Heimskringla - 28.01.1931, Qupperneq 5
WINNIPEG 28. JANÚAR 1931.
HEIMSKRINGLA
5 BLAÐSIÐA
BENNETT OG
STJÓRNARBÍLARNIR.
Rt. Hon. R. B. Bennett,
stjórnarformaður Canada, hef-
ir lýst því yfir, að stjórnarbíl-
arnir, sem fyrir mörgum árum
var byrjað að kaupa ráðherrum
Ottawastjórnarinnar til afnota,
verði seldir, og stjórnin ætli
framvegis ekki að standa
straum af notkun þeirra, eins
°g gert hefir verið um mörg
undanfarin ár.
Bílar þessir eru allir af dýr-
ustu tegund, svo sem Cadillacs,
Packards og Paiges o. s. frv.
Verða þeir við hamarshögg
seldir við lok fjárhagsársins,
sem er 31. marz.
Þetta bílaúthald stjórnarinn-
ar hefir verið all kostnaðarsamt.
Uni 17 ráðherrar og eins marg-
fr aðstoðarráðherrar höfðu
þessa ódýru bíla eða hitt þó
heldur, til snúninga. Hafði
hver þeirra sérstakan bílstjóra,
arinnar að nota bíl í stað járn-
brautanna, sem stjórnarþjónar
ferðast með án endurgjalds,
mætti þá leigja bíl. En auðvit
að er notkun bílanna að mestu
í eigin þágu ráðherranna. Og
þess eru ekki allfá dæmi, að
einn ráðherra hafi tvo slíka bíla
blátt áfram til þess að skemta
sér og fjölskyldu sinni í og vin-
um. Til þess að ná í þá, þurfti
ráðherrann ekki annað en að
láta óánægju sína í ljósi með
bílinn, sem hann hafði, og þá
var dýrari og fegurri bíll keypt-
ur handa honum með hinum.
Og því ekki? Stjórnin borg-
aði brúsann!
Einn ráðherrann ferðaðist
sér til skembunar og fjölökyldu
sinni á einu ári um 40,000 míl-
ur. Er það sæmilega gott
dæmi af því, hvað þetta var
farið að ganga langt.
Það var á stríðsárunum, að
byrjað var á þessu. En á stjórn-
arárum Kings fór þetta að
keyrá fram úr öllu hófi, og bíl-
setja það neitt fyrir sig, þótt
ráðherrum hans finnist þeir
sviftir þægindum, sem fyrir-
rennarar þeirra nutu, og hann
hefir ákveðið að leggja málið
fyrir næsta þing til staðfesting
ar.
TÍMARIT.
sem stjórnin varð að borga
kaup, auk viðgerða, gaseyðslu arn>r voru alltaf að verða dýr-
og geymslu á bílunum. Er ! ari °S dýrari, sem keyptir voru
sagt að kostnaðurinn, með! handa stjórnargæðingunum.
voxtum af höfuðstólnum, sem
í þeim liggur og viðhaldi, hafi
mimið allt að því $100,000 á
ári.
Það er mælt að forsætisráð-
herran hafi um langt skeið
gefið þessari eyðslu á stjórnar-
innar fé óhýrt auga. Honum
fannst, eins og eflaust fleirum,
að ef ráðlierrana fýsti að hafa
bíla til ferðalaga, þá gætu þeir
keypt þá sjálfir, eða væri það
ekki meiri vorkunn en öðrum.
Ef endilega þyrfti í þarfir stjórn
Sjálfur kvað Bennett varla
nokkru sinni nota þessa bíla.
Það mun enginn efi á því,
að þessi stefna Bennetts. mæl-
ist vel fyrir. Það mun fleirum
en honum virðast sanngjarnt,
að ráðherrarnir borgi fyrir sína
eigin bíla og notkun þeirra, í
stað þess að demba kostnaðin-
um af því á landiö. Hitt er auð-
vitað vafamál, hvað ráðherrun-
um finnst um það.
En Mr. Bennett kvað ekki
Be Among the First to Wear
Advance Spring
- DRESSES -
Obviously New in
Style and Fabric —
Low Prices
$12'95 $15-95
$1925 $22-50
and up
Fashions as new as new-
buds.....the color themes
are superb ...... printed
and pastel shades .......
