Heimskringla - 16.04.1930, Qupperneq 3
WINNIPEG, 9. APRIL, 1930.
HEIM8KRINGLA
t. BLAÐStÐA
j ^ J N af ns pj »•• 10 Id
®‘ Fr>ðriksson studdi . Var það
samþykt með öllum greiddum at-
kvaeðum gegn 1.
Sigfús Haldórs frá Höfnum la3 álit
Iþróttanefndarinnar svohljóðandi:
Nefnd sú, er skipuð var til að i-
íþróttamálið hefir komið sér
saihan um eftirfarandi álit:
!• Með því, að íþróttafélagið
Sleipnir, er naut styks frá Þjóð-
r®knisfélaginu sem viðurkenningu
fyrir starfsemi sína, afhenti að gjöf
^jóðræknisfélaginu öll íþróttaáhöld,
er 1 eigu þess voru, er það vegna fjár-
skorts neyddist til að hætta starf-
semi sinni, og með því, að nýtt ís-
lenzkt íþróttafélag hefir risið af
Bistum þess í Winnipeg er mælist til
Þess að Þjóðræknisfélagið ívilnist sér
naeð því að afhenda sér öll þessi á-
höld til baka.
leggur þessi þingnefnd það til
nð þessi bæn sé yeitt þessu nýja fél-
aSi, er nefnist “Falcon Athletic and
Recreation Association’’ og þess frem-
Ur. sem þetta er eina málaleitunin
þessu félagi að sinni.
2- Nefndin skorar á Þjóðræknis-
félagia, að veita nefndu íþróttafélagi
frekari styrk ef þess verður leitað í
framtíðinni.
S. Halldórs frá Höfnum,
Ari G. Magnússon,
C. S. Thorlaksson,
Thorsteinn Oliver,
Ragnar Stefánsson.
Umræður: G. S. Friðriksson og Carl
Thorláksson.
Lagt til af B. B. Olson, stutt af G.
S. Friðriksson, að viðtaka nefndará-
litiS Samþykt. '
Alit nefndar þeirrar, er gera skyldi
tillögur um fyrirlestraferðir Arna
i*&l8sonar var næst lesið og skýrt
af séra J. P. Sólmundsson, og fer hér
4 eftir:
Þingnefnd sú er skipuð var til þess
að íhuga fyrirætlanir um þær ferðir,
sem Þjóðræknisfélagið á von .á að
herra Arni Pálsson muni fara fyrir
sig um ýmsar íslenzkar byggðir,
hvetur þingið til þess fyrst og fremst,
að lýsa hérmeð fögnuði sínum yfir
Því, að fá til sín þennan ágæta gest.
Þingið tekur hérmeð tækifærið til
Þess að þakka honum fyrir komuna,
°g metur þá komu svo mikils, að það
vill, hérmeð gjöra það heyrum kunn-
ugt, að það finni sig í þakklætis-
skuld við hverja þá frændur vora á
ættjörðinni, sem hafa, á einn eða
annan hátt, átt hlut að því, að honum
yrði mögulegt að gjöra oss þessa
gagnlegu og ánægjulegu heimsókn;
sem og ennfremur Canadiska Kyrra-
hafs Jámbrautarfélaginu, sem góð-
fúslega hefir veitt honum ókeypis
farbréf fram og aftur frá Englandi
hingað til lands, og hvað það, sem
hann þarf á brautum þess að ferðast
hér í landi.
National Council of Education hefir
með höndum ráðstafanir á ferðalagi
herra Arna Pálssonar, öðrum en þeim
sem stjórn félags vors hefir nú þegar
auglýst svo sem hér segir:
Winnipeg, 27, 28. febrúar og 1. og 2.
Marz.
Langruth 3. marz.
Selkirk 4. marz, kl. 8 síðdegis.
Gimli 5 .marz kl. 8.30 síðdegis.
Riverton 6. marz, kl. 8 síðdegis.
Mikley 7. marz, kl. 8. siðdegis.
Hnausa 8. marz, kl. 2. síðdegis.
Arborg 8. marz, kl. 8 síðdegis.
Víðir 10. marz, kl. 2 síðdegis.
Framnes 10. marz, kl. 8 síðdegis.
Glenboro 12 marz, kl. 8. síðdegis.
Brú 13. marz, kl. 2 síðdegis.
Brown 14. marz, kl. 8 síðdegis.
Akra N.D. 17. marz, kl. 2 síðdegis.
