Heimskringla - 19.06.1929, Page 1
XLIII. ÁHGANGUR
WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 19. JÚNÍ, 1929
NÚMER 38
| FRÉTTIR |
SwcCOOSOSOOSSOOSCCCOSOCCíSOaWOSOOMOSMOMOMOOOOÖSCÍ
KANADA.
Sambandsþinginu í OttaNva var
slitiö á föstudajg'inn var. Hermir
simfregn þaöan, aö viö töluveröan
óröleika hafi orðiö vart í þinginu,
undir þingslit, út af því hvað konia
myndi á daginn til næsta þings í sam
bandi við hækkun tollmúrsins um
Bandarfkin. Vildu conservativar
gjalda Randaríkjunum í sömu mynt,
fylgismenn stjórnarinnar ekki að-
hyllast það, þótt margir þeirra vilji
ekki láta Kanadastjórn sitja aðgerð-
arlausa. Mun stjórnin og þing-
flokkur hennar helzt hafa í huga að
leita markaðar annarsstaðar en í
Bandaríkjunum fiyrir kanadiskar af-
urðir, heldur en að gjalda í sömu
vnynt, þótt þeir finni sér íþyngt með
tollhækkuninni syðra, og þá til dæm-
is huigsa til þess á næsta þingi að
veita Bretlandi enn meiri tollívilnun
hér í Kanada, og greiða þannig götu
kanadiskra framleiðenda á Bret-
landi.
Nokkur orðrómur komst á um
«itt skeið um einhverjar breytingar
á ráðuneytinu, en ekki er talið, að
taka beri mark á þeim. Er sagt að
ýmsir þingmenn hafi lagt til að eigi
skyldi leysa upp þingið til nýrra
kosninga fyr en 1931, sökum þess,
að þá fyrst yrði auðið að sjá hver
áhrif tollhækkunin syðra hefir á
verzlunarviöskifti Kanada og Banda
rikjanna.
Frá Ottta'wa var símað 13. þ. m.,
að öldungaráðið hefði í fjórða sinn
fellt frumvarpið er neðri málstofan
hefði samþykkt um breytingu á
hegningarlög'unum, á þeim greinum
þeirra, er fjalla um landráð, og sam-
þykktar voru eftir Winnipeg-jverk-
fallið 1919. Var frumvarpið fellt
með 16 atkvæðum gegn 13, og greiddu
þeir F. L. Beique (lib.) og J. G.
Turriff (framsókn.) atkvæði með
conservatívum, er hafa fellt allar
breytingar á þessari löggjöf síðan
þ«r voru fyrst bornar fram á þing-
inu 1926.
Frá Regina var símað 11. þ. m.,
að conservatívar byggjust við að
taka stjörntauma fylkisins í sínar
hendur, að því er þeir hefðu opin-
berlega skýrt frá, að loknum alls-
herjar flokksfundi conservatíva í
Sask., er haldinn var í Regina þann
dag. Var þar einnig skýrt frá því
að hinir tíu þingmenn óháðra og
framsóknarmanna, er náð hefðu
kosningu, hefðu látið conservatíva
flokkinn á sér skilja, að þeir myndu
fúsir til þess að styðja hann að
völdum, ef conservatívar vildu lofa
því, að vinna sameiginlega með
þeim að því að þetta þrennt feng-
ist:
1. ) fullgilt loforð um að koma á
endurbótum um embættaskipanir inn-
an fylkisins.
2. ) Að hver flokkur fengi að
halda óháður sérstefnu sinni og sér-
cinkenntim.
3. ) Algert frjálsræði í alríkispóli-
tík.
Var einnig tilkynnt að þingmenn
conservatíva hefðu gengið að þess-
um skilmálum og að dr. J. T. M.
Anderson væri til þess kjörinn af
conservatívum, að takast á hendur
fotiystuna í fyrirhugaðri samvinnu
þessara þriggja þingflokka.
