Heimskringla - 07.01.1931, Page 7

Heimskringla - 07.01.1931, Page 7
WINNIPEG 7. JANCAR, 1931 HEIMSKRINGLA 7. BLAÐSIÐA Þér senduð eftirm ér, Lynborough lá.varður?” Jarlinn stóð upp — Mr. Bolton hafði stokkið á fætur þegar hún kom inn — og stúlkan stóð þar teinrétt, studdi annari hendinni á borðið og horfði róleg, og næstum drottningar- leg á þá á víxl. ‘‘Já, já, Veróníka,” sagði hans há- göfgi, “viltu ekki fá þér sætl?” Mr. Bolton sótti stól handa henni og settist hún í hann, yndislega, eðli- lega, með fullkomnu sjálfsvaldi yfir hreyfingum sínum, sem við hyggjum '— réttilega eða ranglega — vera sér- gjöf þeirra, sem fæddir eru af tign- um ættum. Síðan beið hún róleg og alvarleg. “Veróníka, eg ætla að arfleiða þig að Wayneford og fjárupphæð — öllu, sem eg á, auðvitað.” Stúlkan sat grafkyr og þögul dá- litia stund. Mjög daufur roði færð- ist yfir andlitið. Jafn dauf undrun lýsti sér í yndislegu augunum henn- ar. “Ein hvers vegna?” sagði hún loks Þýðlega og með undrunarróm. “Hvers vegna eg arfleiði þig? Gott °g vel, eg gæti sagt að eg gerði það af þvi að mér þóknaðist það, — en eg segi öllu heldur af því að þú þókn- ast mér. Bíddu” — því að hún hafði opnað varir sínar eins og til þess a ðsegja eitthvað — “bíddu með að láta í ljósi þakkiæti þitt, kæra Ver- ónika. Það er með einu skilyrði, þvi vandi fylgir vegsemd hverri, eins og Þú veizt. Mér finnst hann ekki mik- ill, en Mr. Bolton er á annari skoð- un. Nú skulum við sjá, hvor okkar hefir rétt fyrir sér. Það er, að þú giftist manni af tignum ættum.” Hún varð hljóð við, og horfði í augu honum. Augnaráð hennar lýsti forvitni, en ekki undrun. “Þér finnst þetta heimskulegt skil- ýrði. Jæja, eg skal ekki neita þvi. í*ú getur kallað það sérvizku úr mér. En þetta er þó skilyrðið. Giftist tíg- Inbornum manni með aðal nafnbót — jafnvel þó ekki væri nema undir-bar- — og Wayneford og peningar mín- ir eru þín eign. Það er skilyrðið. Þitt er nú að taka boðinu eða hafna því ” Hún var algerlega róleg, roðinn hafði komið og horfið aftur af and- liti hennar og hún hnyklaði brýrnar óálítið. Hún var þögul fáein augna- blik — Mr. Bolton fannst það mjög langur tími — en sagði svo með lágri röddu, og virtist fremur segja það við sjálfa sig en jarlinn. “Wayneford — rík. Þá verð eg uijög rík?” “Svo segir Bolton, hann fer nær Um það,” muldraði jarlinn. Var sem hann óttaðist að trufla hana i hugs- unum sínum. “Þegar eg kom hingað,” hélt hún &fram i enn lægri tón, “hafði eg enga hugmynd um, hvað tign og félagslíf heldri manna var. Eg hafði verið fátæk. Þegar faðir minn dó, voru tæplega til peningar fyrir — fyrir út- för hans.” Jarlinn tók föstum tökum um brík Urnar á stólnum, sem hann sat á, og örættir komu á varirnar. “Eg vissi ekki, skildi ekki þá þýð- ingu, sem þeir hafa. Nú veit eg, að e£ er af Denbyættinni. Er frænka ýðar, Lynborough lávarðar —” Jarlin nhneigði höfuð sitt til sam- Þykkis. "Eg tilheyri göfugri ætt. E gátti eina utanhafnarskyrtu, þegar eg kom h’ngað. I gær sagði stúlkan mín, nð hún yrði að fá annað herbergi fyr- ir fötin mín, þau væru svo mikil. Eg hefi vagn, mína eigin hesta, þjóna til ^ess að þjóna mér, vini af minni eig- in stétt — eini kunninginn, sem eg &tti áður, var vinnustúlkan