Heimskringla - 14.10.1931, Blaðsíða 4

Heimskringla - 14.10.1931, Blaðsíða 4
4. BLAÐSÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG 14. OKTÓBER 1931 ! ^iúmskringla StojnuB lSSt') Kemur út á hverjum miBvikudegi. Eigendur: the viking press. ltd. MJ og 855 Sargent Avenue, Winnipeg Talsimi: 86537 VerB blaðsins er $3.00 árgangurlnn borglst fyrlrfram. AUar borganir sendist THE VIKING PRESS LTD. Ráðsmaður. TH. PETITRSSON Otanáskrijt til blaBsins: Manager THE VIKING PRESS LTD., 853 Sargent Ave., Winnipeg. FUtstjóri STEFAN EINARSSON Vtaniskrift til riistjórans: EDITOR HEIMSKRINGLA 853 Sargent Ave., Winnipeg. Tlelmskrlngla'’ is published by and printed by The Viking Press Ltd. 133-855 Surgent Avenue, Winnipeg. Man. f«tephOD«: 88 885 WINNIPEG 14. OKTÓBER 1931 ATVIK __ úr æfi tveggja velþektra manna — Það var fyrir mörgum árum, að tveir drengir stunduðu nám á Leland-Sanford háskólanum í Bandaríkjunum. Þeir voru fátækir. Og von þeirra um að geta haldið áfram námi, var bygð á bjartsýni tómri eða hugboði um að geta viðhaft sparnað langt fram yfir það sem sann- gjarnt eða jafnvel hugsanlegt var. Enda kom að því, að fé þeirra þraut og skóla- göngan var úr sögunni. Datt þá öðrum þeirra í hug, að þeir skyldu efna til sam- komu, og fá Paderewski, er þá var vestan hafs, til að spila.- Spilarinn frægi áskildi sér að launum $2,000. Drengirnir gengu að því, með því að hann biði eftir laun- um sínum þar til eftir samkomuna. En þrátt fyrir að þeir ynnu baki brotnu að undirbúningi samkomunnar, höfðu þeir ekki í aðra hönd af því nema $1600. Fóru þeir nú á fund Paderewski, af- hentu honum þessa $1600, sögðu honum hvernig alt hefði farið, og báðu hann um frest á afgangi skuldarinnar, en gáfu honum eiginvíxil (Promissory Note) að upphæð $400 fyrir henni. “Nei, nei, drengir mínir”, svaraði Paderewski. “Svona gerum við ekki út um þetta”. Hann reif eiginvíxilinn sund- ur og lagði peningana, þessa $1600 á borðið. Segir hann drengjunum að taka 10% hvorum af upphæðinni fyrir þeirra fyrirhöfn, en afgangurinn skuli vera fullnaðarborgun til sín. Varð hlutur hvors drengs $160. og nægði þeim það til þess að geta haldið áfram námi út árið. Ár liðu og stríðið mikla hófst, og létti eftir að hafa veitt mannkyninu ótal ó- læknandi svöðusár. Paderewski, stjórn- arformaður Póllands, sá ættjörð sína flakandi í sárum og þjóðina, sem hann unni, hungraða, klæðlausa og aðfram- komna. Til þess að reyna að bjarga henni frá tortímingu, leitaði hann á náð- ir einu þjóðarinnar, sem þá daufheyrð- ist ekki við að græða sár heimsins ef hægt væri. Og árangurinn var sá, að vistir streymdu inn í landið, svo Pader- ewski var önnum kafinn við að útbýta þeim. Eftir að hinir bráðhungruðu höfðu verið saddir og um sárin stærstu hafði verið bundið, tók Paderewski sér ferð á hendur til Parísar til þess að þakka Herbert Hoover fyrir vistirnar, sem hann hafði svo fljótt brugðist við að senda Póllandi á neyðartíma þess. “Ó, það er ekkert að þakka, Mr. Pad- erewski’’, sagði Hoover. “Eg vissi hver þörf vistanna var. Auk þess, en eg veit að þú sért nú búin að gleyma