Heimskringla - 24.06.1931, Blaðsíða 1

Heimskringla - 24.06.1931, Blaðsíða 1
DYERS & CLEANERS, LTD. ^ SPECIAL Men’s Suits Dry Cleaned and Pressed .. ........$1.00 Ladies’ Plain Dresses Dry Cleaned and Pressed ...$1.00 Goods Called For and Delivered Minor Repairs, FREE. l*hone 37 001 (4 Hnes) XLV. ÁRGANGUR. WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 24. JÚNÍ 1931 MAKE NO MISTAKES CALL DTERS & CLEANERS, LTD. PHONE 37 061 (4 lines) NUMER 39 STJORNIN A ISLANDI ENDURKOSIN Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn tapa þingsætum. — Framsóknarflokkurinn, eða stjórnarflokkurinn í hreinum meirihluta á þingi. í kosningunum á íslandi, er fóru fram 12. júní s.l., bar stjórnarflokkurinn eða Fram- sóknarflokkurinn sigur úr být- um. Hann hlaut 23 þingsæti af 42 alls. Hefir hann því unnið 4 ný þingsæti í þessum kosning- um, og er nú algerlega í meiri hluta á þingi. Fyrir kosning- arnar var hann í minnihluta, en gat þó haldið völdum með aðstoð Alþýðuflokksins. Sjálfstæðisflokkurinn eða í- haldsflokkurinn tapaði 3 þing- sætum í kosningunum. Hefir hann nú 15 þingmenn. Alþýðuflokkurinn eða verka- mannaflokkurinn hlaut 4 þing- sæti; hafði áður 5. Tapaði hann því einnig einu sæti.. En kom- múnistar komu engum þing- manni að. Af alls 42 þingmönnum á ís- landi, eru 36 kosnir til 4 ára, en hinir til 8 ára. Eru hinir síð- artöldu landskjörnu þingmenn- irnir eða efri deildar þingmenn ásamt öðrum átta, er úr neðri deiid eru valdir. En þrátt fyrir sigur framsókn armanna í kosningunum, verð- ur mjög erfitt fyrir þá að hafa meirihluta í efri deild. Sem stendur mun stjórnin hafa þar tvo, en andstæðingar hennar fjóra. Til þess að vera þar í meirihluta, verður hún að veikja flokk sinn mjög í neðri deild, enda þótt hún hafi þar eftir kosningarnar góðan meirihluta. Atkvæði flokkanna í þessari síðustu kosningu féllu þannig, að Framsóknarflokkurinn hlaut 12,500 atkvæði, Sjálfstæðis- flokkurinn 16,500, og Alþýðu- flokkurinn um 6,000 atkv. FJÁRHAGSÁÆTLUNIN Um fjárhagsáætlun Bennett- stjórnarinnar fyrir komandi ár hafa nú staðið umræður í rúm- ar tvær vikur í sambandsþing- inu. Hafa andstæðingar stjórn- arinnar fundið henni allmargt til foráttu, svo sem tekjuhall- ann, nýju skattana, sem þar er gert ráð fyrir o. s. frv. Er það alt saman gömul saga, sem á- valt endurtekur sig. — Að um- ræðunum loknum kom fram breytingartillaga frá liberölum við tillöguna um að samþykkja fjárhagsáætlunina, er að efni til var hrein og bein vantrausts yfirlýsing á hendur stjórninni. Við þe^sa breytingartiilögu gerðu svo bændaflokksmenn breytingartillögu, er að vísu var einnig vantraustsyfirlýsing, en fór þó jafnframt fram á mjög gagngerðar breytingar á fjár- málafyrirkomulagi landsins eða endurbætur á þvi á þann hátt, að í stað auðvaldsstefnunnar komi samvinnufyrirkomulag og að gull væri afnumið sem und- irstöðu gjaldmiðill (standard), o. s. frv. » Um allar þessar tillögur var nú greitt atkvæði s.l. föstudag. Var fyrst greitt atkvæði um þessa síðastnefndu tillögu bændaflokksins. Voru 15 at- kvæði með henni, en 165 á móti. Stjórnarsinnar og liber- alar og einn óháður (Henri Bourassa) greiddu atkvæði á móti henni. Hafa liberalar ef- íaust ekki séð sér fært, að end- urgjalda tillögumönnum liðsinni þeirra við þá svo oft áður, er í raunir rak, vegna þess hve róttæk tillagan var. Næst var þá tillaga liberala. Með henni greiddu 70 atkvæði en 109 á móti. Var hún því feld með 39 atkvæða meirihluta. — Margir bændasinnar greiddu at kvæði á móti þessari tillögu liberala. Var nú