Heimskringla - 24.06.1931, Blaðsíða 5

Heimskringla - 24.06.1931, Blaðsíða 5
HEIMSKRING_A 5. BLAÐSÍÐA WINNIPEG 24. JÚNÍ 1931 græni hluti jurtablaðanna er með öðrum orðum orkugeymir. Og það er sú orka, sem við stelum, þegar við etum jurta- fæðu, eða dýr, sem lifa á jurta- fæðu. Forvitinn: Nú skil eg þig. Maðurinn framleiðir orku með því að eta jurtafæðu eða dýr, sem á jurtafæðu lifa. Fjölkunnugur. Þetta er ekki allskostar rétt með farið. Það er satt, að þegar þú etur epli, saladrétti eða brauðsneið, með flís af svínakjöti ofan á, stel- urðu orku úr sólarljósinu, sem upphaflega var náð úr því af jurtunum. En þetta er ekki út af eins einfalt og þú heldur. Forvitinn: Heldur hvað? Fjöikunnugur: Til þess að ná orkunni úr efninu, sem stol- ið var, verður bruni aftur að eiga sér stað í líkama manns- ins. Og hann verður með þvi að sameina aftur kolvetnin, eða efnið úr blaðgrænkunni og súr- efnið. Forvitinn: Með hvaða hætti verður það? Fjölkunnugur: Þegar við er brent eða kolum í eldfæri, þá sameinast kolefnið í kolunum, eða kolvetnið í viðnum — því hvorttveggja var, eins og þú veizt, einu sinni jurt — súrefni loftsins. Þetta er nákvæmlega hið sama og við gerum, þegar við öndum. Þá sameinum við í lúngunum súrefni loftsins kol- vetninu, sem er í blóðinu og sem við fengum úr jurtunum með fæðunni sem við átum. Forvitinn: 1 raun og veru öðl- umst við þá orkuna með því að anda? Fjölkunnugur. Nei. Við leys- um hana með önduninni úr efni fæðunnar, sem við átum eða drukkum. Forvitinn: Þú sagðir áður, að það dularfylsta við líf fyrstu lífsfrumanna hefði verið það, að þær gátu andað? Fjölkunnugur. Og eg er nú viss um að þú veizt nú orðið, hvers vegna eg sagði það. Með því eina móti gátu þær notað orkuna. Forvitinn: En hvernig gátu fyrstu h'fsverurnar lifað, þegar þær höfðu ekkert lifandi að eta? Fjöikunnugur: Þær hafa hlot ið að vita þá, hvernig þær áttu sjálfar að framleiða fæðuna, eins og jurtirnar nú gera... Það eru meira að segja lífsverur enn til, sem minna á þetta. Þær eru bæði jurtir og dýr. Forvitinn: Nú, það hljóta að vera merkilegar skepnur. Fjölkunnugur: Já, víst eru þær merkilegar. Þær eru taldar fyrsta greinin á lífsmeiðnum og eru nefndar frumverur. Eftir miljónir ára urðu sum afsprengi þeirra eingöngu dýr, en önnur ' jurtir. Forvitinn: Hver var ástæðan fyrir því, að vegir frumlífsver- anna skiftust þannig? Fjölkunnugur: Það veit eng- inn. Það er eitt af því, sem vísinddn hafa ekki til hlítar ráð ið enn framúr. Forvitinn: En hvað tók við eftir það? Fjölkunnugur: Þá byrjar leik ur lífsins. Þá hefst baráttan íjatr tilverunni. Þær lífsverurn- ar, sem urðu að dýrum og höfðu lært að hreyfa sig úr stað, sáu að frændlið þeirra. jurtimar, gátu framleitt sína eigin fæðu. Og hvað var þá eðli legra og auðveldara, en að leggj ast á þær og eta þær? Og það gerðu dýrin. Forvitinn: Hvað veldur því, að þessi dýr héldu ekki áfram að vera eins og þau voru, en urðu að öðrum dýrum eða sum af þeim? Fjölkunnugur: Þessi örlitlu frumdýr lifðu að líkindum fyrr- um í smápollum