•Veðráttn hefir undanfarið verið
rnjög óstöðug víðast í Kanada;
SKÍfst á mildir kuldar og megnir
hitar. Aðíaranótt fyrra miðviku-
dags kom eitt hið mesta frost, er
komið hefir hér í fylkinu í júní og
fraus mjög v'tða til skaðskemmda,
sérstaklega í matjurta og blómgörð-
um. Nú um helgina var aftur á
móti mjög heitt. Á sunnudag'inn
voru 94° F. í skugga hér í Winni-
peg, og var þá hvergi heitara í
Norður Ameriku, nema í Emerson,
Man.; þar voru 96°.
Frá Regina var símað á sunnu-
dagÍHii, að Gardiner forsætisráð-
herra hefði afráðið að segja ekki af
sér, heldur bíða dóms á þingi, er
kallað verður saman hið bráðasta.
Heldur hann áfram að vera leiðtogi
liberala flokksins í Sask. Var þetta
allt samþykkt á allsherjarflokksfundi
Iiberala í Sask., er haldinn var á
Iaugardaginn.
Marga furðar á því að Mr. Gar-
diner skuli hafa brugðist á þetta ráð,
þar sem nokkurnveginn fullvíst er.
að því er önnur fregn hér í blaðinu
hermir, að bæði óháðir fylkisþing
menn og framsóknarmenn ætli sér
að styrkja leiðtoga conservatíva, dr.
J. T. M. Anderson, á rnóti stjórn-
inni, sem þá hlýtur að verða í all-
tniklum minnihluta.
Cyril W. Agnew, er kærður var
fyrir að hafa myrt Mrs. Elizabeth
McLean, er fannst myrt allsnakin.
hálsbrotin, handleggsbrotin og hroða
lega útleikin á annan hátt, á skrif-
stofu hans í “Canada-”byggingunni í
vetur, eftir að hafa setið þar að
drykkju með honum lengi næt-
ur, eins og þá var skýrt hér frá,
var á föstudaginn sýknaður ;á kvið-
dómi, er virðist hafa tekið gilda
sögusöign Agnews um það, að hún
hefði dottið ofan stiga í bygging-
unni, eftir að hafa sjálf rifið af sér
fötin, hann síðan borið hana upp, og
hún svarað honum einhverju er hann
yrti á hana; hann síðan sofnað, og
fundið hana dauða á gólfinu, dottna
úr stólnum, er hann hefði sett hana
í.
Frá Edmonton, Alta., var símað í
fyrradag, að dr. J. T. M. Anderson,
leiðtagi conservatíva í Sask., sem
þar var þá staddur, hefði sagt að
sér kæmi ekkert á óvart ákvörðun
Mf. Gardiners, að þrjózkast við að
segja af sér, þótt hann vel vissi, að
hann verður í algerðum minnihluta,
er til þings kemur. Væri það í
samræmi við aðferðir liberala i
Sask. Hvað hann stjórnina ejkki
myndi komast langt fram i þingtim-
ann, þar sem hún skipar aðeins 26
þingsæti, en á móti þeim eru con-
servatívar með 25; einn óháður con-
servativ og níu óháðir og framsókn-
armenn, er allir hafa lofað conserva-
tívum stuðning.
En nú féllu bæði þingforsetinn og
varaforsetinn, svo að fyrsta vefk
stjórnarinnar, er hún kemur á þing
verður að reyna að fá þessa em-
bættismenn þingsins kosna úr minni-
hluta, og kvað dr. Anderson það i
meira lagi broslegt hvernig Mr.
Gardiner hugsaði sér að fá því fram
gengt, þar sem hann hefði sjö at-
kvæða meirihluta á móti sér i þing
inu, að minnsta kosti, þótt hann ynni
í báðum kjördæmunum, þar sem kosn
ingar hafa enn eigi farið fratn.
