Heimskringla - 12.03.1930, Blaðsíða 2
2. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPBG, 12. MARZ, 1930
Landsýning á Heimilis-
iðnaði í Reykjavík
1930.
Þar sem hentugt húsníeði er nú
fengiö fyrir sýningu (Mentaskólinn)
hefir Heimilisiönaðarfélag íslands á-
kveðið að gangast fyrir heimilisiðn-
aðarsýningu í Reykjavík á komandi
sumri.
Menn gera sér von ufn, að þátt-
taka verði almenn i sýningu þessari,
þar eð mörg héruð hafa búið sig
undir landssýningu árum saman. Síð-
astliðin 15 ár hafa fjölmargar stærri
og smærri sýningar verið haldnar víðs-
vegar um land og þátttaka verið sæmi-
lega góð. Rvenfélaga- og ungmenna-
félaga samtónd hafa mestmegnis
gengist fyrir sýningum þessum, en
sumstaðar nefndir þær, sem árið 1927
voru kosnar til að undir.búa þetta mál
í hreppum landsins.
Fyrsta héraðssýningin á öldinni var
heimilisiðnaðarsýningin á Breiðumýri
í S.-Þingeyjarsýslu 1915. Síðan hafa
héraðssýningar verið haldnar á möng-
um stöðum, og ber öllum saman um,
að þær hafi, ásamt hreppsýningunum,
stórum aukið áhuga á heimilisiðnaði
í landinu. Af sýningum má margt
læra. Þær eiga að bæta smekk
manna og marka stefnuna í vinnu-
brögðum. Landsýningar á heimilis-
iðnaði þarf að halda á 10 ára fresti,
og er árið 1930 því sjálfkjörið, enda
vel við eigandi á þessum tímamótum
að athuga hvar við stöndum í þessu
efni.
Þjóðin þarf að sjá þarna sem skýr-
asta og glegsta mynd af vinnubrögð-
um sinum, svo að hún geti áttað sig
á 'hvernig ástandið er og út frá því
séð, 'hvað gera iþarf í framtíðinni. En
aðkomumenn eiga að geta fengið hug-
mynd um íslenzk heimili með því
að skoða fjölbreytt hand-
bragð heimilismanna. Sýningin
þarf að leiða í ljós alt sem fyr og
siðar hefir einkent gott islenzkt heim-
ili og gefið því sinn sérkennilega blæ,
og hún þarf að gera það svo, að ís-
lendingar finni, að henni lokinni, hvöt
hjá sér til að gera heimili sín þjóð- i
legri — íslenzkari i útliti, og að þeir |
sj'ái, að heimavinna magnar að gera
heimilin hlýleg og vistleg. Sem allra
fjölbreyttust þarf sýningin að vera
og engu síffur karla en kvenna vinna.
Alt sem nöfnum tjáir að nefna til
fatnaðar, rúmfatnaðar og híibýlabúnað
ar, verfæri, á'höld og amiboð, leikföng
og skartgripir. Eniginn má skorast
undan að láta þann hlut á sýninguna
sem þeir, er skyn bera á þessa hluti,
telji sýningarhæfan. Þótt hluturinn
sé algengur að gerð og útliti, getur
hann engu að síður verið ágætur sýn
ingargripur. Það þarf að sýna fleira
en það, sem er hárfínt og margbrotið
að gerð. Ef á að sýna vinnubrögð
landsmanna eins og þau koma fyrir í
daglegu lifi þjóðarinnar,' og öllum ber
saman um að svo eigi að vera, þá vit-
um við öll, að þar er ekki alt smá-
gert og if-ínt. Við þurfum í þessu
sem öðru að köma til dyranna sem við
erum klæddir, og þykjá engin skömm
að.
Til þess að fá fjölbreyttasta og
bezta vinnu þurfa þær nefndir, sem
vinna fyrir þetta mál í sveitum og
bæjum landsins beinlinis að biffja þá
sem vinna bezt, að gera hluti til sýn-
ingarinnar. Treystum vér því að
allir góðir menn, karlar og konur,
bregðist vel við þeirri beiðni, leggi
máli þessu lið í orði og verki, láti ekki
á sér standa, en hefjist handa nú
þegar um skipulegan og stefnufastan
undirbúning, svo sýningin verði lands-
mönnum til sóma á allan hátt. — Ef
sýningin tekst vel.'þá styður hún að
því, að heimvinnunni eykst álit, heima-
gerðir hlutir verða meira notaðir til
klæðnaðar og heimilisþarfa eftir en
áður. — Allar þjóðir leggja nú hið
mesta kapp á að búa að sínu, þurfa
sem minst að sækja til annara þjóða.
Það markmið þurfum við líka að setja
okkur, íslendinigar.
“Notið innlendar vörur” hljómar
nú landshornanna á milli um víða ver-
öld. Menn nota innlendu vöruna 'hí
þjóðrækni, iþótt hún sé ekki jafngóð
ihinni erlendu, en að sjálfsögðu er allt
kapp lagt á að standast samkeppni
með því að vanda vöruna sem bezt.
