Heimskringla - 11.02.1931, Side 3
WINNIPEG, 11. FEBRCrAR, 1930.
HEIMSKRINCLA
3 BLAÐSIÐA
Ef í nauðimar rekur.
Ræðumaður skýrði frá þvi, að í
för þessari hefði þeir með sér nokkra
isnafra (sbr. nafar tröllskessunnar
i “Búkolla”!), ef svo illa skyldi vilja
til, að kafbáturinn festist eða stöð-
vaðist undir ísnum, og að hætta
væri á loft-skorti. Með borum þess-
um má bora gegnum alt að 15 m.
Þykkan ís. Og þar eð ísinn venju-
lega er að eins 3—4 m. á sumrum.
*tti þetta að vera örugt. Eru bor-
ar þessir bæði fyrir handafl og
vélafl. Sá gildasti er 60 cm. að
þvermáli, og verður því gatið svo
vítt, að skipverjar geta farið um það
upp á ísinn.
Bent hefir verið á, að kafbáturinn
gæti óvænt rekist á land (neðan-
sjávar). Það er einmitt með það
íyrir augum, að hljóðvarpstækið
(áðurnefnda) verður sett í kafbát-
inn, og verður því eigi sérlega mikil
hætta á ferðum 1 þessa átt. Pól-
hafið er djúpt, 4—500 m. Og skyldi
báturinn hitta fyrir grynningar, er
ætíð hægt að fara gætilega.
Til hvers er förin gerð?
Um það spyrja margir og telja
för þessa tilgangslausa og fásinnu
eina. Vil eg því þegar benda á, að
eftir mínu áliti er tilgangur farar-
innar mjög viðtækur og merkilegur:
Að rannsaka til hlítar strauma Pól-
hafsins. Nansen sannaði fyrstur
manna, að Pólhafið er mjög djúpt,
en það héldu engir áður. Einnig
fræddi Nansen oss um, hvernig rás
sumra strauma væri þar nyrðra-
í’ar gengur Golfstraumurinn norður
á við djúpt í hafi, en kaldur yfir-1
horðsstraumur heldur suður haf.
í>etta er í rauninni alt og sumt,
sem vér vitum um þessi atriði, og
það er of lítið. Ætlum vér oss
að kynnast Noregshafi og nyrðra
hluta Atlantshafs, verðum vér einnig
að þekkkja Pólhafið. Það er mjög
mikilvægt fyrir fjölda atvinnugreina
hér hjá oss.
Kafbátur er hentugasta tækið.
í kafbát ætti að vera auðvaldara
að rannsaka Pólhafið, en á nokkurn
annan hátt- Láti maður reka með
ísnum, eins og reynt hefir verið,
er ætíð lagt út í óvissu um, hvert
lendir. Eigi að nota ísbrjót, verður
áf anginn (* ‘aktionsradius’ ’) sty ttri.
Auk þess má framkvæma margs-
konar störf neðansjávar, sem eigi
verður við komið ofansjávar. 1 kaf-
bátnum er klefi, sem kallaður er
kafarabyrgi. Þar er klefi með saman
þjöppuðu lofti, svo að loftþrýstingin
er jöfn vatnsþrýstingunni utan að.
Er því hægt að opna hlera, án þess
að sjórinn streymi inn í klefann, og
kafari getur farið þar út um og
niður í sjóinn. Við höfum ekki kaf-
ara með í för þessari, en við getum
notað klefann til að mæla dýpi
með lóði og annað þessháttar.
Einnig getur maður í kafbát mælt
þyngdar-aflið ijijög rækilega, og er
það afar mikilvægt fyrir rannsóknir
á jarðskurninni við heimsskaut og
miðjarðarbaug.
Skip og skipshöfn.
Kafbátur þessi, sem Wilkins hefir
fengið að iáni hjá stjóm Banda-
ríkjanna, var smíðaður 1917- Hann
er 170 fet að lengd, 15 feta breiður
og 14 feta hár. 1 framstafni var
áður tundurskeytaklefinn, nú verður
þar bækistöð visindamannanna, en
allra fremst “kafarklefinn.” Aftar
er svo stjómklefi o. fl. og í aftur-
stafni vélarúmin. Nú verður settur
nýr skjöldur yfir allan bátinn. Kaf-
báturinn getur farið með 14 “knúta”
hraða á yfirborði sjávar, en 9 í
kafi. Wilkins ætlar að eins að nota
4 kn. hraða. Getur báturinn verið
16 klst. í kafi, og er þá i 8 klst.
að hlaða allar raflhlöður sínar.. Skip-
shöfnin er 12 manns, að meðtöldum
yfirmönnum, en auk þess Wilkins
sjálfur og þrír vísindamenn, blaða-
maður og ljósmyndari.