að síðustu atkvæði greitt um aðaltillöguna, eða stjórnartillöguna. Fóru svo leik ar um það, að með henni voru 102 atkvæði, en 72 á móti. — Margir af bændaflokksmöúnum greiddu atkvæði með stjórn- inni. Með þessari atkvæða- greiðslu var þá fjárhagsáætl- unin samþykt í neðri deild í aðalatriðunum. Seinna verður greitt atkvæði um einstök at- riði hennar og þá ef til vill gerðar einhverjar smávægilegar' breytingar á fjárhagssáætlun- inni. HOOVER LEGGUR TIL AÐ FRESTA BORGUN STRÍÐS- SKULDANNA UM EITT ÁR. Stríðinu mikla, sem menn- ingarþjóðir Evrópu steyptu sér út í, var ekki langt komið þegar farið var að grynna í fjárhirzl- unum hjá þeim, og þær þurftu að fara að líta í kringum sig eftir lánum. En fé til að lána höfðu fáar þjóðir aflögu nema Bandaríkjaþjóðin. Og hún hljóp undir bagga með mjög mörgum Evrópuþjóðunum. Og loks varð hún til þess að binda enda á vit- firringuna, að ganga út á hólm inn og skakka ieikinn. Að stríðinu loknu voru flest lönd Evrópu í rústum. Úr þeim gátu þau ekki risið, og hefðu seint risið, ef Bandaríkjaþjóðin hefði ekki lánað þeim enn á ný fé. Að innkalla stríðsskuldirnar að stríðinu loknu, var því ekki viðlit. En þegar Evrópuþjóðirn- ar höfðu með þessu ögn bætt hag sinn, fóru þær, með harm- kvælum þó og nokkuri nauðung að sýna lit á því að greiða skuld ir sínar. En það virðist þeim nú ætla að ganga ógreitt. Enn á ný, koma því Bandarík- in þeim til aðstoðar. Hefir Hoover forseti fyrir hönd þjóð- ar sinnar lýst því yfir, að Þýzka landi, sem skaðabætur stríðs- ins skullu þyngst á, verði veitt- ur eins árs frestur á greiðslu stríðsskuldanna, ásamt rentu á þeim. Er þetta gert með því, að gefa þeim þjóðum, er Þýzka- land greiðir stríðsskuldir, eft- ir greiðslu á þeirra eigin stríðs- skuldum til Bandaríkjanna. —• Þessi lönd eru Bretland, Frakk land og ítalía, ásamt mörgum fleiri löndum. Til viðreisnar þessum þjóð- um, og til þess að bæta yfir- leitt úr núverandi ástandi í heiminum, hefir ekki um langt skeið verið stígið þvílfkt spor sem þetta. Árangurinn af því er hiklaust talinn sá, að kaup- geta Evrópuþjóðanna aukist við það. Það kom jafnvel í ljós sama daginn og fregnin af þessu barst út. Silfur, bómull, kopar, matvara og iðnaðarvara byrjuðu samstundis heldur að hækka í verði í Evrópu. Verð fasteigna sömuleiðis. Og með aukinni kaupgetu þessara landa er líklegt talið að með tíð og tíma batni markaður yfirleitt, þar á meðal hveitimarkaður- inn eða sala á hveiti í Canada. Áhrifin af þessu lítur út fyrir að ætli að verða geysimikil á núverandi ástand. k Enda er það mergurinn máls ins í yfirlýsingu Hoovers for- seta, að borgunarfrestinn veiti Bandaríkin til þess, að gera sinn skerf í því, að reyna að bæta núverandi ástand í heim- inum. Auðvitað verða Evrópuþjóð- irnar að samþykkja þessa á- kvörðun, áður en hún verður framkvæmd. En með því að þær þurfa flestar að greiða Bandaríkjunum meira fé en Þýzkaland greiðir þeim, eru þær að græða á þessu en ekki tapá. Enda þykir líklegt að engin þeirra hafni þessu boði Hoov- ers. Frakkland er eina landið, sem virðist þurfa að hugsa sig um, áður en gengið er að boð- inu. í alt nemur upphæðin, sem gjaldfrestur er veittur á h. u. b. háifri biljón dala. Af því munu allar Evrópuþjóðirnar veita gjaldfrest á 150 miljónum dala, en Bandaríkin á afgangin- um. BRUNI f ST. JOHN, N. B. S.l. mánudag kom upp eldur í bænum St. John, N. B. Brunnu þar kornhlöður við höfnina, bryggjur, vörugeymslu hús og tvö skip. Átti C. P. R. félagið kornhlöðurnar og mik- ið af byggingunum er brunnu. Alls er