Heimskringla - 08.07.1931, Síða 5

Heimskringla - 08.07.1931, Síða 5
WINNIPEG 8. JÚLÍ 1931. HEIMSKRING^A 6. BLAÐSÍÐA Gamalt Sendibréf (frá bónda í Hallson bygC veturinn 1900, tll slú'* 1f'rnt.s -Y.1®, neu'^ftu't'káldió Grand Forks N.D., upphaflega ritaC á ensku, en hér 1 *ft„ '•Hkr ” gótSkunna "Þorskabit”. Bréfib kom upp 1 gomium skjolum og er Hkr. ánægja ab lofa kaupendum sínum aó lesa þaó jafnframt þvi sem hun því nú metS þessum hættt höfundi og móttakanda. Br.et'ts lysi,r„,™1 og kostum bændalífsins á þeim árum ásamt ymsum Y!tS1>!'SSf ^ er stöku menn létu sig þá var6a, þó þaö sé alt sett fram 1 glettni og -'vmanyríum.) Ef leiðist þér að læra og æfa vit, ei létt þér myndi finnast bóndans strit, er sömu verkin vinnur hvern einn dag, frá vöknun morguns fram á sólarlag, að hreisna fjós og hauga burtu draga. Að höggva tré og flytja, kljúfa og saga ; og bera inn, svo húsið megi hita, er hægðarleikur enginn — skaltu vita. Svo hey og stráið heim af engjum flytja — er harðara en á skólabekk að sitja — í hríðarbyl þá hulið alt er snjó, þá hafa sumir stundum fengið nóg, og þá er betra að bili ei sköft né taumar, — hjá bændum eru oft sentatekjur naumar- og lítill tími að laga og endurbæta j' því líka fleiri verka þarf að gæta. Þá heim er komið kúm og hestum brynna er kvöð, sem bóndinn ætíð þarf að sinna. Til húsfreyjunnar brennið inn að bera, svo blauta og snjófga ei þurfi sig að gera. Að gæta kálfa, kinda, hænsna og svína, ' á kvöldin áður en legst í hvílu sína.----- * Á næsta morgni er nótt burt dagur hrekur sú nauðsyn búsins strax sig endurtekur. En svo er fleira. sem að kallar að: að sjá um börnin, — ekki minst er það. — Að kenna þeim við önnur börn ei ýfast, og eins þeim skýrg hvað sé ljótt að rífast. Sem bezt og glegst þeim greina frá þeim guði, sem enginn maður sá, en elskar þó börnjn sín ef þau trúa og auðmjúk í lotiiingu til hans snúa að kirkjuboðum og banni hlýði og breytingar engar á játningum líði. Að Mose boðorð í heiðri þau haldi, og hlífi sér eigi við presta gjaldi. Að rengi ei neitt, það sem ritningar þylja í ráðgátum, — engum sem hægt er að skilja. Á trúnni þau byggi, nær þekkingin þrýtur, og það sé hún ein, er um boðana flýtur.----- Nú sérðu hvert bóndinn má vanrækinn vera, og víst er það nóg, sem hann hefir að gera. Já, svona eru örlög hins erjandi manns, sem öll eru skráð út um bygðir hvers lands. Hann aldrei fékk litið í bók eða blað, því búskapar annirnar leyfðu’ eigi það. Á andlegu fóðri komst aldrei að kaupum, — en einstöku molum gat stolið á hlaupum. — Ef ættirðu að feta í fótspor hans vel, þá fljótt gengi úr lagi þín hugsana vél, fyrst lífs þíns á morgni þú mæðist án þarfa. og möglar um fábreytni daglegra starfa, við mentun þíns anda í allskonar fræðum, sem eru þér lyklar að framtíðar gæðum. Og hafa nægtir af bókum þeim béstu, sem birta þér sannleika nýjann — ef lestu, og lærir og temur þér tungumál flest er túlka þér vísdóm og þekkingu best.------- — Þá hugsa eg um allskonar æfingamót, ý með íþróttalistir og glaðværðarhót, og dansleiki og spil, sem úr tímanum teygja, og töfrandi ástahjal sveina og meyja, er brosandi stundum á stéttum reika, og storka til afbrýði mánanum bleika með öfundar glottinu um andlitið sitt----- og alt þetta veit eg er hlutskifti þitt. — — Þá hreyfir sig spurning í huga mér já, hvað er það annars sem gengur að þér? Hvað girnistu fleira, — mig fýsir að sjá — en fá þess að njóta, sem bent er hér á.