og tjörnum, eins og þau gera enn. En eftir því sem aldirnar liðu hver af annari, fjölgaði þeim, svo að það fór að þrengjast um þær. Og þá var það að þau tóku upp það ráð, að sameinast mörg í eitt dýr. Þá urðu þau duglegri að bíta frá sér og sigrast á ó- vinunum. Og þá koma fram fyrstu og minstu marglitturnar. Einnig smádýr í ormslíki. Forvitinn: Og við erum þá býst eg við út af ormunum komnir? Fjölkunnugur: Að vissu leyti erum við það. Þeir urðu eftir hundruð miljóna ára að fisk- um, sem gátu andað með tálkn um. Og að óra tíma liðnum frá því, hafa ár og vötn verið orðin full af þeim. Forvitinn: Og hvað tók þá við? Fjölkunnugur: Þeir hafa að lokum orðið að skríða upp úr ánum á þurt land og lifa þar, eða drepast ella. Og þá erum við nú komnir svo margar tröppur upp þenna lífsstiga, að ekki er orðið mjög fjarri mann- inum. Forvitinn: En fyrstu menn Iíkjast þó ekki fiskum? Fjölkunnugur: Á yfirborðinu gera þeir það ekki, en undir- niðri líkjast þeir þeim talsvert. Og um okkur má hið sama segja. En um það skulum við ræða seinna. • • • Það sem sagt hefir verið frá í þessuim bálki til þessa, eru hugmyndir vísindamanna um, hvernig jörðin og aðrir jarð- hnettir sólkenfisins, urðu til vegna áhrifa frá annari sól á sól vora, er leið átti um himin- vanginn nálægt henni fyrir 2 biljónum ára. Einnig hvernig jörðin kólnaði og líf byrjaði að koma fram á henni vegna stöð- ugra breytinga efnisins á jörð- inni. Þetta varð fyrir einni bilj- ón ára. Þá hvernig lífsfrum- urnar sameinuðust og úr þeim urðu smæstu dýr til, er svo urðu að fiskum lagar og síðar að dýrum láðs. Hefir margt spunnist inn í þessa frásögn, er vér vonum að ýmsir hafi haft gaman af. Verður nú næsti kapítuli í sögu þessari um það, hvort maður- inn hafi erft andlitslag sitt frá fiskunum. Það er auðvitað ekki við því að búast, að hin “fríðu fljdð'’ viðurkenni í hasti, að svo sé. En takið eftir hvað Fjölkunnugur hefir um þetta að segja í næstu blöðum. BRÉF TIL HEIMSKRINGLU. eftir M. J. B. Hvernig líkar fólki við nýja prestinn? Spyrja menn vana- lega. Og ef hér er átt við nýja prestinn okkar Fríkirkju-fólks, má svara því svo: að safnað- arfólki hans líki ágætlega við hann, — og ekki einungis safn aðarfólki hans, heldur og meiri hluta utansafnaðarfólks — þ. e. meiri hluti þess utansafnaðar fólks sem þorir að hlusta á hann — þorir? — Hví skyldu menn ekki þora að hlusta á hann?—Af því mínir elskanleg ir, sumir geyma ennþá eitthvað í gamla pokahorninu, sem ekki þolir birtu — 'sól nýrra rann- sókna. Og þeim þykir vænt um það— eru því trúir, eins og forfeður okkar voru gömlu góða trúnni — jafnvel eftir að þeir urðu að virðurkenna van- mátt þeirra goða. Margir eru hræddir um gömlu trúna sína — finna sig veika á svellinu. Innra hjá sjálfum þeim er hrópað, meira ljós, meira Ijós. MEIRA LJÓS! og skynsemin segir þeim: Að það sé gott, að fá meira ljós. — Holt að viðra þetta gamla, sem þeir byrgja í gamla pokahorninu sínu. En, mundi nú þetta gamla, þola nýjar bætur? Kristur segir, eða sagði: Eng- inn lætur nýja