Heimskringla - 02.10.1929, Síða 7
WINNIPEG, 2. OKTÓBER, 1929
HEIMSKRINGLA
7. BLlAÐSÍÐA
Störf Höffdings hafa einkum verið J andi meðan verið er að sigrast á
Skólasetning
Á miðvikudaginn í fyrri viku
(18. þ. m.) fór fram skrásetning nem-
enda í Jóns Bjarnasonar skóla. Inn-
rituðust þann dag 26 nemendur, og
er það stærri hópur en nokkurntíma
áður hefir komist á skrá skólans
fyrsta daginn.
Næsta morgun var skólinn settur
með venjulegri guðræknisathöfn, á-
samt ræðum, er ýmsir fluttu.
Þar var kominn, eftir boði skóla-
stjóra, Prof. L. W. Moench, kennari
við St. Paul Luther College, i St.
Paul, Minn. Sökum heilsubrests
hefir hann fengið fjarveruleyfi frá
embætti sínu um eins árs tíma, og
býst við að eiga heima í Winnipeg
meðan svo stendur á, og vinna lífs-
ábyrgðarstarf fyrir The Lutheran
Brótherhood. Hann hefir sterka trú
á kirkjuskólunum og sýnir þá trú í
verki með þvi, að senda son sinn í
skóla vorn, þegar hingað kemur. Hann
ávarpaði skólann og aðra saman-
komna með alvöruþrunginni og nyt-
samri ræðu. Lagði hann sterka á-
'herzlu á það, sem mestu varðar í lifi
manna, kristindóminn.
Næst talaði hr. Sveinbjörn Ölafs-
son. Var hann sérstaklega kærkom-
inn gestur. Hann er einn af fyrver-
andi nemendum skólans, — fór síðan
til Valparaiso University i Indiana-
riki, útskrifaðist þaðan B. A., og hef-
ir síðan stundað guðfræðanám við
Garret Biblical Institute i Northwest-
ern University í Evanston, í Illinois-
riki. Er hann að búa sig undir
prestsstöðu i Meþódistakirkjunni i
Bandarikjunum. Hefir hann lokið
tveggja ára námi af þremur og tekur
nú að sér prestakall í norðurhluta
Minnesotaríkis um eins árs skeið, áður
en hann hverfur aftur að skólanum
og lýkur námi. Sveinbjörn hefir
unnið sig áfram á menntabrautinni
með stökum dugnaði og er sjálfum
sér og öálum, sem að honum standa,
til sóma í hvjvetna. Hann var stadd
ur í bænum er samkoma vor stóð, og
kom, eins og fleiri hefðu mátt koma,
af tryggð til skólans og löngun til
að vera við, þegar skólinn tæki til
starfa á ný. — Skólastjórinn greip
tækifærið og bað hann að ávarpa skól-
ann. Þáð gerði hann með glöðu
geði og talaði af einlægum hlýleik
um nytsemi þá, sem hann hafði haft
af skólanum. Talaði hann margt upp
örfandi til nemenda og gagnlegt.
Benti þeim á alvöruna, sem þyrfti að
vera í starfi nemendans og starfi
prestsins.—Guð leiði þenna unga
mann og blessi.
Hr. Sigurður Melsted, gjaldkeri
skólans og meðlimur stjórnarráðs
líans, var þar einnig viðstaddur og
ávarpaði skólann lipurt og fallega.
Flutti hann honum hugheilar árnað-
aróskir skólaráðsins á þessu nýbyrj-
aða starfsári.
Bæði yfirkennari, Miss Salome Hall
dórsson, og skólastjóri, séra Rúnólfur
Marteinsson, ávörpuðu nemendur,
buðu þá velkomna og fluttu þeim
nauðsynlegar ráðleggingar og leið-
beiningar.