Jacket Effects .... Geor-
gettes, Canton and Flat
Crepes, Chiffons, etc. —
Sizes 13 to 44.
Pay a Few
Dollars Down
Wear your garment im-
mediately — pay balance
weekly or monthly.
EASY
TERMS
AU Our
Fur and
Fur-Trlmmed
COATS
At Unexpected
REDUCTIONS
KING'S™
“The House of Credit”
396 PORTAGE AVE.-Open Saturday till 10 p.m.
Þessi tímarit hafa borist
Heimskringlu:
Eimreiðin XXXVI. ár, 4. h.
Mjög fróðleg og skemtileg að
vanda. Efni:
Hannes Guðmundsson: Holds
veiki nú á tímum (6 myndir) ;
Sigurður Skúlason: Islenzkar
særingar; Sveinn Sigurðsson
Geimfarir og gosflugur; Ársæll
Árnason: Hérar (2 myndir);
Kristín Matthíasson: Dr. Annie
Besant og stjórnmálin (mynd) ;
Sveinn Sigurðsson: Frá landinu
helga (12 myndir); Halldór
Kiljan Laxness: Saga úr síld-
inni; Davíð Þorvaldsson: Biðin
(saga); Thomas Coulsson:
Rauða dansmærin (sönn saga
frá ófriðarárunum) ; Kvæði eft-
ir Jóhannes frá Kötlum, Jónas
A. Sigurðsson og Guðmund
Böðvarsson; Ritsjá eftir Guðm.
Finnbogason, Richard Beck,
Jóh. Sveinsson og Svein Sig-
urðsson o. fl.
• • *
“Perlur’’, 5. til 6. hefti. —
Efni:
Á Eyjafjallajökli (mynd);
Kristinn Pétursson, grein eftir
Sig. Einarsson (2 myndir); Slút
nes, Grein eftir Jóhannes Óla
kennara (2 myndir) ; Þorkell í
Hraunadal, kvæði eftir Jón
Magnússon (með mynd); “Á
siglingu’’ heilsíðumynd eftir I.
Knudson; Jólasveinninn, saga
eftir Stefán frá Hvítadal (með
mynd); Fyrsta skriftabarnið,
saga eftir J. O. Curwood (með
mynd); höfðingskonan í Efes-
us, saga eftir Arbiter (með
mynd) ; Snjótitlingurinn, kvæði
eftir Jónas Thóroddsen; Sagan
af Gunnhildi, eftir Pelle Molin
(með mynd) ; Hamingjan, þýtt
kvæði af Magnúsi Ásgeirssyni;
Frosið vatnsfall, heilsíðumynd;
Tvenn jól, grein eftir Guð. Ein-
arsson frá Miðdal (með 5 mynd-
um); Frægur sigur, kvæði
þýtt af M. R.; Eins og gengur,
kvæði þýtt af Magnúsi Ásgeirs-
syni; Trúðleikarinn, saga eftir
Anatole France (með mynd);
Flækingur, kvæði eftir Sig. Ein
arsson (með mynd); Jólafrið-
ur, saga eftir Jóhannes Frið-
laugsson frá Fjalli (með mynd)
Ilin fallna, kvæði eftir Sigur-
jón Guðjónsson; Tal og tónar,
um leiklist eftir E. O. S. og A.
G.’Þ. (með 6 myndum); Sól-
mey mín, saga eftir T. Vesaas
(með mynd) ; Kímni, saga með
mynd.
Eins og sjá má af þessu efn-
isyfirliti, eru Perlur afar fjöl-
breytt rit að efni og læsilegt,
og ber þó hitt af, hversoi fagur
frágangur er á því öllu og vel
valdar myndir. Ritið er einn-
ig mjög ódýrt eftir stærð, að-
eins $2.50. Það má panta það
hjá Magnúsi Peterson, 313 Hor-
ace St. Norwood.