okkar. hefi allt, sem eg vil hendinni til rétta. En öllu þessu verð eg að slePpa, nema —’* Öún þagnaði. Augu beggja mann- anna hvíldu á henni; lögmaðurinn °rfði á hana með ákafri eftirvænt- inSu, en jarlinn með rannsakandi ná- hvæmni. Nema eg gangi að þessu skilyrði? Þér eruð ekki veikur, Lynbor- °u8:h lávarður, þér farið ekki að öeyja!” sagði hún með grátstaf i hverkunum. Hér er lækning við kviðsiiti Heimalækning sem allir geta nntuð við kviðsliti, slæma sem væga kostar ekkert að reyna það Það mun færa þúsundum manna af veiki þessari þjázt huggun, að vita til þess, að þeir geta sér að kostnaður lausu orðið aðnjótandi þeirrar lækn- ingar, er gerði Kaftein Collings heil- an heilsu af kviðsliti er hann hafði á tveim stöðum og lá rúmfastur í árum saman. Alt sem gera þarf til þess er að senda nafn yður og addressu til Capt. W- C. Collins, Inc., Box 98-K Water- town N. Y. Það kostar ekki cent, en getur þó verið ómetanlega mikils virði. Hundruðir hafa nú þegar skýrt oss frá að þeir hafi með þessu lækn- að sig með þessari fríu reynslu. Skrifið oss NC um leið þér leggið blaðið frá yður. “Hvenær sem vera skal. Vertu viss um það; að minnsta kosti segir dr. Thorne það ” Yndislegu augun hennar urðu þíð- legri og varirnar titruðu. “Ó, eg vona að þa ðverði ekki. Þér — þér hafið verið svo góður við mig!” “Þú hefir verið mjög góð við mig,” sagði hann og brosti. “Þú hefir gengið mér í /dótturstað.” Hún starði inn í eldinn um stund. Svo sneri hún sér aftur að honum og mælti: “Þvi eruð þér svona stoltur?” — Rómurinn var lágur. Jarlinnh ló, en sá hlátur var kold- ur. Frh. Sagan ókunna. Sléttumannasaga. I. Með þessari fyrirsögn er átt við sögu landsins, sem við, langflest hinna vestrænu Fjallkonubarna, bú- um nú á. Allir þeir, sem þessa grein geta á annað borð lesið, vita þá að minnsta kosti það um Island, að það á til einhverja sögu; ekki sízt þegar ný- búið er að koma hverjum einasta ung- lingi til að skynja það, að Island eigi til þúsund ára gamalt þing. I skólunum hér er líka talsvert að því unnið, að láta mönnum ekki fá að gleymast saga Englands, og það re auk heldur dálitlu til að dreifa, sem kallað er saga Canada, en vitanlega fylgir það að langmestu leyti þeim landshlutanum, sem nafnið átti út af fyrir sig fram að árinu 1867. Það vara fæstir sig á þvi, að norð- urhallinn á Ameríku, milli austur og vestur fjallanna, eigi svo sem nokkra sögu, nema þá síðan að Selkirk lá- varður byrjaði hér á nýlendustofnun fyrir liðugum hundrað árum. Þó er nú sannleikurinn sá, að hvergi, utan brezku eyjanna sjálfra, hefir enski fáninn jafnlengi blaktað yfir nokkrum bletti jarðarinnar eins og þeim, sem nú nefnist Manitoba- fylki. Hvort sem þetta atriði er nú sjálfu sér nokkuð merkilegt eða ekki merkilegt, þá er það sögulegt atriði samt, — og ekki óeðlilegt, að Mani- tobamenn festi sér það í minni, frem ur en þeir, sem annarsstaðar búa, og jafnvel láti sér verða það tilefni til þess, að vilja vita meira úr þeirri sögu, sem annars má nokkurnveginn með réttu heita sagan ókunna. Það er t. a. m. annað atriði, sem ekki er óeðlilegt að einhvern streng snerti í brjósti þeirra, sem þetta geta lesið, nefnilega það, að hinn hæst- virti sagnfræðingur hér