Heimskringla - 14.10.1931, Blaðsíða 8

Heimskringla - 14.10.1931, Blaðsíða 8
8. BLAÐSÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG 14. OKTÓBER 1931 * FJÆR OG NÆR. Séra Ragnar E. Kvaran flytur guðsþjónustu í Árborg á sunnu- daginn 18. okt., kl. 2 e. h. ♦ • • Skáldið J. Magnús Bjarnason frá Elfros, Sask., kom til bæj- arins í gær. Hann kom með Árna Eggertssyni frá Winnipeg er vestur fór s.l. föstudag. Mr. Bjarnason kom til þess að leita sér lækninga við augnveiki. — Hann býst við að halda heim- leiðis aftur í kvöld. * * * Dr. S. E. Björnsson frá Ár- borg og frú hans voru stödd í bænum s.l. mánudag. * * ♦ Sigurður Finnbogason frá Langruth, Man., kom til bæjar- ins s. 1. föstudag. Hann kom í kynnisför til dóttur sinnar, Mrs. F. Dixon, konu Mr. Dixons þess, er kjötmarkað rekur á Sargent Ave. hér í bænum. * * * Guðm. Hjartarson frá Árnes, Man., var staddur hér í bæn- um s. 1. fimtudag. Hann var að heimsækja dóttur sína, Mrs. Hope, og vini og kunningja aðra, er hann á hér marga. — ROSE ; THEATRE '" ....... Friday and Saturday Oct. 16 and 17 BEYOND VIGTORY With BIIX BOYD — ZASIJ PITTS j MABION SHILLINGS JAMES GLEASON Comedy — Serial — Cartoon Mon., Tues., Wed., Next Week .JACK HOLT in The Last Parade Added: Serial — Cartoon — News QBgnpr Exchange Furniture Bargains SAVE BY OUR CLEARANCE PRICES ON RECONDITIONED FURNITURE. EVERY STYLE AVAILABLE ON VERY EASY TERMS. ‘The Reuaöle Home Furnishers' 492 Main St. Phone 86 667 CARL THORLAKSON úrsmiður 627 Sargent Ave., Winnipeg Sími: 27 117. Heima 24 141 J. A. JOHANNSON Garage and Repair Servlca Banning and Sargent Síml 33573 Haima «íml 87136 Kxpert Repair and Complete Garmge Serrice Gm, 094, Extras, Tiree, BaCteriet, Etc. Ekki lætur Guðmundur sjáan- lega aldurinn á sér hrýna, því stundina, sem hann var inni á skrifstofunni, var hann eins fjörugur og ungur galgopi væri. • * • Guðm. Bjarnason, 309 Sim- coe St., biður þess getið í blað- inu, að talsímanúmeri sínu hafi verið breytt nýlega og sé nú 3S 979. • • • Guðmundur Elíasson kom vestan úr landi s.l. miðvikudag. Hefir hann um tíma verið norð ur í Peace River dalnum í grend við Spirit River, sem er við enda járnbrautarinnar, ein- ar 300 mílur fá Edmonton. — Fimm íslenzkar fjölskyldur kvað hann þar eiga heima, þar á meðal synir hans þrír. Einn sonur hans, Ágúst, býr í Árnes- bygðinni, og hjá honum er Guðmundur og kona hans nú. Nöfn hinna íslendinganna við Spirit River eru þessi: Gunn- laugur Björnsson og Óli Jó- hannsson, báðir frá Leslie, og Hjörtur Bjarnason, ættaðurí úr Hlíð á Vatnsnesi. • « • Kristján Pétursson frá Ár- borg, Man., kom til bæjarins s.l. mánudag í viðskiftaerindum. • • • Stúkan Hekla hefir ákveðið að halda skemtifund mánudags- kvöldið þann 19. þ. m. Allir I — Gooodtemplarar boðnir vel- komnir. — Ilmandi kaffi verð- j ur síðasti liðurinn á skemti- j skránni. * * * Eins og getið var um í síð- I asta blaði Heimskringlu, hefir j hr. málmfræðingur Jón Ólafs- j son gert hjálparnefndum beggja l íslenzku kirknanna hér í