Heimskringla - 09.04.1930, Qupperneq 4
4. BLAÐSÍÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 9. APRÍL, 1930.
Hcimakringla
(StofnuO 1886)
Kemur út á hverjum miðvikudegi.
Eigendur:
THE VIKING PRESS. LTD.
853 og 855 Sargent Avenue, Winnipeg
Talsími: 86537
Verð blaðsins er $3.00 árgangurinn borglst
fyrirfram. 'Allar borganir sendist
THE VTKING PRESS LTD.
SIGFÚS HALLDÓRS írá Höfnum
Ritstjóri.
Utanáskrift til blaðsins:
Manager THE VIKING PRESS LTD.,
853 Sargent Ave., Winnipeg.
Utanáskrift til ritstjórans:
EDITOR HEIMSKRINGLA
853 Sargent Ave., Winnipeg.
“Heimskringla” is published by
The Viking Press Ltd.
and printed by
THE SERVICE PRINTING CO., LTD.
853-855 Sargent Avenue, Winnipeg, Man.
Telephone: 89 994
WINNIPEG, 9. APRÍÍ, 1930.
William Ellery Channing
Hundrað og fimmtíu ára minning 1780—
1930 — (Ræða flutt í kirkju Sam-
bandssafnaðar í Winnipeg,
sunnudaginn 6. apríl 1930
af séra Benjamín
Kristjánssyni).
Því hefir verið haldið fram, að sum
tímabil mannkynssögunnar bæri með sér
vormerki öðrum fremur. Þá væri eins
og alt gliðnaði úr skorðum íss og dróma.*
Aldagamlar venjur og rótgróið stjórn-
skipulag riðlast jafnframt því, sem trúar-
hugmyndir aliar og lífsskoðanir taka ger-
samlega stakkaskiftum. Það er eins og
alt mannfélagið kasti ellibelgnum og gangi
í endurnýjungu lífsins, að m. k. á ein-
hverju takmörkuðu svæði fyrir einhvem
ókunnan þrótt sem streymir eins og belj-
andi stormur gegn um alla lognþoku vetr-
ardrungans og blæs nýju lífi í hin visnuðu
bein. Söguspekingurinn Spengier hefir
viljað skifta hverju menningartímabili í
fjórar árstfðir eftir andlegum einkennum
og sögulegum táknum. Eftir því ætti
vorið aðeins einu sinni að hafa mnnið
yfir hina vestrænu menningu, sem hann
telur nú vera komna á fallanda fót. Um
þetta má vitanlega lengi deila, eftir því
hvaða skilning hver maður leggur í tákn
tímanna. En öllu sannlegra finst mér
það, að árstíða skiftin hafi verið örari.
Æðasláttur lífsins er tíðari en svo, að
hver hræring taki margar aldir. Hann
er ör og síkvikur, en gengur um leið ó-
jafnt yfir eins og blóðbylgjan um líkami
vora. Menningaraldan svellur stöðugt
og hjaðnar, þannig að þegar bylgjuiægð
er á einum tíma í einu landi, rís bylgju-
toppurinn í öðru.
Vorið fylgist venjulegast að bæði í
hinum ytra og innra heimi. Það er oft
örðugt að segja, hvort hin ytri bylting er
afleiðing hinnar innri eða innri byltingin
orsakast af hinni ytri. Þegar umrót er
komið í lífi þjóðanna gengur alt úr skorð-
um og hin eldgömlu tengsl vanans slitna
hvert af öðru eins og rjúkandi kveikur
Ný kynslóð kemur fram með nýjum hug-
sjónum.
Á ofanverðri átjándu öld var vor í
loftinu í nýlendum Breta á austurströnd
Norður-Ameríku. Frelsisstríðið, sem þar
braust út var ekki aðeins háð til að slíta
verslunahömlur og óhæfilega tolla, heldur
til að andæfa einveldi því sem þá hélt
Evrópu í heljar klóm og ryðja braut hug-
myndum lýðræðis og mannréttinda. Og
jafnframt var öllu trúarófrelsi sagt stríð á
hendur. í Tripoli samningnum frá 1796
er tekið svo til orða, að Bandaríki Norður-
Ameríku sé ekki grundvölluð á kristinni
trú fremur en annari og voru það án efa
miög fáheyrð orð í þann tíma.. Einmitt
þegar frelsisstríðið stóð sem hæzt, fædd-
ist sá mr.ður, sem einna tígulegast hefir
borið intrki frjálslyndrar hugsanar hér
vestanhafs, og hefir að ýmsu leyti mótað
skoðanir þeirra kirkjudeildar, sem nefnd
hefir verið Únítarakirkja og síðan hefir
jafnan átt traustast aðsetur í Nýja-Eng-
landi — þeirrar kirkjudeildar, sem vér er-
um í félagslegu sambandi við. í dag
hefir þessa manns verið minnst víðast hvar
í kirkjum þessa trúfélags í tilefni af 150
ára afmæli hans, og finst mér vel viðeig-
andi að vér rifjum einnig upp sögu hans
í fáum dráttum, svo sem tök verða á stutt-
um tíma.