Eitt hið allra ánægjulegasta, er 1
skeði við skólasetning þessa, var hrað
skeyti það, er hér fer á eftir, frá séra
Carli J. Olson í Wynyard. Barst
það skólastjóra í hendur, meðan sung
inn var fyrsti sálmurinn. Var það
öllum viðstöddum fagnaðarefni, Séra
Carl er, eins og kunnugt ex, einn af
meðlimum skólaráðsins. Hann hefir
sterka sannfæring fyrir þörf skól-
ans.
Wynyard, Sask., Sept. 18, 1929.
Jóp Bjarnason Academy,
c-o Rev. R. Marteinsson,
652 Home St., Winnipeg, Man.
“This is to wish the faculty and
students high success during the year,
and God’s richest blessings. The
mission of the school is the loftiest,
its opportunities boundless, and the
necessity for it paramount. Nothing
on this earth is so great as a truly
educated Christian life. Heartiest
greetings.—Carl J. Olson.”
Með þessu er þá 17. starfsár skól-
ans liafið. Skipið er levst úr höfn.
Má ég vænta þess, að mikill hluti
Vestur-íslendinga óski þvi fararheilla?
Sérstaklega vil ég mælast til þess, að
menn sýni kærleika sinn í verki með
því að senda skólanum þá nemendur,
sem ekki geta gert betur annarsstað-
ar.
R. M.
Minningabók
Haralds Hoffdings
Verðmœti lífsins og vonin uvi
ódauðleikan
Harald Höfding var um eitt skeið
sá erlendur fræðimaður, sem hvað
mest áhrif hafði á íslenzka mennta-
menn. Ýmsir þeirra, sem nám stund
uðu við Hafnarháskóla, hafa verið
lærisveinar hans, og ýms höfuðrit
hans eru hér nokkuð kunn. Höff-
ding er nú háaldraður (fæddur L.
marz, 1843) og hættur kennslustörf-
um og lifir kyrlátu lífi í heiðursbú-
stað sínum. Hann kvæntist öðru
sinni þegar hann var 81 árs. Síðasta
bók, sem frá honum hefir komið eru
endurminningai» hans (Erindringer),
stór bók og læsileg fyrir þá, sem
kynnast vilja manninum og kenn-
ingum hans, einkum ef þeir eru áður
kunnugir helztu ritum hans.
fólgin í ritmennsku hans og kennslu.
Höfuðrit hans eru sálarfræði, sem
komið hefir út tíu sinnum, Siðfræði,
sem komið hefir út fimm sinnum,
Trúarheimspeki sem komið hefir út
þrisvar og vakið einna mesta athygli
af ritum hans út um heim, og bók
Um hugsun mannsins. Hann hefir
einnig skrifað Sögu hinnar nýju
heimspeki, sem mikið hefir verið lesin
og margt fleira (til dæmis Den store
Humor). Höffding segir i minn-
ingabók sinni, að háskólakennslan
hafi orðið sér til mikillar gæfu, þó
að hann hafi átt við ýmsa erfiðleika
að stríða sem ræðumaður. Vegna
háskólakennslunnar segist hann hafa
verið í stöðugu sambandi við ungt
fólk og hafi það verið sér til mikils-
gagns og mikillar gleði. Ritstörfin
komu Höffding í samband við ýmsa
fræðimenn víða um lönd, þeir heim-
sóttu hann eða hann þá, eða þeir
skrifuðust á. Heimspeki hans var
talsvert mikill gaumur gefinn út um
heim, hann var víða boðinn til fyrir-
lestrahalds, rit hans voru mikið þýdd,
hann varð heiðursdoktor á einum sex
stöðum og þjár doktorsritgerðit segj-
ist hann sjálfur þekkja, sem um sig
hafi verið skrifaðar — en hinsvegar
segist hann ekki ávalt þekkja sjálf-
an sig í þessum ritgerðum. Stundum
hefir Höffding einnig lent í all
snörpum deilum við samtíðarmenn
sína. Á sínum tíma var til dæmis
mjög umtöluð deila þeirra Höffdings
og Brandesar út af þýzka heimspek-
ingnum Nietzsche, sem Brandes varð
fyrstur til að vekja verulega athygli
á. Þeir hafa reyndar báðir sagt
svo í minningum sínum, að þessar
deilur hafi verið óþarflega harðorð-
ar og þeir voru að fullu sáttir fyrir
löngu, og Höffding er í sínum minn-
ingum (og áður reyndar í fyrirlestr-
um) kominn að þeirri niðurstöðu, að
þeir Brandes hafi báðir misskilið
Nietzsche, enda hafi ekki verið að-
gengilegt nema lítið eitt af ritum hans
þegar þeir deildu. Eg reyndi að
sýna fram á það, segir Höffding um
Nietzsche fyrirlestra sína 1902, að,
það sem mest hafði borið á frá bók-
menntasjónarmiði, kenningin um
drottnara og þrælasiðferðið, um tví-
veldiskenninguna í þjóðfélaginu og
fyrirlitningin fyrir múgnum, væri
alls ekki grurudvallaratriði í kenning-
um Nietzsches, heldur aukaatriði.
