Heimskringla - 12.03.1930, Blaðsíða 3
WINNIPEG, 12. MARZ, 1930
HEIMSKRINGLA
3. BLAÐSlÐA
til skiítameöferöar og skiftin fram-
kvæmd af þriggja manna nefnd, er
fj'ármálaráöherra skipi. Gert er þar
ráS fyrir a5 ríkissjóður ábyrgist seSla
bankans, sem í umferS eru viS uppihaf
skiftam'eöferðarinnar. Hitt frumv.
flytja þeir Magnús GuSmundsson og
Ölafur Thors. Þar segiU “AS því
tilskildu, a8 aö aðgengilegir samning-
at náist viö Prívatbanken og Hambros
hank um framhald viðskiftaiána handa
Islandsbanka, ieggur ríkissjóöur bank-
anum til nú þegar íorgangshlutafé
að upphæö 3 milj. kr... Ennfremur
•ábyrgist ríkissjóöur bankans í hlaup-
andi viðskiftum til loka leyfistímans,
■31. des. 1933. Verö hinna eldri
hlutabréfa skal ákveðið meö mati og
Tiafnverð þeirra fært niöur í samræmi
viö það á næsta aöalfundi bankans.
Matið skal framkvæmt af bankaeftir-
Htsmanni og 4 öörum mönnum, sem
kosnir eru meö hlutfallskosningum í
sameinuöu þingi”. Umræður urðu
nokkrar um frumvörpin og máttu kall-
ast hóflegar. Var þeim svo báðum
vísað til 5 manna nefndar, sem kosin
var á fundinum. í henni eru flutn-
'ngsmenn beggja frumvarpanna og auk
þeirra Héðinn Valdimarsson.
Síðan þetta geröist, á mánudags-
kvöld, hefur nefndin veriö að störfum
en ekkert er fram komið frá henni
enn. Búist er þó við, að hún skili
álitsskjali mjög bráðlega, ef til vill
á morgun.
Eins og eðlilegt er, hefir mál þetta
vakið mikla athygli og umtal. En
orsakanna verður að leita langf: aftur
í timann. Það er seðlaaukningin
mikla á ófriðartímunum og igengis-
sveiflurnar siðan, sem þessu valda.
Rangt er að gefa núverandi banka-
stjórn sök á því, enda tók líka for-
sætisráðherra þetta skýrt fram við um-
ræðu málsins í þinginu.
Það er vandamál, sem hér er um
að ræða, og þarf að athugast án æs-
inga. En hvernig sem því lyktar, þá
er skylt að minnast þess, að íslands-
banki er stofnun, Sem gert hefur þesu
lar.di mikið gagn. —Lögrétta.
■ Rvík., 11. feb.
Á mánudag 3. þ. m. skipaði Alþingi
5 manna nefnd til þess að fjalla um
Islandsbankamálið. Þessi nefnd bef-
ir nú lokið störfum og skilað áliti.
Nefndin klofnaði á laugardaginn var.
Stjórnarliðar leggja til, að frv. það,
sem flutt var að tilhlutun fjármála-
ráðherra, um gjaldþrotaskifti á búi
Islandsbanka, verði samþykkt. En
Sjálfstæðismenn leggja til, að Islands-
banka verði veitt sú hjálp, sem nauð-
synlegt er til þess að bankinn verði
opnaður aftur. Eru tillögur Sjálf-
stæðismanna á þá leið, að ríkissjóður
leggi bankanum 3 milj. kr. í forgangs-
hlutafé og rikisábyrgð sé tekin á inn-
. stæðufé manna. — Mbl.
Rvík., 12 feb.
Kl. 8yí á mánudagskvöld komu
bankafrumvörpin til umræða í Neðri j
deild; ;fyrst frumvarp Sjálfstæðlis-
manna urn að reisa bankann við. Var
það frumvarp felt með samhlj. atkv.
alls stjórnarflokksins. •
Umræðurnar snerust mest um það
frumvarp. Liðið var fram á nótt er
þeim var lokið, og var frumvarpið um
gjaldþrotaskiftin afgreitt til 3. um-1
ræðu eftir stuttar umræður. — Mgbl.
Guðm, G. Bárðarson
50 ára.
Rvk., 3. jan.
Guðmundur G. Bárðarson er
fimtugur í dag. Hann hefir á vori
komandi verið mentaskólakennari
fjóra vetur, en fimm ár var hann
kennari í gagnfræðaskólanum á Akur-
eyrr. Þar áður hafði hann rekið
búskap í 20 ár á Ströndum, og þó að
hann ætti löngum við heilsubrest að
búa á þeim árum, tókst honum að afla
sér þeirrar mentunar og framkvæma
þau visindastörf, sem fengið hafa
honum frægðar, bæði utan lands og
innan.