vesturfrá, skuli nýlega hafa opinberað þá skoð- un sína, að hér við Rauðána hafi nor- rænir menn verið staddir árið 1362. Þetta er ekki prentvilla, þvi að ávarp sem flutt var hér í sumar á demants hátíðinni, sem miðaðist við 60 ár, var kallað “5 sinnum 60 ár af Manitoba- sögu” og hert á því í sambandi við ofangreint ártal, að nafn ávarpsins yrði að öllum líkindum réttara, ef því væri breytt í “10 sinnum 50 ár”. Ræðumaðurinn var David A- Stew- art, M.D., L.L.D., yfirlæknir við sjúkrahúsið i Ninette og forseti sögu- félagsins í þessu fylki. ósjálfrátt hvarflar íslenzkur hug- ur ofan ána, eftir vatninu út til fló- ans og áfram heldur hann að rekja sundin, að þvi sem grænlenzkt kynni að vera og seinast íslenzkt. Hvað hefir ekki getað komið fyrir á þrek- miklum æfintýramanna æfiferlum? En svo maður hverfi aftur að hinu sannsögulega upphafsatriði hinnar núverandi afstöðu þjóðfélagsins, verð ur að minnast ársins 1612. Það er að vísu 18 árum meira en 5 sinnum 60 ár að baki yfirstandandi stundar. En taki maður 200 árin (1670—1870), frá þvi Hudsonsflóa verzlunarfélagið hófst og þangað til Manitobafylki var skipulega sett á stofn, og skifti þeim árum í ríflega mælda þrjá slíka hluti, eins og dr. Stewart gerði í ávarpi sínu í sumar, þá hefir maður fyrsta kafl- ann frá 1612 framan við, og fimta kaflann upp að 1930, aftan við, og getur það orðið mönnum hægðarauki ef þeir vilja setja á sig tímarorð at- burðanna. Það var sem sé tveimur árum síðar en Henry Hudson fann flóann, sem eftir honum er nefndur, að enskur skipstjóri, , Thomas Button að nafni, sigldi skipum sínum “Discovery” og “Resolution”, alla leið vestur þangað sem nú heitir York Factory, og dvaldi þar vetrarlangt. Hann gaf ánni nafn ið Nelson, eftir yfirmanni sínum, og hóf enska fánann á stöng, reisti . krossmark og helgaði Bretum land - ið. Allt var þetta nú samt eiginlega óviljaverk, eða að minnsta kosti aukageta við aðalerindið, þvi skip- stjóri var gerður út til þess af kaup- mannafélagi i Lundúnum, að sigla þessa leiðina til Austurlanda. Það var i þá daga fest svo óbifandi trú á þvi, að um sjóleið væri að ræða norð- an við Ameríku, að menn ætluðu aldrei að hætta við að fara sér þar að voða, hvað margir sem týndust í þeim leiðangrum. Þessi Thomas Button hafði með sér bréf frá kon- ungi sínum, “til keisarans i Japan eða hvers annars austræns þjóðhöfð- ingja, sem fundinn verður”. Sýnir það að margt fer öðruvisi en ætlað er, að þessi óframkvæmanlegi bréf- burður (1612) skyldi verða upphafið að sögu allrar þeirrar landsviðáttu, sem liggur milli Hudsonsflóans og Klettafjalla. Þessi verzlunarferða-fýkn vestur í Austurveg, þurfti um þær mundir víða við að koma. Kristján fjórði Danakonungur gerði út þann leiðang- urinn, sem Jens Munck var fyrir, og voru 64 menn á tveim skipum, “Uni- com” og “Lampsey”. Þótt norrænir menn kunni að hafa farið um Nelson ána, áður en Thomas Button gaf henni nafn, og að hann hafi þvi ekki verið allra hvítra manna fyrstur til að stiga fæti á land í þessu fylki, þá er hitt nokkuiinveginjn áreiðanlegt, að þessir 64 dönsku menn, eru fyrstu hvítu mennirnir, sem opnað hafa það, sem nú er að verða norðurdyrnar á Ameríku, og glæstastan er nú að fá sér dyraumbúninginn