skaðinn metinn um tíu miljónir dala. INDVERSKUR PRINS OG FJÖLSKYLDA HANS Á FERÐ f CANADA. Indverskur prins kom til Winnipeg s.l. mánudag ásamt fjölskyldu sinni. Hann heitir Maharaja Jind. Auk hans, konu hans og barna og svo þjón- ustufólks, var móðir hans með honum. Alt var fólk þetta klætt pelli og purpura, o gvakti mikla eftirtekt og forvitni Winnipeg- lnia. En mest var þó eftir móð- ur prinsins tekið. Var hún sér- lega skrautleg og tiguleg. En starsýnast mun þó flestum hafa orðið á skrautið á nefni hennar. Var öðrumegin á það festur demantur, en hinumegin perla. Það var nú nef, sem skein af og lítandi var á. Gestir þessir komu að vestan og halda til Englands. — Eru þeir mjög vin- veittir Bretum og hefir ættin beitt áhrifum sínurn og lagt fram fé af sínum mikla auði oft málefnum Breta til sigurs á Indlandi. EMPRESS OF BRITAIN. Svo heitir eitt af skipum C. P. R. félagsins, sem það hefir sér nýlega til ágætis unnið, að hafa farið á skemri tíma yfir Atlantshaf en nokkurt annað skip. Það kom s.l. mánudag til Father Point, Que. frá Cher- bourg á Frakklandi. Hafði ferð in staðið yfir í 4 daga, 12. klukkustundir og 30 mínútur. ÖLVUÐUM BÍLSTJÓRUM VARPAÐ I FANGELSI. Fangelsisvist ibíður hvers manns, sém bíl stjórnar undir áhrifum áfengis, ef að lögregl- an klófestir hann. Til þessa hafa menn sloppið með að greiða nokkra sekt fyrir þetta brot. En nú hefir lögunum ver- ið svo breytt, að fyrir fyrsta brot verður ekki bætt með neinu öðru en fangelsisvist. — Stjórnareftirlitsmenn þjóðvega í þesssu fylki, hafa ekki séð nein önnur ráð til þess að af- stýra hættunni, sem sí og æ er samfara bílstjórn ölvaðra manna, en að leggja þessa þungu begningu við henni. — Ættu menn að láta sér það að varnaði verða. LÍFLÁTSDÓMUR. Láflátsdótur var kveðinn upp s.l. laugardag yfir John Streib, þeim er myrti þrjú börn konu er Mrs. G. E. Walters heitir, til heimilis í Elmwood, Man., 20. maí s.l. og getið var um í þessu blaði. Dóminum verður fullnægt með hengingu 3. sept. í haust. Nú FÓR VER EN SKYLDI. Canada virtist komin á svo góðan rekspöl með að selja nautgripi og annan búpening tii Englands, að menn voru farnir að gera sér miklar von- ir um framhald á því. En þá kemur alt í einu upp úr kafinu að þessi búpeningur hafi verið haldinn af slæmri sýki, og til þess að koma í veg fyrir að hún breiddist út á Englandi, hefir brezka stjórnin orðið að banna með öllu innflutning á nautum, svínum, geitum og sauðfénaði frá Canada. Tapar Canada þarna markaði vegna þessa, er útlit var fyrir að væri að verða mjög arðvænlegur. FUNDIR LIBERALA OG CONSERVATÍVA. Conservatívar í Manitoba hafa fund í Brandon þann 24. þ. m. (í dag). Liberalar hafa fund í Winnipeg þann 25. og 26. Aðalmálið á dagskrá flokk anna lýtur eflaust að því, hvernig fylkja skuli liði fyrir kosningabardagann á komandi ári í fylkiskosninguum. FITMTÍU ÁRA AFMÆLI ARGYLEBYGÐAR. 1881—1931. Hátíðin byrjar með stuttri guðsþjónustu í kirkju Frelsis- safnaðarr, kl. 10 f.h. 4. jútí. “Automobile Parade” á há- tíðarstaðinn á Grund. Aðaldrættir hátíðar skemti- skrárinnar: Söngflokkurinn syngur “O, Ganada’’ og fleiri söngva. Séra E. H. Fáfnis setur há- tíðar skemtiskrána kl. 2, og stjórnar henni fyrst. En síðan tekur dr. B. B. Jónsson við stjórn. Dr. B. B. Jónsson flytur ræðu fyrir minni frumbyggjanna. Mrs. Jakobína Johnson flyt- ur kvæði. Dr. Jón Stefánsson: Minni Canada. Séra E. H. Fáfnis: Kvæði. Þorvaldur Þorvaldsson Fæddur 30. júli 1842 — Dáinn 6. marz 1931. Nú fækkar þeim rösku, er ruddu hér braut með ráðdeild og vilja í