------ Og velgengnis-.hlut þinn ef virðirðu smáann, ef væri eg yngri, — eg gæfi þér — á hann! —Þýðing. U |r' rw V r \ t * i íiJ ¥ inn en “Choral Society’’ er fyr- ir samkomunum stóð og sjálft sat að öllum hagnaðinum? Var ekki söngstjórinn í þjónustu ]>ess — umboðsmaður þess? Gaf það honum þá ekki vald til þess að ráða hvern sem hann vildi og völ var á í hlutverkin? Og þeir sem han nréði, voru þeir þá ekki ráðnir í þjónustu félagsins? Það getur naumast verið miklum vafa bundið. — Enda auglýsti félagið samkom- ur þessar sem sínar og sjálft sig sem það stæði fyrir þeim. Það hélt engum í neinni óvissu um það, á hvers forlag þær væru haldnar, né heldur hver bæri ábyrgð á þeim. Það stóð straum af þeim og bar allan kostnað. Á prógramminu sem það lét útbýta við kirkjudyrnar stóðu þessi orð: “Millennial Cantata, present- ed by The Icelandic Ohoral Society’’, og neðst á sömu síðu nöfn forstöðunefndarinnar. í auglýsingum í íslenzku blöðun- um 25. og 26. febrúar og 25. og 26. marz. er þess getið að “Hátíðar kantata Björgvins Guðmundssonar verði sungin af The Icelandic Choral Socie- ty.” Verður því fremur lítið úr þessari “leiðréttingu’’ en henni er skotið að til þess að styrkja söguburðinn og afasaka félag- ið gagnvart þeirri afstöðu, sem það hefir tekið viðvíkjandi fjár- hagsábyrgðinni, sem á því hvíl- ir gegn þeim, sem fyrir það hafa unnið. Enda finnur höf- undurinn til þess, og er þessi síðari grein hans af þeirri til- finningu sprottin. Vitnar hann til sjálfs sín og félaga sinna um að þeir fari með rétt mál, og ætti þá ekki að þurfa frek- ar vitnanna við. Það hefir löng- um þótt nægilegt að bera vitni í sjálfs sín sök til þess að sanna hvern málstað. Hversu mikið þeir félagar vaxa við slík- an framburð, skal eg láta ó- sagt, en þess gætir höfundur- inn ekki, sem þó öllum er ljóst, að með því að nota þessa aðferð til þess. ef unt væri að koma félaginu hjá fjárhagslegri á- byrgð og fegra framkomu þess gagnvart gestkomandi manni, játar hann að hann hafi verið notaður sem ábyrgðarlaust á- hald, til þess að fá fólk til að aðstoða sig við kantötuna án endurgjalds af félaginu. Lægra getur nú ekki sjálfsvirðingin lotið. Ummæli hans um mig per- sónulega læt eg mig engu skifta, því þau falla eigi fjær garði þess sem þau flytur en eplin falla frá eikinni. Vel er ef höf. hefir “hnekt rógburði’’ með þessari síðari ritsmíð sinni og samgleðst eg honum yfir því íafnframt því sem eg finn til samúðar með honum yfir hinu að eigi skuli hann hafa átt kost á sæmilegri dulu en þessari, er hann ljær yfirlætinu og hé- gómaskapnum til að dansa í. Sig. Skagfield. TUTTUGU OG FIMM ÁRA AFMÆLI kvenfélagsins “Frækorn’’ í Grunnavatnsbygð. Mjög markvert samkvæmi var haidið í Norðurstjörnu skól anum í Grunnavatnsbygðinni, þann 25. maí s.l.. Kvenfélag bygðarilnnar, sem Frækorn heitir, hélt 25 ára afmæli sitt. Hafði það boðið almenningi úr bygðinni og allmörgum lengra að til samkvæmisins. Voru þar saman komnir um 400 manns: þar á meðal nokkrir úr Winni- peg og úr Nýja íslandi. Kvenfélagið Frækorn var stofnað 25. apríl árið 1906. — Voru stofnendur þess 12 kon- ur, sem þá áttu heima í bygð- inni. Var svo til ætlast í fyrstu að félagið leiddi hjá sér allan ágreining um trúmál og önn- ur mál. Var sett grein í félags- lögin, sem beinlínis tekur það fram, að slíkur ágreiningur skuli aldrei gerður að sundr- ungarefni innan félagsins. Hafa möðljlmir félagtsins dyg^^ega lifað samkvæmt stefnuskrá þess öll þau 25 ár, sem það er búið