því, hjálp- aðir þú mér og öðrum vini mínum einu sinni, þegar eg var í skóla og átti ekki túskilding handa á milli”. Frásögnin er ekki lengri af þessu. En hún ryfjaðist samt upp á þakkargerðar- daginn. JÁ OG AMEN Fyrst þegar vér kyntumst stjórnmála- h'fi þessa fylkis, var liberalflokkurinn hér talsvert spertur og mannborlegur. Það hefði þá þótt saga til næsta bæjar, að hann segði já og amen við því, sem aðrir flokkar ráðlögðu honum, hversu heitt jafnvel sem verið hefði. Nú virðist öld- in önnur. ósjálfstæðið er nú orðið leið- arhnoða flokksins. Alt sem aðrir segja honum, gerir hann nú umsvifalaust og umhugsunariaust. Hann má heita orð- ilin að stýrislausu flaki, sem hrekst fyrir fjöllum og vindi til og frá á öldum stjórn- málahafsins. Um leið og forsætisráðherra Bracken hreyfði því að mynda samsteypustjórn í þessu fylki, beit liberal-flokkurinn und- ir eins á öngulinn og leiðtogi hans, dr. Mackay, var svo hrifinn af því, að hann gat ekki stilt sig um að lýsa því yfir að hjarta sitt og Brackens slæu nákvæm- lega eins í þessu efni. Bæði Konservat- ívaflokkurinn og verkamannaflokkurinn Utu á samsteypustjórnarhugmyndina, sem hvern annan póhtízkan barnaleik á þeim grundvelli, sem forsætisráðherra Brack- en hafði hugsað sér hana, og aðéins fálm út í loftið til að leita fyrir sér um möguleikana að sitja kyr við vöid og umflýa kosningar. Að það hafi verið völdin ein, sem forsætisráðherra Bracken hafði í huga, getur enginn rengt sig um, þegar þess er gætt að hann ætlaði sér eftir sem áður að vera í meiri hluta og taka að- eins í stjórnina 2 Konservatíva, 1 liberal og 1 verkamannafulltrúa. Ef stjórnin átti að geta heitið samsteypustjórn, varð hún að vera skipuð nokkurn veginn jafn- mörgum mönnuim úr hverjum flokki. En hjartað hoppaði í barmi liberal- foringjans við vonina um að koma, fyrir einskæra náð Brackensflokksins, einum manni í stjórnina. Minnir það á hið fomkveðna: Lítilla sanda, h'tilla sæva, lítil eru geð guma — — — SKULDIR. Um skuldir er nú mikið talað, einkum stríðsskuldir. Em margir þeirra skoðun- ar, að skuldir síðasta stríðs séu orsök kreppunnar í heiminum, og til þess að bæta tímana sé heppilegasta leiðin að strika út þá skuld, ef ekki allar þjóð- skuldir. Grein sú, er hér fer á eftir fjall- ar um þetta efni frá þessari hlið. Hún er skrifuð af manni, er D. F. Rose heitir, merkum rithöfundi, og var birt í ágúst- hefti tímaritsins, Aero Digest, sem gefið er út í Bandaríkjunum: Ef Þýzkaland greiðir allar stríðsskuld- ir sínar — og það er atriði, sem vert er að athuga — greiðir það hana ekki að- eins einu sinni, heldur þrisvar sinnum. Það tvíborgar hana með rentunum ein- um. Og samt er hún ekki að fullu gold- in. Það er alveg eins og með húsið, sem eg keypti einu sinni, eg var búinn að þríborga það, þegar eg loks fékk eignar- rétt á því. Löngu eftir að þú ert kominn undir græna torfu, halda ekki aðeins börain þín, heldur og bamabörn, áfram að greiða skuldir síðasta stríðs. Þjóðskuldir eru í þessu fólgnar — að binda bagga eyðslusemi einnar kynslóð- ar annari á bak. Eg ætla ekki hér að fara að segja þér