gerðan. Jens Munk og skipshafnir hans dvöldu veturinn 1619—20 þar sem nú heitir Churchill. Þeir nefndu ána trtlend- ingafljót (River of Strangers, i ensk- um ritum); en eftir þeirra burtför var hún lengi kölluð Danafljót (Dan- ish River). Það gengur enn sú saga að þeir hafi á jólum haft messugerð, þvi prestur var í förinni. Segist enskum mönnum svo frá, sem von er, eftir þeirra kirkjusiðum, að sam- skot hafi verið tekin við messuna, en af þvi lítið hafi verið um peninga í förinni, hafi samskotin verið í hvít- um tófuskinnum til þess að fóðra með þeim kápuna prestsins. A pásk um var presturinn og mestur hluti skipshafnanna dáinn úr skyrbjúg, og fjórir gátu þá setið uppi til að hlýða á fyrirliða sinn lesa lesturinn. Það voru þrír af þessum mönnum eftir á lífi, þegar komið var fram 1 júnímánuð og sjór orðinn svo fær, ' að þeir gátu siglt smærra skipinu aftur til Danmerkur. Hinn danski lútherski prestur með sinum sextiu safnaðarmönnum, sem eftir urðu við Crtlendingafljót, hafði fyrstur orðið til þess að vígja hvítum mönnum mold- ina I Manitoba, með beinum sinum. Og allt þetta var um garð gengið hér í Manitoba, þegar skipshöfnin á hinu nafnkunna “Mayflower”, þá um haustið kastaði akkerum við Ply- mouth Rock, og nokkur veruleg saga Bandaríkjanna byrjar. II. Hvíta tóuskinnssagan er að minnsta kosti tákn aldarandans, sem þá fór i hönd. En það væri löng saga að segja greinilega frá því, hvernig hon- um var varið og hversu hann var til kominn. Frá alda öðli allra byggða bústaða hafa menn treyst á fénaðinn og fisk- inn í sínum heimahögum. Þvi til við- bótar hefir hvergi á jörðinni þurft nema tiltölulega stutt að fara til kornkaupa, hafi brauðsefnið ekki ver- ið til heimafyrir; og um húsagerðar- efni og efni til almennra áhalda, má hið sama segja. En þegar til krydd- metis og skrautgripa kemur, er öðru máli að gegna. Velgengni gróða- mannsins hefir frá ómunatíð byggst á þvi, að hafa þann varning í fór- um sínum, og í sem allra margflókn- ustu kringumstæðum, getað fengið hann fyrir sem minnst og selt hann fyrir sem mest. Lögmálið er hið sama í gegnum allt það, sem verzlun heitir. Snilldin, þegar hún nær há- marki sinu, er og hin sama: að æsa ílöngun og hagnýta sér svo hvað sem í aðrah önd er að hafa, en fá nógu mikið af því. Þetta hefir hvergi orð- ið svo uppvíst sem í hvítra manna verzlun í vililmannalöndum; en af þeirri verzlun höfðu germanskar eða norrænar þjóðir lítið að segja fyr en á 17. öld. Síðan þeir slógust í þann leik, hefir Ameríka verið glímuvöll- urinn mikli; en tildrög þess ástands má rekja af glöggum kennimerkjum tvö hundruð ár aftur fyrir þann tíma oð vitanlega lengra aftur, ef út í það er farið. Víkingsandinn í norðrinu hafði lát- ið það vel að beizli kaþólskunnar, þó hann taumaþræll væri, að hann um langan aldur glataði nokkurnveginn sjálfum sér og sjómennskunni, og lét Vínland og Grænland algerlega týn- ast. Hann vaknaði loksins aftur, í upphafi 15. aldar, þar sem yrringun- um láðist mest að varna þess, að finna sjálfan sig, og rankaði þá fyrst við sér í Hiniriki "sæfara”, Portúgals- manna konungi. Að hans dæmi þreyttu menn alla þá öld við það að finna skipaletð til hinna austlægu Asíulanda, því úrslit krossferðanna