Heimskringla - 05.08.1931, Síða 1

Heimskringla - 05.08.1931, Síða 1
DYERS & CLEANERS. LTD. SPECIAL Men’s Suits Dry Cleaned and Pressed .....-.....$1.00 Ladies’ Plain Dresses Dry Cleaned and Pressed ...$1.00 GooiIm Called For and DelWered Mlnor Repaira, FREE. Phone 37 061 (4 lines) MAKE NO MISTAKES CALL lori DYERS & CLEANBRS, LTD. PHONE 37 061 (4 lines) XLV. ARGANGUR. WINNIPEG MIÐVIKUDAGINN 5. ÁGÚST 1931 NUMER 45 Nýja Islands Minni Flutt á íslendingadegi að Hnausum 3. ágúst 1931. Gleð þig, vor öld, þv5 hér er helgur dágur, Nú huldar raddir vakna í brjósti þér; Af tímans djúpi er risinn röðull fagur Sem rós á þyrnum alls ,sem liðið er. Já, vakna hress, sjá vatnsins öldur titra Og vorblóm teiga morgunbjarmans yl. Þar 'tárhrein dögg sem gullnar perlur glitra Á gróðri þeim, sem veit og finnur til. Já, þessar djúpu dularfullu raddir Frá dagrenning hins fyrsta landnáms hér, Þær minna oss á, til hvers vér erum kvaddir, Þær kenna oss enn hvað gildi starfsins er. Já, þeir sem báru fjöll og dali fríða Og fossa-afl í Nýja íslands skaut, í»eir áttu sögu og frægðir fyrri tíða I frjálsri sál- er guði einum laut. Hinn frjálsi, stóri, sterki landnámsmaður Varð stærri við hvert átak — meiri í þraut. Og þetta land varð honum helgur staður Sem heimalandsins góða móðurskaut. Því stendur heill af starfi frumbyggjanna, Vort stærsta lof er tengd þess ættarbands Og það er vfst, að minning slíkra manna Er mesta hrós vors kæra Nýja Islands. S. E. Björnsson. Minni íslands (Flutt að Hnausum 1931). 3. ágúst í fornöld veginn varðar á vestur hveli jarðar vor litla landnáms þjóð þó allir um það þegi á íslendinga degi mun Norðrið biðja niðja hljóð. sig breiddi blóma haf. Og svanur söng á heiðum — þá sást ei neinn á veiðum en selur út við eyjar svaf. En örlög brugðu brandi um Það hefur eögu sína og svipstór spjöldin skína af eldi og ísum skráð. Sú bók er bókum hærri og Biblíunni stærri þau blöð fær tímans tönn ei máð. Það sveiplar sögu spjöldum og sýnir þátt frá öldum — sem menn ei máttu sjá — þá okkar fóstra úr ægi reis ein að morgunlagi og horfði yfir höfin blá. Sá guð sem ísa og elda með orku saman felda lét vinna eining í. Kvað: “Norður! miklast máttu Hér mestan gimstein áttu, sem hefja mun þig hátt við ský”. Þó vetrar gengu um garða, og gerði aðför harða: fárviðri, frost og snær. Þá brostu blítt um nætur þær björtu himinsdætur, og norðurljósin loga skær. Það runnu aldir alda og íshafsbrimið kalda gaf henni hörku og þor. En Golfstraumurinn góði með gull í nægta sjóði, fór sunnan að og sólbjart vor. Er sungu sævar dætur við sólskin miðrar nætur, hún hvíta krónu bar. Og skrýdd af skógi grænum sem skalf í sumar blænum á milli fjalls og fjöru ’ún var. Á himnum englar hlógu- er hörpur fossar slóu á glaðri eyði-ey; þeir söngvar aldrei entu, sig ár um hana spentu sem silfurbelti bjarta mey. Hún átti gnótt af gæðum frá grund að fögrum hæðum | það báru menn að landi er frfðinn fældu á braut. Þeir fengu feikn af auði, þeim fylgdi kvöl og dauði og blóð í stríðum straumum flaut. Þeim gull