bsén- ; um það rausnarlega boð, að i flytja fyrirlestur með skugga- myndum til ágóða fyrir sjóði j þeirra. Hefir nú verið ákveðið j að samkoma þessi fari fram í ! kirkju Sambandssafnaðar föstu dagskvöldið 30. öktóber n. k Eru það vinsamleg tilmæli hjálp arnefndanna að menn minnist þessarar samkomu og styrki J hana með því að koma. — Að- gangurinn er aðeins 25 cents og eru aðgöngumiðar til sölu hjá hjálpamefndum beggja kirknanna. • • • Ungfrú Rósa Hermannsson í Toronto söng yfir radíóið þann 9. október s.l. nokkra íslenzka söngva. Hlýddu íslendingar hér vestra á söngkonuna með mikilli ánægju. SKEMTISAMKVÆMI FYRIR ALDRAÐ FÓLK. Kvenfélag Sambandssafnað- arins að Lundar, Eining, stofn- aði til gleðimóts fyrir aldrað fólk í bygðinni sunnudaginn 4. þ. m. Var það haldið í kirkju safnaðarins og var það vel sótt. i— talsvert á annað hundrað manns, flest fólk eldra en 65 ára, en nokkuð með af yngra fólki. Séra Guðm. Árnason stýrði samkvæminu. Var fyrst sunginn sálmur og flutti séra Guðmundur stutta ræðu, ávarp til gestanna. Vigfús Guttorms- son, Mrs. Ljótunn Sveinsson, Mrs. G. Finnbogason og fleiri skemtu með söng, og auk þess voru allmörg íslenzk lög sung- in af öllum. Jón Kristjánsson las kafla úr “Manni og konu” og var gerður að því góður rómur; Miss Aldís Magnússon las Alþingishátíðarljóð Davíðs Stefánssonar; Ágúst Magnússon flutti ávarp til gamla fólksins; Vigfús Guttormsson las nokk- ur kvæði eftir sjálfan sig; Ste- fán Scheving frá Winnipeg sagði gamansögu, og mælti fram gamalt gamankvæði er hann hafði ort fyrir 40 árum; Eiríkur Scheving mælti fram kvæðið “Elli sækir Grím heim’’ eftir Þorstein Erlingsson og sagði nokkur orð til áréttingar efnisins í kvæðinu; Jón Kristj- ánsson las nokkrar vísur eftir Sigurð Gíslason, og eru nokkr- ar þeirra prentaðar hér. Að skemtuninni afstaðinni var sezt að borðum. Voru veit- ingar hinar rausnarlegustu og skemtu menn sér við samta1 meðan menn nutu þeirra. Guð- brandur Jörundsson og Gísl Ólafsson lásu kvæði undir borð um, meðal annars “Sjúkdóms- lýsingu” eftir Pál Ólafsson. Samkvæmi þetta var að öllu leyti hið skemtilegasta og á Kvenfélagið Eining þökk skilið fyrir að hafa glatt gamla fólk- íð. Væri vel við eigandi að slíkí værí oftar og víðar gert, þar sem venjulegar skemtisamkom- ur með dansi eru sjaldan við hæfi aldraðs fólks. Viðstaddur. • • • SKEMTUN. Á fundinn koma kvendin hlý, kaffið rjóðar heita; saman starfa Eining í, ánægjuna veita. Hressing miðla mildust fljóð meður vilja sönnum; þær hafa tíðum gæðin góð gefið þurfamönnum. Þar sem fylst er fátæktin, fatar menn og seður, áfram lifi Einingin, Ó9kar sá er kveður. S. .G. FRÁ ÍSLANDI Vopnaf. 