Mountain 17. marz, kl. 8 síðdegis.
Gardar N. D. 18. marz, kl 8 siðdegis.
Upham N. D. 19 marz, kl. 8 síðdegis.
Piney, Man. 22. marz, kl. 3 síðdegis.
Oak Point, Man. 24. marz, kl. 8 síðd.
Lundar, Man. 25. marz, kl. 8 síðdegis
Hayland, Man. 26. marz, kl 8 síðd.
Steep Rock, Man. 30. marz, kl. 3 síðd.
Vegna tímaskorts var félagsstjórn-
in tilneydd að gjöra sjálf þessa áætl-
un upp á væntanlegt samþykki þings-
ins, og þessi þingnefnd leggur nú til
að það samþykki sé hérmeð veitt.
Einnig leggur hún það til, að for-
manni þessarar þingnefndajr hr. Jóni
J. Bíldfell, sé hérmeð falið að sjá
herra Arna Pálssyni fyrir einhverri
fylgd í öllum þessum ferðalögum.
Ennfremur leggur þessi þingnefnd
það til, að þingið feli hérmeð stjómar-
nefnd sinni, að sjá um að þessi góði
gestur verði kvaddur á viðunandi hátt
áður en hann fer frá oss aftur.
Winnipeg, 28. feb., 1930.
J. J. Bíldfell,
J. K. Jónasson,
Thórður Bjarnason,
Kósm. Arnason,
J. P. Sólmundsson,
Th. J. Gíslason,
T. H. Sigbjömsson.
S. H. frá Höfnum lagði til, B. Finns-
son studdi, að nefndarálitið væri við-
tekið. Samþykt.
S. H. frá Höfnum áréttaði þá tillögu
nefndarinnar, um að greiða Arna
Pálssyni þakkaratkvæði fyrir ferðir
hans og starf í þágu félagsins. Því
til samþykkis reis þingheimur með
lófataki úr sætum.
Séra R. E. Kvaran hóf máls á því,
' að á þessu ári sé Manitobafylki að
búa sig undir minningarhátíð — 60
ára afmæli sitt—og í því sambandi sé
verið að viða saman í sögu fylkisins.
Kvað ekki mega hjá líða að íslending-
ar létu sig slíkt varða. Lagði til Að
málið væri tekið á dagsskrá. S. H. frá
Höfnum studdi, að forseti skipaði 3
manna nefnd í málið. Samþykt.
Nefndin: Séra R. E. Kvaran, séra
Benjamín Kristjánsson, Hjálmar Gísla
son.
S. H. frá Höfnum vakti máls á því,
hversu nauðsynlegt væri að fasta-
nefnd tæki það að sér að greiða fyrir
og annast um, þjóðlega sýningar-
starfsemi Islendinga hér I álfu. Lagði
til að málið væri tekið á dagskrá, og
forseta falið að skipa nefnd til þess að
íhuga það. Rósm. Arnason studdi.
Samþykt. Nefndin: S. H. frá Höfnum
Mrs. ölína Pálsson, Mrs. Dorothea
Peterson, Haukur Sigbjörnsson, séra
G. Árnason.
B. B. Olson tók þvínæst til mál3
um minnisvarðamál Gimlibúa, og heit
þeirra í því sambandi frá árinu 1926:
Taldi hann, ‘Sæði þeirra og annara
hluta vegna æskilegt ,að Þjóðræknis-
félagið gengist fyrir allsherjarhátíð
íslendinga á komandi sumri, er halda
skyldi að Gimli, til að heiðra 1000
• ára afmæli Alþingis. Lagði til að
málið yrði tekið á dagskrá. Dr. Sig.
Júl. Jóhannesson studdi tillöguna, og
mælti fastlega með því, að slík hátíð
yrði haldin að Gimli — “Þingvöllum
Vesturheims.” Tillagan samþykt. Séra
Guðm. Arnason lagði til að forseti
skipaði 5 manna nefnd í málið. J. J.
Bíldfell studdi. Samþykt. Nefndin:
B. B. Olsön, dr. Sig. Júl. Jóhannesson,
séra Rúnólfur Marteinsson, séra Sig.