BANDARIKIN
Fulltrúadeild ríkisþingsins sam-
þykkti með 265 atkvæðum gegn 147,
um mánaðamótin, “endurskoðunar”-
frumvarp tolllaganna, er hækkar
toll á því nær öllum matvörum, á
flestum persónulegum nauðsynjavör-
um og á mörgum helztu byggingar-
efnum.
Mrs. Mabel Walker Willebrandt,
sagði um mánaðamót af sér aðstoðar
dómsmálaráðherra embættinu, er hún
hefir gegnt siðan i tíð Coolidge, og
verður lögfræðisráðunautur “The
Áviation Corporation.”—
I ræðu, er Hoover forseti hélt um
mánaðamótin, skoraði hann opinber-
iega á allar þjóðir, að koma í upp-
fyllingu þeirri “háleitu von,” er
íeldist i Kellog-Briand samningun-
utn, um að takmarka allan vígbún
að svo að hann yrði miðaður við
varnir eingöngu.
Hefir Stimson ríkisráðherra bent
á það, í santbandi við þessa áskorun
forsetans, hvílíka afskaplega
byrði sjóveldin bindi sér á herðar
með vígflotum sínum, og tekur til
dæmis, að jafnvel eitt 10,000 tonna
beitiskip aðeins, af nýjustu gerð.
kosti meira en helmingi meira, en
t.emur stofnkostnaði hins mikla
bókasafns ríkisþingsins, og að áætl-
unarkostnaður við nýjar vígskipa-
byggingar, sem heimilaðar hafi ver-
ið nenii $1,170,8090,000.
Frá Windsor, Ont., er símað 15.
þ. m., að svo langt sé frá því, að
vinemygglar sunnan við stórvötnin
ætli að láta sér segjast, af ráðstöf-
unum þeim, er Heimskringla gat um
siðast að Seymour Lokvman aðstoð-
arfiármálaráðherra hefði gjert til
þess að koma í veg fyrir vínsmygl-
uti yfir Erie-vatnið, að þeir vseru
sent óðast að búa smyglbáta sína
með Lewis vélabyssum.
Annars hefir lengi verið mikil
óánægja mjög vtða í Bandaríkjun-
um. og símagnast, tyfir því hversu
ósleitilega smyglverðirnir í Bandr.-
rtkjunum inntu af hendi gæzluna.
Hafa þeir hvað eftir annað drepið
alsaldausa menn, er þeir hafa grun-
að um vínsmyglun, og engar bæt-
ur komið fyrir, ef menn hafa eigi gáð
að stanza nógu fljótt. Var þann-
ig drepinn til dæmis vel þekktur
borgari í Niagara Falls, Jacob Han-
son í fyrra, og voru lötggæzlutnenn
sýknaðir af drápinu. Nýlega var
dtepinn á sama hátt James Kendrick,
seytján ára gamall námsmaður við
Emory og Henry College, er var á
bílíerð að kveldlagi með tveim
vinum sínum. Var hann skotinn í
þeirri nálægð, að kúlan, sem drap
hann fór i gegnum stálvarða aftur-
súð bílsins, gegnum höfuð Ken-
ctricks og gegnum vindhlífina fram-
f.n á bilnum. Eru ættingjar Ken-
dricks vel fjáðir og mikils metnir
og ætla að sækja málið til hins ítr-
asta, til bóta. Hafa og námsfél-
agar hans sent Byrd ríkisstjóra
(bróðir Byrd pólfara) áskorun um
að hefja rannsókn í málinu.
Enfremur skaut E. J. White,
banngæzlumaður, til bana Henry
nokkurn Virkula, sætindasala frá
Big Falls, Minn., á laugardaginn
var, og þykir það ganga morði
næst, enda hefir handtökuskipan
verið gefin út á hendur White, og
verður mál hans tekið fyrir 2. júli.