SLITUR
Menn héldu, að um langa framtíð
mundi vera vitnað til Tennesaee-
ríkis í Bandaríkjunum, þegar um
eindæma lagagerð er talað, af
heimskulegu tagi. Verður þó hér-
eftir e. t. v. krýningin tekin frá
því riki fyrir endemi í lagatilbún-
ingi, og heiðurinn iatin skína yfir
Missisippi-ríki, og er tilefnið lög-
gjöf, sem borgarráðið í Laurel er að
reyna að fæða af sér, og sem vænta
má að verði til þess að auglýsa
borgina betur út um heim, en verzl
unarráð og fasteignabraskarar væru
I megnugir að koma í framkvæmd.
| Fér hér á eftir þýðing,' er lýsir þessu
nýja undri í lagagerð, — samþykkt,
er gerð var á bæjarráðs fundi
j Laurel, 29. des. s. 1., og málið þar
með afgreitt tll' þriðju umræðu:
"Frumvarp til laga, til stuðnings
framförum, velmegun og hamingju
í Laurel-borg, í Jones-héraði í Mis-
sissippi, og ákvæði um hegningu, ef
útaf er brugðið:
Borgarstjórnin og bæjarráðið i
Laurel gerir svofellda samþykt, sem
lög fyrir borgina:
1 gr.
Það er ólöglegt fyrir nokkurn
einstakling, á kvaða aldri, sem ^er,
hvaða kyni eða hörundslit, sem hef-
ir atvinnu eða á kost á atvinnu,
eða hefir lífsframfæri á einhvern
hátt, að tala, gefa í skyn eða
láta á sér skilja eða hugsa*), að
iðnaðar-, fjármálalegar eða þjóðhags
legar kringumstæður, séu eða muni
verað slæmar.
2 gr.
Það skal vera skilda lögreglunnar
i Laurel, sem heyrir slíkt tal, beint
eða óbeint, frá einhverjum einstakl-
ingi, sem kemur undir þá sundur-
liðan, sem að ofan getur, eða sér
einhverja manneskju brjóta í bág
við þessi lög, svo sem með fram-
komu, sem ekki ber vott um glað-
legt yfirbragð og ánægju, þá skal
sá lögregluþjónn — eða þjónar,
skipa þeim einstakling að blístra
fimtán takthluta af “Glory, Glory,
Halleiujah”, og stíga tafarlaust dans
í fimtán mínútur. Láti hinn brot-
legi ekki segjast við slíka skipun og
hlýði henni nákvæmlega, er viðkom-
andi lögregluþjón eða þjónum fyrir-
'agt og gefið vald til að skjóta
hinn seka.”
Lýgilegt ?!
Já, satt er það lesari; lýgilegt
er þetta. Og því var það, að eftir
að hafa lesið þetta innan tilvitun-
ar merkja í blaði er mér barst i
gær, að eg skundaði á fund rit-
stjórans, og spurði hann um heim-
ildir fyrir fregninni. Hvaðst hann
hafa tekið hana upp eftir Banda-
ríkjablaði, og dr^g ekki í efa að
sönn væri.
En svo vitlaus, sem þessi laga-ó-
skapnaður er, hnígur þó andinn 1
honum að þeim farveg sem kúg-
unarvald auðs og óstjórnar bakka-
fyllir, til drekkingar hverju and-
varpi stritandi lýðsins, sem ekki
getur áhyggjulaus soltið fyrir of
mikla fæðuframleiðslu, eða ‘ bros-
andi kyst hendur þeirra böðla, er
bjargræðið draga úr búi bóndans og
ekki viðurkenna að “verður sé verk-
amaðurinn launa sinna”. —
Asgeir I. Blondahl.
Saskatoon, 23. jan. 1931.
STÚRKOSTLEG T PPGÖTVUN
A SVI»I RAFMAGNSFRÆÐI.
Enska verkamannablaðið Daily
Herald skýrir nýlega frá stórmerkri
uppgötvun á sviðj rafmagnsfræðinn-
ar, sem rússneskur prófessor, að
nafni Kapitza hefir gert. Kapizta
hefir gert tilraunir sínar í Cambridge
á Englandi.
Tilraunir prófessorins og niður-
stöður hans þýða hvorki meira ué
minna en stórfellda byltingu á svjði
rafmagnsframleiðslu og notkunar.
Munu umbætur hans til dæmis hafa
það í för með sér, að rafmagn verður
miklu ódýrara í notkun en það hef-
ir verið.
Kapitza hefir tekist að framleiða
geysihátt kuldastig, og er kuldinn
miklu meiri en áður hefjr þekkst.