óiafsson og B. Finnson.
trtgáfa ljóðabókar kom þá á dag-
skrá, og las Stefán Einarsson svo-
hljóðandi nefndarálit:
Þingnefnd sú, er kosin var til að
íhuga $350.00 lánveitingu til útgáfu
kvers af íslenzkum ljóðum þýddum
á ensku af frú Jakobínu Johnson,
leyfir sér að leggja fyrir þingið eftir-
farandi álit:
Þó að nefndinni blandist ekki hugur
um að frú Jakobína Johnson hafi unn-
ið mikið og þarft verk í þjóðræknis-
þarfir, efast hún um að lán til út-
gáfu þess kvers, sem umræðir, sé
fýsilegt frá fjárhagslegu sjónarmiði.
þar sem ein eða fleiri slíkar bækur
verða innan skamms á bóka markað-
inum. Eigi að síður er nefndinni
fjarri með þessu, að leggja á móti
nokkrum styrk, er þingið sér sér fært
að leggja fram til útgáfu þessa á-
minsta kvers.
B. Dalman,
Guðrún Friðriksson,
Stefán Elnarsson.
Áður nefndarálitið yrði frekar af-
greitt kom tillaga um að fresta fundi
til kl. 2 síðdegis. Samþykt.
Fundur var aftur settur samdægurs
kl. 2 e.h. Samkvæmt tillögum dags-
skrárnefndar lá embættismannakosn-
ing fyrst fyrir til afgreiðslu.
A. Eggertsson lagði til, S. H. frá
I Höfnum studdi, að séra Jónas A. Sig-
| urðsson yrði endurkjörinn sem forseti
I félagsins. Ari Magnússon útnefndi
! séra Rúnólf Marteinsson, er bað sig
! undanþeginn. Mrs. C. F. Fredericks-
j son útnefndi séra Ragnar E. Kvaran,
en hann gaf ekki kost á sér. Fleiri
voru ekki útnefndir, og séra Jónas A.
Sigurðsson þannig kosinn forseti
gagnsóknarlaust og í einu hljóði.
Þá var séra R. E. Kvaran útnefndur
sem varaforseti af B. B. Olson. Baðst
séra R. E. Kvaran undan kosningu og
útnefndi séra Rúnólf Marteinsson.
Margir studdu . Eigi voru fleiri út-
nefndir og séra R. Marteinsson kjör-
inn varaforseti í einu hljóði.
A. Eggertsson útnefndi séra R. E.
Kvaran sem skrifara. G. S. Frið-
riksson studdi. Var þá lagt til og
stutt (B. B. Olson — Thorst. J. Gísla-
son) að útnefningum værLlokið. Sam-
þykt — og séra R. E. Kvaran kjör-
inn skrifari í einu hljóði.
Séra R. E. Kvaran útnefndi P. S.
Pálsson sem varaskrifara. Guðrún
Friðriksson studdi. Hjá.lmar Gísla-
son útnefndi séra Jóhann P. Sól-
mundsson. Séra R. Marteinsson
studdi. Var P. S. Pálson kosinn með
237 atkv. gegn 27.
Þórður Bjarnason útnefndi Guð-
jór S. Friðriksson sem f jármálaritara.
Sigurbjörg Johnson studdi. A.
Eggertsson útnefndi ölaf S. Thorgeirs
son og Stefán Einarsson studdi. Lagt
ti! og stutt, (séra Rúnólfur Marteins-
son — B. Dalmann) að útnefningu
væri lokið. Samþykt. O. S. Thor-
geirsson kosinn með 209 atkv. gegn
68.
Crtnefndur sem varafjármálaritari:
Stefán Einarsson (B. B. Olson—séra
R. Marteinsson), stimgið upp á og
stutt (B. Finnson — J. K. Jónasson)
að útnefningu væri lokið. Samþykt
og S. Einarsson kjörinn varafjármála-
ritari í einu hljóði.
Ami Eggertsson útnefndur sem
gjaldkeri (séra G. Ámason — séra
R. Marteinsson).’ Lagt til og stutt
(B. Finnson — Guðrún Friðriksson)
að útnefningu væri lokið. Samþykt,
og Arni Eggertsson kjörinn í einu
hljóði.
Walter Jóhannesson var útnefndur
sem skjalavörður en gaf eigi kost á
sér. H. Gíslason útnefndi Carl Thor-
láksson; séra F. A. Friðriksson
studdi. Var samþykt að loka út-
nefningu (A. Magnússon — séra R.
E .Kvaran) og Carl Thorláksson
kjörinn í einu hljóði.
Nefndir sem yfirskoðunarmenn:
Bjarni Finnson (tillögum. séra R. E.
Kvaran) og B. B. Olson tillögum.
Thorst. J. Gíslason). Samkvæmt
gefnum upplýsingum lagði séra G.