Guðmundur kom í Latínuskólann
árið 1897, og var þar fjögur ár, en
varð þá að 'hætta námi, vegna heilsu-
brests. Hann var góður námsmaður
og vakti þá þegar á sér athygli fyrir
framúrskarandi Iþekkingp í náttúru-
fræði og öðrum skyldum námsgrein-
um. Bar hann þar svo langt af öll-
um sínum skólabræðrum, að enginn
komst þar í hálfkvisti við hann,
hvorki að þekkingu né áhuga. Vegna
Þess var hann þegar i öðrum bekk
kjörinn forseti náttúrufræðisfélags
skólans, sem “Mímir” heitir, og var
það upp frá því, alla sína skólatið.
Færðist þá mikið fjör í félagið, og
þegar hann fór úr skóla, var hann
kjörinn heiðursfélagi þess. En vis-
indaáhugi G. G. B. var vaknaður áð-
ur en hann kom í skóla, og 16 ára
gamall hafði hann safnað skeljum i
fornum malarkömbum við Húnaflóa.
Fann hann þar þá kuðungategund
eina, er honum tókst hvergi að finna
lifandi við flóann, en ári síðar, þegar
hann kom hingað suður, fann hann
þessa sömu tegund lifandi hér, og síð-
ar við Stykkishóím og á Isafirði.
Þótti honum þetta svo furðulegt, að
hann var jafnan að -velta því fyrir sér
á skólaárum sinum, en síðar réð hann
þá gátu svo, að um eitt skéið ’eftir
jökuLímann, en á undan landnámstíð,
hefði verið nokkuru heitara í Húna-
flóa en nú er. Um þetta viðfangs-
efni ritaði hann fyrstu vísindagrein
sína, að áeggjan Dr. Helga Pjeturss,
og birtist hún í dönsku náttúrufræð-
istimariti.
Grein þessi vakti athygli meðal er-
lendra jarðfræðinga, og næstu tvö
ár hlaut G. G. B. nokkurn rannsókna-
styrk frá Danmörku, þar á meðal úr
Carlsbergssjóði. Var ihann fyrsti
bóndi á íslandi, sem styrk hlaut úr
þeim sjóði.
Árið 1909 hafði Guðm. samið aðra
ritgerð um rannsóknir fornra malar-
kamba við Hiúnaflóa. Hafði hann
þá með ærinni íyrirhöfn unnið aS
þeim rannsóknum af miklu kappi. Um
haustið fór hann til Kaupmannahafn-
ar og ihlýddi Iþar á háskólafyrirlestra
í jarðfræði og kynti sér skeldýrasöfn,
sem þar voru. Síðan fór hann til
Stokkhólms og rannsakaði þar skelja-
söfn með aðstoð ihinna merkustu vís-
indamanna. Hann var og um eitt
skeið í Lundúnum við samskonar
rannsóknir á söfnum þar.
Eftir þessa utanför mátti segja að
G. G. B. hefði sigrast á hinum mestu
örðugleikum í vísindastarfi sinu. Hélt
hann þá áfram rannsóknunum af
miklu kappi, og varð fyrstur manna
til þess að framkvæma skeldýrarann-
sóknir hér á landi. En hér finnast,
stm kunnugt er, víða um land jarðlög
með fornum skeldýrum, og eru þau
“jarðsögu-lhandrit” harla tfierkileg.
Hefir Guðm. unnið að þvi síðan, að
rannsaka slík jarðlög, og samið marg-
ar ritgerðir um þau efni, bæði á ís-
lenzku og öðrum tungumálum.
Victor - Radio - Electrola
RE-45. The modern,
complete musical instru-
m e n t. Reproduces
broadcast and recorded
m u s i c electrically
through new Victor
electro-dynamic Speaker
$375
COMPLETE
Listen in to the
Winnipeg Piano Hour
Over CJRW
Tiuesk, 7.30 p.m.
Sat., 9.00 p.m.
Victor-Radio Console R-32. The
only radio receiver that has the
unqualified endorsement of the
world’s great artists and con-
ductors in every field.
$255
COMPLETE
Buy from Established and Reliable Specialists
Branches: St. James, Transcona, Dauphin, Yorkton
&
TIL ISLANDS 1930
NÝIR SAMNINGAR
hafa verið gerSir af Heimfararnefndinni viS
Canadian Pacific félagið
WSS MONTCALM’’ (16,400 Tonn)
er nú ráðið til íslandsfararinnar 1930 og
Siglir Frá Montreal kl. 10 f. h. 14. Júní
Beina leið til Reykjavíkur
Nefnd yðar, er þessu hefir nú fengið ráðstafað vill brýna
fyrir yður, að—
Sérstök lest er fengin frá Winnipeg til Montreal.
