Heimskringla - 17.12.1930, Side 7
WINNIPPEG 17. DESEMBER 1930.
HEIMSKRINGLA
7. BLAÐSIÐA
The 6. McLean Co., Limited
WT? Matvöru Heildsalar pm
WINNIPEG
MANITOBA
Ráðvendni, fljóta afgreiðslu og sanngirni mega
allir reiða sig á af vorri hendi.—Vér njótum góðs
trausts kaupmanna í Vestur-Canada, og erum
hinir einu sem ekki höfum dagprísa á söluvarn-
ingi vorum.
störfum sínum á meðan hún var
hjá móður sinni. Dick varð að
víkja úr húsinu, þegar Plorence
kom, og svaf í geymslukofa
skammt frá húsinu.
t*að var snemma í september
að Plorence yar hjálpað ofan í
stól. Varð hún mjög glöð og
fegin að komast úr rúminu, og
voru henni fengnar hækjur til
að hvíla sig á, ef hana langaði
til að hoppa út að glugga, sem
hún gerði strax, og sjá náttúr-
una í allri sinni dýrð. Ekki
hafði Dick komið inn í herbergið
til Plorence nema einu sinni
Hieð systur sinni, allan tímann
sem hún var veik. Eigi að síður
spurði hann eftir líðan hennar
daglega. Var Florence farin að
álíta að hann væri mesti kven-
hatari, en komst að því von
bráðar að svo var ekki. í>ví
l>egar systir hans segir honum
að nú sé Plorence komin ofan í
*tól, þá tekur hann hörpuna, en
hefir orð á því um leið, hvort
l>að muni ekki verða til þess að
setja hana í rúmið aftur. Hlógu
Þau systkinin mjög að þessu. —
Síðan tekur Dick hörpuna út á
svalirnar og ieikur á hana af
mikilli list.
Florence spyr eftir hver sé
kominn og leiki svona vel. Syst-
ir hans segir henni, að það sé
bróðir sinn, sem leiki; hann hafi
bara ekki fengist til að snerta
hörpuna fyr.
“Honum þykir svo vænt um,
að þú getur nú orðið setið uppi
í stól."
Florence hugsaði meira en
hún lét í ljós, og bað um að
°>ega sjá bróður hennar og
Þakka honum fyrir skemtunina.
Þegar Dick hætti að leika á
hörpuna fór hann og tíndi stór-
an blómvönd. Þar á meðal
v°ru tvær hvítar stengur af
hollyhock, og yfirgnæfðu þær
aliar aðrar tegundir. Hann
kallar til systur sinnar og spyr
hvort hann megi sjá Miss Reed.
Mundu þau bæði að hafa sést
úður, þótt ekki væri á það
Hhniist. Hann býður henni góð-
an daginn og óskar henni til
lukku með batann, og fær henni
svo blómin; segist hann sjá, að
hún sé orðin svo frísk, að hún
geti farið að vinna svolítið. Hún
brosir að gletni hans og spyr,
hver vinnan sé. Hann segir
henni að vinnan sé, að segja sér
fyrir, hvernig hún vilji að hann
raði blómunum í blómapottinn.
Þau brosa.
“Má eg gefa móður minni
blómin? Hún kemur í kvöld að
sjá mig.”
“Já, velkomið 0g skal gefa
þér fersk blóm á morgun; það
er nóg af þeim hér í kring.”
Síðan gengur hann út til
verka sinna.
»
Florence var komin ófan í
stól klukkan ellefu daginn eftir,
og leið svo vel, að hún bjóst við
að verða flutt heim til sín bráð-
k
lega. Þeg^r Dick kemur inn
með blómin og fær Miss Reed
þau, þá sér hann að hollyhock
stengurnar eru kyrrar í bióma-
pottinum. Hann raðar blómun-
um og segir um leið:
“Nær heldur þú að þú getir
komið og séð musterið mitt?”
“Hvað er það? Og hvar? Eg
skal hlaupa strax.’’
“Nei,’ ’segir systir hans. “Þú
ert ekki orðin nógu hraust, og
ekki nógu vön við hækjurnar.
Eftir þrjá eða fjóra daga geturðu
það. En þetta musteri, sem
Dick kallar, er svolítill skógar-
toppur hinumeginn við garð-
inn. Þegar föðurbróðir okkar
var að hjálpa til að hreinsa
skóginn, þá mæltist hann til þess
að þessi skógartoppur yrði skil-
inn eftir handa Dick; enda kom
það á daginn, að Dick hefir haft
meiri ánægju og skemtun af
þessum skógi, en nokkru öðru
upp að þessum tíma.”