* * *
Einn af þingmönnum fulltrúadeild
ar ríkisþingsins í Washington, La
Guardia, nafnkunnur mælsku og at-
kvæðamaður, þrumaði nýlega í þing
inu hin öflugustu mótmæli gegn lög-
leysuathæfi víngæzlulögreglunnar.
Minntist hann á síðustu manndráp-
in í Detroit og Minnesota; minnti
þingtnenn á það, að árið sem leið
hefði víngæzlulögreglan skotið ti!
bana 254 menn, og komst meðal ann
ars svo að orði um eitt þetta mann-
dráp er hann hafði lýst: “Eg stað-
hæfi það, að þetta framferði stjórn-
arvaldanna, að gera út þessa lög-
gæzlumenn, er myrða saklaust fólk;
að drepa mann ,sem er á heimleið.
með fjölskyldu sína, þar á meðal tvö
börn, er ekki til þess að glæða ást
manna á stjórninni.
Blóð og eymd þessara fjölskyldna
kemur yfir höfuð þessara óhæfu,
svívirðilegu laga, sem þér getið ekki
trúað á i hjarta yðar.”
Viðskifti Bandaríkjanna við Rúss-
land hafa aukist um helming síðast-
liðið ár. ’ Hefir American Russian,
Chamber of Commerce stofnað til
k 1
Rússlandsferðar sendinefndar amer-
ískra viðskiftahölda í sutnar, og er
áætlað, að þeir dvelji mánuð á Rúss
landi. Eru fleiri amerískir við-
skiftahöldar að snúast á þá skoðun
að stjórnin eigi sem fyrst að viöur-
kenna opitíberlega Sovjetstjórnina.
Rússneska stjórnin hefir gert
samning við Henry Ford um að selja
htnni bila fyrir $30,000,000 á næstu
árum. Hefir Ford einnig sam-
þykkt að reisa verksmiðju í Nizhni
Novgorod á bökkum Volgu, er fram
leiða skal 100,000 bíla og dráttar-
bíla á ári. Ætlar Sovjetstjórnin í
tilefni af þesum samningum, að veita
$150,000,000 til veigagerða, en vegir
hafa að þessu verið í mjög lélegu
sjandi á Rússlandi.
BRETAVELDI
Frá London er simað 12. þ. m.,
að konungur hafi samkvæmt tilskip-
an, samþykktri í ríkisráði, aftur tek
ið í sinar hendur öll sín opinberu
störf, er hann lét af hendi þá er
hann var sem mest veikur í vetur.
Er mikill fögnuður um allt ríkið í
þessu tilefni, þar eð þetta er sönnur.
þess, að ígerðin, er tekið hafði sig
upp um daginn, er af læknum hans
talin algerlega hættulaus.
Frá London er símað 17. þ. m.,
að Charles G. Dafwes, sendiherra
Bandaríkjanna hafi um helgina farið
til Skotlands til samtals við forsætis
ráðherra Bretlands, Rt. Hon. Ram-
say MacDonald til þes sað þeir
gætu orðið ásáttir um sameitginlegan
grundvöll til þess að byggja á samn
inga um það, að Bretland og Banda
rikin, og þá önnur stórveldi minnki
við sig flotabúnað.
Fregn frá Skotlandi hermir að
þeir forsætisráðherrann og sendiherra
hafi talast við í hérumbil klukkutima.
Tilkynnti forsætisráðlherra síðan
blaðamönnum, að þeir hefðu komið
sér saman um samningsgrundvöll, og
myndu þeir gera helztu atriði hans
hvor á sínum stað, nú í vikunni.
Vildu þeir báðir taka það fram, að
þeir ætluðust til þess að önnur flota
veldi tækju þátt í samningstilraunun-
um, er af þessu samtali leiddi, en
undir því að þær tilraunir heppnuð-
ust yrði heimsfriðurinn að miklu
leyti kominn.
Fregnin hermir að menn geri sér
miklar vonir, beggja megin hafsins
unt það, að eitthvað verulegt muni
leiða af þessum samningstilraunum.