að vera til. 1 félaginu hafa allajafna verið konur úr báð- um söfnuðum bygðarinnar (lú- terskum og únítarískum) og sömuleiðis nokkrar. sem ekki haíja verið í neinum söfnuði. En samkomulag hefir ávalt verið hið bezta og alls engin misklíð hefir komist að, út af skoðunum félagsmeðlima. Fé- lagið hefir styrkt báða söfn- uðina jafnt með fjárframlög- um og auk þess styrkt önnur fyrirtæki og hjálpað fólki, sem í bili hefir þurft á hjálp að halda, bæði innan bygðar og utan. Fast að tvö þúsund doll- ara hefir það gefið í peningum og auk þess sendi það smá- gjafir til margra hermanna á ófriðarárunum. Félagskonur hafa flestar orð ið 23. Hafa sumar gengið úr félaginu víð burtflutnipg úr bygðinni og af öðrum ástæð- um, en sumar hafa haldið á- fram að vera meðlimir þess, þó þær hafi fluzt burt. Nú mun tala félagskvenna |þeirra, er heima eiga í bygðinni vera eitt hvað nálægt því, sem hún var, er félagið var stofnað. Er það aðdáanlegt, hve miklu starfi svo lítið félag hefir getað af- kastað, og þá ekki síður hitt, hve lánsamar þessar konur hafa verið með samvinnu og einingu, þar sem flest önnur íslenzk kvenfélög í bygðum ís- lendinga hér í landi eru safn- aðarkvenfélög og starfa að miklu leyti í þágu þeirra safn- aða, sem þau eru tengd við. Samkvæmið var í alla staði hið veglegasta. Var það haldið prentað hér á eftir. Sigtryggur Kristjánsson mælti nokkur vel valin orð og Vigfús Guttorms- son flutti félaginu kvæði, sem er prentað hér. Söngflokkur frá Lundar, undir stjórn Vig- fúsar Guttormssonar, skemti á milli ræðuhaldanna og var gerð ur hinn bezti rómur að söng hans. Meðan á ræðuhöldunum stóð sátu núverandi félagskon- ur fyrir gafli hússins gegnt á- heyrendunum. Sú elzta þeirra, Mrs. Margrét Sigurðsson, er nú á fyrsta ári yfir nírætt, en með áfbrigðum ern og fylgdist hún vel með öllu því, sem fram fór, þótt heyrnarleysi bagi hana nokkuð. Stór-rausnarlegar veitingar voru fram reiddar af félags- konum. — Til minningar um mannfagnað þenna, sendu þær skáldinu J. Magnúsi Bjarna- syni og konu hans 25 dollara að gjöf, en hann var allmörg ár kennari við Norðurstjörnu skólann og bjuggu þau hjón þá þar í bygðinni. Ailir gestir þeir. sem þarna voru saman komnir, voru sam- mála um að samsæti þetta væri eitt hið stór-myndarlegasta, er nokkurn tíma hefði verið hald- ið þar um slóðir. Viðstaddur. * • • Tii þess að vera með í þess- um mannfagnaði, og sem aðrir að gleðjast yfir sigurvinning- um kvenfélagsins “Frækorn’’, þegar það á þessum tímamót- um yfirlítur sitt tuttugu og fimm ára starf, vil eg iesa nokk ur orð, ef þolinmæði ykkar leyfir; ekki til að flytja neinn kjarna eða nýmæli, heldur til að masa, því stundum er ekki sanngjarnt að þegja, ef maður á sjálfur einhverja sannfæringu í samræmi við þau mál, sem eru á dagskrá, og eg veit, að það er einhuga vilji fjöldans, er hér er saman kominn, að sem flestir taki þátt í gleðinni, sam- fagni með félaginu við þessa minningarathöfn, gleðjist yfir því að starfsemin hefir hepnast eins vel og þegar er búið að útskýra með hinum snjöllu og áhrifamikiu ræðum. sem flutt- ar hafa verið. Hversu mikið gleðiefni er það ekki, þegar hin góðu málefni líða engan baga innan félagstakmarka, þó skoðanamunur sé ríkjandi í mörgum greinum. Það eru rúmlega tuttugu og' fimm ár liðin síðan hið mikla | Minni “Jóns Trausta,, flutt að “Þorrablóti” 14. febrúar 1931 af séra Friðrik A. Friðrikssyni. Hann Gutenberg karlinn, sem “gæsalöpp” skar, svo grannlaus, í pílviðarbolinn, hann frétti það aldrei, hve Frónbúinn var við fróðleik og bóklestur þolinn. En það mega búvitrir segja til sánns — — er sjá hann með alla þá pésa — að oft væri gildari askurinn hans, ef ei hefði’ ‘ann kunnað að lesa. Því ei skýlir bókvitið öreigans nekt, né umsnýr það holtum og móum, né höndlar það torfið, ef hreysið er lekt, né hlýr það að norpandi króum. Þeir kveða að vísu um kvæðanna yl. Þá kenni eg þann, sem er betri. Því altaf er brennið með ágætum til í óþurð hjá Líndal og Pétri.