og græna skóga hún gaf og hagsæld nóga Hún gnótt á borðin bar. Hún gaf þeim alt sem átti og ekki láta mátti ’ún uns aum og fátæk orðin var. un Þeir óhug að oss stefndu og ísland hana nefndu sú fregnin flaug um sæ það henni hlaut að óa. Hann hélt oss Eskimóa og ólíft fyrir ísi og snæ. syng hásöng norræns anda, sem svífi alt að Suðurpól. í fornöld veginn varðar á vesturhveli jarðar, vor unga íslands þjóð. Vort landnám lýsi heimi um hönd og himin streymi sem norðurljóssins logaglóð. J. S. frá Kaldbak. BEAUHARNOIS-MÁLIÐ. ísland á aldahrönnum þú unnir þessum mönnum með ástúð öllu meir. Þú horfðir hátt í raunum þeir hétu miklum launum því einir mannvit áttu þeir. Frá afdal yst teð ströndum þér ógæfan að höndum var feld á förnum stig, í klerka kúgun svarin af kirkju svipum barin. Þeir seinast kóngi seldu þig- Er þú varst rænd og rúin og risnan burtu flúin ium nótt á neyðarörk. Stóð bókment barna þinna — þér búin sæmd að vinna — sem eldstólpi á eyðimörk. Heill öllum andans mönnum og öllum drengjum sönnum á hvaða öld sem er. Er yfir eldum vöktu og einhvern skugga hröktu frá íslandi, sem elskum vér. Þeir gull og græna skóga þér gefi og farsæld nóga á meiri mannvits öld. Þér skili öllu er áttir og ekki láta máttir uns ágirnd flýr og kúgun köld. Þú landið helga í legi sem leyftrar móti degi sem aðeins Norðrið ól. Sál norðurs sigra vanda Eins og áður hefir verið skýrt* frá í Heimskringlu, skipaði sam- bandsþingið nefnd til þess að rannsaka kærur, er í þinginu komu fram gegn Beauharnois raforkufélaginu í Quebec. Og nefnd þessi hefir nú lokið starfi og lagt skýrslur sínar fyrir þingið. Er það styzt frá að segja, að nefndin álítur félag þetta hafa komið þannig fram, að ekki sé aðeins stórhneyksli að, heldur sé varhugavert að Iáta það halda áfram sínu starfi. Leggur nefndin og til að starfsrekstursleyfið sé af því tekið og sambandsstjórnin takist reksturinn á hendur. Forseti félagsins, Mr. Sweezy er í skýrslunni kærður um að hafa veitt fé í kosningasjóð, til þess að verða greiðara fyrir að ná í þau hlunnindi félag- inu til handa, er undir högg sambandsstjómarinnar þurfti að sækja. Eru þrír liberal efri mál- stofu þingmenn kærðir um að hafa verið að verki með Swee- zy í þessu. Em menn þessir: W. L. McDougald, Andrews Haydon og Donat Raymond. Hinn fyrstpefndi er kærður fyr- ir að hafa verið hluthafi 1 Beau- harnois félaginu á sama tíma og hann sem efri málstofu þingmaður lagði því liðveizlu sína. Hinir síðarnefndu eru kærðir um að hafa þegið fé frá félaginu í kosningasjóð liber- ala. Einn aðstoðar ráðgjafi Kingstjórnarinnar, J. B. Hun- ter, er kærður fyrir að vera meðeigandi í fólaginu. Og aðal- verkfræðingurinn í stjórnar- deild opinberra verka, Kenneth M. Cameron að nafni. er einn- • ig kærður fyrir að vera með- eigandi í Beauhamois félag- inu. Þá eru stjórnandi félags- ins, R. A. C. Henry, og gjald- keri þess, H. B. Griffith, ein- ig kærðir í skýrslunni. Það þarf því engan að furða á því, þó Beauharnois félaginu gengi greitt að ná hlunnindum sínum hjá stjórninni, þar