Sérstakar skemtanir verða um borð á lest og skipi.
Svo margir hafa nú tryggt sér far með niðurborgunum, að
enginn efi er á því að ferðin verður hin veglegasta.
Sérstök vildarkjör hafa fengist meðan dvalið er í Reykja-
vík—$52.80 í 14 daga að meðtöldu fæði og húsnæði.
Fulltrúi nefndar yðar, sem nú er staddur í Reykjavík, er
að semja um aukaferðir um landið fyrir heimfarendur að
lokinni hátíðinni.
Eftir kaupum á farbréfum, upplýsingum og öllu aðlútandi
ferðinni snúi menn sér til—
W. C. Casey, General Agent, Can. Pac. Steamships.
R. G. McNeillie, General Passenger Agent,
Canadian Pacific Railway, eða
J. J. Bildfell, fornmnns Heimfararnefndarinnar,
34 C. P. R. Building. Sími 843410.
Canadian Pacific
__ Sama AtlætiS — Canadian Pacific — Á Sjó og Landi
Nafnspjöld
Á skólaárum Guömundar færði
einn skólabróðir hans honm leirsteins-
flögu úr Halibjarnarstaðakambi á
Tjörnesi, og þótti honum það góður
fengur. En löngu síðar átti það fyr-
ir Guðmundi að Hggja að rannsaka
Hallbjarnarstaðakamb, og hefir hann
ritað allstóra bók á ensku um jarð-
lögin á Tjörnesi, og fylgdi henni
fjögra metra löng þverskurðarmynd
af lögunum. Bók iþessi er hin prýði-
legasta, og gefin út af danska Vís-
indafélaginu. En þau rit, sem fé-
lagið gefur út, eru lögð undir dóm
sérfróðra manna, og er það trygging
fyrir vísindagildi þessa rits. Héfir
og félagið áður gefið út ritgerðir
eftir Guðmund.
Enskir jarðfræðingar leituðu til
forstöðumanna jarðfræðissafnsins í
Kaupmannahöfn og læiddust þess, að
þeir fengi einhvern hæfan mann til
þess að rannsaka jarðlögin á Tjör-
pesi, og töldu þeir slí'ka rannsókn
mjög nauðsynlega til þess að fá full-
an skilning á líkuin jarðlögum í Eng-
landi. — Danir leituðu þá til G. G. B.
um þessar rannsóknir, með því að þeir
töldu ekki völ á öðrum færara manni
til starfsins. Töldu þeir það og
skyjdu hvers fullvalda ríkis að annast
slíkar rannsóknir í sínu landi.
Auk hinna útlendu rita hefir Guð-
mundur samið margar islenzkar rit-
gerðir, er ibirtst ihafa í tímaritum vor-
um og blöðum, og kenslubækur heíir
hann samið í jarðfræði.
Enn á Guðmundur ólokið við fram-
haldsrit itm Tjörnes, og mörg önnur
vísindaverkefni bíða úrlausnar hans.
En hann er hlaðinn miklum kenslu-
störfum og hefir miklu minna tóm til
visindaiðkanna en skyldi.
Væri æskilegt, að þing og stjóm
sæi sér fært að launa vísindastarf hans
með því að létta af honum kenslu-
störfunum að sem mestu leyti, svo að
honum gæfist óskiftur tími til þess
að sinna rannsóknum sínum. —Vísir.
* * *
Guðmundur G. Bárðarson
off jarðfræði tslands.
■ ——
Guðmundur Bárðarson er í tölu
þeirra náttúrufræðinga sem ég hefi
mesta aðdáun á, og er þar margt að
telja. En þó ætla ég hér aðeins að
nefna rannsöknir hans á Tjörnesi.
Þegar ég fór að rannsaka Tjörnesið
sáégm.a. aðum margfalt merkilegri
og stórkostlegri jarðmyndum er að
ræða, þar sem skeljalögin eru, en
menn höfðu vitað áður. Að rann-
saka þessi lðg svo sem þurfti, var
fyrir mig óviðráðanlegt verkefni; mig
skorti svo mjög Ihina nauðsynlegu
skeljarþekkingu, og ég hafði önnur
verkefni, sem lágu mér nær, og ég
gat ekki varpað frá mér til að sinna
þessu. Hafði ég þó mikinn hug á
að fá þessi lög rannsökuð nákvæmlega,
og gerði nokkrar tilraunir til að vekja
áhuga á þeirri rannsókn, á Englandi
og Þýzkalandi; bjóst ég síður við að
nokkur maður í Danmörku, Noregi
eða Svíþjóð, yrði til að taka það verk
upp, því að í þeim löndum vantar til-
svarandi jarðmyndun; og á Islandi
vissi ég ekki þess manns von, sem gæti
tekið þessa vandasömn rannsókn að
sér En viti menn, það varð þó Is-
lendingur sem verkið vann, og meira
að segja, ibóndi norðan úr Stranda-
sýslu, maður sem ekki hafði einu
sinni tekið stúdentspróf, ‘hvað þá, að
hann væri kandidat í náttúrufræði.