*) Og þó er oss bökuð sú höfuga hrygð, að hér er það félag við lýði, er heldur með lestri sem happi og dygð og heilnæmri þjóðemisprýði. Og bókum er safnað í sérhverri tíð. — Þeir semja slík kynstur á Fróni — En alt, sem var prentað hjá íslenzkum lýð, er opið til lesturs hjá “Jóni”. “Jón Trausti” er ræðinn, er rökkvar á leið, og ratvís, sem leiddur af eldi. Hann býður þér með sér á skáldanna skeið, og skundar um sögunnar veldi. Hann hulum af fyrnskunnar fjölkyngi slær og ferðast með áifum og tröllum. Hjá Einstein hann vísinda-víðsýni fær á viðhorfum nútímans öllum. Og Haraldar-skoðunum hefir hann reynt að heimila vegferð um landið. Og ýmislegt veit hann, sem áður fór leynt, um ástina og hjónabandið. Um guðspeki’- og þjóðmála- svífur hann svið, og syngur þá eggjandi tóni. Og forherðist sál þín í frjálslyndum sið. er freistingin skæðust hjá “Jóni’’. En það munu forsjálir hyggja vort happ, ef hæft er að þann veginn stefni, að landinn sé farinn að lina sitt kapp við lestur og frónþjóðleg efni. Því magnað er nútímans matfangaþras, og mörg er hún árlega kvöðin. Sjá, þrjú hundruð dali í þeysi og “gas”! — Við þegjum um íslenzku blöðin! En “Trausti”, sem erfði sitt áræðna blóð, er austrið tók strikið til vesturs, mun framvegis auka sinn annálasjóð og eggja svo fólkið til lesturs. Og ef hann samt, blessaður, bryti sitt skip í brimsogum þjóðernistapsins — ja, þá yrði Guðjón**) minn gneipur á svip og grátlega stirfinn til skapsins. En þeir sem hér enn eru þverir í lund og þrjózkast gegn almennings i^áði, og þjóðernið vita sitt verðmesta pund og vegljós á framanda láði, þeir biðja nú reyndar um fríðindi og fjör til fylgdar við gamla “Jón Trausta”: Að hann eigi langa og hagsæla för, unz honum sé skotið til nausta. *) Hjörtur Líndal og Pétur Finnsson, bændur í Blaine. **) Guðjón Johnson, kaupmaður í Blaine, forseti Jóns Trausta um margra ára skeið. \ l andlega jökulhlaup klauf og sem kann í einhverjum skiln- sópaði Vestur-íslendipgum í jngi að hafa orðið fyrir hrakn- tvo andstæða flokka í trúar legum skilningi. Leysingin byrj aði að sönnu löngu fyr. En um >að leyti var hávaðinn einna mestur hér um slóðir, skifting- ingi á hinu stóra mannlífshafi, svo að tækifæri sé að rétta fram hjálpandi hendur. Þau tækifæri hafa ekki ver- stundarsakir. og ógnandi öðrum með eymd og niðurlægingu, þá muni hin síðasta alda varpa sérhverju mannlífsfleyi in á hina einu og sömu heitt þráðu friðarhöfn. Að þeim skilningi in ákveðnust, straumamir jyngstir; djúpir farvegir mynd- uðust, þar sem straumþunginn var mestur, og stundum varð barmafult, svo að út af flóði. Þess vegna má kalla það ið látin fara fram hjá ónotuð af þessu félagi. Það hefir ekki fyrst verið hafin rannsókn og spurt, hvaðan sá hjálparþurfi hafi komið eða á hvaða öld- hygg eg að góð samvinna leiði, og að þýðingarmesti parturinn í starfsemi þessa félags hafi verið og muni verða enn um langan aldur, að eyða misklíð síðari hluta dags og endaði