sérhverri þraut og norræna styrkinn í stafni. En arfurinn mæti er minningin blíð um manndóm og hreysti á liðinni tíð, sem fágað er frumherjans nafni. * Þig felur nú, vinur, hin friðsæla gröf, því förin er sigruð um daganna höf, en orðstírinn lýsir og lifir. Hvert dæmi af göfgi og drengskaparlund og dygðugri hegðan á gefinní stund, er auður því dauðlega yfir. Eg ungur þér kyntist á æfinnar leið; í ötulli framsókn um hádegis skeið þú varst með þeim röskustu talinn. Og vífið þitt göfuga lagði þér lið, með ljósríka útsýnið, kærleik og frið, er blessaði sambúðar salinn. Af þreki og kappi, til lagar og lands, þú letraðir sögu hins dugandi manns með hagleik og hygnina bjarta. Um æfina vanstu þér virðing og ást, og vinunum aldrei þitt drenglyndi brást frá tállausu, trúföstu hjarta. Nú Ijómar þér vorið á fundi þíns fljóðs, er fágaði geislum hins andlega sjóðs þitt lífsstarf í láni og þrautum. Svo kveðja þig vinir og börnin þín btítt. Hver bróðir, sem lengi og vel hefir strítt er máttur á mannlífsins brautum. M. Markússon. KVEÐJA TIL VESTUR-ISLENDINGA Flutt á Vestur-íslendingamóti á Akureyri 20. apríl 1931. Leik eg að ljóði. Legg eg í óði brú yfir brimaðan sæ. — Langt út í heima huga læt sveima: Renni göndum um borg og bæ. Opnast mér álfur, heimurinn hálfur! heyri’ eg og sé, hvað í fjarlægð býr. Mörg vakna minni, kem eg í kynní. Lifi upp aftur mín æfintýr. Heilsa mér víðar hásléttur fríðar; heyri eg laufskógaþyt. Eg fer einförum eftir' vatnsfjörum verstöðva fornra á vit. Séra K. K. Ólafsson: Minni íslands. Séra Jónas A. Sigurðsson: Kvæði. Milli ræðanna syngur stóri söngflokkurinn undir stjórn B. Þorlákssonar. Hon. John Bracken forsætis'- ráðherra Manitobafylkis hefir verið boðið og hefir hann lofað að koma og flytur ræðu. Ivan Schultz og W. H. Spuiks fylkisþingmönnum fyrir Houn- tain og Cypress kjördæmi, hefir einnig verið boðið og verða þeir meðal ræðumannanna. Ýmsir aðrir vel hæfir ræðumenn koma þar, sem enn hefir ekki verið ráðstafað. • • • Á samkomunni að kvöldinu , verður söngur, hljóðfæraslátt- ur og ræðuhöld. Margir hinna hæfustu röeðumanna er á hátíð inni verða, skemta þar. Barnasöngfíokkur Brynjólfs Þorlákssonar verður einn merk ur þáttur skemtiskrárinnar. Séra K. K. ólafsson hefir verið beðinn að flytja aðalræð- una við hátíðargusþjónustuuna á sunnudaginn, og prestar þeir sem þar verða taka þátt í at- Reika eg í barrskógi, beiti eg plógi akri haustfölvum á. Þýt með eimlestum, ek með stóðhestum yfir glóskygða gljá. Heimsæki frændur, búa og bændur; gott er góðvinum hjá. Heit slá íslandi hjörtu á Vínlandi, handan við hyldýpi blá. Lifi íslenzka! Lifi karlmenska! Vali Vestmanna bú. Leggi þjóðrækni, list og hugtækni yfir brimstafi brú. F. H. Berg. höfninni. Hornleikaraflokkur skemtir um daginn. I G. J. O. KVENNARÁN f JÚGÓSLAVfU. í þorpi einu í Júgóslavíu, Baronja, var fjölsótt kvik- myndasýning hér á dögunum. Flestir íbúar þorpsins voru í bíó. Alt í einu heyrist ógur- leg sprenging utan við húsið. Áheyrendur verða skelkaðir og þjóta upp úr sætum sínum. En er þeir leieta útgöngudyT- anna, eru þar komnir vopnaðir ræningjar er varna öllum út- göngu. Ráðast nú nokkrir ræn ingjanna inn í húsið, og skipa svo fyrir að allir bíógestir raði sér upp með veggjunum. Ganga ræningjarnir síðan um húsið og velja sér 19 laglegar stúlk- ur, sem þeim leizt bezt á, hand taka þær og hafa á burt með sér án þes sað viðnám yrði veitt. Eigi tókst að ná til ræningj- anna eða kvenfólksins er þeir höfðu hremt.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.