frá, hve mikið þjóð- skuldir hafa aukist síðastiiðna öid. í stað þess ætla eg að benda þér á hitt, hve lengi þú greiðir þeim vinnulaun, sem þú ræður í þína þjónustu í stríð, eftir að stríðinu er iokið. Síðasta ekkjan frá stríðinu 1812 dó á þessu ári. Allan þann ti'ma hefir stjómin greitt henni kaup mannsins hennar, þakklát fyrir þjónustu hans í þarfir ríkisins. Út á það er í sjálfu sér ekkert að setja. Það var í raun og veru ekki nema sjálfsagt. En það er annað, sem eg viidi beina athygl- inni að. Þegar þú rífur hár þitt út af því, hve fe-kattarnir eru háir í ár, þá máttu vita, að sumt af skattfénu fer til þess, að greiða skuldir einhverra stríða, sem háð voru áður en afi þinn sá dagsljós þessa heims. En svo er auðvitað iangt frá því, að skuldir þær, sem þjóðir safna yfir höfuð sér handa öðrum að borga, séu alt stríðs- skuldir. Þjóðskuld Bandaríkjanna hefir lækkað síðastliðin 10 ár, en skuldir bæja og ríkja hafa að sama skapi hækkað. — SkÝrslur, sem fyrir framan mig iiggja. sýna, að 250 bæir t. d. hafa á s. 1. 10 árum bætt 304 miljónum dala við skuld sfna. 10 prósent af öllum bæjarútgjöld- um eru nú fyrir vexti á skuldum. Og á síðastliðnu ári gátu mörg ríki, eða 21 talsins, ekki mætt útgjöldum sínum og urðu þá auðvitað að taka lán til þess. — Sannieikurinn er sá, að hvort sem við köllum það menningu eða ekki, erum við að hlaða upp fjöllunum hærra skuida- byrðinni á bak þeim, sem ennþá eru ekki famir að ganga á síðum buxum. Auð- vitað er skuidin fyrir verk, sem við höf- um vinna látið og við stæmm okkur af og bendum á sem sönnun okkar miklu menningar. En kostnaðinn, sem samfara er þessum afreksverkum, höfum við ekki nema að sára litiu leyti greitt sjálfir, og ætluðum okkur aldrei að gera það, held- ur afkomendum okkar. Eins og áður er vikið að, á þetta sér- staklega við um stríðsskuldir, og hjá þeim verður trauðlega komist meðan her vald þykir óumflýjanlegt. Það getur vel verið að fyrir mörgum þjóðum vaki ekk- ert nema friður. En hver getur, enn sem komið er, reitt sig á það? Sannleikur- inn er sá, að sú þjóð, sem ekki hervæðist, býr yfir ótta um að verða rúin hverri fjöður á svipstundu af einhverri annari þjóð, sem hervaldssinnaðri er en hún. Hugmyndin um að takmarka iand-, loft- og sjávar-herútbúnað, er ekki trygging algers friðar. Hin hugmyndin, sem fram hefir komið, að minka vopnaburð smátt og smátt, gerir það heldur ekki sem stendur, eða í bráðina. En þó er hvort- tveggja að vissu leyti spor í rétta átt. Á móti aukinni notkun loftskipa í við- skiftalífinu, er auðvitað ekki neitt hægt að hafa. En svo segir það sig sjálft, að það verða loftskip, sem kanske ráða mestu um úrslit næsta stríðs. Með fjölg- un og fullkomnun þeirra, eru því þjóðim- ar í raun og veru að hervæðast. Og hvað mörg loftskip þarf í næsta stríði? Miklu fleiri en svo, að nokkur þjóð geti smíðað þau af eigin ramleik eða á eigin kostn- að. Hún verður að taka lán til þess. Og það lán verður skuldabaggi á tveimur eða þremur komandi kynslóðum. En nú gæti svo farið, að jafnvei þáu loftskip, sem nú em smíðuð til hernaðar, yrðu ónóg í