Frá London er símað 17. þ. m., að
látist hafi á sunnudaginn fyrverandi
yfirhershöfðingi Hjálpræðishersins,
Branjwell Booth, 73 ára að aldri.
Hafði hann verið veikur síðan í
fyrravor og segir fréttin að honum
hafi síversnað síðan hann var sett-
ur af embætti í vetur, sem Heims-
kringla hefir áður skýrt frá. Bram-
well Booth tók við yfirstjórn Hjálp-
ræðishersins fyrir 16 árum síðan,
við lát föður síns William Booth,
er hafði þá verið hans hægri hönd
í 30 ár.
| Þingsályktunartillaga Burtness
Samþykkt í Fulltrúadeildinni
Washington, 11. júní — Full-
trúadeildin samþykkti í dag
þingsályktunartillögui, er fram
bar O. B. Burtness þingmaður
frá Norður Dakota, er heimilar
forsetanum að tilnefna fulltrúa
frá Bandaríkjunum til fslands.
til þess að sitja þúsund ára af-
mælishátíð stofnunar löggjaf-
arþings á íslandi. Ýmsar smá-
breytingar voru geir'ðar, hin
helzta sú, að kostnaður fari
ekki fram úr $55,000... Mr.
Burtness tilkynnti að hann
myndi gera sitt ítrasta til þess
að öldungaráðið afgreiddi þetta
hamingjusamlega fyGr þing-
slit.
* * *
Fregrt þessi barst Heimskringlu í
fyrradajg jafnsnemma frá Guðmundi
Grímsson dómara, og séra H. Sigmar,
fyrir hönd J. K. Ólafsson, Dakotarík-
isþingmanns. Hafði Mr. Burtness
sent þeim og fleirunt skeyti sam-
hljóða þesari blaðafregn. Mun öll-
um þykja að Mr. Burtness hafi
giftusamlega tekist, og eru miklar
vonir til þess að tillagan strandi
ekki i öldungaráðinu né annarsstaðar
úr þessu.
ÞÝZKALAND
Eftir tíu ára þjark og þrek hafa
Þjóðverjar loks komist að borgunar-
skilmálum, er þeir geta þolanlega
rnað, við Bandamenn. Er það að
þakka Bandaríkjamanninum, Owen D.
Yountg, er sýnt hefir við það frábæra
lipurð. Eiga Þjóðverjar að greiða
2,050,000,000 gullmörk á ári (um
$492,000,000) í 37 ár. En þannig
á að skifta borguninni yfir 59 ár;
fyrsta árið 1,685,000,000 gullmörk
(um $404,400,000L Síðan smáhækk-
andi árlega upp í 2,200,000,000 mörk
(um $528,000,000). Eftir 37. árið
fer afborgunin niður i 1,700,000,000
ntörk (um $408,000,000) og helzt
svo, unz lokið er greiðslunni á 59
árum. Munar þetta um $1,000,000,-
000 frá þeirri upphæð, er Bandamenn
vildu áður minnsta þiggja af Þjóð-
verj um.
Frá Islandi.
Fossafl í Arnarfirði
Svo sem kunnugt er hefir hr. Páll
Torfason unnið að því um margra
ára skeið, að koma í framkvæmd
virkjun fossa í Arnarfirði, sumpart
til þes að vinna þar áburðarefni úr
loftinu og verðmæt efni úr sjó, og
suinpart til þes sað útvega kaupstöð-
utn og sveitum á Vestfjörðum ódýrt
raftnagn, til ljósa, hitunar o. fl.
Vatnsorkan þar vestra er afarmiki!
og aðstaða öll svo góð til virkjun-
ar, að hvergi mun betri á Islandi,
samkvæmt áætlunum þeirn,, er igerðar
hafa verið af erlendum verkfræðing-
um.