Þegar kuldi þessi er færður í raf-
magnsleiðslur, leiða þær rafmagnið
sterkar og öruggar en áður, en það
hefir það í för með sér, að hægt er
að framleiða miklu meira rafnmagn
með sömu aflstöð og áður og straum
urinn verður sterkari og því ódýrari.
Enskir vísindamenn hafa látið það
áljt sitt í ljós, að ef með þessu móti
sé hægt að minnka mótstöðuafl
málmsins á leiðslum, þó ekki væri
inn er studdur af stærstu vísindafé-
hafa geysiþýðingu bæði fyrir vísind-
in og rafmagnsnotendur.
Kapitza prófessor hefir við tilraun
ir sínar hingað til notað verkfæri
sem framleiddi fljótandi vatnsefni
(Brint), en hann er nú að búa til
verkfæri, sem getur framleitt fljót-
andi sólmálm (Helium). Prófessor-
um meira en 5 prósent, myndi það
lögum Stóra Bretlands, m. a- Royal
Society.
Leturbreyting mín. Á. I. B.
Mannskaðinn á togaranum “Apríl”
Ennfær þú, móðir, offrið þungt að gjalda.
Enn táraflóðið hafsins vekur alda.
Roðið er blóði banasverðið kalda.
Burt missir þjóðin átján syni valda.
Opið er skarð í íslands þjóðarskildi.
Enginn fær metið skaíSans fulla gildi.
Sjóhetjur vorar hinnstu heyja hildi.
Höndin almættis þann veg ráða vildi.
Kaldan við boðskap bliknar gleði-sólin.
Bræður og systur! Nú nm þessi jólin
bló mvonar kremur aðhert angurs-ólin,
upp stígur klögun fyrir náðarstólinn.
Kaldir þótt hvílið, unnar armi vafnir,
ástvinir kæru, hafs á botni grafnir.
Sælunnar ljóma landið fyrir stafni
lítið þið nú, of jarðlífsraunir hafnir.
Alvaldur guð, sem græðir allra sárin.
Gef huggun, frið þeim, angurs nístir ljárinn!
Strjúk af brá hverri blóðug saknaðstárin!
Blessaðu hvíld, þars kaldur liggur nárinn!
Straumhvörfin sorga stilltu, faðir hæða!
Staðv blóðund, sem vina-hugi mæða!
Sól þinnar náðar mildast megi græða
mannraunaspor, sem fjöldinn verður þræða.
20. des. 1930.
ólafur Vigfússon.
—AlþýðublaSið.
Danskir blaðamenn hafa spurt
rafmagnsfræðinga óg aðra vísinda-
menn um álit þeirra á þessari merku
uppgötvun, og hefir einn þekktasti
þeirra, Holstein Rathau, látið álit sitt
í Ijós með þessum orðum:
“Eg hefi ekkert heyrt þessa rúss-
neska vísindamanns fyr getið. En
frásögn Daily Herald er mjög lík-
leg. Vísindamenn hafa áður vitað,
að rafmagnsleiðslur, sem voru mjög
mikið kældar, leiddu sterkari straum
en aðrar. Ef þessi rússneski visinda-
maður getur notað fljótandi’ sól-
málm (Helium), er liklegt að honum
takist að ná mesta kulda, sem hægt
er að fá, sem er það kuldastig, sem
er fyrir utan gufuhvolf hnattanna
(ætheren), en það er 272 stig (C?).
Ef þetta tekst verður hægt að fram-
leiða næstum ótakmarkað rafmagn
með miklu minni vélum en nú er
gert.”
Alþbl.
SAMKEPPNI f FRAMSÖGN.
Samkeppni Fróns í framsögn verð-
ur haldin í efri sal Goodtemplara-
hússins þann 16. febrúar. Þetta er
þriðji veturinn, sem Frón hefir þessa
samkeppni, og er óhætt að fulyrða.
að ekkert til viðhalds íslenzkri tungu
hefir vakið eins mikinn áhuga með
al barna og unglinga. Allar und-
anfarandi samkeppnir hafa tekist
frábærlega vel, og er vonandi að á-
hugi fólks verði ekki minni í þetta
sinn. Eg leyfi mér að setja reglu-
gerð þá," er fyrst var samin fyrir
þessa samkeppni Fróns:
1. Samkeppni þessi er aðallega til
að efla viðhald islenzkrar tungu á
meðal upp vaxandi barna vestan
hafs-
2. Skal samkeppni þessi haldin und
ir umsjón deilda Þjóðræknisfélags-
ins, þar sem þær eru, en annars
skulu valin félög eða einstaklingar,
þar sem engar deildir eru.