höfðu mikið til lokað þeirri landleið, sem perlusalarnir höfðu alla sína tið farið, með skrautmuni sína og ann- að góðgæti þaðan að austan; og lásn um mátti heita smellt til fulls fyrir þá leið, þegar gríska keisaraveldið féll og Tyrkir settust að i Konstan- tinopel árið 1453- Það var smiðshöggið; og sú lif- andi prangarakeðja, sem um ótal ald- ir hafði lagt það eitt' fyrir sig, að rétta þeim næstu, frá úlfalda til úlf- alda, alla leið vestan frá Atlants- hafi og austur til Kyrrahafs, og aft- ur til baka sömu leið,—hún varð nú eitthvað úr að ráða. Þörfin kennir mönnum rannsóknir hverjum í sinni grein. 1 öllu var grúskað, um allt spurt. tslendingar fóru ekki varhluta af þvi fremur en aðrir, að segja, hvað þeir vissu til að vestast væri. Þeir voru þá vestastir sjálfir, svo að al- mennt væri kunnugt, og þessi hnýsni til vesturáttar var eins gömul eins og grískir trúarbragðadraumar um eyjalönd sælunnar í vestri. Góð ráð voru dýr — fyrir einhvern. Isabella Spánardrottning veðsetti demanta sína og Columbus fann aftur Vínland. En landafundurinn skifti ekki mestu fyrir forlög mannkynsins, þeg- ar Ameríka fannst aftur. Það var gullfundurinn. Gullið var ekki einungis niðri i jörðinni, eins og áður var sumstaðar búið að finna það. Gullið var ofan- jarðar — öll óskapa skelfileg kynst- ur af gulli ofanjarðar, — bara í hönd unum á lituðum mönunm, og ekkert fyrir þvi að hafa annað en að taka það af þeim — villi mönnunum. Enginn stærri atburður hafði nokk urntíma komið fyrir á æfiferli mann- kynsins, annar en sá fyrir óralöngu að taka upp á því að notfæra sér eldinn, og með því greina sig að lifn- aðarháttum frá öllum öðrum dýrum á jörðinni. Það hófst smám saman í nýjum búningi — sem við núorðið köllum bankakerfi, — ný aðgreining allra hluta sem mennirnir hafa með höndum. Gullið eitt gildir sem auð- ur, hver einasta lífsnauðsyn og sér- hver uppspretta hennar, að meðtöldu mannviti og uppfyndingagáfum þess. ^ 1 N laf ns PJ iöl Id Dr. M. B. Halldorson 401 Boyd Bldf?. Skrifstofusíml: 23674 Stund&r sérstaklega lungnasjúk- dóma. Kr atJ flnna á skrifstofu kl 10—12 f. h. og 2—6 e. h. Heimlll: 46 Alloway Ave. TalMfml: 3315S DR’ A. BLONDAL 602 Medical Arts Bldg. Talsími: 22.296 Stundar sérstaklega kvensjúkdóma og barnasjúkdóma. — AtJ hitta: kl. 10—12 ♦ h. og 3—5 e. h. Helmlli: 806 Victor St. Simi 28 130 DR. B. H. OLSON 216-220 Medlcal Artm BldfC. Cor. Oraham and Kennedy St. Phone: 21 834 VitJtalstlmi: 11—12 og 1_6.30 Heimili: 921 Sherburn St. WINNIPEG, MAN. Dr. J. Stefansson 216 MRDICAL A RTS BLDG. Hornl Kennedy og Graham Stundar elnKdnffu aurtna- eyrna • nef- or kverka-ftjtlkdóraa Er atJ hitta frá kl. 11—12 f. h og: kl. 3—6 e. h. Talnlmi: 21S34 Helmill: 688 McMiH&n Ave. 42691 Talafml: 28 HHO DR. J. G. SNIDAL TAHNLÆKNIR 614 Somerset Block Portaire Avenue WINNIPEG DR. K. J. AUSTMANN Wynyard —:— Sask. HEALTH RESTORED Lækningar án lyfja OR. S. O. SIMPSOIV, K.D., D.O., D.O. Chronic Diseases Phone: 87 208 Suite 642-44 Somerset Blk. WINNIPEG —MAN. verður lægri og lægri auðvaldsins undirlægja. Þvi mikilsverðara sem gullið þykir, þvi minna er vert um allt annað en það. Þetta er lykill- inn að öllum þeim ritverkum mann- anna, sem þeir kalla auðfræði. Það var