Af öðrum viðskiftum Höffdings
við samtíðarfræðimenn er hvað
skemtilegast að kynnast skoðunum
hans á Wililam James og Bergson.
Um heimspeki Bergsons hefir hann
skrifað vingjarnlegan bækling, en
andmælir ýmsu í kenningum hans.
Þeir James og Höffding urðu góðir
vinir og heimsótti Höffding hinn í
Ameríku. Fór vel á með þeim, þótt
ekki væru þeit einlægt sammála.
James var einn af merkustu sálar-
fræðingum síðari tíma og ágætismað-
ur. Ýmsar skrítnar smásögur segir
Höffding um samvistir sínar við suma
merka menn, sem hann kyntist. Einu
sinni þegar hann var á fræðimanna-
fundi í Ameríku var hann og fleiri
fundarmenn boðnir til fundarforset-
ans í Washington. En þar var ekki
aðrar hressingar að fá en appelsín-
ur og límonaði, en það þótti Þjóð-
verjum og Norðurlandabúum svo lé-
legt, að þeir fóru á eftir inn á öl-
knæpu til að hressa sig. Einn af
þeim var guðfræðingurinn Harnack
og hafði mörg heiðursmerki á brjóst-
inu. Hann hikaði við að fara inn á
knæpuna og bað félaga sína að doka
við meðan hann reitti af sér allar
orðurnar og stakk þeim í vasann og
settist svo að sumbli og gerðu allir
karlarnir sér glaðan dag og stríddu
hver öðrum.
I bókarlok segir Höffding, að menn
eigi hugsunum heimspekinganna meira
að þakka en menn geri sér hversdags-
lega grein fyrir, þó að áhrif heim-
spekinganna séu að mestu leyti óbein
áhrif. Hver maður á sína lífsspeki,
hvort sem hann veit af því eða ekki.
Enginn getur verið án þess, hvaða
trú eða vantrú sem hann aðhyllist,
að hafa einhverjar hugsanir, sem ráða
reynslu hans, stjórna athöfnum hans
°S eggja til nýrra. Það er í raun og
veru erfitt að lifa. I okkur og um-
hverfis okkur er margt svo þungt og
þrautakent, segir Höffding, og það
[er ekki unnt að vera sífellt syngj-
á því. En samt eru.önnur efni, en
þau beisku, í þeim drykk, sem lífið
skeinkir mönnum og ég lofa lífið af
því, að þeim hefir einnig verið
skeinkt fyrir mig. Þegar allt kemur
til alls er það styrkjandi drykkur,
sem okkur er réttur, einmitt vegna
þessarar samsetningar. En ef til
vill eru líka í drykknum efni, sem
við höfum enn ekki lært að greina.
