Heimskringla - 24.08.1932, Blaðsíða 2

Heimskringla - 24.08.1932, Blaðsíða 2
2 BLAÐSÍÐA HEIMSKRINGLA WINNIPEG 24. ÁGÚST 1932. BRÉF TIL HEIMSK.RINGLU. Háttvirti Rritstjóri: Mér finst eg þurfa að svara athugasemdum þínum við bréf mitt í síðustu Hkr. Ekki fyrir það að þú notaðir tækifærið til að henda ofboð litlu skopi að mér. í>að er einatt tiltrekkjandi og gerir minst til. Hitt er það, að þú hefir í stöku stað aflagað tilgang orðanna og ennfremur opnað nýjar afleiðir, sem ekki voru voru afgreiddar til fulls Þú læzt ganga út frá því sem vísu að bæði S. J. og eg séum samþykkir Evrópuþjóðum þeim, mun sem þú gerir á stríðslánun- um og skaðabótaskuldunum. Hvorttveggja var í sama augna- miði afleyst; munurinn aðeins þessi að strfðslánin voru sam- þykt og undirskrifuð fyrir hag- fræðilega neyð, en skaðabæt- urnar vegna þess að hinir yfir- unnu voru neyddir til þess með afli hers og máttar. Þessvegna nefndi eg Versala gerðirnar á- kvæði en ekki samninga. Þar dómákvæði, sem hinn kærði varð að játa til að leysa lífið, og Bandaríkin voru sam- sek hinum heimskingjunum í öllu því braski. Jafnvel Eng- ’endingar eru, ótilkvaddir, fyrir er neituðu að minka vopnaburð ^ jgngU gfðan búnir að gefa upp sinn ef Bandaríkin gæfu upp stríðslán þeirra. En fyrir þeim skilningi er, mér vitanlega, ekki nein réttmæt ástæða. Herrarn- ir eru all-lengi búnir að þvæla um þetta stríðsskuldamál og Bandaríkin hafa stöðugt verið allri tilslökun andvíg, skilmála- laust, þangað til Hoover, nú fyr- lr skemstu, kastaði fram þess- ari uppástungu um takmörkun vopna, sem skilyrði í því sam- bandi. Fljótt á litið var það áheyrilegt og mannúðlegt til- boð, en hafi nokkur “skollaleik- ur'' átt sér stað í þessu máli, á hann einmitt heima í þessum þætti skrípaleiksins. Á afvopp- unar þingum hafa Rússar marg- sinnis farið fram á algera af- vopnun svo Bandaríkjum var al- Ijóst hverra undirtekta væri að vænta. Ennfremur hafa stríðs- skuldirnar lítil sem engin áhrif á vopnaburð. Rætur þess ó- fagnaðar liggja dýpra en það. Ekkert nema afnám kapitalis- mans getur áhrært stríð og víg- búnað svo um muni — og það spor er hvorki Hoover, né hinir stór-herrarnir, að áforma sem stendur. Um þetta atriði virðist þú, rit- stóri góður, vera mér nokkurn vegin samdóma, því þú segir: “Stríðin eru sporttin af við- skiftagræðgi, sem alt heilbrigt og fagurt ber ofurliði og ber vott um skort á sönnum kristin- dómi og sannri þjóðrækni.’’ En þá samsinnist Hoover þeim barnaskap að tala um að af- nema stríð án þess að afnema viðskiftagræðgina, sem þeim veldur. Eg fæ ekki séð hinn mikla mest af lánunum til samherja sinna. Hoover gat þess að ef Evrópu þjóðirnar hættu að verja biljón- um til vígbúnaðar gætu þær notað það fé til útgjalda, og þannig grynt á skuldunum; og ’pú tekur í sama streng ef mig minnir rétt. Viltu nú vera svo góður að útskýra fyrir mér hvernig það mætti ske? Eg fæ ekki eygt hvemig það gæti losað einn einasta dollar til út- gjalda. Eini vegurinn til þess, sein mér hugsast, er sá, að þær ~eldu Hoover byssurnar, dallana g alt draslið móti kvittun. En bæði yrði tollgarðurinn senni- lega í veginum, og svo, eflaust, lækti það að nokkru hans eigið ifvopnunarstand. En það yrði samt sjálfsagt einfaldara mál en það, að innkalla skuldimar í skildingum. Ekkí