William Ellery Channing er fæddur í
Newport, Rhode Island, 7. apríl 1780. Var
hann heitián William eftir föður sínum,
sem var ágætur lögmaður í miklu áliti, en
Ellery var nafn móður föður hans. Var
William Ellery hinn þriðji í röðinni af níu
bQrnum þeirra hjóna., Hlaut hann ágæta
uppfræöslu í heimahúsum og í skóla í
Newpört, en síðan var honum komið til
frænda síns til undirbúnings náms fyrir
Harward háskóla. Meðan hann var þar
til lærdóms, þrettán ára gamall, dó faðir
hans. Hér um bil ári síðar, árið 1794
innritaðis't hann við Harward og útskrif-
aðist þaðan fjórum árum síðar, árið J798.
Síðan fékkst hann við heimiliskenslu og
frekari lærdómsiðkanir jafnhliða nokkur
ár, og stóð heilsa hans eigi sem styrkust-
um fótum. Tók hugur hans brátt að
hneigjast að guðfræði og stundaði hann
um hríð nám við prestaskólann í Cam-
bridge, Mass. og útskrifaðist þaðan árið
1802. í júní árið eftir tók hann köllun
fátæks safnaðar, sem átti litla kirkju í
Federal Street Bostop. Óx þessi fá-
menni söfnuður hröðum skrefum, eftir því
sem orðrómur fór að berast af andagift
Channings, unz hægt var að byggja þar
upp stóra og fagra kirkju nokkru síðar.
Árið 1814 kvæntist Channing frænku
sinni Ruth Gibbs, er hann hafði unnið frá
barnæsku.
Kirkjuna í Federal stræti átti Congre-
gationalista söfnuður, mjög frjálslyndur
Upprunalega höfðu Congregationalistar,
austur þar, verið hinir ströngustu Kalvin3
sinnar og eimdi lengi eftir af strangtrún-
aði Puritananna, sem þangað höfðu fluzt
frá Englandi. En síðan um miðja 18 öld,
hafði Kalvinskan verið að smá tapa fót-
festu í Massachusetts og frjálslynd trú-
arstefna blómgast sem meiri áherzlu lagði
á hina jákvæðu hlið kristinnar trúar-
reynslu og skapgerðar. Hraus afturhald-
inu mjög hugur við, er það sá hversu
þessar frjálslyndu skoðanir breiddust óð-
fluga út, og hertu nú sem mest þeir máttu
á öllum afarkostum trúarkenninga sinna,
en gerðu jafnframt óp mikið að frjálslynd-
ara hópnum og báru honum “Únítaravillu”
’á brýn.
Channing var lítt deilugefinn og
reyndi í fyrstu að leiða sem mest hjá sér
hávaða þenna, en svo kom um síðir að þau
brögð gerðust að svigurmælum “rétttrú-
aðra’’ og níði í hans garð og vina hans,
að hann ákvað að þegja ekki lengur við,
enda var hvarvetna. horft til hans sem
foringja allra frjálst hugsandi manna,
sökum hæfileika hans og mannkosta. Of-
bauð honum svo mjög hið sífelda hatur
og ánauð “rétt-trúaðra’’ presta á Únítör-
um þar um slóðir, að hann af meðfædda
göfuglyndi og frjálsbornu hugrekki, gekk
formlega yfir í þeirra hóp árið 1815 og
lýsti því yfir þá, að hann væri einn af
þessum “guðlausu Únítörum” sem öllu
hnútukastinu var beint að, og leitaði hann
nú færis að taka upp hanskann fyrir þeirra
hönd og verja málstað þeirra frá fræði-
legri hlið, gegn “rétt-trúnaðinum.” Það
tækifæri bauðst von bráðar.