Um þessar mundir á báturinn að
vera albúinn, svo að hægt sé að
hefja reynsluferðir og rannsókn allra
“þolrifja.” 1 apríl fer hann til Eng-
lands og þaðan til Noregs. 1 júni
verður svo haldið til Svalbarða, og
þar reynt til þrautar. Júlí—ágúst
er ætlaður til fararinnar og starfs-
ins í Pólhafinu.
Leiðin sjálf.
Ferðaáætlunin er lögð um Pól-
hafið þvert, frá Svalbarða um Norð-
urheimsskaut og til Alaska, og eru
ætlaðar 6 vikur til fararinnar,” segir
prófessor Sverdrup, “myndi eg ekki
hafa stefnt þvert yfir Pólhafið,
heldur gert smákróka í áttina til
Grænlands. Mundi það bera meiri
vísindalegan árangur. En þar eð
leiðangur þessi verður afar dýr,
hyggst Wilkins að njóta hagnaðarins
af undrun þeirri, er óslitin lang-
ferð um hafið þvert mun valda.
Þrátt fyrir þetta hefi eg mikinn
áhuga fyrir förinni og tijgangi
hennar, og er því fús til að vera
með. En eg vil taka það upp aftur.
að þrautreyna verður öll “farar-tæki”
áður en lagt verði af stað fyrir
fult og alt. Og eg hefi áskilið mér
rétt til að vera alveg frjáls og
sjálfráður, ef tilraunirnar með farar-
búnað allan reynast eigi eftir á-
ætlun og óskum.
FRA ÍSLANDI
Rvík 13. jan.
Guðmundur Björnson landlæknir
fékk aðkenning af slagi fyrir nokkr
uro dögum-
Preþare Now!
Better times will come, much sooner
than most people anticipate. The re-
sult will be a keen demand for steno-
graphers, secretaries and bookkeepers,
to fill the openings made vacant by the
late financial depression. Right now,
office staffs are cut to the limit, and
many who liave been dismissed have
gone into other occupations, or have
left the City. Besides, the number now
training for business is considerably
below the average.
A Thorough School!
The “Success” is Canada’s Largesi
Private Commercial College, and the
finest and best equipped business train-
ing institution in Western Canada. It
conducts Day and Evening Classes
throughout the year, employs a large
staff of expert teachers, and provides
sufficient individual instruction to per-
mit every student to progress according
to his capacity for-study.
Day and Evening Classes
OPEN ALL THE YEAR
The SUCCESS BUSINESS C0LLEGE, Ltd.
PORTAGE AVENUE AT EDMONTON STREET.
PH0NE 25 843
Jóhannes Sigfússon
yflrkennari
við Mentashkólann í Reykjavík,
andaðist að heimil sinu hér í bæn-
um 19. í>. m.
Var hann fæddur að Núpufelli i
Eyjafirði 10. ág. 1853, og voru for-
eldrara hans Sigfús bóndi Thorlac-
ius, einn af sonum Einars prests
Thorlacius í Saurbæ í Eyjaf. og kona
hans Rosa Daníelsdóttir, bónda i
Núpufelli Pálssonar. Voru þau hjón-
in Sigfús og Rósa orðlögð gæða-
og sæmdarhjón. ölst Jóh. upp hjá
foreldrum sínum og vandist frá
æsku aliri sveitavinnu. -Var i fyrstu
ekki hugsað um að láta hann ganga
mentaveginn, en þó naut hann nokk-
uð frekari mentunar, en alment
gerðist í þá daga, bæði hjá föður-
bróður sínum, séra Jóni Thorlacius
í Saurbæ og á Akureyri hjá Jóhan-
nesi Halldórssyni, barnaskólastjóra.
Fékkst Jóhannes síðan við bama-
kenslu næsta vetur. Þegar hann
mögulega gat komið þvi við frá
vinnu, var hann sokinn niður í
bækur og brann af námslöngun.
Varð því að ráði, að hann byrjaði
á skólalærdómi, rúmelga tvítugur
að aldri, hjá séra Guttormi Vigfús-
syni, er þá var aðstoðarprestur i
Saurbæ i Eyjafirði, hjá séra Jóni
Austmann, tengdaföður sínum. Fékk
Jóhannes þar góða undirstöðu og
því, er þá var. Einnig er sannorð
og ítarleg lýsing á kennurum Lat-
ínuskólans, er Jóh. kom í skólann,
og kenslufyrirkomulaginu, er einnig
var með talsvert öðrum hætti en nú
tíðkast.