veit eg hvers vegna þú gerir svo mikið veður út af um- mælum mínum um þjóðrækn- ina. Eg býst við að mér hafi farist óhönduglega að skýra hvað eg átti við, en þó finst mér að óvilhöll yfirvegun hefði átt að finna það. Eg tók fram að sönn þjóðrækni væri eðlileg og jafnvel lofsverð, en vegna þess að meirð hugans er henni ávalt samfara er kapitalismanum auð- velt að nota hana, sem æsinga- yf til úlfúðar, ósanngirni og stríða. Kristninni er misbiðoð bjóðast. Eðli beggja er af góð- um og göfugum hvötum runnið, en fésýslan brjálar afkast og framferði þess, eins og allra ann ara mannlegra dygða. Þennan skilning trúi eg að St. G. hafi borið, þrátt fyrir vís- una, sem þú vitnaðir í. Hann var ákjósanlegur heimsborgari, ilt svo íslenzkur sem hann var, því þjóðrækni hans var af því sann-heilnæma tæi, er ekki læt- ur æsast til blinds fylgis, haturs og skrílmensku. Eg veit að þótt allar þjóðir heimsins gengju í eitt allsherjar bandalag, í tililti til stjórnar og hagfræða myndi þess langt aö bíða að hin ýmsu þjóðerni hirfu, því “röm er sú taug, er rekka dregur föðurtúna til’ ’, og er það hygg eg, sú hugsun, sem fyrir Stepháni vakti er ljóðið, sem þú vaktir máls á varð til. Eins og líffæri mannsins eru hverju öðru ólík, en vinna þó saman án þess að hnotabítast um hvert þeirra sé æðst og nauðsynleg- ast, svo gætu hinir ólíku mann- flokkar starfað saman hver öðr- um til heilla, væri fésýslan, og tortryggnin sem hún elur, af dögum ráðin. Lífið sjálft er tákn þeirrar óánægju í efninu, er allri útsækni veldur; og seint mun þróunar-geta materíunnar svo til þurðar ganga að hætt sé við “aldauða himins og jarðar’’ vegna of fullkomins samræmis Þér þykir ólíklegt að ^eg álíti Rússa óþjóðræknast fólk heim sins, en það er nú einmitt það sem eg geri. ítáðstjórnar Sam- bandið, sem ríkjum ræður nú og átt er við þegar á Rússland er minst, telur meðlimi sína eiga fyrir þegnbræður allar fyrirvinn ur mannkynsins og, meira að segja, móðgast ef um þá er tal- að sem Rússa. Þjóðernis-með- vitund þeirra, eins og er, lýtur í lægra haldi fyrir bræðralags- hugsjóninni. En sigri sú hreyf- ing sem þeir veita forystu má búast við að þjóðrækni þeirra endurvakni og efni til nýrra starfa á sviði menningarinnar. Um þær þjóðir, sem frjálsa á sama hátt. Sönn þjóðrækni i versiun heimta, sér til hagnað- æfst um hinar háleitari hug- ar og prédika á móti þjóðrækni jónir og heimili hvers flokks j í sama tilgangi, get eg ekki rætt manna, er sameiginlegum til-1 með neinum ábata því eg er -'ansd þannig binzt, en kristni þeim með öllu ókunnugur. Eg aftur um hin bróðurlegu og and vissi ekki að þær væru til. 1ogu verðmæti, er mannkyninu Þú getur til að fjölmörgum Þú segir satt/ það borgar sig að “VEFJA SÍNAR SJÁLFUR” með.. Þúsundir neytenda segja þetta, því þeir hafa reynt það, upp aftur og aftur. Þér getið vafið upp að minsta kosti 50 cígarettur úr 20c pakka af Turret Fine Cut, cígarettu tóbaki. Og yður mun geðjast að hverri cíga- rettu sem þér vefjið upp. Þess fleirl sem þér vefjið upp, þess meiri nautnar njótið þér af þeim. M or 20c Dakkar r~C ÓKEYPIS Chantecler cígarettu pappír fylgir hverjum pakka. TURRET T k muni finnast þörf á athuga- semdum við mál mitt, og er eg vel ásáttur með það. Væri ekki svo færi mig sjálfan að gruna að eitthvað