Til þess að koma þessu máli í fram
kvæmd hefir hr. P. T. fengið útlend
inga í lið með sér og stofnað félög
til þess að virkja fossana, og hefir
Alþingi veitt félögum þessum einka-
leyfi til virkjunar. En ýmissa or-
saka vegna hafa félögin engu komið
í framkvæmd af fyrirætlunum sín-
um, en nú er svo komið, að Páll
Torfason hefir einn umráð yfir öllu
fossaafli þar eystra, sem er þinglýst
eign hans. Er liann nú horfinn frá
samvinnu við erlend tilstofnunarfél-
ög, en hefir boðið Alþingi að fá því
í hendur umráð fossanna, gegn sér-
stökum skilyrðum, og væntir hann
þess, ef Alþingi veitir þessari gjöf
hans viðtöku, að þá muni skriður
komast á virkjun fossanna þar eystra,
og muni það verða landinu í heild
sinni til ómetanlegs gagns, en þó
einkanlega ibúum Vestfjarða, sem
gefast mun kostur á miklu ódýrara
rafmagni, en þekst hefir hér á
landi áður. Hann gerir ráð fyr-
ir, að vinna tnegi með fossaafli þessu
feiknamikinn loftáburð til útflutn-
ings, auk þess sem séð verði fyrir
þörfum islenzks Jandbúnaðar, hvað
slíkan áburð snertir, fyrir lægra verð
en nú er kostur á. Jafnvel gefins.
Reykjavík, 9. maí.
Víða um land mun hafa orðið
meiri eða minni fjárskaðar í of-
viðrinu mikla um helgina. Vita
menn þó ekki glögt um það enn,
hve mikil bröigð hafa þar að orðið,
vegna þess að fé var víðast hvar kom
ið á afrétt.
Úr Borgarfirði hafði frézt um
talsverða fjárskaða i framsveitun-
um. Mjorgunblaðið átti tal við
sýslumanninn í Borgarnesi í gær og
var hann þá nýlega kominn úr ferða
lagi ofan úr Norðurárdal. — Kvaðst
hann ekki hafa spurt til fjárskaða
neins staðar, en á ýmsum bæjum
væru margar kindur enn ófundnar,
og væri von utn að þær myndu koma
'eftirnar síðar. Uln fjárskaða í
neðanverðu Borgarfjarðarhéraði og
á Mýrum væri ekki að tala, því að
þar hefði alltaf verið auð jörð, og
veðriö varla það hart, að það hefði
hrakið fé í vötn eða ár.
Mbrgunblaðið átti tal við Jón
(Framh. á 8. bls.)
HIÐ 7. ÁRSÞING HINS SAMEINAÐA KIRKJUFJELAGS
----verður haldið að-----
RIVERTON 28. JÚNf — 1. JÚLf
og hefst í kirkju Sambandssafnaðar í Riverton kl. 2 e. h.
Föstudaginn 28. jání.
Fulltrúar eru beðnir að leggja kapp á að vera komnir
þegar fvrir þingsetningu.
Séra Benjamín Kristjánsson flytur erindi að kveldi
föstudagsins kl. 8.30.
Laugardaginn 29. Júní gerir Samband Kvenfélaganna
ráð fyrir að halda sinn árlega fulltrúafund, o>g að kveldi þess dags
flytur Miss Björg Peterson erindi kl. 8.30.
Eftir hádegi á laugardaginn sækja kirkjuþingsfulltrúar
og gestir heimboð til Arborgar.
Sunnudaginn 30. júní verður hin nýja kirkja safnaðarins
í Riverton vigð kl. 2. e. h.
Að aflokinni vígsluathöfninni býður söfnuðurinn kirkju-
gestum til samsætis i samkomuhúsi bæjarins.
A mánudaginn 1. júlí verður lokið við þingstörf og efnt
til almennrar skemtisantkomu um kveldið.
Winnipeg, 14. júní, 1929.
RAGNAR E. KVARAN.