sem þrír efri málstofu þingmenn og tveir aðstoðarráðgjafar King- stjórnarinnar eru annaðhvort meðeigendur 5 félaginu eða hafa fé í kosningasjóð frá því þeg- ið. Hvað gera skuli við þess'a menn, er engu haldið fram um í skýrslu þingnefndarinnar. Hvernig snýr nú þingið sér að þessu máli?. Samkvæmt því er forsætisráðherra R. B. Ben- nett heldur fram, álítur hann heppilegast að sambandsstjóm- in taki rekstur félagsins í sínar hendur, eins og nefndarálitið fer fram á. Virðist honum að almenningur, er hluti á í félag- inu ekki með öðru betur vernd- aður frá að tapa öllu sínu. — Leyfi til þess að selja þá hluti fékk félagið frá Kingstjórninni. Fyrir þessum mönnum í opin- berum stöðum, er hluti eiga í félaginu, virðist því ekki ann- að liggja beinna en að segja upp stöðum sínum. Samkvæmt þvl, er sumum sambandsþing- manna hafa fallið orð um þetta þykir þeim það tæpest nógu mikil hegning, að svifta þá að- ! eins stöðu sinni. Hefir forsæt isráðherra R. B. Bennett bent á í þinginu. að það væri efri málstofunni næst, að íhuga það mál, þar sem þetta væru starfs- menn hennar. Neðri deild þingsins hefði ekki vald til að dæma þessa menn fyrir störf þeirra í stöðum sínum. Á sambandsþinginu hreyfði Mr. McKenzie King því, að kon- ungleg rannsóknarnefnd væri skipuð til þess að komast að því, hvernig fé væri fengið í kosningasjóði stjórnmálaflokk- anna. Þótti forsætisráðherra R. B. Bennett það heldur umfangs mikið starf og kostnaðarsamt; auk þess þyrftu að koma fram kærur á menn til þess, að hægt væri að taka upp mál á móti þeim. Ef einhver hefði nokkra slíka kæru, skyldi konungleg rannsóknarnefnd strax skipuð. Að þingnefndin hefði á nokk- urn hátt sýnt hlutdrægni. kvaðst forsætisráðherra neita. í henni hefðu verið tveir con- servatívar, 1 liberal, 1 bænda- sinni og 1 verkamannasinni. — Stjórnarsinnar hefðu meira að segja verið í minnihluta í nefnd inni. Krafa Mr. Kings um víð- tækari rannsókn, án þess að ákveðnar kærur kæmu fram, væru aðeins tilraun til að klóra yfir gerðir stjórnar hans og Beauhamois félagsins. Það í sjálfu sér breytti engu gerð þeirra, hvað aðrir kynnu eða kynnu ekki að hafa gert. Stjórnin virðist ekki ætla að gera nei^t mikið númer úr þvs, þó að ferðakostnaður Mr. Hay- dens og Kings og McDougalds til Bermuda og Bandaríkjanna hefði verið greiddur af Beau- harnois félaginu. Á það ef til vill rætur að rekja til þess, að rannsókn þingnefndarinnar var ekki hafin með það fyrir aug- um, hvað félagið hafi greitt í kosningasjóði. heldur hitt, hvað Kingstjórninni hefði gengið til að leyfa Quebecfylki að selja Beauharnois félaginu orkuver- stæði þarna. Það er nú kunnugt orðið, að fossaflið er sú náma, er auðfélög nú sækjast mest eftir. Með því að komast yfir það, geta þau rúið og flegið þegna landsins, með sölu á ork- unni til ljó&a og annars, Starf- ræksla slíkra fyrirtækja ætti aðeins að vera í höndum þjóð- arinnar, en ekki einstakra manna. En þannig er nú ástatt, að Beauharnois félagið á orku- stöðvar þarna, er fylkisstjórnin í Quebec seldi því beggja