til þess að ráða varanlega bót
á þessu sífellda hörmungarástandi.
Fylgir það fregninni, að ýmsum harð
soðnustu námaeigendunu^n þyki
þrinsinn full afskiftasamur, oig telji
hann enda munu hneigjast meira eða
minna háskalega í jafnaðarmennsku-
áttina.
Fullyrt er, að brezka þingiðpnuni
nú loksins afráða, að láta grafa járn
brautargöng undir Ermarsund, til
þess að komast í beint járnbrautar-
samband við meginlandið. Hefir
auðvitað alltaf verið hin mesta nauð
syn á þessu, og verkleg vandkvæði
etigin sérleg, enda til þess hugsað
fyrir fjörutíu árum síðan. En það
hefir aldrei náð fram að ganga fyrir
herfræðingum brezkunr, er þóttust
sjá voðann búinn, — þótt enigir
hugsandi menn sæu hann — ef þessi
göng yrðu grafin. En nú er úti
um hina “ljómandi einangrun’’ Bret
lands frá umheiminum, síðan flug-
vélarnar og loftskipin miklu komu
til sögunnar, svo að nú munu þeir
herfróðu ekki treystast lengur til
þess að hamla þessu nauðsynjamáli.
ÝMSAR FRJETTIR
Sjúkdómur Konungs
Heilsufar konungs er mjög við
hið sama. Er hann enn afar magn-
lítill, svo að læknar hans hafa gef-
ið út tilkynningu þess efnis, að
eigi sé hann enn kominn i fullan aft-
urbata, þótt aö vísu miði heldúr á-
fram en aftur á bak. Mun kon-
unigur verða fluttur til sjávar í þess
ari viku eða hinni næstu, ef ekkert
sérstakt kemur fyrir.
Inflúenzupest geisar nú í Evrópu,
að því er siðustu fregnir herma, og
er sagt, að þúsundir manna hafi hrúg
Frumherjar
(Framhald)
MATTHtAS JOCHUMSSON
Hann Mátthías minn — og Matt-
hías þinn engu síður, að ég vona.
Fáir munu þeir Islendingar, sem
ekkert gott hafa af honum hlotið,
enda fáir átt meiri vinsældum að
fagna.
Hann þjáðist með þeim er þrautir
liðu og á tungu hans láu alltaf ein-
hver hughreystingarorð, sem léttu
öðrum lífsbyrðarnar. Hann var
mesta bjart§ýnis-skáld vorrar þung-
lyndu þjóðar, en guðstfúin var hans
gæfusmiður. Þess vegna megnaði
hann að bera svo marga gleðiigeisla
inn í muna manna.
Um heilan mannsaldur var hann
höfuðprestur Islendinga. Undantekn
ingarlítið eru öll hans beztu ljóð
sálmar, þ. e. a. s. tilbeiðslu og lof-
gerðarljóð til lífsins og alverunnar,
og sem klerkur kvað hann bezt.
Hann er ef til vill mesti trúmaður-
inn, er nokkru sinni hefir á Fróni
fæðst.
Kannske þið haldið að þetta sé
geip eða glamuryrði. Látum okkur
sjá, hvað er trúin? Er það sjálft
sinnuleysið, sem hagvenur hugan
við tjóðurband erfðakenninganna, en
útilokar andann frá allri aðgæzlu í
veröld veruleikans ? Ber það, að
hinu leitinu, vott Um trúleysi að
vilja leita að fegurri og fullkomnari
guðsvitund en þeirri, sem kverið
kennir? Þér er auðvitað frjálst að
fallast á hið fyrra; en hvernig í ó-
sköpunum geturðu þá búist við því
að aðrir fáist til að trúa nokkru
öðru en því, sem þeim var í æsku
kennt? Það ætti þá að vera þarf-
laust að senda trúboða út í heiðin
lönd.
Ef íslendingar ræða um trúmenn
eru þeir Hallgrímur Pétursson og
Jón Vídalín oftast tilnefndir. Eng-
um dettur í hug að neita þvi, að þeir
hafi verið trúmenn á sína vísu, en
það verður æfinlega að taka nokkurt
tillit til aldarfarsins, ef sanngjam-
lega á að dæma um mennina eða
málefnin.
Hvað gat skapað trúar efasemd-
ir i huga þeirra Hallgríms og Jóns?
Hin hvasseygða, skarpskyggna gagn
rýni var þá ekki kotnin til sögunnar.
Þá var engin bibliukrítik kennd í
skólunum, og allir féllust á kenni-
setningar kirkjunnar, sem hina einu
réttu útskýringu á hinu innbláspa
orði guðs. Andstæðar lífsskoðanir
höfðu aldrei barist unt völdin í brjóst
um þeirra. Hlutverk þeirra var að
blása nýjum lífsanda í beinagrind
gömlu guðfræðinnar, af yfirburðum
anda Síns.
Öðru ntáli var að gegna með Matt
hías. Hann hlaut sitt andlega upp-
eldi i andrúmslofti frihyggjunnar.
Vísindin höfðu kippt öllum stoðúm
undan bókstafstrú Miðaldanna.
Jörðiti var nú ekki framar miðstöð
alheimsins né eina áhyggjuefni skap
arans. Hún var aðeins sem lítil-
fjörlegt duftkorn i lmattasveimi him
ingeimsins. En þetta hnattkorn átti
sér langa sögu. Mvndunarsaga
jarðarinnar náði yfir margar miljón-
ir ára, en ekki sex daga, eins og
kirkjufeðurnir kenndu. (Steinkol
skapast af gömlum jurtaleifum, sem
þorna og þéttast af fargi jarðlagann
er ofan á þær leggjast, en í kolalög-
unum hafa stundum fundist heilar
jurtir og tré. I Kanada eru ein-
stöku kolanámur 14,570 fet á þykkt
(Frh. á 5. bls.)
ast niður í London og París. Væg
kvað veikin vera, og er þetta sjálf-
sagt sama inflúenzubylgjan, er geng-
ið hefir hér um Ameríku frá vestri
til austurs, í haust og vetur, komin
austur yfir Atlanzhaf.