næsta stríði. Þau gætu úr- elzt eins og herskipin og fallbyssumar. Og til hvers væri þá að sökkva sér í skuldir fyrir smíði þeirra nú? Herskipin og fallbyssumar og allur herútbúnaður Bandari'kjanna, sem aldrei hefir verið notaður í stríði, hefir kostað mikið meira fé en öll stríðsskuidin og þjóðskuldin, og allar þær skuidir, sem á þjóðina hafa fall- ið í sambandi við kreppuna, sem við eig- um nú við að búa. En vegna þess að aðrar þjóðir heimsins hafa sífeit verið að hervæðast, hefir Bandaríkjaþjóðin einn ig orðið að gera það. Og það er nú ein- mitt þetta, sem hún kvartar um hjá Ev- rópu þjóðunum. Hvers vegna afvopnast þær ekki, eins og Bandaríkin hafa verið að knýja á þær að gera? Er það ekki dá- lítið grunsamt, að þær skuli standa með betiidiskinn í ánnari hendi, en maskínu- byssuna í hinni? Þarna er ástæðan fyrir vopnaútbúnaði Bandaríkjanna. Og kostn- aðurinn við hann er ekkert smáræði. Síðastliðið ár nam hann 707 miljónum dala. Á Rússlandi nam hann 579 milj- ónum. Og þriðja mesta herútbúnaðar- landið er Frakkland, og Bretland hið fjórða. Þetta eru svo mikil útgjöld, áð við sjálft liggur, að þau séu að verða nú tíðar menningunni að falli. Nei — framtíðarstríðin verða þannig, að herútbúnaður nútímans verður ekki til neins, nema að hnýta þjóðunum skulda bagga á herðar. Þýzkaland var allra landa bezt búið út í stríðið mikla. En hveraig fór fyrir því? England var illa við því stríði búið. Skotfæraverksmiðjur voru þar fáar til að byrja með. En að tveim til fjórum vikum liðnum, var skot- færaverksmiðja komin þar upp 9 mílna löng. Það verður ekki áhlaupahernað- ur, sem vinnur næsta stríð, heldur hitt, hve mikinn auð að þjóðin hefir á bak við sig til að halda umsát eða einangrun áfram. En það verður hverri einustu þjóð um megn að gejra vegna féleysis. Auk þess er ekkert unnið með þvíy eða að minsta kosti ekki einn tíundi hluti alls þess fjár, er eytt er, ekki einu sinni fyrir þjóðinni, sem vinnur sigur. Næsta stór- stríð borgar sig ekki frá neinu sjónarmiði skoðað. Sigur síðastT stríðs gerði það alls ekki heldur, með tilliti til alls, sem af því hefir leitt. Skuldir síðasta stríðs verða að líkind- um .aldrei borgaðar, allra sízt að fullu. Vonandi er að það kenni þjóðunum, að lána ekki fé framvegis til stríða. Ef þjóð- in getur ekki sjálf borgað fyrir stríðið, sem henni finst að hún verði að heyja. er henni betra að sitja heima og efla hag sinn með því, sem henni verður meira til frambúðar en stríð. Að öllum stríðum sleptum, er það orð- ið álitamál, hvort þjóðskuldir yfirleitt séu réttmætar. Sú þjóð, sem taka verður lán til mikíls af þeim verkum, er hún ræðst í að gera, ætti að láta störf þau óunnin. Siðferðisskylda hennar ætti að benda henni á það, að hún er að mestu leyti að byggja fyrir sig, en ekki komandi kynslóðir. Flutningstækin t. d., sem hún sökkvir sér í skuldir fyrir nú, og ætlar þremur eða fjórum næstu kynslóðum að borga fyrir, geta veríð þeim kynslóðum til einskis gagns. Þegar hver uppgötvunin rekur aðra, breyt- ast tímar og hættir þjóða skjótt. Að hneppa skuldakeðju um háls afkomenda sinna, er mesta ó- ráðið, sem siðmenningu vorra tíma háir. Við verðum að fara að borga fyrir öll þau þægindi, sem vér njótum sjálfir, en hætta að demba því á komandi kyn- slóðir. Ef við gerðum það, gæti svo farið, að við færum varlegar í hlutina en við höfum gert til þessa. — Skulda þræl- dómshelsið, sem við nú hnepp- um komandi kynslóðir í, er svo DODD’S ^ IKIDNEY; PILLS 4£der TR0 7.