“Nú, hvað er svo sérlegt við
þenna skóg?” spyr Miss Reed.
Dick útskýrir það fyrir þér,
þegar þú getur farið með hon-
honum.”
“Nú er þriðjudagur, og á
fimtudaginn vill faðir minn að
eg komi heim. En hvað segir
þú, læknir góður? Heldurðu
að eg megi sjá skóginn á föstu-
daginn og fara svo heim á laug-
ardaginn?”
“Það er óhætt að lofa því,”
svaraði læknirinn.
“Þú verður að búa þig vel, ef
þú ætlar að ganga út í skóg
með mér í dag,” segir Dick.
“vegalengdin er 200 til 250 fet.
Ef þú treystir þér ekki til að
ganga, þá skal eg keyra þig á
Brún.”
“Nei, nei! Eg get hoppað
hækjulaust hérna út í skóg-
inn.”
“Nei, hér er stól, sem þú verð-
ur borin á,” segir Dick, “svo að
engin hætta sé á að þú ofreyn-
ir þig. Vegurinn er sléttur eins
og gólfið.”
Systkinin bera Florence á
stólnum og nema staðar hjá
blómabeðinu. Voru nú öll þau
blóm föinuð, er blómgast á vor-
in og fyrri hluta sumars.
“Þetta er rósabeðið,’’ sagði
Dick, og setja þau stólinn nið-
ur “En hinumeginn er zennia-
beðið með öllum þess márglitu
blómum. Þarna uppi við girð-
heyrt neitt líkt þessu, né séð
aðra eins sjón, og aldrei heyrt
minnst á þetta musteri fyr. —
Hver var kennari þinn?’’
“Það var föðurbróðir minn,
sem eg heiti eftir; hann var vei
að sér um marga hluti. Hann er
dáinn fyrir nokkrum árum. Þeg-
ar eg var þriggja ára þá tók
hann mig i^t í skóg og fór að
kenna mér að herma eftir smá-
fuglunum. Síðan hefi eg hald-
ið við þessum æfingum daglega,
svo að segja, og ætti eg að vera
orðinn nokkuð líkur þeim nú.
En Musterið er bara gamanyrði
hjá fjölskyldunni, og ekki þess
vert að auglýsa það. En slepp-
um því. Sumar tegundir af þess
um fuglum koma á vorin, gera
hreiður sín, og fara svo með ung
ana á haustin í heitara lofts-
lag. En þeim fuglum, sem eftir
eru yfir veturinn, gef eg mat,
þegar harðast er. Hefi eg haldið
þessu við um tuttugu ár. Þér
er ný farið að ieiðast þetta fugla
kvak og skulum við halda
heim.”
Eftir að búið var að koma
Miss Reed fyrir á legubekknum
inni í herbergi hennar, heyrir
inguna er röð af phlox með j hún að dr. Martein segir við
blönduðum litum; en þessir skúf | bróður sinn, að hann skuli sækja
ar eru stocks, og er angandi ilm
ur af þeim Við höfum tíu eða
fleiri liti af þeim. En þessir
tveir búskar með bláu blómun-
um er stokesia, og þarna hinu-
megin er fuchsia, með þessu
mikla laufi og rauðu blómunum.
En þetta er hollyhock, og höf-
um við átta eða níu liti í þessu
langa beði, og eru sumar átta
til níu fet á hæð. Þessi rauði
brúskur er salvia; en þessir fag-
urbláu blómbrúskar, sem eru
fyrir framan háu blómaraðirn-
ar, eru lobelia. Mér finnst það
eiga svo vel við, ekki sízt þar
sem margbreyttir blómalitir eru
í röð.’’
hörpuna og spila “Fuglaklið”
fyrir þær. Hann tekur hörp-
una inn í borðstofuna, sezt við
glugga og horfir út að muster-
inu. Hann er að hugsa um litlu
fuglana og lagið “Fuglakiið”.—
Hann leikur nokkur lög, þar til
hann byrjar “Fuglaklið” Setti
hann svo mikil tilþrif í lagið, að
það var guðdómlegt að hlusta á
það: að heyra smáfugla-kvak,
tíst og söng, samtvinnað hljóm-
ræmi með hörpu undirspili, er
hann hafði samið sjálfur. Hann
spilaði það tvisvar eða þrisvar,
og lét allar þær tilfinningar smá
fuglanna í lagið, er hann þekti.
Ekki hafði hann hann hugmynd
“En hvaðan koma allir þess- i um að hann hafði verið að leika
ir smáfuglar?” spyr Miss Reed.