1 allmörg ár fékkst Jóh. við þing-
skriftir, er Alþing var háð að sum-
arlagi, og þótti hann með bestu og
færustu þingskrifurum, sem þá
voru.
Jóhannes var kvæntur Cathincu,
dóttur Christians Zimsen, kaup-
manns og konsúls, síðast í Rvík
Varð þeim eigi barna auðið, en ólu
upp sem sitt eigið barn, Rósu dótt-
ur Bjarna kennara Jónssonar, og
er hún nú hjúkrunarkona hér i hæn-
um. Þau hjónin voru samvalin að
gestrisni og allri valmensku, og
þar var ætíð hinum fjölmörgu vin-
um þeirra tekið opnum örmum, og
margur námspiltur, sem í fyrsta
skifti kom til Reykjavikur, umkomu-
lítill og ókunnugur, mætti þar mann-
vini og velgerðarmanni, er greiddi
braut þeirra,
Yfirhöfuð var Jóh. einkar vel
metinn hjá öllum þeim mörgu er
kyntust honum vegna mannkosta
hans, ljúfmensku og yfirlætisleysis
E. Th.
—Vísir
Nýárið nýr fíminn
!
ÞETTA LYFTIDUFT ER BÚIÐ TIL í VERKSMIÐJU HÉR
f WINNIPEG AF BORGURUM WINNIPEGBÆJAR. ÞAG
ER ÚR HREINU EFNI, HOLT OG ÁBYRGST AÐ VERA
ÁBYGGILEGT f HVfVETNA.
Blue Ribbon Limited
að vera, á Islandi, þegar svo er kom-
ið. Þá mun Reykjavík verða ein
af skemtilgustu höfuðborgum jarð-
arinnar, og skemtileg í beztu merk-
ingu orðsins, bær þar sem auðið
verður að þrifast og þroskast á
hvern þann hátt, sem nauðsynlegt
er, svo að áður á mjög löngu líður
mun verða komist fram úr því, er
var á 10. öld, þó að á þeim tíma
væri hér á Islandi hið mesta at-
gervisfólk jarðar vorrar.
A nýárinu 1931.
Helgi Péturss.
—Vísir.
ur áramótum, en aðeins einn bátur
i
mun hafa farið á sjó enn, en nokkrir
] bátar eru tilbúnir og munu þeir fara
á sjó innan skamms. Liklega verða
gerðir hér út alt að þvi eins margir
bátar og í fyrra, a. m. k. ef úr ræt-
ist, en peningaleysi er hér og erfið-
leikar, þar sem mjög mikið af fiski
liggur hér óselt.
Borgarnesi 2. Jan.
Tíðarfar yfirleitt gott að undan-
förnu en nokkuð stormasamt. Heilsu
far gott- Skepnuhöid yfirleitt góð
það sem af er vetri.
kenslu hjá séra Guttormi, er var
prýðisvel að sér í latínu. Settist
Jóh. í 2 bekk latínuskólans, haust-
ið 1876. Rejmdist hann besti náms-
maður og útskrifaðist þaðan með
hárri 1. einkunn.* Að því búnu gekk
hann í prestaskólann og útskrifaðist
þaðan 1883, einnig með hárri 1.
einkunn. Eigi gekk hann þó í
presstöðu, sem honum stóð þá til
boða, en gerðist kennari við Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði, og var
þar kennari, þar til þann 13. ágúst
1904 var settur yfirkennari við
Mentaskólann í Rvík, og skipaður
kennari við skólann ári siðar. Kendi
hann síðan við skólann, uns hann
sagði af sér yfirkennaraembætti,
haustið 1928, og hafði þá verið
kennari i samfleytt 45 ár. Þegar
við Flensborgarskóla fór orð af
lipurð Jóhannesar og góðu kennara-
hæfileikum og margir skólabræður
hans vísuðu síðan piltum, er voru
að byrja á námi, til hans, og reyndist
hann þeim bæði hinn besti kennari
og einkar hjálpsamur þeim, er af
litlum sem engum efnum voru að
brjótast til náms, og munu margir
þeirra bera hlýjan hug til hans og
nú blessa minningu hins vingjarn-
lega og látlausa manns, sem studdi
þá oft svo drengilega á erfiðri
námsbraut með hollum ráðum og
ýmiskonar liðveislu.