bót á gamalt fat! Er þeim þá ekki vorkunn? — Hafa þeir ekki reynsju Or- thodo» prestanna fyrir sér, — þessara, sem einatt eru að sletta nýjum bótum á gömlu fötin, og einatt verða gloppurn- ar stærri sem bæta þarf! Já — jæja! Þeim er vorkun! En sr. Fr. A. Friðriksson heldur hverja ágætisræðuna á fætur annari. Hann hefir tam- ið sér að nota gömlu textana sem líkingar, e. o. t. d. Að kristur breytir vatni í vín! Hann ber ekki á móti því, að sagan sú geti verið sönn. En hann sér annað og meira í henni: í hans höndum verður gamla staðna vatnið í gömlu leirkerunum að lifandi vatni — eða víni — hinna nýju lifandi kenninga, sem Kristur flutti heiminum — lausum við venj- ur Gyðinga eða hverra annara steinrunna kenninga, sem orð- ið hafa að kreddum og séreign eins verða annars kenninga- kerfis. — En hversvegna fara út í slíka sálma. Úr því eg get ekki flutt ykkur þá ræðu? — Af því, að ennþá er eg svo mikið barn. Að þegar eg fæ eitthvað sem mér þykir sjálfri mikils um vert, vildi eg helzt. miðla öllum heimi, af því — hvort sem það er fagur söngur, eða góð ræða, eða listilegt mál- verk — já, eða bara góður mat- ur — ef eg héldi að aðrir hefðu hann ekki líka. En svo er og þess að gæta með fæðuna. hvort sem hún er andlegs eða líkamlegs eðlis að sitt á við hvern. Eg t. d. var veik í þrjá daga af munnbita af hrossakjöti sem ofan í mig fór, heima á ísl. s. 1. sumar, þó að öðrum, sem neyttu samskonar fæðu. yrði gott af. Þessir mötunautar mínir, sem fyrir 25 til 40 ár- um síðan hefðu afneitað slíkri fæðu með hryllingi, neyttu hennar nú með gleði, af því að venjan var búin að gera hana góða — þrátt fyrir það: að biblían bannar fólki að éta kjöt þeirra dýra, sem ekki hafa klaufir og jórtra ,— eða eins og enskan hefir það Cloven hoof — annað eða hvoru- tveggja, — eða er þetta kan- ske misminni mitt — og þó kallast það kirkjufólk- og lúterskt. Eða hefir nú lútersk- an, vikið frá gamla testamentis kenningum í þessu efni. — En nú er eg komin hálfa alin út frá efni — og bið afsökunar. Með alvöru að tala, vildi eg að hægt væri að víðvarpa flestar ræður sr. Friðriks á tungumáli, sem flestir skyldu, og þó af því leidðu að sjálf- sögðu það, að hinum litlu söfn- uði hans hér, héldist þá ei á honum lengi, gæti eg unt honum þess heiðurs og heimin- um þeirrar Messunar, sem mér finnst hann ætti að hafa af ræðum hans. Það er að setja ljós undir mæliker, að grafa shka menn, á þann hátt sem I hann er grafinn hér. Ekki svo að skilja, að við metum hann ekki á okkar hátt. En not- hæfni stórra manna nýtur sin einungis að litlu leyti í fá- menni. Séra Friðrik er góður maður og tekur prestsembætti sitt alvarlega. Hann er og trú- maður svo sannur, að hann á sjálfsagt fáa sína líka í því. —- Einkennilegt, er það ekki — og vera þó frjálslyndur! Hann leitast við að skilja kenn ingar Meistarans, og gera öðr- um þær skiljanlegar og sam- rýmanlegar við líferni hans, þ. e. Krists, og honum tekst það alla jafna vel. Lipurmenni eru þau hjón bæði og hihir ákjós'- anlegustu leiðtogar og