16. ág. Tíðarfar ágætt að undan- förnu. Spretta orðin sæmileg Menn hafa náð inn allmiklu af heyjum. Nýting ágæt. — Aflabrögð sæmileg. Síld veiðst með allra mesta móti fram að þessu, en er nú hortfin. — 14. þ. m. andaðist að Fossi í Hofs- sókn Gestur Sigurðsson, í hárri elli. Hann var tengdafaðir Ste- fáns sál. Eiríkssonar tréskurð- armeistara í Reykjavík. • • • Rvík 12. sept. Kaupfélag í Rvík. —- Undir- búningur til kaupfélagsstofnun- ar í Reykjavík er hafinn fyrir nokkru. Á fundi, sem haldinn var í Kaupþingssalnum 7. þ. m. var kosin nefnd til þess að semja uppkast að lögum fé- lagsins og boða til stofnfund- ar svo fljótt sem nauðsynlegum undirbúningi væri lokið. í nefnd ina voru kjörnir Hermann Jón- asson lögreglustjóri, Jón Árna- son framkvæmdarstjóri, Hann- es Jónsson dýralæknir, Pálmi Hannesson rektor, Eisteinn Jónsson skattstjóri, Helgi Bergs forstjóri og Theódór Líndal lög- fræðingur. Á fundinum mættu um 200 manns. • • • Rvík 12. sept. Kaupfélag Eyfirðinga hefir haft hér í bænum undanfarna viku sýningu á ostum og smjöri frá mjólkursamlagi sínu. Hljóta þessar vörur almanna lof og hefir aðsókn verið mikil að sýn- ingunni. Er yfir mjólkurvinslu K. E. sami bragur og öðrum fyrirtækjum þessa glæsilega samvinnufélags. — Verð á vör- unum mun lægra en hér tíðk- ast í búðum. • • • Rvík 12. sept. Látinn er á Seyðisfirði Árni Kristjánsson símritari. — Bar dauða hans óvænt að og snögg lega, en banameinið var heila- blóðfall. Árni heitinn var mað- ur á bezta skeiði, vel gefinn og ritfær prýðilega. Rvík 12. sept. Atvinnubætur. — Samkvæmt fjárlögunum frá þinginu í sum- ar er ríkisstjórninni heimilt að taka að láni 300 þús. kr. og verja til þess að veita aðstoð sveitar- og bæjarfélögum, gegn tvöföldu framlagi hlutaðeiganda sveitar- og bæjarfélags. í at- vinUunefnd hafa nú samkvæmt lögunum verið skipaðir: Sigur- jón Ólafsson formaður Sjó- mannafélags Rvíkur (útnefnd- ur af Alþýðusambandi íslands), Maggi Júl. Magnússon læknir (útnefndur af bæjarstjórnRvík- ur) og Sigurður Sigurðsson búnaðarmálastjóri, sem jafn- framt er skipaður formaður nefndarinnar. — Atvinnunefnd veitir viðtöku umsóknum um atvinnubótastyrk og gerir tii- lögur um hversu og til hvaða verka honum skuli úthlutað, eftir nánari fyrirmælum lag- anna, en atvinnumálaráðuneyt- ið úrskurðar um styrkveiting- ar, að fengnum tillögum nefnd- arinnar. Verði fé eigi nægilegt til að veita vinnu öllum þeim, sem eigi hafa, ganga fjölskyldu menn fyrir öðrum. Fulltrúi bæj- arstjórnar Rvíkur víkur úr nefndinni, ef um er að ræða at- vinnubætur í öðru bæjar- eða hreppsfélagi og það hefir út- nefnt fulltrúa fyrir sína hönd. • • * Rvík 12. sept. Bygging þjóðleikhússins er haldið áfram í sumar. Er ný- byrjað á verkinu, og er það unnið f ákvæðiíjvinnii. Var leitað tilboða í að steypa veggi ofan kjallara (sem áður var byggður) gengið að tilboði frá sama manninum, sem sfceypti kjallarann, kornelíusi Sigmunds syni. • * * Rvík 12. sept. Bruni. Aðfaranótt 3. þ. m. brann íbúðarhús og brauðgerð- arhús Stefáns Sigurðssonar bakara á Akureyri til kaldra kola. Fólk komst nauðulega út. Engu var bjargað af hús- munum. Verzlunarbækur brunn u og voru þó í skáp sem átti að vera eldtryggur. Húsmunir vá- tryggðir. MERKUR FORNGRIPUR Verndargripur með rúnaletri fundinn hjá Sigtúnum í Svíþjóð. í vor var verið að grafa fyrir kjallara að skólahúsi hjá hinum