meg- in árinnar. Árbotninn á Quebec- fylkið. En umráð og eftirlit samgangna eftir ánni er í höndum sambandsstjórnarinnar. Þama eiga því þrír aðilar hlut að máli. Og þó sambandsstjórn- in tali nú um að taka yfir rekst ur þessa félags, er bágt að segja hvort liberalstjórnin í Quebec- fylki leyfir það. Fylkið getur sjálft krafist rekstursins. Og það er jafnvel efamál, hvort nokkuð sé við Sweezy eða fé- laginu hægt að hreyfa, nema með góðu leyfi fylkisstjóraar- innar í Quebec. Um þetta mál mætti enda- laust ræða, en hér skal þó staðar numið að sinni. verða þau samt 5 í þetta sinn, úr því að ekki varð af kosningu í ár. Forsætisráðherra L. A. Tas- chereau hefir verið stjórnarfor- maður síðan 1920. Hefir liber- alastjórn verið þar við völd í 31 ár, eða síðan um aldamót. Núverandi stjórn hefir 69 þing- menn, en conservatívar 12. — Tveir þingmenn hafa dáið, og tveir hlotið fasta stöðu. Alls eru þingsætin 85 sem stendur, en 4 ný kjördæmi er verið að mynda, svo þingmannatalan verður eftir næstu kosningar 89. Er sagt að kosningar þessar verði sóttar af kappi miklu. — Eins og sambandskosningarnar bára með sér. hefir conserva- tívum í fylkinu fjölgað mjög síðán 1927. Einnig hefir Beauharnois- hneykslið orðið til þess að vekja óhug hjá Quebecbúum, en við það er Taschereau stjórnin svip i að riðin og Braokenstjórnin í j þessu fylki yið sölu Sjö Systra fossanna. Búast liberalar við öflugri andstæðingaflokki en nokkru sinni fyr. RÚSNESKA SMJÖRIÐ. Næst er það smjör frá Rúss- landi, sem til sögunnar kemur markaðinum á Bretlandi. — Hver smjörfarmurinn kemur nú þaðan eftir annan, og áður en árinu lýkur, gera menn ráð fyr- ir, að Bretland verði búið að kaupa þaðan smjör, svo að nemi $10.000,000. Canada er að reyna að halda þenna markað á Bretlandi, en svo virðist sem smjör frá Rússlandi gangi nú orðið bet- ur í augu Bretans, heldur en smjör frá nýlendum hans. lendingadagurinn er ein elsta og þjóðlegasta stofnunin. sem hér hefir verið á fót komið af slendingum. Hún hefir verið íslenzka þjóðarbrotinu í þessum bæ bæði til gagns og sóma. — Það hefir ef til vill verið meira tekið eftir Islendingum hér fyr- ir þessa hátíð, en fyrir nokkuð annað, sem við höfum haft með höndum. Um langt skeið hefir blaðið Manitoba Free Press dregið upp íslenzka fánann á >essum þjóðminningardegi vor- um. Og með því er oss sæmd og viðurkenning sýnd, er mikils- verð er fyrir oss meðal hérlendu ijóðarinnar, auk þess sem það minnir oss á,, hve mikils þjóð- minningardagar eru metnir hjá öðrum þjóðum. Auk hinnar djúpu þýðingu, sem þjóðminningardagar hafa, eru ávalt samfara þeim fjöl- breyttar skemtanir. Þar hittast og .vinir og kunningjar, sem ekki hafa lengi sést, og rifja upp allar þær skemtilegustu endurminningar, sem í sálum >eirra hafa blundað. Það verð- ur margur að nýjum manni, fyrir að verða fyrir því happi. í bænum verður hvergi aðra eins skemtun að hafa næst- komandi laugardag, sem á ís- lendingadeginum í River Park. ILEANA PRINSESSA GIFT. Nýlega giftust þau Ileana prinsessa frá Rúmeníu