sam- ferðamenn. Ó, sussu, sussu! En það böl! — Nei, vinir mín- ir. Það má segja mikið gott um sumt fólk, án þess það sé hól. — Svo er fyrir þakkandi. Og hér er um ekkert hól að ræða. Það er blá ber alvara, bygð á almennings-áliti, og sjaldan lýgur almanna rómur. Sr. Friðrik predikar einu sinni í mánuði á ensku. Það gera nú fl. ísl. prestar, sumir oftar. Til þess að sýna dirfsku sr. Fr. A. Fr. vil eg setja liéi eina auglýsingu — auglýsing sú kom í bæjar blaðinu og hljóðar sem fylgir: Make up your mind to get thoroughly aeqtiainted with Liberalism in Religion, so that you may oppose it honestly or support it faithfully. — Þórarinn Ólafsson (Kveðja frá frænku hans) Þó fyki í fáu skjólin og flýði gæfan mig, mér fanst eg aldrei alein, þá átti eg vin sem þig. Nú svífur fyrir sólu og syrtir kringum mig; eg græt hjá gridmum kjörum, en gröfin hylur þig. Þetta sýnir starfs aðferð sr. Friðriks og trú hans á mál- efni sitt. Minnir það oss gömlu fauskana á æsku okkar, þegar blóðið var heitt og hjartað ungt — og vér fyrst tókum að gefa kirkjulegu — eða Krist- indomsstarfi samtíðarinnar veru legt athygli. — Þegar þeir Doktorarnir Osborn og Keys, kappræddu einmitt sama mál- efni, n. 1. orþodoxíu og liber- alism í trúarlegu tilliti, í Free Thought M^gazine — að til- stilli Orþodox kirkjanna og Frí hyggjenda eða frjálstrúarmanna — Osborn fyrir þá síðurnefdu, Keys fyrir hina. Þá þorðu menn; og þá trú höfðu Orþodox leiðtogarnir á stríðsmanni sín- um, að þeir úrskurðuðu fyrir franj, að ef hann þ. e. dr. Keys biði ósigur í þeirri viður- eign, væri það málefninu, en ekki manninum að kenna. Síð- an þora fáir — ef nokkrir ridd arar þeirra gömlu skoðana að hætta á slíkar hólmgöngur. Það er miklu auðveldara að berjast með trúgjarnan, fá- fróðan fjöldann á bak við sig — og á bak við allar menn- ingar tilraunir —vogaðrar og framgjarnar æsku, sem sjálf heimtar að sjá og skilja — rannsaka, undirstöðu og yfir- byggingu trúarbragðanna eins og alt annað. Ærið nóg mun nú þykja sagt um kirkjumál vor Frí- kirkjusafnaðafólks. Enginn má svo skilja það, áð með því sé að neinu leiti verið að taka frá öðru fólki, hvaða söfnuð- um sem þeir svo tilheyra. Skap gerð manna er náskyld — gott og miðlungi gott fólk hvar sem er. Fólk sem trútt er trú sinni án þess að gagnrýna hana og viljugt að leggja mik- ið á sig fyrir hana. Þess hátt- ar fólk er venjulega jafntrútt hvaða öðrum málum sem það tileinkar sér. Sumir segja, og ekki máske að ástæðulausu að hjá oss, sem köllumst frjáls- lynd, sé um minni festu að ræða í trúarefnum. Við leggj- um ógjarna á oss, jafnmikið í kirkjulegar þarfir, af því að oss séu trúmálin Jekki eins hjartfólgin eða nauðsynleg, eins og hinum Orþódoxu með- bræðrum vorum. Sennilega er eitthvað satt í þessari ákæru, sérstaklega þeim partinum, sem viðvíkur ást eða nauðsyn á kirkjulegri starfsemi í trúar- bragða þarfir. Og þó er oss fullkunnugt um, að margt frjálslynt fólk hefir lagt mikið á sig einnig í þeim efnum — ef ekki af persónulegri trúar þörf, sér til sáluhjálpar — þá samt