Heimskringla - 11.06.1930, Page 2
26. BLAÐSIÐA
HEIMSKRINGLA
WINNIPEG, 11. JírNI, 1930.
BREWED BY PELISSIERS LIHITED. WINNIPEC
INCORPORATED 19»
5000 Islendingar í Vesturheimi. Ef
gert er ráð fyrir, að 6 hafi í hverri
fjölskyldu verið, sem ekki munu vera
neinar öfgar, að verið hafi, því margt
fullorðið fólk var oft í einni og sömu
fjölskyldu, verða hér innan við 900
íslenzk heimili alls. Og sé nú þess-
um lausareikningi haldið áfram og
gert sé ráð fyrir að íslenzkt blað eigi
innkvæmt á 600 heimili af þeim, var
kaupendavon Heimskringlu, þegar
hún var stofnuð, um það einn fimti
af kaupendatölu hennar nú. Er þetta
góð bending í þá átt, hvað stofnend-
ur Heimskringlu færðust i fang.
Söfnuðir voru hér nokkrir stofnaðir
og starfandi um það leyti, og máttu
þeir heita það eina, er einhverju sam-
bandi hélt milli Islendinga. En eins
og gefur að skilja, nægði það eitt
ekki, því safnaðarlífið gat ekki orð-
ið sá almenni tengiþráður, er þurfti
með til þess að mynda óslitið íslenzkt
þjóðlíf hér. Var tvisvar áður reynt
til að bæta úr þessu með útgáfu
blaða, en hvorugt þeirra, (Framfari
1877—1880, og Leifur 1883—6) átti
langa naldur. Það sem innflytjend-
umir urðu fyrst og fremst að sinna,
var að afla sér viðurværis, og af því
að allt var svo erfitt er að því laut
á þessum árum, þa rsem viðskifti og
samgöngur voru þá engar eða illar,
urðu flestir nauðugir viljugir að láta
allt annað, allan stuðning til menn-
ingarstarfsemi, að sitja á hakanum.
Stofnim Heimskringlu.
Þannig var nú um að litast hér, er
Heimskringla hóf göngu sina. Stofn-
endur hennar voru þrír menn, er allir
eru nú að meira eða minna leyti kunn-
ir Islendingum bæði austan hafs og
vestan. Frumkvöðul fyrirtækisins
má þó telja Frfmann B. Anderson, son
Bjama Arngrímssonar á Vöglum. —
Kom Frímann árið 1884 til Winnipeg.
Aður hafði hann dvalið í Toronto við
nám. Sumarið 1885 tók hann próf
(B. A. menntastigiðj frá Manitoba-
háskólanum, og mun hann vera fyrsti
Islendin^urinn er hér gekk mennta-
veginn. Hafði hann brennandi áhuga
fyrir mentnamálum, og mun manna
fyrstur hafa vakið máls á stofnun
almenns íslenzks unglingaskóla fyrir
þá, er menntaveginn ætluðu að ganga,
nokkurskonar menntaskóla. Einnig
stofnaði hann, 1888, Hið íslenzka
þjóðmenningarfélag hér. Bækling
skrifaði hann fyrir Canadastjómina,
er átti að koma út á ýmsum tungu-
málum með upplýsingum um ónum-
in lönd fyrir væntanlega innflytj-
endur, og fékk fé nokkurt fyrir það
starf. Fyrir það fé keypti hann
prentáhöld til þess að prenta með
Heimskringlu, er hann var þá ákveð-
inn í að gefa út, því áhugi hans var
óbilandi fyrir öllu, er Islendingum
horfði til menntunar og framfara.
Til liðveizlu við sig við stofnun blaðs-
ins fékk hann aðra tvo menn. Var
annar þeirra hið þjóðkunna sagna-
skáld, ljóðskáld og rithöfundur, Ein-
ar Hjörleifsson Kvaran. Kom hann
vestur sumarið 1885 frá Kaupmanna-
höfn, en dvaldi fyrst nokkra mánuði
i Minneapolis. Til Winnipeg kom
hann ekki fyr en undir jól það sama
ár. Fyrirlestra flutti hann þann vet-
ur í Winipeg um íslenzkan skáld-
skap, af þeirri list frásagnar, er hon-
um lætur flestum Islendingum bet-
%
ur. Hinn maðurinn var Eggert Jó-
hannsson, er' um tima annaðist að
mestu ritstjórn “Leifs”. Kom hann
vestur árið 1876 frá Steinsstöðum í
Skagafirði með foreldrum sínum.
Var hann maður vel gefinn, lipur og
gætinn og miklum bókmenntahæfi-
leikum gæddur.
Þetta voru nú mennimir, er Heims •
kringlu hleyptu af stokkunum.
Fyrsta blað Heimskringlu
kemur út 9. september 1886. Sem
Vænta má, undir ritstjórn þessara
þriggja manna, er allir höfðu glögg-
an skilning á því, sem hér þurfti að
gera í menningárlegu tilliti, er blað-
ið bæði fjölbreytt og veigamikið að
innihaldi. Ber það að öllu leyti af
blöðum þeim er hér höfðu áður ver-
ið gefin út. Fyrst í ritstjómardálki
blaðsins er kvæði eftir Einar H.