sú tíð, að ein dýrindis perla, var hæsta dæmi, sem hægt var að vitna til, en það hætti, þegar perluleiðinni var lokað. Kirkjan úrskurðaði Portúgal og Spáni heimild til þessara villimanna- landa, sem fundist höfðu, og því meir sem auðurinn hrúgaðist upp har syðra, því meira ofríki var beitt við þjóðirnar fyrir norðan- Loksins þoldu þær ekki mátið, og fyrir munn þeirra allra varð Marteinn Lúther fyrstur til að tala. Þess vegna fékk þessi glima á sig i upphafi trúar- bragðastríðsblæ, og upp úr þeim glæð um gusu logarnir til og frá, í ölum þeim löndum, í nærri tvö hundruð ár. Þessar norðurþjóðir höfðu þvi lengi vel öðru að sinna en Amerikuferð- um, enda fyrst í stað ekki leyfisverð- ar fyrir þeim, að svo miklu leyti sem þær tóku nokkuð kirkjunnar úrskurð tl greiina. En smám saman var eins fyrntist yfir þá hugsun. Frakkar höfðu lengi fiskinn elt; fyrst til Is- lands, svo til Nýfundnalands; sein- ast inn að eyjunni Anticosti. Loks- ins fóru sjómennirnir að taka konurn ar með sér og nýlenda byggðist í Acadiu, sem nú heitir Nova Scotia: og að lokum inn í Quebec. Það voru ekki orðnir fiskarnir einir í sjónum til að sælast eftir, heldur líka feld- irnir á landi. Og þá byrjar önnur hríðiiL. Það fer vel á þvi að tákn hennar sé hvítur feldur. Norðriuu hæfir það vel, að liturinn sé likur snjónum, þó á hann falli. I suðrinu hafði táknið verið gyllt. Frh. G. S. THORVALDSON B.A., L.L.B. Lögfrœðingur 702 Confederation Life Bldg. Talsími 24 587 WALTER J. LINDAL BJÖRN STEFANSSON lslenzkir lögfræOingar 709 MINING EXCHANGB Bldg Simi: 24 963 356 Moin St. Hafa einnig skrifstofur at5 Lundar, Piney, Gimli, og Riverton, Man. Telephone: 21613 J. Christopherson. Islenskur LögjrœSingur 845 SOMERSET BLK. Winnipeg, :: Manitoba. A. S. BARDAL selur llkktstur og ann&st um útfar- tr. Allur útbúnatSur sá bestt. Knnfremur selur hann allskonar minnisvarba og legstelna. 843 SHERBROOKE ST. Phone: 86 607 WINfíIPBG Biömvin Guðmundson A. R. C. M. Teacher of Musíc, Composition, Theory, Counterpoint, Orchet- tration, Piano, etc. 555 Arlington SL SIMI 71621 MARGARET DALMAN TEACHER OF PIANO 8M BANNING ST. PHONE: 26 420 Ragnar H. Ragnar Pianókennari hefir opnað nýja kenslustofu að STE. 4 NORMAN APTS. (814 Sargent Ave.* TALSIMI 38 295 TIL SÖLU AÖDÍRU VEHOI “FURN ACEM —bætJI vtUar og kola “furnace” lftlH brúkatl, ar UI sölu hjá undlrrituttum, Gott tæklfærl fyrlr fólk út á landl er bæta vtlja hltunar- áhöld á hetmillnu. GOODMAN A CO. 786 Toronto St. Slml 28847 Jacob F. Bjarnason —TRAN SFER— BaKgage and Furnltare MotIbk 762 VICTOK ST. SIMI 24.500 Annast allskonar flutninga fram og aftur um bæinn. 100 herbergl meb eöa án baBa SEYMOUR HOTEL vertt sanngjarnt Slml 28 411 C. G. HUTCHISON, eigandl Market and Ktng St., •> Wlnnlpeg —:— Man. MESSUR OG FUNDIR ( kirkju SambandssafnaSar Messur: — á hverjum sunnudegi kl. 7. e.h. SafnaSarnefndin: Fundir 2. of 4. fimtudagskveld í hverjuaa mánufii. Hjálparnefndin: Fundir fyrata mánudagskveld i hverjum mánufii. KvenfélagiS: Fundir annan þriVju dag hvers mánaCar, kl. S afl kveldinu. S'öngflokkuri**: Æfingar i hverju fimtudagskveldi. Sunnudagaskólinn:— A hverjum sunnudegi, kl. 11 f. h.

x

Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.