væri meira en lítið bogið við niðurstöðurnar. Eg hefi frekar dáð hugdirfð en höfðatölu og því oftar fylgt þeim flokknum, sem fámennari var. Nái hann fjölmenni og framkvæmdum verður tími til- komin að brjótast aftur útleiðis, því meðalmenskan er makráð og lítilþæg, en veggurinn fram- undan ekki nema hillingar, er endurspegla íhald manns og ótta. Eg hvorki miklast af því innræti né iið afsökunar, og háð og gamansemi fá mér engis hugarangurs. Lífsmark, af hverju tæi, er vonríkt tákn þess ósamþykkis, sem áræðið kveik- ir. Það er jafnvel heillavæn- legra að fara afleiðis en hvergi. P. B. * * * Aths. ristj.:— Vér skulum ekki vera lang- orðir um þetta bréf, sem bera á í bætiflaka fyrir staðleysu- skraf höf. í fyrra bréfi hans. En að þegja um það, er þó ekki hægt, vegna þess að höf. reynir þar enn að styðja mál sitt með fjarstæðum. í ofskráðu bréfi heldur höf. því fram að Bandaríkin séu jafnsek Evrópuþjóðunum um Versala-samningana. Ef þetta er ekki sagt gegn betri vitund, vitum vér ekki hvað halda á um sannleiksást höf. Versalasamn- ingarnir koma Bandríkjunum ekki hið minsta við. Þeir voru svo óaðgengilegir í augum þeirr ar þjóðar, að hún neitaði, að vera aðili þeirrar ósvífni er þar var í frammi höfð. Að P. B. ekki viti þetta, má einkennilegt heita. Og til þess, að finna þeim orðum sínum stað, að Bandaríkin séu eftirbátur Ev- rópuþjóðanna í að gefa eftir stríðsskuldir sínar, bendir höf. á að England hafi nú þegar gefið eftir mest af stríðslánum sínum. Sannleikurinn er sá, að Bretland hefir gefið jafnmikið eftir af þeim og aðrar þjóðir hafa gefið því, en ekki meira. En Bandaríkin hafa gefið Frakklandi eftir öll lán sem veitt voru fyrir árið 1918, skil- málalaust. Það er því undar- iegt, að vera að bera sakir á þau fyrir tregðu í að gefa eftir stríðsskuldirnar, er vitanlegt er, eða ætti öllum a’ð vera vitan- legt, að þau eru eina þjóðin, sem lit hefir sýnt á því, en hin- ar stríðsþjóðirnar ekki. Þó Eng- land striki út skuld við Frakk- land, með því skilyrði að Frakk- land stríki út jafnmikla fjárhæð af skuld þess, er þar ekki um neina uppgjöf skulda að ræða. Höf spyr með hverju Evrópu- þjóðirnar eigi að greiða stríðs- lán sín, hvort þær eigi að gera það með byssunum og döllunum o. s. frv. Það ber á að líta, að Bandaríkin eru ekki, að krefj ast skulda sinna, ef Evrópu þjóðirnar aðeins brjóta byssum ar og sökkva döllunum. En meðan þær gera það ekki, en halda í þess stað áfram að veita eina eða tvær biljónir dala árlega til þess, að efla og bæta byssur sínar og dalla, þá gætu þær með þeirri upphæð, ef fram á það væri farið af Bandríkjunum, grynt á stríðs- skuldum sínum. En því má ekki gleyma, að fram á þessa borgun fara Bandaríkin ekki. Þau segja aðeins, úr því að þið eruð í fjárþröng, þá sparið vopnaútbúnað ykkar og notið sjálfar féð, er þið til hans eyð- ið, til þess að bæta hag ykkar. Þetta er svo drengileg stefna og framkoma í þessum málum, að vér fáum ekki séð, hvernig af nokkurri sanngirni er hægt á móti henni að mæla. Og vér efumst ekki um, að augu al- mennings eru opnari fyrir sann- gildi og réttsýni hennar en augu P. B. virðast. Draumóra virðist það og minna á er P. B. heldur fram um þjóðrækni Rússa. Að í- mynda sér að þeir séu að berj- ast við að útbreiða stjórnarfars- stefnu sína af því, að þeir beri meiri elsku til allra manna, en sinnar eigin þjóðar eða þjóð- emis, er skilningur, sem vér ef- umst um að Rússar sjálfir eða nokkrir aðrir, hafi á þjóðviðreisn artilraunum Rússa. 