Kvaran, og er þetta fyrsta erindið í
því:
Það er svo margt hér, svo ótal margt
að,
þó alhnargt sé betra en fyr var það,
og margur sé maðurinn glaður,
þá vantar oss mikið — ein ósköp —
enn,
ef við eigum að verða göfugir menn.
Það sér þó hver heilvita maður.
I þessu tölublaði byrjar einnig
frumsamin saga eftir sama höfund,
er nefnist: "Félagsskapurinn í Þor-
brandsstaðahreppi”. Hefir sú saga
hlotið að vekja eftirtekt lesendanna
á skoðunum lslendinga á félagslífi og
samtökum til framkvæmda þeim
málum, er til heilla horfðu. Mun
sagan hafa reynst orð í tíma talað.
Ein ritgerðin í þessu blaði bendir
einnig mjög vel á, hvaða mál það
séu, sem Islendinga hér varði. Aðrar
greinir eru um atvinnumál, verzlun-
armál, bókmenntir o. fl. Þá er og
viðtækt yfirlit yfir innlendar og út-
lendar fréttir. Kvæði er þar eftir
Frímann B. Anderson um Vínland,
er endar með þessum kröftugu hvatn-
ingarorðum:
“Fram til sennu frelsis vinir,
Framsókn nýja skulum heyja.”
I ávarpi til lesendanna, er birt er á
fjórðu síðu þessa tölublaðs, stendur,
að útgefendunum sé annt um, að
blaðið sé vandað og á alþýðlegu
máli skrifað, og öll þau mál, er Is-
lendinga hér varði, láti það sig miklu
skifta. Segir þar ennfremur, að
blaðið verði alls enginn “Vesturfar-
ar agent”, en tali um útflutninga frá
Islandi, og innflutninga hingað í
land, sem hvert annað mál.
Um sex mánaða tima hafði ekkert
íslenzkt vikublað verið gefið út hér
vestra. Má nærri geta að menn hafi
verið farið að lengja eftir einhverj-
um fréttum af samlöndum sinum,
og að hið fyrsta blað Heimskringlu,
eins efnisríkt og það var, hafi verið
kærkominn gestur á íslenzkum
heimilum hér.
* * •
I umsjá þessara þriggja manna
koma út 14 tölublöð, og stendur blað-
ið vel við “prógram” sitt, að því er
efni og frágang snertir. Og til þess
að gera Islendingum sem ljósasta
afstöðu þeirra í þessu landi, er nú
tekið að ræða og rita um þjóðrækn-
ismálið frá öllum hliðum. I fimta
toiubiaoinu er langur fyrirlestur birt-
ur eftir Frímann B. Anderson, og
lýkur honum með þessari ósviknu
þjóðræknishvatningu:
Islenzkt vort einkenni sé,
verum íslenzkar hetjur í stríði.
En þó að þessu væri nú öllu með
fögnuði tekið af lesendunum, fór nú
samt með útkomu 14. tölublaðsins
að vandast málið fyrir útgefendun-
um. Á þeim 14 vikum, er blaðið
hafði verið gefið út, nam kostnaður-
inn $850, en tekjurnar voru ekki
nema $350. Verður nú dráttur á út-
komu blaðsins, frá 9. des. 1886 til 7
april 1887, að 15. tölublaðið kemur
út. Er þá Einar H. Kvaran hættur
við meðritstjórn blaðsins. Skýrir
Frímann B. Anderson frá drættinum
á útkomunni og segir, sem satt var,
að efnaskorti hafi verið um að kenna.
Segist hann hafa afhent prentsmiðj-
una um tíma samverkamönnum sín-
um og verði þeir útgefendur blaðs-
ins. Eini vegurinn sé að losa sig úr
skuldunum og byrja svo á ný. Og
til þess selur hann Eggert Jóhanns-
syni, J. V. Dalmann og Þorsteini Pét-
urssyni, eins og launum þeirra nem-
ur, prentsmiðjuna, ásamt Eyjólfi Eyj-
ólfssyni, er hann telur manna bezt
hafa stutt fyrirtækið. Gerir hann
og ráð fyrir að leysa inn prentsmiðj-
pna síðar. örvæntir hann ekki um
þetta fyrirtæki sitt, þó fátæktin hafi
þannig þrengt að því. Segist hann
treysta því, að stefnu þeirri, er blað-
ið hafi fylgt, verði haldið áfram af
drenglyndum og dugahdi mönnum.
Crtgáfa blaðs sé sú eina íslenzka
menntastofnun önnur en kirkjan,
sem Islendingar hér í álfu séu megn-
ugir að viðhalda. Lofuðu þessir
nýju útgefendur blaðsins að halda því
úti til loka ársins 1887, á hverju sem
gengi, og efndu þeir það. Var Egg-
ert Jóhannsson ritstjórinn. En með
síðasta (52.) tölublaði fyrsta ár-
gangsins, kaupir Frímann B. Ander-
son blaðið aftur og tekur þá við rit-
stjórn þess, en meðritstjóri hans er
ennþá Eggert Jóhannsáon.