Jóh. sál. fylgdist vel með á sviði
kenslumála, þó eigi yrði af að hann
færi utan til frekari fullkomnunar,
sem hann hafði þó lengi ríkt í huga,
en mörg rit mun hann hafa lesið,
er fjölluðu um kenslumál og ýms
rit og kenslubækur gaf hann út um
það efni (ásamt öðrum) og skulu
hér nokkur talin:
Tímarit um uppeldi og mentamál
I—V, árin 1888—92 (ásamt Jóni
Þórarinssyni og ögmundi Sigurðs-
syni). Reikningsbók handa byrjend-
um 1885. Samtíningur handa börn-
um I—III. Kenslubók í dönsku
(ásamt Jóni Þórarinssyni). Lesbók
handa börnum og unglingum (ásamt
Guðmundi Finnbogasyni og Þórhalli
Bjarnasyni). — Kenslubók í dönsku
I—III, og Danskt orðabókaóver (á-
samt Jóni öfeigssyni). Mannkyns-
sögu-ágrip, ásamt Þorl. Bjarnason.
Auk þess safnaði hann í mörg ár
til sögu um kenslu og skólahald á
Islandi, frá byrjun til vorra daga.
Rannsakaði hann margt og mun
handrit þetta vera allstórt, en eigi
er mér kunnugt um, hvort riti
þessu hefir verið lokið til fulls.
Síðast ritaði hann æfisögu sína,
og er það merkt og þýðingarmikið
rit- Segir þar ítarlega frá vinnu-
brögðum og ýmsum háttum í sveit,
er tíðkuðust á uppvaxtarárum hans,
sem nú er orðið allmjög breytt frá
* Vantaði Jóh, einungis eitt þriðja
st. upp á ágætiseink. Voru þá og
siðar gefnar fremur lágar einkunnir
í skóla, og hækkuðu ekki fyr en
dr. Valtýr benti á þetta í grein í
Einmreiðinni og benti til saman-
bnrðar á vitnisburðagjafir í latínu-
skólum f Danmörku-
I.
Nýtt ár er byrjað, en ekki ný
öld. Miklu fremur hefir aldarfarið
versnað enn, frá því sem áður var.
Og þó getur nýi tíminn hafist, þeg-
ar menn vilja. Hann hefst þegar
menn vilja verða samhuga um rétt-
an skilning á nokkrum aðalatrið-
um tilverufræðinnar, um nokkrar
réttar tilfinningar og réttar fram-
kvæmdir. Menn þurfa að skilja
nauðsynina á sambandi við fullkomn
ari tilverustig lifsins, og að þau til-
verustig eru jarðnesk, þó að um
aðrar jarðir, aðrar jarðstjörnur,
sé að ræða en vora. Menn þurfa að
vera samhuga í óbilandi trausti á
því, að breyta megi til frá þvi sem
nú er, þannig að gott verði að lifa,
fyrir alla, og ávalt betra og betra.
Og menn verða að vera samtaka um
réttar framkvæmdir, sem þá fyrst
verða að miða að þvi að auka og
bæta hið magnandi, lifeflandi sam-
band.
II.
Hér í Reykjavík mætti nú gera
merkilega byrjun. Hér á að fara
að reisa kirkju mikla. Vígi Reyk-
víkingar þá kirkju sannleikanum. í
Reisi þeir hana af hiklausum skiln-
ingi á eðli og uppruna allra trúar-
bragða, og fullum hug á að hún
verði að meiri notum en nokkur
kirkja hefir verið áður. Reisi þeir
hana sem stöð til sambands við líf-
ið á stjörnunum. Stöð, þar sem þeir
sem mist hafa sína geti fengið ör-
uggar fréttir af þeim og jafnvel séð
þá og heyrt. Þar sem hjálpa megi
læknunum til að sigra sóttir og
þjáningar. Þar sem svo gott sé að
koma, að menn fari þaðan jafnan
auknir að viti og lífsþrótti, og hæf-
ari til að komast fram úr hverjum
var.da. Og hvergi mundi sannast
betur en í þessu dæmi, að hugur
ræður hálfum sigri. Þó að fyrir-
tæki þetta virðist mikið og torsótt-
legt, þá væri sigurinn vís, ef lagt
væri út í það af réttum hug.
III.