- H J ^heumaTÍí I fullan aldarfjórðung hafa Dodd’s nýrna pillur verið hin viðurkenndu svartur blettur á siðmenningu bakverk, gigt og biöðnn i sjukdómum, og hmum morgu kvilla, vorra tírna, að rnér er til efs, er stafa frá veikluðum nýrum. — að næsta kynslóð geti annað iÞær«1 söiu i öiium íyfjabúð- um á 50c askjan eða 6 oskjur fynr en skammást sin fyrir að vera $2.50. Panta má þær beint frá fyrsti ættliðurinn frá okkur. Dodds Medicine Company, Ltd. Tor- onto, Ont., og senda andvirðið þang— að. ÞAKKARGERÐARDAGINN 12. OKT. 1931. Frh. frá 1- bls. menskunni, sem hann þó er neyddur til að fyrirgefa og frelsa. Hitt er þó meira vert, að Þjóð vor er orðin gömul, þó vera minnugur þess góða, sem eigi teljist bún með himum manni áskotnast og sýna þar elztu þjóðum. Hún hefir átt lit á móti — efna heit sín við breytilega æfi og mörg tíma- guð og góða menn, eins og hin- bilin í sögu hennar verið ervið- ir gömlu komust að orði. leikaár. Yfir hana hafa gengið Þeir sem lesið hafa Ólafs^ hallæri árum saman og öld af sögu helga, er einkar vel lýsir öld. Eins og skáldið kemst að trúarfari forfeðra vorra, munu orði, hún “hefir mátt þola mein minnast sögunnar af Gauka- in flest, er skýrt má greina, ís Þóri og Hafrafasta, er varpar og hungur, eld og kulda, áþján, ljósi yfir iþetta, er vér höfum nauðir, svartadauða”. Hún hef- bent á. Rétt fyrir orustuna á ir lært að skilja hvers virði fæð- Stiklastöðum skipar Ólafur liði an er, enda kemur það fram i sínu að ganga til skrifta við ótal mörgum orðum hennar, er biskup og lærða menn. “Þá er hvert um sig lýsa huga hennar menn gengu til skrifta,” segir á því efni, svo sem “kostur”, sagan, “fóru þeir Gauka-Þórir “bjargráð’’, “fagnaður” o. fl. j og Hafrafasti með flokk sinn íslendingar hafa verið og eru að sitja einhversstaðar. Kon- matmenn og sælkerar. En þeir ungur spurði hví þeir gerðu hafa sjaldnast litið öðrum aug- eigi sem aðrir menn. “Ekki höf- um á fæðuna en sem nauðsyn um vér til at hvísla við biskup.” lífsins. Þeir hafa aldrei hafið sagði Gauk-Þórir. “Ekki mun matinn upp yfir að vera annað þat svo vera kvað konungur,. en þarfir, — aldrei fært brauð- en þat megi vera at þér béri,ð ið upp í guðahelgi eins og Gyð- þar ekki mikinn vana til,” og ingar og Rómverjar, aldrei gert mun hvorttveggja hafa verið fæðuna að miðhugsun lífsfagn- satt. Gauka-Þórir leit svo á„ aðarins eða lífstilgangsins, — að skriftaathöfnin væri eigi aldrei sett henni hátíð í sér- mönnum sæmandi, væri hvorki stökum skilningi. Þegar á bját- veglegri né þýðingarmeiri en aði fyrr á öldum, settu þeir svo, að hún væri einskonar “heitdaga”, en ekki þakkar- slúður eða hvísl við biskup, og gerðarhátíðir. Tóku þann kost- inn, sem þeim virtist