The House of Banfield is fully equipped to take care of your every need in
Home Furnishings.
JABanfield
492 MAIN STREET
PHONE 86 667
Þannig lýkur þá sögu Heimskringlu
fyrsta árið. Þó ekki sé kostur’á að
skýra erfiðleikana, er útgefendurnir
urðu við að stríða, er það nokkurn-
veginn ljóst, hvað þeir hafa orðið á
sig að leggja. Heimskringla var þá
stærsta íslenzka blaðið, er reynt hafði
verið að halda hér úti, en var þó ekki
dýrari en þau vikublöð, er áður höfðu
verið hér og seld voru á sama verði,
$2.00 um árjð. Nákvæmlega var
stærðin 4 blaðsíður og hver síða 5
dálkar á breidd og um 18 þumlung-
ar á hæð.
En um það að árinu lýkur, hefir
verið sigrast á erfiðleikunum. Mun
engum hafa verið það meira fagnað-
arefni, að blaðið losaðist úr skuld-
unum og gat staðið í skilum við á-
skrifendur sína, en hinum tiltölulega
unga stofnanda þess, Frímann B.
Anderson, er síðasta eyririnn af
fyrstu vinnulaunum sínum, er nokkru
námu, lagði í blaðafyrirtækið vegna
hans einstaka áhuga fyrir viðhaldi
íslenzkrar menningar.
Skrifstofa og prentsmiðja blaðsins
var fyrstu 14 vikurnar af árinu að
35—37 King stræti í Winnipeg, þar
sem hin svonefnda “Olafsson Block”
var síðar reist, en frá útkomu 15.
tölublaðsins, er hinir nýju útgefend-
ur tóku við og mynduðu “The Heims-
kringla Printing Co.”, var bækistöð-
in að 16 James stræti til ársloka
1887.
Annað ár HcimsUringlu.
Fyrsta blað annars árgangs Heims-
kringlu er að ýmsu leyti eftirtektar-
vert og merkilegt. Fyrst og fremst
er það 12 blaðsíður að stærð. Eru
4 fyrstu síðurnar myndablað, og eru
myndirnar af canadiskum, brezkum
og evrópískum stórmennum, stjórn-
málamönnum og þjóðstjórum, og svo
nokkrar myndir af stöðum í .Canada,
t. d. Winnipeg 1887, bændabýlum o.
s. frv. En það sem sérstaklega má
einkennilegt heita við þetta tölublað,
er að það er skrifað á 7 tungumál-
um, íslenzku, dönsku, sænsku, þýzku,
hollenzku, ensku frönsku. Á ís-
lenzku eru þjóðsöngvarnir íslenzku:
“Eldgamla Isafold” og “ó guð vors
lands”, og fyrsta erindi síðara kvæð-
isins þýtt á ensku af E. Magnússyni.
Einnig er þar grein um Canadaveldi,
skipuleg lýsing á landi og lifnaðar-
háttum. Greinirnar á útlendu mál-
unum eru um sama efni, og fylgja
þjóðsöngvar hverrar þjóðar um sig
hverri útlendu greininni. Ekki er um
það getið, hver allar þessar framandi
tungur hafi skrifað, en sagt hefir
oss verið, að ritstjórinn, Frímann B.
Anderson, muni einn hafa um frá-
ganginn á þeim séð. Að öðru leyti
heldur blaðið áfram í sama formi
og áður, bæði að frágangi, stærð og
efni. En 15. nóvember þetta ár
(1888) selur Frímann blaðið aftur sín-
um fyrri samverkamönnum Fer
hann nokkru seinna alfarinn frá
Winnipeg, fyrst til Boston og
stundar þa^rafmagnsfræði, síðan til
Islands, þá til Frakklands og er þar
nokkur ár, en hverfur svo aftur
heim og hefir dvalið á Akureyri síð-
ustu árin og gefið þar út tímaritið
“Fylkir” Mun Heimskringla minn-
ast hans með þakklæti meðan hún
er við líði.
En blaðið ritar nú Eggert Jóhanns-
son einn upp að árinu 1890, eða til
loka 3. árgansins. Um þetta leyti
gerðust nokkrir menn í Norður Da-
kota meðeigendur Heimskringlu og
mun hafa komið til orða að flytja
prentsmiðjuna suður og gefa blaðið
þar út En ekki varð þó af því.
Mason & Risch
HENRY HERBERT
STEINBACH
PIANOS
Victor Radio
WITH ELECTBOLA
Band Intruments
Sheet Music
ST. JAMES
DAUPHIN
Branches at
TRANSCONA
YORKTON
BRANDON
PORT ARTHUR
.
J.A.Banfield
UMITED
ESTABLISHED
1879
121
ALBEET
STREET
iSm
* 492
MAIN
■ St f
I
****J&m J.A.B ANFIELÐ >
.
OUR PLEB'F OP
•3BMVKRY TRUí'!
í
pore it side by side
wiih any other beer:
pELISSIER'5
jgUNTRvgUB”
SPECIAL
Special Deliveries to all
permittees.
Phone 42 304~5~6