Þegar hér var komið í sögunni hafði
Únítara hreyfingin ekki breiðst út fyrír
Nýja England, nema hvað Jóseph Priestly
hafði stofnað tvo litla Únítarasöfnuði í
Pennsylvania, sem raunar voru aðeins úti-
bú frá Englandi: En árið 1816 vildi svo
til, að James Freeman, sem um þær mund-
ir var aðalforingi Únítara í Boston, pré-
dikaði í Baltimore, og vakti sú prédikan
slíka athygli, að þar var bráðlega stofn-
aður frjálslyndur söfnuður, sem síðar kom
til að blómgast vel. Tveim árum síðar
var kirkja þeirra vígð af dr. Freeman og
fyrsti prestur þeirra var Jared Sparks, sem
með miklum dugnaði þjónaði þeirri kirkju
í fjögur ár unz hann varð heilsunnar vegna
að láta af því starfi. Síðar varð hann
nafnkunnur sagnfræðingur og forseti
Harward háskóla.
Vígsla séra Sparks fór mjög hátíð-
lega fram, hinn 5.- marz 1819, að við-
stöddum fjölda klerka. Hafði Channing
verið boðið að flytja vígsuræðuna og
notaði hann nú tækifærið að gera skil-
merkilega grein fyrir kristindómsskoðun-
um Únítara og hrekja ýmsar þær firrur,
sem þeim voru bornar á brýn. Stóð ræða
haps yfir fullan hálfan annan tíma með
þeirri postula andagift og rökfestu, sem
ekki heyrist, nema einu sinni á hverri
öld.. Þessi Baltimore ræða, sem gefin
hefir verið út í ótal útgáfum og verið
þýdd á fjöldamörg tungumál, hefir með
réttu verið nefnd Magna Charta frjáls-
lyndrar trúar. Hér verður enginn tími
til að rekja efni þessarar ræðu neitt til
hlítar, tþó að freistaandi væri, heldur til
ég aðeins skýra lauslega frá viðfangsefni
hennar og áhrifum:
Channing lagði út af orðunum: 1.
Þessaloníkubréfi, 5 kafla: Prófið alla hluti
og haldið því sem gott er. Og megin
viðfangsefni ræðunnar var að sýna fram
á það, að ritningarnar, væru þær útskýrð-
ar af skynsamlegu viti, héldu þær fram
sömu kenningum og Únítarar. Hann tók
upp allar meginkenningar Únítara, þar
sem þá greindi á við rétt-trúnaðinn og
sýndi fram á með skýrum og ugglausum
rökum, að rétt-trúaðir hefðu að minsta
kosti ekki meiri stuðning sínum kenning-
um í ritningunum en Únítarar og að Úní1
tara skoðanirnar hefðu einmitt sprottið
af nákvæmari og samvizkusamlegri
rannsóknpm á ritningunum. Byrjaði
hann fyrst á því að gera nákvæmlega
grein fyrir gildi ritninganna út frá skyn-
samlegu sjónarmiði, og neitaði í raun og
veru ekki guðdómlegu hefðarvaldi þeirra,
einkum nýjatestamentisins, en bfenti á
það um leið, að því méiri ástæða væri til
að leggja alúð við rannsókn þess, og að
það kæmi ekki til mála, að nokkrar guð-.