af trú á framþróun mann- kynsins á trúarsviðum eins og öðrum. Þar er þessi mismun- ur. Einn er góður, af því hann þorir ekki annað—óttast hegn- ingu sé hann það ekki — og í von um endurgjald þessa heims og annars, sé hann það. Annar er góður af því hann álítur að það sé skylda sín — sé rétt — án tillits til þess hvort það borgi sig fyrir hann persónulega. í þeim hópnum mundim vér kjósa oss sæti — ef um væri að velja — svo ekki meir um það. / • • • Enn ein fréttin: Síðan dauðs falla listinn í fréttum þessum var skraður, hefir einn af lönd- um vorum hér bæst í þann hópinn, sem þannig hefir ver- ið kvaddur frá oss. Guðrún Helgason lézt að heimili sínu þ. 14. þ. m. og var jörðuð frá Isl. Lútersku kirkjunni þ. 16. s. m. af sr. Kolbeini Sæmundssýni. Hún Eg'græt að gröfin hylur eins góðan dreng og þig, eg græt, að ekkert athvarf er eftir fyrir mig. > Kulvís mér urðu kynnin á kaldri norðurslóð; ! en er eg hjá þér undi, var æfin ljúf og góð. Misjafnir manni reyndust margir í heimi hér, en eins og bezti ástvin þú ætíð reyndist mér. Ó, göfugmennið góða! Eg græt við dauða þinn. Það svífur fyrir sólu og syrtir um huga minn. J. S. frá Kaldbak. var fædd 23. ágúst 1862. Um ætt hennar og æfiferil vitnast til Alm. Ó. S. Thorgeirssonar fyrir árið 1925 í Landnáms- þáttum Point Roberts. • • • Þá munu flestar markverð- ustu fréttir taldar í þetta sinn. Með vinsemd og Virðing, M. J. Benedictsson Guðrún Eyjólfína Bjarnason Eftir langt og nytsamt æfi- starf andaðist hún, nærri hálf- áttræð ,að heimili tengdasonar síns og dóttur, Mr. og Mrs. B. Loftsson, Lundar, Man., þriðju- daginn 12. maí s.l. Hún var mjög farin að heilsu þrjú síðustu ár æfinnar, og rúm föst var hún síðustu átta mán- uðina. Eyjólfína sál. var fædd að Eldleysu í Mjóafirði í Suður- Múlasýslu á íslandi, 6. dag sept embermánaðar árið 1856. For- eldrar hennar voru þau hjónin Eyjólfur timburmaður Jónsson og Guðrún ófeigsdóttir. Er hún var 6 ára gömul, fluttist hún með foreldrum sínum að Naustahvammi í Norðfirði. Og þar mun hún hafa átt heima þangað til hún fór af íslandi. Systkinahópurinn var stór, 14 alsystkini og 3 hálfsystkini. — Er hún var 16 ára gömul misti hún móður sína. Eftir það þjáð ist hún af heilsubilun í nokkur ár. Fór hún til Kaupmanna- hafnar, þar sem faðir hennar hafði áður dvalið, er hann var að læra timbursmíði. Að sjö mánuðum linum kom hún heim nokkurnveginn alheil. Ári/S 1882 fór hún ásamt syst ur sinni, Stefaníu Ágústu, til Canada og settist að í Winni- peg. Eyjólfur bróðir hennar 01- son, einn hinna bezt kyntu landnámsmanna íslenzkra vest- an hafs, var kominn á undan þeim systrum, kom vestur um haf í stóra hópnum árið 1876. Áttu þær systur athvarf hjá honum ekki síður en svo fjölda margir aðrir, sem vestur komu. — Eins og flestar íslenzkar innflyfjendastúlkur vann hún í vistum þangað til hún giftist. Hinn 7. júní 1884 giftist hún Guðmundi Bjarnasyni. Hann var ættaður úr Vopnafirði og mun hafa komið vestur um haf um líkt leyti og hún. Fyrstu átta biiskaparár sín áttu þau heima í