Heimskringla - 18.12.1929, Side 7

Heimskringla - 18.12.1929, Side 7
WINNIPEG, 18. DES., 1929 HEIMSKRINGLA 15. BLAÐSÍÐA Kafli úr Gösta Berlings sögu Frh. írá 13. síðu Sjálf gekk hún næst á eftir Önnu Stjernhök vig hlið manns síns. Hefði hún átt skínandi fagran guövefjar- kyrtil myndi hún vafalaust hafa búist honum. Hefði hún átt skartgripi °g veglegt höfuðdjásn myndi hún hafa borið það nú á heiðursdegi sonar sins. En httn átti ekki annað, en þenna svarta silkikjól meö þessum upplituðu knipplingum, sem hún hafði búist við svo mörg tækifæri ,enda var hún nú klædd honum. Þó að gestirnir kæmi til greftrun- arinnar með slikri viðhöfn, gat þó enginn tára bundist, þegar klukkurn- »r tóku ,að hringja og þeir gengu út að gröfinni. Menn og konur igrétu, en þau grétu engu síður yfir sjálfum ser, en yfir þeim, sem dáinn var. Sjá, þarna gekk brúðurin, og þarna báru þeir brúðgumann, og hérna gengu þeir sjálfir i hátíðaklæðum, og hvar finnst sá maður á guðs grænni jórð, sem ekki veit, að hann er ofur- seldur sorg og áhyggjum, óhamingju og dauða. Og þeir táruðust af þeirri hugsun, að gegn •þessu ættu þeir ekk- ert athvarf. Móöirin grét ekki, en hún var sú eina, sem gat tára bundist. Legar búið var að lesa bænina og •wokað var yíir gröfina, snéru allir til vagnanna, nema frúin á Berga og Anna Stjernhök. Þær urðu eftir við gröfina til þess að kveðja hinn látna enn einu sinni, hinsta sinni. Settist gamla konan ofan á kumblið, en ttnga stúlkan við hlið hennar. “Taktu nú eftir,” mælti frúin á Berga. “Eg hefi sagt við guð: “Lát þú lausnarengilinn, dauðann, koma og s*kja son minn. Láttu hann fara tneð hann, sem mér er hjartfólgnast- ur, á brott með sér i frið hinna kyrlátu heimkynna og gleðitár ein skulu koma í augu min. — Með brúðkaupsvið- höfn mun ég fylgja honum til graf- Sömu Kolakaup Beztu hitunarkolin fyrir miðstöðvarvélina samfara tilsögn við hitunina, fljót og á- byggileg afgreiðsla — alt í höndum sérfræð inga. — Það er Arctic viðskiftin. — Reynið þetta. S^ARCTIC J ICEsFUEL CO.LTU 499 PORTAGE AVE. Ofrtmtt Hudson'a B*y PHONE 42321 ar og síðan ætla ég að láta flytja fallega rósarunnann minn, scm er utan við svefnherbergisgluggann, út i kirkjugarðinn til hans. Og nú er þessu framgengt, að sonur minn er dáinn. Eg hefi heilsað dauðanum sem aldavini, nefnt hann gælunöfnum og grátið gleðitárum yf- ir helför sonar míns. Og í haust, þegar laufið fellur, ætla ég að flytja rauða rósarunnann minn hingað út. En þú, sem situr hér við hlið mér, veiztu hvers vegna ég hefi beðið guð slíkra bæna?” Hún leit spurnaraugum á Önnu Stjernhök, en unga stúlkan sat föl og gneip við hlið .hennar og bærði ekki á sér. Ef til vill barðist hún nú við að þagga niður þær raddir í sál sinni sem strax þarna á nýorpinni gröf hins dána létu til sin heyra og hrópuðu til hennar að nú væri hún loksins frjáls.— • “Þin er sökin,” mælti frúin á Berga. Þá glúpnaði unga stúlkan eins o,g hún hefði verið lostin kylfuhöggi og gegndi engu orði. “Anna Stjernhök. þú varst einu sinni dramblát og óbilgjörn. Þá tál- drógst þú son minn, játaðist honum, en vildir siðan ekkert af honum vita. En hvað tjáði að tala um það. Hann varð að gera sér það að góðu eins og aðrir. Ef til vill hefir hann líka og við öll elskað auðæfi þin ekki minna en sjálfa þig. — En þú komst aftur. Og þú fluttir • blessun með þér inn á heimilið