Og sv snildarlega hefir Guðmundttr
Bárðarson þetta verk af hendi leyst,
að hann hefði átt skilið að verða heið-
ursdoktor fyrir. . Er það ekki of-
mælt, að þar er um stórvirki að ræða.
Veit ég að Guðmundi er mikill hugur
á að halda þessum rannsóknum sín-
um áfram og þætti varla önnur af-
mælisósk betri en sú, að bonum auðn-
aðist að láta eftir sig mikla bók um
þennan landsihluta, sem er svo stór-
merkilegur frá vísindalegu sjónarmiði.
Væri þess mikil þörf ef það á að
geta orðið, að kenslustörfum yrði létt
af honum, svo að hann gæti gefið
sig allan við rannsóknum sínum.
Náttúrufræði íslands má ekki missa
til hálfs eða meir, af eins framúr-
skarandi rannsóknara og Guðmundur
Bárðarson er, en til munu vera yngri
menn, vel færir um að taka við
kenslustörfunum.
9. jan. Helgi Pjehirs
—Vísir
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldf.
Skrlfatof usíml: 2S674
Stundax ■érstakloga lun*nasjúk-
* dóma
Kr at5 flnna á akrlfatofu kl 10—11
f. h. of 2—$ o. h.
Holmill: 46 Alloway Avo.
Talalmlt 3315«
A. S. BARDAL
• •lur Hkklstur o( innnt um iltfar-
Ir. Allur útbúnaíur »4. b«*tl.
Ennfremur ««lur hann allikonar
mlnnlivarfia og legstolna
(43 SHERBROOKE ST.
Pbonrt 86 6«T WINNIPEG
TIL SÖLU
A ðDfHll VBRBl
“FURNACBl” —beeSl vtSar 06
kola “furnace" HtlO brúkaS, ar
Ul attlu hjá undtrrltuSum.
Qott tnklfeerl fyrlr fdlk út 4
landl er bæta vllja hltunar-
úhdd 4 helmlllnu.
GOODHAN 4 CO.
786 Torento St. Slael 28847
MESSUR OG FUNDIR
( kirkju Sambandssafnaðar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e.h.
Safnaðarnefndin: Fundir 2. og 4.
fimtudagskveld í hverjum
mánuði.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld t hverjum
mánufii.
Kvenfélagið: Fundir annan þrifiju
dag hvers mánafiar, kl. 8 afi
kveldinu.
Söngflokkuri**: Æfingar á hverju
fimtudagsKveldi.
Sunnudagaskólinn:— A hverjum
tunnudegi kl. 2.30—3.30 e. h.
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
Lögfrceðingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 24 587
WALTER J. LINDAL
BJÖRN STEFANSSON
Islenzkir lógfraðingar
709 MINING EXCHANGE Bldg
Sími: 24 963 356 Main St.
Hafa einnig skrifstoíur afi Lundar,
Piney, Gimli, og- Riverton, Man.
Telephone: 21613
J. Christopherson.
Islenzkur Lögfraðingur
845 SOMERSET BLK.
Winnipeg, :: Manitoba.
Mrs. B. H. Olson
TEACHER OF SINGING
5 St. James Place Tel. 35076
Gyða Johnson, B.A.
Teacher of Violin
Phone 27284
906 BANNING ST.
Björevin Guðmundson
A. R. C. M.
Teacher of Music, Gompo
Theory, Counterpoint, Orchw-
tration, Piano, etc.
555 Arlington St
■ IMI 71621
MARGARET DALMAN
TKACHKK OF PIANO
854 BANNING ST.
PHONE: 26 420
Ragnar H. Ragnar
Pianokennari
Phone 34 785
—Kennslustofa—
693 Bannitig Street
Gunnar Erlendson
Pianokennari
Kennslustofa: Talsími
684 Simcoe St. 26293
Jacob F. Bjarnason
—TRAN SFER—
««d Fmltire M.itej
668 ALVRRITONE ST.
SIMI T1 8*8
E* útvegfc kol, oldlvtS Dul
efcnn(jörnu verbl, fcnnfcit flutfc-
1 ng fram o» fcftur um bætna.
100 herberKl met) eCfc 4n bfcle
SEYMOUR HOTEL
verO afcnn(jfcrnt
Slml 28 411
C. O. HUTCHISON, elgull
Mfcrket fcnd Kls( lt.,
Wtnnlpec —:— Mfca.
KAUPIÐ
HEIMSKRINGLU