Winnipeg. Árið 1892 flttu þau í svonefnda Álftavatnsbygð. — Var heimili þeirra í grend við Mary Hill, þangað til þau brugðu búi, eftir að börnin voru upp komin, og fluttu í Lundar- bæ. Búskapurinn fór þeim á- valt vel úr hendi. Þau voru bæði atorkusöm, velrírk, þrifin og nýtin og undur vel samtaka Að rísu voru þau aldrei auðug. en þau fóru vel með efni og á- stæður. Þau eignuðust alls 9 börn. 2 þeirra dóu mjög ung, annað Björg að nafni, ríkugamalt, hitt í fæðingu eða rétt á eftir. Tvö önnur dóu fullorðin, Guðrún Ingveldur, komin í miðskóla, dó árið 1913; Stefán Ágúst dó árið 1922. Var hann hinn mesti efn- ismaður, hafði lokið búnaðar- skólanámi í Winnipeg og var við frapihaldsnám í Californíu- ríki er hann veiktist. Fjórir synir lifa: Eyjólfur, búsettur að Griffin, Sask.; Kristján Guðmundur, að Froude í sama fylki; Jón Helgi rjóma- bússtjóri að Grunthal, Man., og Björgmann, að Churchill, Man. Allir eru þeir kvæntir. Ennfrem ur lifir ein dóttir, Þóra, gift Bjarna Loftssyni. Búa þau að Lundar; hjá þeim átti Eyjólfína síðast heimili. Naut hún þar allr ar umönnunar, sem unt var að veita. Líka komu sumar ná- grannakionurnar til að veita henni þan nraunalétti í sjúkdóm inum, sem þær gátu. Af systkinum hennar er nú aðeins eitt á lífi, Vilhelmína, kona Bergþórs Jónssonar, til heimilis að Lundar. Manninn sinn misti hún fyr- ir nokkrum árum. Bjó hún um tíma ein eftir það á heimilinu, sem þau höfðu reist sér á Lund ar, en svo fór hún til dóttur sinnar. Eyjólfína sál. var bæði góð og rínsæl kona, leysti af hendi blutverk lífsins með stakri trú- mensku, var ástrík eiginkona, sönn móðir og kynti sig vel hvar sem hún dvaldi á lífsleið- inni. Sá, sem þetta ritar, kyntist henni, er hann kom frá ís- landi árið 1883. Hann var þá með foreldrum sínum í húsi, er Eyjólfur heitinn bróðir hennar átti. Hún kom þar oft, enda var faðir hennar þá nýkominn að heiman, í sama húsinu. — Hann gleymir því ^ldrei, hve mikinn unað hún vakti, er hún kom. Hún var eins og sólar- geisli. Það var bjartara þar sem hún kom. Ánægjan með líf- ið ljómaði frá henni. I raun og veru, þó árin liðu, og margt drifi á dagana, sá eg hana ávalt þannig: sama einlæga sólbros- ið, óslitin trygðin, sömu gleði- þrungnu gæðin, alúðin óbrigð- ul. Hún hélt heimili sínu ávalt hreinu og fallegu og hún átti hreina sál. Lúterskum kristin- dómi hélt hún til dauðadags. Hún vkr jarðsungin laugar- daginn 16. marz af séra Rún- ólfi Marteinssyni. Var fyrst hald in bænargerð á heimilinu henn- ar, þar sem hún bjó með mann- inum sínum síðast og er rétt við heimili dóttur hennar. Þá var líkið borið í lútersku kirkj- una á Lundar og þar haldin að- al athöfnin. Var kirkjan full af fólki. Líkið var jarðsett 1 grafreit bygðarinnar. I “Planta á leiðið lHju bjarta, lífsins mark á dauðans pól. Gegnum myi/krið grafar svarta glóa blómisi hýr mót sól. Hvert eitt blað á gröf er grær, guðs er engils vængur skær. Dauðaklukkur dimt ei hringja, dýrðarljóð guðs englar syngja.” R. M. I

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.