3. Unglingar upp að 16 ára aldri
mega taka þátt í samkeppninni.
4. Engin takmörk skulu sett um
efni eða lengd kvæðanna.
5. Tvenn verðlaun skulu veitt:
silfur- og bronzmedaliur.
6. Þeir er vinna silfurmedalíu,
mega taka þátt í samkepipni fyrir
gullmedalíu, er haldin skal á þingi
Þjóðræknisfélagsins-
7. Skal stjórnarnefnd Þjóðræknis-
félagsins hafa umsjón með veitingu
verðlauna, eða skal skipa nefnd til
að sjá um þetta starf.
8. Þrír dómarar, valdir af þeim er
hafa umsjón með samkepninni á
hverjum stað, skulu dæma verðlaun
samkvæmt eftirfarandi reglum.
a) Fyrir islenzkt málfæri og fram
burð 45 mörk; b) skilning á efni 40
mörk, og c) framkomu 15 mörk-
Fyrir silfurmedalíu samkeppni
Fróns er bömunum skift í þrjár
deildir: böm innan 8 ára; frá 8—12
ára og frá 12—16 ára. Þau þrjú
böm er hljóta silfurmedaliu, taka
þátt í samkeppninni um gullmedalí-
una á þingi Þjóðræknisfélagsins. Ef
deildir út um byggðir eða önnur fé-
lög geta ekki komið á samkeppnt,
er mjög æskilegt að böm utan af
landi gætu komið til Winnipeg og
tekið þátt í samkeppni Fróns.
Þetta er starf fyrir unglinga sem
má ekki leggja niður, og ættu sem
flestir að velja sér kvæði nú þeg--
ar og undirbúa sig.
Fyllið salinn þetta kvöld ,landar,
og sýnið með þvi áhuga ykkar tií
bamanna.
B. E. J.
MANITOBAÞINGIÐ.
Fylkisþing Manitoba kom saman
i gær. 1 hásætisræðunni er minnst
á þessi mál: Lántöku í sambandi við
verk þau, sem gerð em til þess að
útvega atvinnu; lánveitingu til Ma-
nitoba Cattle Loan félagsins i þeim
tilgangi, að bændum verði lánað fé
til skepnukaupa; á lækkun sveitar-
skatts; á stofnun nýrrar stjómar-
deildar, er verkamanna- og iðnaðar-
mál á að annast; um nýja kjördæma-
skiftingu; á kosningu nefndar i sam-
bandi við breytingar á fylkislögun-
um. Ennfremur er bent á að fjár-
málareikningarnir verði brátt lagð-
ir fyrir þingið.
FJÆR OG NÆR
Fundarboð
Arsfundur hins íslenzka Sam-
bandssafnaðar í Winnipeg verður
haldinn að aflokinni guðsþjónustu,
sunnudagskvöldið 1. og 8. febrúar
n. k. í kirkju safnaðarins á homi
Sargent og Banning St.
Verða lesnar upp skýrslur ýmsra
félaga innan safnaðarins, lagðir fram
endurskoðaðir reikningar kirkjunn-
ar, kosið í nefndir og önnur mál
safnaðarins útkljáð.
Æskilegt er að sem flestir sæki
fundinn.
Ritari.
• • *
Leiðrétting.
I grein minni “Slitur,” er birtist
í Heimskringlu 21. janúar eru fáein-
ar prentvillur; þessar meinlegastari
(Rockham) -á að vera (Rock-
haven). — Physical deild,------á aS
vera: — physical drill.
Skelfingu af harmi á að veras
skelfingu og harmi.
A- I. B. T
» • •
Stúkan “Liberty” I. O. G. T.
heldur dans mánudagskvöldið 2.
febrúar n. k. í Goodtemplarahúsinu.
Inngangur 35c. N. Bardal Orchestra
spilar fyrir dansinum. Hvergi betri
skemtun í bænum þetta kvöld.
Fjölmennið.