okk- ar. Þú varst svo hæg og blíðlynd, ; svo góð og kjarkmikil, er þú komkt | aftur. Þú breyttir ástsamlega við | okkitr og gerðir okkur svo hamingju- söm Anna Stjernhök — og við ves- lingarnir'elskuðuin þig út af lifinu. En samt sem áður óskaði ég að þú hefðir ekki komið. Þvi að þá hefði ég ekki þurft að biðja guð að stytta iif sonar míns. Utn jólin í fyrra hefði hann megnað að sjá þér á bak, en eftir það að hann fór að kynnast ! þér eins og þú nú ert orðin hefði hann ekki orkað því. Vita skalt þú Anna Stjernhök, sem í dag hefir klæðst brúðarskarti til að fylgja syni mínum, að ef hann hefði lifað, þá mvndir þú aldrei hafa fyLgt honum í þeitn búningi til kirkj- unnar að Brú, vegna þess að þú elsk- aðir hann ekki. Eg vissi það alltaf að þú komst einungis af miskunnsenti, til þess að gera okkur Hfið léttara. En þú elsk- aðir hann ekki. Heldur þú ekki að ég þekki ástina, þar sem hún er og viti hvar ltana vantar? Þá hugs- aði égy Betur að guð svifti son minn lífi, áður en augu ltans opnast! Ö, ihefðir þú aðeins getað elskað hann, Anna Stjernhök! Betur að þú, hefðir aldrei komið. fyrst þú gazt ekki elskað ltann! Eg vissi mína skyldtt. jHefði hann ekki dáið, þá hefði ég orðið að segja honum þetta, að þú elskaðir hann ekki, en ætlaðir þó að giftast honurn af því að þú ert misk- unnin sjálf. Eg hefði orðið að neyða hann til að segja skilið við ASK FOR- DrvGingerAlc ORSODA Brewers Of COU NTRY “C LU B* BEER GOLDEN GLOW ALE BANQUET ALE XXX STOUT BREWER.V OSBORN E & M U LVEY - Wl N NIPEG PHONES 4I-III 42-304-5-6 PROMPT.DELIVERY TO PERMIT HOLDCRS þig og hann hefði ekki aíborið það. Það hefði orðið honum æfilangur harmur. Þess vegna, skal ég segja þér, bað ég guð að leyfa honum að deyja, svo að ég neyddist ekki til að eyði- leggja sálarfrið hans. Og ég hefi glaðst yfir innsognum kinnum hans og erfiðum andardrætti og óttast það eitt að dauðinn myndi ekki megna að fullkomna verk sitt.” Hún þagnaði og beið svars, en Anna Stjernhök mátti ekki mæla. Hú'n heyrði ótal kvnjaraddir mælast við í djúpi sálar sinnar. Þá hrópaði móðirin í sárri örvænt- ing: “0, sælir eru þeir sem geta grátið yfir sinum dauða, sem geta grátið táralækjum. Eg ein verð að standa með ógrátin augu yfir gröf sonar míns. En hvað ég er óhamingju- söm !” Þá þrýsti Anna Stjernhök höndum fast að brjósti sér og minntist skjálf- andi þeirrar vetrarnætur, þegar hún hafði svarið við sína ungu ást, að vera skjól og skjöldur þessa fátæka fólks. Hafði þá þetta allt verið ár- angurslaust ? Var fórn hennar ein af þeim, setn guð vildi ekki þekkjast? Átti bölvun að leiða af öllu santan? En ef hún fórnaði nú ölltt, myndi guð þá ekki leggja blessun sína yfir tað verk, myndi gttð þá ekki leyfa henni að verða hamingjuengill þessa fólks ? “Hvers er vant til þess að þú fáir syrgt son þinn'?” spurði hún. “Þess, að ég trúi ekki framar sjálfri ntér og minum eigin augum. Ef ég héldi að þú elskaðir son minn, myndi é,g harma dattða hans.” Þá reis unga stúlkan á fætur og augu hennar ljómuðu í hrifningu. Hún svifti af sér brúðartrafinu og breiddi það yfir gröfina. Hún tók Itöfuðdjásnið og sveiginn og lagði of- an á. “Sjáðu nú, hverstt mjög ég ann honutn!” hrópaði hún. “Eg gef honunt brúðarsveig minn og traf. Nú vígist ég honum að eilífu og niun aldrei tilheyra neinum öðrum manni.” Þá reis móðirin einnig á fætur. Hún stóð þögul