Landssýningin 1930 á að sýna hvað
gera ntá með islenzkum höndum úr
innlendu efni. Við þurfum ekki að
kvíða því, ef við leggjum okkur fram,
að íslenzk handavinna standi að baki
handavinnu annara þjóða, hún stendur
að mörgu leyti framar. Aðalatriðið
er, að þeir, sem hlut eiga að máli, séu
samtaka, að nefndirnar innan hverrar
sýslu vinni vel saman. Nokkur sýslu
félög hafa sýnt þann skilning á mál-
inu að ætla nokkurt fé til þess að
létta nefnðunum starfið. Þá hafa
önnur gert ráðstafanir um að láta
mann fylgja sýslusýningarmununum
til Reykjaví'kur á sinn kostnað, og er
það mjöig vel fallið, óskandi að sem
flest sýslufélög eða félagssambönd sjái
sér fært áð gera iþetta.—Ef ein handa
vinna einkennir héraðið sérstaklega,
væri vel við eigandi að það kæmi skýrt
fram á landsýningunni.
Til þess að sýningin verði ekki of
umfangsmikil er gert ráð fiyrir, að
12 munir verði til jafnaðar sendir úr
hverjum hreppi.
ef um samstæður er að ræða, t. d.
karla-, kvenna- 'eða barnaiklæðnað, þá
telst það sem eitt númer. Kaupstað
irnir hafa sérdeildir ef þeir óska.
Munina ber að senda sameiginlega frá
öllum hreppum 'hverrar sýslu fyrir
milligöngu nefnda þeirra, sem kosn-
ar eru í sýslunni til að annast um þetta
mál, en ekki beint til landssýningar
innar.
Á sýningona verður ekki tekið: 1.
Kunstsaumaðar landlagsmyndir. 2.
maskínuflos, 3. nýtisku sil'ki- og flau-
elsmálning.
Búast má við mikilli sölu á ýmsum
smærri munum á sýningunni, og mun-
um við rita yður n'ánar um það síðar.
í Landssýningarnefndinni:
Halldóra Bjarnadóttir, formaffur
M. Júl. Magnús, ritari.
Sigríffur Björndóífir, gjaAikeri.
Guffrún Pétursdóttir,
Kristín V. Jacobson,
Júlíana Sveinsdóttir,
Þorbjórg Bergmann.
* * *
Heimskringlu er ánægja að því að
verða við þeirri beiðni hlutaðeigenda,
að birta þessa áskorun hér vestra.
Islandsbanka lokað
Rvík., 5. febr.
3. febrúar, barst sú fregn út um
bæinn, að íslandsbanka væri ldkað
þann dag vegna fjárkreppuvandræða.
En saga málsins er, í fáum dráttum
sögð, svohljóðandi:
Sunnudaginn 2. iþ. m. hafði 'banka-
ráð íslandsbanka sent (jánmálatáð-
herra bréf og skýrt honum frá, að
vegna seðlainndráttar (sem er lögum
samkv. 1 milljón á áriý og skuldaaf-
borgana á síðastliðnu ári, skorti bank-
ann, sem stendur, laust starfsfé, en
hin vegar hafi orðið vart nú á síð-
kastið nokkurrar hræðslu hjá inn-
stæðueigendum ibankans og sé hann
ekki fær um að standast óeðlilegar út-
tektir af innlánum og öðrum innstæð-
um. Fer bankaráðið þess á leit við
landstjórnina, að hún leiti heimildar
Alþingis til iþess að takast á hendur
samskonar ábyrgð á skuldbindingum
íslandsbanka og hún hafi áður, með
lögum frá 15. apríl 1928, tekið á
skuldbindingum Landsbankans, og að
hún þar að auki fái heimild til þess
að álbyrgjast fyrir bankann reksturs-
lán, alt að lyí miljón kr. En til
vara fer bankaráðið fram á, að land-
stjórnin fái iheimild til að ábyrgjast
greiðslu á innlánsfé ibankans og öðru
innstæðufé í hlaupandi viðskiftum,
eins og það sé á hverjum tíma, og
auk þess heimild til að ábyrgjast
reksturlán alt að \l/ miljón kr. En
Þá má geta þess/ fái bankinn ekki þessa hjálp, segist
bankaráðið enga leið sjá til þess að
komast hjá, að bankanum Verði lokað
iþegar næsta dag. Áþyrgðin, sem
bankinn biður um, nemur 35 miljón-
um kr., ef hún nær til allra skuldbind-
inga hans, en varauppástungan, um
ábyrgð á instæðufénu 10 milj. kr.
Fjármálaráðherrann kvaddi þá þing-
menn til fundar í sameinuðu þingi á
sunnudagskvöldið. Var sá fundur
haldinn fyrir luktum dyrum og stóð
til kl. 5l/i um nóttina. Var gengið.
þar til atkvæða um svolhljóðandi till.
frá Jóni Þorlákssyni: “Alþingi á-
lyktar að skora á ríkisstjórnina að
gera nú þegar ráðstafanir til þess að
starfsejni íslandsbanka stöðvist ekki.”