fornu Sigtúnum í Sví- þjóð. Á rúmlega meters dýpt komu verkamennirnir niður á fornleifar. Þar var aska, bein, brot úr leirkrukkum, dálítill boginn járnbútur, lítið brýni, hárgeiða og hárnálar úr beini, tvær framtennur úr hesti og dálítil koparþynna, ílöng, með gati í öðrum enda. Eru á henni rúnir og er auðséð á öllu, að þetta hefir verið verndargripur, og verið borinn í festi um háls inn. Líkur vemdargripur úr kopar eða bronze fanst einu sinni í Maglemose í Danmörku, skanít frá Dómkirkjunni í Hró- arskeldu. Er hann einnig með rúnum, sem ekki hefir enn tekist að þýða til fullnustu. Af rúnunum á þessum grip, sem fanst hjá Sigtúnum, og mál inu, má marka það, eftir dómi fornfræðinga, að þær hafi ver- ið ristar fyrir árið 1000, eða ekki seinna en 1100. Þynnan er ekki stærri en svo sem fjórði hluti úr 10 króna 9eðli, en á hana eru þó ristir um hundrað rúnastafir, og auk þess strik til þess að skilja á milli lína, og ennfremur nokkur tákn til þess að skilja á milli orða. Á fram Ragnar H. Ragnar pianist and teacher Studio: 566 Simcoe St. Phone 39 632 m Palmi Palmason L. A. B. violinist and teacher Studio: 654 Banning St. Phone 37 843 Joint Studio Club Every Month Pupils prepared for examination hlið þynnunnar eru tvær lín- ur, en þrjár á hinni hliðinni. Sænski fomfræðingurinn, Ivar Lindquist docent, sem mik ið hefir fengist við rúnaráðning- ar og ritað sérstaka bók um galdur og galdra rúnir í fom- eskju, hefir fengist við það að lesa og ráða rúnirnar á þessum verndargrip. Hann segir að rúnirnar sé mjög auðlæsi- legar og auðráðnar, sérstaklega vegna þess, að sá, er þær.reist, hafi sett merki milli orða, þar sem hættast var við að orð rynni saman og yrði ólæsileg. Áletrunina les Lindquist þannig: Þórr, sáer réþu, þurs(a) alrýri, en fliúþ unnu, und i enni. Ef þáer þríar þráar ylfi, ef þáer níu nöþir ylfi. Eghi ésir, es ésir áe, kinds naer, ef nítnd lýi. EÐLILEG NÆRING City Milk veitir hreina og gerilsneydda fæðu fyrir alla í fjölskyldunni, jafnt eldri sem yngri. Beinið börnun- um inn á þessa heilsusam- legu braut City Milk nú þegar. I*HONE 87 647 Það er nú einkennilegt að hér kemur fram vísa undir forn- yrðalagi, átthend og rímuð, og í henni miðri stef. Vísan kann nú að þykja tor- skilin, þrátt fyrir þessa skýr- ingu, en útlistun Lindquists á henni er þessi: Þór, þrumu1- goð, þursa alrýrir, er fljóð unnu, (með) und í enni. Þótt þér þrjár áhyggur ógni, þótt þér nífaldar neyðir ógni, eigi óar þér, sem aldrei óar, bjarg- vættur kynkvísla, slá þú hina níu. Vera má, að ekki verði allir sammála Lindquist um þessa þýðingu, en þó er rétt að geta þess hér hvaða röksemdir hann færir fram, henni til stuðnings. Hann segir svo í grein í “Svenska Dagbladet”: Flest orðin í fyrra vísuhelm- ingi eru komin úr forn-íslensku, og efnið er vel sanirýmanlegt því, sem vér vitum um átrún- aðinn á Þór. Und-í-enni finst mér svipa mjög til viðurnefnis- ins ormur-í-auga(Sigurður orm- ur-í-auga), og það bendir einn- ig til hinnar alkunnu sögu um Þór og Hrungni