Um sína persónulegu trú segir Höff-
ding það, að allar hugmyndir um
guði og aðra tilveru en þá, sem við
þekkjum af reynslunni, séu aðeins í-
myndir þeirrar vissu, að verðmætis-
uppsprettur (Værdikilder) tilverunn-
ar muni aldrei þorna. “Eg er ekki
einmana í þessari trú, en í innilegu
sambandi við allar alvarlegar qg inni-
legar sálir, þó að margar þeirra geti
ekki fundið kennisetningar sínar hjá
mér.” Höffding segist vel skilja
það að margur geti ekki hallað höfði |
sínu að öðru en hinum gömlu trú-
arhugmyndum. Vegirnir eru marg-
ir og einlægt sálarlíf á alltaf samúð
mína, og ég vek aldrei efann, segir
Höffding, nema það sé í heilaga þjón-
ustu sannleikans. “Það hefir ekki
vantað að ungir menn hafi komið
með nærgöngular áskoranir um það,
að ég hæfi ákafa árás á kirkju og
guðfræði.” En þann veg kveðst
Höffding ekki vilja fara, einmitt af
því, að hann trúi á persónuleikann,
á það, að hverjum einstaklingi eigi
að lærast það, á sóktratiska vísu, að
hugsa á eigin hönd. Samt 'bendir
ýmislegt á það, að áliti Höffdings,
að þörf sé á spámanni, sem geti kennt
okkur hugrekki og heiðarleik og ráð-
vendni í hugsunum okkar um lifið.
Höffding segist aldrei hafa talið
sjálfan sig neinn spámann, aðeins
vesalings kennara, og stór orð eru
hlægileg í lítilla manna munni. Hann
er nú gamall maður og segist bíða
næturinnar og hvíldarinnar. En
hann segist aldrei hafa fundið til
þarfa eða þráar eftir ódauðleika og
þykir ódauðleika trú nútímans, í
kirkjunni og utan hennar, fremur
þunnmeti. . Þá segist hann skilja
betur sýnir frumkristninnar um dóm
um heimsendi. Hann segir að sig
hafi heldur ekki langað til að sjá
aftur vini sína, sem á undan sér hafi
dáið. Um slíkan missi tjáir ekki
að sakast. Lífið er svona sorglegt.
Tjónið og tómleikinn verður ekki með
öðru bættur en starfi og ástundun
þess að komast lengra á leið. Eg
þakka lífinu fyrir það, segir Höff-
ding í bókarlok, að það hefir leyft
mér að starfa i þjónustu hugsunar-
ipnar.—Lögrétta.
Þak heimsins.
Rannsóknir Osborn’s og Andrews
um forneskju dýra og manna
Lögrétta hefir áður sagt nokkuð
frá hinum merku amerísku rannsókn-
um í Gobi í Asíu, sem orðið ’hafa til
þess að opinbera hina æfintýraleg-
ustu hluti um frumsögu dýralífsins í
forneskju jarðarinnar. Sá heitir
Roy Chapman Andrews, sem stjórn-
að hefir rannsóknum þessum en fröni
uður þeirra hefir að ýmsu leyti verið
Henry Fairfield Osborn, einn af
helztu mönnum forndýrafræðinnar
(palæontologíunnar). Hann setti fyr-
ir aldarfjórðungi fram þá skoðun, að
ýmsar forndýraleifar, — sem fræði
mennsku þátímans vantaði tilfinnan-
lega i kerfi sitt, til þess að lína þró-
unarinnar yrði sem ljósust, — hlyti
að mega finna i Norður-Asíu, helzt
í Mongólíu. Hann dró þetta af
legu þeirra leifa, sem þá höfðu fund-
ist og af þeirri stefnu, sem ætla
mætti af þeim, að útbreiðsla dýranna
hefði haft. A grundvelli þessara
athugana gerðu Ameríkumenn svo út
mikinn leiðangur með ærnum kostn-
aði til þess að leita að steingerðum
dýraleifum í Mongólíu. Ferðin tók
labgan tíma, en árangurinn varð einn
ig ágætur, einn af mestu sigrum þess
ara fræða. Leiðangursmenn fundu
leifar 8 af 13 dýrum, sem Osborn
hafði gert ráð fyérir að finna mætti,
á Göbíauðninni suður af Urga. Þeir
fundu til dæmis leifar af svonefndum
Baluchiterium, sem talið er stærsta
spendýr, sem fundist hafi i jörðu.