og An- ton erkihertogi af Hapsburg. Ileana er dóttir ekkjudrotning- ar Maríu í Rúmeníu. Faðir henn ar var Ferdinand konungur, er nú er dauður. Bróðir hennar er Carol, núverandi konungur í Rúmeníu. Á hann einn son, þó skilinn sé nú við Helenu drotningu sína, svo systir hans er ekki líkleg til að erfa kon- ungdóm í Rúmeníu. Hapsborgarættin, sem áður réði yfir Austurríki og Ung- verjalandi, má heita úr sög- unni sem ríkisstjórnarætt. — Austurríki og Ungverjaland eru nú lýðveldi, og jafnvel þó að konungsríki væri þar komið á fót, sem í Ungverjalandi kemur að minsta kosti ekki til mála meðan Horthy forseti er á lífi, því hann berst öflugt gegn kon- ungsvaldi þó gamall sé, er An ton ekki sá næsti, er til ríkis er borinn. Ríkisstjórn bíður því ekki þessara hjóna. Anton er flugmaður góður sagður, og kvað vera að kenna konu sinni að stjórna flugvél. Victoría drotning er langamma Ileana prinsessu. FYLKISKOSNINGAR f QUEBECFYLKI. Kosningar fara fram í Que- becfylki 24. ágúst n.k. Voru síðustu kosningar þar 1927. — Gat því stjórnin setið eitt ár lengur. En það er í flestum fylkjum landsins orðin hefð, að stjórnin láti ekki nema 4 ár líða á milli kosninga. í Manitoba ÞJÓÐMINNINGARHÁTÍÐ WINNIPEG-ÍSLENDINGA Eins og auglýst er á öðrum stað í þessu blaði, verður ís lendingadagurimi í Winniþeg haldinn næstkomandi laugar dag (þann 8. ágúst) í River Park. Vega rigningarinnar s. laugardag varð að fresta hátíð inni. Vonandi fjölmenna Winnipe íslendinga á þessa hátíð. fs ALMENNUR FUNDUR. Óháða verkamannafélagið í Winnipeg hefir ákveðið að kalla til almenns fundar í sambandi við Beauharnois hneykslið. — Robert Gardiner og E. J. Gar- land, er fyrstir vöktu máls í sambandsþinginu á Beauhar- nois málinu, fyrir ári sáðan, hafa verið beðnir að koma og halda ræður á fundinum. Einn- ig Mr. Woodsworth. Verði nokk uð af þessum fundi, á að bjóða hverjum orðið sem æskir þess, hvaða stjórnmálaflokki, sem hann tilheyrir. Tillaga verður lögð fyrir fundinn, er að því lýt ur, að tordæma athæfi þeivra, er á einn eða annan hát.t. eiu við Beauharnois málið riðmr, og sem auðgast hafa á því. TALA BÍLA f BANDARfKJ. UNUM. Skýrslur sýna að 1. janúar 1931 voru 27-690,000 bílar eða mótorvagnar í Bandaríkjunum. Alls er sagt að séu í heiminum um 36,000,000 bíla í notkun. Er þvá ekki nema einn fjórði >eirra utan Bandaríkjanna. — Verður og samkvæmt því einn bíll á hverja fimm manns í Bandaríkjunum, en einn á hverja 200 í öðrum löndum heimsins. Auður Bandaríkja- manna kemur í ljós í rnörgu. VfSA. er L. Kristjánsson mælti fram, þegar Sigfúsi Halldórs' frá Höfnum var afhentur stafur að gjöf í skilnaðarsamsæti. er honum var haldið 27. júlí á Alexandra gistihöllinni. Fúsi, austur yfir haf, um óravegu langa, á við þenna undra-staf alla leið að ganga. FLUG. Lindbergh og kona hans lgðu af stað f flugvél frá New York til Tokio í Japan s. 1. föstudag. Þau komu við í Ot- tawa og Fort Churchill um helg ina. Frekari fréttir hafa ekki borist af ferð þeirra.

x

Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.