jötun, sem hafði hjarta og höfuð úr steini, og hein að vopni, þá er Þór fekkst við hann. Sagan segir að Þór hafi kastað hamri sín- um að honum og jötuninn sam- tímis hein 91'num að Þór. Vopn- in mættust í fluginu, en héldu áfram. Hamarinn molaði haus þursans, en brot úr heininni lenti í höfði Þór, “og þar er hún enri’. Það verðu rekki séð af forn- ritum íslendinga, að Þór hafi átt mikilli kvenhylli að fagna, en Adam frá Brimum segir, að Svíar hafi tignað hann, sem frjó.semi9goð, og Þrymskviða gefur í skyn að brúður hafi verið vígð með Þórsmerki. Þá kemur Lindquist að stef- inu If thir thriar tlirar ulf if thir niu nothir ulf, og segir þar um: Það er kunnugt að slík stef voru algeng í galdraljóðum Ger- mana (9já bók mína “Galdrar”, 1923). Eftirtektarvert er, að töluorðið þriar (þrjár) fellur við tafluorðið níu, og að í fornsænsku eru orðin thrar og nöthir sömu merkingar, með öðrum orðum, að þrjár áhyggj- ur eru eins og níu neyðir. En það, sem verst er hér við að eiga er orðið ulf, sem er tví- tekið. Hér hygg eg að eigi að standa viðtengingarháttur sagn arinnar ylfa, en í fornmálinu þýðir sú sögn að espa, jafnvel ógna, hræða. Það þýðir í raun inni sama sem að vera öðrum úlfur, á ensku to wolve = to behave like a wolf, play the wolf. Sérstökum heilabrotum hafa mér valdið orðið kis og nir. Þessi orð brjóta í bág við alt það, 9em sænska tungan geym- ir, og þess vegna verður mál- fræðingurinn að grípa til leið- beininga utan Norðurlanda. t engilsaxnesku þýðir ner t. d. athvarf (hjá guði). í samhandi við það þýði eg gis með kinds. Eignarfallið er öðru vísi, en menn mundu ætlað hafa, en það á stað í sænskum mállýzk- um og jafnvel þýskum. í hinum fornu bókmentum íslendinga er ekkert ámóta þessu. Helst væri það þó í hinni torskildu Þórsdrápu, þar sem talað er um að hvorki skjálfi hjarta Þórs né Þjalfa af ótta. Eg hefi lagt Þórsdrápuna og norskt bygðamál til grundvall- ar, er eg skýrði orðin ihi isir, sem er samstofna sögninni eisa. Siðan minnist Lindquist á rímið í þessum rúnum, og þyk ir það merkilegt, og svipa mjög til áletrana þeirra, er fundist hafa í rúnasteinum frá víkinga öld bæði í Svíþjóð og Danmörk, t.d. á hinum svonefnda Sjörup- steini í Danmörku: Sa flo eghi at Uppsalum en va meth han vapn hafthi. (Só fló eigi hjá Uppsölum, en va meðan vopn hafði). Það væri verk fyrir íslenska fróðleiksmenn að freista þess, hvort þeir geta ekki ráðið rún- ir þessar betur, því að þeim ætti að veita það hægast allra manna, því að íslenskan er lykill að allri forneskju, á Norð- urlöndum. |í niðurlagi greinar sinnar segir Ivar Lindquist líka: Mér mun leyfast að taka svo djúpt í árinni, að segja að þessi fundur sé ómetanlegur. Hann hefir stórmikla þýöingu fyrir fornfræðinginn, trúar- sagnritarann, bókmentafræð- inginn og menningargrúskar- ann, ekki síst vegna þess, að hann sannar það, er marga hafði grunað áður, að í Sig- túnum voru enn heiðnir menn á dögum Ólafs skautkonungs. —Lesb. Mlbl.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.