Eitt þeirra fanst með þeim ummerkj
um, að talið er að það hafi lent i
(Frh. á 8. síðu).
bllDFIIM ftn MFMN Vér borgum 50c á klukkutímann i yíir-
vinnu, 50 mönnum sem næstir vertia
til ati innritast vi« Tractor, Electrical Ignition, Vulcanizing, Járnsu«u,
Kakara, Múrara, Batterí og Plastur stofnanir vorar. Þetta tilboö grjör-
um vib mönnum sem framsæknir eru og vinna vilja fyrir háu kaupi.
Skýrslur gefins. Skrifiti eba símiti strax eftir upplýsingum.
DOMINION TRADE SCHOOLS
ASK FOR
DryGincer Ale
. OR SODA
Brewers Of
COU NTRY 'C LU B*
BEER
GOLDEN GLOW
AL’E
BANQUET ALE
XXX STOUT
BREWEItV
OSBORN E 6l M U LVEY- Wl N NIPEG
PHONES 41-111 4930456
PROMPT.DELIVERY
TO PERMIT HOLDERff
HANDA YÐUR TIL VETRARINS
Issala til Vetrar Þarfa Byrjar
Október i.
I>ér þurfib öllu fremur ís atS vetrinum en sumrinu
því inniloftib er þá þyngra og rykmeira svo matur
skemmist afar fljótt ef ekki er geymdur í góíum
kæliskáp. Is er áreióanlega þess virtii sem hann
kostar — og fyrir hve lítitS hann fæst ef samió er
um nú fyrir veturinn, getitS þér dæmt um af eftir-
fylgjandi verbskrá.
1. október 1929 til 1. apríl 1930
Heimfluttur þrisvar á viku
Yfir missirib mánutSinn
75 pd. á viku $15.00 $3.75
100 pd. á viku (25-25-50) 18.50 4.50
Aukreitis ef látinn er í
kæliskápinn 2.50 .50
150 pd. á viku látinn í kæliskápinn 22.50 5.00
SÖLUSKILMÁLAR
Ef borgab er fyrir 15. október, fyrirfram fyrir all-
an tímann 10 per cent. afsláttur, annars nafnvert5
met5 þremur afborgunum á vetrinum sem fylgir:
OKT. 15., \OV. 1., OG 15. \OV.
Mftnaiiarlegn (50c afsláttur ef borgaö er innan 5.
dags hvers mánaöar.)
ÁVÍSANIR
Hefti (1S—25 pd. AvíNanir S5.50 út 1 hönd
ÞEGAR ÞJER SÍMIÐ
Eftir In þA N|iyrjhi eftir ver5i A kolum og vlb —
Reztu Hldivlbarkaup ! Winnipeg;
Haföu iNniaiiiiinn fyrlr kolnmann
ARCTIC
ICEsFUEL CO.LTD.
439 PORTACE AVE
Opposite Hudsoris Bay
PHONE
42321
o O
Þegar þú ert þreyttur eða taugaslappu*'
—þá hitaðu þér bolla af
B/ue Ribbon Tea
Enginn betri hressing er til né hollari.
VERULEGT TÆKIFÆRI!
HINN NÝJI
ROYAL PRINCESS
RAFMAGNSSÓPUR
ásamt gólfvaxi og gljáólíu fyrir
$4950
eða með
$1.00 niðurborgun og $1.00 afborgun á viku
(Má borgast mánaðarlega ef vill)
Lítið álag fyrir vöxtum.
HREINSUNARTÆKI $8.50 AUKREITIS
Skoðið þessa furðulegu vél í
Hydro Sýningarskálanum, 55 Princess Str.
Wúinípeö.Hijclro.
jmmmammmmmmmmm ■■■ i i U
65-59
lif
PRINCESSSI
Phone
24 669
for
Demonstration