Árnason til, að B. Finnson skyldi
kjörinn til tveggja ára, en B. B.
Olson til eins. Samþykt og kosningu
emættismanna þar með lokið.
(Framhald).
(Framh. á 4. síSu).
Hítt og þetta
Eftir útliti að dæma verða á þessu
ári haldnir fleiri alþjóðafundir en
nokkru sinni áður. Tíminn hefir
áður getið um kolamálið og flota-
málaráðstefnuna í Lundúnum. Þessa
dagana byrjar I Genf fundur, sem á
að koma í veg fyrir framhaldandi toll-
stríð milli rikja. Er sú stefna
mjög uppi á þessum tíma að útiloka
framleiðslu annara landa með þvi að
leggja svo háan toll á innfluttar vör-
ur, að þær verði ókaupandi og þoli
ekki samkeppni við innlenda fram-
leiðslu.^ Vemdartollarnir eru eitt hið
bitrf>sta vopn í fjárhagsbaráttunni
milli þjóðanna, og leiðir af sér þrot-
lausar samningatilraunir og þref milli
ríkisstjómanna. Er fyrirsjáanlegt
að slík tollbarátta muni enda í blindri
samkeppni og blóðugri styrjöld, ef
ekki er tekið í taumana. Athygli
hefir það vakið, að dönskum manni,
Moltke greifa, er falið að stjórna
fundinum. Þykir það bera vott
um, að Danmörk njóti álits í þjóða-
bandalaginu, enda hefir athygli er-
lendra þjóða nú mjög beinst að Dön-
um vegna frjálsrar stefnu í tollmálum
og þó eigi síður vegna þeirra tilrauna
sem danska Jafnaðarmannastjórnin
hefir gert til takmörkunar á víg-
búnaði.
1 Frakklandi munu vera tíðari
stjórnarskifti en í nokkru öðru landi
Evrópu. I byrjun ágúst síðastliðið
sumar lét Poincaré af völdum sökum
sjúkleika, enda er hann nú maður
háaldraður (verður sjötugur á þessu
ári) og hefir í mörgum stórræðum
staðið, m. a. verið forseti Frakklands
árum saman. Þegar Poincaré dró
sig í hlé, varð Briand forsætisráð-
herra, en hann er einkum kunnur
vegna afskifta sinna af utanríkismál-
um, var m. a. mjög riðinn við Lo-
carno samninginn. En í nóvember
í haust, hlaut Briand og ráðuneyti
hans vantraust í þinginu. Stóð í
löngu stappi um hver mynda skyldi
nýja stjóm, enda eru flokkamir
margir og ber lítið milli þeirra
sumra. Var fyrst í ráði, að Jafnað-
armaðurinn Poul Boncour yrði stjórn-
arformaður með stuðningi hinna
frjálslyndari flokka, að kommúnistum
undanskildum. Það varð þó eigi og
hallaðist þingið meir og meir til hægri
og að endingu tókst íhaldsmanninum
Tardieu að myhda sambræðslustjórn, i
sem var í andstöðu við Jafnaðar-
menn. En í byrjun þessa mánaðar
féll sú stjórn. Stóð þá yfir flota-
málaráðstefnan í Lundúnum, en á-
greiningurinn, sem vantraustinu olli I
var um minnaháttar skattamál —
um það hvort giftar konur, sem vinna
á skrifstofum eiginmanná sinna eigi
að greiða skatt. En stjórnin, sem við
tók af Tardieu, var ekki við völd
nema þrjá daga, og nú stendur yfir ný
stjórnarmyndun í Fr^Jcklandi, sú
fjórða síðan á miðju sumri.
Primo de Rivera, maðurinn, Sem
hefir verið einvaldur á Spáni sex
síðustu árin, hefir orðið að leggja
niður völd. Spanska einræðið var
stofnað eftir ítalskri fyrirmynd og
studdist við herafla. Þegar de
Rivera tók einveldið i sínar hendur,
léc hann í veðri vaka, að hann myndi
leggja niður völd aftur að þrem
mánuðum liðnum. En þessir þrír
mánuðir urðu að sex árum. Síðustu
árin var de Rivera mjög laus í sessi
Tók hann síðast það ráð, að senda
fyrirspurn til liðsforingja sinna um,
hvort þeir æsktu eftir þvi, að hann
færi með vö(d áfram. Hefir hann
sennilega vænst traustsyfirlýsingar úr
Dr. M. B. Halldorson
401 Boyd Bldff.
Skrlfatofuaiml: 23674
Stundar aérstakloffa lun»naajúk-
déma.