mannleg- baðst því undan því erviði. — Þannig tnun og þjóð vor hafa astur, að leggja sig fram sjálfir, á, hana litið á ölum þeim tím- vinna eiftir fremstu getu til er hún hefir mátt upprétt þeirra gæða eða aðstoðar er ! standa. Enda mun iþað á sann- þeir þráðu. Það var helminga- j asL ef eftir er leitað, að ein- félag við forsjónina, réttlátt og fyrir þá skuld lögðust sanngjarnt, að yfirsýn beztu höfðingjar hennar og leiðtog- manna. ar aldrei undir hæl rómversku Þetta lundarlag, þessa lífs-' kirkjunnar, að þeir “höfðu ekki skoðun skildu Danir ekki, er þeir settu oss almennan bænar- og þakkargerðardag, er óvin- sælastur varð, ekki eingöngu allra hátíðisdaganna, heldur og allra daga ársins, og var jafn- skjótt úr lögum numinn og ráð fengust til. Ef til vill eymir það eftir af hinum eldra sið, og að til að hvísla við biskup”. Sé þetta rétt ályktað, og sé þetta þjóðareðli vort, þá hefir hinn viðtekni boðskapur há- tíðarinnar í þjóðlífinu hér, aldrei komist til vor. Vér höf- um eiginlega haldið alt aðra hátíð en þeir, sem í kringum oss hafa búið. Það er fyrst nú sjálfsögðu líka liggur það í blóð- með þeirri breytingu sem er að inu, að þjóðin hefir jafnan verið ógjörn til þakkargerðarhátíða. Hefir það verið lagt svo út, að verða — þegar að kalkúns- merkið verður tekið af henni, að vér getum tileinkað oss hana hún væri vanþakklát og heimtu- I og að henni verður skipað í frek þjóð í eðli sínu. En það er! flokk með hinum öðrum há- alls ekki ástæðan. Þjóð vor er tíðisdögum, er verið hafa, og ekki vanþakklát að upplagi, né skamminnugri á það, sem henni er gert vel til, en aðrar þjóðir, nema síður sé. Heldur er hér eg vona að verða muni jafnan vökudagar vors andlega lífs. Það er því minni erviðleik- um bundið en í fyTstu virtist, um alt annað að ræða og sem að flytja ræðu þessa hátíðis- kemur til greina. Bænar- og þakkargerðarhátíðir eru, jafn- framt því sem þær minnast ein- hvers eins ákveðins hlutar, eins- konar upptalninga- og skrifta- göngudagar, þar sem dýrkand- inn telur upp þau gæði, sem honum ómaklegum hafi verið veitt. Þessi upptalning, þetta tfjas, þessi játning hefir jafnan verið fráleit norrænu eðli. Hvað þýðir að vera að telja slíkt upp? Drottinn veit það alt saman, því “hann er fyrir framan oss og að baki voru og heldur yfir oss sinni hendi”. Og til hvers skyldi eiga að vera að telja upp allar manns ávirðingar og lítil- mensku, og gera guði óþægt verk með því, hæla sér af ó- dags, í vorum hópi, þó hvorki verði alið á orðinu “þökkum”, eða hvatt til skriftargöngu. Úr boðskap hennar söknum vér eigi þess, sem vér höfum aldrei við hana tengt. Að hátíðin tapi við það, að þýðing hennar færist yfir á hina andlegu hlið, fjær kjöt- pottunum og átveizlunum, — munu fæstir samsinna, eftir al- varlega íhugun. Svo fjarri því að gildi hennar gangi saman, rýrni við þann aðskilnað, kem- ur það fyrst í ljós. Hún er minp- ingarhátíð, fagnaðar- og sig- urhátíð, að haustnöttum hald- in, að liðnum sólskinsdögunum, að liðnu sumri. Hún er áning neðan við jökulhrekkur aðhall-

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.