1 prédikun- um Rússa heima fyrir, er það sterkasta eggjunin til lýðsins, að Rússar eigi að verða önd- vegisþjóð heimsins, alveg eins og Bretanum hefir fundist, að hann ætti að vera og Þjóðverj- um fyrir stríðið mikla, að min sta kosti. Rússar eru með öðr- um orðum af sömu hvötum að vinna að útbreiðslu sinnar þjóð- menningar og aðrar þjóðir. Svipað kemur fram í bræðra- lagshugsjóninni, sem P. B. eign- r þeim. Það er sama bræðra- lagshugsjón og aðrar þjóðir hafa varið yfirgang sinn með, eða foringjar þeirra. Það er bræðralagshugsjón Kains en ekki Krists, sem þar ræður lög- um og lofum. Eins og einstakl- ingar flestra landa geta um það borið, svo getur Trotzky, sem útlægur var ger af Stalin, borið þessu vitni í Rússlandi. Sjálfs- elskan á sér enn meira grið- land í heiminum en kristilegur bræðraandi, og ekki síður í einu landi en öðru. Það er fagur draumur, að hugsa sér mennina engla. En það er eins fjarri raunveruleika og mest getur verið eigi að síður. Höf. gefur í skyn, að vér höf- um álitið hann standa einan uppi með skoðanir sínar, og smíðar svo utan um það skáld- legan vef um sjálfstæði sitt og áræði. Af þessu þarf hann ekk- ert að miklast því hver sem á >að lagið vill ganga, að mæla eins og fjöldinn hugsar, þarf ekki annað en að finna, að nú- verandi ástandi í heiminum. Það er svo aðfinningarvert, að það mun leit á þeim manni, sem ekki samþykkir það afdráttar- laust. P. B. á ekkert á hættu með þær aðfinningar sínar og berst í því efni aðeins með straumnum. En það er dálítið annað að sjá sjúkan mann og tala um þjáningar hans, en að lækna hann. Hið fyrra geta allir, en hið síðara er þrautin þyngri. Og þó að mönnum sýn- ist sitt hvað um lækninguna, er ekki þar með sagt að allir séu fjandmenn hins sjúka nema P. B., þó honum sjálfum finnist það. Skýring P. B. við vísuna er tekin var upp eftir St. G. er ó- þörf. Vísan skýrir sig sjálf. Og St. G. var auk þess sá er sízt varð skotaskuld úr að finna því orð sem hann vildi segja. P. B. gat þess snemma í fyrri grein sinni, jafnvel áður en hann tók til verks, að hrekja greinar vorar um stríðslánin, að rök- færslur þeirra væru fallnar eða úr sögunni. Við bíðum og sjá- um hvað setur með það. / VÍSINDARANNSÓKNIR FYRIR LANDBÚNAÐINN Ágæti íslenskrar moldar Fyrir nokkru skrifaði Fr. Weis prófessor hingað og skýrði frá fyrstu athugunum sínum á jarðvegssýnishornum þeim er hann tók hér í vor. Hann furðar á því, hve ís- lenskur jarðvegur er í eðli sínu ágætur. Hann hafði ekki órað fyrir að slík, frjósemi væri hér í jarðveginum. Ef Danir hefðu eins frjóa jörð og eldfjallajarð- veginn íslenska, væru þeir betur staddir með búnað sinn en raun er á, segir hann. Það er fyrst og fremst upp- runalegri frjósemi hins lslenska jarðvegs að þakka, að íslenskur landbúnaður getur átt glæsilega framtíð. — Jarðvegsrannsóknum hefir miðað ákaflega mikið áfram tvo síðustu áratugi. Nú geta menn mun betur en áður gert sér grein fryir öllu eðlisástandi jarðvegs og gerlalífi hans og hvernig gróðurskilyrðunum hag ar til eftir því hvemig líf og eðli jarðvegsins er. 1 slíkum