18 þingmenn greiddu tillögunni at-
kvæði, en 22 igreiddu ekki atkvæði.
Var hún þá faljin. Það voru þing-
menn Sjálfstæðisflokksins og einhverj-
ir úr Framsóknarflokknum, sem
greiddu tillögunni atkvæði, en flestir
þingmenn Framsóknarflokksins og
þingmenn Alþýðuflokksins greiddu
ekki atkvæði. Töldu þeir upplýsing-
ar þær, sem fyrir lágu um hag bank-
ans, ekki svo góðar, að á þeim mætti
Vinur þinn
illa staddur
Þegar erfiðir tímar, veik-
indi eða vinnuleysi ber að
garði, er þá nokkur sem
býður þér aðstoð sína? Ef
til vill Býður hann þér
hjálp peningalega? Stund-
um.
En ekki oft
En hafirðu verið sparsam-
ur og eigir dálítið inni á
banka er alt öðru máli að
gegna. Þú getur þá dreg-
ið fé þitt út og þannig kom-
ið fótum fyrir þig af sjálfs-
dáðum.
Eigið ekkert á hættu
Sjáið sjálfum yður farborða
með því að byrja reikning
við bankann í dag.
Province of Manitoba
S^vings Office
Donald og Ellice Ave. og
WINNIPEG, MAN.
byggja, þegar um svo stórfengilega
ábyrgð væri að ræða. En forsætis-
ráðherra hafði tveimur dögum áður
en þetta gerðist, falið tveim mönnum,
Jak. Möller bankaeftirlitsmanni og
Pétri Magnússyni bankastjóra, að
kynna sér hag bankans og segja álit
sitt á honum. Lá það álitsskjal fyrir
þingfundinum og segir í því, að þeim
virðist “láta mjög nærri, að bankinn
eigi fyrir öllum skuldum að frátöldu
hlutafé.”
Kl. 8yí á mánud'agskvöldið var
boðaður fundur í Neðri deild til 'þess
að ræða bankamálið. Lágu iþá fynr
tvö frumvörp, annað flutt að tilihlut-
un landsstjórnarinnar og eru þeir
Hannes Jónsson og Sveinn Ólafsson
flutningsmenn þess. Það mælir svo
fyrir, að bú íslandsbanka skuli tekið
I»etta er merkl
“BLUE BAR”
l?ip«a
VÖRUGÆÐI
Fyrst og fremst
BLLft BAR á togleðurs skótaui þýðir
sérstök gæði. Betra togleður og gerð,
betra verk, með auka fóðri um öklana,
iljarnar, tærnar og hælana. Alt sem hin
elzta og stærsta togleðursverksmiðja
í Canada veit um gildi togleðurs skó-
fatnaðar kemur fram í gerð Blue Bar
skótausins.
Til þess að þér séuð vissir um hvað þér
kaupið, höfum vér sett borða úr hláu
togleðri með nafninu “Dominion” á
þessa ágætu vöru. Það sannar þér
að skórnir endist þér lengi, fari vel, og
séu ódýrari en nokkuð annað skótau.
Búnir til af
DOMINION RUBBER CO.,
LIMITED
Winnipeg Electric
Hér er Leiðin að
Lækna Kviðslit
UndurnamleKT HeimnlækniiiK Sem
Hver Matiur Getur Nolaii vlt5
Hverskynn KviTSmllt, Melra
Kila Minna
AUÐREYNT ÓKEYPIS
Þúsundir kviðslitinna manna og
kvenna munu fagna því, at5 ná-
kvæm lýsing á því hvernig Collings
kapteinn læknat5i sig sjálfur af
kvit5sliti bát5umegin, sem hafbi
haldit5 honum rúmföstum árum sam
an, vertSur send ókeypis öllum er
eftir henni skrifa.
SenditS at5eins nafn yt5ar og heim-
ilisfang til Capt. W. A. Collings,
Inc., Box 100-C, Watertown, N. Y.
í»at5 kostar yt5ur ekki eyrisvirt5i og
getur verit5 virt5i stórfjár. Hundrut5
manna hafa þegar vottatS lækningu
sína einmitt met5 þessari ókeypis
tilraun. Skrifit5 tafarlaust — NtJ—
át5ur en þér leggitS þetta blat5 frá
ytSur.
YÐUR MEST I HAG
Stofnað 1882
Löggilt 1914
> \
Betra En Innflutt Coke
Hitað hafa heimili í Winnipeg
síðan “82”
, |
D. D.Wood& Sons, Ltd.
VICTOR A. WOOD HOWARD WOOD LIONEL E. WOOD
Presldent Tre*surer Secretary
< Plltaralr a.n Allnm reyaa atl pnkaaat)
KOLogKÓK
Talsími: 87 308 Þrjár símaiínur
STYÐJIÐ HEIMAIBNAÐ
FORT WILLIAM COAL DOCK CO., LTD.
\
Tals. 27606 400 Winnipeg Electric Chambers
f