legar opinberanir yrðu utan við svið mann-
legrar skynsemi. Ef þannig væri litið á
ritninguna hleypidómalaust, mundu níenn
brátt sannfærast um það, að kenningar
Únítara um eining guðs væri henni miklu
samkvæmari en þrenningarlærdómurinn,
sem þar væri livergi haldið fram enda
mundi hann hafa stórhneykslað Gyðinga,
sem stranglega hafi allatíð haldið fram
eingyðinu. Sýnir hann og fram á, að
ýmiskonar háspekilegur heilaspuni mið-
aldarmanna um tvær náttúrur Krists og
guðdóm ,styðjist hvergi við orð og um-
mæli hans sjálf — sé þau rétt skilin, né
heldur nokkra skynsamlega hugsun. Og
einkum veitist hann að friðþægingar eða
fórnarblóðs kenningum Kalvinista, er
hann taldi bæði ósiðlegar og hina mestu
fjarstæðu. Taldi hann sömuleiðis kenn-
ingar þeiira um gjörspillingu mannlegs
eðlis bæði viðbjóðslegar og svívirðilegar,
með því að þær yfirskygðu alt réttlæti
guðs og gerðu hann að grimmum og misk-
unarlausum harðstjóra, en trúarbrögðin
að ógn og andstyggð og sviftu burt öllu
gildi manndygðar og persónulegs siðgæð-
is. Vildi hann leggja alla áherzlu á
kærleika guðs, fremur en vald hans og
eins og guð væri óendanlega góður og
miskunsamur faðir, þannig væri guðlast
að álíta mennirnir, börn hans, væri illir að
eðli. Réttlætið lægi fremur í eðli mann-
anna, en að guð úthlutaði mönnum því
fyrir verðleika og fórnardauða Jesú Krists
Enda yrðu mennirnir ekki betri að heldur
fyrir slíkan sýknudóm og jafn óhæfir til
ástar, ef eðli þeirra sjálfra væri ekki
runnið af rót kærleikans. Hið sanna eðli
%
heilagleikans eða kristlegrar dygðar lægi
einmitt í kærleikanum til guðs og manna,
sem að endurleysti oss frá öllum van-
þroska og bæri ávexti í fögru og góðu
lífemi; í sambúð vorri hvern við annan og
umburðarlyndi bæði í hversdagssökum
og trúarefnum. Öll vingjarnleg samúð
og frjálslyndi í skoðunum stæði guðdóm-
legum kærleika nær, en fjandsamlegir
áfellisdómar og trúflokkarígur. Sá
prestur, sem nú tækist hina heilögu köll-
un og skyldur kennimanns á heréar, væri
ekki vígður til að boða þessar kenningar
í þeim tilgangi að vekja deilur, heldur til
þess að efla það heilaga líferni, er sjált't
vitnaði um kenninguna, hvort hún væri
frá guöi. En áheyrendurnir ættu jafn-
framt sjálfir að rannsaka ritningaraar, í
því skyni að hreinsa guðkristni af þeim
mannlégum firrum og hleypidómum, sem
klerkar og kreddur ófróðra alda hefðu
kafið hana í. .
Ahrif þessarar ræðu urðu geysi mikil,
enda dró hún rétttrúnaðinn miskunarlaust
fram fyrir dómstól heilbrigðrar skysemi.
Á sex vikum komu út fimm útgáfur af
henni og var nú Channing á allra vörum.
Er vant að sjá, hvort hún hafði meiri á-
hrif á Únítara sjálfa eða rétt-trúnaðinn.
Að vísu hratt hún fram málstað Únítara
úr varnarstöðu til hiklausrar sóknai^
Með því að gera svo röksamlega grein
fyrir kenningum þeirra var þeim í eitt
skifti fyrir öll haslaður völlur til sóknar og
varnar. Og nú hafði þeim bæzt í hópinn
öruggur foringi, einn hinn mælskasti og
mest virti prestur í Boston. Jók þetta
eins og von var til hugrekki þeirra um
helming, og sannfæringarþrek, enda litu
þeir nú björtum augum til framtíðarinnar.
Og aðgerðalítið frjálslyndi þeirra var nú,
í einni svipan snúið í blossandi bál hik-
lausrar trúarsannfæringar.
En áhrifin á rétt-trúnaðinn urðu engu
minni eins og sjá má af deilum þeim, er
brátt urðu . Tveir prófessorar við And-
over guðfræðiskólann risu upp
og leituðust við að reyna að
verja þær skoðanir, sem Chanii-
ing hafði ráðist á og vildu jafn-
vel halda því fram, að sú mynd,
sem hann hefði dregið af rétt-
trúnaðinum væri ýkt og rang-
lát. Gaf Channing sig ekki svo
mjög inni í þær deilur, en aðrir
lærðir menn tóku upp hanskann
fjTÍr hann og sönnuðu af ritum
Kalvinista, að Channing hefði
sízt farið með neinar ýkjur. Varð'
niðurstaðan sú, að andmælendur
hans» urðu að viðurkenna, að
sjálfir væru þeir teknir að hall-
ast talsvert frá hinum gömlu
kenningum, sem viðurkendar
voru þó í orði kveðnu. . Var
með því komið af stað þeim
skriði, sem síðar endaði í ýmissi
frjálslyndri guðfræði, sem jafn-
vel fór lengra, en Únítarismi
Channings gerði nokkurn tíma.
Hafði Baltimore ræðan þannig
engu minni áhrif á rétt-trúnað-
inn, en sjálfan Únítarismann,
enda tók þrenningarlærdómsins
að gæta minna í Austurfylkjun-
um úr þessu og strangleiki Kal-
vins að hverfa úr sjálfum rétt-
trúnaðinum.