stundarkorn og skalf eins og espilauf. Stðan fóru að koma kippir í andlit hennar og loks komtt tárin — tár sorgarinnar. En þaö fór hrollur *ttm *hinn föla viri minn, lausnarengilinn. dauðann. >egar hann sá þessi tár. Honum hafði þá heldttr ekki hér verið heils- aö með gleði, hér hafði enginn glaðst af einlægni yfir komu hans. Hann dró hettuna langt niður yfir andlitið, læddist hljóðlega niður af kirkjugarðsveggnum og hvarf milli kornstakkanna úti á akrinum. Benjamín Kristjánsson þýddi. Stökur Islenzkar jarðabætur Hálf önnur miljón dagsverka Ef þú skyldir eiga báigt,— enga glaða strengi, reyndu þá að hlægja hátt, hlægjá dátt og lengi. Gleðin öllutn eykur þrótt, yljar kalið hjarta; gleðin eyðir angurs nótt: aldrei máttu kvarta. Lífsins takmark ekki er eilífur harmagrátur. Hugann ekkert hærra ber en hvellur skellihlátur. Vonir funa. Birtir brátt. Með jarðræktarlögunum frá 1923 var, eins og kunnugt er, tekið upp nýtt skipulag á styrkveitingum ríkis- sjóðs til jarðabóta, og hækkaði styrk- urinn mjög mikið. Þetta hefir orðið til þess, ásamt vaxandi skilningi á nauðsvn ræktunarinnar, að jarðbætur hafa farið mjög í vöxt. A fimm ár- unum frá 1923—1927 hafa samkvæmt skýrslum Búnaðarfélagsins verið unn- in á landinu alls hálf önnttr miljón jarðabótadagsverka og af þeint voru 900 þúsund dagsverk styrkhæf lögum samkvæmt. Fyrir þessar jarðbætur hafa bændur fengið nálægt 1 miljón kr. styrk í eigin vasa úr rikissjóði, auk þess, sem farið hefir til hreppa- búnaðarfélaga og í verkfærakattpa- sjóð En í þann sjóð greiddi ríkis- sjóðttr síðastliðið ár alls um 70 þús. kr. Dagsverka tala að jarðabótum fer sívaxandi. Árið 1925 voru alls talin í haigskýrslum 238 þúsund dags verk, unnin af 1.584 styrkþegum, 176 félögum, og fyrir það af dagsverk- um þessum, sem styrkt er samkvæmt II. kaflá jarðræktarlaganna voru greiddar nærri 133 þús. kr. Síðast- liðið ár, 1928, voru dagsverkin komin í nærri 500 þúsund, styrkþegarnir orðnir 3,641 og greiddur styrkur líka kominn upp í 355 þúsund kr. A siðastliðnu ári töldust flestir jarðbóta menn i Rangárvallasýslu (340), þá t Eyjafjarðarsýslu (325), þá í Ar- nessýslu (322), þá í Skagafjarðar- sýslu (305), þá i Gullbringu- og Kjósarasýslu og Reykjavík (295), í Suður-Þingeyjarsýslu 233, í Húna- vatnssýslu 232, o. s. frv., einnig all- háar tölur í ýmsum fleiri sýslum. Fæstir jarðbótamenn eru taldir i Vestur-Skaftafellssýslu (71) og í Norður-Þingeyjarsýslu (91),auk Vest mannaeyja,sem venjulega eruiekki talin með landbúnaðafplássum, þó að þar sé reyndar mikill ræktunaráhugi og dugnaður og taldir 48 jarðbótamenn, sem unnu á sjötta þúsund dagsverk. Dagsverkatalan fer annars ekki éftir fjölda jarðabótamanna. — Hún er hæst i Gullbringu- og Kjósarasýslu og Reykjavík, nærri 50 þúsund dags- verk. Næst kemur Rangárvallasýsla með nærri 40 þúsund dagsverk, og Arnessýsla með rúmlega 38 þús dags- verk, en þá Skagafjarðar- og Eyja- fjarðarsýslur með 30—31 þús. dags- verk hvor og þá Isafjarðarsýsla með nærri 23 þúsund dagsverk og Húna- vatnssýsla með rúmlega 18 þúsund hvor. Fæst dagsverk eru talin fram í Austur-Skaftafellssýslu (4179) og t Dalasýslu (5953). Styrkurinn fer svo eftir þessu, fór mestur til jarð- yrkjumanna í Gullbringu- og Kjósara sýslu og Reykjavík)<srúmlega 50 þús- und krónur, og rúmlega 42 þúsund kr. í Rangárvallasýslu, en minnstur í