Haustið 1928, hvatti eg til þess
að reisa hér sambandsstöð þeirrar
tegundar, sem á hinni nýju öld mun
taka við af kirkjunum, og greiða svo
fyrir og bæta um árferði og at-
vinnu, að baráttan við fátækt og
vanmenning, sem nú virðist von-
laus, mun á skömmum tima reynast
sigursæl. Orð min voru að engu
höfð. I stað þess að farið væri að
l
; mínum ráðum, var reist hér kaþólsk
kirkja- Daginn, sem hún var vígð,
, kom hér jarðskjálfti, eins og kunn-
ugt er, einn sá mesti sem orðið hefir
hér í bæ. Það var óneitanlega skrit-
in tilviljun. Nú ættu Reykvíkingar
I að reyna, hversu mjög á annan veg
tilviljanirnar verða, og hversu skemti
legar, þegar farið er að minum orð-
um, og greitt fyrir því, að verur
slíkar, sem forfeður vorir kölluðu
guði og gyðjur, geti haft hér áhrif
meiri en áður. Þá verður hér gott
FRÁ ÍSLANDI. .
Akureyri 5. jan.
Hörmulegt slys varð í morgun á
verksmiðjunni Gefjun. Einn verka-
manna lenti í vélarreim og limlest-
ist svo stórkostlega, að hann dó á
leiðinni i sjúkrahúsið. Er þetta ann-
að skiftið sem slíkt slys verður í
Gefjun á tveimur árum. Maðurinn
hét Arngrímur Jónsson, innan fer-
tugs, kvæntur, lætur eftir sig sex
hörn, öll ung.
* * *
Siglufirði. 12. jan.
Aðalfundur Verkamannafélags Siglu-
fjarðar var haldinn á laugardags-
kvöldið og var mjög fjölmennur. 1
félagið gengu þá 37 nýir meðlimir.
Formaður var kosinn Kristján Sig-
urðsson og varaformaður Guðmund-
ur Skarphéðinsson. Þeir og með-
stjórnendur allir sósíalistar- Komm-
únistar komu engum að í stjórn.
Kristín Blöndal, ung efnisstúlka,
símamær, lézt á sjúkrahúsinu i
morgun.
* * *
Vestmannaeyjum 12. jan.
A bæjarstjórnarfundi á fimtudag,
var samþykt að bæjarstjóri og tveir
menn aðrir væru sendir á fund ríkis-
stjórnarinnar til þess að ræða um
útvegun fjár til framkvæmda hér,
vegna atvinnuleysis þess og deyfðar
sem hér er nú. Fóru sendimennirn-
ir á Dettifossi.
Vertíð byrjar hér vanalega upp
Sýslumaður var sóttur á vélabát
til Akraness í morgun. Mun það
standa í sambandi við kaupdeilur
þar. 4
Aðsókn að skólunum í héraðinu
er góð I ár sem að undanfömu. A
Hvanneyri mun fullskipað, en á
Hvitárbakka er nokkuð færra en
vanalega, þvi sumir umsækjndur
kusu að bíða næsta skólaárs, er
Reykholtsskólinn tekur til starfa.
Er unnið af kappi miklu að skóla-
byggingu þar. Er hún vel á veg
komin. Hitaleiðslan er fullgerð. Er
vatn leitt úr hvernum Skriflu norð-
anvert við túnið, og í þró heimavið
og húsið hitað upp með gufu. Munu
14 menn vinna að húsbyggingunni
í vetur, og er búist við að hún verði
fullger snemma sumars.
Heilbrigði í skólunum í bezta lagi
í vetur.
I Borgarnesi er um engar sérstak
ar framkvæmdir að ræða, en bráð-
lega verður byrjað á vegabótum l
þorpinu- A að minsta kosti að end-
urbæta veginn frá Brúnni yfir Brák
arsund alla leið á þjóðveginn, hlaða
hann upp og breikka að mun-
* • •
Akranesi 12. jan.
Sýslumaður Borgarfjarðarsýslu
kom hingað kl. 3 í dag. Mun hann
gera tilraun til að miðla málum f
deilu milli Haralds Böðvarssonar út-
gerðarmanns og verkalýðsfélagsins.
Bátar hafa farið á sjó tvisvar það
Frh. á 7. bls.
C0AL SPECIAL
Best Grade Drumheller Kitchen Lump
$9.50per ton
Satisfaction Guaranteed
PHONES 24 512 — 24151
NÚ ER TÍMINN TIL AÐ KAUPA
RÚMFATNAÐ YÐAR
og borga fyrir hann nú og yfir sumarmánuðina.
VéH höfum agætt crval af
Eiderdown Stoppteppum, Ullarteppum, Bómullarteppum
Rúmteppum, Gólfteppum
— og Linoleum dúkum. —
Simið og umboðsmaður vor mun koma til yðar.
"YOUR CREDIT IS GOOD WITH US”
Gillies Furniture Co., Ltd.
956 MAIN ST. PHONE 53 533