nýtísku rannsóknum stendur Fr. Weis prófessor með- al fremstu manna. !En þó hér sé gerð hin mikil- verðasta byrjun, er það aug- Ijóst, að ágæti íslenskrar gróð- urmoldar er ekki alls staðar hið sama, og mikið starf er fyrir höndum til þess að fullreyna, hvernig eðlileg og upprunaleg frjósemi landsins verður best hagnýtt. Allar búnaðarafurðir Dana síðustu 50—60 árin eru bygðar á traustum grundvelli vísinda- legra rannsókna. Þeir hafa því lengi séð, að frumskilyrði bún- aðarframfara eru vísindalegar rannsóknir og athuganir. Hér hafa búvísindarannsóknir átt erfitt uppdráttar fram á þennan dag. Stofnuð var “rann- sóknastofa í þarfir atvinnuveg- anna’’ nýlega. En hún hefir aðeins komist á pappírinn enn. Hér í Rekjavík er nú geymd ónotuð hin góða gjöf Þjóðverja, er þeir gáfu hingað, í tilefni af Alþingishátíðinni, verkfærin í vísindalega rannsóknastofu. Með allri virðingu fyrir öðrum vinargjöfum til þjóðarinnar á því herrans ári, mun vart önnur hafa verið betur til fundin, en gefa hingað verkfæri til vísinda- ■annsókna, til að rannsaka nátt- úrleg skilyrði fyrir atvinnuvegi landsmanna. En tæplega verður það talið vansalaust, að gjöf þessi fær að liggja ónotuð, vegna þess að ekkert húsnæði er fyrir hendi fyrir verkfæri þessi. Þó fjárhag landisins sé illa komið, sem kunnugt er, þá mega fjárhagsvandræðin ekki draga úr áhuga manna fyrir vísinda- legum rannsóknum sem komið geta •atvinnuvegum landsmanna að notum. Þvert á móti. Eins og búnaðarkreppan fyrir 50—60 árum kendi Dönum að byggja framtíð landbúnaðarins á vís- indarannsóknum, eins ætti nú- verandi kreppa að kenna okkur að fara sömu leið. Það er bein skylda lands- stjórnarinnar að sjá íslenskum vísindamönum fyrir húsnæði til rannsókna sjá til þess m. a. að hin ágætu verkfæri sem til eru, komi að notum, og íslensk vís- indi geti dafnað sem örast, til ómetanlegs gagns fyrir atvinnu- vegi vora, jafnframt vitanlega að sjá fyrir því, að þeir menn sem áhugasamastir eru um hag- kvæm vísindi og besta þekkingu hafa í þeim efnum, fái sem best að njóta sín. Athuganir Fr. Weis prófessors á íslenskum jarðvegi ættu að geta vakið ýmsa menn, sem áður hafa veitt vísindarannsókn um litinn gaum, til umhugsunar um það, að vísindin verði betur en áður tekin í þjónustu hins íslenska landbúnaðar.—Mbl. SLYS Maður drukknar við Skaftárós. Aðfaranótt 25. þ. m. voru þrír menn við silungsveiði í Skatár- ós. Höfðu þeir net og drógu það á eftir sér. Við annan end- ann á netinu var Jón Vigfússon frá Geirlandi, en félagar hans tveir við hinn endann. Voru þeir fast við útfallið og féll sjór inn í ósmynnið. Jón Vigfússon var við ytri endann á netinu. Kom nú alda inn í ósmynnið og hefir þá orðið það djúpt, að Jón hefir ekki botnað og sogaðist hann út í sjó með útsoginu og drukknaði. Hann var allvel syndur, en straumurinn hefir verið svo mikill, að hann hefir ekki getað beitt sér á sundi. Eftir nokkrar klukkustundir rak lík hans þar á fjörurnar. Jón heitinn var einkar efni- legur piltur, að eins 23 ára að aldri. Hann var systursonur þeirra bræðra, Lárusar Helga- sonar alþm. og Helga Bergs forstjóra Sláturfélagsins.—Mbl.

x

Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimskringla
https://timarit.is/publication/129

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.