“Ó, það er partur af söfnuði
þetta lag fyrir mörgum gestum;
því þegar hann hætti að spila á
mínum,” segir Dick; “við skui- hörpuna og snýr sér við, sér
um halda áfram til musteris- ! hann móður sína standa á miðju
íns.
En er þau koma að fyrstu
trjánum, nema þau staðar. Og
alt í einu fer Dick að blístra
eins og rauðbrystingur, og tístir
eins og svölur og grátitlingar.
Svo hermir hann hann eftir
whip-poor-will og engjalævirkja
og mörgum fleiri fuglategund-
um, sem eg kann ekki að nefna.
En þegar Dick byrjaði að blístra,
þá var honum svarað með þús-
und tónum. Og þetta gekk í
heila mi'nútu eða lengur. En á
meðan er Miss Reed að horfa í
kringum sig, og sér hún að þessi
litli skógartoppur er fullur af
smáfugium,, og er eins og hún
segi við sjálfa sig:
“Þetta er musterið hans Dicks
og þetta er sfnuðurinn hans. Ó,
hvað þetta er yndislegt — guð-
dómlegt! Ja, hvað þú ert lík-
ur litlu fuglunum! Það er ekki
hægt að þekkja það að, þegar
þeir syngja og þú anzar þeim.
Ó, hvað söngurinn í musterinu
er yndislegur! Aldrei á æfi
minni hefi eg heyrt annað eins,
og hefi eg þó víðar farið og verið
á mörgum samkomum. Aldrei
gólfi hjá Mr. og Mrs. Reed. —
Tvær ungar stúlkur og einn
ungur maður eru með þeim. Og
hann sér þar líka systur sfna og
Miss Reed. Hann verður hálf-
hissa og er eins og grípi hann
feimni, er hann heilsar gestun-
um og biður þá að setjast, og
biður um leið fyrirgefningar á
vankunnáttu sinni, segist ekki
spila mikið, og leggur hörpuna
frá sér.
Mr. Reed gengur til hans og
biður fyrirgefningar á því, að
hann og fólk sitt hafi komið inn
að honum óvörum, og segir að
móðir hans hafi boðið þeim inn,
og beint þeinwað fara hægt.
“Og eg stanzaði á miðju gólfi,
svo þau gætu sem bezt heyrt
uppáhaldslagið mitt,” segir
systir Dicks og brosir um leið.
Dick svarar því ekki, en hann
heyrir að önnur stúlkan segir
við Miss Reed, að það sé slæmt,
að maður svo miklum hæfileik-
um búinn, skuli ekki eiga heima
í bænum. Ekki heyrði hann
hverju Miss Reed svaraði; en
Mr. Reed segir að þau séu kom-
in til að sækja dóttur sína, og
að sig undri nú ekki neitt, þótt
hún hafi ekki flýtt sér heim fyr,
þar sem hún hafði búið við aðra
eins náttúrufegurð og fjöl-
breytni hennar, sem hér sé; og
þakkar hann þeim hjartanlega
fyrir meðferðina á dóttur sinni,
og biður þau velkomin á heim-
ili sitt f bænum.
Dick þakkar fyrir þau og segir
að það geti orðið nokkuð oft,
þar sem hann fari til bæjarins
einu sinni á viku og stundum
oftar.
Reeds fólkið stanzaði dálítið
úti við, áður en það lagði á stað
heim til sín, til þess að skoða
blómin, Musterið og fuglana, og
lét það allt undrun sína í ljósi
yfir því öllu saman.
Þegar Miss Reed kveður Dick,
þá spyr hún hann, hvort hann
vilji gera svo vel og gera bón
sína.
“Já, sjálfsagt; bara að eg geti
það. Hvað er það?”
“Eg skal skrifa þér það,” seg-
ir hún og roðnar við, og kveður
um leið.
Miss Reed var forseti ungra
meyja félags, er vann a, líknar-
starfsemi til styrktar nauð-
stöddum systrum þeirra. Voru
tvær samkomur haldnar á ári
fyrir það starf; var önnur hald-
in í nóvembermánuði en hin í
maí. Varð þessum félagsskap
æfinlega vel til fjár.
Það var um miðjan nóvember
að Dick fékk bréf frá Miss Reed,
og biður hún hann að koma
fram á skemtisamkomu þeirra
og spiia “Fuglaklið.” Samkomau
átti að haldast í stærsta sam-
komusal bæjarins, og átti að
vera á föstudagskvöld seint í
mánuðinum. Dick svarar því
strax og segist koma með hörp-
una.