Austur-Skaftafellsýslu (c. 4500 kr.). Það er nokkuð misjafnt hvaða verk hafa verið unnin á hverjtim stað. Mest ber á túnrækt Oig garðrækt. c. 272 þúsund dagsverk á öllu landinu, þar af c. 34 þúsund dagverk í ná- grenni Reykjavikur, um 30. þúsund í Rangárvallasýslu, yfir 28 þúsund í Skagafirði og nærri 25 þúsund í Ar- nessýslu. Að áburðarhúsum hafa verið unnin 65 þús. dagsverk og að votheyshlöðum ca. 8800 dagsverk, flest í Gullbringu- og Kjósarsýslu og í Árnessýslu. A þjóðjörðum og kirkjugöröum voru árið 1928 unnin 8235 dagsverk, flest í Árnessýslu og þá í Skatgafirði. Þessar tölur ertt fróðlegar, þó þurr- ar séu, og sýna sívaxandi ræktunar- áhttga íslenzkra bænda og fjárveit- ingavaldsins. Mörg þakkarverð handtök og fögur trú á íslenzka fram- tið er fólgin í þeirri hálfri annari miljón dagsverka, sem islenzkir jarða- bótamenn hafa unnið á þeim fáu árum, sem hér hefir verið sagt frá.—Lögr. Ak. 5. nóv. Mokafli er á Siglufirði þessa dag- ana. I gær fengu bátar þeir, sem réru, frá 7,000—10,000 pund af góð- um fiski. Og undanfarna daga hef- ir verið þar góður afli, þó mest væri í gær. , Burtu stunur trega. Hjarta og muna dreymir dátt drauma unaðslega. —M. A. A. Stakan Þó þaö ei minn auki veg, alla lifsins vöku meðan enn ég andan dreg yrkja skal ég stöku., Tímans alda þér mun þung, þó þú móti streytist. lin stakan—hún er ávak ung anna.ð þó að breytist. Hún hefir margoft hlegið mig hún hefir tárum vætt mig; hún hefir bætt og huggað mig; hún hefir oftast kætt mig. Þjóðar vorrar sýnir sál svikalausum rökum. Meðan islenzkt mælt er mál mæla skal í stökum. Við skulum þinga’ um þjóðarbrag, þróttugan klingja rammaslag, við skúlum yngja vonarhag, við skulum syngja Islands lag. —.1/. A. A. Steve Johannsson óskar öllum sínum viðskiftamönnum og íslendingum GLEÐILEG JÓL og FARSÆLT NÝTT ÁR! Hann hefir sína vönduðu Hnattleikastofu í byggingu Royal Bankans, Sargent og Arlington Býður hann alla ætíð velkomna West End Food Market 690 Sargent Ave. Sími 30 494 islenzka matvörubúðin góökunna sem allir islendingar kannast viö, verzlar nú um'Jólin og HátíÖa'rnar, meö alls- konar matvöru, Kryddmeti, HarÖfisk, Rullupylsu og Hangikjöt, o. fl. Verzlunin óskar öllum viöskiftavinum sínum Gleðilegrar Jólahátíðar og Hagsæls Nýárs STÉINDÓR JAKOBSSON eigandi Winnipeg, Man. > þér setn notiS TIMBUR KA UPIÐ AF The Empire Sash & Door Co., Ltd. Birgðir: Henry Ave. East Phone: 26 356 Skrifstofa: 5. gólfi, Bank of Hamilton VERÐ GÆÐI ÁNÆGJA. CAPITAL COAL CO„ LTD. STÓRSALAR OG SMÁSALAR 210 Curry Bldg., móti Pósthúsinu Sérstakt kolaverð íyrir hátíðarnar Koppers Kók..................$15.50 Foot Hills Lump ........... 13.25 McLeod Lump ................. 13.25 Elgin Lump .................. 12.00 Elgin Nut .................... 8.50 Dominion Lump .............. 7.00 Öll vestan kol geymum vér í luktum skúrum, svo snjór og bleyta kemst ekki að þeim Capital Coal Co. Ltd. 24 512 210 Curry Building, móti Pósthúsinu ----------- SfMAR ---------------- 24151 The G. McLean Co., Limited i í \ \ í i í I Matvöru Heildsalar ? i Winnipeg :: Manitoba i i í í i Ráðvendni, greiða afgreiðslu og sanngirni, mega allir reiða sig á af vorri hendi. — Vér njótum góðs trausts kaupmanna í Vestur-Canada og erum hinir einu sem ekki höfum dagprísa á söluvarn- ingi vorum. í í i

x

Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.