En samt sem áður varð
þetta til þess að kljúfa Con-
gregationalista kirkjuna.’ Hinir
rétt-trúuðu sögðu sig úr lögum
við Únítara og neiddust þeir þá
til að stofna með sér sérstakt
trúarfélag: The American Uni-
tarian Association árið 1825, og
var Channing kjörinn fyrsti for- |
seti þess. Mun það þó alls ekki
í fyrstu hafa verið nein tilætlun
Channings að stofna neinn
únítariskan sértrúarflokk né úní
tarískan rétt-trúnað, því að
haft er eftir honum, að hann
hafi láftð svo ummælt í fyrstu,
að hann gengist glaður við
Únítara nafninu, hver sem
brýndi sig á því. “En fari svo,
að það nafn verði haft í háveg-
nm síðar, mundi ég gjarna vilja
losna við það, því að ég óska
ekki að tilheyra neinum sértrú-
arflokki, heldur samfélagi frjáls-
borinna anda, þeirra sem elska
sannleikann og fylgja Kristi.”
“Eg vil tilheyra alheimskirkju
og ekkert skal geta hindrað mig
frá því. Sál mín þolir ekki þessa
andstyggilegu varnarmúra, hún
slítur sig úr hverjum mauravef
og leitar þess fagra og góða. Ef
hugir vorir fangast af hinu
fagra og góða, mun það þá af-
neita oss, ef vér tilheyrum ekki
einhverjum sérkreddu flokkn-
um? Dygðin er hvergi staðbund-
í fullan aldkrfjórðung hafa
Dodds nýrna pillur verið hio
viðurkenndu meðul við bak-
verk, gigt og blöðru sjúkdóm-
um, og hinna mörgu kvilla, er
stafa frá. veikluðum nýrum. —
Þær eru til sölu í öllum lyfja-
búðum á 50c askjan e,a 6 öskjur
fyrir $2.50. Panta má þær beint
frá Dodds Medicine Company,
Ltd., Toronto, Ont., og senda
andvirðið þangað. *
in. Og hún hefir alt ágæti sitt
fólgið sjálfri sér, hvar sem hún
birtist. Þetta er einingarband
alheimskirkjunnar. Og enginn
maður verður rekinn úr henni,
nema, á þann hátt að dygðin og
elskan deyi í brjósti hans.”
Með slíku hugarfari gekk þessi
tírottins þjónn að störfum, og
\ar eigi að undra, þótt skáldið
Coleridge kæmist svo að orði um
hann, er þeir kyntust á Englandi
árið 1822, þegar Channing fór
yfir til Evrópu sér til heilsubót-
ar, að hann ætti hvorttveggjm
í jafnríkum mæli “elsku til visk-
unnar og visku til elskunnar.
Þegar hann kom til baka aftur
sumarið 1823 hóf hann starf sitt
í Boston að nýju, með meiri á-
kafa en nokkru sinni fyr. Gaf
hann sig nú eigi aðeins við guð-
fræðilegum ágreiningsefnum,
heldur sneri sér af alefli að öll-
um mögulegum þjóðfélagsmál-
um. Vegna sinnar óbifandi trú-
ar á göfgi mannlegs eðlis og gildí
mannlegrar sálar, gat hann ekki
látið neitt mannlegt vera sér ó-
viðkomandi. Hann var öþreyt-
andi í hugsun sinni um umbæt-
ur á kjörum fátæklinga og vinnu
lýðsins, og í því að útbreiða
bróðernið eigi aðeins einstakra
manna, heldur þjóða á meðal.
Og tillögur hans um afnám ó-
friðar, áfengis og fátækra bæla,
og tillögur hans um umbætur á
örbyrgð verksmiðjulýðs og ann-
ara handverksmanna, bera
gleggstan vott um það hversu
VER ráðleggjum yður að reykja Bucking-
ham Cigarettur vegna þess, að í þeim
er hið bezta tóbak, blandað mjög vel saman,
og sem helzt ávalt ferskt og ilmgott, í inn-
sigluðum pökkum. Þegar þér reykið
Buckingham, fáið þér fyllilega verðið sem
þér greiðið ^fyrir það í hverri Cigarettu.
Þar er af engu dregið til þess að geta haft
premíu miða í pökknnum.
Buckingam eru fríar við að olla remmu eða
óbragði. Þær eru frægar fyrir hreinindi.
Þær eru að gæðum til óviðjafnanlegar.
Reykið þær.