Samkomudaginn fer Dick
með móður sinni til Reeds hjón-
anna. Voru þau boðin þangað
til að vera um nóttina. En Dr.
Martein, systir Dicks, gat ekki
komið, því hún hafði sérstökum
sjúkling að sinna.
Miss Reed gekk við hækjur
ennþá, en var orðin vel styrk,
og leit hún yndislega út í bláa
silkikjólnum með langa perlu-
festi um hálsinn og stóra rauða
rós í barminum. Var hún glöð
og kát og lék við hvern sinn"
fingur. Af einhverri vangá var
Dick ekki sýndur prógramslist-
inn, og mundi þá ekki eftir að
spyrja um hann. Miss Reed
þurfti að fara fyr en vanalega,
því hún þurfti að sjá um svo
margt áður en samkoman byrj-
aði, svo Dick fór með henni, en
eldra fólkið kom seinna. Dick
hafði með sér hörpuna og dökk-
bláa silkisólhlíf, sem var um 4
fet á lengd. Var Miss Reed
undrandi yfir því, hvað hann
ætlaði sér með því, að koma með
sólhlíf á samkomu, ekki sízt
þar sem norðaustan næðingur
var úti þetta kvöld.
Við dyrnar á samkomusalnum
stendur maður, og kemur hann
strax út að bifreiðinni, er þau
Dick og Miss Reed nema stað-
ar, og býðst til að bera inn hörp-
una og sólhlífina fyrir Dick og
setja það upp á söngpallinn. —
Dick fær honum hörpuna, en
segist halda sólhlífinni sjálfur.
Þau ganga nú inn í salinn og
verður þá mikið lófaklapp, því
Miss Reed var vei þekkt í bæn-
um fyrir starf sitt. En enginn
kannaðist við Dick, þenna unga
sveitamann, sem kom með henni
inn. Þau tóku sér sæti innar-
lega í salnum, því enn voni
tuttugu mínútur eftir áður en
byrja skyldi. Þá er þau voru
sezt, spyr Miss Reed, hvað hann
ætli sér að gera með sólhlífina
uppi á pallinum.
“Ó, það er fuglahiminlnn
minn. Sjáðu til,’’ segir hann og
flettir við nokkrum fellingum.
“Systir mín málaði þessar smá-
fuglamyndir þegar hún var í
skóla, og hefi eg hér flestar teg-
undirnar, sem eru í Musterinu.”
Rétt í þessu stendur upp gam-
all maður, sem er í þriðja sæti
frá þeim, og kallar til Misa
Reed. Gengur hún til hans og
talast þau við dálitia stund. Fær
hún honum blað, og lítur hann
yfir það. Síðan ganga þau
bæði upp á ræðupallinn. Gerðu
áhorfendur lófaklapp og fagn-
aðarlæti mikil. Setur Miss Reed
samkomuna með nokkrum vel
völdum orðum, og skýrii frá
líknarstarfsemi félags síns.
Á skemtiskránni voru tíu
númer: prófessor nokkur talaði
um vísindalegar rannsóknir;
læknir talaði um góða heilsu
frá vöggunni til grafarinn^r;
háskóiakennari flutti erindi um
menntunarreglur frá byrjun
náms upp í háskóla; prestur
safnaðar þess er Miss Reed til-
heyrði, ræddi um samvinnu al-
mennings á ýmsum sviðum, og
sýndi fram á hvaða blessun það
hefði í för með sér. Svo voru
5 söngvar og Dick. Var hann
sá áttundi á listanum.
Þegar Miss Reed var búin að
setja samkomuna, kemur hún
niður í salinn og sezt hjá Dick.
Segir hún honum, að það líti
helzt út fyrir að salurinn ætli
ekki að verða of stór, því fólk
standi frammi í salnum. Dick
verður glaður að heyra það, og
óskar að ailir megi fara heim á-
nægðir. Háskólakennarinn var
númer sjö á listanum, og segir
hann í enda ræðu sinnar, að til-
heyrendur hafi því láni að fagna,
að hlusta á prófessor Martein
hér í kvöld, hann taii fuglamál
og syngi það. Var því svarað
með miklu lófaklappi. Dick varð
sem þrumulostinn, er hann
heyrði sig kallaðan prófessor, og
snýr sér að Miss Reed, er brosti
mjög ánægjulega framan í hann
og óskaði með sjálfri sér, að hon
um gæti nú tekist eins vel í
kvöld, eins og skilnaðarkvöldið.
Hann spyr hana hvernig standi
á því, að hann sé kallaður pró-
fessor. Hún biður fyrirgefning-
Frh. 8. bls.
SheasWinnipegBreweryLti