með kvöldskemtun, sem stóð langt fram á nótt. Séra Guðm. Árnason stýrði því og sagði með nokkrum orðum frá starfi félagsins og tilgangi frá byrj- un. Mrs. Oddfríður Johnson frá Wlinnipeg, sem um mörg ár var ein af starfsömustu félags- konum, og er enn meðlimur félagsins, hélt ágæta ræðu um félagið og afstöðu þess í félags lífi bygðarinnar. Bergþór E. Johnson kaupmaður frá Win- nipeg, sem er upp alinn í bygð inni. flutti snjalt erindi um bygðarlífið á æskuárum hans. og einkum áhrif kennara, er þar hefðu verið, á hugsunar- hátt æskulýðs bygðarinnar.. — Dr. Sig. Júl. Jóhannesson hélt fjöruga ræðu um bygðina, og kvað hana að mörgu leyti með fremstu og farsælustu íslenzk- um bygðum, þótt landgæði þættu þar ekki eins mikil og víða annarsstaðar. Ágúst Magn ússon, sveitarritari flutti hið á- gætlega orðaða erindi, sem er merkilegan söguviðburð, að á þeim umbrotatímum skyldi “Frækorn” festa rætur í því mikla ölduróti, og að rótfesta þess skyldi verða svo sterk. að hin beljandi öfl fengu því ekki haggað. Þroski þess var meiri og víðtækari, líknarverkin fleiri og fjölbreyttari. Bilið á milli þessara strauma var eitt sinn svo ákveðið og stórt, að fáir voguðu sér þá leið, en “Fræ- korn hefir brúað bilið, með því að breiða lim sitt út yfir eyð- una, svo að hættan sé í það minsta hér margfalt minni með það að verða andlega úti.. — Sumum kann að skiljast, að bilin hafi verið víða brúuð á þessum síðari árum, og að það séu straumhvörf tímans, sem mestu ráði í þeim efnum. En þá vil eg bæta því við til frek- ari skýringar, að mér skilst að hér á þessum slóðum haldi hver sinni óbreyttri skoðun og sann- færingu, stefni að settu marki, beygi ekki út af leið, nema til að bjarga bróður eða systur, um borist, heldur seglum hefl- að aðeins til að hjálpa, og síð- an aftur tekin hin fyrri stefna. Skilningur og hugareining hef- ir vaxið við hverja aflraun við þessi björgunarsamtök; og eins og það hefir hepnast vel í fjár- hagslegum efnum, var vakin sú von, að síðar kynni einnig að verða samleið í andlégum efn- um. Og þó að hafnsögumenn- irnir hafi verið margir og bent sinn á hverja leið, fer sá skiln- ingur vaxandi, að mismunandi leiðir kunni að liggja til sömu hafnar, mest sé áríðandi að seglum sé rétt hagað og reynt sé af fremsta megni að stýra fram hjá boðum og blindskerj- um; að hinn virkilegi leiðar- steinn sé heilbrigð skynsemi, í samræm við þær bendingar, er gefnar hafa verið af þeim alvísa og algóða hafnsögu- manni; að þó að vindarnir blási úr mörgum áttum, og að öld- urnar rísi hájt, lyftandi sum- um til heiðurs og allsnægta um og misskilningi, en tengja sem bezt bræðra- og systraböndin i heilbrigðri og sannri merk- ingu. Fyrst að greinarnar á þessari smáu eik, sem hér hefir vaxið, hafa náð þeim þroska, hafist svo hátt yfir hleypidóma, að geta veitt vegfarendum skjól, er eðlileg afleiðing, að þessi tegund, þetta “Frækorn” fram- leiði önnur frækorn. sem flytja megi og gróðursetja í mörgum stöðum, sem álitið er að geymi meira frjómagn heldur en Grunnavatnsreitur. Eitt er víst, að frækomið kom í byrjun frá Garðarshólma. Bömin fluttu það sem arf eða gjöf frá móð- ur sinni vestur yfir hina köldu Atlantsála, og hér hefir það endurlífgast í Manitoba. Hinar miklu vetrarhörkur þessarar álfu hafa aukið lífskraftinn, og hinir mildu og ljúfu vestrænu straumar og vermandi sólmagn, lífgjafi og þroskaskilyrði tilver- (Framh. & 8. síðu*

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.