Kr aS flnna á akrlfatofu kl 10—11
f. h. or 2—6 «. h.
Halmill: 46 Alloway Ava
Talalnalt 33158
DR A. BLONDAL
602 Medlcal Arts Bldr.
T&lsiml: 22 296
Stund&r sérst&klega kvensjúkdóm»
o* b&rn&sjúkddma. — At) httta:
kl, 10—12 * V og S—5 e. h.
Hetmlll: 906 Vlctor St. Stml 28 130
DR. B. H. OLSON
216-220 Medlcal Arta Bld*.
Cor. Oraham and Kennedy St.
Phone: 21 834
VitUalatími: 11—12 og 1_5.30
Heimili: 921 Sherburn St.
WINNIPEG, MAN.
Dr. J. Stefansson
216 MBDIOAL ARTS BLDO.
Horni Kennedy 02 Graham
Stundar rlniciiugu a 11 gto a - eyrva-
nef- og kverka-ajflkdðma
Er a« hltta frá kl. 11—12 f. h.
og kl. 3—f e k.
Talsímit 21834 •
Hetmilt: 638 McMlllan Ave. 42661
Talafml t 28 889
DR. J. G. SNIDAL
TANNLÆKNIR
614 Someraet Block
. •
Portaae Avcnuc WINNIPKG
DR. K. J. AUSTMANN
Wynyard —:— Sask.
I»vl aU sanga undlr nppskurll vi5
botnlanirabðlau, sallateinum,
mnga- og llfrarvelki?
Hepatola hefir gefist þúsundum
manna vel vít5svegar í Canada, á,
hinum síðastlibnu 25 árum. Kostar
$6.75 meí pósti. Bæklingur ef um
er betJiÓ.
Mra. Geo. S. Almaa,
Box 1073—14 Saakatoon, Saak.
^HEALTH RESTORED
Lwkningar án lyfja
DR. 9. G. SIMPSON, N.D., D.O., D.C.
Chronic Diseases
Phone: 87 208
Suite 642-44 Somerset Blk.
WINNIPEG —MAN.
A. S. BARDAL
aelur líkkistur og annast um útfar
ir. Allur útbúnabur sá bexti.
Snnfremur selur hann allskonar
minniavarba og legstelna.
848 SHERBROOKE ST.
Phoact 86 607 WINNIPKG
i
TIL SÖLU
A ODtRlI VERBI
“rURNACK” —bastll vltJ&r
kol& “furn&c&“ lltltl brúk&fl. &r ,
Ul &81u hjá undlrrttubum.
Oott taklfnrt fyrlr fálk út á
l&ndl er bast& vtlj» hltun&r-
áhCld á kolmlllnu.
GOODHAN « CO.
TM Toronto St. Slml 2SR47
þeirri átt. En allt fór á annan veg.
Konungurinn og flokkur sá er honum
fylgir og aldrei mun hafa verið de
Rivera sérlega vinveittur, tók til-
tæki hans óstinnt upp, enda hafði de
Rivera leitað til herforingjanna án
þess að láta konunginn vita. Jafn-
vel herforingjamir veigruðu sér við
að styðja de Rivera áfram og sam-
hliða brutust út stúdentaóeirðir i
höfuðborginni, Madrid. Sá de Rivera
þann kost vænstan, að leggja niður
völd, en Berangeur hershöfðingja var
falið að mynda stjóm. Beranguer
kvað vera óvinveittur de Rivera, en
af frjálslyndi hans í stjórnmálum fara
litlar sögur. Er ósýnt hvort stjórn-
arfarið breytist nokkuð við manna-
skiftin, eða hvort ný stjórn verður
mynduð á þingræðisgrundvelli. —
Eitt af síðustu stjórnaráformum de
(Frh. á 7. bls).
G. S. THORVALDSON
B.A., L.L.B.
LögfraSingur
702 Confederation Life Bldg.
Talsími 24 587
WALTER J. LINDAL
BJÖRN STEFANSSON
Islenzkir lögfraðingar
709 MINING EXCHANGE Bldg
Simi: 24 963 356 Main St.
Hafa einnig skrifstofur að Lundar,
Piney, Gimli,' og Riverton, Man.
Telephone: 21613
J. Christopherson,
Islenzkur LögfrœSingur
845 SOMERSET BLK.
Winnipeg, :: Manitoba.
Mrs. B. H. Olson
TEACHER OF SINGING
5 St. James Place Tel. 35076
Bjömvin Guðmundson
A. R. C. M.
Teacher of Music, GompoaAtiaa,
Theory, Counterpoint, Orchw-
tration, Piano, etc.
555 Arlington St.
SfMI 71621
MARGARET DALMAN
TKACHKH OF PIANO
854 BANNING ST.
PHONE: 26 420
Ragnar H. Ragnar
Pianokennari
Phone 34 785
—Kennslustofa—
693 Banning Street
Gunnar Erlendson
Pianokennari
Kennslustofa: Talsími
684 Simcoe St. 26293
Jacob F. Bjarnason
—TRANSFER—
Bafime a.d Farallarc Mvrlaf
««N ALVKRSTONE 9T.
91MI 71 8*8
Kr útv«c& kol, eldlvlV m.b
■&nn(Jörnu v.rtll, &nn&«t flutn-
ln* fr&m of &ftur um baalnn.
100 h.rberfl metl et>& án b&V.
SEYMOUR HOTEL
verb s&nngj&rnt
Slml 28 411
C. G. HLTCHISON, tlfudl
M&rket &nd Klnf lt„
Wlnnlpe. —:— M&a
" ■ —— ... - , , .. . . ,
MESSUR OG FUNDIR
i kirkju SambandssafnaSar
Messur: — á hverjum sunnudegi
kl. 7. e.h.
SafnaSarnefndin: Fundir 2. og 4.
finrtudagskveld í hverjum
mánufii.
Hjálparnefndin: Fundir fyrsta
mánudagskveld í hverjum
mánuSi.
Kver.félagiS: Fundir annan þriflju
dag hvers mánaðar, kl. 8 at$
kveldinu.
Sóngflokkuriroi: Æfingar á hverju
fimtudagskveldi.
Sutmudagaskólinn: — A hverjutn
sunnudegi kl. 2.30—3.30 e. h.
Sumarmála samkoma
í Sambands Kirkjunni á Banning og Sargent
24 apríl n.k.
PROGRAMME
1. Piano solo............ Miss Margaret Dalman
2. Barna Kór undir stjórn Mrs. P. S. Daiman
3. Trio, Mrs. Thorsteinsson, H. Mathusalems, R. E.Kvaran
4. Fíólin solo..........Miss iHelga Jóhannesson
5. Ræða: .../.......... Séra Guðmundur Árnason
5. Fíólín solo...........Miss Helga Jóhannesson
6. Einsöngur............. Séra Ragnar E. Kvaran
7. Einsöngur.................. Mrs P. S. Dalman
8. Quartet ............. Messrs. H. Methusalems
B. Guðmundsson, R. E Kvaran, B. Erlendsson
Veitingar ókeypis í neðG Salnum
Inngangur 35 cents Samkomann byrjar kl. 8.15
TIL ÍSLANDS 1930
NÝIR SAMNINGAR
hafa verið gerðir af Haimfararnefndinni við
Canadian Pacific félagið
"SS MONTCALM ’ (16,400 Tonn)
er nú ráðið til íslandsfararinnar 1930 og-
Siglir Frá Montreal kl. 10 f. h. 14. Júní
Beina leið til Reykjavíkur
Nefnd yðar, er þessu hefir nú fengið ráðstafað vill brýna
fyrir yður, að—
Sérstök lest er fengin frá Winnipeg til Montreal.
Sérstakar skemtanir verða um borð á lest og skipi.
Svo margir hafa nú tryggt sér far með niðurborgunum, að
enginn efi er á því að ferðin verður hin veglegasta.
Sérstök vildarkjör hafa fengist meðan dvalið er í Reykja-
▼ík—$52.80 í 14 daga að meðtöldu fæði og húsnæði.
Fulltrúi nefndar yðar, sem nú er staddur í Reykjavík, er
að semja um aukaferðir um landið fyrir heimfarendur að
lokinni hátíðinni.
Eftir kaupum á farbréfum, upplýsingum og öllu aðlútandi
feröinni snúi menn sér til—
W. C. Casey, General Agent, Can. Pac. Steamships.
R. G. McNeillie, General Passenger Agent,
Canadian Pacific Railway, eða
J. J. Bildfell, formanns Heimfararnefndarinnar,
34 C. P. R. Building. Sími 843410.
Canadían Pacific
Sama AtlætiS — Canadian Pacific — Á Sjó og Landi